Heimskringla - 14.02.1896, Side 2
HEIMSKRINGLA 14. FEBRÚAR 1896.
9|§999O6#6tð99IO9Í9O90O9
9
Heimskringla
PUBLISHED IiY
The Heimskringla Prtg. & Publ. Co.
• • ••
Verð blaðsins í Canda og Bandar.:
$2 um 4rið [fyrirfram borgað]
Sent til íslands [fyrirfram borgað
af kaupendum bl. bér] $1.
Uppsögn ógild að lögum nema
kaupandi sé skuldlaus við blaðið.
®SS®
Peningar sendist í P. O. Money
Order, Registered Letter eða Ex-
press Money Order. Bankaávis-
anir á aðra banka en í Winnipeg
að eins teknar með aSöllum.
0» ••
EGGERTJOHANNSSON
EDITOR.
EINAR OLAFSSON
BLTSINESS MANAGER.
• • ••
Office :
Corner Ross Ave & Nena Str.
P.O. Box 305.
•••••••»«••••••©•••••®®
Enn meiri framför.
“All-raiklar framfarir” eru sýnileg-
ar enn i síðasta blaði Lögbergs, dags.
6. Febrúar. Það er heldur ekki nema
eðlilegt þó ritstj. taki sprett og sýni
hvað hann á til, rétt þegar hann er að
hefja innreið sínaíhina pólitisku Jerú-
salem Manitobamanna. Þegar annað
eins stendur til, er sízt að undra þó
hann viðri allar sínar hæfileika spjarir
og vizku-leppa dagana næstu á undan.
Tvær síðustu útgáfurnar af Lögbergi
bera líka vott um, að eitthvað óvenju-
legt sé á seyði. Meðal annars sézt það
& fátinu, sem á ritaranum er og þar af
leiðandi því, að það er lítt athugað,
hvað blaðið hefir áður sagt og það enda
fyrir fáurn dögum. Til dæmis um það
má geta þess, aðí Lögbergi, er út kom
23. Jan. siðasti., er verið að færa rök(!)
að því, að vitrustu mennirnir hver-
vetna hafi fylgt Jónasson, en hinir
Baldwinson, og því tilsönnunar er sagt
að þar sem kynblendingar séu flestir.
þar hafi verið jöfnust atkvæðin. I
þessari grein er óneitaulega verið að
telja mönnum trú um,að kynblendingar
séu engir sérlegir hæfileikamenn, svona
yfirleitt. í seinasta blaði aftur á móti
er þeim hælt á hvert reipi fyrir gáfur og
—alt, sem mann iná prýða. Hvorum
þessum dómi blaðsins er hættuminna að
trúa, er spursmálið. Almenna álitið
hnegist ef til vill meira að vitnisburðin-
um í Lögbergi, dags. 23. Jan., en svo
látum vér ósagt, að það sé nokkuð að
marka. Fyrir vort leyti getum vér
enda með ánægju beygt oss fyrir áliti
þessa ritstj. blaðsins og þingmanni fyrir
St. Andrews, af því að hann eflaust er
þsssu fólki í St. Andrewsnákunnugri en
vér.
Annars er þessi gullhamrasláttur
allur út i hött, eins og svo rnargt fleira
í þessari grein. Vér höfum aldrei brugð-
ið kynblendingunum um heimsku eða
illgirni, Því síður höfum vór nokkfu
sinni neitað að viðurkeuna einstaka
hæfileikamun ( eða úr þeirra flokki. Og
hvað snertir hrósið sem sett er upp á
John Norquay, hrós sem hann sannar-
lega átti skilið, þákemur það bæði nokk
uð seint og eins og hórlendir mennsegja
með “bad grace”, frá þeim manni, sem
helzt aldrei lagði Norquy nema illt
til, meðan hann var á veginum með
honum. Það eina sem vér höfðum sagt
um kynblendingana íSelkirkog St. Pet-
ers var það, að þeir væru ‘ræflar’, en
þá menn köllum vér ræfla. sem láta alt
sem þeir eiga, fast og laust, enda hoiður
og samvizku. fyrir whiskey og aðra á-
fengisdrvkki. F.n i þess orös algengu
merkingu eru það ekki alt heimskingjar
sein þetta gera. Vór þekkjum þá sem
kallaðir hafa verið og kallaðir eru gáfu-
menn, sem þannig hafa farið með sjálfa
sig og þannig fara með sjálfa sig. Hvort
sem það nú er rétt eða rangt, þá er það
alment ólit, að kynblendingar láti flest
falt fyrir vínið. Og hvað snertir þann
grun vorn, að þeir láti leiða sig í hvaða
kró sem er. þegar þetta góðgæti er á
boðstólum, þá er hann meöal annars
bygður á ummælum fyrrverandi þing-
manns fyrirSt. Andrews. Það er langt
síðan vér heyröum sagt, að þegar lægi
á væri enginn á við 1 Fred/ Colcleugh
til að halda kynblendingum í skorðum.
Og það eru mörg ár síðan vér heyrðum
liaft eftirhonum, að ekki þyrfti annað
«n sina ögnina af hvoru: ‘Bacon and
flour and whisltey’ til að hafa þá «ins
og huga manns. Að þetta se satt, er
nokkuð sem vér kunnum ekki að bera
um. en þar sem F. W. Colcleugher
þessu fólki gamal-kunnugur, þótti oss
ekki ástæða til aðefa það, þvi síður, er
allir sém nokkuð þekkja til í Selkirk
vita, aðenginn þjóðflokkur er jafn-sólg-
inn i áfenga drykki yfirleítt, eins og
þeir. Sé það lýgi, að kynblendingar lát
þannig leiða sig, þá á Colcleugh einsog
fleiri skömm skilið fyrir að útbreiða
hana, eins og hann á skömm skilið fyrir
svo margt fleira, sem hann hefir sagt
og gert.
Vafninginn allskonar áhrærandi at-
kvæðin í East Selkirk og úrslitin í heild
sinni er það að segja, að East Selkirk er
minsti hlutinn af St. Andrews, að atkv.
mu u inn í Nýja íslandi gerði meira en
vega á móti East Selkirk, og að um-
mæli vor standa óhögguð enn, þau, að
úrslitin í East Selkirk eru einum manni
að kenna, en úrslitin í kjördæminu í
heild sinni kynblendingunum. Vér gæt-
um enda bætt við að í East Selkirk eru
til kynblendingar, þó ekki séu þeir
mjög margir. og það ætlum vér, að t. d.
F. W. Colclough muni kunnugt að svo
er, og enda máské einum tveimur
mönnum öðrum í West Selkirk,
“International”-
sýningar.
Canadamenn hafa ekki átt við það
til þessa, að koma á fót innanríkis alls
herjar sýningum. sem erlendar þjóðir
taka þátt í að jöfuum hlutföllum, ef
þær vilja, og Canadamenn sjálfir. Það
hefir oftar en einusinni verið talað um
að koma á fót einni slíkri sýningu
Montreal, en ekkert orðið af því fyrr en
nú. Nú á þar virkilega að komast á fót
ein þessi ;“International”-sýning og
að heita “British Ernpire Exposition”.
Verður hún vígð 24. Maí næstkomandi
og hcldur áfram til 12. Október, eða 41
mánuð alls.
Formaður þessa fyrirtækis er Eng-
lendingur, J. H. Stiles að nafni. Hann
var aðalumboðsmaður Breta við lieiras-
syninguna í Chicago og síðan við ‘In
ternational’-sýninguna í San Francisco
og átti þar ekki all-litin þátt í, að sú
sýning vár eins fullkomin og reynslan
sýndi að hún "ar. Eftir að i,afa lokið
starfi sína í San Francisco kom hann til
Montreal og vildi koma upp sýningu
þar, en fékk svo daufar undirtektir um
styrk bæð hjá Dominion- og Quebec-
fylkisstjórninni, að hann lagði árar í
bát í bráð. Samt hætti hann ekki.
Iíann fór til Englands og myndaði þar
fólag til að standa fyrir sýningunni,
með $050,000 uppborguðum höfuðstól.
Svo hélt hann til Montreal og gerði
samning við sýningarfálagið þar um að
fá garð þess og byggingar Ieigðar, bygg
ingar, sem nú er verið að ummynda og
auka svo, að þær þekkjast ekki. Hann
fékk og léðan landfláka áfastan við sýn
ingargarðinn og byggir á honum líka.
Að þessn öllu fengnu var tekið til
starfa fyrir alvöru og hefir verið haldið
áfram af kappi síðan.
í samanburði við Chicago-sýning-
una verður þessi sýning óumræðilega
smávaxin, eins og sést af því, að sýn-
ingagarðurinn er ekki nema rúmar 60
ekrur að flatarmáli. En ef vel er á-
haldið má á það svæði koma svo miklu
af byggingum og i þær svo miklu af alls-
konar munum, að maður sem vill hafa
gagn af því sem sýnt er hafi nóg að
gera, að ganga um og skoða á 5, 6 dög-
um, tími sem var algerlega ónógur á
Chicago-sýningunni, ef maður vildi
liafa gagn af því sem sýnt var.
Af því sýningarsviðið er svo lítið
verður þar ekki um neina þá fegurð að
gora, lystigöng, vötn og skóga, sem
voru á Chicago-sýning^rsviðinu, en öll
samskonar fegurð fæst þá örskamt frá
sýningarsviðinu, —í hinum nafnfræga
“Mount Royal Park” uppi á samnefndu
fjalli. Sýningagarðurinn er við rætur
fjallsins og upp á fjallsbrúnina liggur
járnbraut, sem útbúin verður til að
flytja alt það fólk sem býðst.
Öll útríki Breta taka þátt í sýning-
unni og svo gera fjölda margar aðrar
þjóðir, Bandaríkjamenn ekki hvað
minstan. Þeir voru með þeim allra
fyrstu til að senda umboðsmenn til
Montreal til að skoða uppdrætti af bygg
ingunum og kaupa svæði í þeim fyrir
sýninguna. Norðurlandaþjóðir taka og
þátt í sýningunni. Er herra E. Ohlin,
sem Winnipeg-menn margir kannast
við og sem nú er búsettur í Montreal,
aðal-umboðsmaður Svía og Norðmanna,
Dana og Rússa. Addressa hans er: 180
St. James Str., Montreal, Canada.
Svo langt er þá komið á veg með
fyrstu “International”-sýninguna, sem
haldin verður i Canada. Að hún beri
sig eins vel og nokkur önnur samskonar
sýning í Ameríku er efalítið, þegar at-
hugað er, að auk þess er Canadamenn
sjálfir nær og fjær munu kappkosta að
sækja hana, er Montreal virkilega
miklu nær 12:—15 miljónum íbúa
Bandaríkja, en var sýningin í Chicago,
Það er þess vegna öll von til að fyrir-
tækiðheppnist svo vel, að þaö leiði til
annarar enn stærri sýningar í Can^da
áður en mörg ár líða. Það sem sérstak-
lega er að óttast í þessu sambandi, er að
of mikið verði að gert með þessar “In-
ternational”-sýningar. Þannig verður
sem sagt ein þessi sýning hór í landi í
sumar komandi, og 2 aftur sumarið
1897, — í Toronto og í St. Paul eða
Minneapolis. Þó verksvið þeirra tveggja
sýninga verði all-ólíkt, hljóta þær samt
að draga hvor frá annari, áð eyðileggja
hvor aðra sem gróðafyrtæki.
Draupnir,”
ársrit það, er frú T. H. Holm gefur út
er út komið í Reykjavík (3. árg.) og hef-
ir að innihaldi : “Gizurr t>orvaldsson.”
leikrit í 5 þáttum, eftir séra Eggert sál
Briem. Leikurinn fer fram í Noregi og
á íslandi (þrír fyrstu þættirnir í Noregi
og2 þeir seinustu á Islandi), uin miðbik
13. aldar. Fyrstu þrír þættirnir fara
fram 30. Júlí 1247, daginn eftir vígslu
Hákonar Noregskonungs Hákonarsonar
undir kórónu. Fjórði þáttur fer fram
á Hólum í Hjaltadal 22. Okt- 1253, dag-
inn eftir Flugumýrarbrennu, og 5. og
seinasti þátturinn fer fram 12. Janúar
1268, á Stað í Reyninesi, á dánardegi
Gizurar jarls Þorvaldssonar.
Það er hvorttveggj'a, að leikrit þetta
er langt (komust ekki að í öllu ársritinu
nema 3 fyrstu þættirnir ; hinir 2 bíða
næsta árs), enda þannig úr garði gert að
öðru leyti, að það verður liklega seint
sýnt á leiksviði. Höfundurinn hefir lík-
lega heldur aldrei ætlast til þess, heldur
hins, að eftir lestur þess yrði öllum
þorra manna skiljanlegra en áður.hvaða
brögðum var beitt til að fá Island undir
Noreg. Hafi það vakað fyrir höfundin-
um, sem vér efum ekki,af þessum þrem-
ur þáttum að dæma, þá hefir Ifcnum
líka tekist það. Það er engum efa und-
irorpið hvað þeir rnenn eru að gera, sem
dregnir eru fram á sjónarsviðið i leikrit
inu. únnað mál er það hvort allir verða
samdóma, að því er snertir álitið á hin-
um ýmsu sérstöku persónum í ritinu.
Þó hyggjum vér að flestir, sem sögurn-
ar hafa lesið, verði honuin samdóma í
því er snertir Gizurr Þorvaldsson sjálf-
an.
Hvað sem því líður, þá er þetta rit
þess virði, að allir bóka og söguvinir
kappkosti að eignast það, því fremur
sem útgefandinn getur þess í formálan-
um, að þetta leikrit verði hið eina, sem
út verði “gefið á prent, eftir þennan
mikla gáfu og mentamann”(E.Br.). Þó
aldrei verði þetta leikrir sýnt áleiksviði,
þá hefir það sitt bókmentalega gildi ekki
síður fyrir það.
í næsta hefti “Draupnis” verður,
auk niðurlagsins af “Gizuri Þorvalds-
syni,” skáldsaga eftir frú Holm, af Jóni
b.yskupi Arasyni, eftir því sem frá er
skýrt í formála 3, heftisins.
Raílýsing Reykjavíkur
Þess var getið fyrir nokkru síðan að
Frímann B. Anderson, raffræðingur,
væri kominn til Reykjavíkur aftur, í
[ieim tilgangi að vekja á ný máls á raf-
lýsingamálinu.
í bréfi, er Mr. Anderson ritar oss
frá Edinborg, dags. 22. Jan. þ.á.,minn-
•
ist hann á þetta mál. Það leynir sér
ekki að þeir Vikverjar eru framkvæmda-
hægir í þessu efni og hafa litla löngun
til, að svo stöddu, að leggja mikið í söl-
urnar af eigin fé. Þó hafa þeir margir
—líklega flestir—löngun til að sjá rafljós
á götum og í húsum bæjarins, enda er
nú fenginn vottur um vilja til að hag-
nýta Ijósin, fáist féð til að kaupa ljós-
gerðarvélarnar o. s. frv. Það er sem só
svo langt komið nú, að bæjarstjórnin
gefur samþykki sitttilþessaðrafmagns
stofnun verði sett upp í Reykjavík. Að
auki, og í það er mest varið, hefir hún
ásamt ýmsum bæjarmönnum, ábyrgst
að kaupa ljós upp 4 10.000 krónur á ári
hverju. Það er lítil upphæð, en þó Þyk-
ir Mr. Anderson líklegra nú en áður, að
að eittlivert raffærafélag verði til að
hætta stofnfé sínu í þetta fyrirtæki, sér-
staklega þegar athugað sé, að vart sé
fenginn helmingur þeirra manna á á-
skriftarskjalið, sem kaupa mundu ljós
undir eins og þau yrðu 4 boðstólum.
Til að koma þessu fyrirtæki á fót,
álítur Mr. Anderson að þurfi stofnfó, er
svari 15,000 dollars, í mesta lagi $20,000.
Er það sem ekkert fyrir rík raffærafélög
og hættan að því skapi lítil, þegar at-
hugað er, að viðhaldskostnaður allur,
eftir að stofnunin er komin á fót, fer lík-
lega ekki fram úr $1500—1600, en tekjur
sem nema $2,600 á ári, þegar vísar. í
byrjun eru þannig að virðist, visir vext-
ir af höfuðstólnum er nema 5% til 6|%,
og þó, sem sagt, er eftir að fá nöfn og
loforð meira en helmings væntanlegra
viðskiftamanna. Ef áætlun þessi öll er
nærri lagi, — og vér höfum ekki ástæðu
til að efa það, — þá sýnist engin áhætta
vera fólgin í að koma upp rafmagns-
stofnun í Reykjavík. Mr. Anderson
hefir þess vegna ástæðu til að vona, að
iiann áður en langt um líður komist að
samningi við raffærafélag áhrærandi raf
lýsing Reykjavikur og fái þannig fram
kvæmt það, sem hann hefir barist fyrir
í síðastl. 2 ár. Takist það, fái hann
brotið ísinn í þessu efni og gróðursett
rafljós á íslandi, þá verður líklega ekk1'
langt þangað til þau verða almenn í öll
um kaupstöðum á landinu.
I augum ínanna hér vestra, þar sem
nokkurra ára reynsla hefir sýnt, hvað
ábatasöm rafljósagerðin er, og þar sem
þar af leiðandi hver bæjarstjórnin um
aðra þvera er að kaupa allar þær stofn-
anir, lítur það kynlega út, að bæjar-
stjórn Reykjavíkur skuli ekki grípa
þetta tækifæri til að leggja frain stofn
féð og eiga svo alt sjálf. Það bendir á,
að menn séu hvervetna líkir í því, að
vilja ekki taka gilda reynslu annara,
hversu greinilegir vitnisburðir sem fyrir
hendi liggja.
eftirfylgjandi bréf
. / i
[Sóra Hafsteinn Pétursson hefir
fengið áskorunfiá Argyle-söfnuðum um
að vera í vali við prestkosningu, sem
innan skamms fer fram í þeirri bygð.
Hann hefir þegar sent söfnuðunum svar
sitt. Bréf hans til safnaðanna er þann-
ig]:
Bréf til Argyle-safnaða.
Kæru vinir.
6. þ. m. fékk ég
frá yður.
Glenboro, 3. Febr. 1896,
Rev. Hafsteinn Pétursson.
Kæri vin.
Mór er falið að tilkynna yður, að á
almennum fundi, sem haldinn var í
Frelsissöfnuði 31. f. m. var samþykt að
rita yður fyrirspurn um, hvort þér
munduð fáanlegur til að vera í vali við
í hönd farandi jirestkosningu safnað-
anna hér í bygðinni. Öðrum manni er
ritað sama efnis.
Ég vil vinsamlegast mælast til. að
þór gerið svo vel að gefa mér svar yðar
sem allra fyrst, því ætlaster til, að taf-
arlaust verði farið að vinna að því að
fá prest.
Með virðingu yðar
S. Arason,
í Febrúarm. 1890 tókst ég á hendur
prestþjónustu hjá yður, Argylemenn,
og var ég prestur yðar þangað til í Júní
inán.l893.Við komu mína var fólkstalan
í söfnuðum yðar 327. Samvinna mín og
yðar var frá fyrstu byrjun í alla staði á-
gæt og bar margfaldan ávöxt, og þann-
ig var það ávalt, meðan ég var prestur
yðar. Á örstuttum tíma, vorið 1890,
bættust við í söfnuðina 230 manns. Og
voru þá nálega allir Islendingar í ný-
lendunni gengnir í söfnuð. Þegar ég
fór frá yður 1893, var safnaðarlimatal-
an orðin 703. Á þessum rúmum þrem-
ur árum sem ég var þjónandi prestur
yðar, óx safnaðarlimatalan meirenum
helming eða 376 manns.
Þegar ég kom til yðar, var enginn
sunnudagsskóli haldinn hjá yður, og
hafði ekki verið um alllangan tíma.
Undireins vorið 1890 komuð þór á fót
sunnudagsskóla, sem bar langt af öllum
íslenzkum sumiúdagsskólum úti í ný-
lendunum. Sá sunnudagsskóli stóð á-
valt í sama blóma. meðan ég var þjón-
andi prestur yðar. Sunnudagsskóla-
skýrsla yðar 1891 var þannig : Innrit-
aðir nemendur 165, flest á skólanum
132, fæst á skólanum 34, meðaltal á
hverjum sunnudegi 92, skóladagar á ár-
inu 45, sunnudagsskólakennarar 14. Til
samanburðar má miuna á sunnudags-
skólaskýrslu frá Garðarsöfnuði, er séra
Fr. J. Bergmann þjónar. Sá söfnuður
hafði þá jafnháa meðlimatölu og Ar-
gylesöfnuðir báðir til samans. Sunnu-
dagsskólaskýrsla Garðarsafnaðar var
þetta ár 1891 með langbezta móti og var
hún þannig: Innritaðir nemendur 75,
flest á skólanum 50, fæst á skólanum
25, meðaltal á hverjum sunuudegi 45,
sunnudagsskólakennarar 3.
Guðsþjónusturnar í kyrkju yðar
voru ávalt ágætlega vel sóttar, því
kyrkjuræknara fólk, en þér eruð Ar-
gylemenn, þekki ég ekki meðal þjóð-
flokks vors.
Öll vera mín hjá yður og öll sam-
vinna mín og safnaðanna var mér til
sannrar gleði og ánægju. Og áranna,
sem ég var hjá yður, mun ég ávalt
minnast sem hinna rólegustu og gleði-
legustu ára æfi minnar. Aldrei verða
ncinir menn mór kærari en mínir gömlu
safnaðarmenn í Árgyle. Að sutnu leyti
mun ég ávalt sakna Argylebygðar og
Argylemanna, því hvergi er hægt að
hitta blómlegri bygð eða meira og betra
mannva.1 saman komið í nýlendum ís-
endinga, en hjá yður.
Orsökin til þess, að ég sagði yður
upp prestþjónustu minni 1893 og tók
köllun Winnipegsafnáðar var sú: Win-
nipegsöfnuður hafði þá meiri þörf á
prestþjónustu minni en þér, og mér
fanst það vera skylda mín að vera þar,
sem þörfin var mest. Þess vegna gat
ég eigi 1893 orðið yið þeirri þrábeiðni
yðar að halda áfram að vera prestur hjá
yður, þótt mig tæki mjög sárt að yfir-
gefa yður nauöuga. Yður stóð þá og til
boða mjög efnilegt prestsefni, Mr. Björn
B. Jónsson. Og það var mjög sorglegt,
að þér skylduð eigi velja hann fyrir
prest yðar. Hann var í alla staðí á-
gætlega vel fallinn til þess að vera prest
ur hjá yður. Eg benti yður á hann. En
forseti og varaforseti kyrkjufélagsins
unnu á mótikosningu hans. Þeir vildu
láta yður kjósa séra Steingrím Þorláks-
son, þótt hann hefði ekkort fylgi í söfn-
uðum yðar. Þetta ráðlag þeirra varð
bæöi yður og séra Steingrími til skaða.
Þér hafið orðið að veralengi prestlausir,
en séra Steingrímur varð að yfirgefa
Söfnuði sína í Minnesota. Þetta kom
mjög óinaklega niður á séra Steingrími,
því hann er góður prestur og mesta val.
menni. ,
Siðastl. sumar var séra Þorkell sál.
Sigurðsson vígður til prests handa yður.
Hann var að allra sögn mjög efnilegur
maður, en vegna heilsuleysis var hann
eigi fær um að taka prestskap á hendur.
Og mjög virðist það einkennileg aðferð
af forseta og varaforseta kyrkjufólags-
ins, að vígja dauðveikan mann til prests
handa Argylesöfnuðum, án þess að láta
söfnuðina fyrirfram vita uin veikindi
hans.
Nú standið þér, Argyle-menn, enn
þá einu sinni prestlausir. Þór hafið snú-
ið yður til mín og beðið mig að gefa yð-
ur kost á að kjósa mig fyrir prest yðar.
Af öllu hjarta vildi ég geta orðið við
þeim tilmælum yðar, því hvergi mun
neinum íslenzkum presti líða betur en
hjá yður. Og ekkert—nema Tjaldbúð-
in ein — er mór hjartfólguara en þér og
kyrkja yðar. En mér er því miður ó-
mögulegt að verða við tilmælum yðar.
Forsetí og varaforseti kyrkjufélagsins
vilja ráða því, hvern þér kjósið fyrir
prest yðar. Þeir hafa boðið ykkur
prestsefni. Og séra Fr. J. Bergmann
fór vestur til yðar í þeiin erindagerðum.
Af þessu só að þór gefið þegar í stað
fengið prest, þótt ég gangi undan. Það
^gleður mig af öllu lijarta. Og ég óska
yður til allrar liamingju með þann prest
sem þér veljið. En aðalástæðan fyrir
því, að ég get eigi orðið við tilmælum
yðar, er þessi : Eg get á engan hátt yf-
irgefið Tjaldbúðarsöfnuð. Það yrðihinu
mikilvæga starfi hans til skaða. Og
Tjaldbúðarsöfnuður hefir þetta fyrsta ár
sitt haft miklu meira andlegt starf með
höndum en nokkur annar íslenzkur
söfnuður. Því starfi verður að hnlda
áfram til blessunar fyrir kyrkjulega
framtíð Islendinga hér i Winnipeg. í
Febr. 1895 var reynt að koma Tjaldbúð-
arsöfnuði inn í kyrkjufólagið, en söfnuð-
urinn sá sér eigi fært að ganga inn í
það. Aðalorsökin til þess var sú : í
Tjaldbúðarsöfnuði hafði vaknað þegar í
byrjun meira andlegt lif og margbreytt-
ari kyrkjuleg starfsemi. en átt hefir sér
stað í söfnuðum kyrkjufélagsins. Þann-
ig hafði Tjaldbúðarsöfnuður t. d. lcomið
á fót blómlegu unglingafélagi og bæna-
samkomum einn virkan dag í hverri
viku. Söfnuðurinn hélt að þetta and-
lega líf mundi kólna út og þessi kyrkju-
lega starfsemi hætta, ef hann gengi inn
kyrkjufélagið. En ég hélt að það
mundi eigi verða, og þess vegna studdi
óg að inngöngu safnaðarins í kyrkjufó-
lagið, en ég varð alveg ofurliði borinn
við atkvæðagreiðslu í þessu máli. Tjald.
búðarsöfnuður stendur þannig einn síns
liðs og hefir nú eigi kost á neinum ís-
lenzkum presti nema mér einum. Það
er því heilög skylda mín að yfírgefa
hann eigi. Mér er Ijúft að vinna fyrir
Tjaldbúðarsöfnuð, því ekkert er mér
eins kært og hjartfólgið eins og Tjald-
búðin og söfnuður sá, sem tekur nafn
sitt af henni.
Kæru Argyle-menn. Mér er þann-
ig ómögulegt að verða við tilmælum yð-
ar. Eg vona og óska, að þér getið feng-
ð þetta prestsefni, sem varaforseti
kyrkjufélagsins hefir á boðstólum, og að
koma þessa prests til yðar verði söfnuð-
unum til blessunar og guðsríki til efl-
ingar á meðal yðar. Blessun drottins
hvíli ávalt yfir mínum ástkæru Argyle-
söfnuðum.
Yðar
Hafsteinn Pétursson.
®@ © ® © ©
” MEflTHOL
PLASTER
I have prescrlbed ilenthol Plaeter In a nnmber
ofcaMM of nnmalgle aud rheumatlc palus,«aud
um very inuch pioaaed Mir.h tho efTects and
jilpasontness oflts appllcatlon.—ÍV, H. CARPEN*
TEB, M.D., líotel Oxford, Boston.
I lmvo usod Munthol Plastera in aereral cnses
of rnuscular rhuumBtisin. and find in ov**ry cns«
that it ffave n 1 most 1 nstant and permnnent rclicf.
—J. H. Moork M.D . Washington. I».C.
It Cnres Sciatica, Lumbapo, Nen-
ralgia, Pains in Iíack or Sidey or
any Muscular Pains.
Price | Davis & Lawrenco Co., Ltd,
25c. | Sole Proprietors, Montreal.
•S
olwknandi.
Ákafur hósti. Engin hvíld dag eða nótt.
Læknarnir gefast upp.
Lífiim bjargað
Með því að brúka
flYES’Q CIíERRY
MÍEll ö PECTORAL.
“Eyrir nokkrum árum fékk ég á-
kaflega slæmt kvef með mjög slæmum
hósta, svo að ég hafði engan frið dag
eða nótt. Þegar læknarnir voru húnir
að gera alt við mig sem þeir gátu.sögðu
þeir að óg væri ólæknandi og hættu við
mig alveg. Kunningi minn, sem haíði
heyrtgetiðum kringumstæður mínar,
sendi mér flösku af Ayers Cherry Pec-
toral, sem ég fór þegar að brúka, og
sem þegar frá byrjun gerði rnér mikið
gott. Þegar ég var búinn með úr flösk-
unni var ég orðinn alheill. Ég hefi ald-
rei liaft mikinn hósta síðan og hefi þá
skoðun, að Ayer’s Cherry Pectoral hafi
lækneð mig. — W. H. Ward, 8 Quimhy
Ave., Lowell, Mass.
Hœstu verdlaun a heims-
syning-unni.
Ayers Pills liið hesta hreinsunarmeða
Saga vitavarðarins.
KONAN IIANS VAR MJÖG VEIK
AF GIGT.
Liðamótin voru bólgin og ósveiganleg.
Gat ekki sofið á nóttinni; hafð
enga matarlyst. Þjáðist mörg ár
áður en hann fann lækningu.
Tekið eftir Kingston News.
Mr. Hugh McLaren, vitavörður á
Wolfelsland, er alþektur hér í grend-
inni, og fyrir árvekni haus í stöðu sinni
hefir sigling á því 'svæði St. Lawrence-
fljótsins verið tiltölulega hættulítil.
Kona hans hefir verið veik í mörg Ar,
en fyrir skemstu sagði Mr. McLaren
fregnrita einum frá því, að henni væri
óðum að batna af einu af hinum nýj-
ustu meðulum þessa tíma, Dr. Williams
Pink Pills. Þegar hann var spurður,
hann hofði nokkuð á móti því að lýsa
sjúkdómnum og batanum, kvaðst hann
þess fus, ef það gæti komið einhverjum
aðhaldi. Hann sagði: “Fyrir mörg-
um árum fékk konan mín slæmt gigtar
flog, og sem endaði með því að leggja
hana í rumið. Hún var bólgin um liða
mótin. gat ekki sofið á næturnar, og
hafði enga matarlyst. Um þetta leyti
þjáðist hún fjarskalega; kvölum hætti
hvorki nót( né dag. Bezti læknir var
fengin til hennar, en það varð érangurs
laust, og við vorum farin að halda, að
að henni mundi ekki verða bjargað. Ég
hafði oft lesið í blöðunum um að gigt
hefði verið læknuð með Dr. Williams
Pink Pills, og af því leiddi að við fórum
að reyna þær. Hún var húin úr eitt-
hvað þremur öskjum áður en nokkur
bati var sýnilegur, og óðar en hún fór
að fá betri matarlyst, en þá fór henni
smámsaman að batna, og þegar hún
var búin með eitthvað tólf öskjur, gat
hún gengið um húsið óþvingað, Hún
hélt áfram með pillurnar enn um tíma
og þó hún findi einstaka sinnnm til
verkjar þegar veðrabrigði urðu, er hún
nú samt betri en hún hefir verið í mörg
ár, Hún getur nú sofið eins vel og hún
hefir nokkurn tíma getað áður, og mat-
arlystin hefir aldi ei verið hetri en nú.
Ég álít Dr. Wiiliams Pink Pills mjög
merkilegt meðal, því ég veit að þær
hafa gert meira en nokkurt annað með-
al til að lækna konuna mína, og ég er
viss um það að ef að þeir sem þjást af
samskonar sýki reyna þær dyggilega
meigi þeir eiga von á góðum afleiðing-
um. Ég gef þennan vitnisburð af heil-
um hug í þeirri von, að hann komi ein-
hverjum nauðstöddum að gagni.
Framburður Mr. McLarens sannar,
að Dr. Williams Pink Pills lækna þegar
önnur meðöl bregðast, og að þær megi
með réttu kailast ein hin merkasta upp-
finding þessara tíma. Almenningnr
ætti ætíð að vara sig á eftirstælingum,
sera sumir lyfsalar reyna að koma út
við þá, til þess að græða fó á þeim. Það
er ekkert meðal til ‘alveg eins’, eða ‘al-
veg eins gott’, eins og Dr. Wiliiams
Pink Pills, og ekta Pink Pills eru ætíð
með merki félagsins á umbúðunum: Dr.
Williams Pink Pills for Pale People.