Heimskringla - 14.06.1895, Qupperneq 2
2
HEIMSKEINGLA 14. JÚNÍ 1895.
1 HeimskringSa j
• PUBLISHED BY
• The Heiciskriugla Prtg. i.Publ. Co. •
09 09
2 Verð blaðsina í Canda og Bandar.: J
• $2 um árið [fyrirfrara borgað] •
• Sent til íslands [fyrirfram borgað o
’ af kaupendum bl. hér] 81. 0
2 •••• 2
5 TJppsögn ógild að lögum nema 0
• kaupandi sé skuldlaus við blaðið. •
• •••« •
• Peningar sendist i P. 0. Money •
• Order, Registered Letter eða Ex- •
• press Money Order. Bankaávis- ®
• anir á aðra banka en í Winnipeg 2
o að eins teknar með afföllum. •
• 9 »•
• EGGERT JOHANNSSON •
0 EDITOH. •
• EINAR OLAFSSON 2
• BUSINESS MAXAOEIt.
2 •• •• 2
• OFFICE : 2
2 Corner Iloss Ave & Nena Str. •
1» O. Hox 305. 2
•••••••••••••••••••••99«*
Þjóðrækinn “liberal”.
Eins og eðlilegt er í mannmörgum
fiokki, kennir margra grasa í flokki
“liberala”. Við því er ekki hægt að
gera og ekkert um það að tala á meðan
hinum illkynjuðu “kvistum” er mark-
að sæti þau sem þeir eiga. En það eru
vandræði fyrir pólitískan flokk á þingi,
sem auðvitað læst vera að vinna föður
eða fósturlandi sínu í hag og sem óneit-
anlega vill því í hag, þegar einn af
hans leiðandi mönnum verður uppvís
að þjóðfélagslegum skálkapörum. Og
það er illt til afspurnar, þegar að þeim
svikum uppkomnum, flokkurinn heldur
áfram, eftir sem áður, að dýrka hinn
seka náunga og afsaka hann á allar
lundir.
Þegar Edw. Farrar um árið varð
uppvís að tilraunum að fá Canada selt í
hendur Bandaríkjamanna, þá varð hann
umsvifalitið að vikja úr ritstjórastöð-
unni við Globe í Toronto. Sir Riehard
Cartwright er sannnefndur þjóðfjandi
Canada, en þó hefir hann aldrei orðið
uppvis að þeim skálkapörum, sem John
Charlton, þingm. frá Norfolk North í
Ontario, nú er uppvís að. Hann er orð-
inn uppvís að því, að hafa gert tilraun
til í fyrra, þegar verið var að ræða Wil-
sons-toll-lagafrumvarpið í Washington,
að leggja toll á allan trjávið, unnin og
óunninn, í öllum mögulegum myndum,
sem kæmi frá Canada. í Wilsons-frum-
varpinu var svo ákveðið, að trjáviður
allur og trjávörur allar aðfluttar.
skyldu vera tollfríar, en þó væri Banda
rikjastjórn leyfilegt að leggja aðflutn-
ingstoll á allan borðvið úr furu (Pine)
er að væri fluttur úr ríki eða landi, sem
leggja kvnni útflutningstoll á ósagaða
bjálka, sem fara ættu til Bandaríkja.
Þó ekkert ríki væri nafngreint í þess-
um ákvæðum, þá var engum blöðum
um það að fletta, að það var Canada-
ríki eitt, sem hér var átt við. Þetta
þótti Carlton algerloga óhafandi og rit-
aði Carlisle fjármála stjóra um það.
Sýndi hann honum fram á að þessi lög
væru Canadamönnum alt of hagkvæm,
og bjó enda út formlega lagagrein, sem
koma skyldi í stað tilvísaðra greina í
Wilsons-frurnvarpinu. Og efnið í hans
breytingar-tillögu var í þá átt, að toll-
ur skyldi hvila á öllum trjáviði, unnum
og óunnurn, sem frá Canada kæmi til
Bandarikja. Þessi tillaga kom frá æru
veröum (!) Dominion-þingmanni í Ca-
nada, eiðsvörnum til að vinna sínu föð-
urlandi alt það gagn, sem unt væri í
þeirri stöðu ! Og tillagan hafði sín á-
hrif, eins og við var að búast. Það er
svo sjaldgæft, að opinberir starfsmenn í
öðru riki biðji stjórn annars ríkis, að
leggja tolla á vörur sinar—það er oftar
þvert á móti klagað yfir álögðum tolli—
að það var afsakanlegt. þó bænin væri
veitt. Það var líka ákveðið í Wilsons-
lögunum síðar, að legði nokkurt nki ut
flutningstoll á bjálka, ætlaða sögunar-
mylnum í Bandaríkjunum, skyldi
Bandaríkjastjórn tafarlaust leggja toU
á allar tegundir trjáviðar, sem ifrá því
ríki kæmu, hvort heldur unnar eða ó-
unnar. Þannig náði Charlton takmark
inu. “Free-trade-postulinn einn lieima
hjá sér leggur þannig ráð á, að tollur sé
lagður á eina verðmestu vörutegundina
sem Canada hefir að bjóða útheiminum.
Hvoru ríkinu er þessi maður að þjóna,
sínu eigin, eða Bandaríkjunum ?
Þetta var einmitt þyngsta sökin, er
hvíldi á Farrar um árið, að hann ráð-
lagði, eins og þessi þingmaður, að öll
upphugsanleg höft yrðu lögð á verzlun
Canadamanna. Hans skoðun var, að
yrði svo krept að Canada með tollálög-
um, að ómögulegt væri að hagnýta
hinn mikla markað Bandaríkja, væri
“björninn unninn”. Canada yrði þá
nauðbeygt til að ganga i algert sam-
band við Bandaríkin, þvi án Banda-
ríkja-markaðarins gætu Canadamenn
ekki verið. Óbeinlínis að minsta kosti
var lika farið að ráðum Farrars ; það
sýndu McKinley-lögin góðu, er þau
Lomu til sögunnar skömmu síðar. Þau
krepptu svo að ýmsum verzlunarmönn-
um í Canada, að þeir urðu að leita að
nýjum markaði, og—fundu hannáEng-
landi og víðar, svo að þeir voru vel á
veg komnir, að ná sér upp aftur, þegar
þau lög féllu úr gildi og í gang komu
önnur mannúðlegri, Það hefði átt að
sýna bæði Bandaríkjamönnum og enda
Charlton sjálfum, að það er ekki og
verður ekki álilaupaverk fyrir Banda-
ríkin, að kviga Canada inn í algert sam-
band með toll-álögum. í samanburði
við Bandaríkin er Canada auðvitað táp-
lítið ríki. en svo tápmikið er það, aðþað
lætur ekki kúga sig fyrr en í fulla hnef-
ana og þarf þess ekki heldur á meðan
það hefir tiltölulega miklu meiri skipa-
stól, en Bandaríkin, til þess að fleyta
sér á og flytja vörur á um úthöfin.
Að slíkar kúgunar-tilraunir gægð-
ust fram hjá einstöku mönnum í Banda
ríkjum. sem hafa afsakanlega löngun
til að sameiua alla Norður-Ameríku (að
Mexico-riki máske undanskildu) í eitt
bandaveldi, og sem miður eru kunnugir
öllum ástæðum í Canada — að slíkar
kúgunar-tilraunir gægðust fram hjá
þeim, það er afsakandi og helzt ekki
nema eðlilegt, þegar tilgangurinn er
tekinn til greina. En að slíkar tilraun-
ir skuli eiga rót sína að rekja til þjóð-
kjöiins fulltrúa á þingi í Canada, það
er þjóðarskömra. Og skömmin verður
enn tilfinnanlegri þegar jafn-liðmikill
flokkur eins og "Iiberal”-flokkurinn er,
fer aðafsaka þjóð-niðinginn.
Canadiskum kjósendum er máske
alt bjóðandi, svo lengi, sem lofað er toll-
fríum vörum frá öðrum ríkjum, en víst
færi illa fyrir þeim pólitiska flokki i
Bandarikjum, sem á þingi afsakaði einn
sinn háttstandandi mann, ef upp kæmi
að hann hefði beðið erlenda þjóð, að úti-
loka, að minsta kosti leggja höft á
verzlun Bandaríkja. Hér er að vísu
ekki nema um eina vörutegund að tala,
en ef þingmaðurinn þar hugsar ein-
göngu um hag Bandaríkja og óhag síns
eigin rikis, þá er enginn afturkominn
til að segja, að svo yrði ekki um aðrar
vörutegundir. Ef hann vill þröngva
kosti Canadamanna i einu atriði, því
ekki í öðru ? Hann er ekki sjálfum sér
samkvæmur, ef hann er ekki allstaðar
jafn.
Það sýnist nær sanni að Canada-
menn allir, sem afnám tolla vilja heima
fyrir, mæltu með þvi og stuðluðu til
þess eins og þeir megna, að demokratar
sætu að völdum i Bandaríkjum og að
þeir í öllum greinum gerðu Canada-
mönnum jafnt undir höfði og öðrum,
lækkuðu tollinn og tækju hann alveg af
öllum þeim vörutegundum sem unt er.
Því vilji Canadamenn hugsa um að lifa
og standa uppréttir sem þjóð, geta þeir
ekki lyft tolli af vörum frá Bandaríkj-
um nema þeirra eigin vörur séu ákveðn-
ar toll-fríar í Bandarikjum. Eftir þessu
mega menn líka vænta hjá demókröt-
um, ef þeir fá að vinna óáreittir. En
það er ekki við góðu að búazt, þegar
háttstandandi maður í flokki “liberala”
í Canada, iiiður þá, að sýna Canada-
mönnum sem minsta vægð, biður þá, að
þröngva kosti þeirra í verzlun og fjár-
hagsmálum.
Sykurrófur.
Árið 1893 voru meir en 6 miljónir
tunna af Sykri ræktaðar í veröldinni.
Af því var nærri hálf fjórða milj. fram-
leidd úr sykur-rófum (beets), og var að
eins einn áttugasti og fimti hluti þeirra
ræktaður í Bandaríkjunum og Canada,
eða tæpur þriðjungur þess, sem Canada-
búar einsamlir þurfa á að halda. Sýn-
ir þetta, hve lítill gaumur er gefinn hér
í álfu að þessari jarðræktar-tegund,
þrátt fyrir hagfelt loftslag og laðandi
verðlaun frá hinum opinberu stjórnum.
Það er miklu stærra stykki af þurr
lendi jarðarinnar, sem er lagað til þess,
að rækta i því sykurrófur, en hitt, sem
hagfelt er fyrir sykurreyr. Stór hluti
af Canada liggur í þessu belti, og sér í
lagi er jarðvegurinn í Manitoba ákjós-
anlegur til rófuræktunar. Sést það
mjög glögglega af reynslu fyrirmjmd-
arbúanna í Ottawa og Brandon. Af
þeim þremur tegundum, sem dreifðast-
ar eru um Evrópu, fékk Brandon-búið
fullum 5 tonnum, 3 tonnum og 1 tonni
meiri sykurrófu-uppskeru af ekrunni,
heldur en búið í Ottawa. Með $1,50
söluverði á tonninu og S1 verðlaunum,
sem veitt eru af sambandsstjórninni,
verður arðurinn af þeirri ekrunni í
Brandon, sem hæsta uppskeru gaf, 18§
tons—nokkuð yfir hundrað dollars. Þar
að auki veitir stjórnin 3J cent í verð-
laun fyrir hvert pund af þessu sykri,
sem vissu gæðastigi nær.
Alt þetta er mjög íhugunar vert, en
að verklegum framkvæmdum er, því
miður, ekki svo auðhlaupið sem skyldi
i veikliða bygðarlögum. Plægingar
þurfa að vera djúpar. útsæði í ekrnna í
það minnsta 15 pd. sé með vélum sáð,
annars þriðjungi minna, og hirðing
þarf að vera svo góð, að til hennar þarf
sérstakari þekkingu, en almennt gerist
við • matjurta ræktun, Til þess að
framleiðslan geti svo orðið að notum,
verða menn að geta náð til verkstöðva
þeirra, sem vinna sykurinn úr rófunum
Slíkum stöðvum er ekki, svo vel sé,
komið á fót fyrir minna en 4 miljón
dollars, og mun það þannig útheimta
afar-sterkan félagsskap meðal bænda,
að koma þeim upp af eigin ramleik í
bygðarlögum sínum. Til þess að verða
svo ekki fyrir tapi á hreinsuninni,
þurfa vélarnar, að hafa nóg fyrir stafni
dag og nótt yfir þann tíma, sem með
þeim er unnið. Hreinsa þær þá að
meðaltali sykur úr 250 tonuum á sólar-
hring, og fást 200 pd. og þar yfir úr
hverju tonni. Til þess að fullbjóða
vinnukröftum slíkra stöðva, þyrfti af-
raksturinn af hér um bil 3000 ekrum.
Þegar tekið er tillit til þess, að árið
1893 !var eytt í Canada 250 miljónum
punda af sykri, og að því til framleiðslu
þurfti nærfelt 70,000 ekrur, er a uðsætt
hve umfangsmikil iðnaðargrein sykur-
framleiðslan mætti þegar vera orðin
hér í landsbúa eigin þarfir; og hve eðli-
legt er, að búast við þvi, að hún eigi
stóra framtíð fyrir höndum, einmitt
hér í Manitoba.
TJm Islendinga.
Dr. Carl KHchler skrifar oss
frá Leipzig 22. Maí:..........“Kvæðum
Stephans G. Stephanssonar safna ég
fúslega og mun á sínum tíma tala ná-
kvæmlega um þau........Ég hefi einnig
glaðst við skáldsögur J. Magnúsar
Bjarnasonar, sem þér senduð mér*....
Yfir höfuð mun ég þakklátlega taka öll-
um skáldverkum frá íslendingum í
Ameríku, þvi að við ritstörf mín um
hinar yngri bókmentir íslendinga verða
þau mjög mikilsvirði. íslenzkur sögu-
skáldskapur hinna nýrri tíma...er að-
eins lítilfjörlegt undirbúningsrit. Seinna
mun ég tala miklu nákvæmar um
það efni. Nú kemur næst hjá mér:
Hinn nýrri islenzki drawia-skáldskapur
og loks kemur öll lyrikin. Öll þessi rit-
verk (novellistik, dramatik, og lyrik)
mun ég gefa út árið 1900 í bókarformi
með titlinum : Saga hins yngri skáld-
skapar íslendinga, frá 1856 og áfram.
Verður það þá verk, sem hefir þýðingu
fyrir Þýzkaland og mun, að von minni,
verða hinni “ástkæru Isafold” að
gagni.”
Því miður er enginn Kuchlers-jafni
til, enn sem komið er, meðal enskutal-
andi þjóðanna, til að vekja athygli nám-
fúsra manna á því, sem fagurt er Og
gagnlegt í hinum yngri (eða eldri) bók-
mentum íslendinga, á þann hátt, sem
Dr. Kuchler gerir það á Þýzkalandi.
Mentamaðurinn George Wilson, for-
seti bankafélags i Lexington, Missouri,
er telur sig af forníslenzkum ættstofni
runninn (frá Virginiu og Norður Caro-
linu-ríkjum), er í þann veginn að gefa
út bók um fínanzmál oghagfræði. Fyrir
skömmu reit hann oss og lét þar í ljósi,
að engin fullkomin fínans-saga fengist,
nema nákvæmlega væru athugaðar all-
ar fornsögur íslendinga, ekki síður, en
fornrit annara þjóða. Og í bréfi dags.
81. Maí kveðst hann í bók sinni “ve-
fengja þá kröfu, að England og Þýzka-
land séu á hæztu stigi siðfágunar
(countries of the-highest civilization) og
neita, að rétt só sú þýðing, sem venju-
lega er lögð f orðið “civilization,” en
það er : auður og vald ekki síður en
*) Þetta er misskilningur hjá hin-
um heiðraða höfundi. Vér eigum enga
þökk skilið fyrir sending á þeim sögum,
því vér höfum ekki sent þær.
Ritstj. Hkr.
mentun. Hann kveðst þar halda fram,
að í orðsins réttu merkingu séu Islend-
ingar bezta sýnishornið af siðaðri þjóð,
hvaða lielzt mannflokkur af aryönskum
ættstofni, sem tekinn sé til samanburð-
ar, þrátt fyrir að þeir séu flestum þjóð-
um snauðari af gulli.”
Það er því miður hætta á að þetta
sé oflof, þegar á alt er litið, og sprettur
að líkum af því, að Mr. Wilson hefir
þekkingu sína á Islendingum af forn-
sögum þeirra fremur, en nýrri tíma rit-
verkum og kynningu á landinu sjálfu.
Afturför.
Svo heitir bók ein nýlega útkomin
á Þýzkalandi, eftir fræðimanninn Max
Nordau. Bók þessi hefir vakið víðtæka
eftirtekt og valdið miklu umtali bæði í
Evrópu og í Ameríku. í bókinni er
hinum merkari rithöfundum nútíðar-
innar skift í flokka, ritverk þeirra borin
saman og gaumgæfilega athuguð frá
öllum hliðum. Eftir að hafa þannig
athugað alla stefnu nútíðar skáld-rit-
anna kveður fignn upp þann dóm yfir
ritum þeirra Tolstois, Ibsens og Zola
og yfir höfuð allra í þessum flokkum
eða “skólum,” sem þessir menn eru
taldir forvigismenn fyrir. Yfir ritum
þeirra kveður hann upp þann dóm, að
þau séu óheilnæm, að höfundarnir séu
siðferðislega veiklaðir, og að þess vegna
gægist fram afturför og veiklun í öllum
þeirra ritverkum. Hann skýrir ná-
kvæmlega frá ástæðum sínum fyrir
þessum úrskurði. Hin einkennilegasta
af þeim er ef til vill sú, að jafna saman
hinum þunglyndislegu hugmyndum rit-
höfundanna við brjálæðis-grillur vitfirr-
inga, sem á vitskertra-spítölum eru og
sem læknarnir athuga með gaumgæfni.
Hann virðist nokkuð glæfralegur þessi
ritdómur, en vænt þykir mörgum hin-
um smærri ritdómurum sjálfsagt um
hanu, af því hann kemur frá svo mikil-
hæfum og viðurkendum manni. Þvi
það er langt síðan margir blátt áfram
ritdómarar blaða og tímarita hafa kom-
ist að sömu niðurstöðu um þennan
“skóla” skáldsagna-höfundanna. Þeir
hafa auðvitað ekki verið eins djarfir og
Nordau og því síður jafnað saman hug-
myndum höfundanna og hugmyndum
brjálaðra manna. Það leyfðu þeir sér
ekki að segja, en þeir hafa æði oft leyft
sér að segja (og vitanlega fengið óþökk
fyrir) að stefna öll þessa “skóla” sé
vottur um andlega afturför eða
hnignun höfundanna, og sé þessvegna
skaðleg, þar eð ritin hljóti að framleiða
sama sjúkdóminn í þeim, er lesa þau.
Það hefir ekki verið skortur á þessum
og þvílikum dómum um ritverk þessara
leiðtoga og þeirra allra, er þræða
sömu slóð: “veikluleg,” “óeðlileg,”
“illa hugsuð,” og um sum af ritverkum
Ibsens: “full af hljóm og æði, sem
enga þýðing hefir.” Á þessa leið hafa
eigi all-fáir ritdómarar blaðanna dæmt
ritverk þessa “skóla” skáldskaparins og
þeir allir fagna yfir þessum þunga dómi
Nordaus. En svo er eftir að vita hvað
hinir stóru ritdómarar Norðurálfu —
jafnokar Nordaus, segja um þetta rit-
verk hans og dóm.
Því er haldið fram, að hér í landi
séu ritverk þessara manna og þeirra
sporrekjanda í seinni tíð stöðugt að
falla úr gildi, en í þess stað sé nú eftir-
sóknin mest eftir hinum heilsusamlegri,
hetjulegri og vonarríkari ritverkum
þeirra allra, er stefna í öfuga átt. En
forvígismenn í þeim flokki eru taldir
þeir Hall Caine og Stanley J. Weyman
á Englandi, m. fl. Sé það rétt er það
eins víst þessum ádeilum ritdómaranna
að þakka eða kenna.
Orða-belgurinn.
Kjarnaskóla-málið.
Af hverju þykir þjóð vorri vænna
um persónulegar skammir en reglu-
lega PKÓFETA KRITIK ?
Af því hún yfir höfuð trúir enn
svo litið á málefni, er með eða móti
einstökum mönnum, en er svo und-
ur-lítið með eða móti nokkru mál-
efni. En um eitt getið þér allir ver
ið alveg vissir... .einum marghöfð
uðum þursa.... stendur alveg á
sama um öll mannfélagsins málefni.
Jón Bjarnason.
Skólamálefni eru sannarlega, um
allan hinn menntaða heim, mannfélags-
ins málefni, en svo hefir það farið svo í
Kjarnaskólahéraðinu, eins og svo oft
vill verða í heiminum, að þar er uppris
inn einhver “demagóg”, eða ef til vill
öllu heldur marghöfðaður þursi, sem
Styrbjörn nefnist, og hefir hann snúið
þeim alvarlegu mannfélagsins málefn-
um f persónulegar skammir. Samkvæmt
prófeta-kritík séra Jóns er viðbú-
ið að fólki þætti vænt um að þeim yrði
haldið uppi um óákveðinn tíma, en til
þess er varla af mér að ætlast, að eiga
við Styrbjörn þenna til langframa. Það
höfuðið, sem á honum sást í vetur lítur
út fyrir að hafa þá fengið nóg, og fyrir-
finst því ekki lengur, en í þess stað eru
vaxin út höfuðin af þeim Þorst. Mjó-
fjörð og Sv. Kristjánssyni.
Þorsteinn lýsir mig í 16. bl. Hkr. þ.
á, ósannindamann að því, að hannhafi
bókað rangt það, sem frám fór á skóla-
fundi í héraðinu síðastl. haust. Þann
fund þykjast þeir Sv. Kristjánsson og
Bened. Arason liafa boðað í því einu
skyni að gera þriðja nefndarmanninum
til geðs, en að öðru leyti hafi hann ver-
ið tilgangslaus, nefnil. eintómt “moc-
kery”. Yar því auðvitað sama hvor var
skrifari. en samt hefir Bened. þótt viss-
ara að útnefna hann sjálfur, en að láta
fundarmenn gera það, eins og þó á að
vera. Hefir þeim að líkum þótt það
heppni sín meiri, því svo langt komst
þó málefni það sem rætt var á fundin-
um, að vera borið upp til atkv. Það
varðaði því mestu hvernig frá því atriði
fundarins var skýrt, en með því að ekki
voru 12 atkv.bærir menn viðstaddir, er
það ósatt hjá skrifaranum, að 6 hafi
verið hvorumegin. Sú lýgi var bókuð
vísvitandi, því að mótmæli komu strax
frain á fundinum gegn einu atkv., og
auk þess hafði Sv. Kristjánsson engan
rétt til að greiða atkv. um kosningu
dóttur sinnar. Bókun þessi er ekki
heldur virt þess, að fylgja öðrum skóla-
skjölum, þar eð hún hefir aldrei verið
borin fram til samþyktar á nokkrum
fundi, er þannig heimildarlaust undir-
rituð af fundarstjóra og óinnfæranleg í
nokkra lögmæta gjörðabók.
Þorsteinn lýsir einnig annan mann
ófannindamann að því, sem jeg hafi tal-
að, en slíkt er svo vitlaust að það er
ekki svaravert.
Þá, sem nokkuð annars kynnu að
láta sig skifta þessa deilu, vil ég biðja
að gera sér. sem róttasta grein fyrir efn-
inu í 210, skólalaganna, er ég áHt vera
þannig1 að hver sá skólanefndarmaður,
sem beinlínis eða óbeinlínis hefði hags-
muni af samningi, er nefndin þyrfti að
gera, viðvíkjandi nokkru öðru en skrift-
um eða skólalóð, hann skuli rýma sæti
sitt í nefndinni, og félagar hans boða
aukakosningu til hins auða rúms.
Það væri óvita æði, að eltast við all-
ar þær vífilengjur þeirra Styrbirninga,
sem risið hafa af yfirtroðslu þessarar
greinar á síðasta liausti. Efni greinar-
innar er hyrningarsteinninn undir öllu
því sem um er deilt, en kringum það
hafa þeir vitanlega orðið að flæmast
eins og köttur um heitan graut.
Að ég hafi í grein minni i vetur hermt
það rétt. að ólöglega og ósiðferðislega
hafi verið fjallað um skólamál héraðsins
á síðasta hausti, því getur enginn sá
neitað, sem nokkurn áhuga ber fyrir
því, að finna orðum sínum stað. Þar
sem dóttir eins nefndarmannsins,Sveins
Kristjánssonar, var í boði sem kennari,
átti Sveinn að sjálfsögðu að víkja úr
sæti og aukakosning að fara fram ; en
því fór svo fjarri, að hann fullnægði
þeim lagastaf sjálfkrafa, að þótt Alb.
Þiðriksson mótmælti aðgerðum hans í
nefndinni, lót hann það ekkert á sig fá,
vegna þess að Alb. var ekki nógu kunn
ugur lögunum til þess að geta sýnt það
svart á hvítu, við hvað mótmæli sín
hefðu að styðjast. Þeir Sv. og Bened.
virtu stöðu sína ekki þess að vera sér út
um frekari þekkingu á því hvað gera
skyldi, og svo samdi faðirinn við Bene-
dikt og sjálfan sig um kaup dótturinn-
ar. Albert fókst ekki til að setja nafn
sitt undir gerðir þessarar svoköUuðu
nefndar, en lét þó alt kyrt vera, eins og
aðrir að hans dæmi. Hnykti mönnum
því heldur en ekki við, að sjá kunningja
Sveins vekja máls á þessu, af þeirri einu
orsök, að héraðið þoldi nefndinni ekki
yfirgang hennar lengur, en til áramót-
anna.
Að Sveinn, ekki heimskari maður,
skyldi svo fara að trana sér með nafni
fram í þessa deilu, þótti mér furðu
gegna. Þegar einhver maður stýrir eða
hefir stýrt opinberlega einhverju mann-
félagsmálefni, er óviðurkvæmilegt af
þeim manni, að flíka frekar en þörf ger-
ist, fávizku sinni í því sama efni. Vil
ég því, skólanefndarmönnum og öðrum
til dáHtils fróðleiks og viðvörunar,
drepa á nokkur atriði í grein Sveins, er
birtist i Lögb. 25. Apríl þ. á.
Hann staðhæfir að ég hafi sagt dótt-
ur sína vera í Standard VIII, og ger-
ir hann það bersýnilega af fávizku. I
Ný-íslands-skólunum er ekkert hærra
til en Std. IV, en annarsstaðar hafði
hún ekkert á skóla verið, og var mér
því ómögulegt að framsetja aðra eins
vitleysu. Virðist það næsta óföðurlegt,
að ala mannvænleg metnaðargjöinbörn
sín á ranghermdu lofi, annara manna,
eða vígamóð um hrós, er mœtti útvega
þeim þar og þar. Hitt má hann þakka
mér fyrir, að hann bakaði sér ekki
kostnað með þvi, að flana með dóttur
sína tíl Winnipeg í því skyni að láta
prófa hana þar, því að auka-kennara-
próf fást ekki haldin á nokkrum tíma
ársins.
Að kennarar hafi jafna heimild til,
að sækja um skóla, hvort sem hann er
auglýstur eða ekki, er önnur fásinnan.
Sjálfra sín vegna hafa þeir ekki heimild
til sHks. Ef einhver nefnd ekki auglýs-
ir, bendir það á, að hún hafi augastað á
vissum manni, og væri sérleg ókurteisi
fyrir nokkurn út í frá að reyna, að bola
þann mann burtu með því, að bjóða
sína þjónustu. Betur, að reglulegir
a|H ris Pd,£5
JheA^to>(5rins‘
SciATICA.-f^HEUMATISM
-Neuiialgia. '
•ain5 in BackoflSide
•0\ ANV^\U5CULAI\pMf(5
]jE5 in’Using
:
y\\ENTH0L
; Plasteh
kennarar óvirtu aldrei stöðu sína með
því, að gegna þeirri bendingu Sveins á
Framnesi.
Ein meinlokan er það ólit hans, að
meðmælið frá mór hafi jafnt verið til
sín sem hinna tveggja. Það gat ekki
átt að vera, vegna þess, að hann var
ekki lögmætur nefndarmaður eina mín-
útu eftir það, að byrja þurfti að ræða
um tilboð frá dóttur hans, en ólíklegt
að meðmæli væri lagt fram fyrrenkost-
ur hefði gefist á þeim, sem með var
mælt. Allar flækjurnar stranda á
sömu lagagreininni, og bréfið varþann-
ig stýlað til félaga hans og þess manns,
er sæti hans hefði skipað, ef rétt hefði
verið að farið.
Hve greinilega hann og Benedikt
gengu fram hjá Albert í ýmsu, sem
þessu kom við, sýna bezt eigin orð
Sveins, og verður honum þó náttúrlega
óvart, að gera þá játningu. Bréf mitt
segist hann hafa haft með höndum með
Benedikts ráði, og auglýsingu, sem öU
nefndin hafði ályktað að birta í Lögb.,
kom þeim tveimur á sínum tíma saman
um að “mætti sleppa” ! Reyndar lcann
nú sumt af þessu að vera formleysi.
sprottið af eintómri fávizku, en við það
breytast einungis áhrifin í reglulega
bygðarhneysu, að heilt hérað skuli
þurfa að beita þeim skussum fyrir, sem
ekki geta haft nokkurnvegin viðunan-
legt form á jafn-umfangslitlu starfi.
Þá er eftir hið merkasta auka-atriði
hið eina pólitiska atriði, sem viðkemur
þessu máli npummálið vm hluidrœga ýrarn-
komu stjómarinnar í skólamálum Ný-ís-
lendinga. Hafi Sveinn komið mannlega
fram sem boðberi sinnar nefndar til
stjórnarinnar, þegar hann var að út-
vega kennsluleyfið handa dóttur sinni,
þá hefir hann farið með ósannindi; ef
ekki, þáhefir Sifton stungið leyfinu upp
í hann eins og hverri annari dúsu, án
þess að hafa fyrir sér þau skilyrði, sem
skrifstofustjóri hans hefir sagt, að út-
heimtust til þess að nokkrum óprófuð-
um væri leyft að kenna hér í Manitoba.
Þetta er hið eina atriði af öllu því er
komið hefir fram í þessari Kjarnaskóla-
deilu, sem vert er almennings íhugunar.
Vegna þess, að ég veit að Styrbirn-
ingar vildu fegnir geta ausið sér út,
þótt þeim só ómögulegt neinu upp á
þetta að svara, nema persónulegum ill-
yrðum og vífilengjum eins og að undan-
förnu, er nóg komið af sh'ku i blöðunum
á þessu vori; og vegna hins, að það et
bersýnilegt ranglæti að ræða til lengdar
í viðfleygum blöðum smá-smugleg hér-
aðsmál, sem eftir eðli sínu ekki geta
snert nema sárfáa menn, þá skora ég á
hvern þann andstæðinga minna í þessu
máli, sem til þess hefir manndáð, að til-
nefna stað og stund innan þriggja mán-
aða hér í Viðinesbygðinni, þar sem
hverjum einum gefist kostur á að kapp-
ræða þetta málefni, án þess að yerja
þurfi pappír og prentun til þeirrar deilu
Einnig mana ég Styrbjörn til að opin-
bera öll sín höfuð á þeim íundi, og
reyna þar til að sanna þá andstyggilegu
ákæru sína, að við Albert Þiðriksson
höfum spillt þvi að böm sæktu Kjarna-
skólann fyrir síðustu árainót. Ef nú
Styrbirningar reyna að smeygja Esér hjá
því, að sinna þessari áskorun, með þvi
að brúka nokkur látalæti viðvíkjandi
héraðsfriði eða öðrum almennings heill-
um, en hika sér ekki við að útbreiða ill-
yrði og vífilengjur meðal hnillar þjóðar,
verður þeim virtsú ragmennska til þess
greyskapar, sem ekki sé svara verður,
nema meiðyrði verði með i bland.
Gimli, 28. Maí 1895.
J. P. SólmundsSon.
P. S. I grein minni í vetur var slæm
prentvilla, cngum fyrir mér, í uppá-
stungu. sem gerð var á nefndarfundi
24. Des. J. P. S.
BRISTOL’S PILLS
Cure Biliousness, Sick Head- ache, Dyspepsia, Sluggish Liver and all Stomach Troubles.
BRISTOL’S PILLS
Are Purely Vegetable, elegantly Sugar-Coated_, and do not gripe or sickcn.
BRISTOL’S PILLS
Act gently but promptly and thoroughly. “The saíest family medicine.” All Druggists keep
BRISTOL’S PILLS