Heimskringla - 31.05.1895, Side 1
3
ringia
ix. Ar.
WINNIPEG, MAN., 31. MAl 1895.
NR. 22.
J Dagatal
$
| Heimskringlu. |
) , 1895 - - JUNI 1895 f
|s. M. Þ. M. Fi. Fö. l.;
1 2 3 4 5 « 7 '4
io 11 18 13 14 Zi 29 J " Á
i 1<$ 17 18 10 20 21
83 84 85 8« 27 88
30 - - - -
-S24- ^
FRETTIR.
DAGBÓK.
FÖSTUDAG 24. MAÍ.
Afinælisdagur Victoriu Breta
drotningar í dag, er þíi 70 ára gömu-
og hefir ríkt (20. Jftní næstk.) 58 ár,
talsvert lengur en nokkur núlifandi
konungur eða keisari.
Fellibyljir hafa valdið stórtjóni í
Texas, brotið hús og skip og eyðilagt
uppskeru.
Rússar eru ekki ánægðir við Jap-
aníta enn; viija nú að þeir dragi alt
setulið sitt burt af Kóreu-skaga.
Leó páfi er mjög veikur altaf og
búist við andláti lians þá og þegar ;
hann er fullra 85 ára gamali. Full-
trúi hans liér í Ameríku, Mgr. Satolli
hefir nú opinberað nokkuð af um-
burðarbréfi páfans til hinna kaþólsku
presta, og sýnir það, að hann er enn
að skora á kyrkjumenn alla að sam-
eina sig í eina lieild, livar í heimin-
um sem er.
I gær fóru fram aukakosningar
í Warwick á Englandi, kjördæmi
fyrverandi þingforseta Peel. Rose-
berry-sinnar töpuðu kjördæminu;
Vnionisti náði kosningu.
LAUGARDAG 25. MAÍ.
Cunardlínuskipið “Lucania’,kom
í gær til Queenstown á íriandi frá
New York, eftir rúmra 5 sólarhringa
ferð. Meðal-ferð skipsins yfir hafið
var rúmlega 24 mílur á kl.stundinni.
Næsthröðust ferð yfir liafið var farin
í Júní í fyrra.
Fyrirtæki J. J. Hills um að ná
tangarhaldi á Northern Pacific-braut-
inni er nú sagt orðið að engu og er
þvi að þakka, eða kenna, að aðferðin
var opinberuð fyrri en allir samning-
ar voru gerðir. Núverandi hluthaf-
ar félagsins, með Brayton Ives ;
broddi fyikingar, ruku til og gerðu
fullnaðarsamhinga ómögulega, eftir
því sem fregn frá Chicago segir.
Skógareldar miklir í Wisconsin
og Michigan-ríkjum. Smáþorp mörg
í Wisconsin eru algerlega umkringd
af eldinum og er óttast að lífs og eigna
tjón verði þar engu minna en I
Minnesota síðastl. haust, ef stórrign-
ingar koma ekki því fyrri.
Standmynd mikil og vegleg af
Sir John A. Macdonald verður af-
bjúpuð í Montreal á fimtudaginn í
næstu viku (6. Júní).
Jarðhristingur olli eignatjóni
miklu í Tyrklandi í gær; 50 manns
biðu bana og 150 meiddust.
MÁNUDAG 27. MAÍ.
Ekki minka austrænu vandræðin
nú. Formosa-menn hafa nú auglýst
eyna lýðveldi og kjörið kínverska
governorinn forseta — Chang Ling
Sung að nafni. Fána hafa þeir og
valið sér, gulan dreka á bláum grunni.
Þetta hefir stórveldunum ölium verið
tilkynt, og fylgir sú ósk, að þetta
nýja lýðríki verði viðurkent. Nú er
eftir að vita hvað Japanítar segja
sem voru rétt um það að taka við
þessari nýju eign sinni. Japanítar
eru og margir á eynni og því liætt
við róstum.
Á laugardaginn var nefnd manna
send til fundar við Roseberry lávarð-
ar til að fregna um fyrirætlanir Breta-
stjórnar um styrk til að leggja frétta
þráð frá Yancouver í Brit. Col. til
Ástralíu. Hann tók vel í málið, en
sagði óráðið hvað gert yrði. Styrk-
urinn, sem Bretar eru beðnir að leggja
fram, er $350,000 á ári. “Times” i
Lundúnum segir fyrirtækið vert þess
að stjórnin leggi til $ 4 milj. á ári
Sáluhjálparherinn, í Ontario að
minsta kosti, er að detta í mola og er
um kent harðstjórn yfirí'oringjans í
Canada, Booths yngra, sonar höfund
arins.
Almennar þingkosningar fóru
fram á Italíu í gær (mánudag) og var
venjufremur lítið um óeirðir. Þing
mennirnir eru 508 alls og er sagt að
úrslitin liafi orðið þau, að stjórnar-
sinnar hafi náð 300—350 kjördæmuin
Crispi stjómarformaður náði kjöri í 9
kjördæmum.
Sir W. C. Van Horne, forseti C.
P. Ii. félagsins spáir á ný að nálgist
sú stund að liveiti komist í $2 bush.
— Hann vill hafa eitthvað handa
braut sinni að ílytja, sem ekki er lá-
andi.
í morgun snemma brunnu her-
mannaskálarnir allir í Pembina, N.
Dak., er stóðu á Rauðárbakkanum
skamt fyrir sunnan bæinn. Púður
geymsluliús með J tonni af púðri í
var innan girðingarinnar, en sú
bygging var öll úr steini og þoldi
eldbaðið. Mannskaði varð enginn
Eignatjónið er metið á $20,000.
ÞRIÐJUDAG 28. MAÍ.
Mið-Ameríku lýðveldin litlu hafa
að. siígn gengið í sóknar og vaniar
samband. Það hafa þau komist næst
algerðri sameining.
Walter Quinley Gresham, for-
maðr utanrikis stjórnardeildar Banda
ríkja, lézt í nótt er leið að heimili
sínu í Washington, eftir lánga legu.
Gresham var mikilsvirður stjórnfræð-
ingur ; yfirgaf dómarastfiðu fyrir
nokkrum árum til að gefa sig við
stjórnmálum. Ilann var 03 ára gam-
all; fæddur 17. Marz 1832, I Harri-
son county, Indiana.
Brezku herskipi nýju, “Terrible,”
var hleypt af stokkunum í gær ná
lægt Glasgow á Skotlandi. Skipið er
sagt hið traustasta og stærsta, er
Bretar eiga. Það ber 14,200 tons,
vélarnar liafa 25,000 hestaaíi og á
það að geta gengið f'ullar 24 mílur á
kl.stund. Alls verða 900 menn á
skipinu.
Rosebery lávarður hefir !agt fyr-
ir þing Breta frumvarp, er heimilar
hæztaréttardómurum í Canada og
Ástralíu að sitja sem fullveðja dóm
arar í dómsmáladeild leyndarráðsins
brezka. En skyld eru útríkin að
borga þeim laun í þeirri stöðu. Blöð
öll á Englandi gera góðan róm að
fyrirætlun þessari.
Hæztiréttur Bandaríkja hefir úr-
skurðað lögin gild og góð, sem banna
innflutning Kínverja í Bandaríkin.
Einn dómarinn var andvígur þessum
úrskurði.
MIÐVIKUDAG, 29. MAÍ.
Franskt gufuskip, “Dom Pedro”,
á leiðinni til Buenos Ayres í Argen-
tina, hljóp ásker norðvestur at Spáni
í gær og sökk. Skipverjar flestir og
farþegjar fórast—yfir 100 manns alls.
^cratcbQs
Spraiqs,
and all pains, extemal
or intemal, are instant-
ly rclicvcd by
PERRY DAVIS*
PalnKilIer.
Thls old remedy Is known, used I
Rnd sold evcrywhero. Gct It and j
Xieep it by you.
Langevin erkibiskup í St. Boni-
face, Man., sem um tíma dvelur í
Montreal sagði þar á opinlieram
fundi í gær, að neituðu hiutaðeigandi
stjórnir í Canada að rétta hluta kaþ-
ólskra í Manitoba, skyldi hann fara
til Englands og flytja mál sitt fyrir
Victoriu drottningu sjálfri.
Talað er um að vegna fjárhags-
vandræða stjórnarinnar muni Cleve-
forseti kalla saman aukaþing í byrj-
un Októbermán. í haust.
Stjórn Breta, bankastjórar og
stórkaupmenn flestir í Lundúnum eru
samtaka í að verja gullið sem hinn
eina aðal-lögeyrir þjóðanna. Áfundi
bankastjóra og verzlunarmanna í
Lundúnum í gær var ákveðið að
mynda félag til varnar gullinu gegn
árásum silfuríta allra.
FIMTUDAG, 30. MAÍ.
Strandferðaskipið “Colina” á leið
frá San Francisco til Panama og ann
ara hafna syðra fórzt vestur af Mexi-
co 27. þ. m. Á skipinu voru 182
menn og er ekki víst að fieiri en 19
af þeim hafi komizt lífs af—komust
til lands á smábátum.
Ilerskip Japaníta og Frakka
sögð tilbúin að leggja til orustu úti
fyrir Formosa. Einnig óttast að
Rússar séu nálægir. Almennur ótti
að ófriðurinn sé um það hafinn á ný.
Eignatjónið af eldsvöldum í
Pembina, N. Dak., um daginn er
metið á $55,000—tjón Bandaríkja-
stjórnar $50,000 og hermannanna
$5000. Einn hermann vantar og er
lialdið að hann hafi farizt í eldinum.
Frá löndum.
ARGYLE-NÝLENDU, 22. MAÍ 1895.
(Úr vesturbygðinni).
Sáning er nú öll utn garð gengin
hér um bil mánuði fyrrá tíma en í fyrra
og þrátt fyrir verðleysi hveitis síðastl.
2—3 ár hafa bændur aldrei fyr dreift
korntegundmn sinuní yfir eins mikla
víðáttu lauds og nú.
Tíðarfarið hefir verið á ýmsum
breytistigum síðan sáninglbyrjaði ; fyrst
lengi þurkar og svalir vindar með mold-
ryki, síðan itagfeld rigningaskúr, svo
snerist veðrið til kulda og frosta á nótt-
um, þar til aðfaranótt hins 19. þ. m., að
snjóaði all-mikið, og urðu bændur þá
hræddir um hveitiplönturnar sínar.
Snjóinti tók mestmegnis næsta dag, og
mun hveitið ekki bafa sakað, en í görð-
um hefir skemzt, því flestir voru búnir
að sá í þá.. — Utlit yfirleitt er nú tneð
lang-bezta móti, sem verið hefir í fleiri
ár. Bændur eru með glaðasta móti
með framtíðarvonir sínar í búskapnum.
Verzlun er enn þá dauf. Verzlun-
armenn eru ekki farnir að lána enn þá,
enda reyna bændur að sneiða sig hjá að
taka lán. Smjör er 10 cents pd , en
vorzlunarmenn vilja helzt ekki sjá það;
egg eru 6 cents ; hveiti 70 cents, en ekk-
ert til af því.
Búferlaflutningur er héðan norður
í Islendingabygðina á vesturströnd
Manitoba-vatns.
Mr. Stefán Kristjánsson misti 40
tons (um $200 virði) af heyi í eld 1. Ap-
ríl síðastl.
Gleðiefni þykir rnönnum það, ef
framkvæmd verður á bygging W. &
Gr. N. brautinni, því svo framarlega sem
hún kemst norður að ílóanum er það
þýðingarmikið hér, en verra er það
vegna íslenzku bygðanna vestan og
austan við Manitobavatn, að horfið hef-
ir verið frá hinu fyrra áformi um legu
hennar.
Íslendingadags-hátíð ætlar fólk hór
að halda i sumar. Nefnd hefir verið
kosin til að íhuga málefnið og kom hún
satn&n á fund 20. þ. m. Komst nefndin
að þeirri niðurstöðu, að hátíðin skyldi
haldin 16. Júlí (þá kvað vera liðin 20 ár
frá því ísleudingar fyrst komu tilMaui-
toba). Enn fremttr, að hver karltnaður
eldri art 16 ára skuli borga 10 cents fyr-
ir að mega vera Iviðstaddur, en kvenn-
fólk hafi frían aðgang, og er það nokk-
uð einkennilegt. Fjórar starfandi nefnd
ir voru gerðar úr þessari fyrstu nefnd,
til framkvæmda hinna ýmsu deilda-
starfa. Það er eitt sem er athugandi i
sambandi við hátíðahald þetta, íslend-
ingadaginn, setn óefað er praktiskt í
sjálfu sér, og það er sem só það, að dag-
ur sá á að bera upp á sama dag hjá öll-
um Islendingum í landinu, það ætti
jafnvel að bera upp á sama dag ár
hvert, þótt það hafi minni þýðing. Sem
þjóðdagur (National holiday eða Nati-
onal celebration) er það mjög ósmekk-
legt, að hafa liana rétt af handahófi,
sinn dagirtn máske í hverj um stað út
um bæi og bygðir íslondinga.
Búnaðarrit (herlent Islenzkt) er
eitt af því nauðsynlegasta, sem yfírleitt
allir islensku lesendur hér í landi þyrftu
að halda. En hvenær skyldi það korna?
3t. Mnrz síðastl. andaðist hér (varð
bráðkvödd) ekkjan Rannveig Jósefs-
dóttir, að heimili sonar síns, hr. Jóseps
Davíðssonar, um 70 ára að aldri. Hún
var ættuð úr Axarfirði í Þingeyjarsýslu
og upp alin þar. Rannveig sál, var
greind kona og vel látin.
Bréf frá Islandi.
HÓLUM, LAXÁRDAL, ÞINGEYJ-
ARSÝSLU, í APRÍL, 1895.
Tíðarf&r, nkepnuhöUl, heygkapur : Síðan
ég kom má heita að hafa.verið hin bezta
tíð, er elztu menn muna eftir. Sein-
asta btyskaparmánuðinn beztu þurkar,
svo heý urðu með mesta og bezta móti.
Alt Jiáustið hélzt sama blíðviðri svo
varla kom dropi úr lofti. Nálægt vet-
urnóttum fór dálítið að snjóa og um
jólaföstu byrjun voru töluverðar hríðar
og svo seint á jólaföstuuni leit út fyrir
jarðleysi í uppsveitum hér í Þingcyjar-
sýslu, en lá komu hlákur er nálega
tóku upp allan snjó oghélzt svo siuó
lítið til 27. Desember að kvöldi; '#rást
þá í ógurlega snöggan byl. Var hann
svo hvass að varla var unt að koma
kindum í liús, þótt þær væru rétt við
húsveggina, hvað þá ef lengra var í
burtu. Urðu af þvi skaðar á skepnum
hór í ntorsveituuum. Á Brekknakoti í
Reykjáh verfi fórust um 20 kindur, í
Baldursheimi við Mývatn um 20 og á
Grímsstöðum á fjöllum um 80 fjár,
mest af þessu voru lömb og ær. Mann
skaði varð ekki að þessum byl það ég
til veit. Bylur þossi stóð sólarhring
hér í döhinum, en lengur á Fjöllum og
heiðum, — Eftir að kom fram í Janúar
fóru að koina hlákur á eftir b^prju hríð
arkasti og frostdegi og á þorAnum
komu vikuhlákur og aldrei man óg eft
ir jafn'neitu sólskini að vetrarlagi en
einmitt riúna á þorranum. Skepnur nú
suinstaðar búnar að liggja úti 2 vikur
og ef til vill sloppnar á ufrótt sumar.
Verzlun : Hér í Þiugeyjarsýslu
verzla'- hávaði tnanna í Kaupféláginu
og e\ nú í miklum uppgangi. Fcng-
ust um 17 kr. fyrir sauði til jafnadar.
Margir fengu um 24 kr. fyrir ;sina
þyngstu sauði. — Verð á útlendum vör
um var lágt, en hér er ekki rúnt til að
sýna skrá yfir það. Reikningsglöggum
mönnum reiknast svo til, að þeir sem
verzla við Húsavíkur-vorzlun tapi alt
að 100 af 100 í samanburði við það að
verzla við Kaupfélagið, enda er það nú
altaf að ná meiri og meiri festu og
þroska, en Húsavíkur selstöðuverzlun-
in að rýrna og ganga saman. Yfir höf-
uð er óhætt að fullyrða að nú sé ár-
gæzka til lands og sjáfar.
Félagslíf, fundahöld og danssam-
komur. Það er með Kaupfélagið hór
eins og kyrkjufélagið fyrir vestan, að
það er aðalfélagið sem nokkuð kveður
að. I því eru margir er starfa og hugsa
mikið og deildarfundir þess eru hinir
einu fundir sem teljandi er að haldnir
séu í sveitum, og svo er aðalfundur í
Janúar ár hvert (eins og kyrkjufélagið),
þar koma saman kosnir fulltrúar úr öll-
um deildum félagsins. Lestrarfélög
ertt í flestum hreppum, en í þeim er lít-
iö líf. Merkast álít eg hið nýja félag,
sem er nokkurskonar menningarfélag.
Það kaupir tómar danskar bækur, eða
skandinavisltar, eftir Brandes, Ibsen,
Björnson. P. Jakobsen og svo útlagð-
ar bækur eftir Mill, Spencer, Skophen-
hauser o. fl. o. fl. Það er lítið um póli-
tiska fundi en sem komið er, ,en búið að
boða til þeirra, svo þá fara menn nú
sjálfsagt að rumskast, enda veitir ekki
af því. — Skemtifélög eru her ekki
mörg, en það lítur út fj-rir að nú gangi
yfir landið dansöld tnikil og voldug.
Þykir nú engum ógiftum iíkur til að
hann geti náð í kvonfang nema hann
kunni þolanlega að dansa. — Kappræð-
ur eru menn ekki að leggja fyrir sig hér.
Kyrkjulklagslif er fremur dauft hér
um slóðir; tvisvar eða þrisvar búið að
messa síðan ég kom hér í Laxárdal. Þar
stendur kyrkjan þögul og kyrlát. Vegg
ir hennar bergmála nú ekki lengur ann-
anhvern sunnudag stnjaðurssöngva og
bænir til hins írayndaða Jehóva á himn
um. Prestar eru af flestum hér álitnir
reglulegir ómagar, alveg þýðingarlaus-
ir og gagnslausir milligöngumenn milli
guðs og manna. Flestum er farið að
skiljast, að guð muni taka því alt eins
vel þó þeir framberi bænir sínar sjálfir,
Eitt er víst, að í loftiuu liggur broyting
á skoðunum, þrá eftirmeira ljósi, meira
Kfi og meira samræmi i kenningutn og
breytni.
Ileilsufar. Munnalát: Heilsufar
Það kcmur öllum við scm vilja fá sem mest fyrir sína peninga. Það sem
hér er sagt er áreiðanlegt. Það er ekkert raup, heldur blátt áfram sann-
leikur. Þessi auglýsing minnir að eins á, að það borgi sig að verzla í
Walsh’s Big Glothing House.
••ðsvttscteti
BUXUR.
1300 þör. 1000 af þeim verða seldar á
85 cent hverjar. 200 góðar vaðmáls-
buxur á $1.25, vanaverð $2.50 250
fínar enskar vaðmálsbuxur á $2,75, og
um 5r0 af fínu skotzku vaðmáli, einn-
inWest of England and Worsted bux-
ur, á $2,50 og $2,75.
Enn fremur mesta upþlag af skradd-
ara-sniðnum buxtun með gjafverði.
SÉRSTAKIR JAKKAR.
$1,50, $1,75, $2, $2,50 og $3.
SÉRSTÖK VESTI.
50c. 75c. og $1.
ALKLÆÐN AÐUR.
Um 1100. Um 100 stakir vaðmáls-
fatnaðir verða seldir á fataefnis verð-
inu $3,50.
Um 125 canadiskir alullar vaðmáls-
fatnaðir með ýmsu sniði frá $7,50 til
$10 verða nú seldir fyrir $4,75.
Um 50 Serge klæðnaðir, á öllum stærð-
utn, $3,85.
Cm 250 góðir canadiskir vaðmálsklæðn-
aðir, /lökkir iog ljósir, með ýmsum
sniðum og allri stærð, á $5,75, tæp-
lega hálfvirði Og um 500 Worsted og
skozkir vaðmáls-klæðnaðir, skraddara
suiðin föt fyrir $7,50, $9,50 og $10,50.
UNGLINGA GG DRENGJA FÖT.
Miklar birgðir, nálega 3000 fatnaðir.
Drengja 'Sailor’-föt, 90 c. til $1.75.
Drengja vaðmálsföt $1.25 til $4.50.
Drengja Worsted-föt $2.50 til $5.00.
Drengja Silki-föt. Drengja Serge föt.
Drengja Cord-föt. Drengja Jerseyföt.
STUTTBUXUR FYRIR DRENGI.
35c., 40c. og 50c.
STAKIR DRENGJAJAKKAR.
$1.00, $1.25 og $1.50.
STÖK DRENGJAVESTI.
Að eins 25 cents.
MACKINTOSHES, RITBBER OG
VATNSHELDAR KÁPUR.
Allar tegundir af Melissa, Rigby, Par-
amatta, Tweed, Rubber við gjafverði.
NÝJAR VORYFIR-HAFNIR.
Af öllum litum og nýjustu gerð. seldar
við hálfvirði, $3.75, $4.50, $5.00, $6.00,
$7.50, $8.50.
HATTAR ! HATTAR! UNDRAVERÐ
KJÖRKAUP.
Hattadeild vor er víðfræg. Vér höf-
um aldrei áður haft jafn fullkomnar
hattabirgðir. Til þess að grinna svo
lítið á þeim, seljum vér í þrjá daga að
eins $1 hatta fyrir 50 cts. $1.50 hatta
fyrir 75c., $2 fyrir $1. $2.50 fyrir $1.75
$3 fyrir $2, $3.50 fyrir $2.50 og $4.00
hatta fyrir $2.75.
Drengjahúfur 15 c. og 25 c, Drengja-
hattar 25c., 85c. og 50c.
Karlmanna og drengja hálsbúnaður við
innkaupsverði.
WALSH’S BIG CLDTHING HOUSE.
— — — — Gegnt City Hall.
515 og 517 Main Str.
hefir vertð mjög gott þennan címa, þc
hafa þrír menn látist, tvær Jkonur í
Mývatnssveit, er getið nefir verið um í
blöðunutn, nefnil., Dýrleif Sveinsdóttir
kona séra Arna Jónssonar, og Þóra
Jónsdóttir, kona alþm. Péturs Jóns-
sonar á Gautl., og Helgi Jónssoná
Hallbjarnarstöðum í Reykjadal, góður
bóndiog ljúfmenni, þó minna sé hans
minnst en sumra aintmanna eða presta.
er þeir falla frá.
JÓH. SlGURÐSSON.
íslands-fréttir.
Eftir Þjóðólfi.
Reykjavík, 2. Apríl 1895.
Lagii.iynjanir koma nú enn tvær frá
stjórninni í ofanálag á þessar sex 10.
Nóv. f. á. Þau tvö frutnv., sem nú hef-
ir verið synjað staðfestingar, eru einna
merkustu frumvörpin, er aukaþingið í
fyrra samþykti, auk botnvörpuveiða-
frumv. Er annað þeirra frumv. unt
breytingu á gjöldum þeim, er hvíla á
jafnaðarsjóðnum | (að kostnaður við
kennslu heyrnar- og málleysingja m. fl..
bólusetningarkostnaður og sáttamála-
kostnaður, sem nú hvílir á jafnaðar-
sjóðuum, verði greiddur úr landssjóði).
Hitt frumv.um búsetu fastakaupmanna
er þó öllu þýðingarmeira. Islenzkir
(danskir ?) kaupmenn, sent á veturna
sitja hópum saman við kjötkatlana i
Kaupmannahöfu og eyða þar arðinttm
af verzlun þeirra hér, höfðu róið að því
öllum árum, að fá stjórnina til að synja
þessum lögum staðfestingar, og það
ltefir tekizt vel í þetta skifti, enda mun
það ekki hafa verið syo harðsótt, því
að það er vatn á mylnu Dana, að vetr-
arsetuberbúðir islenzkra kaupmanna í
Höfu verði setn fjölskipaðastar, og að
arður íslenzkrar verzlunar lendi að
mestu leyti hjá Dönum, en ekki hjá Is-
londingum. Hér má að eins vera sel-
staða.
Aflabröffð. Næstl. laugard. (30. f.
m.) reri almenningur lxér utn pláss og
aflaði vel, um 10—30 í hlut að jafnaði.
Einn (MagDÚs bóndi í Mclkcti) fékk 48 í
lilut, mestmegnis þorsk. Virðist því að
fiskur sé hór nægur fyrir, og getur ver-
tíð hér orðið hin bezta, enda mundi
þess full þörf. í gær voru lögð þorska-
net, en fregnir um afla í þau ekki enn
vissar. Á Eyrarbakka aflaðist mæta-
vol næstl. viku.
Manntjón og mannbjörgun. Hinn
10. f. m. barut á skipi úr SeJvogi og
drukknaði einn maður. Hinn 9. s. m.
drukknuðu tveir menn af bát í Vest-
mannaeyjum, en 5 af öðrum bát varð
bjargað. Annar þeirra, sent drukkn-
aði, var Lárus Jónsson hreppstjóriá
Búastöðum, merkisbóndi. Hinn 25. s.
m. drukknuðu 2 menn af skipi í Þykkva
bæ í Holtum, eins og minnst var á í síð-
asta blaði. Það skip náði þó sinni lend
ingu, en önnur tvö, er þaðan höfðu ró-
ið, hins vegar ekki, og rak þau undan
landi um nóttina. Daginn eftir tókst
Gísla bónda áLoptsstöðum og Jóni
syni hans með mikilli lífshættu fyrir
sjálfa þá, að bjarga báðum skipshöfn-
unum, en skipin urðu þeir að skilja eft-
ir og hafa þau farizt.
10. April.
Hinn 17. Janúar næstl. andaðist að
Hvítárósi í Andakíl Guöjón Fjeldsteð
skólapiltur (sonur Daníels bónda Fjeld-
steð) á 19. ári (f. 25. Apríl 1876), efni-
legur piltur til náms og drengur góður.
Drukknun. Einn skiptapinn enn
hefir orðið á ísafjarðardjúpi 4. f. m.,
hvolfdi báti á siglingu jundir Óshlíð og
drukknuðu 3 menn, en 1 komst lifs af ;
skolaði honum á land með bátnum.
Sjálfsmorð. 12. f. m. réð sér bana á
Akureyri aldraður maður, Jónas Páls-
son að nafni.
AJlabröffð hór við flóann eru enn
sárlitil, og að kalla má engin nú síð-
ustu dagana, svo að hin&r góðu vonir
manna um afla hafa mjðg brugðizt,
Niðurlag á 4. bls.
VEITT
HÆSTU VERÐLAUN A HEIMSSÝNINGUNN
IÐ BEZT TILBÚNA.
Oblönduð vínberja Cream of T&rtar
Powder. Ekkert álún, ammonia eða
ðnnur óholl efni.
40 ára reynzlu.