Heimskringla - 06.08.1896, Blaðsíða 4
HEIMSKRINGLA 6. ÁGÚST 1896.
Winnipeg.
Það er byrjað að járnleggja Daup'
hin-brautina.
Mjög ódýrir hneftir kvennskór fást
nú hjá E. Knight & Co.
Sendibréf á skrifstofu Hkr. eiga :
Mrs. Saemundur Ólafsson (yfirsetukona)
E, Knight & Co. eru kátir yfir' að
hafa fengið nýja steintröð fyrir framan
búð sína.
Mrs. B. L. Baldvinson brá sér til
Nýja íslands fyrir helgina, til að sækja
móður sína.
Á fyrra helmingi ársins fæddust
Wínnipeg 432 börn; 216 manns dóu og
175 manns kvonguðust.
Hra Eggert Oliver á Gimli kom til
bæjarins ásamt Mrs. Oliver fyrir ís-
lendingadaginn.
Sænskur prestur, Mr. Eranson að
nafni, prédikar í Tjaldbúðinni á sunnu-
daginn kemur, kl. 4J e. h.
Hra. Sigurður Jóhannsson flutti
alfarinn héðan úr bænum til Keewatin,
á miðvikudaginn var.
Allir sem vilja láta stækka fyrir sig
myndir (með Water color) ættu að snúa
sér til S, G. Northfield, Hallson, North
Dakota.
Mrs. G. Peterson, sem hér hefir
dvalið siðan fyrir sýninguna, hélt heim-
leiðis á þriðjudaginn, — til Mountain,
N. Dakota.
Magnús Brynjólfsson, málafærslu-
maður í Cavalier, N. Dak., kom til bæj-
arins fyrir Islendingadaginn. Fór heim
aftur á þriðjudag.
Þeir sem unnu fyrir verðlaunum á
Islendingadaginn, en sem hafa ekki
fengið þau enn, eru beðnir að vitja
þeirra nú þegar á prentstofu Hkr.
Hra. Erlendur Erlindsson frá Park
River, N. Dakota, var á ferð hér í bæn-
um í vikunni sem leið. Hafði brugðið
sér vestur í Argylebygð.
Útibú bankans af Hamilton (í Ont-
ario) var stofnað hér í bænum á mánu-
daginn var, — að 358 Main Str., þar
sem áður var Union-bankinn.
Liberalar hafa hafið mál til að gera
ógildar kosningarnar i Winnipeg, Mac-
donald og Marquette, og hafa lagt fram
hið nauðsynlega ábyrgðarfé, — $1000.
Jón ritstj. Ólafsson í Chicago kom
til bæjaririns á laugardaginn var og
dvaldi til fimtudags. Kringumstæður
hans heima leyfðu honum ekki að tefja
len'gur.
Stórfeldir þrumuskúrir gengu yfir
bæinn á laugardagskvöldið og aftur á
sunnudagskvöldið. Ákafur hiti allan
sunnudaginn, — 90 í skugga kl. 6 um
kvöldið.
Conservativar hafa hafið mál til að
ónýta kosninguna í bæði Lisgar og
Selkirk-kjördæmunum. Þeir fara og
fram á að báðir hinir kjörnu þingmenn
veiði sviptir möguleika til að sitja á
þingi í næstu 7 ár.
Sáluhjálparherstjórinn í Canada,
Miss Eva Booth, — fjórða og yngsta
dóttir gamla Wm. Booths, kom til bæj-
arins á laugardaginn og dvaldi til mánu
dags. Var það dýrðardagur fyrir ‘her-
mennina’ í Winnipeg og nágrannastöð-
unum. Mærin er á heimleið til Toron-
to vestan frá Kyrrahafi.
íslendingadagsræða Mr. W. H.
Paulsons kemur í næsta blaði.
Fyrirlestur um Voltaire í Unity
Hall á þriðjudagskvöldið kemur. Að-
gangur ekki seldur, en samskot verða
tekin. Sjá auglýsingu á öðrum stað.
Hra. Ólafur Ólafsson, frá Espihóli,
kom til bæjarins þ. m., — þá sunnan
úr Minnesota. Hann dvelur um stund
hér í bænum hjá fóstursyni sínum, hra,
Fred. Swanson.
All-margir landar frá Selkirk komu
til bæjarins fyrir íslendingadaginn.
Meðal þeirra urðum vér varir við Bald-
vin Helgason, Kjartan skipstjóra Stef-
ánsson, Pál Magnússon, Baldvin And-
erson.
Dr. Valtýr Guðmundsson kom til
bæjarins vestan úr Argyle á laugardag-
inn var og dvaldi hér til miðviukdags.
Fór hann þá af stað til Dakota og ferð-
ast nokkuð um þá nýlendu, en kemur
svo aftur áður en hann fer af stað heim.
Á íslendingadaginn týndist í Exhi-
bition Park ný sóllilíf úr dökkrauðu
silki, með silfur-vír vafinn um og greift-
ann í skaftið. Hver sem kynni að hafa
fundið sólhlifina er beðinn að gera svo
vel og gefa sig fram við ráðsmann Hkr.,
eða einhvern á prentstofunni.
Úr bréfi úr Nýja íslandi: Gras-
vöxtur er góður yfir alla nýlenduna,
Þurkar miklir upp á síðkastið. Jörð
þornar óðum og alt útlit fyrir að næg
hey aflist, nemahvað tvísýnt er aðengi
með fram vatninu (flæðiengi) verði
trygt, þvivatnið stendur með hærra
móti, þegar norðanátt kemur. — Afla-
litið á norðurvatninu hjáþeim, sem þar
eru við veiðar, að sögn þeirra sem inn
hafa komið.
Hra. Jens Johnson, farþegja agent
Northern Pacific-brautarinnar, er hér
í bænum, á Hotel Manitoba. Hann
hafði hér viðdvöl síðast, er hann var
með skrautbúinn vagn fullan af hveiti
og öðrum afurðum lands með fram
braut sinni. Jens er Norðmaður og er
kumpánlegasti við íslendinga. Hann
er að safna forngripum og vill kaupa
þá hvar sem hann fær þá. Ef einhver
vill selja eitthvað af slíkum gripum get-
ur hann snúið sér til ráðsmanns Hkr.
Hra, Sigurður Bárðarson kom heim
aftur fyrir síðustu helgi eftir rúm
legu vikudvöl i Nýja íslandi, í Víðines-
bygðinni. Skildi hann þar eftir konu
sina og tvö yngstu börnin til mánaðar
viðstöðu. Hann iiafði ekki fyrr komið
til Nýja íslands og leizt honum vel á
sig, að undanteknu vegleysinu og—
búnaðaraðferðinni. Þykir þörf á um-
bótum í hvorttveggja. Grassprettu seg
ir hann ljómandi, en flæðiengi hver-
vetna ef til vill ónýtt í ár vegna þess
hve Winnipegvatn stendur hátt.
HAGL-ÉL
mikið kom á sunnudagskvöldið 2. þ. m.
og eyðilagði ógrynni af hveiti og korn-
mat á ökrum í suðvestur Manitoba.
Náði élið alt frá Souris austur að Elm
Creek. Er oss ritað frá Glenboro að
sumir missi alt sitt. I Argyle-nýlend-
unni er sagt að menn komist betur af,—
að élið hafi ekki náð þangað eins hræði-
lega. Einn landi, hra. G. W. Simonson,
tapaði um 4fl0 ekrum af h'reiti, sem
hann átti í grend við Glenboro.
Úr bréfi úr Álftavatnsnýlendu, dags.
24. Júlí: “Flestir eru hér byrjaðir að
heyja, en óvíða er hægt að koma við
vélum og verður örðugt fyrir þá sem
marga gripi hafa, að slá alt sitt hey
með orfi og ljá. — Það er útséð um það
nú, að ekkert verður gert að rista fram
svosnemma, að gagn verði að í sumar.
Það er grunur minn að margir biði
ekki mikið lengur eftir framskurðinum,
en neyðist til að flyTtja burtu. Munu
þeir þá flytja svo langt að þeir veröi
ekki fram vegis komnir upp á náðir þess-
arar fylkisstjórnar”.
••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••«•••••••
Sjerstakt.
Vér erum svo fegnir að hata nú fengið steintriJð slétta
og góða fyrir framan búð vora að vér ætlum nú að
minnast þess með því að gefa öllum viðskiftavinum
sem kaupa
Hneppta kvennskó, sem kosta $ 1,50
Reimaðir skór fyrir kvenfólk 75c.
Kvennskór, stærð 4 til 4$, fást með sérlcga góðum kjörum
þar eð vér höfum nýlega kepyt mikið upplag af þeim.
Karlmannaskór stærð 7 fást með sömu kjörum.
KOMIÐ TIL
E. KNKSHT& CO.
•
351 Hain Str. Andspænis Portage Ave.
Gáið að merkinu : Maður á hrafni,
••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••<
VESTAN AF STRÖND.
Frá Mariette, Wash., er oss ritað
26. Júlí : "Það er fátt sem ber til tíð-
inda á þessum síðustu ogverstu tímum.
Ekkert að gera. Ekki Svo mikið að
menn fái að tína ‘hopsa’. Ég brá mér
til Seattle fyrir þjóðhátíðardaginn og
hafði mikla ánægju af, en dauflegt þótti
mér, er svo margir góðkunnir landar
vorn komnir burtu og austur fyrir f jöll.
Heldur virðist mér dauft í borginni.
Þar hafði enginn maður vinnu, — ekk-
ert til að gera. Lan dar sem þar eru
enn, voru flestir að búa sig í laxaveið-
ar. — Merkustu fréttir þaðan, að því
er löndum við kemur, er það, að hra.
Guðmundur J. Borgfjörð, kjötsali í
Seattle, hefir nú keypt fjórðungseign í
gullnámu í Cascade-fjöllunum um 60
mílur frá Everett og 6 mílur frá Great
Northernbrautinni. Náman heitirMonti
Christo og gefur af sér um $35 virði af
gulli úr hverju ‘ton’ af grjóti. Félagið
sem á námuna hefir leyfi til að gefa út
hlutabréf upp á 1 milj. dollars. — Deil-
ur eru hér orðnar allharðar út af kosn-
ingunum forseta, og er bágt að segja
hverjir verða hlutskarpari. Silfursláttu-
menn eru hér fjölda margir og i flokki
þeirra margir gamlir og góðir repúblík-
ar”.
Yfirsetukona.
Vér höfum verið beðnir að geta
þess, löndum vorum í New Jersey til
leiðbeiningar, að Mrs. G. Bilgrav í
Perth Amboy, New Jersey, hefir nýlega
lokið prófi í yfirsetukvennafræði fyrir
læknafélaginu f N. J. og fékk besta
vitnisburð. Hefir hún nú heimild lag-
anna til að þjóna sem yfirsetukona hvar
sem er í New Jersey. Mrs. Bilgrav er
ættuð úr Borgarfirði og var skírð Guð-
rún Þórðardóttir. Hún nam yfirsetu-
kvennafræði hjá Schierbeck landlækni
árið 1887 og flutti sama árið til New
Jersey. — Heimili hennar er nú að 247
Smith Street, Perth Amboy, N. J.
Fyrirlestur
um hið fræga skáld og ritsnilling frakka
VOLTAIRE,
og áhrif hans á heiminn, flytur
Mrs. M. J. Benedictsson.
í Unity Hall
Þriðjudaginn 11. þ. m.
Inngangur ókeypis. Allir velkomnir.
Samskota verður leitað
til að borga kostnaðinn.
Kennara
vantar við Baldurskóla frá 1. Nóvem-
ber þ. á. til 1. Maí 1897, = 5J mánuð.
Umsækjendur geti þess hvort þeir hafi
tekið kennarapróf, eða hafi tímabils-
le'yfi, og tiltaki mánaðarlaun. Tilboð-
um veitt móttaka af undirskrifuðum
til 1. Október næstkomandi.
Hnausa, Man., 20. Júlí 1896.
O. O. Akranegs,
Sec. Treas.
DRENGURINN ÞINN LIFIR EKKI
MÁNUÐ.
Það sagði læknirinn við Mr. Gil-
man Brown, 34 Mill St., South Gardner
Mass. Sonur hans leið af lungnaveikl-
un, sem hann fékk upp úr taugaveiki
og hann eyddi þrjúhundruð sjötiu og
fimm dollars til læknis, sem að lokum
gafst upp á honum og sagði: “drengur-
inn þinn lifir ekki einn mánuð”. Hann
reyndi Dr. Kings New Discovery ogfá-
einar flöskur komu honum til heilsu,
svo hann gat farið að vinna eins of
hver annar. Hann segist eiga heilsu
sina að þakka Dr. Kings New Discove-
ry, og segir það meðal hið bezta. sem
til er. Flaska til reynslu fæst ókeypis í
öllum lyfjabúðum.
SUCáP
COAVED
F
T • ^
t jsitl V ‘
The Greatest cf all Livcr,
Stomadi ar.l BioeJ. .Meaicir.es.
a £Ffct
RhcumáO.cm, Qrt a.nd
Ct;ron!c Cla'.r.lJ.
They Cleanse :ai Purify fhe
LIoo.!.
All Druggists uníl
Qcneral IJeaiors.
ÍSLENZKR LÆKNIR
DR. M. IIALLDORSSON,
Park River — N. Dak.
Fréttir.
Niðurl, frá 2. bl.
eru meiri líkur nú en áður til þess að
fregnin sé sönn, þvi kerling er gömul
og lasburða orðin og þjökuð af sífeldum
vina missi, sem á bezta aldri bafa lát-
izt. Þetta umtal nú er bygt á því að-
allega, að um daginn íbrúðkaupí Karls
prinz úr Danmörku og Maud prinzessu
af Wales, hafði kerling sagt að þetta
mundi í síðasta sinn að hún ‘visitéraði’
í London.
Við járnbrautaslysið í New Jersey
í fyrrakvöld mistu 47 menn lífið og 43
særðust og limlestust svo, að þeim er
helzt ekki ætlað líf. Margir fleiri meidd-
ust, en komnst leiðar sinnar og eru því
ekki taldir.
J. í. Tarte, hinn nýi ráðherra op-
inberra starfa, rekur úr þjónustu þeirr
ar stjórnardeildar 130 menn, auk 150
manna, sem hann hafði rekið fyrir lok
Júlímánaðar.
International sósíalista þing situr
í London. Meðal annars er þar krafist
að bókstaflega öllum sé veitt háskóla-
mentun, og krafist að þjóðirnar banni
að unglingar innan 18 ára vinni lengur
en svarar 24 kl.stundum á viku.
Stórveldin hafa að sögn ákveðið að
láta afskiftalaust alveg þrætumál og
þar af leiðandi stríð Tyrkja og Krítar-
manna.
Bandaríkjamenn eru nú þegar farn-
ir farnir að óttast silfurítana og flýja
með gull sitt til Canada og leggja þar
á banka. í gær tíl dæmis kom einn
allar götur sunnan úr Tennessee með
$40,000 í gulli sem hann lagði á banka í
Toronto.
‘Mark Twain’ (Sam. L. Clemens)
kom til Englands í gær eftir fyrirlestra
ferð sína umhverfis hnöttinn. iKom
beina leið sunnan frá Góðrarvonarhöfða
Hann dvelur 6 mánuði á Englandi í
þeim tilgangi að rita þar bók.
MÁNUDAG 3. ÁGÚST.
Stjórnmálagarpur Kínverjanna, Li
Hung Chang, hefir nú lokið ferð sinni
um meginland Norðurálfu og kom til
London í dag. Þar dvelur hann, eða á
Englandi, mánaðartíma, og heldur það-
an beina leið til Washington.
Tveir sænskir sjómenn, E. Harbo
og G. Samuelsson, hafa lokið róðri á
lítilli byttu yfir Atlantshaf, frá New
York til Havre á Frakklandi. Þeir fóru
frá New York 6. Júní síðastl. og lentu
að Havre á sunnudaginn 2. þ. m.
Frá Montreal kemur sú fregn aðút-
ríkjastjóri Breta, Jos. Chamberlain, ætli
sér að útvega Sir Charles Tupper lands-
stjóra-embættið í Canada að loknu tíma-
bili Aberdeens lávarðar. Segir sagan,
að Sir Donald A. Smith hafi kunngert
Laurier þetta og hann síðan telegraf-
erað ráðherrum sínum fregnina sam-
dægurs. — Það er langt síðan Canada-
menn hafa viljað fá sinn eigin mann og
borgara fyrir landstjóra. Verður því
fróðlegt að sjá hvernig þessari uppá-
stungu'vorður tekið.
Þurkar miklir og hitar hafa gengið
i Ástralíu í vor og sumar. Sem afleið-
ing af vatnsleysinu er sagt að 9J milj.
sauðfjár i New South Wales-héraðinu
sé fallið.
Þjóðskuld Bandaríkja var aukin svo
nam nærri $11 milj. í síðastl. Júlí mán.
Langevin etkibiskup í St. Boniface,
Manitoba, heilsaði upp á Leo páfa 13. í
Rómaborg í gær. Margir kaþólskir
höfðingjar frá Ameriku voru þar við-
staddir.
ÞRIÐJUDAG, 4. ÁGÚST.
Flóðlokan nýja i Bandaríkja skipa-
skurðinum með fram Marjufljótinu
milli Huron og Superior vatna, er full-
gerð. Var vígð í gær.
Verkstæðisfélög mörg í Bandaríkj-
unum urðu gjaldþrota í vikunni er leið,
C-VERY FAMILY
SHOULD KNOW THAT
Tci a vcrv romailíAblo j
TERNAL and EXTEBNAL uae, and won-
dfcrfulinits quiclt action to reUevo aistiess.
PAIN-KILLER WÆSTíÍSík™
ÍÍJ.VrV,
PAIN-KILLER
hick Hrailnrhf, I'aÉn in lli«
llícU «r Mlde. RlicumnllMU »n<l Nenraluia.
PAIN-KILLER b'khti<í,'ínai .>ii'íí
Tta It brintra speehy and pkbmanent brliep
in nii caMn of ItruÍM***, iati, Mprains, 8cvero
lSams, etc.
PAIN-KILLER tru*t«*'l fi’irnil of tho
Mcrlianir, F.irmer. Pltuiler, hnilor, andln
fart all dassiu wantin" t nifdlcine alwayn »t hand,
iml satr ro tiRR intoruully or extermiliy with
c*.ilainty ofTelief. . ..
Bewnrr of iinitotlons. T<ik« nono bnt tho P nulne
"itXHUY LiAVHf." Sold evcrywhcro ; '/óc. oiB botU*.
Very larife bottlc, öoc.
Útfluttur varningur frá Canada
nam $1214 milj. á síðastl. fjárhagsári,
um 2 milj. meira en mest hefir verið áð-
ur á einu ári frá því sambandsríkið
varð til.
Rockafeller ríki hefir látið hætta
vinnu í öllum námum sínum í Michi-
gan. Þar missa 7090 manns atvinnu.
Nýfundnalandsmenn eru nú sagðir
viljugir og áfram um að ganga í Cana-
da-sambandið. Eru orðnir uppgefnir af
sífeldri fjárþröng og stjórnmála vand-
ræðum.
Bandaríkja-herskipið ‘ Minneapolís’,
sem var í Kronstadt um krýninguna i
vor, er nú við strendur Englands. Her-
mönnunum öllum var í gær haldin
veizla á kostnað Edinborgarbæjarstjórn
ar.
MIÐVIKUDAG 5. ÁGÚST.
Spekulanta-félag í Chicago, er gekk
undir nafninu Moore Bros., varð gjald-
þrota í gær. Hvað miklar eru skuldir
og eignir og eignir til að mæta þeim,
veit enginn enn, en þeir fólagar höfðu
undir hendi $20 milj. af sínum og ann-
ara eignum, í tveimur stór-félögum.
Er sagt að þeir bræður hafi sjálfir tapað
$4—4J milj. Fyrsta afleiðingin af
þessu hruni er það að kaupmannafé-
lagið: "Stock Exchange” afréði í gær
að fresta fundi um óákveðinn tíma, —
á meðan menn jafna aig.
Öll landeign Northern Pacific-félags-
ins í Washington-ríki vestra, var í
gær seld við uppboð í Seattle fyrir
$1 705,200. Hinn nýi forseti félagsins,
Edwin W. Winter keypti altsaman.
Blaðið “Standard” í London segir
hæfulausa fregnina um að stjórn Breta
ætli að skipa Sir Charles Tupper lands-
stjóra í Canada, að embættistíma Aber-
deens liðnum.
Peary norðurfari situr nú fastur í
ís undir Grænlandsströndum.
Tyrkir eru gjaldþrota og ráðMausir
með að fá sér lán. Hafa ekki borgað
skrifstofu þjónum launin nú í 7 mánuði.
Háskaleg hjartveiki.
Læknuð með Dr. Agnows merka
hjartveikis meðali. Margra mauns
lífi bjargað. Hvernig Dr. Agnews
Catarrah Powder hefir reynzt.
Væri það ekki fyrir það, að Dr. Ag-
news Cure for the Heart’ linar þraut-
irnar á 30 mínútum eftir að fyrsta inn-
takan er gefln, mundum vér ekki sjá
svo margar sögur um að mönnum
hefði batnað af því. William Lherry
frá Owen Sound, Ont. segir: ‘Ég var
mjög slæmur af hjartveiki og svima í 2
ár og gat stundum ekkert gert vikum
saman. Eins og eðlilegt var, var mér
og vinum mínum farið að þykja útlit-
ið ískyggilegt, þar eð engin meðulvirt-
ust gera mér gagn. Að lokum var mér
komiðtil að reyna Dr. Agnews Cure
for the Heart. Ég hefi ekki brúkað 5
flöskur, en hjartveikin horfinn og ég er
eins hraustur eins og ég hefl nokkru
sinni verið.
Catarah. Eitt af því sem mælir með
Dr. Ágnews maðaj er að það er aðgengi-
legt. Eins og Mr W. Bennett, einn af
Conseryatíva þingmönnum á sambands
þingínu, sagði: ‘Þegar maður tekur
það á morgnana eyðir það öllu kvefi
og ónotum sem kunna að vera í höfðinu
á manni. Én það læxnar ekki einung-
is smá kvilla, heldur sýki sem jafnvel
er búin að gera menn heyrnarlausa og
suma af hinum örðugustu höfuðkvefs-
kvillum hefir það upprætt. Auk Mr.
George E. Casey, Hon. David Mills og
Hugh H. Ross, mætti telja marga er
hafa með eigin hendi gefið vitnisbarð
uul þetta meðal.
Fæst hjá öllum lyfsölum.
Ákaft meltingarleysi.
VEIKI, SEM GERIR MÖRGUM
LÍFIÐ ÞUNGBÆRT.
Eina ráðið er að uppræta orsakir sýk-
innar. Einn af þeim, sem hefir
reynsluna fyrir sér, hefir sýnt
hvernig hægt er að gera það með
tiltölulega litlum kostnaði.
Meltingarleysi er eitt af því óvið-
feldasta sem fyrir nokkurn mann getur
komið. Manni finst maginn alt af full-
ur og viðkvæmur eftir að hafa borðað,
liversu lítið sem það er og hversu vel
sem það er til búið, og jafnvel þó maður
þvi sem næst fasti, er samt óþægindin
meiri eða minni. Hve mikil gleði það
er fyrir þá sem læknast af þessum
kvilla geta menn betur ímyndað sér
heldur en því verður lýst. Mrs. Thos.
E. Marret frá Dunbarton, N. B., erein
af þeim sem slíka sögu eiga. Mrs. Mar
rett seeir, að í meir en tvö ár hafi lif
sittverið tómar þjáningar. Hún borð-
aði aðeins einfalda fæðu, en þrátt fyr-
ir það fór henni alt af versnandi og að
síðustu fór hún að finna til megnrar
hjartveiki, sem var afleiðing af melting-
arleysinu. Hún misti alla löngun til
að borða, og varð alt af veikari og veik-
ari þangað til hún varla gat gengið um
húsið. Húsverk gat hún engin gert,
Stundum gat hún með engu wóti komið
neinu ofan í sig fyrir ógleði og stund-
um fékk hún uppkastakviður, er gerðu
hana ’alveg örmagna. IJún var búin
að brúka ósköpin öll af meðölum án
þess henni þó batnaði. Loksins las hún
í blaði um Dr. Williams Pink Pills for
Pale People og afréð að reyna þær. Þeg-
ar hún var búin með3eða 4 öskjur fór
henni mikið að batna, og þegar hún
hafði brúkað upp úr 8 öskjum, segir
Mrs, Warrell: ‘Eg get fullvissað þig
om það, að ég er nú eins hrauet eins og
ég hefi nokkurn tíma verið, og ég veit
að ég á bata minn að þakka Dr. Willi-
ams Pink Pills, sem hafa reynzt mér
framúrskarandi’. Mrs. Marrett segir,
að Pink Pills hafi einnig reynzt mann-
inum sínum vel, sem þjáðist af gigt f
útlimunum. Stundum bólgnuðu þeir
upp og sárindin voru svo mikil að hann
gat ekki sofið og sat uppi stundum allar
nætur. Þegar hann sá hve gott kona
hans hafði af þessum pillum, fór hann
einnig að brúka þær og varð á stuttum
tíma laus við gigtina og hinar þung-
bæru kvalir, sem henni eru samfara.
Bæði Mr. og Mrs. Marrett segja að þau
muni ætíð mæla sterklega með Dr. Wil-
liams Pink Pills. Pillur þessar hreinsa
blóðið og styrkja taugarnar, og það er
enginn sjúkdómur til sem orsakast af
skemdu blóði eða veikluðum taugum,
sem þær ekki lækna, ef þær eru brúk-
aðar dyggilega. Ekta Pink Pills eru
seldar að eins í öskjum og á umbúðun-
um er með fullum stöfum: Dr. Williams
Pink Pills for Pale People. Það eru til
stælingar af þessu meðali með sama lit,
og líkar útfits, og eru stundum seldar í
tylftatali eða hundraðatali eða í öskjum
með engu merki á. Neitið ætíð að taka
þessar eftirstælingar, hvað sem sá segir
sem reynir að koma þeim út við ykkur.
PILLUR ÓKEYPIS.
Sendið utanáskrift yðar til H. B-
Bucklen & Co., Chicago, og fáið frá
þeim sýnishorn af Dr. Kings New Life
Pills. Ef þér reynið þær san>farlsI þer
um ágæti þeirr'a. Þessar verka
þægilega og eru hinar hoffa við ohægð-
um og slæmum höfuðveik. \ íð lifrar-
veiki liafa Þ»r reynzt, oyggjandi. Yér
ábyrgjumst að þær séu aiveg fnar við
öll' óheilnæm efnii 0I) bð eins búnar til
iurtaefnuin. peer vcikja ekki líkamann,
h ldur styrkj* hffaerin og halda þeim í
reglu.
0LD G0LD
Yirgina Flake Cut
Reyktobak
W. S. KIMBALL & CO.
Rochester, N.Y., U.S.A.
Í7®Hæstu verðlaun.
•••••••••••••••••••••••••
Kosta minna en ódýrasta blýhvita. Endast 5 ár
Hammar Paints
eru þétt í sér. Þau eru sett saman á réttan hátt úr blýi og zinki, eru
endingargóð og fást með öllum litum. Þú gerir málið þitt; hreint, end-
ingargott og fallegt moð því að liræra sáman við það nýja Lmseed oiiu.
Engin önnur olía dugar. 4 pottnr af þykku (Hammars) maii og 4 pott-
ar af hreinni Linseed olíu gera 8 potta af bezta mali, sem kostar að ems
<81,10 fyrir hverja 4 potta.
O. DALBY selur alls konar húsgögn, veggjapappír, málolín og gler
etc. Ég kaupi heil vagnhlöss af varningi í einu og spara þannig við-
skiftavinum mikla peninga. Komið og talið við mig.
O. DALBY,
Edinburgh, N. Dak.