Heimskringla - 09.08.1895, Blaðsíða 4

Heimskringla - 09.08.1895, Blaðsíða 4
4 HEIMSKMNGLA 9. ÁGÚST 1895. # * Dagatal Heimskringlu. j 1895 - AUGUST - 1895 S. M. Þ. M. Fi. Fö. L. Winnipeg. Hveitiuppskera er almennt að byrja í Manitoba þessa (lagana. Miss Halldóra Thomson, yfirsetu kona, er flutt af Elgin Ave. og er nú að hitta að 622 Ross Ave. Bæjarstjórnin hefir ákveðið að al- mennur hvíldar og skemtidagur bæjar- manna verði í ár á fimtudaginn kemur — 15. Agúst. Verkmannafélögin í bænum eru óða-önn að búa sig undir tilkomumikið hátíðahald á Verkmannadaginn lög- helga 1. Sept., í ár 2. Sept,, af því mán uðurinn byrjar á sunnudag. Tjaldbúðar sunnudagsskóla pic-ni c hið fyrsta, í Elm Bark á mánudagi nn kemur. Sameinaðir farseðlar og að göngumiðar 25 cts. Sjá auglýsing an n arsstaðar í blaðinu. Maður að nafni John Little datt af vagni og hálsbrotnaði á mánudaginn Hann var fluttur á St. Boniface spítal- ann, hálsinum kift í liðinn og — hann lifir enn. Mánudaginn 5. þ. m. gaf séra Haf- steinn Pétursson saman í hjónaband Mr. Þorlák Jónsson og Miss Arnbjörgu Oddson, bæði til heimilis héríbænum Hkr. óskar brúðhjónunum til ham- ingju. Samferða Dakota-íslendingum suð- ur á sunnudaginn voru nokkrir Isl. hér úr bænum, er fóru til að skemta sér. Meðal þeirra voru S. J. Jóhannesson, Albert prentari Jónsson með konu og barn, C. B. Julius, Jos. Skaptason. Taugaveiklun er mjög algeugur sjúkdómur, sér í lagi á kvennfólki. Það bezta við þessum sjúkdómi er að brúka duglega Ayers Sarsaparilla, sem hreins- ar blóðið og styrkir líkamann. Þegar það er gert batnar sjúkdómurinn af sjálfu sér. “Getur læknað vanheila sál?” spurði Macbeth. Vissulega, herra. Ásigkomu- lag sálarinnar er að miklu, ef ekki öflu, leyti komið undir ásigkomulagi mag- ans, lifrarinnar og innyflanna. Ayers Pills lækna öll þessi líffæri .betur en nokkuð annað sem fáanlegt er. Merkur Unitara-prestur, Rev. Al- bert Walkley, prestur í Brighton í Bos- ton, Massachusetts, kom til bæjarins í vikunni og heilsaði upp á séra M. J. Skaptason og formenn Unitara-safnað- arins hér í bænum. Hann er að heim- sækja foreldra sína, er hafa búið í grend við West Selkirk í nokkur ár. Stovel's Pocket Directory fyrir Ágúst mán. er útkomið og hefir margan fróð- leik að geyma, sem ekki hefir verið í fverinu áður. Auk lestagangsáætlana, upplýsingar um póstflutning, nöfn rit- ira allra í bræðralagsfélagsskap, m. m. 3. fl., eru nú í því fiskiveiðareglurnar, 'riðunarlög fugla og dýra, Dominion and-skrifstofur og nöfn agentanna, og ög um undanþágur frá fastsetníng signa fyrir skuldum, o. fl. o. fl. Eins >g áöur fylgir myndarlegúr uppdráttur if fylkinu og Winnipeg-bæ. — Kverið !r eigulegt mjög og öllum er innanhand- ir að eiga það. Það kostar 5 cents ein- akið eða 50 cents árgangurinn. Fæst ijá öllum bóksölum. VEITT HÆSTU VBRÐLAUN A IIEIMSSÝNINGUNN DR ID BEZT TILBÚNA Óblönduð vínberja Cream of Tartar Powdor. Ekkert álún, ammonia eða önnur óholl efni. 40 ára reynslu. 18 OFTEN A NEGLECTED COLD WHIOM DIVILOPH Finally Into Consuruptiot|. BREAK UP \ COLD IN TltyE BV UBINO Pyny-Pectoral THE QUICK CURE ron COUGHS, COLDS. BRONCHITIS, HOAR3ENESS, ETO. Iiarjfc Bottlc, IÍ5 Cts. Mr. og Mrs. Kristján Albert, á Ross Ave., mistu fárra mánaða gamalt barn núna í vikunni. Ef einhver kynni að finna silfur- spanga-gleraugu einhverstaðar á Nena Str. frá ísl. lútersku kyrkjunni og suður á Bannatyne Ave. eða ofan til á Ross Ave., er hann vinsamlega beðinn að skila þeim. Heimskringla vísar á eig- andann. Programm íslendinga-dagsins. 2. Ágúst 1895. Hr. Kjartan Stefánsson, skipstjóri á gufubátnum “Ida” heilsaði upp á oss á föstudagsmorguninn og sagði þær mikilsverðu nýjungar, að von væri til að kol fyndust á Blackey, í grend við járnnámuna, sem þar er fundin fyrir löngu síðan og ekki ýkja langt frá gull og koparnámunum, sem nokkrir menn eru í kyrþep að vinna í. Tveir menn komu með honum norðan af vatninu þeir herrar .. Dick, formaður timb- urverzlunar félagsins Dick & Banning hér í bænum, og George Melwin. Höfðu þeir látið grafa 55 feta djúpa holu og komu niður á tvö lítil kolalög á þeirri leið. Lengra komust þeir ekki niður með rekum og jarðöxum einum því slétt klöpp var undir, og eftir því er Melwin segir, er nokkurnveginn, áreið- anlegt að undir þeirri klöpp er þykt kolalag. Innan fárra daga ætla þeir norður affur og verða þá útbúnir til að sprengja klöppina, er þeir gera ráð fyrir að sé 5—6 feta þykk. Vitnast það því að vændum áður en langt líður, hvert von þeirra rætist. Rætist hún og reyn- ist kolalagið þykt og kolin góð, hefir sá fundur ósegjanlega mikla þýðingu fyrir héraðið alt. 11. 13. Peningar lánaðir til að byggja kaupa eða endurbæta heimili manna, og til að hefja gamlar áhvílandi veðskuldir. Tveggja til fimmtán ára tími gefinn til afborgunar. Afborganir mán- aðarlega, sem er vanalegasti borgunarmátinn. Upplýsingar um skilmála vora fást kostnað- arlaust. Qlobe Saving & Loan Co. E. W. DAY Manager, 383 Main Str. —i - ELM PARK MÁNUD. 12. Þ. M. Mánudaginn 12. þ. m. heldur Tjald- búðin sunnudagaskóla Pic-nic sitt i Elm Park. Hinar vanalegu íþróttir, svo sem hlaup og stökk o. fl., fara þar fram, og verða góð verðlaun gefin. Þar að auki verður concert free fyr- alla sem kaupa ticket. Aðgöngumiðar fást til kaups í búð Mr. G. Jónssonar og í búð Mr. Á. Frið- rikssonar, BRISTÖL'S Sarsaparilla Cures Rheumatism, Gout, Sciatica, Neuralgia, Scrofula, Sores, and all Eruptions. V erðlauna-vinnendur. HLAUP: 1. Stúlkur innan 6 ára.......50 ydsi. 1. Árnína Kristjánsdóttir. 2. Guðbjörg Þorvarðardóttir. 2. Drengir innan 6 ára.......50 yds 1. Óli Julius. 2. Steingrimur J. Goodman. 3. Stúlkur 6—8 ára...........50 yds 1. Þorbjörg Þorvarðardóttir. 2. Ásta Freeman. 4. Drengir 6—8 ára...........50 yds 1. Baldur Olson 2. Stefán Freemansson. 5. Stúlkur 8—12 ára..........50 yds 1. Olga Sigurðardóttir. 2. Sophia S. Jakobsdóttir. 6. Drengir 8—12 ára..........50 yds, 1. Theodor Oddson. 2. Sigurður Bjarnason. 7. Stúlkur 12—16 ára........100 yds 1. Sigríður Hörgdal. 2. Aurora Sigurbjörg Jóhansdóttir 3. Hallfriður Freemann. 8. Drengir 12—16 ára........100 yds 1. Friðrik Bjarnason. 2. Julius Jóhannsson. 3. Guðmundur Lárusson. 9. Ógiftar konur yfir 16 ára... .100 yds 1. Miss A. Benson. 2. Miss F. Friðriksdóttir. 3. Miss G. Freeman, 4. Miss K. M. Kristjánsdóttir. 10. Ógiftir karlm. yfir 16 ára ... 150 yds 1. Jóhann Jónsson. 2. Hans Einarsson. 3. Sveinn Thorvaldsson. 4. Ólafur Ólafsson. Giptar konur..............100 yds 1. Mrs. Swanson. 2. Mrs. H. Ólafsson. 8. Mrs. D. Backmann, 4. Mrs. H. Oddson. 12. Kvæntir menn.............150 yds 1. Ólafur Thorgeirsson. 2. E. Gíslason. 3. Steven Olson. 4. A. Bárdal, Konurfgiftar sem ógiftar).. .100 yds 1. Miss S. Hörgdal. 2. Miss A. Benson. 3. Miss A. S. Jóhannsdóttir. 4. Miss H, Freemann. 14. Karlar (giftir sem ógiftir).. .200 yds, 1. Hjörtur Jósefsson. 2. Jóhann Jónsson. 3. G. K. Breckmann. 4. E. Gíslason. 15. Allir karlar.................hálf míla 1. Haraldur Olson. 2. Sveinn Thorvaldsson. 16. Iíappkeyrsla (3 atrennur) hálf míla 1. Steven Olson. 2. John Anderson. 17. íslendingadags-nefndin...150 yds. 1. E. Gíslason. 2. F. Swanson. 3. E. Ólafsson. 19. Kappreið.....................hálf míla 1. Thorst. Jóhannsson. 2. A. S. Bárdal. 20. Hjólreið......................ein mila 1. A. F. Reykdal. 2. H. Einarsson. 21. “Potato Race.” 1. H. Jósefsson. 2. Jóhann Jónsson. STÖKK : Hástökk. 1. H. B. Halldórsson. 2. Ó. Stephensen. Hástökk jafnfætis. 1. B. G. Skúlason. 2. Frank Friðriksson. Langstökk. 1. B. G. Skúlason. 2. John Stevenson. Langstökk jafnfætis. 1. B. G. Skúlason. 2. S. S. Reykjalín. Hopp-stig-stökk. B. G. Skúlason. H. B. Halldórsson. Glímur : 1. Sigmundur Jóhansson, 2. Eiríkur Gíslason. 3. Helgi Marteinsson. Ryskingar : 1. Jón Sigvaldason. 2. B. B. Halldórsson. Pony-kappkeyrsla var dregin út, og aflraun á kaðli var frestað. Stökk á staJ varð heldur ekki komið af. BRISTOL’S Sarsaparilla Cures Liver, Stomach and Kidney Troubles, and Cleanses the Blood of all Impurities. BRISTOI/S Sarsaparilla 4. o> Cures Old Chronic Cases where all other remedies fa.il. 3e sure and ask' jour Druggist for BRISTOI/S Sarsaparilla DAGBÓK. FIMTUDAGJl. ÁGÚST. í fangelsi einu í Arkanssas er glæpa- maður í haldi, er kveðst geta gefið merkar og áriðandi upplýsingar um æfi- feril Holmes, marg-morðingjans í Phila- delphia.^v En neitar að segja nokkuð fyrr enn.hann fær uppgjöf saka og fullt frelsi. Hon. N. C. Wallace, meðlimur do- minion-ráðaneytisins, hefir verið endur- kosinn yfirforingi Orange-félaganna allra í Norður-Ameriku. Ársþing fé- lagsins hefir staðið yfir í Halifax. Fundarsal, sem á að hafa sæti fyrir 52,800 áhorfendur, er nú byrjað að smiða í Dallas, Texas. Þessi mikli sal- ur er gerður í þeirri von, að hnefaleik- ararnir nafnfrægu Corbett og Fitzim- mons berjist þar í haust. Skýstrokkur og ógurlegt vatnsflóð olli eignatjóni svo nam milj. í þorpi einu allmiklu í New Mexico í gær. FÖSTUDAG, 2. ÁGÚST. Bóndi í grend við Morris í Mani- toba byrjaði í gær að slá hveiti sitt. Að því sem kunnugt er, er hann fyrsti mað urinn til að byrja hveitisiátt í Manitoba í sumar. En all-margir eru búnir að slá talsvert af höfrum og byggi. Japanítar eru enn að hugsa sig um hvort þeir eigi eða eigi ekki að ‘verða við áskorun Rússa og draga alt lið sitt burt af Port Arthur-skaganum. Á landafræðisþinginu í Lundúnum var mælt með að allar stórþjóðirnarlegð ust á eitt með að kosta suðurheimsskauta för og var nefnd skipuð til að athuga það mál og fylgja því fram. Er hugmyndin að þeirri ferð verði lokið fyrir aldamót- in næstu. Nafnfrægur þýzkur sagnaritari Dr. Henric Sybel, lézt í gærdag. Ársþing bræðralagsins: “Indðpen dent Order of Foresters” stendur yfir Lundúnum, Á þinginu varð í gær bxáðkvaddnr einn fundarmaðurinn, Dr John McConnell frá Toronto. Hinn nýji útríkja ráðherra Breta Joseph Chamberlain, er hlyntur þv máli að á fót komist, og sem allra fyrst, hraðskreið gufuskipalína milli Canada og Englands. LAUGARDAG, 3. ÁGÚST. Indíána-ófriðurinn i Wyoming er á enda. Af því að ráða hefir ekki einn hundraðasti af fregnunum um það efni verið sannar. Argentina og Chili stjórnir eru sátt ar orðnar og allar landamerkjaþrætur niður lagðar—í bráð, Hefðarfrú í Washington skaut lítinn svertingjapilt til dauðs í gær, af því hann var að stela epli af tré í garði henn ar. Henni félst svo mikið um það að hún sagði lögreglunni frá. Síðan hefir hún verið fríkend fyrir líkskoðunarrétti og mönnum yfir höfuð með því gefið skyn, að svertingi, sem stelur epli, sé réttdræpur hvar sem liann næst. Og þetta í sjálfu heimkynni jafnréttisblást- ursins óendanlega ! What next ? Járnbrautafélög og gufuskipafólög fá ákveðna borgun fyrir hvert ton af póstböglum, sem þau flytja. Nú kærir blaðið Chronicle í San Francisco einn yfir póstþjóninn vestra fyrir svik i þessu efni. Segir hann láti allskonar rusl í póstvagninn, til að fá sem mesta punda- tölu. Geri margir það sama, segir blað ið auðvelt að svíkja þannig út af stjóm- inni svo nemi miljónum dollara á ári, Einn þjóðþingmaður Bandaríkja er nýkominn til San Francisco eftir dvöl nokkra á Havaieyjum. Ekki b'st hon- um á að taka ríki það i Bandaríkjasam- bandið; segir íbúana óhæfa til sjálf- stjórnar og segir alt útlit til að dagar lýðveldis þess séu taldir. Votviðratíð er nú svo mikil á Cnba, að uppihald esr á ófriði um stund. MÁNUDAG 5. ÁGÚST. Allskæða orustu háðu þeir nýlega Tyrkir og Macedoníumenn. Tvennum sögum fer um það hvorir unnu, en um 500 féllu af Tyrkjum, en ekki nema 100 af liði uppreistarmanna. Að lyktum hafa Tyrkir svarað stór- veldunum áhrærandi umbætur í Arme- níu, en það svar þykir í alla staði ófull- komið og ónóg. Annar svertingjadrengur vaa skot- inn til dauðs í Washington í gær fyrir eplastuld af tré í garði. $ DocforWhaf i5jfood ^ förclear.simjthe Scatpar.d "''-:^n;Hair, Iseem to have tried ei/crytí.:no‘ orvd im la dcgpair WhjMrs f\ thcvery bcst"thintfÍ5 PALM0 TáSOAP^ if is splendid for Washin^ (| f^e fiead ifp.^vent^dryncss thus pufj an end to Dandruff j and írcshcns the liair mcely. ■ á5* FCflA LAfiCE TABLET Kaþólíkar á Ítalíu stinga nú upp á að kaupa Rómaborg með öllum tilheyr andi föstum eignum, að Ítalíustjórn, því skyni að fá endurreist hið verslefj: vald páfans. Þótt í stórt sé ráðist, er kyrkjan nógu rík til þess að gera kaup in, ef Italíustjórn lætur borgina fala. Varaforseti Bandaríkja, Adlei Ste venson, er á ferð vestur að Kyrrahafi og til Alaska. í þetta skifti fer hann með C. P. R. brautinni; hefur förina frá Tor onto í dag. Meginhluti þorpsins Sprague, í Was hingtonríki, 40 milur fyrir vestan Spok ane Falls, brann til rústa á laugardag inn. Eignatjón yfir 81 milj. ÞRIÐJUDAG 6. ÁGÚST. Eellibylur með fádæma regni olli stórtjóni í Nýja Skotlandi í gær. Slík veður þar eru sjaldgæf. Norðurálfu stórveldin hafa ákveðið að svara Tyrkjum þannig og þeirra til boði, að þar sem svo liti út, að þeir ekki geti verndað líf og eignir kristinna manna í Armeníu, ætli stórveldin að senda þangað ríkisstjórnara, er hafi stjórn alla á hendi, en í umboði soldáns Tyrkja. — Sama skejti segir að stjórn Breta liafi sent Tyrkjum kröfu um að láta lausa á augnablikinu alla Armeníu menn í haldi, en sem ekki séu uppvísir að nokkrum lagabrotum. Framhaldandi upphlaup og mann dráp í Persalandi, er stafa af því að brauð og kornmatur allur hækkaði verði. MIÐVIKUDAG, 7. ÁGÚST. Irar í Bandaríkjunum tala nú um samtök til að hrífa Irland með valdi úr höndum Breta. Hugmyndin er að halda allsherjar fund í September í Chicago til að ræða um þessa “nýju hreyfingu” sem kölluð er. Kornuppskera á Englandi í ár er minni en í fyrra svo nemur fullum fimta hluta. Lögreglustjórnin í Columbia-héra ð- hefir ákveðið að rannsaka mál stúlkunnar í Washington (Miss Flag- ler), sem um daginn skaut svertingja- drenginn, en sem lfkskoðunarnefnd bæjarins gerði ekkert úr. Smithsonian-stofnunin í Washing- ton hefir veitt Rajdeigh lávarði og próf. Ramsey i Lundúnum 810,000 verðlaun fyrir fundning loftefnisinsnýja, ergetið var um í Öldinni nr. 8, 2. árg. FIMTUDAG 8. ÁGUST. Á fundi á Englandi í gær til að ræða um Armeníumálið, flutti Gladstone merka ræðu; sagði að stórveldin þyrftu að vera sanngjörn, en ekki óttast að heita því, sem kalla mætti þvingunar- lög, og ótækt væri að þekkjast nokkurt endurbótaboð Tyrkja, þar stórveldin hefðu vald til að taka héruðin af þeim. Demókratar í Iowa hafa ákveðið að mæla með frísláttu silfurs og að verðmiðillinn skuii vera 16 móti 1. Jónatan Jónsson dáinn 22. Júli 1895. Nú þegar sumarið broshírt og blítt og blærinn í dölunum andar svo þýtt og alt lífið í blóma sér leikur, þá ertu vinur, sem varst með á braut svo veglyndur, blíður og trygguríþraut lagður í lík-kistu bleikur. Þú máttir ei tefja, þú fara varst fljótt; flytjast á burtu og hverfa svo skjótt, til dauða þú dæmdur varst ungur. Þú fékst ei að lýsa með leiftrandi sál, né letra þitt göfuga hjartans mál ó, hvílíkur harmur svo þungur ! Þú áttir ei heima við háreisti og glaum, þú hljóður varst tíðum og hélst þeirra er erfitt í lífinu eiga ; [taum, iú vildir græða hin svíðandi sár, svala þeim þyrstu og þerra öll tár, þeirra er af þrautum toiga. Þótt horfinn sért bróður og hjarta þitt kalt, huga mér býrðu og lifa þar skalt, meðlæti og mæðu kífsins ; uns sjálfur ég kanna þau koldimm höf, er kannað þú hefir, fyrir handan gröf, og finn þig á landinu lifsins. Já, sofðu nú, vinur, hinn síðasta blund, und sverði moldar, uns kemur sú stund, er framleiðir líkam til Íífsins. En andi þinn svífur um sólgiltan lieim að sólunnar eilífu bústöðum þeim, þar’s finnurðu’ ei framar til kífsins. Skólabróðir. and Burns are soothed at once with Perry Oavis’ PAIN KILLER. It takes out the fire, reduces the inflam- mation, and prevents blistering. It is le quickest and most effectual remedy for pain that is lcnown. Keep it by you. Stórbrcyting á munntóbaki. TUCKETT’S T & B Mahogany. er hið nýjasta og bezta. Gáið að því að T. ét lí. tinmerh sé á plötunni. Tilbúið af The Geo. E. Tuckett & Son Co., Ltd. HAMILTON, ONT. W//VA//PFG, Wt and Shorthand Institute, Ef þú þarft tilsögn í: LESTRI, SKRIFT, STÖFUN, REIKNINGI, BÓKHALDI, VERZLUNAR-LÖGUM, BRÉFA SKRIFTUM, HRAÐRITUN, TYPEWRITING, þá farðu á dag eða kvöldskólann að 482 Main Street. C. A. Eleming G. W. Donald President. Secretary. Fruit Store. Munið eftir aldinabúðinni 405 ROSS AVE. Þar fáið þið nú, eins og áður, ALLSKONAR ALDINI, KALDA DRYKKI, ÍSRJÓMA, KAPPI, SÚKKULAÐI, VINDLA, TÓBAK, SKÓLABÆKUR, RITFÆRI, LEIKFFÖNG og ýmislegt fleira. Vörur vandaðar og með vægu verði. John Hall. Fred Swanson, MÁLARI. Eikarmálar, Betrekkir, Kalsominar. Býr einnig til Blyskeyttar rudur (Leaded Lights) úr allskonar skrautgleri, og hefir til sölu gler með alls konar litum og áferð, töluvert ódýrara en annarstaðar í bæn- um. Verkstæði : 300A Main Str. Heimili : 649 Elgin Ave. ísLENZKK LÆKNIR DR. M. HALLDORSSON, Park River — N. Dak. ÞURFUM AÐSTOÐAR áreiðanlegri manna í öllum pörtum landsins (búsett um eða umfarandi) til að selja ný-upp fundið meðal og til að festa upp auglýs ingar á tré, girðingar og brýr í bæjuir og sveitum. Vinnan er stöðug. Kaup ’ irócentur, eða $65 um mánuðinn of : erðakostnaður; peningarnir lagðir inr á hvaða banka sem vill undireins of byrjað verður. Frekari upplýsingar fási bfá The World Med. Electric Co. P. O Box 221. London, Ont., Canada. Ljósmyndarinn John McCarthy mælist til að þér gangið ekki framhjf sér. Hjá honum fást myndir í fullr: líkamsstærð; myndir af húsum teknai þegar um er beðið gamlar myndir end urnýjaðar og stækkaðar eftir vild. Alt verk vel leyst af hendi. Milton N. Dak. Bj jór og Porter um hitatímann: BASS & COY’S HVÍTÖL GUINESS STOUT SCHLITZ ÖL PABST ÖL DAVIFS TORONTO ÖL LABATT LONDON OL DREWRY’S ÖL PORTER & BUCKBJÓR Etc. Et« Fijót afgreiðsla hjá H. L. CHABOT Gegnt City Hall ---513 Main Str. Telephone 241,

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.