Heimskringla - 13.12.1895, Síða 2
HEIMSKRINGLA 13. DESEMBER 1895.
íSvar
til ritdómarans um “Verkfall kvenna”.
í Hkr. 29. Nóv. þ. á. hefir einhver
komið fram með ritdóm um “Verkfall
kvenna”, er nýl. hefir verið gefið út af
G. M. Thompson. Mér h'st öðruvísi á
málið en ritdómaranum og ætla því að
svara honum nokkrum orðum.
Það er þá fyrst ýmisleg, sem venju-
legt er að ritdómari taki tillit til, til
efnisins í bókinni hvort það er bætandi
mannfélagið eða ekki, til meðferðarinn-
ar, hvort hún er hugsunarrétt eða ekki,
til persónanna sem fram eru látin koma
í bókinni, hvart þær eru sjálfum sér
samkvæmar eða ekki og gerðir þeirra
eðlilegar; til skáldskapar í bundnum
stýl, hverníg hann sé af hendi leystur ;
tilbúnings alls á sögunni og sérstaklega
til málfæris á henni.
En í ritdómi þessum virðist ritdóm-
arinn hlaupa fram hjá öllu þessu.Hann
tileypur þar á móti i smáatriði eitt. sem
honum verður þó að fótakefli Hann
stekkur í það, að spyrja, hvaðan sögu-
maðurinn hafi komið, og sníst svo um
það á hæl og hnakka, kom hann austan
yfir haf eða vestan? Eins og það skifti
nokkru hvaðan hann hafi komið. Mér
kemur til hugar saga um Ólaf ofvita, fá
bjána einn og matmann mikinn. Hann
kemur einu sinni svangur heim og sér
steikt kálfskjöt á borðinu. Verður hann
glaður við, sezt niður og snæðir hressi-
lega, en alt í einu kemur vandræða
svipur á hann, hann hættir að borða,
stendur upp tyggjandi og spyr: “En
hvaðan kom hann, kálfurinn ?” Menn
hlægja að honum og segja, að hann hafi
komið úr fjósinu. Hann starir á þá
um stund, sezt svo aftur niður og borð-
ar nú hálfu hraustlegar en áður, en er
þó einlægt að tauta þetta fyrir munni
sér: “hvaðan kom hann?” Svo stendur
hann upp, strýkur kviðinn ánægjulega,
en þá dökknar yfir honum alt í einu;
hann þýtur frá einum til annars og
ápyr: “En hvaðan kom hann?” Við og
við fær hann þessi flog um kvöldið, og
þegar hann er að sofna heyrist umla í
honum : “En hvað—an kom hann, kálf-
urinn?” Hann var búinn að éta hann,
fann svo ofur vel til hans, en gat þó
ekki slitið sig frá þessari umhugsun.
Honum gat ekki hugsast það, að kálfur
inn hefði komið úr kú, Ritdómarinn
hefir ekki heldur skilið það, að sagan er
framsett, sem draumur. En hvað sem
því líður, þá hirða böfundar ekkert um
það, hvaðan þeir taka persónur sínar,
og ef að ritdómarinn hefir lesið skáld-
sögur merkra höfunda ætti hann að
hafa séð það.
Þessi ritdómari er svo fjarri því, að
gæta þess, sem ritdómara ber, að það
er full ástæða til þess, að spyrja hann
sjálfan, hvaðan hann hafi komið, hvort
hann hafi hrapað úr tunglinu eða hon-
um hafi rignt niðurúr skýjunum. Hann
getur ekki um eitt einasta atriði í sög-
unni, sem hann er að dæma um.
Hann hefir ekki tekið eftir hinni
voðalegu ,lýsingu söguhöfundarins
“Verkfalli kvenna” á kúgun þeirri, er
kvennfólk verður fyrir af hendi karlæ.
Það *r eins og hann hafi ekki þekt hfið,
hafi ekki hugmynd um hinar svefnlausu
nætur, þegar konan legst þreytt í rúm-
ið, vakir fyrst fram yfir miðnætti yfir
barni sinu ungu, verður svo að vakna
kanské á hverjum klukkutíma, róa með
barnið grátandi heila og hálfa klukku-
stund í einu, svo kemur morguninn og
þá byrja stritstörf hennar að nýju. Hún
fær ef til vih ekki nema fáeinna nátta
rólegan svefn árum saman. Hún þolir
ekki þetta, taugarnar slekjast, hún verð
ur hjartveik og veikluð, hún verður hor
uð og skinin. Hún verður deyfðarleg
og fjörlaus aumingja garmur . sem ekk-
ert má bjóða. Hún verður að vera á
hlaupum og þönum fyrir manninn, fyr-
ir krakkana. Hún er undirlægja ahra
þeirra og svo veslast hún upp og deyr
fyrir tímann. Hún hefir verið ambátt
mannsins, sem hann hefir haft til þess
að svala fýsnum sínum. AUir, sem
nokkuð þekkja til mannhfsins vita það,
að ákaflega mikiU fjöldi kvenna verður
við þetta að búa.
Það er þessi kúgun kvenna og or-
sök hennar, þau hróplegu rangindi, er
konan oft verður að sæta, að vera ekki
ráðandi yfir eigin likama sínum, hvað
barneignir snertir, sem bókin “Verk-
fall kvenna” aðaUega gengur út á.
Þetta er svo þýðingarmikið mál, að það
gnæfír langt yfir alt, sem á nokkurn
hátt getur snert frelsi kvenna. AUar
umbætur á hag kvenna, öll baráttan
fyrir atkvæðisrétti þeirra er htilsvirði í
samanburði við þetta eina; ef að þær
halda áfram að vera ánauðugar í þessu
tilliti, þá eru hinar umbæturnar að
miklu leyti kvalræði eitt. Siðgæðis-
hugmyndin í þessu tilhti er gjörsamlega
rangsnúin, réttlætishugmynd, hvað
þetta snertir, þekkist ekki, kvennfólk-
ið sjálft órar varla fyrir þessu. Bókin
“VerkfaU kvenna” sýnir fram á það, en
á þetta ákaflega þýðingarmikla atriði
minnist ritdómarinn ekki fremur en
annað. Ekki talar hann heldur með
einu orði um hið voðalega ranglæti sem
beitt er við konur þær, er “hrasa” eins
og sagt er. Karlar mega gera hvaða ó-
skunda, sem þeim lýst, þeir “táldraga’
stúlkur hverja á eftir annari, en engum
kemur til hugar að gefa þeim það að
sök. Það eru stúlkurnar, sem eru
brennimerktar fyrir það. I þessu tiUiti
er siðgæðishugmyndin alveg öfug, rétt-
lætishugmyndin er þannig, að alraenn-
ingsálitið leyfir körlum að ósekju að
fremja hið grimmasta ranglæti á kon-
um. Þessi hlið málsins er og sýnd i
“Verkfalli kvenna”. En annaðhvort er
það, að ritdómarinn hefir ekki tekið eft-
ir þessu, eða hann hyggur, að konan sé
sköpuð handa karlmanninum, en ekki
sjálfri sér.
Ritd. minnist ekkert á kaflann í
bókinni : “Koma Timoteusar”, sem er
snildarlega framsett. Timmi þessi er
10. barnið bláfátækra hjóna, óþekkur.
hortugur, grimmlyndur og illa innrætt-
ur drengur, hann þreytir móður sína,
stríðir og særir systkini sín, kvelur og
pínir aUar skepnur, sem hann nær til.
Hann vexupp rángjarn og si soltinn og
verður svo afhrak mannfélagsins. Allir
hafa ýmlgust á honum, móðir haus syst
kini hans, þorpsbúar allir vildu hafa
óskað, að Tommi ihefði aldiei fæðst.
Hann er hataður, ofsóktur, hneptur i
fangelsi að lokum. En því í ósköpun-
um var hann þá að koma í heiminn?
Þá er ræða Holworthys og kaflinn
sáer reglulegt meistarastykki. Það er
klerkur einn sem leggur út af orðum
Páls: “kærleikurinn gerir náunganum
ekki mein”. Hann tyggur þetta upp
aftur og aftur. Hann þenur sig um
lönd og álfur, hann skríður inn í afkiraa
heimsins til þess að sanna það, að kær-
leikurinn geri náunganum ekki mein.
Hann er svo undur luákulegur með
sjálfan sig, svo hrifiun af þessum kær-
leika, svo digur af ræðu sinni, að það
tekur ekki tali, en undir ræðunni situr
konan hans innan um krakka-hópinn,
horuð og skinin, útslitin og taugaveikl-
uð. Fyrir sjónnm hennar rennur upp
alt undangengið líf hennar, að hún ekki
hefir elskað þenna þóttafuila gikk, sem
elskaði ekkert annað, en sjálfan sig. sem
hafði gert hana að ambátt sinni til þess,
að geta svalað fýsnum sínum, og á end
anum, þegar prestur ætlar að fara að
ljúka ræðu sinni, þá hnígur hún niður
andvana lík.
Þessi b'king er svo meistaraleg, að
hún líkist helzt sem væri hún eftir Gest
sál. Pálsson. Háðið er svo bítandi og
og skerandi, heitnskan og guðhræðslan.
hræsnin og sjálfbyrgingsskapurinn hjá
klerki er svo auðsjáanlega framsettur,
afleiðingin af varmensku hans er svo
vægðarlaust látin koma í ljós, að það
hlýtur að vekja eftirtekt og aððáun.
það eru verkin, sam hér eru látin
hanga hvort á öðru. í Alhyrnu Aleis-
ton er tign kvenna og djörfung látin
koma fram, í lista veglyndi karla. Þá
er gauga kvennfólksins í 12. kap, fyrir-
tak, og hver sem hugsar út í það, hlýt-
ur að finna til þess, að i mannfélagi
voru er ekki alt eins og það á að vera..
Hin vonda meðferð k/enna er þar svo
ljóslega sýnd á einum tveimur blaðsíð-
um eða svo. að tæplega hefði það tekist
betur, þó að um það hefði hefði heil bók
verið skrifuð.
Af kvæðunum í bókinni þykir mér
kvæðið á bls. 68 og 69 ljómandi fallegt.
Annars er frágangurinn á öllum kvæð-
unum góður. Kvæðið að framan er
skðrugleg hvðt til kvenna að risa upp
og leita réttar síns. Á kveðskapinn
minnist ritdómarinn ekkert, eins og
hann hefði aldrei lesið hann.
En að fara að rita ritdóm og látast
ekki þekkja Jietta spursmál, sem er eitt
af hinum allra stærstu spursmálum
mannfélagsins, það er hálfskrítið. Rit-
dómarinn hefir aldrei heyrt ópið frá
þeim hundruðum þúsunda í stórbæjun-
um, sem er þar ofaukið, sem ala aldur'
sinn í fátækt og eymd, í smán og sví-
virðingu, og þetta óp kveður þó allstað-
ar við. Það eru fátæklingarnir, hinir
kúguðu og undirokuðu, þeir sem eru
hungraðir og naktir og hrópa til auð-
valdsins : gef oss bita brauðs ! Þetta
óp fer einlægt vaxandi; það breiðist óð-
fluga út um löndin, eitt fjallið bergmál-
ar það af öðru. Ritdómarinn hefir al-
drei séð svipinn á hinum hrasaða hluta
kvenfólksins, þennan sálarlausa, von-
lausa, örvæntingarfulla svip, sem svo
glögglega lýsir sviknum vonum, eyddu
lífi, hann hefir ekki tekið eftir hinum
grátbólgnu augum, eða það hefir engin
áhrif haft á hann.
Það er þetta atriði, ásamt kúgun
kvenna, sem er grundvallarhugsunin í
bókinni. A íslenzku hefir enginn skrif-
að neitt verulega f þá átt nema Jón Ól-
afsson, og hingað til hefir fátt þótt
markleysa sem Jón hefir ritað.
Þegar ritdómarinn fer að dylgja yfir
því, að bókin só ekki sérlega holl andans
fæða, þá finst méi hann fara að koma
raeð gamla biblíumóralinn úr Móeses-
bókunum. Hann skilur hvað ég meina,
vona ég.
En þar sem hann fer að tala um, að
þýða heldur úr Bulwor eða Scott, þá er
þess að gæta, að ef að þýðandinn hefði
viljað þýða eitthvað í þessa stefnu, þá
hefir Scott ekkert skrifað í þá átt og
Bulwer ekki heldur.
Hitt er annað, að ritdómarinn hefir
ekki getið galla þeirra sem á bókinni
eru. En helztu gallarnir eru þeir, að
hún er á undan tímanum. Menn eru
ekki alment svo vitibornir eða komnir
svo hátt á stigi mentunarinnar, að þeir
skilji hana, og þá ekki hvað siðgæði eða
réttlæti snertir. En eftir því sem neyð-
in vex og verður átakanlegri, eftir því
sem ranglætið verður meira og meira
himinhrópandi. eftir þvi færist nær og
nær því, að menn verða að leysa þessa
spurningu, neyðin knýr menn til þess
hvort þeir vilja eða ekki.
Eg verð nú líklega að fara að hætta
og hefi ég þó ekki sagt einn tíunda hluta
af því, sem ég vildi segja, en ég vildi
óska. að sem flestir hugsuðu út f þessi
málefni. Það yrði þá kannske margt
hjónabandið farsælla, en nú á sér stað.
Þegar maður lítur á það, hve örð-
ugt er að gefa út bækur hér á íslenzku
sökum fámennisins, þá getur maður
ekki annað sagt, en að Mr. Thompson
eigi þakkir skilið fyrir áræði sitt að gefa
út þessa bók.
Það hefði mátt tína til heila hópa af
blaðavottorðum, og það frá merkum
mönnum, frá tfma þeim, er bókin kom
fyrst út, er gefa henni hið mesta hrós.
Fjöldi hinna merku kvenna, er nú berj-
ast fyrir rétti kvenfólksins, eru þegar
farnar að halda fram þessari hlið máls
þeirra. Kvennfrelsismnðiir.
[I næsta blaði gerum vér athuga-
semd við þessa grein. Ritstj.]
Athugasemd.
í Lögb. dags. 17. Okt. þ. á nr. 42,
stendur grein með fyrirsögninni: ‘ ‘Hol-
mes og trú hans”, sem sannleikans
vegna er þess verð að henni sé svarað.
Hún á að vera mikill sigur fyrir
hina kristnu trú, og Lögb. flýtir sér að
gera hana að eign sinni og flokksmanna
sinna, sjálfsagt f þeirri trú, að allir
múni gleypa útleggingu blaðsins “The
Midland” trúarjátnig þessa Holmes,
þar sem það segir:
“Þar eð það er nú engin ósam-
kvæmni á milli trúarjátningar hans
og glæpa hans, þá eru engar stórar fyr-
irsagnir settar fyrir ofan greinarnar,
sem skýra frá trúbragðaskoðunum
hans. Það, að trúa ekki að guð sé til,
óttast enga hegningu i komanda lffi
(eftir dauðann), fyrirlitning fyrir öll-
um kenningum um andlega og eilífa
hagsmuni, og neitun þess að nokkuð
vald sé til sem stjórni” o. s. frv. Eftir
kenningu blaðsins á þetta að vera kenn
ing ogtrú Paines. Höf. skákar víst i
skjóli því, að almenningur sé svo
hræddur við bannfæringar presta sinna
að hann viti eins lítið um trú Paine’s
eins og hann sjálfur og glæpamaður-
inn Holmes vita. Annars væri það
meir en meðal ósvífni að bera slíkt á
borð fyrir lesendur sina.
En til þess að þeir sem lesið hafa
bull þetta í Lögb. og sem kunna að lesa
Hkr. lfka geti séð hvað ofannefnd
grein er fjarri þvf að vera sönn útskýr-
ing á trú og kenningu Paines, set ég
hér orðrétfti trúarjátning hans sjálfs :
“I believe in one God and no more, and
I hope for happeness byond this life. I
believe in equality of men, and I believe
that religious duties consist in doing
justice, loving mercy, and endeaworing
to make our fellow creatures happy”.
Ég trúi á einn guð og enga fleiri.
Og ég vona eftir sælu eftir þetta líf.
Ég trúi á jafnrétti allra manna, og ég
trúi því að vorar trúarbragðaskyldur
samanstandi af því að fremja réttvísi.
ást, miskunnsemi, og af fremsta megni
leitast viðað gera meðbræður vora far-
sæla.
Til frekari útskýringar sjá “Age
of Reason”.
Það er því ljóst að þessi Holmes
hefir ekki getað trúað á kenningar
þeirra P. og I., af þeirri einföldu á-
stæðu, að hann hefir ekki vitað hverjar
þær voru. Það gefur lfka hverjum
heilvita manni að skilja að enginn get-
ur verið undireins Infidel og'Únítari.
En jafnvaldaðar og sannleiksrfkar út-
skýringar á kenningum þeirra er engin
nýung að sjá af fáfróðum og óvönduð-
um baknögurum.
En þar eð óbersti I. er enn lifandi
má vera að hann svari hinum ensku-
talandi heimi, ef honum þykir þess
þörf.
En mikið er hvað nöðrukynið end-
ist lengi til að naga kuml Th. P., því
heiður hans er bygður á traustari
grundvelli en svo, að þeir geti grandað
honum, því rit hans “The Age of Rea-
son” er óraskanlegur minnisvarði sann-
leikshetjunnar, sem allir Unítarar og
allir sannleiksleitendur um allan heim
viðurkenna og heiðra. Og rit hans
“The Rights of Man”, eitt af hinum
kraftmestu ritum, sem enn hefir sést á
prenti, og sem vakti þá undrun, ótta og
aðdáun, sem ekki eru lfkur til að gleym
ist meðan frelsisást og mannúð hrifa
hjörtu manna. Frelsishetjunnar, sem
á sinn ódauðlega part í frelsisbaráttu
Frakka, sem skelfdi kúgunarvaldið á
Englandi, sem Ameríka skuldar svo
mikið fyrirsín meistaralegu rit: “Com-
mon sense” og “The Crisis”, og sem
ekki var fyrir neðan vináttu G. Was-
hingtons, Th. Jeffersons, Dr. B. Frank-
lins o. fl. hinna beztu manna í frelsis-
stríði Bandaríkjanna, og sem kunnu að
meta hann og verk hans betur en blaða-
snápar þeir, sem álíta sér það heiður að
“naga rotnaðann náinn”.
M. J. Benedictson.
fttórbreyting á
munntóbaki.
TUCHETT'S
T & B
Mahog’any.
er hið nýjasta og bezta.
Gáið að því að T. A B. tinmerk
sé á plötunni.
Tilbúid ap
The Geo. E. Tuckett & Son Co., Ltd.
HAMILTON, ONT.
I Winnipeg er ekki nema
Ein Islenzk fiull- og Gimsteina Verslun.
Það er gull- og silfur-smíða verzlun Q. Thomas,
ú norðvestur horninu á Main Str. og Portage Avenue.
Það er hvorttvegg'ja, að ég hefl leitast við að selja ódýrar en aðrir Jewellers í borginni og
vinna ódýrar en aðrir gullsmiðir, enda hefl ég ástæðu til að þakka löndum mínum fyrir góð og furðumikil
viðskifti. íslendingar eru yflr höfuð vöruvandir menn og þeim til sóma skal það sagt, að þeir meta vel og
rækilega hvort verð hlutarins er sanngjamt eða ekki og láta ekki ginnast til að kaupa einn hlut eða annan
fyrir hóflaust verð.
Þetta er viðurkenning sem þeir eiga skilið og það er á þessum hæflleikum þeirra, AÐ KUNNA
AÐ META VÖRU OG VERÐ, að ég vil byggja von mína um FRAMHALDANDI OG VAXANDI VIÐ.
SKIFTI ÞEIRRA. Ég vil ekki, eins og sumir, byggja von mína um viðskittí þeirra á því eingöngu, að ég
er íslendingur eins og þeir.
Jólahátíðin og nýjárið er í nánd
!
Og þá eru allir að reyna að kljúfa þrítugann hamarinn til að gleðja sig og sína og er það fagur siður. Eink-
um hugsa menn um ungdóminn, en menn þurfa einnig, og ekki síður, að hugsa um ástvini sína á fullorðinsár-
unum. Hvar er það heimili sem ekki yrði mun skemtilegra, ef þessi hluturinn eða hinn væri fenginn til við-
bótar við það sem fyrir er ? Það játa'allir að slíkt heimili er ekki til. En svo ofbýður mörgum kostnaðurinn
við að kaupa hluti, sem geta heitið húsprýði. Það er rétt, og það er ekki rétt — alt eftir kringumstæðum.
Með sérstöku tilliti til jóla og nýjárs kaupanna hefl ég nú búið svo um, að ég get boðið löndum mínum
HIN MESTU KJÖRKAUP Á GULL- OG SILFUR-SMlÐUM
sem nokkru sinni hafa verið boðin í Winnipeg.
Þetta þykir máske mikið sagt, en “raunin er ólýgnust,” Reynsla mín hefir sýnt að landar kunna að
mcta vöru og verð, og eí ÞEIR VILJA KOMA NÚNA og skoða vörur mínar, efa ég ekki að þeir geti borið
um hvort ég segi of mikið. Þeirra er að bjóða, mitt að hlýða. Lítist þeim á að kaupa, þá kaupa þeir, annars
ekki, og við erum jafngóðir vinir fyrir því.
Ég nenni ekki að telja upp vörutegundimar allar, sem ég hefl á boðstólum og þarf þess heldur ekki.
Flestir af löndum mínum vita hverjar þær eru. Ef einhverjir eru því ókunnugir þá verður þeim fagnað. ef
þeir líta inn, hvort sem þeir kaupa eða ekki.
Vér höfurn alt sem heiinilið má prýða hvað borðbúnað snertir, o. s. frv. Glcðjið konuna yðar með því
að færa henni fyrir jólin, þó ekki sé nema HÁLFT DÚSÍN AF SILFUR TESKEIÐUM. Þær kosta furðulítið
þegar I’FNINriAR ERU í AÐRA IIÖND.
IIEFIR ÞÚ FALLEGA SLAG-KLUKKU í HÚSINU ? Ef ekki, því ekki ? Þær eru ódýrar núna.
Komið og skoðið þær.
Ef að vanda lætur vilja margir fá EITTHVAÐ SÉRSTAKT SMÍÐAÐ fyrir jólin. Sé svo er
ÁRÍÐANDI AÐ KOMA TAFARLAUST, því ég hefi þegar fengið rnargar pantanir frá hérlendum viðskifta-
mönnum. ÞEIR, SEM FYRST KOMA, SITJA VITANLEGA FYRIR. Gleymið ekki þvi, að pantanir verða
ekki afgreiddar undireins. Mér og viðskiftamönnunum til mestu armæðu hefl ég stundum fengið pantanir.
sein þurft hefir að afgreiða samdægui's. í þetta skifti verður það ómögulegt vegna anna.
Til 1. Janúar næstk. verður búðin opin framundir miðnætti á hverju kvöldi.
Q. Thomas,
NORDVESTUR HORH MAIN STREET & PORTAGE AVE.
Manufacturing: Jeweller.