Heimskringla - 09.07.1896, Blaðsíða 4
HEIMSKRINGLA 9. JÚLÍ 1896.
Winnipeg.
Harry Johnson frá Glasston, N.
Dak., hefir dvalið hér í bænum um hálfs
mánaðartíma.
Hra J. W. Finney hrá sér til Da-
kota á föstudaginn var, til að taka þátt
í þjóðhátíðar skemtuninni að Gardar.
Hra S. S. Hofteig, frá Minnesota,
heilsaði upp á oss á fimtudaginn var.
Var þá á suðurleið til Dakota og þaðan
heim.
Herra Hoseas Þorláksson, kyrkju-
þingsfulltrúi úr Minnesota, hefir dvalið
hér í bænum síðan hann kom af kyrkju-
þinginu. Fór heimleiðis á þriðjudag-
inn.
Hra. Sigurður Erlendsson, bóndi í
Mikley, faðir þeirra kaupmannanna
Stepháns og Jóhannesar Sigurðssona að
Hnausnm, kom til bæjarins snögga ferð
á fimtudaginn var.
Ung kona, ný komin til bæjarins,
rej-ndi að drekkja sér í Rauðá á fimtu-
dagskvöldið. Ætlaði að stökkva af
Broadwaybrúnni, en • brúarvörðurinn
náði henni. Nafn hennar er ekki birt.
Stovels Pocket Directory fyrir Júlí
er útkomið og hefir að venju sinn fulia
skerf af öllum mögulegum fróðleik á-
hrærandi ferðaáætlanir gufuskipa vagn-
lesta, póstvagna, skemtistaði í bænum
og umhverfis hann, leynifélög i bænum
og hvenar þau hafa fundi sína og hvar
m, m. o. fl. Kostar bara 5 cent ein-
takið. Fæst hjá öllum bóksölum og á
öllum vagnlestum í Manitoba.
Á mánudaginn 29. f. m. hvarf lög-
maður J. A. Ross, bróðir A. W. Ross
fyrv. þingm., hér úr bænum og datt
mönnum í hug að hann hefði fyrirfarið
sér. Hafði um kvöldið sézt á Broad-
way-brúnni yfir Rauðá. Tilgátan
reyndist og rétt, því á miðvikudaginn
1. Júli fannst lík hans fljótandi í ánni
skamt fyrir neðan Louise-brúna. Mað-
urinn var ákaflega drykkfeldur og hefir
að líkindum í brennivínsæði steypt sér
í ána.
Minnesota-menn á síðasta (12)
kyrkjuþingi voru, auk séra B. B. Jóns-
sonar: S. S. Hofteig, S. Th. Westdal,
P. V. Pétursson, Hósías Thorlacksson.
Að undanteknum séra B. B. Jónsson og
Hós. Thorlacksson, sem dvöldu hér í
bænum fram yfir helgina, fóru þeir allir
af stað heimleiðis á miðvikudag og
fimtudag (1. og 2. Júlí), en ætluðu víst
flestir að koma við í Dakota-bygð ís-
lendinga. — Næsta kirkjuþing verður
haldið i Minnesota-nýlendunni.
Skóla-fríið alþýðusólanemendanna
byrjaði að venju 1. þ. m. og varir til 1.
Sept. næstk. Það er ekki auðgert að
þekkja íslendinga af nöfnunum í blöð-
unum, en eftir því er vér komumst
næst hafa 101 islenzkir nemendur þok-
ast “skör hærra”, við prófið dagana
næstu á undan skólalokum. Af þeim
voru að eins 2 í Collegiate-skólanum.
Hinir 99 voru í “common”-skólunum og
færðust þannig: Úrl.í2. bekk 21; úr
2. í 3. bekk 18; úr 3. í 4. bekk 10; úr 4.
í 5. bekk 14; úr 5. í 6. bekk 19; úr 6. í 7.
bekk 8; úr 7. í 8. bekk 9. Sem sagt, má
vera að hér séu taldir miklu fleiri eða
færri islenzkir nemendur, en rétt er,
bæði í commonskólunum og i “Colle-
giate Institute”, en nær en þetta verð-
ur ekki komist nema maður þekki nem-
endurna persónulega.
HJARTVEIKI LÆKNUÐ Á 30
minútum. — Dr. Agnews hjartveikis lyf
lækna í öllum tilfellum hjartyeiki á 30
minútum svo að sjúklingurinn fær al-
gjörðan bata. Það er óviðjafnanlegt
meðal við hjartslætti, andarteþpu og
andarteppuflogum, við sting í vinstri
siðunni og öllum einkennum að hjartað
sé sjúkt. Ein inntaka mun sannfæra
yður.
Hra. J. :P. Sólmundsson á Gimli
kom til bæjarins á laugarda ginn og
dvaldi til þriðjudags.
Safnaðarfundur í Tjaldbúðinni á
miðvikudagskvöldið kemur (15. Júli).
Safnaðarlimir eru beðnir að mæta á
fundinum.
Á laugardaginn 4. Júlí voru Mr.
John Stevens og Mrs. Josie Anderson
gefin saman i hjónaband af séra Haf-
steini Péturssyni i Tjaldbúðinni.
Sveitarráðsmennirnir í Gimlisveit :
Jóhann Straumfjörð í Engey og Pétur
Bjarnason, póstmeistari að Isafold P.O.
komu til bæjarins á þriðjudagskvöldið.
Herra S. B. Benediktsson kom til
bæjarins vestan úr Melíta-nýlendu á
sunnudaginn var og dvelur hér fyrst
um sinn. Kona haus er væntanleg
þessa dagana að vestan.
Það hefir heyrst að þeir Dr. Valtýr
Guðmundsson og Þorst. skáld Erlings-
son sóu væntanlegir til bæjarins núna
um miðjan þennan mánuð, á ferð vest-
ur til Argyle-bygðar á fund móður og
systkina Dr. Valtýrs.
Skemtanir eru nægar í bænum um
þessar mundir. Söngleikaflokkur í
Fort Garry Park, skrípaleikaflokkur í
RirerPark, dýiasýning og íþróttaleik-
ír (Circus) i dag, á horninu á Main Str.
og Broadway, og önnur samskonar
sýning á fimtudag og föstudag í næstu
viku.
Hr. St. J. Scheving hefir opnað
rakarastofu hér í bænum, — á sínum
gamla stað, rétt fyrir norðan Pacific
Ave., við Main Str. austanvert. Hann
býst við að geta veitt gestum móttöku
á morgun (föstudag), sjálfsagt á laugar-
dag. Númerið yfir dyrunum er 581,
Main St., rétt fyrir norðan Pacific Ave.
íslendingadagsnefnd. Almennur
fundur var hafður í North West Hall á
laugardagskvöldið var. Af því dynj-
andi rigning skall á stuttu áður en
fundur skyldi byrja var hann ekki eins
fjölmennur og ella hefði orðið. Raddir
komu í fram gegn því að hátiðin yrði
haldin 2. Ágúst, en af því óhugsandi
var að taka nokkurn annan dag núna í
augnabliki, er allir gætu sætt sig við,
var afráðið aðhalda við 2. Ágúst í þetta
skifti, eða öllu heldur 3. Ágúst i ár, af
því 2. Ágúst ber upp á sunnudag. í
forstöðunefnd vo’ru kosnir: Eirikur
Gíslason, B. L. Baldvinson, Kr. Stef-
ánsson, E. Ólafsson, Mrs. Benson, Sig-
fús Anderson, Bjarni Johnson, Kr, Ól-
afsson, Magnús Pétursson.
Hra Sigurbjörn Guðmundsson,
bóndi í Garðar-bygðinni í Dakota, heils-
aði upp á oss áfimtud. Kom þá vest-
an úr Argyle-bygð, af kirkjuþinginu;
var þar einn af kyrkjuþingsmönnum
að sunnan. Þinginu var slitið á mánu-
dagskvöld og fóru þá sumir Dakota-
mennimir beinaleið suður þaðan, á
hestavögnum, meðal þeirra séra Jónas
A. Sigurðson og hra P. S. Bardal. —
Það nýmæli kom fyrir á kirkjuþinginu,
að þangað var sendur maður frá Crystal
í North Dak., sem í umboði bæjar-
manna bauð að gefa hinum íslenzka
æðriskóla 6 ekrur af landi og $2,000 í
peningum, ef hann yrði stofnsettur í
Crystal. — Skólamálið var ekki leitt til
lykta á kyrkjuþinginu og ekki heldur
málið um inngöngu kirkjufélagsins í
General ConcU, lútersku kirkjunnar í
Norður-Ameríku. Til þess að fá því
framkomið þurfti að breyta grundvall-
arlögum kyrkjufélagsins, en það getur
ekki orðið fyrr en á næsta kirkjuþingi.
Allir kaupendur Þjóðólfs sem ekki
hafa þegar borgað þennan yfir-
standandi árgang, eru beðnir að borga
hann til undirskrifaðs fyrir lok þessa
mánaðar.
Winnipeg, 2. Júli, 1896.
JÓNAS J. DANIELSSON,
120 Lydia Str.
Pen inga=sparnad ur.
Fyrir kvenfolk
Fallegir Tan Juliet skór, búnir til af J. D. King, Toronto.
Þessir skór eru mjög fallegir, með stórum hnöppum ; hafa
verið seldir $3.50 ; fást nú fyrir $2.95. Handsaumaðir Ox-
ford skór $1.00. Góðir reimaðir ylskór á 75 cents.
Fyrir karlmenn.
Góðir, sterkir verkaskór á 90c. “Black Butcher”-skór á $1.00
og fínir skór með lágu verði. Skoðið hjá oss Kin svokölluðu
Chicago-stígvól á $2.50.
Fyrir Drengi.
Hér gefur á að lita : Drengjastígvél, stærðin 1—5, $1.00, og
11—13, fyrir 90 cents. Bamaskór, stærðin 2—7, 25 cts. og
8—10, 40 cents.
E.Knight & Co.
351 flain Str. Andspænis Portage Ave.
0LD G0LD
Yirgina Flake Cnt
Reyktobak
W. S. KIMBALL & CO.
Rochester, N.Y., U.S.A.
17 Hæstu verðlaun.
Morð og siálfsmorð. Jafn hrikalegt
morðæði hefir ekki oft.—líklega aldrei
fyrri—sézt í Manitoba, eins og það sem
átti sér stað hér í bænum aðfaranótt
hins 2. þ. m. Maður að nafni William
Warren bjó með konu sinni og yngsta
syni þeirra hjóna, að 284 Gunnel Str.
Kom þeim illa saman hjónunum, en
sem eingöngu var manninum að kenna,
og hafði hann oftar en einusinni hótað
að drepa konu sína. Þjóðhátíðardag-
inn hafði Warren farið í skemtiferð til
Rat Portage, ásamt svo mörgum öðr-
um og kom heim kl. 1 um nóttina, og
þá nokkuð ölvaður. Lét hann þá ófrið-
lega er heim kom, en stilti eig þó eftir
litla stund og lofaði að vera rólegur.
í húsinu hjá þeim hjónunum bjuggu 2
menn, er sváfu í herbergi út frá borð-
stofunni. Um morguninn milli 5 og 6
vöknuðu þeir við vein og ryskingar.
Stukku þeir þá á fætur og litu út i
borðstofuna og sáu þá hvar Mrs. Wa-
renláá gólfinu meðhöfuðið nærri hrein-
skorið frá bolnum og með marga stóra
skurði á andlitinu og höfðinu. Jafn-
framt sáu þeir þá hvar Warren sjálfur
lá í framstofunni einnig skorinn á háls,
og braust þar um í blóði sinu. Blóð-
slóðin sýndi að eftir að hafa drepið kon-
una hefði hann gengið inn í svefnher-
bergi þeirra hjóna, því þaðan flúði kon-
an, og skorið sig á háls frammi fyrir
kommóðuspeglinum, lagt þar frá sér
skegghnífinn, gengið inn i borðstofuna
og þaðan aftur fram i stofuna og hnig-
ið þar niður. Læknir var fenginn og
kom hann innan hálfrar Jdukkustundar
og var Warren þá ekki dauður, en dó
rétt eftir að hann hafði skorað á lækn-
irinn að dýpka skurðinn á hálsi sinum.
Það voru hans síðustu orð.
Hyggindi! Styrkur! Fegurð!
Hin aðgætna og sparsama húsmóð-
ir sýnir hyggni sína í því að velja sér
Diamond Dye til að lita með. Reynslan
kemur henni til að brúka Diamond
Dye. af því þeir eru sterkir litír, sem
ekki láta sig. Með einum pakka af
þeim má lita eins mikið eins og tveim-
ur pökkum af lakari litartegundum.
Eitt aðal einkenni Diamond-litanna er
fegurðþeirra. Litblærinn er hreinnxig
endingargóður. Varist vandlega eftir-
stælingar. og ónýtar litartegundir.
HAY FEVER OG KVEF LÆKN-
ast á 10—60 mínútum. — Menn þurfa
að eins einu sinni að draga að sér and-
ann um blásturspíþuna úr flösku með
Dr- Agnews Catarrhal Powder, þá dreif
ist duft þetta um slímhúðina í öllum
nasaholunum. Þáð veldur engum sárs-
auka, en er mjög þægilegt. Það linar
veikina undir eins, og læknar að fullu
og öllu kvef, Hay Fever, köldu, höfuð-
veiki, sárindi í hálsinum, sárindi í tung-
urótunum og heyrnarleysi.
Mikilsverð forskrift.
Morrison ritstjóri “Sun” Worthing-
ton Ind. skrifar : “Electric Bitters er
gott meðal. og ég get með ánægju mælt
með því. Það læknar óhægðir og höf-
uðverk, og kemur líffærunum i rétt lag.”
Mrs. Annie Stehle 2625 Cottage Grove
Ave. Chicago var orðin mjög af sér
gengin, gat ekki borðað eða meít nokk-
urn mat og hafði slæman höfuðverk,
sem aldrei linaðist, en sex flöskur af El-
ectric Bitters læknuðu hana algerlega.
Verð 50c. og $1.00. Fæst í öllum lyfja-
búðum.
| BRISTOI.'S 1
| BRISTOL’S !
[ BRISTOL’S
SarsaparíHa ond cSou»°AHd PILI.S
The Greatest of all Liver,
Stomach and Biood Medicines.
A SPBCIFIC FOn
Rheur.iatism, Oout and
Chronic Compíaints.
They Cleanse nnd Pcrify the
Biood.
All Druggl'sts iirtil
Ccncral Dealers.
Alt-læknandi meðal.
James L. Francis, bæjarráðsmaður
í Chicago, segir: “Eg álit Dr. Kings
New Discovery óbrigðult meðal við
hósta, kvefi, og lungnaveiki þar eð ég
hefi brúkað það á heimili mínu í næst-
liðin fimm ár, og aldrei þurft á lækni að
halda.”
Séra John Burgus, Keokuk, Iowa
skrifar : “Eg hefi verið prestur í bysk-
upakyrkjunni í 50 ár eða meira, og hefi
ég aldrei haft neitt meðal sem hefir haft
jafngóð áhrif á mig og bætt mér eins
fljótt eins og Dr. Kings New Discovery.’
Reynið þetta frábæra hóstameðalþegar
Flaska til reynslu ókeypis í öllum lyfja-
búðum.
Veikur af gigt.
ARANGURSLAUSAR LÆKNINGA-
TILRAUNIR.
Það er til eitt meðal, sem hefir læknað
þúsundir manns eftir að önnur
meðöl hafa brugðizt. Einn af
hinum læknuðu gefur vitnisburð.
Tekið eftir Trenton Courier.
Það er furða hve litla eftirtekt nafnið
gigt vekur hjá fjölda manns, og þó
er hún ein hin versta sýki fyrir þá sem
hafa liana. Læknum ber saman um,
að gigt komi af vonzku, sem safnast i
blóðinu, en um það hvernig þessu ó-
heilnæmi verður náð oglosað úr líkam-
anum ber þeim ekki saman. Hin vana-
lega aðferð er langvarandi meðalabrúk-
un. sem linar þrautirnar á meðan þeim
er beitt, en svo sækir vanalega í sama
horfið aftur, og á endanum rekur að
því að sjúklingurinn fær þá skoðun, að
hann sé ólæknandi, og leggur svo árar
íbát. Þelta er röng skoðun. Gigt er
ekki að sjálfsögðu samfara ellinni, og
engum ætti að detta í hug að hann ætti
endilega að bera sína gigtarbyrði eins
og hverja aðra óhjákvæmilega afleið-
ingu elliáranna.
Það er til meðal sem læknar gigt
þrátt fyrir þá trú að hún verði ekki
læknuð, Ein af hinum sterkustu sönn-
unum fyrir þessu, er saga Roberts
Francis frá Trenton, sem nýlega hefir
komizt i hendur ritstjóra blaðsins Cou-
rier, Mr. Robert Francis hefir fyrir
skömmu haft verzlun í Rat Portage,
Ont., en býr þar þó enn þá. Hann
þjáðist i gigt yfir þrjú ár. Síðastl. ár
fór hann í kynnisför til Trenton og var
þá að hugsa um að ferðast suður um
ríki til að reyna breytilegt loftslag.
Hánn gekk við staf og átti mjög bágt
með að hreyfa sig. Um siðastliðin jól
kom hann hingað aftur, uppréttur og
alhress. Allir kunningjar hans fögnuðu
honum sem nýjum manni, og glöddust
yfir hans afturfengnu heilsu og fjöri,
sem fyrir ári siðan virtist alveg að þrot
um komið. Hann hefir með mestu á-
nægju gefið eftirfylgjandi frásögn um
lækningatilraunir sínar :
“Heimili mitt er í Rat Portage,
Ont., og hefi ég verið þar við verzlun í
mörg ár. í þrjú ár hefi ég þjáðst af
gigt. Eg reyndi ýms meðöl sem mikið
var látið af, en það kom að engu haldi,
því mér versnaði alt af og að lokum gat
ég með naumindum gengið. Ég lá í
þrettán vikur írúminu í sjúkrahúsinuí
Winnipeg. Loksins var mér ráðlagt að
reyna böðin við Mpunt Clemsuce. Ég
gerði sex atrennur og fékk mér tuttugu
og eitt bað í hvert skifti, án þess það
virtist bata mig hið minsta. Ég las í
blaðinu Courier ýmsar sögur um Dr.
Williams Pink Pills for Pale People, og
ýmsir vinir minir, sem sjálfir höfðu
brúkað þær sér til mikilla bóta, ráð-
lögðu mér að brúka þær. Ég gerði
það, og skömmueftir fór mér að batna.
Ég hefi brúkað úr tólf öskjum og hefir
mér farið fram með degi hverjum. Ég
hefi þyngzt úr 140 pd. í 175 pund, með
því að brúka pillurnar. Ég er ekki
alveg frí við gigtina enn, en ég er samt
nýr maður í samanburði við það sem ég
var áður, og ég þakka það algerlega
Dr. Williams Pink Pills.
Dr. Williams Pink Pills upprætir
sjúkdómana, og gera sjúklingana
hrausta og útlits fallega, við kauna-
veiki, limafallssýki, riðu, gigt og
mjaðmagigt, heimakomu, kirtlaveiki
etc., eru þessar pillur óyggjandi. Þær
eru einnig mjög góðar við sjúkdómum,
sem eru einkennilegar fyrir kvennfólk
og gera útlitið fallegt og hraustlegt á
stuttum tíma. Karlmenn sem liasa of
þreytt sig við andlega eða líkamlega
vinnu ættu einnig að brúka þær. Þær
eru seldar hjá öllum lyfsölum og sendar
með pósti fyrir 50 cents askjan eða sex
öskjur fyrir $2,50 frá Dr. Williams
Medicine Compeny, Brockville, Ont.,
eða Schenectady, N. Y. Gáið aðeftir-
stælingum, sem sagðar eru ‘alveg eins
góðar’.
BUCKLENS ARNICA SALVE.
Bezta smyrsl sem til er við skýrðum,
mari, sárum, kýlum, útbrotum, bólgu-
sárum, frostbólgu, líkþornum, og öll-
um sjúkdómum á hörundinu. Læknar
gylliniæð, að öðrum kosti ekki krafist
sorgunar. Vér ábyrgjumst að þetta
meðal dugar í öllum þeim tilfellum sem
talin hafa verið, ef ekki borgum vér pen
ingana tii baka. —Askjan kostar 25 cts.
Fæst í öllum lyfjabúðum.
MICA ROOFING
Hr. W. G. Fonseca. í haust er leið
var eitt ár liðið síðan ég þakti heflimyln-
una mína með Mica-þófa, sem þér hafið
til sölu, og tjarga.ði ég það ekki fyr en
nærri sex mánuðum eftir að það var
lagt, en þrátt fyrir þaðþó rigningasamt
væri bar ekkert á leka og ekkert hafði
þekjan skemst við tjöruleysið. Þetta
þak þoh'r bæði hita og kulda. R. D.
Paterson. Þetta Mica á ekkert skylt
við hið svokallaða Metal Brand Ready
Roofing. W. G. Fonseca.
Viltudrekka?
Allar tegundir af óáfengum svala-
drykkjum eru ætið á reiðum höndum hjá
Mr. Hall, 405 Ross Ave.
Auk svaladrykkjanna hefir hann og
birgðir miklar af allskonar aldinum og
ávöxtum, hnetum, brjóstsykri af ótal
tegundum, sætabrauði af ýmsum teg-
undum; allskonar vindlum, reyktóbaki
og reykpípum; barnaglingri allskonar
o. fl., o. fl. Og verðið er hvergi lægra
i allri borginni.
ICE CREAM
er til á hverjum degi, ágætt og hvergi
ódýrara en hjá
John Hcill.
405 Ross Ave.
S. Anderson,
651 Bannatyne Ave.
(Corner of Nena Str.)
hefir fengið inn miklar byrgðir af
Yeggja-pappír
sem hann selur með langtum lægra verð
en nokkur annar pappírssali í þessum
bæ. Hann hefar 125 mismunandi teg-
undir, sem hann selur frá 5c. upp í 80c.
rúlluna.
Allir á siglingu til beztu
Skraddarabúðarinnar
PEACE &■ OO.
500 llain Str.
horninu á Pacific Ave.
Fötin sniðin, saumuð, 0g útbúin
eins og þér segið fyrir.
Peace & Co.
566 Main Str.
Buxur! Buxur! Buxur!
handa öllum.
Bezta búðin í Winnipeg er
Tlfi Bllfi Slfitfi
Merki: Bla Stjarna 434 Main St.
ALT ÓDYRT!
Það gleður oss að geta tilkynt almenn-
ingi og þó sérstaklega viðskiftavinum
vorum, að Mr. N. Chevrier er nýkom-
inn austan úr fylkjum og hefir þar tek-
ist að kaupa afarmikið af tilbúnum föt-
um fyrir svo lítið dollars virðið, að
The Blue Store getur nú selt
með lægra verði en nokk-
ur önnur verzlun hér.
Drengjabuxur vorar eru frá 25c. upp í
40c., 50c., 75c. og $1.00. Karlmanna-
buxur frá $1.00 upp í $1.25, $1.50. $1.75
og $2.00. Þú hefir enga hugmynd um
þessi kostaböð nema þú komir og kaupir
af oss. Meðan erindsreki vor stóð við í
Ottawa, lukkaðist honum að ná i 200
alfatnaði úr skosku vaðmáli hjá hinum
nafnkunna skraddara Cfaabot & Co., Nr
124 Rideau St., Ottawa. Þessi föt hafa
öll verið gerð með mestu nærgætni af
P. C. Chabot, sem gerir langmest af
fötum þeim, sem stjórnin lætur búa til
Munið eftir því að öll þessi föt eru búin
til eftir máli. Þau eru $26.00 til $28.00
virði, en vér seljum þau nú á $15.50,
Þú verður að koma og skoða þessi
föt til þess að sannfærast. Alt annað í
búðinni selt á sama verði að tiltölu.
500 drengja alfatnaðir á 75c. og yfir.
Hattar ! Hattar!
fyrir hálfvirði. Gleymið ekki
The BLUE STORE,
MERKI: BLÁ STJARNA.
434 MAIN STR.
A. Chevrier.
Hugsið um
ykkur sjálfa.
Og skoðið varninginn sem vér höfum nú
á boðstólum. Hér gefst tækifæri sem
menn ættu ekki að láta ónotað. Búð
vor er vel full af vel völdum, nýjum og
vönduðum varningi.sem fullnægir kröf-
um tizkunnar og kröfum tímanna. Hjá
oss er staðurinn til að fá hina beztu og
ódýrustu fatnaði, skyrtur, skó, mat-
vöru o. s. frv. Allir eru ánægðir með
varning vorn, enda fæst enginn honum
betri. Verðið er ekki til fyrirstöðu,
— það er hvergi lægra. Verið vissir um
að þið fáið fullgildi þeninga ykkar. Vér
verðskuldum að þér verzlið við oss, þvi
vér gefum ykkur hina beztu kosti. Vér
borgum hæsta verð fyrir ull.
Munið eftir staðnum.
The
Cavalier, N. Dak.
Blair’s Fountain Pen
Eitt af því nauðsynlegasta sem þú getur haft í fórum þínum er BLAIR’S
SECURITY FOUNTAIN PEN. Þú hefir þá penna ætíð við hendina. Og þú
sparar þér margt ómak með því að þú skrifar jafnara og betur, og þeir kosta
þig minna með tímanum holdur en vanalegir stálpennar og ritblý. Pennion
geymir sjálfur blekið í sér.
Þessir ]>ennar eru úr 14 karat gulli og endast mannsaldur.
Þið getið fengið að reyna þá í 30 daga án þess það kosti nokkuð. Ef þeir
reynast ekki góðir, þá sendið þá til baka og vér sendum yður peningana aftur.
Verðlisti : N°. 1 gullpenni með fínum snáp.......$1.75
No. 2 gullpenni með fínum eða stýfðum snáp $2,00
No- 3 gullpenni með fínum eða stífðum snáp $2.50
No. 4 gullpenni með fínum eða stýfðum snáp $3.00
Mbð sérlega vönduðu skafti 75 cts. auk áðurgreinds verðs,
. — Blair’s Foitain Pen Company,
141 Brodway-----------New York.
Þið fáið 5% afslátt á pennum Jæssum, ef þið minnist þess í
pöntuninni, að þið hafið séð þessa auglýsing í Heimskringlu.
Kosta minna en ódýrasta blýhvíta. Endast 5 ár
Hammar Paints
eru þétt í sér. Þau eru sett saman á réttan hátt úr blýi og zinki, eru
endingargóð og fást með öllum litum. . Þú gerir málið þitc hreint, end-
ingar^ott og fallegt með því að hræra sainan við það nýja Linseed olíu.
Engiri önnur olía dugar. 4 pottar af þykku (Hammars) máli og 4 pott-
ar af hreinni Linseed olíu gera 8 pocta af hezta máli, sem kostar að eins
fl.lO fyrir hverja 4 potta.
O.. DALBY selur alLs konar liúsgögn, veggjapappír, málolín og gler
etc. Ég kaupi heil vagnhlöss af varningi í einu og spara þannig við-
skiftavinum mikla peninga. Komið og talið við mig.
O. DALBY,
Edinburgh, N. Dak.