Heimskringla - 05.03.1896, Page 3

Heimskringla - 05.03.1896, Page 3
HEIMSKRINGLA 5. MARZ 189G. Kotungurinn, - - - eða - - - Fall Bastílarinnar. Ektik ALEXANDER DUMA5. Eggert Jóhannsson þýddi. 1. KAPITULI. Bamið í reif um. Pað var vetrar nótt og jorðin umliverfis Paris var liulin í snjó, þó nokkrar stundir væru liðnar siðan hætti að fenna. Þrátt fyrir myrkrið og þrátt fyrir kuldann, gekk ungur maður þvert yfir hvíthjúpaða akrana, burt frá þorpinu Villers Cotterets, í skóginum rúmar 50 milur fráParis. Hann hafði sveipað um sig kápu svo stórri, að hvitvoðungurinn í reifum, sem hann hafði í fanginu, sást ekki. Hann hafði komið til þorpsins með póstvagni frá Paris og var á ferðinni til kauptúnsins Haramont. Það var auðsætt, að hann var veginum kunnugur, því hann stikaði stórum og leit hvorki til hægri eða vinstri. Innan stundar var hann kominn út í laufalausa skóginn, þar sem hávaxin tré réttu naktar greinar sínar móti stál- grárri hvelfingunni. Hinn næmi kuldi, lyktin af eikitrján- um og ísströnglarnir og kúlurnar á trjá-greinunum, alt þetta hreif hinar skáldlegu hugsjónir göngumannsins. Á milli trjánna vonaði hann þá og þegar að sjá tunrspír- una í kauptúninu, sem hann stefndi til, og reykjarstrokurnar upp um reykháfana, er upp af húskofunnm blandaðist saman í eina heild, áður en hann gufaði upp á milli trjá-greinanna. Það ljómaði dagur þegar hann fór yfir ofurlítinn læk, með frosnar liljur og hlóm á báðum hökkum. Hann gekk að fyrsta kofanum, sem hann bar að og bað um vikadreng til að fylgja sér að húsi Madelinu Pitou. Þögul, en eftirtektasöm, og ólik í því efni mörgum jafn- öldrum sínum, ruku börnin á fætur, störðu á þennan ókunna mann en fylgdu honum að tiltölulega stóru og þriflegu húsi, er stóð á bakka lækjarins litla, er bogaði fram hjá flestum húsunum, Planki var lagður yfir lækinn og þénaði sem brú “Þarna," sagði einn hinna smávöxnu fylgdarmanna og benti á húsið. Gilbert, svo hét ferðamaðurinn, gaf börnun um pening, er var svo stór, að þau störðu á hann gapandi af undrun. En Gilbert gekk á plankanum yfir lækinn, upp að húsdyrunum, opnaði hurðina og gekk inn. En börnin sem hann gaf peninginn hnöppuðu sig saman, tóku í hendina hvert á öðru og störðu svo alveg hissa á þennan laglega mann og svo stásslegan, í mórauðum klæðisfötum, með hringjur skónum og i stórri yfirkápu, sem gekk þarna og vildi endilega finna hana Madömu Pitou. Auk þeirra er þarna voru inni, og barnanna er fylgdu honum, hafði Gilbert enga lifandi veru séð. Haramont var að sýndist í eyði og tómt, og hann einmittvar að leita aðþess kyns þorpi. En hann hafði ekki fyr komist inn fyrir hurðina, en hann sá það, sem í allra eða flestra augUm er aðdáanlegt, og þó ekki sízt í augum hans, svo ungur og svo vitur maður sem hann var. Þar sat sem sé liraustleg bóndakona með hvít- voðung, sem var að sjúga brjóst hennar. Við kné hennar var fjörlegur drengur á að geta fjögra ára gamall og þuldi bænir upphátt. I einu húshorninu, nálægt glugga, eða öllu. heldur ga.ti á veggnum, sem rúðugleri var stungið í, sat önnur lcona, á að geta hálf-fertug að aldri, eða vel það, og spann. Hún stóð á fótaskör og á öðrum enda skararinnar sat feitur kjöltu hundur. Þegar seppi sá komumann, fór hann að gelta, en kom- , pánlega, eins og væri hann að heilsa honum og áliti rétt að kunngera öllum viðstöddum, að það kæmienginn að sér gofandi. Drengurinn við móðurknén leit um öxl sér og hætti við bænalesturinn í miðju orði, og konui'nar báðar urðu sami taka í að láta í ljósi undrun sína blandna fögnuði. “Ég heilsa þér, góða móðir Madelín!11 sagði Gilbert brosandi. “Svó herramaðurinn veit þá nafn mitt !“ sagði hún og varð hálf hverft við. “ Svo er sem þú segir, en vertu svo góð að lofa mér að tala,“ svaraði Gilbert. “í stað þess aðhafa eitt.barn á brjósti áttu nú að hafa tvö !" Og samstutfdis lagði hann litla reifa- strangann—ofurlítinn dreng, í heima tilbúna vöggu, er stóð á gólfinu. “ Hvaða ljómandi blessað barn !“ sagði spunakonan. “Já, elskulegt barn, það er víst, frænka Angelique," svaraði Madelín. “ Systir þín ?“ spurði Gilbert og benti á spunakonuna. “Nei. Systir mannsins míns.“ , “ Já, föðursystir mín, frænka “Gelique," sagðilitli dreng- urinn, sem þannig blandaði sér inn í umtalsefnið óboðinn, “ Vertu hægur, Ánge,“ sagði þá móðir hans, "þú ert að taka fram i fyrir herramanninum." “ Erindi mitt er fljót sagt, kona góð,“ sagði Gilbert, er þögn var fengin. “ Þetta barn er sonur eins af leiguliðum herra míns, en leiguliði þessi er allslaus. Húshóndi minn, skírnarfaðir sveinsins, vill að hann sé alinn upp úti í sveit' svo að hann læri verknað og verði duglegur, hraustur og dag- farsgóður. Vilt þú takast í fang að ala hann uppV" “ En, herra . . . ?“ “Hann fæddist í gær oghefir aldrei verið lagður á brjóst," gagði Gilbert. “ Svo get ég bætt því við, að þettaerhvít- voðungurinn, sem Niquet lögfræðingur í Villers Cotterets mintist á við þig.“ Madelín svaraði þeSsu með því, að grípa hinn aðkomna svein og leggja hann á brjóst. Var það hvorttveírgja að hann var þurftugur, endatókhann rösklega til matar. Þetta hvort- tveggja hreif Gilbert til meðaumkunar. “Mér hefir verið sagt satt," sagði hann. “ Þú ert virki- lega góð kona. I nafni og umboði húsbónda míns, fel ég þér sveininn til fósturs. Ég sé að hér muni honum líða vel og ég vona að hann flytji ánægju draum til þeirra, er í þessu húsi búa, samfara sínum eigin barna-draumum. Hvað mikið borgar herra Niquet fyrir börnin, sem hann útvegar þér til uppfósturs ?“ “Tólflivra* um mánuðinn, herra minn ! En hann er ríkur og bætir líka við þetta meðlag smápeningum fyrir sykur og leikföng. “ “ Þetta barn, móðir Madelín,11 svaraði Gilbert með nokkru stærilæti, “skal færa þér tuttugu livra um mánuðinn, eða tvö hundruð og fjöritíu um árið." “Drottinn minn góður ! En ég þakka þér innilega fyrir!“ sagði Madelín. “Og hér er þá fyrsta 'árs meðgjöfin greidd við hamars- högg !“ sagði Gilbert um leið og hann lagði tíu glóandi gull- peninga á borðið. Þær höfðu ekki oft séð aðra eins hrúgu konurnar og opnuðu augun eins og þær mest máttu og litli Ange Pítou teygði sig eins og hann gat til að leggja hönd á þessa álitlegu eign! “ En et litli maðurinn skyldi nú ekki lifa ?“ spurði Ma- delin hálf-feimnislega. “ Það væri sorglegt tjón—tjón sem betur fer, á sér ekki *) Livre,; gamall og úr gildi genginn silfur peningur á Prakklandi, ígildi 20 cents, Þegar “livrar" voru lagðirniður kom “franki" (franc) í staðinn og gildir það sama. Þýð, oft stað," svaraði Gilbert. “Já, hér er þá árs meðgjöfin Ertu ánægð með hana ?“ “ Já, herra minn, víst er ég það.“ “Þá skulum við tala um framtíðarborgunina," sagði Gilbert. “Eigum við þá að ala barnið upp?“ “ Mjö líkleurt, og ganga því í foreldra stað,“ svaraði Gil- bert i sorgblöndnum róm og brá lit. “Blessaður auminginn ! Er hann munaðarlaus ?“ Gilbert hafði ekki búizt við þessari meðaumkun og þess- um spurningum öllurh. Hann bjóst heldur ekki við að liann sjálfur mundi finna mikið til, enda herti hann upp hugann og náði sér á augnablikinu. “Ég sagði þér ekki allan sannleikann!“ sagði hnnn. Faðir barnsins, vesalingurinn, afbar ekki harmafregnina, er hann frétti um afdrif móðurinnar, en féll niður örendur." Konurnar létu í ljósi meðaumkun sina bæði með orðum og athöfnum og Gilbert hélt áfram, þó honum væri þungt fyrir brjósti: "Sveinninn getur þess vegna ekki búizt við neinni foreldra elsku og um önnun." I þessu kóm inn þungstígur maður, hreystilegur og glað- legur, en hægfara. Það var húsbóndinn og eiginmaður Madelinu—“pabbi" Pitou. Hann var augsælega einn af þess- um heilsu góðu og hraustu, hrekkjulausu, góðh'ndu mönnum sern öllum vilja gott gera en engum mein, og sem Greuze málaði svo mildarlega i myndasafni sínu af heimilis-lifinu það þurfti aðeins örfá orð til að gera honum ástæðurnar skiljanlegar. Manngæðskan lét hann á svipstundu skilja það, sem honum annars hefði verið ofvaxið að skilja. Gilbert gerði áheyrendunum það fyllilega skiljanlegt, að það skyldi ekki standa á meðgjöfinni og að hún yrði greidd þangað til þilturinn væri orðin sjálfbjarga maður, sem ekki þyrfti lengur á annara hjálp að halda. “Látum það gott heita.“ sagði Pitou. “Mér lízt svo á að okkur gangi vel með piltinn, þó hann sé nokkuð smár enn þá.“ “ Heyrðu nú til!“ sögðu háðar konurnar í senn. “Hon- um geðjast að honum ekki síður en okkur." “ Mér þætti vænt um,“ sagði Gilbert, "ef þú vildir koma með mér yfir til herra Niquets. Eg ætla að skilja eftir hjá honum alla meðgjafara peningana, svo að þið getið verið ánægð og barninu geti liðið vel.“ Svo kvaddi Gilbert þær konurnar með handabandi, er þeim þótti heiður að, laut ofan að vöggunni, sem hinn litli gestur hafði rekið hinn lögmæta erfingja úr. “Þú ert lítið líkur mér,“ sagði hann með sjálfum sér og var alvarlegur mjög, er hann horfði á son sinn. "Þú ert miklu líkari henni móður þinni, liinni stórlyndu Andreu, sem heldur svo rikt við höfðingjana af því hún á barón Taverney fyrir föður." Þessi umhugsun særði hjarta hans, Hann varð að sökkva fingurneglunum inn í holdið í lófunum til taka fyrir tára- flóðið, sem vildi brjótast fram. Hann þrýsti kossi á kinn sveinsinsog snaraðist svo út titrandi af tilfinningu, Ange Pi- tou vafðist fyrir fótum hans og gaf Gilbert honum hálfan “Louis" ($2.50). Gilbert var ekki nema 18 ára -gamall þeg- ar þessi saga hófst. Tilfinningar lians, þessa unga föðurs, voru því bæði margvíslegar og átakanlegar á þessu augua- bliki. Hann var náfölur og titraði eins og hrísla og hefði hann fengið nokkurn ábæti raunanna hefðu þær lagt hann í rúmið. “Við skulum fara af stað,“ sagði hann yið Pitou bónda, er stóð við dyrnar. “En, herra minn!“ kallaði Madelín á eftir honum. “Nafn barsins—hvað sagðir þú að hann héti?“ “Kallaðu hann Sebastian Gilbert !“ svaraði Gilbert án þess að líta við, en auðheyrt var á röddinni, að hann stærði sig af nafninu. Þeir Gilbert og Pitou töfðu ekki lengi hjá lögmanninum. Gilbert skildi eftir peningana fyrir uppeldi sveinsins, sem bóndasonar. Þangað til hann væri 15 áragamall átti að viita honum tilsögn í öllu sem að almennri mentun laut', en frá þeim tíma til lögaldurs átti að kenna honum annað tveggja handverk, eða kaupa handa honum jarðarskekil og hú. Þegar hann væri 18 ára, skyldu þeim fósturforeldrum hans greiddir tvö þúsund livrar, auk fyrgreindrar upphæðar. er lögmaður- inn átti að gr'eiða þeim á hverju ári. I ómakslaun öll átti Niquet að fá vöxtu alla af pening- unnm frá þessum tíma. * * * Svo liðu tíu ár. Pitou bóndi var dáinn fyrir mörgum árum, svo mörgum, að Ange sonur hans mundi svo sem ekkert eftir honum, svo ungur hafði hann verið, er föðursins misti við. Og nú var Madelín sjálf um það, að yfirgefa heim- inn. Það voru þrjú ár síðan liún hafði séð Gilbert, þ^27 ára gamlan, þurran, orðláan og stuttan í spuna. En ísgríma þessi, sem heimurinn og kringumstæðurnar höfðu gert hon- um, hjaðnaði eins og héla fyrir morgunsól undir eins þegar hann sá son sinn, glaðan og kátann og hraustann og alinn upp samkvæmt reglunum, er hann sjálfur hafði fyrir skipað. Hann heilsaði Madelínu með handa handi og sagði við hana, er hann sá son sinn svo vel útlítandi: “Treystu á mig, ef sér einhvern tíma liggur á." Hann tok drengina, son sinn og Ange fóstbróður haris, með ser í skemtiferð. Fór hann fyrst að skoða gröf vísinda- mannsins Rousseau og síðan til þorpsins Villers Cotterets. Gintist hann þá til, fyrir fagurmæli ábótans Fortier, sem þar hafði skóla fyrir drengi og unglinga, að skilja son sinn eftir hjá honum til mentunar. Ábótinn talaði mikið um vísindi, enda heimspekin áhrifa mikið afl á þessu tímabili og hafði enda brötið sér veg alt að hjartarótum kyrkjunnar. Sem sagt skildi hann son sinn eftir hjá Fortier, fékk honum miða með tilgreindu heimili sínu í Paris og hélt svo af stað til borgarinnar. Alt þetta var Madelin Pitou kunnugt. Þegar hún var aðfram komin mintist hún heitsins er Gilbert gerði fyrir þremur árum. Það var henni sannur fögnuður. Forsjónin hafði auðvitað beint honum leið til Haramont í upphafinu í því skyni að útvega Ange vesalingnum forsjá, fullkomnari og betri forsjá, en þá, er hann rnisti við andlát fátækra for- eldra sinna. Hún var ekki skrifandi ogsendi þess vegna eftir sóknar prestinum. Hann kom og skrifaði fyrir hana bréf, sem hann svo sendi Fortier ábóta til að senda með póstinum til Gilbert Paris. Það mátti ekki seinna vera. Daginn eftir gaf Madelín upp andann. II, KAPÍTULI. Kotungurinn Ange Pitou. Ange var of ungur til að kunna að meta skaða slnn. Þó duldist honum ekki að heimilis-ljósið var horfið. Og þegar líkið hafði verið lagt í gröfina, settist hann niður hjá leiði móður sinnar og var ófáanlegur til að vikja þaðan. Hann hafði ein og sömu svör fyrir alla, er reyndu til að laða hann burt þaðan, þau, að mamma Madelín væri þar, að liann hefði aldrei yfirgefið hana og að hann ætlaði ekki að byrja á þvi Það var hjá þessari nýju gröf að Dr. Gilbert fann hann, sem fór af stað til Haramount undir eins og hann fékk bréf hinnar deyjandi konu. Ange var kornungur þegar hann sá Gilbert í fyrsta skifti, en börnin eru ætíð móttækileg fyrir utan aðkomandi áhrif og það sem þeim er innrætt ungum, það muna þau alla ætí. Koma Gilberts til þorpsins fyrrum hafði skilið eftir glögg för á minnisspjaldi munaðarleysingjans. Hann hafð‘ verið góður við Ange og áunnið sér hylli hans. Auk þess heyrði hann móður slna oft nefna nafn hans og ætíð með lotningu. Þegar liann svo hafði komið í seinna skiftið, með Þeir vilja ekki reykja neitt annað.meðan þeir geta fengið Old Chum, jafnvel þó þeir þurfi að fá það til láns, því þeir fá ekkert tóhak sem þeim fellur eins vel, og sem gefur eins kaldan og mildan reyk. 1>. Kitcliie & Co Jlaiiufncturers JIONTRSíAIi. The American Tobacco Co’r of Canada, Ltd, Successors. HLUTIR sem eru í sjálfu sér vandaðir og aldrei breytast nema til batnaðar, verða óhjákvæmilega viðurkendir að lokum. Þetta er ástæðan fyrir að selst svo mikið af E. B. EDDY’S Eldspytum. Hann W. Blackadar. . eldi. Einnig eldivið af mörgu 131 Ilijríilns Str. tagi, þurran sem sprek og liarðan ..................sem grjót, alt fyrir neðan sann- gjarnt verð. Gott viðmót. Áreiðanleg vigt. Flutt þangað sem óskað er og sett þar sem um er beðið. — Gunnar Sveinsson vinnur í búðinni. Flslendingar i Selkirk! Það vinnur enginn Islendingur sem stendur í búð þeirra félaga Moody og Sutherland, en það þarf ekki að aftra neinum, því Mr. Moody talar íalenzku reiprennandí. Finnið hann að máli þegar þið þurfið aðkaupa eitthvað af járn eða blikkvarn ingi. — Hann selur hinar nafnfrægu Grand Jewel Stove’s og að sjálfsögðu hitunarofna á allri stærð, Upplag mikið af líkkistum á allri stærð og alt sem þeim til heyrir Mjöl- og fóður- verzlun Stórt upplag af Lake of theWoods kveitimjöli æfinlega fyrirliggjandi. MOODY S SUTHERLAND HARÐVÖRUSALAR. Evaline Street. — — — — West Selkirk. Dominion of Canada. ir oke^Pis ** 300,000,000 ekra i hveti og beitilandi í Manitoba og Vestr-territóríunum i Canada ókevnis fvri lT,nne.Ta;- DjUiPr frabœrlega,frjÓ8a,mr jarðvegr, nægð af vatni og skTgi y0g meginhlutinn nalægt jarnbrautum. Afrakstr hveitis af ekrunni 20 buslfeí ef vel er umbuid. ; uaöU01» ei í inu frjósama belti í Rauðárdalnum, Saskatchewan-dalnum, Peace River-dalnum og umhverfis- iggjandislettlendi eru fe.kna-miklir flákar af ágætasta akrlendi, engi og beiti- landi—ínnviðattumesti flaki í heimi af lítt bygðu landi. 8 S 1 Málmnámaland. PfUi sií?.’ járn, kopar, salt, steinolía o. s. frv. Ómœldir flákar af kolanáma- landi; eldiviðr þvi tryggrum allan aldr. % Járnbraut frá bafi til hafs. Canada-Kyrrahafs-járnbrautin í sambandi við Grand Trunk og Inter-Colonial brautirnar mynda oslitna járnbraut frá öllum hafnstöðum við Atlanzhaf f rÁ- nada til Kyrrahafs. Sú brautliggr um miðhlut frjósama beltisins eftir hví endi- longuogum hma hnkalegu, tignariegu fjallaklasa, norðr og ver _ og um in nafnfrægu Klettafjöll Vestrheims. Heilnœmt loftslag. Loftslagið í Manitoba og Norðvestrlandinu er viðikent ið heilnoemastn í Amo ríku. Hreinviðri og þurviðri vetrogsumar; vetrinn kaldr, en bjartr ogiud- viðrasamr; aldrei þokaogsuld og aldrei fellibyljir, eins og sunnar í landinu Sambandsstjórnin í Canada gefr hverjum karlmanni yfir 18 ára gömlum og hverjum kvennmanni sem heflr hyrr fainiliu ad sja, ’ UCUf 160 ekrur af Inndi g ókevpis. Hinir einu skilmálar eru, að landnemi búi á landinu ogvrk A þann hatt P©fst hverjum manni kostr á að veröa eigandi sinnar ábÝlis ðar og sjalfstæðr i efnalegu tilliti. 8 ar aDÉlls Islenzkar uýlendur í Manitoba og canadiska.Norðvestrlandinu eru nú þegar stofnaðar í fiRtöð ™ Þeirra stœrst er NYJA ISLAND, liggjandi 45-80 mílur norðr úa VVinnipelT vestrstrond Winnipeg-vatns. Vestr fra Nýja Islandi, í 30-25 mílna fiiriLs er aLFTAVATNS-NYLENDAN. I baðunV þessum ’nýlendum er mikVð ií1- numdu landi, og badar þessar nvlendr lierffia napr HftfnAufoA ____i , , x uiuui iiuruYCHir ira >> inmpeí?; yu'ArrEI T F-XÝ LENDAN um 20 mílursuðrfrá Þingvalla-nýlendu, og ALBERTA-NýVfnt>_ AV ;° milnr norðr frá Calgary, en um 900 mílur vestr frá Winnipeg í siðast toldum 3 nylendunum er n.ikið af óbygðu, ágætu akr- og beitilandi 8‘ Frekari upplýsingar í þessu efni getr hver sem vill fengið með bv’í að sknfaumþað: ’ ao Commissioner of Dominion Lands. Eða 15. Ij. Baldwinson, isl. umboðsm. Gullrent úr fyrir $7.50 Viltu fá góð kaup ? Viltu fá hið besta úr sem fæst fvrir þetta verð? Hik- aðu ekki við að segja já. Sendu okkur þessa aug- lýsingu með nafni þínu og utanáskr- ift, og láttu okkur vita hvort þú vilt j kvenmanns eðaI karlmanns, openi eða hunting Case- úr, og viðskulum senda þér hið besta úr sem hægt er að fá fyrir þetta lága verð. — Urin eru gullrend með 14 k. gulli, og verkið gott American Nickelverk., sem ver ábyrgj- umst að endist 20 ár. Úrið gengur reglu- lega og vel og lítur út eins og $50.00 úr. Þú skoðar úrið hjá Express Ágentinum og ef það er eins og því er lýst og þú á- lítur það kaupandi, þá horgar þú hon- um $7 50 (heildsöluverð), og burðargjald á því.—Ef þér lýzt ekki á það, þá taktu það ekki. Við viijum selja fljótt og mik- ið með litlum gróða á hverju fyrir sig. Við seljum að ein§ góð úr. Þegar þú hiður um úr, þá strykaðu út það sem þú vilt ekki liafa af því sem á eftir kemur ; Send m e—Iluntin g— Opcn Face—Ocnts —Ladies— Watch. — Ef þú vilt fá $3.50 festi með úrinu fyrir 50c. þá láttu þess getið. — Sendið til The Universal Watch i Jewelery Manuf. Co. Depot 68—508 Schiller Theatre. [Verðlisti frí.] Chicago, 111. _ CAVEUT8, TRADE MARKS, DESICN PAT6NTS, „ , , COPVRICHTS, etc. For lnformatlön and freo Handbook wrfte to & CO.. 361 Broadway. Nrw’ York. uidest bureau for securlng patents ln Amerlca. iLverypatent taken out by us is brouRht before tne public by a notico given free of charge in the fricBtifií JVtuman Larffest clrculatfon of nny scientiflc paper in the world. bplendidly illustrated. No intelligent man should be without it. Weeklv «*1 OO a year; $1.50 six months. Address, CO., Publishers, 361 Broadway, New York City, N orthern Pacific RAILROAD TIME CARD.—Taking eflect Sundav Dec. 16. 1894 J MAIN LINE. North B’und M> . g8 W3 cS o Ó 1.20p| 3.15p í.or.p 12.42p 12.22p 11.64a 11 31a 11.07a 10.31a 10.03a 9.23a 8,00a 7.00a 11.05p 1.30p Winnipeg Canada. 3.03j. 2,50p 2.38p 2.22p 2.13p 2.02p 1.40p l.i2p 12.59p 12.30p 12.20p 8.35a 4.55a| 3.45p 8.40p 8.00p 10.30p .. Vinnipeg.. *Portage Junc * St.Norbert.. *. Cartier.... *. St. Agathe.. *Union Point. *Silver Plains .. .Morris.... .. .St. Jean... . .Letellier ... .. Emerson .. . .Pembina. .. Grand Forks.. .Wpg. Junc.. Duluth Minneapolis ...St. Paul... Chicago Soouth Biwd k •tf' W3 "C P-S «í o r-É; -*-e CS rC P, >b I- r— Þ- 12.1hþl 5.30a 12.27p 12.40p 12.52p 1.1 Op 1.17p 1.28p 1.45p 1.58p 2.17p 2.35p 2.50p 6.30p lO.lOp 7.25a 6 30a 7.10 9.85p 5.47a 6.07a 6.25a 6.51 a 7.02a 7.19a 7.45a 8.25a 9.18a 10.15a 11.15» 8.25p 1.25p MORRIS-BRANDON BRANCH East Bound W. Bound. H S-S iffe 4-3 3Í ® Q0 “ k ° 3 ll S PATIONS. U kÞ. §>■3 4«? 03 4-3 QQ •5 * U p *a £ Pú 00 3 E- f* O S 0_ 3 a g ,20p\3.15| ( Winnipeg .. |12.J5p| 5.3 ,50p ,58p ,49p ,23p ,39p 1.58p 11.14p 11.21p l7.25p 2.17p 2,19p 2.57p 2.27p 1.57a 1.12a 0.37a 0.13a 9.49a ÍH.39a 9.05a 8.28a 7.50a 1.30p 1.07p 12.42p I2.32p 12.14p 11.59a 11.38a 11.27a U.09a 10.55a 10.40a L0.30a 10.15a JO.OOa -9.38a 9.21a 9.05a 8.58a 8.49a 8 35a 8.18a 8.00a .. .Morris ..., * Lowe Farm *... Myrtle... ...Roland. . * Rosebank.. ... Miaml.... * Deerwood.. * Altamont .. . .Somerset... *Swan Lake.. * Ind. SprÍDgs ♦Mariapolis .. * Greenway .. ... Baldur.... . .Belmont.... *.. Illlton.... *.. Ashdown.. Wawanesa.. * Elliotts Ronnthwaite *Martinville.. .. Brandon... West-bound passenger Baldur for meals. 8.0( 8.44 9.81 1.50p 2.15p 2.4lp 2.53p 8.10p 3.25J 3.48p 4.0lp 4.20p 4.36ji 4.51p 5.02p 5.18p 5.34p 5.57p C.17p 6.34p 6.42p 6.53p 7.05p 7.25p 7.45p trains stop 10.2! 10.54 11.44 12.1( 12.5] 4 II 4.51 POR TAGELA PRAIRE BRANCH. W. Bound Mixed No. 143 Every Day Except Sunday. STATIONS. 5.45 p.m. 5.58 p.m 6.14 p.m. 6.1Ö p.m. 6.42 p.m. 7.06p.m. 7.13p.m. 7.25 p.m. 7.47 a.m. 8.00 a.m. 8.30 a.m. .. Winnipeg.. *Port, Junctfoi! *St. Charles.. * Ileadingly.. * White Plains *Gr Pit Spnr *LaSalleTank *.. Eustace... *.. Oakville.. *. . .Cnrtis. . . Port. 1» Prairie East, Bound Miied No. 144 Every Day Except, Sunday. 12.10r 11 55 i 11.29i 11.21 ! 10.571 10.32f 10.24 f 10.11 f 9.48 í 9.34 s 9.15 í Numbers 107 and 10b Jiave tfi Pullman Vestibuled Drawing Room ing Cars between Winnipeg, St. Pa Minneapolis. Also Palace Dininj Close connection at Chicago with e llnes. Connection at Winnipeg Ju with trains to and from the Pacific Forrates and full lnformatioi cerning connection with other lineí «PPly to anv airent of the companv CHAS.S. FEE, H. SWINFÓ G.P.&.T.A., St.Pfnl. O., Aet CITY OFFICE ’ 486 Maiu Str„ Winni

x

Heimskringla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.