Heimskringla - 09.08.1895, Side 1
IX. ÁR.
WINNIPEGr, MAN., 9. ÁGÚST 1895.
NR. 32.
| JtMís- j&íSt M-.. Jlk j& j>ífe fefe jtfe 4fe jtfe jtfe jfe jtfe.jtfe jtfe jtfe Jtfe jtfe^
* I
*
í
4
í;
#
#
4
#
Islendinga=dagurinn
2. August 1895.
Ritstjóra-spjall. — Kvæði. — Ræður.
§
*
I
#
ff'ffWWfWfWlWfWfWff'Wwll
íslendinga-dagurinn rann upp heið-
skír og fagur og hélzt þannig til
enda. Hiti var að vísu allmikill,
en þéttings-gola á vestan gerði
hann enganveginn tilfinnanlegan. Á
meðan á ræðunum stóð hefðu menn
enda kjörið meiri hita og minni vestan-
kælu, því hún gerði hvoitveggja:
þreytti ræðumennina og bannaði áheyr-
endunum, nema þeim næstu, að fylgja
efninu til lilýtar.
Áætlað er að þegar flost var i garð-
inum, hafi þar verið nær tveim þús
undum manns. Hefðu þeir orðið miklu
fleiri, ef íslenzkir vinnumenn í bænum
hefðu fengið sig lausa almennt, en það
fengu þeir ekki. Sumir hinir stærstu
vinnuveitendur sendu mann til verka
mannanna daginn áður til að taka nið-
ur nöfn þeirra, sem ætluðu að taka sér
hvíldardag, og tilkynntu þeim um leið,
að aðrir menu yrðu teknir í þeirra
stað. íslendingar skildu hvað það
þýddi og voru því neyddir til að vinna
um daginn. Þörfin og skyldan knúðu
þá til þess, því enn er of lítið um at-
vinnu til þess fátækur fjölskyldumaður
megi eiga nokkuð á hættu.
■‘Sports öll hafa aldrei áður vakið
annan eins áhuga meðal Islendinga, hér
í hænum að minnsta kosti, eins og nú,
og má eflaust þakka þvi, að margir
“sports”-menn voru að komnir sunnan
úr Dakota. En sá áhugi vaknaði lielzt
til seint, eins og sést afþvf'hve Dakota-
menn tóku mörg fyrstu verðlaun. Hvað
“Base ball” leikinn áhrærir, þá vilja
“North Star”-menn hér í bænum halda
fram, að þar hafi verið jafntefli, þó úr-
skurðað væri að aðkomumenn hefðu
einn “score” umfram. Hvað stökkin
öll snerti, þá voru 2 beztu menn Win
nipeg-manna í því efni ekki viðlátnir að
taka þátt í þeim leik. Annar var bund
inn við vinnu aflan daginn, en hinn var
bilaður í fæti og mátti ekkert á sig
reyna. En hver helzt sem orsökin var,
varð sú reyndin á, að Dakotamenn
unnu sigur í flestum hinum stærri
þrautunum—og það var einmitt gott og
heppflegt. Þeir höfðu lagt mikið í
kostnað til að heimsækja Winnipeg-ís-
lendinga og áttu skilið að bera eitthvað
úr býtum. Winnipeg-íslendinga vekja
þessar slysfarir til meiri framsóknar og
föngunar til að verða þeim að minnsta
kosti jafnsnjallir 1 hvaða hérlendu
“sport” sem vera skal. Canadamenn i
heild sinni eru fullkomnir jafningjar
Bandaríkja-manna í því efni. Því
skyldu þá ekki Canada-íslendingar vera
fullkomnir jafningjar Bandaríkja-ís
lendinga ? Til þess útheimtist að eins
það, að þeir æfi sig og séu ætíð við-
búnir.
ir og að annast um að allir hafi “fair
play” í hverju sem er.
Þegar forseti dagsins, herra Árni
Friðriksson, steig fram á ræðupallinn
og hafði tilkynt nöfn ræðumanna, tók
hann upp og las hraðfréttaskeyti frá
Park River, Nort Dakota, hið fyrsta er
sent hefir Iverið til íslendinga saman
kominna á Islendingadegi. og var því
tekið með fagnaðarlátum. Skeytið var
á þessa leið :
PARKRIVIR, N. DAK., 2. Ág. 1895.
Landsmönnum vorum, sem saman-
safnaðir eru til að minnast föðurlands-
ins. sendum vér hjartkæra kveðju.
Frjáls stjórn og frjáls lýður. Framför
engin án frelsis. Frjálsræði íslands er
ósk vor.
Islendingar.
Af því svo vel er nú byrjað, er von-
andi að Islendingar beggja vegna lín-
unnar kappkosti framvegis að þreyta
sameiginlegt “sport” á sem flestum alls
herjar tillidögum á sumrin. Samkom-
ur beggja yrðu miklu Jbetur sóttar og
yrðu í sjálfu gér miklu fullkomnari, ef
vist væri að aðkomandi “sports”-menn
þreyttu leiki við lieimamenn. Og það
er ekkert þvílíkt meðal til að vekja al-
mennan áhuga fyrir “sports”. Það
hafa Canadamenn og Bandarikjamenn
fyrir löngu reynt, að ekkert þvílíkt er
til, til að vekja athygli og áhuga fjöld-
ans, eins og International sport-fundir
Þar sem Bandarikjamenn og Canada-
nienn þreyta allskonar kappleiki í bróð-
erni, enda fjölga þeir fundir h'ka ár frá
ári. Því skyldu ekki íslendÍDgar oinn-
ig taka upp þennan sið ? Hann er fall-
egur og liefir í för með sér margt fleira
gott og nytsamlegt, en "sport” einung-
is. Menn kynnast betur hvorir öðrum,
verða samríndiri og læra alt af eitt-
hvað af hinum, ef ekki þetta, þá hitt.
Aðal-vandinn er að sjá um að formenn
allir og dómendur séu hlutdrægnislaus-
Aðkomandi íslendingar munu hafa
verið um 70 eða nálægt því. Dakota-
Islendingar voru þar um eða yfir 20,
en ekki kunnum vér að nafngreina
nema nokkra þeirra. Meðal þeirra voru
lögmennirnir M. <Brynjólfsson og D. J.
Laxdal frá Cavalier, bræðurnir Barði
og Skúli Skúlasons, bræðurnir Björn
og Halldór Björnssynir Halldórssonar
og bræðurnir Kristján og T. H. Indriða
synir, allir frá Mountain. — Frá West
Selkirk voru 30—40 íslendingar og með-
al þeirra urðum vér varið við Kjartan
Stefánsson, Helga Sveinsson, Jón Sig-
valdason, Stefán Scheving, Þorstein Pét-
ursson, Guðm. Magnússon H. Sigurðs-
son. Frá Argyle-nýlendu voruognokkr-
ir menn.en ekki kunnum vér að nafn
gieina nema tvo ^ Hjört Jósepsson og
línudansarann Magnús Jónsson. Frá
Nýja-íslandi urðum vér ekki varir við
nema einn einasta mann hr. Gunnar
Gíslason.
Alt fór vel fram og siðsamlega og
all-flestir munu hafa farið heim ánægð-
ir og glaðir um kvöldið.
North Star menn héldu Mountain
‘Base ball” félaginu veizlu í Delmo-
nico-restaurant um kveldid og skemtu
boðsmenn sér vel til kl. 2 um nóttina,
þótt lúnir væru eftir erviði og þunga
dagsins.
Selkirkmenn flestir héldu heimleiðis
um kvöldið og nóttina, en Dakota-fs
lendingar komust ekki af stað fyrr en á
sunnudaginn.
Linuleikarinn igat ekki notið sín og
ekki sýnt nema lítillega hvað hann
getur gert á strengdum vír, af því
strengurinn, sem útbúinn var handa
honum, var ekki í því lagi, sem þurfti;
var bæði of slakur og ekki á réttri
stærð.
Vestur-íslenzk “landnáma”.
Eftir að þeirn ræðum var lokið, sem
á prógramminu voru ákveðnar, flutti
herra Gunnar Gíslason ræðu og vakti
máls á því, hve nauðsynlegt væri að
safna landnámssögu Vestur-íslendinga
Á þessu sama málefni var lítillega
vakið máls í Hkr. fyrir 7—8 áruin síð-
an, en af því Lögberg tók þá dauflega í
málið var engin frekari tilraun gerð í
það skiftið og málið síðan legið milli
hluta. En nauðsynlegt er verkið og
auðsætt að annaðhvort er að hyrja á
n'í bráðlega, eða alls ekki. Frum
byggjarnir týna óðum tölunni og geta
fallið í gleymsku, og með þeim þá liður
af ættartölunni, en þá er alt ónýtt, þv
landnámssaga þessi, ef nokkur verður,
hlýtur aðallega að vera til þess að geta
rakið ættir.
Byrjunin er tiltölulega auðveld.
Ekki þarf annað en sögufélög myndist í
hinum ýmsu bygðum íslendinga, er setji
sér það fyrir, aö safnanöfnum ogættum
sinna merkustu frumbyggja, sýna síð-
ustu heimili, sveit og sýslu á íslandi,
Minni Vestur-íslendinfra.
O
Vort djarfa, fagra móður-mál!
Svo mjúkt sem gull og hvellt sem stál
Þú sigur-tunga’ í sögu og brag !
Þú sætast hljómar nú i dag
f hrjósti hverju, er bærizt hér.
Og börn þín gleymi aldrei þér,
Við orð þín þurfum «ggjan-sterk,
Því oss er fengfð mikið vcrk
Við fústur-jarðar frægðar-starf,
Með /öðtf r-landsins sæmd í arf ;
Á okkur lögð er æfi-þraut,
Með alþjóð fyrir keppi-naut
Þú okkar barna móður-mold,
Vor mikla nýja óðals-fold !
Sem vorra niðja vöggur átt,
Sem vdrndar grafir okkar brátt!
Vor þjóð er smá, og þrekað lið,
En þér skal enginn dyggiú en við !
Stephan G, Stephansson.
Minni Vesturheims.
é
Onnur lönd með ellifrægð sig skreyta,
æfalöngu dauðum kappa-fans,
út í dimma fornöld lýsa og leita
lífsins perlum að og heiðurs-kranz.
Þú ert landið þess er dáð vill drýgja,
dýpst og sterkast kveöur lífsins brag.
Þú ert land hins þróttarmikla’ og nýja
þú varst aldrei frægri’ en nú—í dag.
hvaðaár þeir yfirgáfu ísland og hvaða
breytingum.ef nokkrar eru, sem nöfn
þeirra eðá afkomenda þeirra hafa tekið
hérílandinu. Með tíð og tíma mættisvo
vclja einn mann eða fleiri til að veita
söfnunum öllum móttöku, færa þau
saman í eina heild, umskapa þau að
þörfum og búa undir prentun. Sem
sagt er þvíbyrjunin tiltölulega auðveld,
en svo er tilgangslítið fýrir eina bygð-
ina að byrja. Til þess mynd verði á
safninu, þurfa þær allar að vera sam-
taka.
Kvæði
lesin á fslendinga-daginn 1895.
Minni Ishmds.
Vor fósturmóðir fríða,
þú forna söguland,
vort hjarta við þighnýtir
það helga kærleiks-band,
er hindur mög við móður
og mann við æskuslóð,
því enn í vorum æðum
þitt eigið rennur blóð. '
Á þínum beru brjóstum
þú barst oss fyrstu stund,
og fékkst oss fóstur bezta
og fagurt gull í mund ;
því bæði kjark og krafta,
sem kjarni mannlífs er,
þú gafst oss, göfga móðir,
þær gjafir þökkum vér.
Þó burtu frá þér flyttum
um forlaganna sæ,
vér munum til þín, móðir,
og muna skulum æ ;
vor andi hjá þér unir
svo oftí vöku og draumj
á segulstól hvar situr
í svölum norður-straum.
A þinnar æsku árum
þér auðnu lýsti sól,
er feður ;vorir frægu
sig fluttu þitt í skjól;
eu svo kom nóttin svarta,
ersastu fjötrum í
af blindri kúgun kvalin,
og kviksett inærri því.
Hér raunir þínar rekja
þér raunabót er siná ;
hið liðna gleymt skal liggja
í liðins tíma sjá ;
en raunabótin bezta—
þótt byljir slái fley—
er hiklaust fram að halda
og hefla seglin ei.
Og eins og “Fönix” áður
þú upp munt rísa skjótt
með yngdum hetju anda
og endurbornurnþrótt;
á þínum þjóðlífs-himni
nú þynnast bölva-ský,
það framtíð fegri boðar
og farsæld þér á ný.
Til minnís um þig móðir
vér mætum hér í dag,
og biðjum alt það blessist,
er bæta má þinn hag.
Þig hollar vættir verji
þá “Vo” að dyrum ber,
en aldrei, aldrei þrífist
sá, andar kalt að þér.
S. J. Jóhannesson.
Önnur lönd í kónga-dýrð sig dpða,
dýrast meta fágað líf í sal.
Hér er starfið skærara’ ðllum skrúða,
skýrast aðalsmerki snót og hal.
Hér er frelsið lifsins Ijúfust sunna,
líka fólksins öruggasta band.
Allir þeir sem frelsi framast unna.
fyrst af öllu horfa’ á þetta land.
Vesturheimur, veruleikansálfa,
vonarland hins unga, sterka manns,
fyll þú móð og manndáð okkur sjálfa
móti hverjum óvin sannleikans ;
lypt oss yfir agg og þrætu-dýki
upp á sólrík háfjöll kærleikans.
V esturheimur, veruleikans ríki,
vonarland hins unga , sterka manns.
Einar Hjörleifsson.
liörnum, sem farið hafa úr foreldra
húsum í hálfgerðu fússi, af f>ví þeim
fannst að pabbi og mamma vera ekki
nógu örlát við f>au, og f>au sáu ekki
Islaml.
Ræða Sigtr. Jónassonar.
Herra forseti, konur og menn!
Stjórnmálamaður einn hjer f
fylkinu sagði í ræðu, sem hann hjelt
utfi skólamálið, að hann væri „próte-
stant af tilviljan“ (protestant by acci-
dent). Jeg mætti með eins miklum
sanni segja, að jeg sje ræðumaður
hjer f dag af tilviljan. Ifæðan um
lsland var upprunalega ætluð allt
öðrum manni eða mönnum en mjer,
enda hefði f>að verið heppilegra, að
einhver annar mjer mælskari maður
hefði tíutt ræðuna um „Forna Frón“
— einkum ef Iiann hefði verið skáld.
Dað hafa vanalega verið skáld, sem
fiutt hafa f>á ræðu að undanförnu við
þetta tækifæri. Dað er líka heppi-
iegt og jeg vil segja nauðsynlegt að
þeir menn sje skáid, af f>ví Island
hefur ætíð verið og er svo mikið
skálda-land og íslenzkur skáldskapur
og bókmenntir er eitt hið helsta, sem
vpr gamla ættjörð og litla fátæka
f>jóð hefur að stæra sig af. Eins og
gefur að skilja, f>á þekkja skáldin
íslenzkan skáldskap og kunnaað meta
hann betur en f>eir, sem ekki eru
skáld; par að auki er æfinlega ætiast
tii og á sjálfsagt við, að sem mest hól
sje borið á f>á eða f>að, sem maður
heldur minnis ræðu um. Skáldunum
er nú eins og allir vita heimilt að ykja
dálítið, og er f>að kaliað skáldaleyti.
líi eins og allir einnig vita, er jeg
ekki skáid — ekki einu sinni leir-
skáld, sem [>ó einnig nokkuð er til af
á meðal þjóðar vorrar. Jeg er, sem
sje, svo nauða prósaiskur, að jeg tala
um hlutina alveg eins og f>eir eru,
held mjer við f>að sem er — við facts
— og kalla spaða spaða. Þetta er
nú stundum óvÍDsælt, einkum ef f>að
kemur í bága við einhverja viðtekna
kenningu. Dað er nú viðtekin kenn-
infr hjá mörgum íslendinguin, einkum
á fslandi, að „ísland sje hið besta
land, sem sólin skin úpp á“. Að
minnsta kosti stendur f>að í mörgurn
bókum, sem ferðamenu hafa skrifað
um fsland, að f>eir segi f>etta um
land sitt og að margir þeirra trúi f>ví.
Jeg ætla nú ekki að fara að mótmæla
þessari kenningu. Hún getur vel
verið sönu á f>ann hátt, að fsiand sje
hið besta land sem sólin skin upp á
þegar sólin skin á landið. En f>ví
miður skín sólin f>ar ekki æfinlega —
sízt við P axaflóa — framar en aunars-
staðarí heiminum. Ýmsir ferðamenn
hafa sagt, að sól set jist ekki á ís-
landi , í .sex mánuði, en svo
komi hún heldur ekki upp í aðra sex
mánuði af árinu. Hvorugt er nú rjett
eins og jeg veit f>jer kannist við, en
ekki get jeg neitað f>ví, að injer þætti
viðkunnanlegra, að skammdegið værl
styttra en það er á Norðurlandi. En
máske að f>að,að jegsje ekki sífellt sól-
skin á fslandi,sólskin í pólitík,atvinnu-
málum, samgöngumálum o. s. frv. komi
allt til af f>ví, að jeg er ekki skáld.
En hvað sem f>ví líður, f>á sje jeg
sólskinið hjer í dag -— Rje „blessað
Manitoba sólskinið".
En .Íef? ætlaði nú ekki að f>reyta
yður með langri ræðu, svo jeg fer
ektci lengra út f f>essa sálma/ Dað,
sem jeg ætlaði sjerstaklega að minn-
ast á f dag, er tilfinningar f>ær sem
Islendingar á Islandi og Vestur-ís-
lendingar bera í brjósti hverir til ann-
ara. Eins og yður er kunnugt, hef
jeg haft talsvert tækifæri til að kynn-
ast f>ví ináli um dagana, og jeg álít
heppilegt að vjer gerum oss f>að mál
ljóst einmitt við annað eins tækifæri
ogf dag. Nú ísumar er liðinn fjórð-
ungur aldar síðan fslendingar fóru að
flytja til Norður-Ameríku í f>ví skyni
að „reisa hjer byggðir og bú“, og
f>ví ættu hvorutveggju að vera farnir
að gera sjer ljós áhrifin, sem petta
atriði í sögu íslands hefur haft á fs-
lensku þjóðina og hvaða áhrif bað
muni hafa f framtíðinni.
Idvað oss Vestur-íslendinga snert
ir, þé verð jeg að segja f>að, að mjer
finnst að yfirleitt sjeu tilfinningar
vorar hlýrri gagnvart vorri göuilu
ættjörð og frændum vorum þar en
>eirra til vor, og mjer finnst að f>vf
lengra sem lfður sjeu tilfinningar
vorar að verða hlyrri óg h|ýrri. Mjer
finnst að f>að standa líkt á fyrir oss og
I fram á mikla framtíð. En þegar frá
ifður og þau eru komin á laggirnar
hjer og farið að ganga vel, fyrnist
yfir allt, sem þeim og foreldrunum
kann að hafa borið á milli, og minnast
aðeins hins góða, sem- foreldrarnir
ljetu þeim í tje og allra ánægjustund-
anna, er þau nutu í föðurhúsum.
Mjer finnst aptur á mótiað sumu fólki
á íslandi fari líkt og foreldrum opt
fer undir slíkum krÍDgumstæðum, að
það sje langræknara og eigi bágt
með að fyrirgefa börnunum, að þan
sýndu af sjer anuað eins sjálfræði
eða sjálfstæði og þau gerðu með því
að yfirgefa þau. Þó jeg hafi orðið
var við mikinn hlyleik hjá fjöld.
manna á íslandi gagnvart Vestur-ís
lendingum, einlægar óskir um vel-
gengni þeirra og von um að flutning-
ar mannna hingað muni á sínum tíma
bera heiilavænlega ávexti fyrir ísl.
þjóðina í heild sinni, þá er ekki rjett
að loka augunjum fyrir þeim sann
leika, að allmargir menn á íslandi
hafa alltaf borið, og bera þann dag I
dag, megnan kala til Vestur-íslend
inga og Ameríku. Auk þess að jeg
hef sjálfnr marg rekið mig á þetta,
bera sum ísleDzku blöðin og önn-
ur íslenzk rit það með sjer. Dað
hefur sjálfsagt ekki farið fram hjá
yður, að það hefur hlakkað mikið í
einum tveimur íslenzkum blöðum
yfir því, að það hefur verið óvanalega
hart í ári hjer í Norður-Ameríku eins
og víðar í heiminum þessi síðastl. tvö
ár, og þau gefið í skyn Vestur-ísl.
væru á vonarvöl—og jafnvel hlakkast
yfir því. Dó mest af þvf, sem þessi
blöð hafa haft meðferðis um þetta efni
sje til allrar hamingju ósannindi og
öfgar, þá lysir það ekki göfuguni
hugsunarhætti að gleðjast af og lilakka
yfir bágindum annara — þó þau sjeu
að mestu leyti ímynduð. J®g vona,
að ekki sje hægt að syna, að Vestur-
íslendingar hafi glaðst ytír nje hlakk-
að yfir bágindum bræðra sinna í ís-
landi, sem óneitanlega hafa átt sjer
stað optar en einusinni hin síðstl.
ár. Dvert á móti hafa þeir reynt að
rjetta hjálparhönd með því að senda
ættingjum sínum peninga, ymist til
að flytja liingað eða til að íifa á Is-
landi. Jeg efast ekki um, aú ein-
stöku menn á íslandi trúi þvf, að líkt
sje ástatt fyrir Vestur-Islendingum
eins og syninum sem tók fjárblut
sinn, fór burt, sóaði honum f bílífi, og
komst að lokum í svo mikil vandræði,
að hann lagði sjer svína draf tU munns.
Fæstir Vystur-íslendingarhafa nú haft
miklum arf að sóa, og það er tómur
misskilningur að nokkrir þeirra svelti.
En setjum svo að það stæði eins á
fyrir þeim og tyndasyninum, og setj-
um svo að þeir sneru heim aptur eins
og hann. Myndu landar vorir á ísl.
slátra alikálfinum o. s. frv.? Ekki al-
mennt. Jeg er hræddur uin að við-
tökurnar hjá sumum yrðu eins oo-
,,V ankee“-inn sagði, þegar hann gerði
tilraun til að breyta að dæmi tynda
sonarins. Faðir hans barði hann eins
og fisk. Að minnsta kosti finnst mjer
að stöku menn á íslandi hafa synt
svipað hugarfar gagnvart Vestur-ís-
lendingum.
Dað er skaði, að það skuli nokkr-
ir þeir ísl. vera til á lsl. og hjer sem
líta hvorir aðra röngu auga. Djóð
vor er svo fámenn, að íslendiugar
ættu að taka höndum saman, hvort
sem þeir eiga lieima á ísl. f Kaup-
mannahöfn eða í Ameríku til að
styrkja hvorir aðra f baráttunni að
hefja þj'óð sína upp. Dó svo langt
sje á milli þeirra að þeir verðj, ef jeg
mætti svo að orði komast, að nota
sjónpfpur tll að sjá hvorir aðra, þá
geta menn sjeð hvorir aðra eins og
þeir eru ef menn aðeins nota sjónpíp-
urnar rjett. En fari menn að eins og
sumum hefur hætt við, að snúa sjón
pfpunni skakkt þ. e. horfa í endann
með stærra glerinu, þá er ekki að
furða þó að mönnum synist hvorir
öðrum langt burtu og smærri en þeir
eru f raun og veru. Degar þar við
bætist, að ymsir setja upp allskonar
gleraugu. sem afmynda það er þeir
horfa á, þá er ekki von að þeir sjái
hlutina í siuni rjettu mynd. Dað eru
nokkrir menu á íslandi sem vita, að
þetta land, sem vjer Vestur-ísl. bú-
um í, er gott land og að mönnum hjer
líður yfir höfuð vel, en segja allt ann-
að; eu hvað fjöldann, sem hefur yini-
gust á þessu landi, snertir, þá er það
blátt áfram af vauþekkingu. Dað er
varla von að menn, sem aldrei hafa
sjeð annað af veröldiifni en sveitiua,
sem þeir eru uppaldir í, geti dæmt
um öunur löod. Dá vantar allan
samanburð. Hinir yngri Vestur ísk
haía nú orðið mjög óglögga hugmynd
um ísland; sumir halda að það'sje
miklu betra en það er, en sumir að það
sje miklu verra. Til að eyða þeim
misskilning, sem er á milli slendino-a
á ísl. og Vestur-Isl. er ekkert þvílíkt
meðal og tíðari milliferðir. Jeg vona
að þær aukist ár frá ári, og verður
það hagur fyrir hvorutveggju. JÞó
Isl. á ísl. ekki skilji það almennt, þá
verður það þeim samt meiri skaði en
oss Vestur-Isl. ef vjer hættum að eiga
nokkuð saman að sælda. Jeg vona
að allir góðir menn, bæði á ísl. og
hjer, leggist á eitt með að styrkja
bræðraböndin, og láti ekki óhlutvönd-
um mönnum, sem eru að reyna að spilla
á milli með lýgi og rógi, takast það.
Jeg vona, að okkar kæra vini E. Hjör-
leifssyni, scm hefur haldið svo margar
°g fagrar ræður á samskyns hátíðum
undanfarin ár og vjer höldum í dag,
takist að sannfæra marga biæður vora
og systur á ísl. um það, að vjer Vest-
ur-ísl. berum hlyjan og bróðurlegan
hug til þeirra, að vjer óskum að land-
ið megi blómgast, og þeim líða
þar vel.
Jeg held að það sje óhætt að
fullyrða, að Vestur-ísl, hafa almennt
meiri trú á framtíð ísl. en fjöldinn af
mönnum á Isl. En vjer trúum ekki
á, að hagur landsins verði bættur með
tómum blaðagreinum, með hóli um
þjóðina eða með þvf aðteljahenni trú
um, að hún sje í raun og veru mesta
og sælasta þjóð í heimi. Hvað sem
hver segir, þá hlytir ísland og íslend-
ingar nákvæmlega sömu lögum í fram-
farabaráttu sinni og aðrar þjóðir, og
verða að nota reynslu þeirra í stað-
inn fyrir að vera að fálma fyrir
sjer, ef landið á ekki að siglast enn
lengra aptur úr en orðið er. Fáir
hinna eldri manna skilja þetta.
I>eir voru of gamlir þegar ísland
fjekk sjálfsforæði, 6em reyndar erekki
nema að nafninu, og geta þvf ekki
sett sig inn í hvað útheimtist til að
koma málum landsins í rjett horf.
Miklu flbiri af ungum og efnilegum
mönnum verða að fara erlendis, ekki
til að læra lög eða læknisfræði, held-
ur til að kynnast hinum verklegu fram-
förum annara þjóða.
Dað er enginn vafi á, að það þarf
að fá endurbót á stjórnarskránni.
Menn eru allt af að reka sig á það
enn átakanlegar. Dað er t. d. óþol-
andi að fá ekki að nota landsins eigin
fje til að koma upp lagaskóla, háskóla
eða hvað það nú er. Dað er óþolandi
að hafa engan mann, sem ber ábyrgð
af gerðum stjórnarinnar fyrir þingi
°K Þjóð. Desshátlar sjálfsforræði er
aðeins hljómurinn af sjálfsforræði.
Jeg er viss um, að fjöldi af Vest-
ur-ísl. taka einlæga hlutdeild í bar-
áttu ísl. fyrir meirasjálfsforræði. Jeg
vona að allir góðir Vestur-ísl. skoði
það sem skyldu sína að styrkja bræð-
ur vora á ísl. í þeirri baráttu með ráð-
um og dáð, efla og útbreiða rjettar
skoðanir um það og önnur mál á ís-
landi.
Svo bið jeg ykkur öll að hrópa
þrefalt húrra fyrir forna Fróni.
Canada og Canada íslend.
ingar.
Ræða eftir Magnús Paulson.
Háttvirtu tilheyrendur !
Ég hefi verið beðinn að tala um Ca-
nada og Canada-íslendinga hér í dag.
Þér getið því nærri að þau fáu orð, sem
ég segi um Canada, verða lofsorð ; ekki
vegna þess að hin heiðraða nefnd, sem
bað mig að flytja hér ræðu, hafi uppá-
lagt mér neitt slíkt; ekki heldur vegna
þess aðDominionstjórnin eða nein önnur
stjórn eða einstaklingar hafi leigt mig
til þess að lof.a þetta land. Ég get ekki
séð að ég uppskeri neinn persónulegan
hagnað fyrir það að tala vel um Cana-
da. Aftur á móti býzt ég við, að
Röti átt kost a, ef eg færi þess
á leit, að fá þóknun hjá vissum manni
eð.a mönnum fyrir ,að leggja Canada illt
til, reyna t. d. að sanna að Canada sé
langtum verra land en ísland, óbyggi-
legra land en ísland; reyna að sann.a að
þeir, sem hingað hafa flutt frá íslandi,
nagi sig í handarbökin fyrir heimskuna,
og væru fyrir löngu horfnir heim aftur
til gamla landsins, ef þeir hefðu nokk-
urn tíma orðið þeir menn að geta nurl-
að saman nógu miklum peningum fyrir
farseðil. Én ég vil ekki vinna það fyr-
irneina þóknun. Með því talaði ég
þvert á móti betri vitund, og með því
fyrirgerði ég öllu tilkalli til þe#s að orð-
um mínum yrði trúað framvegis meðal
þess fólks, sem þekkir þetta land og
vort gamla ættland, ísland,
Ég retla mér ekki í þetta sinn að
dr.aga fram og rifja upp fyrir yður hina
mörgu og niiklu kosti þessa vors unga
krera fósturlauds, né b.aráttu yðar og
sigur í landnámsstríðinu. Það licfir
veiið gert mjög ná,kvæmlega undanfar-
in ár, og nú 1 síðasta blaði Lögbergs er
ræða í sömu átt eftir Sigtrygg Jónas-
son. Eg vil sérstaklega biðja yður að
lesa þá ræðu ; það er eftir mínu áliti,
sú langmerkilegasta rreða, sem
hefir verið haldin um það efni. Ég retla
aðverja þessum fáu augnablikura til
þess að tala um Can.ada og Canada-ís-
lendinga frá ann.ari IHið.
Hafið þér tekið eftir því — sein er
óneitanlega einkennilegt, meir en litið
hlægilegt og ótrúlegt - að íslendingar