Heimskringla - 07.06.1895, Blaðsíða 1
Heimskringia
IX. ÁR.
WINNIPEG, MAN., 7. JÚNl 1895.
NR. 23.
j Dagatal
$ Heimskringlu.!
1895 - - JUNI - - 1895
S. M. Þ. M. Fi. Fö . L.
- - - - _ _ 1
2 3 4 5 6 7 8
» IO 11 12 13 14 15
16 17 18 1» 20 21 22
23 24 25 26 27 28 20
30 - - - - - -
Dásamlega
tekst ritstj. “Lösbergs” upp í 2 síöustu
blöðum sínum, þó sérstaklega í síðasta
bl. (dags 30. Maí). Hann lýsir sjálfum
sér þar svo ljóslega og skoðun sinni á
almennri blaðamensku kurteisi, • að ís-
lenzk blaða-saga á ekki til neitt sýnis-
horn, er geti jafnast á við það. Það er
óefandi, það væri enda óhætt fyrir hann
að “hengja sig upp á það,” (Lögbergs-
islenzka !), að haldi hann til lengdar á-
fram i sama stíl, verður hann, i sinni
röð, frægur í sögunni fyrir rithátt sinn,
ekki síður en fyrir svo margt annað,
sem þessi allra kristilegasti klíku höfð-
ingi hefir brallað.
í einhverju ógáti hafa samt nokkr-
ar mis8agnir slæðst inn í þessa maka-
lausu grein hans í Lögb. 30. Maí. Hann
segir með sínum venjulegu, lipru orðum
auðvitað, að vér höfum vitað, að hann
tæki við ritstj. Lögb. af E. Hjörleifssyni
Þaö er satt, að þetta hafði heyrzt, en
jafnframt hafði það lika heyrzt, að for-
stöðunefnd prentfélagsins treysti sér illa,
að bera þá byrði og að einhverannar, en
hánn yrði auglýstur ritstj. til bráða-
byrgða, þa.ngað til Ólafur Davíðsson
kæmi, því á honum var sögö von.
Fregnir þessu líkar voru á ferðinni um
bæinn alt til þess Lögberg kom út og
batt enda á þær.— Hann segir að ritstj.
Hkr. hafi verið “útskúfað af iimflutn-
inga-skrifstofu”dominion-stjórnarinnar.
Þallinn & þessu er sá, að ritstj.
Hkr. hefir ekki enn unnið svo mikið
sem hálfan dag k einni eða annari inn-
flutninga-skrifstofu i Winnipeg.—Hann
segir að ritstj. Hkr. hafi verið “bolað
út úr allri ráðsmensku” við Hkr.. Það
situr ekki á oss, að svara þeirri kæru, en
vilji forstöðunefndir félagsins 4 þvj
tímabili virða kæruna svars, þá er þeim
innanhandar, að segja sannleikann i
Þessu máli.—Hannsegir, að ritstj. Hkr.
sé Greenwayingum reiður af því, þeir
hafi ekki viljað kaupa hann fyrir eitt-
hvað 3 árum. Þessi síðasta kæra er al-
gerlega skaðlaus, og það enda þó hún
væri sönn, þess skaðlausari þá, þegar
það er ekki. Yér getum því ekki ímynd-
að oss, í hvaða tilgangi hún er búin til
nema ef vera skyldi, að ritstj. Lögbergs
se farið að leiðast, að róa einn á bát í
því efni og langi svo til, að koraa ein-
hverjum til að trúa því, að hann sé ekki
eini Islendingurinn, sem gengið hefir
Pólitisku mannsali.
Ný föt fyrir 10 cent.
Þarnaeru drengirnir henar Mrs. Brovm
allir komnir aftur í ný föt. Ég hefi al-
drei þekt þvilika konu ! Brown fólkið er
bezt klætt af öllum í borginni, og það
væri eflaust álitið eyðslusamt, ef menn
vissu ekki að þetta er alt gert með
Diainond Dye.
I'ötin drengjanna eru gerð úr gömlum
fötum af föður þeirra, sem eru svo lituð
» eftir og margar af treyjum þeirra kosta
ekki yfir tiu cent, sem er verðið á Dia-
m°nd Dye.
. l’að þarf enga æfingu til að geta lit-
vT a með Diamond litum. Þeir lita
nvao som er, og dofna ekki. Hinar þrjár
tegundir af gvörtum Diamond litum
bruKiegir fyrjr ilVaða efni sem er, eru
hinir svortustu og Sterkustu litir tem
hægt er að fá. Eorskriftahók og40 sýn-
íshorn af htuðu klæði frítt.
Wblls& Riciiahuson Co., Montreal.
FRÉTTIR.
DAGBÓK.
FÖSTUDAG, 31. MAÍ.
Sóknin hafin á ný, segja fregnir frá
Hong Kong í Kína. Er sagt að Japan-
itar séu byrjaðir að sækja kastala einn
nyrðzt á eynni Formosa. Floti japan-
iskra herskipa hefir sveimað þar um-
hverfis undanfarna daga og eiga þau að
hafa hafið leikinn undireins og eyjan
var auglýst lýðríki. Fregn til Times í
Lundúnum segir óróann á Formosa
Kínverjum einum að kenna,
Nýfundnalandsstjórn hefir tekizt
að útvega sér 82| milj. lán til að mæta
skuldunum, er falla i gjaldaga í yfir-
standandi mánuði. í bráðina er hún
því sloppin úr öllum vandræðum. Han-
son bræður, hinir alkunnu lánfélaga-
umboðsmenn í Montreal, útveguðu lán-
ið hjá félagi í Lundúnuin gegn4% af-
gjaldi í 40 ár.
Vindur, hagl og rogn olU stórtjóni
á jarðargróða í suðurhluta og um mið-
bik Norður-Dakota-ríkis i gœr. Hjá
einum manni eyðilögðust nær 500 ekr-
ur undir hveiti í grend við Fargo.
Fyrir lifsábyrgð borguðu C anada-
menn á síðastl. ári $9,909,284, og fyrir
eldsábyrgð $0,711,369.
LAUGARDAG, 1. JÚNÍ.
Hitaalda raikil gekk yfir austur-
hluta Ameríku ’í fyrradHg og í gær.
Hitinn var frá 88 til 95 stig á Fahr. í
skugga. Elstu menn muna ekki jafn-
mikinn hita í lok Maí.
Smáorustur margar á Cuba, en
mannakæðari miklu en orusturnar er
gulusýkin í liði Spánverja.
187 menn fórust, en 20 komust af
um daginn. er gufuskipið “Colima” sökk
vestur af Mexico.
Nýr "trúflokkur” er að sögn mynd-
aður í Omaha, Nebraska, sem auðkenn-
ir sig með því, nð safnaðarmenn allir,
ungir og gamlir, kouur og karlar, fletta
sig klæðum og sitja naktir i kyrkjunni.
Presturinn lieitir John Morrow, þangað
kominn frá Pittsburg, en prestar aðrir
i Omaha hafa í huga að gera dvöl hans
í Ncbraska skammvinna.
“Heilagt” stríð heíir soldán Tyrkja
að sögn lofað Norðurálfu þjóðunum og
fregnir úr þremur stöðum í ríki Tyrkja
Asíu nú seinustu dagana, benda til að
eitthvað sé hæft í þeirri sögu. í Jeddali
(við Rauðahafið) var nýlega ráðist á
fulltrúa Breta, Frakka og Rússa og
fylgdarmenn þeirra og sumir þtirra
særðir til ólífis og einn féll dauður á
staðnum. Þeir voru allir á skemtigöngu
þegar flokkur Araba í fyrirsáti reis upp
úr dæld og réðist á þá. Samskonar á-
hlaup hefir siðar verið gert á fulltrúa
læssara þjóða í Armeníu.
MÁNuDAG 3. JÚNÍ.
Árgentínu-stjórn er að búa sigíher-
ferð gegn nágranna þjóð sinni að vest-
an, Chili-mönnum. Hefir sent fulltrúa
til Evrópu til vopnakaupa og ráðgerir
að taka $30 inilj. lán, tilhernaðar-kostn-
aðar. Þrætan rís útaf lundamerkja
máli, að því er seð verðnr.
Canadiski skipaskurðuj-ínn yfir
Sault Ste. Marie-grandann, miRi Super-
ior og Huron-vatna, tiöni-rIHplstur
“Soo”-skurður, verður vígður á fimtu-
daginn 13. þ. m.
Fregnir koma frá Cuba þess efnis,
að ósannar séu allar sögurnar sem ut-
breiddar voru um að fyrirliðar uppreist-
armanna, Marti og Gomez, væru fpjluir.
Dómsmálastjóri lllinoisríkis-stjórn
arinnar hefir um langan títna þreytt
við að svipta Pullmann ríka leyfi og
rótti til að halda félagi sínu í þoirri
mynd sem það nú hefir. Úrskurðurinn
kom á laugardaginn og er þess efnis,
að Pullmann sé leyfilegt að halda áfram
verkstæðum sínum í Pullman og grend-
inni og selja vín og ófenga drykki i
skemtivögnum sínum m. m., en óle.yfi-
legt að halda hlutabrófum í járnnáma-
og járnsmíðisfélagi einu, sem kent cr
við Pullman,
ÞRIÐJUDAG, 4. JÚNÍ.
Ofsahiti liefir valdið miklu tjóni á
jarðargróða í Ontario. Þrír menn dóu
af hitanum í gær í Hamilton—hitinn
þá 98 stig í skugga.
Skógareldar í Pennsylvania valda
eignatjóni svo skiftir milj. dollars. Um-
ferð á sumum járnbrautunum er stöðv-
uð vegna eldsins og mælt að inargt
manna í sveitum úti hafi látið lífið.
Bandarikja-kardinálinn Gibbons, i
Baltimore, heimsótti hinn “heilaga föð-
| ur”, Leo páfa 13., í gær og sat lengi á
eintali við hann. Hann segir páfann
frískan og yfirgengilega fjörugan og
minnisgóðann, svo garaall sem hann er.
Hermenn Japaníta eru komnir á
land i Formosa og liafa háð eina all-
mikla orustu við Kínverja. Fór þar
sem fyrri, að Kínverjar urðu hrapar-
lega undir.
MIÐVIKUDAG 5. JÚNÍ.
Manntalsskýrslurnar fyrir norð-
vesturhéruðin, eftir varöliðið, cru út-
komnar og sýna fólksfjöldann ónógan
enn til þess fjölgað verði dominion-þing-
mönnum. Tala hvítra manna og kyn-
blendinga í héruðunum er :
ár 1891 ár 1894 vöxtur
Alberta 18,322 28,783 10,461
Assiniboia 26,448 84,792 8,351
Saskatchewan 7,460 9.931 2,471
Að Indiánum meðtöldum er ibúatal liér-
aðanna aUs : 1891—66,799, en árið 1894
—86,851. — Indíánar hafa fækkað að
mun í öllum héruðunum á þessum 3
árum.
25 menn hafa dáið af hita í New
York og 150 sýkst á síðastl. 4—5 hita-
dögum.
Kínverjar afhentu Japanítum eign-
bréf fyrir eynni Formosa 2. þ. m., á
sunnudaginn var. Eru nú Japanítar
einir um liituna í viðeigninni við lýð-
valdssinna.
Richard Olney, dómsmálastjóri
Bandarikja, hefir að sögn verið kjörinn
eftirmaður Greshams sem ráðherra-for-
seti og utanríkisst jóri.
FIMTUDAG 6. JÚNÍ.
Fyrir 1. Jan. 1897 verður Great
Northwest Central fél. að hafa aukið 50
raílum við braut sína, eða leyfið verður
tekið frá því. Þetta er úrskurður dom-
inion þingsins.
í suður-Bandaríkjum, meðfram
Mississippi og víðar, er verið að búa út
skip með vopn, vistir og liðsmenn til
styrktar uppreistarmönnum á Cuba.
Bandaríkjastjórn hefir lofað að lita eftir
þessum raönnum.
Bretar hafa sent herskip til For-
mosa, Evrópu-mönnum til varnar.
Frá löndum.
SEATTLE. WASH.; 24. MAÍ 1895.
Að kveldi hins 12. þ. ra. þóknaðist
forsjóninni að burtkalla úr þessuin
heimi til æðri bústaðr, vora háttvirtu og
elskuðu fósturmóðir Þórunni Ólafsdótt-
ir, ekkju Eggerts heitius Jónssonar frá
Löndu 3 í Miðfirði í Húnavatnssýslu.
Um undanfarandi 9 mánuði liafðí
hún þjáð/.t meira og minna af innvortis
meinsemd, sem þrátt fyrir allar læknis-
tilraunir leiddi hana til bana. — Jarð-
arför hennar fór framm þriðjudaginn
14. þ. m.
Þetta sorgaratriði tilkynnist hér
með vinum og vaudamönnum fjær og
nær af henrmr syrgjandi íósturdætrum.
Ingihjöro Bjarnadóttir.
Marorét Lubviosdóttir.
* FRÁ GIMLI
má geta þess, sem annara frétta, að þar
myndaðist dálítill söngflokkur síðastl.
vetur. Æfingar fóru fram i húsi Krist-
jáns (Póturssonar) Paulson; spilaði Mrs.
Paulson fyrir þeim og veitti flokknum
forustu á læim stöðum, sem hann kom
°Pinberlega fram.
Mrs. Paulson liefir einnig, með til-
styrk nokkura unglinga, haldið sunnu-
dagaskóla i húsi sinu síðastl. vetur fyr-
ir Þ«u börn, er það hafa viljað þiggja
Auk gess hefir hún uin nokkur uudan-
farin ár hjálpað skólabörnura héraðsins
til þess að “brenna út gamla ,árið” og
gleðja sig að öðru leyti sem þnn >>ezt
hafa getað í þvi sambandi, bæði úti við
og inni í húsi hennar. Hafa börnin
leiðzt í kringum logann í ljósálfa bún-
ingi, sungið þar sín fegurstu ljóð og
þannig vakið hinum eldri ánægjulega
barnagleði á hverju hverfandi ári.
Það er eftirbreytnisvert fyrir ungt
kvennfólk, að reyna að nema eitthvað
það á æskuárunum, hvort heldur til
söngs eða annara lista, sem síðar getur
orðið þeim sjálfum til sóma og öðrum
til ánægju. Fleiri konur en Mrs Paul-
son hlytu, ef áhugi væri nógur, að geta
rétt ungmennum í kringum sig hjálpar-
hönd, þcim til gagns eða gleði, og ættu
ekki að láta það draga kjark úr sér, að
á slikt er síður minnst, sem markvert
starf, en erjur þær og illindi, sem karl-
menn stunda svo kajipsamlega. Mrs.
Paul son á þakkir skilið af Gimlibúum
fyrir framtaksemi sína til farsældar
ungraennunum, og er óliætt að láta
línur þessar flytja henni þær frá þeim
hluta héraðsbúa. sem vilja hafa til að
mota starf henuar sem vert er.
m Iftt"
(ftlHO -TAR CfiAFlHö
50AP (^UPTlOHS eic.
fAS K«
hh 3KIN SorrAHo
WHiTt
S5s
íslands-fréttir.
Eftir Þjóðólfi.
Reykjavík, 3. Maí 1895.
Slytför. Hinn 23. Marz þ. á. varð
úti Jóu bóndi Bjarnason á Þambárvöll-
um í Bitru á fjallinu milhim Þambár-
vella og Heydalssels. Hann brá sér j’f
ir í selið og stóð þar stutt við, en er
hann var nýfarinn þaðan. skall á kaf-
aldsbylur. “Jón heit. var talinn með
efnaðri bændum þar í sveit, mesti gest-
risnismaður, vellátidn af öllum og mik-
ill starfsmaður alla æfi. Hann var
hnigin á efra aldur”.
Ilafínhroði kom inn á Húnaflóa vest-
anverðan 29. Marz, og náðust þá 100
höfrungar í Ingólfsfirði, en 39 í Brodda-
nesi.
Skipttrand. Hinn 28. f. m. sleit
uppog strandaði á Stokkseyri norskt
skip hlaðið timbri on kolum til kaup-
félags Árnesinga.
AJlabröyð hcr við flóanu eru enn sem
fvr sárdauf eða alls engiu að kalla má,
og er því þessi verttð, sem nú er bráð-
utn á enda, nfarbágborin. Austanfjalls
hefir hinsvegar aflazt dável, t. d. á
Stokkseyri (700 í hlut hæst) og á EjTar-
bakka (600 hæst), 0n einkum hefir verið
ágætisafli í Þorlákshöfn af allvænum
fiski. Hæstur hlutur þar 1300 (hjá Jóni
hreppstjóra á Hliðarenda). í Selvogi og
Herdísarvík hefir aftur á móti verið
fremur rýr afli.
10. Maí.
Frá Seyðirörði er Þjóðólfi ritaðl.
þ. m.: “Hafis er nú hér úti fyrir öllu
Austurlandi; varð fyrst vart við hann
hér i byrjun f. m.. um sama leyti og
“Thyra” var á ferðinni, og liefir hann
siðan verið á reki fram og aftur egtafið
rajög fj’rir kaupskipsferðum og sigling-
um ; Þó munu nú öll þau skip komin
hingnð, sem von liefir verið á, en kaup-
skip til Norðurlandsins eru sögð ýms
hér úti fyrir í ísnum eða fj'rir utan
hann, svo sem skip Gránvfélagsins,
“Rósa” og “Grána”, en eitt «f skipum
þessum, er norður áttu að fara, brotn-
aði í isnu.n í fyrra morgun (29. April)
6—7 raílur undan landi, og sökk á vet-
vaugi, svo skipverjar gátu með naum-
indum komizt í skipsbátinn og bjargazt
til lands (í Brúnsvík); komu skipverjar
hingað í gærkveldi. Skip þetta hét
“Aktiv” og átti að fara til verzlunar
konsúl J. Havsteens á Oddej'ri.
Þórarinn prófastur Böðrartton r. af
dbr. í Görðumjá Álftanesi audaðis 7. þ.
m. sjötugur að aldri. Hann var f.cdd-
ur í iGufudal 3. Maí 1825. Foreldrar
hans voru : Böðvar prófastur Þorvalds-
son (prófasts Böðvarssonar) síðast prest
ur á Melstað, og fyrri kona hans Þóra
Björnsdóttir prests i Bólstaðarhlið
Jónssonar, ein hinna nafnkunnu “Hlíð-
arsystra”. Sera Þórarinn var útskrif-
aður úr Reykjavikurskóla 1817, Jog af
prestaskólauum 1819 með 1. eiuk., vígð-
ur s. á. aðstoðarprestur föður síns ‘að
Melstað, fékk \ atnsfjörð 1054, varð pró-
fastur í norðurhluta ísafjarðarsýslu
1865, fékk Garða á Álftanesi 1868, og
varð prófastur í Kjalarnesþingi 1873, en
riddarl dannebrogsorðunnar 1874. Hann
sat á öllum þingum frá 1869 sem þjóð-
kjörinn þingmaður fj'rir Kjósar- og
GuUþringusýslu, og var tvisvar torseti
neðri deildar (180L qj- 4 aukaþinginu
1891). Með konu sinni Þórunni Jóus-
dóttir (prófasts i Steinnesi Péturssonar)
er andaðist í fyrra vetur, átti hann 3
börn, er upp koinust : Jón skólastjóra
í Flensborg, Önnu konu Kristjáns j'fir-
dómara Jónssonar og Elizabetu konu
Þórsteins Egilsens kaupmanns i Hafn-
arfirði. Auk þess mistu þau hjón einn
son, Böðvar að nafni, mesta efnispilt,
er dó í latínuskólanum,
Séra Þórarinn var fyrirmannlegur
sýnum og hinn öldurmannlegasti á vclli
höfðingi í lund og manna hjálpsamast-
ur, fasttækur og fylgiun sínu máli.
Kemur ollum vid.
Það kemur öllum við sem vilja fá sem mest fyrir sína peninga. Það sem
hér er sagt er áreiðanlegt. Það er ekkert raup, heldur blátt áfram sann-
leikur. Þessi auglýsing minnir að eins á, að það borgi sig að verzla í
Walsh’s Big Glothing House.
BUXUR.
1300 þör. 1000 af þeim verða seldar á
85 cent hverjar. 200 góðar vaðmáls-
buxur á $1.25, vanaverð $2.50 250
fínar enskar vaðmálsbuxur á $2,75, og
um 5r0 af finu skotzku vaðmáli, einn-
inWest of England and Worsted bux-
ur, á $2,50 og $2,75.
Enn fremur mesta upþlag af skradd-
ara-sniðnuin buxum með gjafverði.
SÉRSTAKIR JAKKAR.
$1,50, 81,75, $2, $2,50 og $3.
SÉRSTÖK VESTI.
50c. 75c. og $1.
ALKLÆÐNAÐUR.
Um 1100. Uin 100 stakir vaðmáls-
fatnaðir verða seldir á fataefnis verð-
inu $3,50.
Um 125 canadiskir alullar vaðmáls-
fatnaðir með ýmsu sniði frá $7,60 til
$10 verða nú seldir fyrir $4,75.
Um 50 Serge klæðnaðir, á ölluin stærð-
um, $3,35.
Um 250 góðir canadiskir vaðmáleklæðn-
aðir, dökkir ,og ljósir, með ýmsum
sniðum og allri stærð, á $5,75, tæp-
lega hálfvirði Og um 500 Worsted og
skozkir vaðmáls-klæðnaðir, skraddara
sniðin föt fyrir $7,50, $9,50 og $10,50.
UNGLINGA GG DRENGJA FÖT.
Miklar birgðir, nálega 8000 fatnaðir.
Drcngja ‘Sailor’-föt, 90 c. til $1.75.
Drengja vaðmálsföt $1.25 til $4.50.
Drengja Worsted-föt $2.50 til $5.00.
Drengja Silki-föt. Drengja Serge-föt.
Drengja Cord-föt. Drengja Jersej'föt.
STUTTBUXUR FYRIR DRENGI.
35c., 40c. og 50c.
STAKIR DRENGJAJAKkAR.
$1.00, $1.25 og $1.50.
STÖK DRENGJAVESTI.
Að eins 25 cents.
MACKINTOSHES, RUBBER OG
VATNSHELDAR KÁPUR.
Allar tegundir af Melissa, Rigby, Par-
amatta, Tweed, Rubber við gjafverði.
NÝJAR VORYFIR-HAFNIR.
Af öllum litum -og nýjustu gerð. seldar
við hálfvirði. $3.75, $4.50, $5.00, $6.00,
$7.50, $8.50.
HATTAR! HATTAR! UNDRAVERÐ
KJÖRKAUP.
Hattadeild vor er víðfræg. Vér höf-
um aldrei áður liaft jafn fullkomnar
hattabirgðir. Til’ þess að grinna svo
lítið á þeim, seljum vér i þrjá daga að
eins $1 hatta fyTÍr 50 cts. $1.50 hatta
fjrir 75c., $2 fyrir $1. $2.50 fjrir $1.75
$3 fyrir $2, $3.50 fyrir $2.60 og $4.00
hatta fyrir $2.75.
Drengjahúfur 15 c. og 25 c, Drengja-
hattar 25c., 35c. og 50c.
Karlmanna og drengja hálsbúnaður við
innkaupsverði.
WALSH’S BIG GLOTHING HOUSE.
515 og 517 Main Str. — — — — Gegnt City Hall.
Hann var jafnan mikils metinn í hér-
aði, og bar margt til þess. Hann auðg-
aðist allmjög í Vatnsfirði, og hélt þeim
efnum furðanlega vel við. þrátt fj’rir
mikinn og margvislegan kostnað.
9. f. m, andaðist i Leith i Skotlandi
Þorbjörn Jónassen kaupstjóri, er sigldi
með “Laura” síðast; var nj'stiginn þar
á land, er hann lagðist i illkj'njaðri
magaveiki, sein lianu liafði alllengi
þjáðzt ^af. Hann var sonur Jónasar
bónda í Arnarholti í Stafholtstungum,
Jónssonar prests á Bergsstöðum Jóns-
sonar og Bjargar Stefárisdóttur frá
Keflavik í Hegranesi Sigurðssonar, föð-
ursystur séra Sigurðar alþm. i Vigur og
Stefáns kennara á Möðruvöllum. Þor-
björn heit. var vandaður maðurog yfir-
lætislaus.
Drukknun. 2. þ. m. drukknaði mað-
ur af báti suður í Vogum, og 2 dögum
síðar fórst bátur af Akranesi i brim-
garðinum þar úti fyrir lendingunni ;
drukknuðu þar 2 menn og 2, sem bjarg-
að var með lifsmarki, dóu, þá er í land
var komið.
Skipstrand. 3. þ. m. sleit upp kaup-
skip i Þorlákshöfn og strandaöi. Það
var hlaðið vörum til Jóns kaupmanns
Árnasonar og Christensens verzlunar á
Eyrarbakka.
Pótttkipið Laura koin hingað 7. þ.
m., viku á eftir áætlun. Meö því kom
fjöldi farþegja, þar á meðal Einar Hjör-
leifsson, ritstjóri Lögbergs, frá Ame-
ríku, alkomin Iiingað með kouu og
börn.
Dr. Þorvaldur Thoroddsen befir
fengið La Roquette-gullmedaliuna frá
landfræðisfélaginu í Paris.
Ilandrilatafn Bókinentafélagnrix. Fé-
lagsdeildin í Höfn liofir á fundi 19. f.
m. veitt stjórn sinni heimild til að
semja um sölu handritasafnsins til
Landsbókasafnsins á sama liátt eins og
Reykjavíkurdeildin samþykkti að sínu
leyti á fundi hór 10. \Iarz (sbr. 14. tbl.
“Þjóðólfs”). Er vonandi, að saman
gangi með sölu þessa, þvi að það væri
afarmikill vinningur fyrir Landsbóka-
safnið að fá safn þcttá.
Þjóðviljinn ungi.
ísafirði, 30. Apríl 1895.
Tíðarfar hefir verið stillt og blítt
þessa síðustu viku.
Ajlabrögð fremur reitingsleg bjá al-
menningi, síðan 24. þ. m., 60—70 á skip
og þar uin, enda giásleppu-gengd víða
með minnamóti. — Inni í Djúpinu hafa
þó stöku menn afiað nokkru betur á
skelfiskbeitu.
Látin er ný skeð húsfreyjan Krist-
ín'Kristjánsdóttir, kona Jóns Arnórs-
sonar á Höfðaströnd í Grunnavíkur-
hreppi, væn kona og vel látin, dóttir
Kristjáns bónda Jónssonar á Kollsá.
Ttlefbnina milli ísafjarðar og Hnifs-
dals er nú í bezta standi, og er líklegt,
að menn noti sér það.
7! Maí.
. Tíðarfar, Tíð hefir verið mjög rign
inga- og stormasöm, það sem af er þess
um mán.
26. f. m. andaðist að Arngerðareyri
hér í sýslu húsfreyjan Margrét Jóns-
dóttir, hátt á fimtugsaldri, kona Ás-
geirs hreppstjóra Guðmundssonar á
Arngerðarej'ri.
Aflabrögð eru enn í tregara lagi hér
við Djúpiö, en þó hafði .verið nokkur
lífgun hjá stöku bátum i Bolungarvík-
inni uú fj'rir helgina.
14. Maí.
llaftsinn vrar farinn af Austfjörðum
8. þ. m., eftir því sem fréttistmpð gufu-
skipinu “Ásgeir Ásgeirsson”, er kom
hingað frá Eskifirði í fj'rradag.
Vígsla. 12. þ. m. vígði byskupinn
Jón Helgason prestaskólakennara til að
hafa á hendi aukaguðsþjónustu í dóm-
kj'rkjunni, en án beinnar skuldbinding-
ar til að gera prestleg aukavork, frekar
en honuni sjálfum þóknast. S. d. vígði
og bj'skupinn kand. Svein Guðmunds-
sou til prcsts að Rip í Hegranesi.
TKITT
HÆSTU VERÐUAUN A HEUISSÝNINGUNN
■m*
æ.vVBta
IÐ BEZT TILBÚNA.
Oblönduð vínberja Cream of Tartar
Powder. Ekkert álún, ammonia eða
önnur óholl efni.
40 ára reynzlu.