Heimskringla - 27.08.1896, Blaðsíða 1

Heimskringla - 27.08.1896, Blaðsíða 1
X. ÁR. WINNIPEG, MAN., 27. ÁGÚST 1896. NR. 35. Dáin. Húsfreyja SIGIiÚN EYFORD. Hinum mörgu vinum og vanda- mönnum Boga Eyfords, innflytjenda umboðsmanns Bandaríkjastjórnar, í Pembina, sem saman voru komnir á fundi í Cavalier á fimtudaginn 20. Ágúst, brá í brún er þeir fengu telegram frá Pembina þess efnis, að Mrs. Eyford væri látin. Hún hafði verið frísk til þess aðfaranótt miðvikudagsins, en um miðjan dag á fimtudag var hún liðið lík, þrátt fyrir allar tilraunir þriggja lækna, er yíir henni voru. Húsfreyja Sigrún Eyford var norð- lenzk (skagfirsk?) að ætt, dóttir Jóhann- esar Péturssonar, sem einu sinni hafði á hendi póstflutning milli Akureyrar og Reykjavíkur, en sem nú býr góðu búi í Minnesota-bygð Islendinga, i Lincoln County. Mrs. Eyford var rúmlega þrítug að aldri, er hún lézt. Hún var gift Mr. Eyford fyrir 10—12 árum síðan. Hafði þeim hjónum orðið 5 barna auðið og eru 3 þeirra á lífi, 2 stúlkur og einn dreng- ur, hið yngsta innan eins árs gamalt,— en tvö eru dáin, annað þeirra, efnileg- ur drengur á 4. ári, lézt í síðastl. Júlí mánúði. — Um undanfarin tima hafði Mrs. E.yford verið heilsulasin, en þó ekki svo, að vinir hennar hefðu ástæðu til að óttast um hana. Harmafregn þessi kom þeim því öllum á óvart og þeir eru fjölmargir, vinir hennar og Boga, í hinum ýmsu bygðum íslend- inga, sem nú sakna vinar í stað og syrgja með eiginmanni hennar, sem nú ■ hefir beðið svo óbætanlegt tjón, við frá- íall ástríkrar eiginkonu og móðir. Líkið var flutt til Eyford og grafið þar í grafreit Eyford-fjölskyidunnar. Átti su sorgar-athöfn að fara fram á föstudaginn 21. Ágúst. FRÉTTIR. DAGBÓK. MIÐVIKUDAG, 19. ÁGÚ8T. Gull-demókratar héldu annan stór- fundinn í Madison gquare Garden í New York í gær. Var efnt til fundar- ins i þeim tilgangi að sannii demókrat- ar keemu þar fram og sýndu sína hlið á gjáldeyrismálinu, af því Bryan kveðst einnig vera demókrati, þó hann í gjald- eyrismálinu prédiki alt annað en demó- kratar vilja heyra. Hon. W. B. Co- chran var aðal-ræðumaðurinn. Gullnámur eru nýfundnar á ýms- um stöðum í Andesfjöllunum í Perú í Suður-Ameríku. Sambandsþing Canada kemur sam- an í dag, en ekki til annars en að kjósa forseta í neðri deild. Þingið verður ekki sett formlega fyrri en á morgun. Á stórstúkuþingi ‘Independent Ord- er of Eorester ’ í Ontario, sem stendur yfir í Ottawa, var í gær samþykt, að skifta Ontario-stórstúkunni f þrjá jafna hluti, í þyí ekyni að rýra stórstúku- Þingkostnað. Tala félagsmanna í On- itario er um -30,000. Ársþing lögfræðingafélagsins í Banda ríkjunum var sett í dag í Saratoga, N. Y. Þangað hefir aldrei fyrri safnast saman annar eins lögfr æðingaflokkur Og aldrei á annan stað á ársfund félags- ins. Segulaflið sein dregur þá er for- seti hæstaréttardómaranna á Englandi, Russell lávarðui, sem Þar á að flytja ræðu um ‘International sáttarétt’. FIMTUDAG, 20. ÁGÚST. Hon. James David Edgar, þing- maður fyrir Vestur-Ontario-kjördæmið, VKITT HJ5STU VBRDI.AUN A HEIMSSÝNINQUNN DR B4NN6 POHDfR IÐ BEZT TILBÚNA ÓblÖnduð vínberja Cream of Tartar Jowder. Ekkert álún, ammonia eða Snnur óholl efni. 40 ára reynslu. var í gær kjörinn þingsforseti í fuU- trúadeild sambandsþingsins. Hon. W. D. Balfour, fylkisritari Ontariostjórnarinnar, lézt í gær í Tor- onto, eftir langa legu, 45 ára gamall. Nafnkunnur kompónisti og fræði- maður, Fred. W. N. Crouch, lézt í gær í Baltimore, 83 ára gamaU. Hveitiflutningsskip lagði út frá Chi- cago austur um stórvötn með 207,000 bush. af hveiti fyrir farm. Eitt skip hefir aldrei fyrri flutt eins mikið hveiti eftir stórvötnunum. Gull-demókratar í Ohio vinna að því af alefli, en í pukri, að sá flokkur gangi til víga með McKinley, en and- æfi af öllum kröftum tilrauninni að etja út 3. forsetaefninu. Á kappsiglingu framundan Wight- liólma við England rákust í gær saman tvær jaktir, og beið eigandi annarar jaktarinnar bana af. Jaktirnar voru ‘Meteor’, eign Þýzkalandskeisara, og ‘Isolde’, eign baróns M, C. von Zedt- witz frá Dresden á Þýzkalands, sem þar beiðbana. Einkennileg veiki í nautgripum er komin upp í IUinois. Aðallega er veik- in innifalin í því, að gripirnir verða augnveikir og missa innan skamms sjónina. Veikin er sóttnæm, eða svo virðist vera. Dýralæknar þekkjaekki þessa veiki. FÖSTUDAG, 21. ÁGÚST. Norðurfaraskip Nansens, ‘Fram’, ær komið til mannabygða. Náði á mið- vikudagskvöld til Noregs og í gær til bæjarins Tromsö. Skipverjum öllum liður vel. Skipstjóri Sverdrup kom á suðurleiðinni við á Danaey á Spitzberg- en, þar sem Andreé loftfari sat yfir kugg sínum. Var það 14. Ágúst að þeir fundust og hafði Andreé þá verið alráðinn í að hætta við loftförina í sum ar, af því úti var um miðnætur sól- skin eftir miðjan Ágúst. Vindurinn hafði alt af verið norðanstæður og þe^s vegna ekki tilhugsandi að leggja upp.— 2,185 faðma dýpi fann Sverdrup mest í norðurhafinn. Sambandsþing Oanada var sett í gær, eins og til stóð. Ávarpið til þings- ins var stutt [ og gaf þingmönnum til kynna, jað þeir þyrftu ekki annað að gera, en samþykkja fjárlögin, sem ekki urðu afgreidd á síðasta þingi. — f ræð- unni var og gefið í skyn, að þegar þing- ið kæmi saman næsta vetur, yrði skóla málið útkljáð. Á Labrador og enda Nýfundnalandi horfir tii hallæris vegna þess, að fiski- veiðar .hafa gersamlega brugðizt í sumar. Aðalból silfuríta í forsetasókninni verður í Sherman-hótelbyggingunni í Chicago. — Senator J. K. Jones frá Arkansas l-ieiir verið kjörinn yfirhers- höfðingi allra silfuríta, til þess eftir kosningar. Ótal fregnir gjósa nú upp um það á hverjum sólarhring, að skólamálið sé utkljáð, þó ekki verði samningar birtir að svo stöddu. Greenway hefir telegraf- eraði til Winnipeg, að sér sé það alveg ókunnugt. LAUGARDAG, 22. ÁGÚST. Laxniðursuða í British Columbia verður meiri í sumar en nokkru sinni áður. Niðursuðufélögin geta ekki veitt móttöku öllum laxinum sem býðst. Þó sjóða þau niður lax upp á fullar $3 milj. Verzlun Canadamanna við útlönd í síðastl, Júlímánuði var $2£ milj. meiri en í sama mán. í fyrra. Sambandsþing Canada sat að vinnu réttar 40 mínútur í gær. Tveir erindrekar auðmanna á Eng- lundi komu til New York í gær. Ætla þeir að ferðast um Bandaríkin og Ca- nada í þeim tilgangi, að skoða járn- brautir og ef til vill kaupa, ef eitthvað af Þeim sem nú eru gjaldþrota eru fá- anlegar fyrir lítið verð. Báðir eru hátt- standandi starfsmenn London & North- western járnbr.fél. á Englandi. Sir David L. Macpherson, sambands- þingssenator í Canada, léztl6.þ. m. á skipinu ‘Labrador’á leiðinni heim til sín frá Englandi, 78 ára gamall. Senator John Palmer í Chicago, er mikið hefir verið talað um sem forseta- efni gull-demókrata, helflur því fram, að á Indianapolis-fundinum (2. Sept.) verði engir menn kjörnir til að sækja gegn McKinley. Félag í St. Paul, Minn., ráðgerir að byggja rafmagnsbraut þaðan til Superior, — útjaðra bæjarins eins við Duluth, Tolltekjur sambandsstjórnarinnar voru $58,216 meiri í síðastl. Júlímán., en á sama mánuði í fyrra. MÁNUDAG, 24. ÁGÚST. Fregn frá London til blaðsins ‘World' í New York segir. að Edward Blake hafi verið boðin staða sem einn af dómurunum f dómsmáladeild leyndar- ráðsins brezka, en að hann hafi hafnað þvf, af því hann álíti sér skylt að vinna að stjórnmálum íra. Aðrir segja að einlæglega eins og Canadastjórn hafi viljað fá hann f þessa stöðu framyfir alla aðra menn í Canada, liafi hún ekki boðið honum hana fyrir þá gildu og góðu ástæðu, að hann geti ekki tekið þá stöðu, að hana geti enginn fengið nema hann einhverntíma áður hafi ver- ið dómari. Á allsherjarfundi Ira í Dub- lin í Sept, næstk. er talað um að Blake verði kjörinn formaður stjórnmála* flokks Ira, sem á þeim fundi á að sam- eina í eina heild, þó útlitið að undan- förnu sé ekki þesslegt að það sé gerlegt. Sýningabyggingarnar flestar, auk fjölda af íbúðarhúsum í nágrenninu, brann til kaldra kola í Buffalo, N. Y., á laugardagskvöldið. Eignatjón um $| milj. Hon. H. J. Macdonald hefir verið að ferðast um Ontario um undanfarna viku og tala gegn Laurier-stjórninni á pólitiskum fundum. Hefir honum hver vetna verið mikillega fagnað og mikill rómur gerður að ræðum hans. Skeyti frá Suður-Afrfku segir, að Cecil Rhodes hafi unnið Matabelamenn til að leggja niður vopnin, með þvf að ganga í greipur þairra einsamall og vopnlaus. Er nú sagt að uppreist sú sé nú á enda kljáð. Til London er komin fregn þess efn is, að fornfræðingarnir, frá Bandaríkj- um flestir, sem í fyrra fóru í rannsókn- arferð til Babylon-rústanna, hafi fund- ið steintöflur letraðar, er sýni og sanni að 7000 árum fyrir Krists daga hafi Ba- bylonarmenn kunnað leturgerð auk annara lista. Dýrðardagar miklir verða í St. Paul og Minneapolis alla næstu viku (31. Ágúst til 5. September). Iðnaðarsýn- ing ríkisins stendur þá yfir og þar verða einnig háð ársþing hermanna félagsins: ‘Grand Aamy of the Repúblic’, og árs- þing leynifélagsins ‘Knights af Pythi- as’. ÞRIÐJUDAG, 25. ÁGÚST. Spán,rerjar eru byrjaðir að senda hermenn til Cuba, — sendu flota af stað á laugardaginn var, en gekk stirðlega, því auglýsingum hafði verið dreift um borgina, þar sem skorað var á menn að fara hvergi, hvorki með góðu eða illu. Jafnframt var skorað á Spánverja i heild sinni að gera uppreist í ríkinu.'svo stjórnin gæti ekki sent hermennina. — Nokkurskonar uppreist er komin á fót gegn Spánverjum á Philippineeyjunum eystra. Samsæri eftir samsæri gegn stjórninni verður þar uppvíst. Friðþjófur Nansen hefir verið beð- inn að mæta á fundi brezKa vísindafé- lagsins, sem settur verður 16. Septem- ber næstk. í Liverpool og skýra frá norðurferð sinni. Dr. Stephen H. Emmens í New York fullyrðir að hann sé búinn að uppgötva hina liuldu en lengi þráðu list, að um- hverfa silfri í gull, og kveðst innan- skamms vona að koma upp vinnustof- ’im þar sem að því verði unnið ein- göngu. Um fjórðungur efnisins segir hann glatist í breytingunni, en samt gefur dollars virði í Isilfri $13,25 virði í gulli eftir verði gullsins nú.—Þessifrétt er seld með innkaupsverði! Russell lávarður, dómaraforseti Breta, kom til Ottawa í dag og dvelur þar nokkra daga ; er gestur hjá Aber- deen landstjóra. Foringjar verkmannafélaga eru að vinna að allsherjar samtökum í öllum helztu löndum Evrópu og í allri Ame- ríku, til að gera samdægurs vinnustöðv un meðal uppskipunarinanna á öllum helztu ’höfnum . Andreó norðurfari kom til Tromsö í Noregi í gær. Er hættur við loftsigl- inguna þangað til næsta vor. Hinir nýju eigendur Northern Pa- cific-félagsins taka við stjórn brautar- innar 1. Sept. næstk. MIÐVIKUDAG 26. ÁGÚST. Kjörþing voru í gær háð í tveim stöð- urn eystra, til að kjósa tvo af meðráða- mönnum Lauriers. Þeir sem sóttu fram sem ráðherrar voru þeir Wm. Patterson í North Grey, Ont., og A. G. Blair £ Queens-Sunbury í New Brunswick. Báð- ir náðu kjöri; með 413 og 604 atkv.mun. Dalton McCarthy sagði af sér í gær, sem þingmaður fyrir Brandon-kjördæmi i Manitoba. Er það ætlað Sifton dóms- málastjóra sem innanríkisstjóra Lauri- ers ? $50 milj. hjónaband. í gær voru þau H. P, Whitnv og Gertrude Vander- bilt gefin saman í hjónaband. Eftir því sem næst verður komist hafa þau eitt- hvað $50 milj. tíl að byrja búsk ap með. 20. Júlí var Peary norðurfari kom- inn nyrðst á Labrador. ís hafði verið með mesta móti um þær slóðir og er ráðið af þvi, að honum gangi ekki vel ferðin er norðar dregur. Rússakeisari lagði af stað í gær í skemtiferð sína um Evrópu. Fer fyrst til Vínar. Dakota-pistlar. Ritstj. Hkr. brá sér snöggva ferð suður í íslendinga-bygðina í Dakota i vikunni sem leið. Var honum að venju vel tekið og að venju leizt honum vel á bygðina. I heild sinni er uppskera skamt á veg komin, sem eðlilega orsak- ast af votviðrunum í vor er leið og þar af leiðanði því, að svo ómunalega seint varð sáð. Yfirleitt er uppskera heldur rýr, — mjög svo í samanburði við upp- skeruna í fyrra, enda tæplega sanngjarnt að bera venjulega uppskeru saman við uppskeru i makalausn velti ári, eins og því í fyrra. íbúðarhús Sigfúsar Ólafssonar, bónda á sandhæðunum, suðaustur af Hallson-pósthúsi, brann, að sögn til kaldra kola, á sunnudags morguninn 16 þ, m. Sagt var að litlu sem engu hefði verið bjargað af innanhús-munum. Ú tnefninga-fundur. Á fimtudaginn 20. þ. m. héldu de- mókratar í Pembina County úfnefn- ingafund sinn í Cavalier og mættu þar 81 erindrekar héraðsmanna. I County- sókninni höfðu demókratar og populist- ar komið sér saman um að vinna sam- an, og sjá um að engir umsækéndur þeirra flokka yrðu í vali, aðrir en þeir, sem kvaddir yrðu.til sóknar á þessum útnefningafundi. í því skyni höfðu einnig populistar fund í Cavalier sama daginn, til þess að samþykkja að fylgja aðvígum þeim demókrötum, sem til- nefndir yrðu á demókrata-fundinum og skuldbinda sig til að etja engum út til kapps við þá. Slíkt hið sama skuld- bundu demókratar sig til að gera, á sín- um fundi. Ágreiningur varð ekki um neina menn í kjöri, að undanteknum County- dómara. Hvernig þeim ágreiningi var varið vitum vér ekki greinilega, en af því ágreiningur varð, var úrslitum í því máli frestað til 14. Sept., en vissir menn kjörnir til að útkljá það mál. Að undanteknum dómara-störfunum er starf State-Attorny vanda mest og efst að virðingum. States Attorney er sem sé fulltrúi hins opinbera, þ. e. Da- kota ríkis, til að sækja öll glæþamál og önnur slík, sem sótt eru á kostnað rik- isins í héraðinu. Jafnframt er State Attorney æðstur lögsögumaður og ráð- gjafi county-stjórnarinnar og allra ann- ara stjórna í countyinu. Til að sækja um þessa eftirsóknarverðu stöðu var tilnefndur landi vor, Marjnús Brynjólfs- son, málaflutningsmaður í Cavalier. 1 kjöri eru þessir demókratar: J. M. Chisholm í Hamilton, sem skrásetjari skjala og sölusamninga í Pembina County. H. T. Coleman, Cavalier, sem skóla- umsjónarmaður. Tliomas Guinan, Canton, sem rík- isþingmaður frá 2. kjördeild. George Taylor, Bathgate, sem með- ráðamaður í héraðsstjórninni frá 3. kjördeild. Popúlistar og óháðir menn í kjöri eru: F. J. Farrow, Cavalier, sem sheriff í Pembina County. Fr. A. Hart, Pembina, sem Clerk of Court. W. Douglass, Lincoln, sem féhirðir héraðsins. Donald Thomson, Elora, sem reikn ingayfirskoðari countísins. JohnHeller, Hallson, sem rikis- þingmaður frá 2. kjördeild. Dr. Suter, Crystal, sem líkskoðun- armaður. F. Ebert, Cavalier, [sem mælinga- maður countísins. Friðdómarar fjórir og fjórir lög- regluþjónar voru og kvaddir' til sóknar og fengu populistar og hinir óháðu að tiltaka þá alla. Fundurinn var hinn friðsamlegasti Stóð yfir frá kl. 2. e. h. til kl. rúmlega 6 um kvöldið. Frá löndum. TINDASTÓLL, ALTA., 8. ÁGÚST ’96 Héðan er fátt að frétta. Tíðin á næstl. vori frá því seint í Maí var mjög þurr, svo varla kom skúr ’yfir allan Júnímánuð. I Júlímán, framanaf féll talsvert regn, er bætti mikið úr undan- farandi þurkum, en um miðjan mánuð- inn kom nokkurt næturfrost, sem stór- kostlega skemdi alt sáðverk, svo upp- skeruhorfur eru mjög slæmar víðast í þessari bygð. Hitar hafa verið ákafir áþessu sumri, stundum kringum 100 stig á Farenh., sem er sjaldgæft hér. — Grasvöxtur er hér í bezta lagi yfir alt, svo fengist hagstæðtíð, eru likur til að bændur heyi ágætlega, en því miður er ekki gott útlit með tíðina ; alla þessa viku hefir rignt á hverjum degi meira og minna og útlit fyrir framhald á sama. Alment var byrjað að heyja kringum 25. Júlí, en einstöku voru byrj aðir nokkru áður. — Heilsufar alment gott, og líðun manna bærileg. Islendingadagurinn varhaldinn hér 25. Júlí. Af því enn er ekki búið að á- kveða neinn vissan dag fyrir alla Vest- ur-Islendinga, þótti mönnum hér á litlu standa hver dagur tekinn var til hátíðarhaldsins. Samt þykir mér mjög líklegt að framvegis verði hér íslend- ingadagur 27. Júni, sem er landnáms- dagur bygðarinnar, þangað til búið er koma sér saman um einn og sama dag fyrir alla Vestur-íslendinga. Hátíðarhaldið fór fram á landi hra. Jóns Benediktssonar, nálægt smjör- og ostagerðarhúsi bygðarinnar. Samkom- an var ágætlega sótt; flestalt fólk bygðarinnar auk nokkura enskra. For- seti dagsins var Mr. C. Christinson. Skemtanir vovu : Ræður og söngur. Mr. J. M. Jónsson spilaði á orgel og stýrði söngnum. Fyrstvar sungið tví- raddað: Eldgamla Isafold. Þar næst setti forseti samkomunameð stuttri vel viðeigandi ræðu. Ræður og kvæði. Island. Ræða: Jónas J. Húnford. Kvæði: Jón Úlafsson; Vestur-Isl. Ræða: C. Christinson; Kvæði: St. G. Stephanson; Alberta. Ræða: Sigurður Jónsson; Kvæði: St. G. Stephanson; Minni kv. Ræða: J. J. Húnford; Kvæði: Matt., Jochumson. Næst var haft til skemtunar : Kapphlaup, stökk, egg-‘race’, kapp- reið, aflraun :á kaðli o. s. frv. Verðlaun voru veitt þeim er framúr sköruðu, en hve mikil eða hverjir þau hrepptu, er mér ekki kunnugt. Dans um kvöldið og nóttina til kl. 12. Allir voru glaðirog kátir, því veður var gott og sátt og samlyndi rikti hver- vetna. Sérstaklega skemti unga fólkið • sér vel bæði með fimleikum og dans. Mér þócti að eins eitt á vanta skemtun samkomunnar, nefnilega það, að minn kæri nágranni, skáldið okkar St. G. Stephanson, var nú fjarstaddur; hefir hann unnið við landmælingu síðan í Maí norður og í kringum Edmonton, og óvíst hvort hann kemur fyrr en haust. Tveir aðrir voru nýkomnir þaðan, Mr. Th. Guðmundsson og S. Magnússon, sem líka hafa verið við landmælingu síðan í vor. J. J. H. Eftir Sunnanfaia. Jón rektor Hjaltalín frá Möðruvöll- um dvelur hér í borginni í sumar sér til heilsubótar. Hefir orðið að láta gera hættulegan skurð á sér, er þó tókstvel, og er hann nú á góðum batavegi. Flensborgarkennararnir báðir, Jón Þórarinsson og Jóhannes Sigfússon, dvelja etlendis í sumar. Sömuleiðis Morten Hansen barnaskólastjóri úr Reykjavík. Kaþólskir ætla nú að fara að herða sig á íslandi. VTilja líklega ekki vera minni en hjálpvæðisherinn. Frá þeim stafa hin iniklu og ágætu samskot til holdsveikisspitalastofnunar á fslandi. Kaþólsknr piestur hefir verið í Reykja- vík nú hið síöasta ár, og nú með Lauru fór þangað kaþólskur aðstoðarprestur séra Max Osterhammel. Með því skipi fór og móðir Ephrem, ervera skal prí- órissa í Reykjavíkurklaustri, enn frem- ur systir Jústína, systir Clemence og systir Thekla. Kvað meðal annars eiga að stofna kaþólskan skóla í Reykjavík. Það er þó einhver myndar skapur á þessu, og því spáum vér, að meira gagn standi íslendingum af at- höfnum slilí'a kaþólskra manna en stofnun hjálpræðishersins, þó aldrei nema prestaskólakennararnir sjálör (lektorinn, piltar mínir!) lýsi því ifir að Jesus Maríuson, vor frelsara, er pínd- ur var upp á þann heilaga kross, mundi heldur hafa viljað hlusta á halelújáin og skrípalætin hjá hernum en fyrirlestr- anaáPrestaskólanum. Það mega vera dáindisfallegir fyrirlestrar! Katholskir koma nú til íslanda með líknandi hend- ur og hina prúðustu kirkusiði, en hjálp- ræðisherinn kemur þar í nafni drottins með tvær hendur tómar, kvabb og skrípalæti. Hjalpræðisherinn er eitt af því, sem mönnum á íslandi kann að að þykja gott af því það er útlent, þó að það geti ekki komið að neinu haldi á íslandi, þar sem liagar alt öðruvísi til en víðast hvar annarstaðar. Próf i heimspeki tóku í Júní við há- skólan: Páll Bjarnason ágætiseink., Björn Bjarnason, Páll Sæmundsson, Sigurður Eggerz, Jón Sveinbjörnsson, og Karl Einarson, allir með fyrstu ein- kunn. Botnvörpurnar. Hans hátign Dana- konungur hvað nú haíi gefið lögbrjót- unum, sem sektaðir hafa verið í ár fyrir botnvörpuveiðar í landhelgi við ísland, upp allar sakir og sektir. Hinum, sem brotið hafa lögin við Jótlandsstrendur, er ekkert uppgefið af sektunum. Annað- hvort er nú, að dönsku stjórninni þykir minna skifta þótt brotin sé lög á ís- lendingum en Dönum, eða, séu nú brotin jafn stór, þá er henni ósárara um fé landssjóðs íslands en ríkissjóðsins. Islands-fréttir. Eftir Stefni. Akureyri, 31. Júlí 1896. Tíðarfar vætusamt að öðru hverju, en góðir þurkar á milli, svo töður manna hafa eigi hrakizt. 20. gerði kuldahret og gránaði þá ofan i mið fjöll en stóð stutt. Grasspretta almennt tæplega i með- allagi, en útengi mun víða ekki full- sprottið. Lifrarafli á þilskipum töluverður í siðustu ferðum, þó er ísinn alt af öðru hverju hákarlaveiðinni til fyrirstöðu á hinum nyrðri miðum. Beituleysi fyrir þorsk hefir lengst af verið mikið á Eyjafirði í alt sumar, og því fiskast langt um minna en ella myndi hafa orðið. Viðkvæðið er því nú: “Upp með íshúsin”. Hval rak eða var róinn í land á Ás- búðum á Skaga (fullar 20 álnir). ----»>« »»------ Eftir Þjóðólfi. Biáðabyrg'ðarsamningur í botnvörpumálinu hefir komizt á milli landshöfðingjans af annari hálfu og George L. Atkinson yf- irráðanda ensku skólaflotadeildarinnar, er hér hefir dvalið um tíma, af hinni, þess efnis, “að brezkum botnvörpuskip um skuli frjálst að koma inn á og nota hverja höfn á íslandi frá 10. Júlí 1896 hér á ströndinni og frá 25. Júlí 1896 á austurströndinni og að nota siglinga- leiðina milli Vestmannaeyja og lslands og milli Reykjaness og fuglaskerja, svo framarlega, sem þeir hafa botnvörpur sínar i búlka og ekki búnar til fiski- Niðurl. á 4. bls. Sigur lœknisfræðinnar Hjartveiki og langvarandi kvef læknast undireins við Dr. Agnews dásamlegu lyf. ‘Ég reyndi Dr. Agnews Cure for the Heart og fékk undireins bata. Eg hefi tekið 4 fiöskur og finn nú ekkert til hjartveikinnar og vona það, að yfiríýs- ing þessi leiði aðra sem þjást eins og ég þjáðist, til þess að 'reyna þetta ágæta meðal’. Þannig skrifar i homas Petry frá Aylmer í Quebec. Er það auðveít mjög að sanna vitnisburði þá sem til- færðir eru fyrir þessu dásamlega lyfi hinnar nýju læknisfræði. Þúsundir manna hafa reynt ágæti þess, er höfðu verið í lækna höndum árum saman, og höfðu enga von um bata. Ef að það sem hið síðasta úrræði, er nú svona hjálpsamlegt, hvaða þjáningar gætu menn þá ekki sparað sér, ef að menn reyndu Agnews Heart Cure þegar menn fyrst. findu til veiklunar fyrir hjartanu. KVEF. ‘Eg þættist ekki gera skyldu rnína, ef ég mælti ekki með Dr. I Agnews Catarrhal Powder við hvern og einn’, segir George Lewis frá Shiunokin, Pa , þvi að það er ætlan min að 80—90 j af hverjum 100, sem þetta kemur fyrir, eru meira eða minna þjáðir af þessari varasömu og hættulegu veiki. Það er að eins til oin einasta viss og óhult lækningaaðferð: Dr. Agnews Catarrhal Powder. Enginn kvilli er svo lítilfjör- legur að menn megi vanrækja að fá lækning a honum, ekkert sjúkdómstil- felli er svo ákaft eöa rótgró;ð, að það ekki fidlkomlega læknist; ekkert annað meðal hefir reynzt jafn ágætlega. ekk- ert annað meðal fengið annað eins og jafn verðskuldað lof. og ekkert annað meðal er til, sem læknar hafamælt eins fram með sem þetta. Sjúkdómur þinn er ekki ólækuandi, ef að hægt er að rá í Dr. Agnews Catarrhal Cure.

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.