Heimskringla - 03.09.1896, Page 2
HEIMSKRINGLA SEPT 3 1896.
Heimskringla
PUBLISHED BY
The IleimskrÍDgla Prtg. k PuM. Co.
•• ••
Verð blaðsins í Canda og Bandar.:
82 um árið [fyrirfram borgað]
Sent til íslands [fyrirfram borgað
af kaupendum bl. hér] 8 1.
• •••
TJppsögn ógild að lögum nema
kaupandi sé skuldlaus við blaðið.
• •••
Peningar sendist i P. O. Money
Order, Registered Letter eða Ex-
press Money Order. Bankaávis-
anir á aðra banka en í Winnipeg
að eins teknar með aSöllum.
• • ••
EGGERT JOHANNSSON
BDITOR.
EINAR OLAFSSON
BUSINBSS MANAGER.
• • ••
Office :
Corner Ross Ave & Nena Str.
P. O. Kox 305.
Yinnumannaeklan.
Hvernig sem ]á því stendur finst
■Xögbergi sjálfsagt að vér höfum í grein
vorri ‘Vinnumannaeklan’ verið að drótta
! því að Manitobastjórninni, að hún vildi
taka brauðið frá munni þurftugra fylk-
Isbúa og gefa það austanmönnum. Það
segir gamall málsháttur, að ‘sök bíti
sekan’. Má vera að hann komi hér
heim. Þegar vér rituðum þá grein
vakti ekkert slíkt fyrir oss, heldur það
eitt, að þetta er orðin reglan, en sem
oss finst viðsjárverð, að fylkisstjórnin
járnbrautarfélagið og atvinnuumboðs-
mennirnir vinna saman að því f byrjun
■uppskerunnar, að raka austanmönnum
saman hér vestra án tillits tilþess hvort
brýn þörf er á þeim eða ekki. En það
kom oss ekki í hug þá, að- fylkisstjórn-
in ynni sinn hluta þessa verks í illri
meiningu—i því skyni að taka brauð
frá mönnum hér. En úr þvf Lögberg
tók þannig í strenginn, þá eru satt
sagt töluverðar lfkur fengnar fyrfr áð
svo sé, að stjórnin sé að ávinna Isér
hylfi C. P. R. félagsins með því að
hjálpa til að útyega því farþegja sem
það annars fengi ekki. Þett má vel
vera. Vér skulum ekkert þrátta um
það. Sannleikurinn er undir öllum
kringumstæðum þessi, að stjórnin á
-sinn þátt, og hann stóran, í þ.ví, að C.
P. R. félagið geturdyngt mönnum vest-
ur hingað með loforðum um vinnu.
Blaðið bendir á að menn hér, sem
vilja fá uppskeruvinnu, hafi ekki gefið
sig fram. Það er sakleysisleg setning,
en við hvern, eða hvar, áttu menn eða
eiga menn að gefa sig fram ? Frá því
er ekki skýrt, en þar einmitt er mergur
málsins. Vér segjum nú, það sem vér
ekki sögðum um daginn, þó oss dytti
það í hug, að fylkisstjórnin er vitaverð
fyrir það að gefa mönnum hér búsett-
um ekki tækifæri til að gefa sig fram,
áður en farið er að leita eftir mönnum
eystra. Það sýnist enginn hlutur auð-
veldari en að auglýsa atvinnuboðið í
þeim hlutum fylkisins, þar sem korn-
yrkja er ekki stunduð, svo sem hálfum
mánuði áður, en biðja skal um menn
eystra, og segja þar frá hvar nánari
upplýsingar fáist, ef menn gefi sig fram
fyrir ákveðin dag. Það mætti enda
senda slíkar auglýsingar þangað jafn-
framt og sendar eru spumingarnar í
kornyrkjuhéruðin um það, hvað marga
menn þurfi þangað. En þetta er ekki
gert og enginn viss staður, svo alipenn-
ingi sé kunnugt, þar sem menn geti
gefið sig fram, er þeir bióða sig til upp-
skeruvinnu.
Blaðið segir enn fremur, í ósköpun-
um að skella allri skuldinni á járnbraut-
arfélagið, að þessir sérstöku mannflutn-
ingarsé kölluð ‘Farmers Excursion’.
En það er ekki rétt. ‘Farmers Excur-
sions’ eru þegar fyrir æði tíma afstaðn-
ar. Félagið kallar þessiu mannflutn-
inga “Harvest Laborers Excursions,”
eða skemtiferðir til þess að taka þátt í
uppskerustörfum hér vestra.
í sama blaði er Lögberg að reyna
að sanna, að Hkr. hafi sagt ósatt um
úrslit kosninganna að því er snertir at-
kvæðafjölda flokkanna. Vizku sina í
því efni hefir það eftir Montreal ‘Witn-
ess’. Vér höfum séð greinar um þetta
efni í ‘Witness’ oftar en einusinni, en
aldrei munum vér eftir að hafa séð þær
tölur sem Lögberg með svörtu letri seg-
ir að tákni fleirtölu atkv. hinna ‘liber-
ölu’, þ. e. 68,000. Vér höfum séð það,
að ‘Witness’ fellur sá sannleiki illa, að
Laurier-stjómin er minnihluta stjórn í
raun og sannleikaog vill gjarnan breiða
ofan yfir það. En aldrei hefir því kom-
ið í hug að segja ósannan framburð
þess manns, er færði í eina heild tölu
atkvæðanna. Það leyfir ‘Witness’ ser
ekki að gera á meðan gamli Dougall er
á lifi og hefir nokkuð að segja. Hann
er of mikill sómamaður til þess, þó
hann sé of stækur flokksmaður. Ef
blaðið þá viðurkendi rétta tölu atkv.,
sem hvorum flokki voru helguð, þá er
og augsýnilegt að þýðingariaust var að
segja fleirtöluna 68,000, en 64,699 mátti
segja hana í nauðum, með því að telja
alla aðra en viðurkenda conservatíva
fylgismenn ‘lberala’, og það gerði ‘Wit-
ness’ í vandræðum sinum og þá koma
tölurnar þannig út:
Atkv. ‘liberala’ alls 397,194
“ allra aukaflokka 80,511
Samtals 477,705
Þar frá dregin atkv.
conservatíva 413,006
Verða eftir 64,699
Með þessu móti rubbar ‘Witness’
og ‘góðir menn aðrir fleiri’ upp heil
mikla fleirtölu atkv. fyrir ‘liberala,—
með því að helga sér alla ‘óháða’ menn:
patróna, McCarthy-íta og ‘óháða con-
cervatíva’. Tíminn leiðir í ljós hvert
traust verður fylgi allra þeirra. En
víst er það nýtt og þá sjálfsagt ekta *li-
beralt’, að ein stjórn helgar sér í upp-
hafi og að öllu óreyndu fylgi allra þeirra
manna, sem í sókninni hafa talið sig
óháða.
Þannig er þessi ‘stóri sannleikur’
‘liberaia’, þegar hann er gaumgæfilega
skoðaður, og áþekkur þessu er allur
sannleikur þess flokks á öllum ársins
tímum, — álitleg bóla, en sem verður
að engu ef við hana er komið.
Uppskeian.
Miðsumarsuppskeruskýrsla fylkis-
stjórnarinnar er nú út komin og er á-
ætlunin, að korntegunda uppskera í ár
verði samtals 39,267,958 bush., á móti
meir en 63 milj. bush. í fyrra.
Sundurliðuð er áætlunin þannig :
Hveiti verður slegið á 999,598 ekrum og
er ætlað er á 18.57 bush. af ekru hverri
að meðaltali yfir alt, fylkið; gefur það
18,565,198 bush.
Hafrar verða slegnir á 442,445 ekr-
um. Meðaluppskera áætluð 37.5 af ekru
er gerir 16,683,222 bush.
Bygg verður slegið á 127,885 ekr-
um. Meðaluppskera áætluð 29.9 af
ekru, er gerir samtals 3,696,460 bush.
Allar aðrar korntegundir—flax rúgur
ertur—verða slegnar á 24,558 ekrum,
og er áætluð uppskera samtals 373,078
bush. Meðaluppskera af hör er áætluð
14.2, af rúgi 20.4, ertum 20.5 bush. af
ekrunni.
Ekratal hveitis er hér talið miklu
minna en það sem sáð var í i vor og ber
tvent til þess, að tölunum ber ekki sam-
an. Fyrst það, að í vor er leið var í
vandræðunum til reynslu sáð í 164,725
óplægðar ekrur.þ. e., sáð meðal stanga-
stofnanna sem stóðu frá því í haust er
leið. En sú varð raunin með hveiti-
sprettu þar, að meir en helmingurinn
varð ónýtur, eðtt svo ónýtur, að bænd-
ur sáu kostnaðarminst að plægja þá
akra í sumar, eins og ef ekki hefði verið
sáð í þá. Þar skakkar því um 90,000
ekrur. Svo eyðilagði haglið uppskeru
á fleiri stöðum í fylkinu i sumar en
nokkru sinni áður og á meira svæði i
hverju sérstöku héraði. Hvað margar
ekrur haglið eyðilagði er ekki ákveðið,
en áætlað er að tjónið svari 1—2 milj.
bush. Þetta tvent orsakar það að ekra
talinu undir hveiti nú ber ekki saman
við það í vor.
I sumar hafa verið plægðar að nýju
82,710 ekrur af .landi og 361,610 ekrur
voru plægðar, sem hvíldar voru í fyrra.
Nú þegar eru því tilbúnar fyrir sán-
ingu næsta vor 444,320 ekrur.
Bezt spratt hveiti í þeirri jörð, sem
hvíld hafði verið í fyrra. eða þá plægð í
fyrsta skifti í fyrra. — Hveitið er víða
ryðgað, sumstaðar bæði stöngin og ax-
ið, þar sem því var sáð mikið seinna en
venjulegt er.
Upp á spurningu stjórnarinnar á-
hrærandi vinnumanna þörf, kom það
svar, að þörf væri á 2700. En eftir að
þau svör voru rituð geysuðu skæðustu
haglélin og ollu mestu tjóninu. Stjórn-
in gerði ráð fyrir að í þeim héruðum er
haglið geysaði yfir, mundu svo og svo
margir þurfa að fá vinnu hjá öðrum i
stað þess að fá aðra til að vinna hjá
sér. Þess vegna áleit hún sennilegast
að nóg væri að segja þörf á 2000 vinnu-
mönnum og það var gert. Og þeir menn
allir íengust vandræðalaust eystra og
komu til Winnipeg 20. f. m.
í sambandi við þetta má geta þess,
að um síðustu helgi var áætlað að búið
væri að slá um 80% af hveiti og 40—50%
af öðrum korntegundum að meðaltali í
öllu fylkinu. Þresking byrjaði sum-
staðar snemma í fyrri viku og í viku-
lokin síðustu var víða verið að þreskja,
—úr drílunum allstaðar, því litið ef
nokkuð var þá búið að stakka.— Fyrsta
vagnhlass af hveiti var sent af stað til
útflutiWngs 26. Ágúst og síðan hefir
hveitiflutningur aukizt á hverjum degi,
þó ekki kveði mikið að honum enn, því
bændur hafa of mikið að gera við upp-
skeru enn þá, til þess að gefa sér tóm
til að flytja hveiti til markaðar. Það
gera þeir einir enn, sem búa rétt við
vagnstöðvar og sem eitthvað eru búnir
að þreskja.
Heyafli er sagður með langmesta
og bezta móti hvervetna i fylkinu.
Minni íslands.
[Ræða lierra J. J. Húnfjörð á fs-
lendingadaginn í Alberta 1896].
Heiðruðu tilheyrendur, kæru land-
ar og löndur !
Með hjartað fult af innilegustu til-
finningum og blíðum endurminningum
horfinnar tíðar, en höfuðið tómt eins
og vant er, kem ég nú fram á ræðupall-
inn á þessum vorum hátíðis- og fagnað-
ardegi. Verkefni það, sem mérer feng-
ið til meðferðar i dag, er svo umfangs-
mikið, að mér finst ég nærri verða að
engu gagnvart því. Það er oss svo
harla mikilvægt, svo innilega hugð-
næmt, að minnast Islands, vorrar kæru
fósturjarðar norður við heimsskaut, að
oss getur hreint ekki staðið á sama
hvernig við gerum það.
Það sem fyrst verður í huga ’mín-
um, þegar ég minnist á vort kæra fóst-
urfrón, er náttúrufegurð þess. Andi
minn svifur til æskudaga minna. Kom-
ið með mér, kæru syskini, í anda, heim
til smalans í fjajlshlíðinni, sem skreytt
er allskonar urtum og blómum, þar sem
lækirnir falla niður óðfluga, eins og
mannsæfin, sækjandi allir að einu og
sama takmarki; hverfum þaðan upp á
brúnina við dalsbotninn og lítum þaðan
yfir fjörðinn og sjóinn utar frá, þar sem
fiskibátarnir hlaðnir leggja að landi,
einn eftir annan. Litumst enn um á
blíðum sumarmorgni; þykk þoka breið-
ir sig yfir dali og firði, en upp úr henni
risa hjallar og himingnæfandi hnjúkar,
uppljómaðir af dýrðarskini árdags sól-
arinnar, en sjórinn sýnist taka miðjar
hlíðar í fjöllunum, unz þokunni léttir
smámsaman af, og vér sjáum spegilfagr
an sjóinn í firðinum <•; árnar í dölun-
um, sjáum skrúðgræn túnin fram með
hlíðinni; þá heyruin við smalana hóa
og búsmalanu renna skáhalt götur sín-
ar heim að kvíunum. Förum svo um
fjöll og afréttir um hásumar daga, og
hvað ber þá fyrir augu vor ? í fjarska
gnæfa við hinii snævi þöktu jökultind-
ar, en niður frá þeim aflíðandi hjallar,
unz undirlendið tekur við; grösugir
hálsar og hæðir, dalir og dældir, með
ám og stöðuvötnum stórum og smáum.
Á þessu svæði er fagurt að litast um,
þar sem afréttapeningurinn hundruðum
saman breiðir sig yfir heiðarnar og vel-
ur sér hið bezta af haglendinu. Eg er
viss um að fáir af oss geta með köldu
blóði virt fyrir sér þessar og ótal fleiri
myndir frá ættjörðu vorri, hver klett-
urinn, hóllinn, hvammurinn, lautin og
lækurinn á i hjarta voru sína sögu, sína
æskuminning.minningar gleði og hrygð
ar, en allar hjartfólgnar og allir vér,
eigum óþrjótandi safn af þessum minn-
ingum. Ég veit vel að sumir af oss,
hafa átt við basl og andstreymi að búa
heima. Eg veit að margir af Vestur-
íslendingum voru þar hraktir og hrjáð-
ir, af óblíðu náttúrunnar, rangsleitni
mannanna og mótbyri hamingjunnar,
en ég þori samt að fullyrða að enginn
er sá, að ekki eigi þó endurminningar
um yndis og unaðarstundir frá fóstur-
jörðinni gömlu. Já, vér elskum ísa-
foldu”, meir en vér getum elskað nokk-
urt annað land; vér elskum hana þeirri
elsku, sem góð börn elska móður sína ;
góð börn geta ekki elskað neina aðra
konu, eins og móður sína; vér getum
ekki elskað neitt annað land eins og ís-
land, því vér erum börn þess, en einsk-
is annars lands.
Af þessari ástæðu, sem ég nú tók
fram unnum vér gamla Islandi meir en
nokkrum öðrum bletti á hnettinum og
svo auðvitað af hinni, að þar stóðu
vöggur vorar, hinna eldri; þar grær
bernskulíf vort saman yið náttúru þess,
hún var það fyrsta, ei hreif vor barna-
hjörtu, og gróðursettu hjá oss þær
minningar, sem vara um aldur og æfi.
Að visu getur maður ekki búizt við,
að vor yngri kynslóð, sem annaðtveggja
kom í reifum frá gamla landinu, eða er
hér innfædd, minnist með sömu til-
finningum ættjarðarinnar og vér hin-
ir eldri, en samt býzt ég við að hjá
henni hreyfi sér virðing og elska fyrir
ættjörðu sinni.
Saga þjóðar vorrar sýnir ljóslega,
að hún hefir átt tvö mjög ólik tímabil,
sýnir, að hún hefir átt sína gullöld, en
eigi síður þrældóms- Qg kúgunaröld.
Gullöld ættjarðar vorrar má óhætt
nefna hin fyrstu 400 ár eftir að land-
nám hófst. Þá dafnaði dáð og dreng-
skapur forfeðra vorra undir frjálsri
lýðstjórn, þá var frelsi og frægð mark-
mið þjóðarinnar, enda fleygði þá hin-
um kynstóra norræna þjóðflokki hrað-
fara áfram á manndóms- og menninga-
stigi. Þeir, eins og einn af vor-
um mestu-skáldum segir : “jukust að
íþrótt og frægð, undu svo glaðir við
sitt”. Slík var gullöld ættjarðar
vorrar.
Næstu 500 árin, eða frá því seint á
13. öldinni fram um siðastl. aldamót
mega með sönnu teljast kúgunar og
þrældómsaldir Isl. — Eptir að landið
kom undir konungsvald, tók ástand
þess sorglegum breytingum. Land og
þjóð var færð í harðstjórnar og kúgun-
arhlekki, ekki að eins af konungs vald-
inu heldur einnig af klerkavaldinu;
enda hnignaði þá þjóðinni stórkostlega;
manndáð, frelsi og frægð, sem áður var
þjóðarinnar einkenni,hvarf nú að mestu
Hin útlenda stjórn, sem hvorki þekkti
landshagi né þörf þjóðarinnar, eða
skeytti velferð hennar að neinu leyti,
færði landsmenn i hlekki ánauðar i and-
legu og likamlegu tilliti. Umboðsmenn
hinnar dönsku stjórnar, sem bæði voru
ranglátir og fégjarnir, skeyttu engu
frekar en féfletta landið, en bæla niður
allar sjálfstæðis- og frelishvatir þjóðar-
innar; enginn sem var nokkursvirði gat
verið óhultur um líf sitt og eignir; því
alt var hripsað sem nokkur slægur þótti
í, annað hvort af ranglátum eða sam-
viskulausum ráðsmönnum konungs, eða
þá af byskupum og klerkum þeirra, sem
hreint ekki létu sitt eftirliggja, að
auðga sig í nafni kyrkjunnar, ensem þá
að mikluleyti féll i konungseign á önd-
verðum dögum siðabótarinnar, enda var
þá auðmagni landsins sópað í burtu,
svo miklu fé, að eigi var unt tilupphæð-
ar að reikna; svo miklum auði, aðhefðu
Danir átt að endurgjalda þá skuld,
mundi þeim hafa legið við vergangi;
ofan á alt þetta bættist, að hver plágan
á fætur annari æddi ylir landið; svarti
dauði nál. 1350; stóra plágan 1494—95
og stórabólan 1706, sem kvistaði þjóð-
ina niður unnvörpum; aukaþessa dundi
harðæri yfir landið af átökum elds og
ísa og þó gátu öll þessi öfl ekki eyðilagt
hina fámennu, fætæku, en þrekmiklu
þjóð. Nei, hún átti enn að sjá sælli
daga; að vísu var stjórnarbót sú, sem
gefin var nú fyrir hálfum þriðja tug ára
mjög ófullkomin og takmörkuð og full-
nægir i engan stað þörfum þjóðarinnar,
en þó verður ekki annað sagt en með
henni hafi margt breytzt til batnaðar,
á vorri kæru fósturjörðu; þrátt fyrir
mörg hundruð ára þjáningar og ör-
kumsl, getur nú vort kæra gamla ís-
land verið stolt af því, aðveraeinaland-
ið í heimi, sem engar ríkisskuldir hehr,
en hefir sparað nálægt 2 millíónir króna,
auk þess, sem það hefir lagt fram til
likamlegra og andlegra þrifa ógrynni
fjár. Aldrei siðan á gullöldinni hefir
framtíð íslands verið einsbjört sem nú;
það einmitt eykur gleði vora i dag að
“ísland á sér endurreisnar von”. Eða
er það ekki gleðilegt, að engin þjóð á
hnettinum — ég segi það hátt og ófeira-
inn — getur talið jafnmarga andans at-
gervismenn í samanburði við fólkstölu
sína, eins og vér íslendingar getum á
þessum degi.
Eg trúi þvi fullkomlega, ég treysti
þvi, ég vona það, að blessuð gamla
Fjallkonan eigi enn fagra frelsis- og’
framfaratið fyrir höndum ; að manndáð
og menntir, frægð og frami falli henni í
skaut, svo synir hennar geti staðið
framarlega, jafnfætis beztu sonum ann-
ara þjóða.
Kæra Island, land feðra vorra,
héðan úr fjarlægðinni sendum vér, börn
þín, hlýja andanskveðju heim til þín. í
dag óskum vér bræðrum yorum og
systrum, öllum Austur-Islendingum
hamingju og lieilla ; óskum þeim af al-
hug styrks og sigurs í frelsis- og fram-
farabaráttu sinni.
Lifi og þróist, blómgist og blessist
framtíð gamla íslands; lifi vort kæra
feðrafrón, lifi vor elskaða ættþjóð, “eins
og hún nú lifir í ást vorri og endur-
minningu.
Lifi gamla ísland í ljjóma frelsis
og framfsra um þúsundir ára!
Hvað er það, sem uni-
tarar halda fram?
Rev. P. B. Forbush, yfirumsjónar-
maður Unitarafélags í Ameríku, flutti
tölu þessa fyrir unitarfélagi Islendinga
í Winnipeg eigi alls fyrir löngu.
Kvaðst hann fyrst eigi tala sem
sá er vald hefði, því að eftir félagsskip-
un Unitara hefði enginn maður rétt til
að valdbjóða öðrum skoðanir sinar, en
40 ára reynsla sín hefði gert sig kunn-
ugan því, hverju Unitarar alment trúa.
Nú á dögum hirða Unitarar lítið
am deilur; þeir kjósa heldur að skýra
hreint og beint eigin hugsanir sinar, en
að ráðast á trú annara flokka. Heim-
urinn vill nú ógjarna hlusta á það, sem
menn ekki trúa. En ef að þú trnir
einhverju af allri þinni sál og skýrir frá
því með hjartnæmum hrífandi orðum,
þá verða menn fúsir að hlusta og gefa
því gaum, Hin besta aðferð að uppræta
villuna er sú, að kenna meiri og göfugri
sannleika. Af þessu kemur það, að vér
ráðumst ekki á hinnar gömlu kenningar
en reynum að setja fram göfugri hug-
myndir um guð og manninn, sem þekk-
ing áiinnar 19», aldar hefir gert oss mögu-
legt að öðlftst.
Það sem nútíðftrmennirnir fremur
öllu öðru treysta á er það, að heimur
þessi gangi eftir vissum lögum og öflum,
sem eftir eðli sínu séu með öllu óbreyt-
anlega. Hin eilífa spekin gengur stöð-
ugt og óbreytanlega áfram án þess að
líta til hægri eða vinstri. Náttúrulögin
eru hin sömu i gær og i dag og að eilífu.
Af þessu leiðir að nútiðarmennirnir
finna kraftaverkunum hvergi stað. Öfl
þau, sem tengja heiminn saman, fara
aldrei að brjóta sín eigin lög, þau eru
ekki ein í dag og önnur á morgun. Hvað
sem fyrir kemur, það skeður samkvæmt
þessum lögum, þessum lögum, sem stað-
ið hafa frá eilífð. Hvort heldur það er
að laufið fellur af trénu, eða heimar
skapast,hvort heldur það er að fuglinn
lifnar í egginu, eða, að flutt er ræða,
sem fjallræða Krists, þá er það alt einn
hluti af þessari afarstóru heild, heims-
stjórninni eða gangi heimsins. Það er
alt jafn náttúrlegt eða jafn yfirnátt-
úrlegt.
Því að með allrl trú vorri á algildi
lögmálsins og reglunnar, þá getum vér
aldrei gleymt því, að" lögmál er ekki
hlutur eða afl. Lögmál er hvorki meira
né minna en hinn reglufulli máti, sem
aflið verkar eftir. Qg fyrir sjónum
vorum er aflið, sem alsstaðar opinberar
sig í heiminum og heLdur honum saman,
guð, liin ótakmarkaða og .eilifa upp-
spretta allra hluta. Alt afl er guðs afl,
alt líf er guðs fif. Það er afl hans, sem
lætur grasblaðið springa út, skýin ber-
ast um loftið, sólirnarhinar miklu ganga
eftir brautum sinum. Það er hans afl,
iem veldur ástarljómanum í augum
'ianna, og hugsunuinum og tilfinning-
aiim í heila og hjarta mannsins. ÖIl
amrás heimsins, £rá hinni frumlegu
-Idþoku, til stórvirkja andans og sið-
iei ðisins er máti sá, er guð opinberar
si■' á í alheiminum. Vér sjáum guð alls
s’aðar, í öllum hlutuBtt. Aflið sem op-
i 11 bet ar sig i alheiminum er hið eilífa
i.il; andi mánnsinser hinn guðdómlegi
andi; hinn allsstaðarnálægi, sístarfandi
guð er vor eilífii faðir. Vér lifum fyrir
það að hugsun hftns lífgaði oss, fj'rir ást
hans á oss er líf vort fult af guði, fyrir
það finnst oss heimurinn fagur, fyrir
það getum vér glaðst og hugsað og
elskað. Þessi hinn heilífi elskulegi guð,
í hverjum og fyrir hvern vér lifum og
sem lifír i oss og með oss er hið fyrsta
skilyrði allra hluta. Þessi hugmynd
setur alla Muti í samband við guð og
gerir hið óbreyttasta líf guðdómlegt.
Þegar nú guð er þannig “alt í öllu”
eins og Páll postuli segir, þá getum vér
ekki hugsað oss mann öðruvísi en guðs-
barn. Það er hinn sami eilífi andi, sem
hefir opinberað sig i allridásemd og dýrð
alheimsins, sem á sínum eigin tima
iklæddist manninum og framleiddi hann
sem hið göfugasta allra sinna verka.
Maðurinn er guðs æðsta opinberun í
tima og rúmi. í honum kenlst andinn
á sina hseðstu tröppu. Líf mannsins er
guðs líf eins sannarlega eins og lif blóms
ins eða trésins. En hjá manninum er
það á hærra stigi, hefir meira í sér af
hiuni eilífu hugsun og ást. Maðurinn
gerði sig ekki sjálfur, heldur gerði guð
hann. Maðurinn skóp ekki og hefir
ekki ábyrgð fyrir ástæðum þeim, sem
giltu við komu hans í heiminn. Hinn
eilífi faðir bjó það alt undir og þegar alt
var tilbúið, þá kom maðuriim á jörðina
á guðs tíma og vegum. Og einlægt síð-
an hefir hann lifað og þroskast eftir ráð-
stöfun guðs. Stundum fellur oss ekki
hvernig lífið mannkynsins hefir gengið,
en vér megum ekki gleyma því að það
er aðferð guðs að menta mannkynið, að
það er aðferð hans til að efla þroskun
hugans til að þekkja og hjartans til að
elska og tilbiðja hann. Og fyrst að það
eru guðs vegir, þá hlýtur það að vera
best þó að oss stundum kunni að finn-
ast það ófullkomið. Ef að menn hugsa
öðruvísi, þá ásaka raeun hina eilifu ást
og speki.
Sem guðsbarn ætti maðurinn að
komast við og gleðjast í guði sínum ei-
lífa föður. Hér kemur til trúarleg hugs-
an, tilfinning og tilbeiðsla. Þegar mað-
urinn verður sér meðvitandi guðs, þeg-
ar hann finnur til hins eilífa lífsins sem
í honum býr og hann er partur af, þá
hlýtur það að vekja huga hans og gera
hann glaðan. Og þessi hugsun um hinn
eilífa og þessi gleði í guði, og lífi því,
sem hann gefur, er tilbeiðsla, hvort
heldur hún kemur fram i söng sálma.eða
í bæn eða þögn sálarinnar.
Sumir segja: “Ef að guð er svo
góður, að hann er fúsari á að gefa en
vér að biðja, hvað þurfum vér þá með
bæn eða tilbeiðslu ?” Þörfin er í oss
sjálfum en liggur ekki hjá guði. Ef að
í hjörtum vorum er nokkur kærleiki eða
blíða, þá getum vér ekki látið vera að
dást að þessu dásamlega lífi, að þessum
eilifa kærleik. Vér erum ekki verðir
þess að kallast börn, ef að vér ekki þýð-
umst þessa yfirgnæfanlegu blessum því-
liks föður. Vér getum ekki annað, vér
fyllumst aðdáunar, vér fyllumst gleði,
vér syngjum vora gleðisöngva, vér
flytjum honum þakkir vorar. Og svo
biðjum vér um styrk til þess að sigra
alla erviðleika, til þess að bera byrðar
vorar, og setjum oss þannig í samband
við hin andlegu öfl og opnum þannig
hlið himnanna, svo að til vor geti
streymt geislar hins guðdómlega iífs og
, ljóss. Sumir kunna að segja: “Bænin
: getur ekki breytt gangi eða reglu al-
lieimsins og sökum þess er hún gagns-
laus.” En þó að bænin breyti ekki lög-
máli alheimsins getur það þá ekki verið
að bænin sé einn hluti af niðurröðun eða
lögmáli heimsins og að hin eilifa regla
sé ekki fullkomin fyrri en vér í alvöru
biðjum um það, sem vér andlega þurf-
um. Vinna eður starf breytir ekki reglu
allieimsins, en án vinnu getum vér ekki
brauð fengið. Þær blessanir eru vissu-
lega til, sem hinn almáttugi guð getur
ekki veitt öðrum en þeim, sem biðja
þeirra alvartega; ekki fyrir það, að hann
sé nísku-r, lieldur fyrir það að þeir einir
geta öðlast þær, sem biðja. Ljósið get-
ur að eins komið inn um óbirgða
glugga. Hin æðsta andlega blessun
getur að eins komið til þeirra sem leita,
ef þeir megi öðkst hana.
En hvað um Krist? Hann er hin
hreinasta og göíugasta íbúð anda guðs,
sem verandi er i öllum mannlegum sál-
um. Hann er hið fullkomnasta blóm
mannkynsins. Mannky/iið á sér marga
blómatima í eina . stefnu og aðra, en
Kristur sýnir þeirra guðdómlegu hlið.
Hann er merkisberi þess, sem er sjald-
gæfast og helgast, hins kærleiksfulla
og blíða og trúartega. Hann er hrein-
astur, sannastur, óbreyttastur mann-
anna sona og i sér felur hann meira en
nokkur annar hinn eilífa takmarka-
lausa hreinleika, sannleika og ein-
feldni. Og af því að þetta bjó svo fylli-
lega í honum, þá varð hann hinn mikli
spámaður heimsins og trúarhöfundur.
Barn var hann Jóseps og Maríu eftir
holdinu, en þó var hann sonur guðs
fyrir íbúð andans, og hina sönnu sonar-
legu tign veitir hann hverjum, sem á
líkan hátt helgsr sig þjónustu guðs og
velferð manna.
f biblíunni e» oss sagt frá göfugum
lifsferli ýmsra manna, frá miklum verk-
um og guðdómlegum kenningum og
gjörir það hana hina dýrmætustu af öll-
um söfnum trúbragðarita heimsins. Er
hún innblásin? Já, sem alt hið mesta
og besta i manntegu lífi er innblásið, af
hinum eina og sama anda, sem rennur i
gegnum alt, sem kemur göfugast í ljós
í hinum hreinustu og helgustu sálum.
Helgir menn töluðu sem væru þeir
hrifnir af andanum á umliðnum tímum.
rétt eins og þeir tala í dag og orð þeirra
og verk, þá sem nú, voru guðs helgasta
opinberan. Er hún óskeikanjega ? Nei,
því að hún er mannaverk, og getum vér
rakið byrjun hennar og vöxt, og er hún
háð ófullkomnun höfundanna. Þó að
höfundur sá sé innblásinn, sem segir frá
einhverjum miklum manni, þá er hann
þó fullur af fordómum, missýni og
skammsýni aldar sinnar, og frásögn
hans á ordum og gerðum sinnar eigin
eða annarar aldar, þá getum vér ómögu
lega tekið hann sem óskeikanlegan. En
þó hlýt ég að halda því fram, að af öll-
um heimsins innblásnum bókum þá hef-
ir þessi að innihalda grundvallaratriðin
að siðferðislegum og trúarlegum sann-
leika á hinn einfaldast og hreinasta hátt
og lítt sora blandinn. Og af öllum
heimsins andlegum hetjum, er ekkert
líf manns með jafn guðdómlegum ljóma
sem mannsins, sem dýrðlegar gerði
hæðir Gyðingalands.
Og ræðan á fjallinn og dæmisög-
urnar um hinn góða Samverja og týnda
soninn mun skína skærara öllu öðru að
aridlegri fegurð og verða framvegis leið-
arstjörnur á brt^it mannkynsins til
framfaranna.
Lyf við höfuðverk.
Sem meðal við allskonar höfuðverk hefir
Electric Bitters reynst óviðjafnanlegt
meðal. Þeir lækna fyrir fult og alt, og
Iiinu versti höfuðverkur lætur undan
þeim. Vér ráðleggjum öllum sem voikir
eru að fá sér glas af honum til reynslu.
Electric Bitters lækna viðvarandi ó-
hægðir með því að styrkja og örfa inn-
yflin, og fáir sjúkdómar geta til lengdar
staðið á móti áhrifum þessa meðals.
Revndu það einu sinni. 50c. og §1.00.
I öllum lyfjabúðum.