Heimskringla - 13.12.1895, Síða 5
HEIMSKRINGLA 13. DESEMBER 1895.
Allrahanda.
Skyldn-uppfræðsla.
Að því er kunnugt er urðu
Spartverjar fyrstir manna til að
krefjast ujipf'ræðsln fyrir ungdóminn,
en öðruvísi var sú uppfræðing, eti sú
sem nú er alment heimtuð í fiestum
löndum. Spartverjar hugsuðu ekki
um nema sveinbiirn og uppfræðsla
þeirra öll leit að hermensku og lík-
amshreysti. Samkvæmt lögum f
Spörtu voru öll sveinbörn eign ríkis-
ins fril fæðingarstundu, en ekki for-
eldranna nema að nafninu til og var
þá uin leið skylda hins opinbera að
ala upp hinn nýja liðsmann og fræða
hann um alt sem hernað og hreysti
snerti. Samtímis tóku Persar upp
sama siðinn, tókust í fang uppfræðslu
sveinbarna og enda stúlkubarna —
veittu þeim uppfræðslu í öllu er sið-
prýði og kvennlega kurteisi snerti, en
sveinbömunum kendu þeir hernað
öilu öðru fremur. En höfundur
skyldu-uppfræðslunnar, eins og hún
viðgengst nú á, tíma, er höfundur
siðabótarinnar: Marteinn Luther.
Það var árið 1524 að hann samdi
frumvarp til laga í Saxony og bar
þau undir kjðrfurstann, þar sem for-
eldrar voru skyldaðir til að senda
börn sín á stofnanir þar sem þeirn
yrði veitt uppfræðsla. Þessari u, pá-
stungu hans var vel tekið. I þvf
sem öðru var Melankton ötull fylgis
maður Luthers, og hafði þetta starf
þeirra þann árangur að stuttu eftir
miðbik 16. aldarinnar vorulögí gildi
í héruðunum Wurtenbergog Saxony,
bygð á þessari uppástungu Luthers.
Og fáum árum síðar voru áþekk lög
í gildi í flestum héruðum Þýzkalands.
Þaðan útbreiddist svo þessi aðf'erð
smátt og smátt, til ýinsra annara
ianda. Árið 1695 krafðist Louis
XIV. Frakklands konungur þess með
lögum, að öll börn prótestanta á
Frakklandi yrðu send á mentastofn-
anir til uppfræðslu. Áríð 1793 gaf'
Friðrik Vilhjálmur II. Prússakonung-
ur út Iög, er þvinguðu alla foreldra
til að senda börn sín á skóla.
Fyrsta lýðveldið,
að því er kunnugt er, stotnuðu gyð-
ingar árið 1425 f. Iv., er stóð til 1280
f. K. Á því tímabili viðurkendu
þeir engan konung og engan leiðtoga
af guði sendan, eins og þeir viður-
kendu þá Móses og Jósúa. Næsta.
tilraun var hjá Thebu-mönnum.
Þreyttir á harðstjórn konunganna
umhverfðu þeir konungdæminu í lýð-
veldi árið 1140 f. K. og kusu æðsta
valdsmann, sem skyldi láta lífið, ef
hann ekki viki úr embætti eftir 3 ár.
Þriðja tilraunin var iij'i Grikkjuin,
éða Aþenu-borgarmönnum. Þeir
syrgðu, svo Uonung sinn Kodras, og
álitu hann svo langt liafinn yfir alla
samtíðamenn hvað hæfileika snerti,
að þeir vildu ekki annan konung
þýðast í hans stað og umhverfðu því
riki sínu í lýðveldi. Þetta var árið
1052 f. K.
Smá-búgarðar á Frakklandi
eru tiltölulega fleiri en í nokkruöðru
ríki. Samkvæmt síðustu manntals-
skýrslum eru þar um 5 miljónir bú-
garða setn eru að meðaltali 6 ekrur
að stærð hver. Og þessar litlu bú-
jarðir eru eigin eign þeirra allra, er
yrkja þær. Þessi smá-skifting lands-
ins er þökkuð, eða kend, erfðalögun-
um á Frakklandi, sem ákveða ao
eignir foreldranna skuli deilast jafnt.
meðal barnauna, án tillits til aldurs
eða kyns. Vilji fiiðirinn arfleiða ein-
hvern annan, þá má hann það þann-
ig: Ef hann á eitt barn einungis
má hann gefa öðrum helming eign-
anna; ef hann á 2 börn, má hann
ekki gefa öðrum meir en þriðjunginn,
ef hann á 3, þá má hann ekki gefa
öðrum meir en fjórðung eigna sinna.
Þannig koll af kolii smækkar sá hluti
eignanna, sem hann má gefa öðrum
en börnum sínum, ef'tir því sem börn
hans eru fleiri.
Elzta bókasafnið.
Það er þoku bundið hvenær fyrst
var byrjað að safna bókum á einn
stað almenningi, eða nokkrum öðr-
um en eigendum bókanna sjálfum, til
nota. Þegar Assirisku-leirtöflurnar
letruðu fundust fyrir nokkrum árum,
var alment álit og ér sfðan, að þar sé
fyrsta tilraunin til ritsöfnunar, al-
menningi til uppfræðslu, og er ætlað
að þær töflur hafi verið ritnar árið
650 f. K. Að því er ætlað er, stofn-
aði Pisistratus fyrsta bókasafnið í
Aþenu árið 537 f. K., en ekki verður
þó sannað að svo hafl verið. Strabo
segir að Aristoteles hafi fyrstur manna
stofnað bókasafn á Grikklandi, sem
hann arfleiddi Þeopliratus að, árið
322 f. K. Þetta safn komst að lykt-
um til Rómaborgar og fékk þar var-
anlegan samastað.
Pund störling.
Það nafn er þannig til orðið, að
á dögUm Rfkarðar !j inshjarta var
eftirsókn mikil eftir peningum, som
mótaðir voru í austur-héruðum
Þýzkalands, at því málmurinn var
svo hreinn og óblandinn. En íbúar
þessara höraða voru þá í heild. sinni
nefndir “Easterlings” (aust-menn ?)
og fengu peningar þeirra af því
náfnið “easterlings peningar,” í dag-
legu tali. Síðan voru nokkrir þessir
austmenn fengnir til Lundúna til að
stofna peningamótun og hafa jafn
málmhreina og þá eystra. Voru þá
tveir stattr klipnir framan af nafninu
Easterling, svo að “sterling’ einung-
is varð eftir og það nafn helzt síðan.
Fféttablöð og skógur
sýnast í fljótu bragði ekki eiga mikið
skylt saman, en það er ekki alt sem
sýnist. Skyldleiki þar er miklu meiri
en margur hyggur. Mestall rpapp-
ír, sem fréttablöð eru prentuð á, er
gerður úr möluðiim furuviðarbútum.
Og það er meira en lítil ósköp af
trjám sein til þess gangaá hverju ári.
Til að fullnægja þörfUm blaðaútgef-
andanna í Bandaríkjum og Canada,
þarf áhverjum sólarhring að mala til
pappírsgerðar sem svarar 2500 cords
af spruce eða furu, cn það er ígildi
meira en 500 milj. borðfeta af trjávið
á hverju ári. Taki maður meðalskóg
fullþroskaðan, þarf ylir*100,000 ekr-
ur af spruce-skóglandi á hverju ári,
til að mæta þappírskröfum fréttablað-
anna í Norður-Ameriku. Fréttablöð-
in m< ð öðrum orðum rýa landið skógi
á ári hverju, sem svarar 5 townships-
stærðum að flatarm. Og n.estur hluti
alls þessa timburs, í pappírsmynd
sinni, er ónýtt og komið í sorpið einni
vikú eftir að blaðið kemnr úr þrent-
vélinni. Blöðin ættu að taka sig
saman og mæla með skógræktun, sín
vegna ef ekki annars.
Hvar er “Fram ?”
Það veit enginn, en getið er til
að skipið sé nú í ísnum fyrir austan
Grænland. En sú er ástæða til þeirr-
ar tilgátu, að fyrir skömmu kom skip
til Noregs vestan frá Grænlandi, er
sagði þau tíðindi, að seint í Júlí hefðu
eskimóar séð þrímastrað skip í rek-
ísnum fram af Grænlandi, á 69. stigi
norðurbreiddar og 38. stigi vestur-
lengdar. Nokkru seinna átti annar
fl"kkur eskimóa að hafa séð skip í
ísnum á 66. st. nbr. og 37. st. vl.,
fram af Sermilik-fliði. Frá þessu
sögðu Eskimóar í nýjum verzlunar-
stað, sem Danir eru að koma á fót í
Angmagsalik á austurströnd Græn-
lands. Báðir flokkar þessara eski-
móa lýsa skipinu eins, að það hafl
verið þrímastrað, en fiammastrið
brotið. En að það væri brotið réðu
þeir af því, að frammastrið var
styttra en hiu. Af þessu ráða nú
Norðmenn, að þetta hafi verið ‘Fram’
Nansens, þvl frammastur hans er
styttra miklu en hin, en á flestum,
ef ekki öllum skipum, sem Eskimóar
hafa kynni af, eru öll möstrin nokk-
urn vegin jafnhá. Það styrkir menn
og í trúnni að þetta sé “Fram,” að
sela og hvalaveiðaskip öll á þessum
stöðvum, voru komin burt þaðan fyr-
ir þann tíma.er Eskimóar sáu skipið.
Lífsmerki sáu þeir ekkert á skipinu,
og engan reyk leggja upp frá því, en
ekkert mark verður tckið á því af
því þeir sáu það í svo mikilli Qarlægð.
Þar sem skip þetta sást í seinna skift-
ið, eru einmitt þær stöðvar, er Nan-
sen árið 1888 yflrgaf skip sitt ogleit-
aði til landfcrðar,(til göngunnar vest-
ur yflr jöklana. . Ilann ætlaði að ná
landi við Sermilikfjörð, en barst
miklu lengra suður.
Sé það Nansen, er þarna sást til,
lítur út fyrir, að hann liafl haft greiða
ferð að norðaustan, og að hann hafi
náð suðurstraumnum, er fellur með
miklum hraða frá Spitzbergen til
Grænlands. Ef skip þetta ekki losn-
ar úr ísnum því fyrri og siglir aust-
ur um haf, fréttist. eins víst ekki til
þess fyr en dönsku skipin koma að
vestan I Ágúst næsta sumar. Þó var
enn von á mörgum í haust frá Græn-
iandi til Kliafnar, en ekki nema eitt
þeirra kemur frá þeim stað, að það
geti fært nokkrar frekari fregnir af
þessu ókunna skipi í ísnum.
Engin önnar merking hefir fengið aðra ems útbreiðslu
á jafn stuttum tíma.
O. STEPHENSEN, M. D.
Jafnan að hitta á skrifstofu sinni
flsabel Str., aðrar dyr fyrir norðan Col-
cleugh’s lyfjabúð) dag hvern kl. 9—11 f.
m.,2—4 og 7-9 e. m. Telephone 346.
Næturbjalla er á hurðinni.
ÍSLENZKR LÆKNIR
DR. M. HALLDORSSON,
Park River — N; Dak.
Hann Sfackadar se^ur fyrir peninga út i höndalls
‘ * ' ‘ i konar jarðneskt gripa og mann-
eldi. Einnig eldivið af mörgu
331 Higgins Ntr. tagi, þurran sem sprek og harðan
gem gj.j^ alt fyrir neðan sann-
gjarnt verð. Gott viðmót. Áreiðanleg vigt. Flutt þangað sem óskað
er og sett þar sem um er beðið. — Gunnar Sveinsson vinnnr- i búðinni.
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
f
#
#
HLUTIR
sem eru í sjálfu sér vandaðir
og aldrei breytast nema til
batnaðar, verða óbjákvæmilega
viðurkendir að lokum.
Þetta er ástæðan fyrir að
selst svo mikið af
E. B. EDDY’S Eldspytum.
#
#
9'
#
#
1
#
#
#
#
#
#
9
9
########################
Jola- og Nyars-gjafir!
Jólin eru þegar komin og þeim fylgja ætíð umstang með að útvega vinum og vandamönnum gjaflr. Þegar þröngt er í búi margra eins og hér er enn, þá er skynsamlegra að kaupa
(aAGNLEGAR, VAR/tNLEG/tR GJ/eFIF(
heldur en ónýtt glingur og glys, sem eftir litla stund er orðið að engu. Jafnframt ber mönnum að hugsa um hvar dollarinn kaupir mest af vörunni. Það er eitt stóra velferðar-atriðið,
Að kunna að fara með efni sín !
Núna í augnablikinu gengur dollarinn hvergi meira en í fata- og álnavörubúð
G. JOHNSON’S
Mesta upplag af
gagnlegum jólagjöf-
um fvrir fólkið.
Komið og sjáið hvernig vér búumst við jólunum. Það
Ef þú vilt tala við oss
‘fashionable ball” út-
Stærsta fata og álna-
vörubúð í vestur-
liluta bæjarins.
Komið og sjáið jólagjaflr vorar, svo sem : Silkiklúta, silkihanzka, silki-hálstx'ind, silki axlabönd, kost-
bær sjöl. Grávara allskonar, svo sem liúfur, handvermur, Séts of Furs o. s. frv. Gullstáss, svo sem :
brossíur, kapseils, hringa, kragahnappa, manséttuhnappa, úrfestar m. m.
Jafnframt leyfum v< r oss að leiða athygli manna að vorum almenna vetrarvarningi, sem
TIL Arsloka verður seldur með gjafverði.
Vér teljum ekki eftir að sýna yður vörumar.
verður góð dægrastytting og kostar ekki cent.
Hvað um nýár s-ballið-? Þú verður þar náttúrlega, og stúlkan þín þarf nýjan kjól.
prívat, skulum vér sjá svo til að þú verðir ekki í vandræðum. Vér höfum alt sem
heimtir fyrir konur og karla. Og verðið fælir engann. Spyrjið um það.
Fyrir kvenfolkid
höfum vér gnægðir af cinbreiðum og tvíbreiðum Kjólaefnum, Ullarardúkum og Ilálfullardúkum með alls-
konar breidd og litnm. Kvennfólks-nærfatnað, Sokka, Ilanzka, Vetlinga, Kantabönd, Bolfjaðrir (Steels),
Hnappa, Boli, og Bolteina. Nýjasta uppfinding í kvennbúningi: peisur, sem ómissandi eru á vetrum.
Einbreitt kjólacfni, með allskonar litum og gerð, frá lOc. til 25 cts. yd. Tvíbreitt kjólacfni af nýjustu
gerð og með tlzku-litum, óviðjafnanleg kjörkaup, á 15, 20, 25, 30, 35, 40, 45 og 50 cts. yd. Kvennkápur,
mikið upplag, $2 til $15. Kvennfólks-nærfatnaður, vandað upplag, á verði scm er aðgengilegt fyrir alla,
25 cts. hvert stykki og yfir: Bezta sort af ullarnærfbtum á $1,50 stykkið.
Þetta gefur dálitla hugmynd um vörurnar og verðið, en þarflaust er að telja fleira upp.
Nokknð nýtt á ferðinni!
að bjóða SKÓFATNAÐ af öllum tegundum. Eg hefi
Framvegis hefi ég, auk álnavöru og fatnaðar,
rétt I þessu lokið kaupum á öllu
SKÓFATNAÐARUPPLAGI
A. F.
svo sem : Karlmanna, unglinga og drengja-föt; yfirhafnir, buxur, yflrbuxur, jakkar, nærf'jt, milliskyrtur,
manséttuskyrtur, hattar, húfur, sokkar, vetlingar, axlabönd o. fl. o. fl.
Reykdal & Co.
og verður það til sölu í búð minni frá því í dag (föstudag 13. Des.). Ég komst að þeim kaupum á þessu upp-
lagi, að ég get með sönnu sagt, að ég GET OG SKAL SELJA sk< f itnað þenna FYRIR MINNA EN IIEILD-
SÖLUVERÐ. Varningurinn er vandaður, eins og íslendingum öllum er knnnugt. Komið og skoðið hann.
###4ý########<N>#
ohnson.
SUDVESTUR HORN ROSS AVE. OG ISABEL STR.
Opiö til kl. 11 á hverju kveldi tii Nýárs.