Heimskringla - 05.03.1896, Side 4
HEIMSKRINGLA 5. MARZ 189G.
Winnipeg.
Fjármálastjóri fylkisins flatti fjár-
málarœðu sína á fyikisþyngi á þriðju-
daginn var.
Hinn 15. f. m. andaðist Jóhannes
Jónsson að Castle Gate, Carbon Co.,
Utah, eftir langa legu.
Hra. Sigurður Nordal, póstmeistari
að Geysir, Man., kom til bæjarins á
mánudaginn var.
Fimtudaginn 27. f. m. voru Mr.
Hjálmur Þorsteinsson og Miss Sigríður
Hjálmsdóttir gefin saman í hjónaband
af séra Hafsteini Péturssyni.
Á bæjarráðsfundiá mánudagskvöld
ið var samþykkt að brúleggja með
grjóti og sandi parta af 5—6 strætum
á komandi ári.
Mr. E. W. Day, formaður Globe-
lánfélagsins hér í bænum, hefir verið
kjörinn formaður aðalfélagsins í Toron-
to og flytur bann þangað innan mán.
í Alaska-för með 2 hérlendum mönn-
um lagði herra trésmiður Þorkell Jóns-
son í Victoria, British Columbia um
miðjan Febr. síðastl. Bjóst við að
verða að heiman um 6 mánaða tíma.
Kippir í bakvöðvunum, sárindi und-
ir herðablöðunum, gallbeiskja og ó-
hægðir eru vottur um að maginn og
meltingarfærin eru úr lagi. Við öllum
þesskonar sjúkdómum skyldu menn
brúka Ayers Pills.
Louis Bridge P. O. heitir pósthúsið
nýja í útjaðri bæjarins á austurbakka
Rauðár, sem opnað var almenningi til
nota á mánudaginn var. Póstur geng-
ur þangað einu sinni á dag frá aðal-
pósthúsinu.
Þrestirnir eru sagðir að boða vorið.
Þeir minna einnig á þaðað nauðsynlegt
sé að fara að brúka blóðhreinsandi með-
öl, til þess áð búa h'kamann undir hita-
tímann. Hiustaðu á hvað fuglarnir
segja: “Brúkaðu Ayers Sarsaparilla í
Marz, Apríl og Maí”.
Bræðurnir Þorsteinn og Runólfur
Isleifssynir, bændur í Alftavatnsnýlendu
hafa keypt búgarð (140 ekrur) 12 mílur
suðvestur frá Winnipeg og flytja þang-
að í vor. Á landinu eru 40 ekrur plægð-
er og sá þeir hveiti og öðru korni í þær.
Lestagangur á aukabrautum C. P.
R.félagsins hér i fylkinu var rýrður 1.
þ. m. Verða nú tvær fólkslestir í viku í
stað þriggja áður. Til Glenboro fer lest-
in nú á þriðjudögum og föstudögum kl.
10,50 f. h., til West Selkirk á mánudög-
um og fimtudögum kl. 7J f. h.
Mr. A. R. McNichol, formaður
Mutual Reserve lífsábyrgðarfélagsins,
hefir verið kjörinn formaður stórdeildar
þeirrar í stjórn félagsins, sem innibind-
ur Minnesota og Lakota ríkin bæði og
Vestur-Canada frá stórvötuunum til
Kyrrahafs. Verður aðsetursstaður bans
framvegis í St. Paul.
Mrs. Walters hefir þjáðst af inn-
vortissjúkdómum um undanfarinn tíma
ogekki fengið meinabót fyrr en núna í
vikunni sem leið að hún var flutt á
sjúkrahús bæjarins og “opereruð.” Stóð
Dr, Chown fyrir því og hefir tekist það
einkavel að sögn. Skurðurinn er með
þeim stærri sem hann hefir gert, en álit-
ið er að Mrs. Walters sé nú úr allri
hættu.
Mikilsverð forskrift.
Morrison ritstjóri “Sun” Worthing-
ton Ind. skrifar : “Electric Bitters er
gott meðal. og ég get með ánægju mælt
með því. Það læknar óhægðír og höf-
uðverk, og kemur líffærunum i rétt lag.”
Mrs. Annie Stehle 2025 Cottage Grove
Ave. Chicago var orðin mjög af sér
gengin, gat ekki borðað eða melt nokk-
urn mat og hafði slæman höfuðverk,
sem aldrei linaðist, en sex flöskur af El-
ectric Bitters læknuðu hana algerlega.
Verð 50c. og $1.00. Fæst i öllum lyfja-
búðum.
Húslóð á McWilliam Str. og 20
ekrur af landi fyrir utan hæinn, er til
sölu með ákjósanlegustu kjörum við lit-
ið meira en hálfvirðí hjá
Páli Jónssyni,
605 Ross Ave.
Varist háska og fyrirhöfn.
GaIÐ AB EFTIRSTÆI.INC)UM I'EOAR þér
KAUPIB DULDA LITI.
Þegar hætt er við að farið sé með
svik og pretti, þá er ekki nema rétt að
menn séu aðvaraðir. Illar og óvandað-
ar eftirstælingar af Diamond Dyes eru
búnar til af ýmsum einungis til þess að
græða á þeim. Þeir hirða ekkert um
það, þótt kvenfólkið eyðileggi efnið sem
það er að lita, eins lengi og þeir geta selt
þessa liti með góðum ágóða.
Til litunar á heimilum eru Diamond
Dye viðurkendir um allan heim að vera
hinir beítu. Vertu því viss um að þú
fáir Diamond Dye þegar þú biður um
hann. Þeir revnast ætíð vel. Allar
vitrar konur halda mest upp á þá.
Skemtisamkoma, ágætis prógramm,
í Tjaldbúðinni í kvöld, fimtudag.
Eggert kaupmaður Oliver á Gimli
ásamt Mrs. Oliver, kom til bæiarins á
þriðjudaginn.
Framvegis kemur Heimskringla út
á fimmtudögum. Þeir sem vilja koma
auglýsingu í blaðið verða þess vegna að
koma með liana í seinastalagi á miðviku-
dag kl. 9 f. h.
Sagan “ Michael Strogoff” verður
tilbúin til útbýtingar seinni hluta þ. m.
Hver sem borgar 10. árgaug Hkr. fyrir
lok mánaðarins fær söguna ókeypis.
Þeir sem vilja ná í hana mega ekki
draga mikið lengur að horga. Það er
hver seinastur.
í þessu blaði byrjar saga eftir Alex-
ander Dumas (hinn eldri), sem vér von-
um að lesendunum falli vel þegar fram
í sækir. Hún ferfram aðal-legadagana
næstu á undan og eftir 14. Júlí 1789,
þegar múgurinn gerði áhlaup á f angelsis-
kastalann mikla, “The Bastile,“ og tók
hann þrátt fyrir öfluga tilraun að verja
hann. Er það svo þýðingarmikið atriði
í sögu Frakka, að 14, Júlí ár hvert er
helgidagur í minningu um hrikaleikinn,
sem sagt er frá í þessari sögu.
Innflutningamáls fundinum stóra
var lokið á laugardaginn. Á föstudags-
kveldið hélt hæjarstjórnin fundarmönn-
um veizlu á Hotel Leland. Á föstudag-
inn var mynduð aðal-framkvæmdar-
stjórn í innfiutningsmálum, er heitir:
“Western Canada Immigration Asso-
ciation.” í framkvæmdarstjórninni eru
18 menn, 8 frá hverri pessari deild land-
sins : Norðvestur Ontario : G. T. Marks,
G. A. Graham og Geo. Drewry; Manitoba:
A. J. Andrews, Thos. Gilroy og James
Elder ; Assiniboia : J. Ross, J. Neff og
S. E. Elkington; Saskatchewan: Thos.
McKay, J.R. McPhail og J. E. Young;
Alberta: C. A. McGrath, Thos. Stone
og Isaac Cowie; British Columbia; A.
C. Flummerfelt, Prof. E. Odlum, C. H.
Semlin.—Er ætlast til að allsherjar
fundur sé haldinn á hverju ári og á þessi
18 manna nefnd að ráða hverjir eigi
sæti á ársfundi og hvað margir. For-
seti var kjörinn Thos. Gilroy, varafor-
seti A. J. Andrews, ritari F. W.
Huebach.
LAUNA-BÆSTUIi
maður í þjónustu Bretastjórnar er jarl-
inn, sem settur er til stjórna á írlandi.
Árslaun hans eru 100,000 dollars.
BUCKLENS ARNICA SALVE.
Bezta smyrsl sem til er við skýrðum,
mari, sárum, kýlum, útbrotum, bólgu-
sárum, frostbólgu, líkþornum, og öll-
um sjúkdómum á hörundinu. Læknar
gylliniæð, að öðrum kosti ekki krafist
borgunar. Vér ábyrgjumst að þetta
meðal dugar í öllum þeim tilfellum sem
talin hafa verið, ef ekki borgum vér pen
ingana tii baka.—Askjan kostar 25 cts.
Fæst í öllum lyfjabúðum.
Nýjar tdrnbrautir. Járnbraut frá
Portage La Prairie norðvestur í Daup-
hin hórað kemst að vændum á komandi
sumar, og bætast þar 125 mílur í járn-
brautasafn fylkisins. Að minsta kosti
verður það ekki skuld fylkisstjórnarinn-
ar, ef sú braut vei'ður ekki bygð nú
bráðlega. Það er svo gottsem samþykt
á fylkisbingi að ábyigjast 4% vöxtu af
$8000 á hverja mílu af ofangreindri
braut um 30 ár og ábyrgjast einnig e.nd-
urgjald höfuðstólsins ($8000 á míluna,
eða $1 milj. alls) að 30 árum liðnum.—
Jafnframt kemur sú fregn frá Duluth,
að þar sé félag, sem vilji og hafi þegar
ákvarðað að byggja járnbraut til Win-
nipeg, er verði réttar 330 mílur á lengd
milli bæjanna, og að fyrirætlunin sé
einnig að hyggja 125 mílur vestur Jfyrir
Winnipeg. Fylgir það sögunni að fé-
lagið eigi víst að Manitoba-stjórnin á-
byrgist vöxtu af $5 milj. Stjórnarsinn-
arhér segjast ckkert vita um þetta mál.
D, W. Bole segir eflaust að þetta félag
vilji ná hingað og að sú braut mundi
þýðarmikil; hún mundi ieggjast fram
með Skógavatr.i að sunnan og í staðinn
fyrir styrk Manitobastjórnar mundi
það leyfa Greenway að ákveða flutnings
gjald á hveiti til Duluth. — f þessu sam
bandi má og geta þess að Rockwood-
sveitarmenn vilja fá C. P. R. brautina
frá Stonewall lengda norður um héraðið
til Foxton, eða brautina frá Selkirk
lengda vestur þangað. Hefir nefnd
manna með S. J. Jackson í broddi fylk-
ingar flutt þetta mál við fylkisstjórn-
ina. — Foxton er rúmar 20 mílur suð-
vestur frá Gimli.
Alt-læknandi meðal.
James L. Francis, bæjarráðsmaður
í Chicago, segir: “Eg álit Dr. Kings
New Discovery óbrigðult meðal við
hósta, kvefi, og lungnaveiki þar eð ég
hefi brúkað það á heimili mínu í næst-
liðin fimm ár, og aldrei þurft á lækni að
halda.”
Séra John Burgus, Keokuk, Iowa
skrifar : "Eg hefi verið prestur f bysk-
upakyrkjunnt í 50 ár eða meira, og hefi
ég aldrei haft neitt meðal sem hefir h#ft
jafngóð áhrif á mig og bætt mér eins
fljótfc eins og Dr. Kings New Diseovery.’
Reynið þetta frábæra hóstaineðalþegar,
Flaska til reynslu ókeypis í öllum lyfja-
búðum.
Tíðin hefir verið köld síðan á fimtu-
daginn var, þó enginn grimdarfrost.
Nú þegar blaðið fer tilprentunar er veð-
ur stillilegt, frosthægt og vindblær á
suðaustan.
“ Andbýlingarnir,” hið ágætaleikrit
eftir Hostrup, sem leikfélagið íslenzka
hefir verið að æfa um undanfarinn tíma,
verður leikið í fyrsta skifti fyrir Winni-
peg-fslendingum á fimmtudagskvöldið
kemur (12. Marz). Vér höfum séð part
af einni æfingu og höfum í hasti hlaupið
yfir ritið. Eftir því að dæma má það
mikið vera, ef “Andbýlingarnir” náekki
sömu alþýðuhyllinni og " æfintýrið ”
hefir. Efnið í þessum leik er miklu
meira og enda fjölbreyttara. Án þess
að vilja draga upp tjaldið fyrri en tími
er til kominn, leyfum vér oss að geta
þess, að í leiknum er t. d. ósýnilegur
maður—ekki ósýnilegur áhorfendunum,
heldur leikendunum. Hvað sá piltur
með hulinhjálmssteininn, eða öllu held-
ur skóna, að hefst, það sjámenn á fimtu-
dágskvöldið kemur, í Unity Hall. Sjá
auglýsingu á öðrum stað í blaðinu.
eftir
C. H05TRUP
verða leiknir í
UNITY HALL
(Cor. Pacific Ave. & Nena Str.)
Fimtudaginn 12. Marz
Langardaginn 14. Marz
Þriðjudaginn 17. Marz
næstkomandi.
Inngöngumiðar verða til sölu frá því
á mánudaginn þann 9. Marz hjá Mr.
G. P. Thordarson á
5candinavian Bakery
(587 Ross Ave.)
og kosta 35c. fyrir fullorðna og
20c. fyrir börn innan 12 ára.
Leikurinn þyrjar hvert kveldið kl. 8
og sökum þess að hann er töluvert
langur er mjög áríðandi að allir verði
komnir fyrir þann tlma.
Iiæða
(Niðurlag frá 1. bls.)
að setja til siðu hérlenda menntun, nei,
enganveginn, þar eru þeir meðal þeirra
fremstu. Þeir hafa getað sameinað
hvorttveggja og [sýnast þó líklegir til
að verða þjóð sinni til gagns og sóma,
ef þeim endist aldur tfl. Vér getum
nefnt nokkra, ef vér kærðum oss um
það. Líklega kemur þó engum til hug-
ar, að andm. því, að sá maður eigi meiri
andiega auðlegð, sé stórum mentaðri
maður, sem kann tvö eða fleiri tungu-
mál og þekkir bókmenntir fleiri þjóa.
heldur en sá, sem að eins kann máské
laklega eitt tungumál, og það er torvelt
fyrir heilbrigða skynsemi, að hugsa sér
að fjölhæf mctun hefti viðgang og fram-
för nokkurs manns. Eða hvernig í
herrans ósköpunum skyldi nokkur maö-
ur geta misunt sjálfuin sér eða þjóð
sinni þeirrar menningar, sem fjölhæf
menntun framleiðir. Hvernig skyldi
nokkur maður geta lítilsvirt jillan þann
andlega unað, allan þann styrkleik og
starfsemi, er þroski sannrar og fjöl-
breyttrar menntunar hefir í för með sér.
Nei, kæru landar! Það er ekki
þjóðerni vort, inóðurmál né bókmenntir
sem hefta framfarir vorar, það er eitt
af því, sem seint verður rökstutt. Þótt
fjöldi Vestur-íslendinga hafi því miðnr
farið varhluta af hérlendri menntun,
þótt of margir af oss hinum eldri hafi
farið á mis við náifl enskrar tungu, þá
sannar það ekki hið allra minsta í þá
Kartöflur til sölu.
F.g hcfi á boðstólum 1600 bushel af á-
gætum kartöflum, sem ég sel við mjög
vægu verði fyrir peninga út í hönd. —
Komið og kaupið af mér áður en verðið
hækkar, þess verður ekki langt að bíða.
Th. Goodman,
Cor. Nellie Ave. & Simcoe St.
ISnfL'Arhf* F;ice*Acbc« Bdatic \
PttlnK* \'cu;-al.':íc i'aliii, ú
l'iiin in (hc Kific, etc. 4)
Proaoptly Rellcvcd an«l Curod by ^
; The fií Ð. & L” $
lenthoi Piaster |
—/— ÉllzoIiðlÍlWwll. ölit. V
il'rlfe 2.%c. r
Á DAVIS i; I.AWRENCE CO., Ltd. <?'
Á Proprietors, Momtkeal. 0
>nd
átt, að íslenzkan hafi staðið eða standi
oss í vegi fyrir þeim lærdómi. Að voru
áliti liggja til þess alt aðrar orsakir, sem
hver heilvita maður getur séð. Fátækt
og örðugar kringumstæður eru það,
sem sérstaklega hafa sett stólinn fyrir
dyrnar. Félausir fjölskyldumenn hafa
sannarlega haft annað að hugsa um, en
ganga á menntaskóla þegar hingað var
komið. Þeir hafa orðið að vinna baki
brotnu til að bjarga fjölskyldum sínum
frá volæði og vergangi; svo hefir fjöld-
inn verið orðinn illa meðtækilegur fyrir
hóknámsæfingar, sökum aldurs og
hnignunar. En svo er og vert að geta
þess, að helzt til margir hafa verið um
of skeytingarlausir að afla sér nauðsyn-
legrar þekkingar. Væri það svo í raun
og veru, að þjóðerni og bókmentir ís-
lenzkrar tungu stæðu Vestur-íslending-
um fyrir þrifum á veginum til vegs og
hamingju, ef þetta hægði þeim'frá að
nema enskar bókmentir og rýrði þýð-
ing þeirra í mannfélaginu, þá væri alt
öðru máli að gegna, þá væri ekki um
um annað að gera, en setja það sem fljót
ast til síðu. Það dettur að sjálfsögðu
engum skynsömum Vestur-íslending í
liug, að íslenzkan og bókmentir hennar
skuli sitja í fyrirrúmi innlendri mennt-
un. Enskan er og hlýtur að verða
landsinálið, og öll hin uppvaxandi kyn.
slóð, hverrar þjóðar sem er, hlytur skil-
yrðislaust að nema hana og bókmentir
hennar, þann lærdóm má ekki undir
höfuð leggja, án hans getur hin yngri
kynslóð aldrei þrifist, aldrei orðið að
nýtri þjóð í þessu landi.
Hvernig Vestur-íslendingar geti
lagt svo trausta undirstöðu fyrir við-
hald móðurmálsins, að þeir með rök-
studdri vissu geti vænzt þess, að það
verði ivaranleg eign afkomenda sinna
um ókominn árhundruð, er ekki auð-
velt að segja, en víst er um það, að því
seinna sem farið verður að stíga sporið
í þá áttina, því torveldara verður það.
Til þess sýnist íslenzkur skóli stærsta
skilyrðið, þar sem kent væri málið og
ágrip af bókmentasögu íslands með
fleiru. Svo ættu foreldrar og aðstand-
ur hinnar yngri kynslóðar að láta sér
ant um að kenna henni á heimilunum
daglegt íslenzkt mál, svo hreint og ó*
blandað sem kostur væri á, kenna henni
að lesa bóhmálið og stafsetja, eftir því
sem hver einn væri fær um. Þettí* sýn-
ast að vera helztu hjálparmeðulin, ef
mögulegt væri að hafa þau.
Hvað um íslenzkuna verður í fram-
tíðinni hér í Ameríku er á einskis færi
að segja; það er að eins ókomna tímans
að leysa þá ráðgátu. En eitt er víst, að
langt verður þess að bíða, að andmæl-
endur hennar fái meðöllu útrýmt henni
Þaðer vonandi, eins og það er líka ósk
vor, að vort ústkæra fagra móðurmál
eigi meðal Vestur-íslendinga marga
sanna vini, er séu þess um komnir, að
bjarga því frá eyðileggingu. Vér treyst-
um því, að ætíð finnist þeir meðal vor,
sem hlúi að því, vinni að því seint og
sneminameð dúð og drengskap, að það
lifi í bókmentum vorum þjóð vorri til
vegs og heiðurs, og oss Vestur-íslend-
ingum til ævarandi endurminningar um
vora ástkæru fósturjörðu—ísland.
JÓN'AS J. Hnxi ORD.
Paines Celery Compound er
bjargvættur kvenfólksins
á vorin.
Hefir mörg medmæli.
LÆKNAR ÞEGAR ALT ANNAÐ
ANNAÐ BREGST.
I\Icira en hálf miljón manna í
Canada brúka það.
Aldrei hefir nokkurt mcðal í heimi
komistí jafn mikið álit og Paines Celery
Compound. Það or viðurkent alstaðar
af því það læknar fólk.
Paines Celery Compound er þekt
sem bjargvættur kvenfólksins. Þegar
veðráttan með vorinu fer að verða marg-
breytileg, sannast þnð, að Paines Celery
Compound er meðalið, sem kvenfólkið
ætti að brúka til þess að halda lieilsunni
{ góðu lagi. Það heldur líffærunum i
reglu, svo að veðráttubreytingin hefir
engin skeminandi áhtif. Það styrkir
taugarnar og heldur blóðinu hreinu. Við
máttleysi. taugaveiklan, gigt, melting-
arleysi, höfuðverk og taugagigt á þetta
makalausa meðal, sem Dr. Plielps fann
upp, engan jafningja. Það læknar ætíð
þótt önnur meðöl reynist gagnslaus, og
nú er Paines Ceiery Compound einmitt
meðalið, sem hálf miljón manna í Can-
ada hefir valið sér sem iiúslyf.
Miss Bridge frá Montreal segir : ‘Eg
álít það bæði ánægjulegt og gagnlegt, að
skýra frá því hvernig Paities Celery
Compound hefir reynst, mér. fCg þjáð-
ist í inörg Ar af meltingarleysi, höfuð-
york, þrautum í bakinu og taugaóstyrk.
Fg brúkaði mörg patent meðul án þess
mór batnaði þó nokkvð. Einnig var ég
st.unduð af mjög góðum lækni, en það
dugði ekkert.
Fg sá auglýsingu" um Paines Celery
Compound og korn þegar í hug að reyna
það. Eftir að fyrsta flaskan var buin,
fann ég svo inikinn mun A mér. að ég
hélt Afram að brúka alls flösknr. og
var ég þá albata orðin. Fg hefl brúkað
það utn títna og get með sanui sagt að
veikindi mín eru nú alveg horfin.
Fg mæli því með. að allir, sein ern
veikir á samu hátt og ég var, brúki
Paines Celery Compound.
Tapaði heimili sínu.
LÍFSREYNSLA Mr. ELWOOD FRÁ
SIMCOE.
Fékk taugagigt í útlimina svo hann gat
enga björg sér veitt. Eyddi al-
eigu sinni í meðul og lækna, án
þess honumbatnaði. Dr.Williams
Pink Pills læknuðu hann eftir að
önnur meðöl höfðu reynzt, ónýt.
Tekið eftir Simcoe Reformer.
Það er svo oft búið að geta um hina
miklu blessun, sem hlotizt hefir af því
að brúka Dr. Williams Pink Pills for
Pale People, að nytsemi þeirra er flest-
um kunnug i Norfollt County og grend-
inni, og flestir viðurkenna nú að þær
hafl gefið mörgum vondaufum von og
veikum mátt, enda lofa flestir þær. Hér
birtist saga eins af íbúum Simce, og
segir liún frá hvernig hanu náði heilsu
fyrir verkanir þessara pilla. Mr. Wm.
Elwood trésmiður, sem í tvö ár hefir
búið í Simcoe og átti lengi [heima í Fort
Erie, lofar mjög Pink Pills fyrir hvað
þær hafi reynzt sér vel. Mr. Elwood
skýrði blaðinu Reformer frá þvi, að
fyrir' átta árum hefði hann fengið mjög
ákaft kvef í höfuðið. Afleiðingin varð
sú að hann varð að hætta vinnu og hef-
ir síðan ekki getað snert á verki.
Nokkru eftir að hann fékk þessa veiki
fór hann að finna til taugagigtar f út-
limunum, sem alt af fór í vöxt. Meðan
á sjúkdóminum stóð var hann stundað-
ur af hinum heztu læknum, sem völ var
á bæði frá Toronto og Buffalo, en það
dugði ekki.
Oat ekki fœrt mig úr stað.
Stundum varð hann svo slæmur að
hann lág við að missa og varð stundum
að halda honum í rúminu. Meltingar-
færin voru í mjög vondu lagi og yfir
höfuð var allur líkaminn úr lagi geng-
inn. Fyrir hér um bil ári síðan varð
hann svo veikur í vinstra fætinum, að
hann gat ekki gengið um húsið. Einu
sinni átti Mr. Elwood fallegt og hent-
ugtheimili. En veikindi hans voru svo
langvarandí og svo mikill kostnaður
leiddi af þeim, að .hann var húinn að
eyða öllum ieigum sínum föstuin og
lausum áður en honum batnaði. Síðast
liðið haust fór Mr. Elwood að brúka
pillurnar og fann að litlum tíma liðnum
hata. Hann hélt áfram með pillurnar
þangað til hann var búinn með þrettán
öskjur. Var hann þá orðinn góður i
fótunum og hélt að sér væri albatnað.
svo hann hætti að brúka þær. Það
reyndist samt svo lað veikindin voru
búin að draga svo úr honum að hann
hafði ekki getað náð sér alveg á svona
svona stuttúin tíma. og litlu eftir að
hann hætti við pillurnar fókk hann aft-
ur sömu veikina, þó hún væri ekki eins
vond eins og áður. Mr. Elwood fór
þegar að brúLa pillurnar aftur og er nú
á góðum batavegi, og hefir góða von um
að sór takizt alveg að uppræta gigtina
moð þeim. Hann er svo glaður yfir
því hve vel honum hefir batnað af pill-
unum, að hanri gaf blaðinu Reformer
þetta vottorð sitt með mestu ánægju, í
því trausti að það kynni að koma ein-
hverjum að haldi, sem líkt stæði á fyrir.
Dr. Williams Pink Pills upprreta
sjúkdómana og gera sjúklingana
firausta oj; heilbrigða. Vfð limafalls-
sýki, mænuveiki, riðu, mjaðmagigt,
gigt, heimakomu, kirtlaveíki, eru þær
öllum öðrum meðölum betri. Þær eru
einnig óyggjandi við sjúkdómum sem
eru einkennilegir fyrir kverinfólk, og
gera útlitið hraustlegt og líkarnann lieil
brigðann. Þeir sem hafa þrej'tt sig um
of á andlegri eða likamlegri vinnu ættu
einnig að brúka Pink Pills. Þær eru
seldar í öllum lyfjabúðum og sendar
með pósti fyrir 50 cents askjan, eða 6
öskjur fyrir $2,50 frá Dr. Williams Me-
dicine Company, Brockville, Ont., eða
Schenectady, N. Y. Varið yður á eftir-
stælingum, sem sagðar eru “alvreg eins
góðar”.
Pocitively Cures
COUGHS and COLDS
i-i rv surprisinnly sliort lime. It’s a sci-
eatiíio ccrtair.ty, tried and true, soothing
Liid healing in its effects.
W. C. McComber & Son,
Bouchette, Que.,
t in a Mfpr that Pyny-Poctoral cmed IMrs.
ici '.iii < f < hronicoold in chest nnd hronchial
. i! .i«l h",..o cuícJ \t". G. AicComber of a
§
L.;
y
M::. J. II. IIutty, Chenist,
52.'i Yonge St., Torontc, v?rites: |
" A* a gvj.fiial ctui"ii anó. lun>r íyrup Pyny-
rectoMl íb :v m<'3t invuliiHiiIo pn-parallon. lt
).:is {.'iven tho utmost íuthn'actlon to all v.'ho
):.'Vo 11 i• *< it, nianr liaving sj.ok'n to me of tlio ,
L iK-ku d'ú ived frora its nso in thoir ÍHinilies.
Jr i:: Ko'.tAble for oid or younvr, b< irur plfisnanh to
tlio : líto. ]fn nnle with me hiu bern wondorful,
ini-I t . ,m p.)••• avi rrcoir.mead it sa a sufo aa<l
j clLibio congU medicine. ‘‘
Liil'tTC Eeítlc, 25 Cts.
DAVIC & T.AWREKCE CO., Ltd.
SoL: Proprietors
Montkeal
ÍSLF.NZKR LÆKNIR
DR. M. HALLDORSSON,
Park liiver — N. Dak.
Stórbreyting á
munntóbaki.
TUCKETT'S
T & B
Mahog*any.
er hið nýjasta og bezta.
Gáið að því að T. A B. tinmerk
sé á plötunni.
Tilbúið af
Thb Geo. E. Tuckbtt & Son Co., Ltd.
HAMILTON, ONT.
Allir á siglingu til beztu
Skraddarabúðarinnar
PEACE & CO.
5<»6 JUain Str.
horninu á Paciflc Ave.
eins og þcr segið fyrir.
Peace & Co.
566 Main Str.
and
Shorthand Institute
Ef þú þarft tilsögn í:
LESTRI,
SKRIFT,
STÖFUN,
REIKNINGI,
BÓKHALDI.
VER^LUNAR-LÖGUM
BREFA SKRIFTUM,
HRAÐRITUN,
TYPEWRITING,
þá farðu á dag eða kvöldskólann að
482 Main Street.
C. A. Fleming G. W. Donalb
President. Secretary.
Fer frá greiðasöluhúsinu að 605
Ross Ave., Winnipeg á hádegi á mánu-
dögum og frá Selkirk á þriðjudags-
morgna kl. 7.
Fargjaldið :
Selkirk til Gimli 50 cts.
Selkirk til Icel. River $1.50
Luktur sleði með ofni í fyrir far-
þegjana. Bezti sleðinn á brautinni !
Hra. Helgi Sturlögsson er ökumað-
rinn.
Always on time !
S. Mi
Contractor.
POPULAR MA6AZINES
FOH THE N0IE.
FRAWK LESLÍE’S
p
OPULAR
MONTHLY
Contalns each Month : Original Water Color 1
Frontlspiece ; 128 Quarto Pages of Reading S
Matter; 100 New and High-class Bllustru- )
tions; Moro Literary Matter and llliistru- )
tlons than any other Magazine in America.
25 cts.; $3 a Ycar.
Frank Leslie’s Pleasant Hcurs
FOR BOYS AND CGRLS.
A Bright, Wholesome, Juvenile Monthly.
Fully illustrated. Tho best writers for young
people contributo to it. 10 cts.; $1 a year.
SEHD ALL SUBSCRIPTIOIÍS T0
'he Hcimfkringla Prlg. & Publ. Co.
’ou want to get Fr.ank Leslie’s
’opular Monthly and the Heims-
ringla ono year for $4.25
Undoubtcdiy the Bsst G!ub Oífers
œr Send to Frank Lrtslie's P'ubttn 11in't TTonse, W.Y., )
for New ÍUust rated Prem i um Liat, Free. }
i