Heimskringla - 10.09.1896, Page 2

Heimskringla - 10.09.1896, Page 2
HEIMSKEINGIA 10. SEIT. 1896. Heimskringla PUBLISHED BT The Heiinskriogla Prtg. & Publ. Co. •• •• Verð blaðsins i Canda og Bandar.: $2 um árið [fyrirfram borgað] Sent til íslands [fyrirfram borgað af kaupendum bl. hér] $1. •••• Uppsögn ógild að lögum nema kaupandi só skuldlaus við blaðið. • ••• Peningar sendist i P. O. Money Order, Registered Letter eða Ex- press Money Order. Bankaávis- anir á aðra banka en í Winnipeg að eins teknar með afföllum. • • •• EGGERTJOHANNSSON EDITOR. EINAR OLAFSSON BUSINESS MANAGER. • • •• Office : Comer Ross Ave & Nena Str. P. O. Box 305. “Liberar staðfesta. Á meðan ‘liberalar’ á sambands- þingi áttu sæti til vinstri handar forset anum ávítuðu þeir stjórnina svikalaust í hvert skifti, sem tækifæri gafst, fyrir það að hún sigraði í kosningum fyrir marg-endurtekin loforð um fjárveiting- ar til þessa og hins. í>að var nokkuð sem ‘liberalar’ höfðu aldrei gert sig seka í og það skyldi aldrei á þeirra daga koma að þeir ynnu kosningu með lof- orðum. Auðvitað unnu þeir fleirihluta þingmanna í síðustu almennri sókn með loforðum, sem fram voru borin í hér- aði, — i kaþólsku héraði með loforðum um ósvikin umbótalög fyrir kaþólíka í Manitoba, og í protestanta-hóruðunum með loforðum um að snerta ekki við skólamálinu á sambandsþingi. En sleppum því. Þeir urðu að hafa ein- hver sérstök, einkennileg vopn. Svo komust þeir á stjórnarbekkinn og þurftu að fá kosna ráðherra. Af því flestum þeim mönnum var sleppt gagn- sóknarlaust á þing aftur gekk sú her- ferð vandræðalaust, að undanteknum skrópum nokkrum í North Gray, Onta- rio og Queens-Sunberry, í New Bruns- wick. Þau gleymdust þá loforðin svo marg-endurteknu, að ‘liberalar’ skyldu aldrei ná kosningu með loforðum um atvinnu. Það nægði ekki í North Gray, að Ontario-fylkisstjórnin sendi út af örkinni alla sína færustu meðlimi Pat- terson til hjálpar, auk allra sendimanna sambandsstjórnarinnar, heldur varð Patterson sjálfur, Hardy stjórnarform. i Ontario og svo hver af öðrum að grípa til loforðanna, endalausra loforða um þetta og hitt. Fyrst um sinn héldu þeir að glæsileg loforð reyndust einhlýt, en er fram í sótti sáu þeir að það var ekki. Það þurfti meira en ‘liberal’ lof- orð. Hardy er stórráður maður og þóttist bera skyn á þá sem hann talaði við. Hann tók það því til bragðs, að hampa ginnandi loforðum í annari hendi, en hræðilegum hótunum í hinni. Hann sagði það einmitt nú í valdi kjósendanna að segja hvort þeir vildu framför eða afturför bæjarins Owen Sound. Ef þeir kysu Mr. Patterson, fengju þeir fé og auð, en ef þeir höfn- uðu honum fengju þeir ekkert, engan styrk til neinna fyrirtækja — ekkert nema verzlunarlega eyðilegging! Með þessum ráðum tókst Laurier að fá Pat terson á þing. Kjósendurnir hlutu að vinna sér það til lifs. Eins berum, eins eins grófum hótunum, hefir líklega aldrei áður verið beitt í kosningasókn í Canada. Það er sízt að undra þó ‘li- beral’ ‘gatistar’ séu gleiðir yfir þeim sigri og ropi. Það er þeim samboðið að ‘stæra sig af skömmunum’. í Queens-Sunbarry var aðferðin sú sama, að því er loforð snerti. Þar var það sérstaklega járnbrautarspotti, sem kjósendurna um fram alt vanhagaði um. Eins og aðrir góðir 'liberalar’ hafði Blair fjargviðrast út af því ár eft- ir ár, Jað conser vatívar væru að fara með alt í [hundana með fjárvéitingum til járnbrautafélaga, en sem alveg ætti að taka fyrir. Öllu slíku gleymdi hann í þetta skifti, en lofaði ótæpt að ‘járn- braut skyldi lögð með fram ánni’, án nokkurs undandráttar, og að hann í því sambandi ekki skyldi gleyma bæn- um St. Johns. Þar voru kjósendurnir þeim mun mildari en í North Gray, að loforðin ein hrifu. Blair var þess vegna undan þeginn því að brjóta á móti kosningalögunum með hótunum. Það var gert veður út af þvi, og það ekki svo lítið, hér vestra, að Hugh J. Macdonald lofaði fylgi sinu við að útvega styrk til Hudsonsflóabrautar- innar og til aðgerðar Itauðár. Ef oss minnir rétt kölluðu þá sumir það mút- ur, en sem nú hælast yfir sigrinum i North Gray og Queens-Sunberry. Ef loforð voru mútur hér, voru þau þá ekki eins mútur eystra ? Hvað skal þá segja um [hótanirnar? Kosningalögin eru ekki neitt tvíræð hvað snertir á- kvæði um það, ef einhver reynir að ógna öðrum með hótunum eða öðrum ráðum. Og þó gerði ‘stór-liberalar’ eins og Har- dy stjórnarformaður í Ontario, sig seka í að hræða menn. Drengilegri var hót- un Macdonalds, er hann skuldbatt sig til að segja af sér undireins, ef conser- vatívaflokkurinn næði völdum og ef stjórnin þá ekki tafarlaust veitti fé til aðgerðar á Rauðá. Það sýnir sig i þessu, eins og svo mörgu öðru, hve orðheldnir og staðfast- ir ‘liberalar’ eru ! . Sama tilhneigingin kemur og fram í því. að áður en þing kom saman, höfðu þeir tekið til afnota yfir 2 milj. dollars af almenningsfé með leyfi landstjóra. En við öll tækifæri á öllum timum ársins hafa sömu herrarn- ir prédikað um það, að engin stjórn hafi undir nokkrum kringumstæðu leyfi til að taka einn dollar af almennings fé fyrri en það hefir verið veitt á þingi. Og ,’svo—svo hafa sömu mennirnir á mánaðartima þannig tekið í óleyfi yfir 2 milj. dollars ! — Á undanförnum ár- um hafa ‘liberalar’ sáran kvartað yfir því að ráðaneyti sambandsstjórnarinn- ar sé ofhlaðið, — ráðherrarnir of marg- ir og með öllum ráðum sýnt fram á brýna þörf að fækka þeim, en fjölga ekki. Það var þess vegna ekki nema líklegt að þeir mundu gera tilraun til að fækka þeim, þegar valdið var í þeirra höndum. í þess stað eru þeir ekki fyr komnir á veldisstól- inn, en þeir bæta tveimur við. Þeir tveir menn höfðu áður $5,000 laun hver- Nú fá þeir fuII ráðherralaun,$7,000 hver Sama tilhneigingin er augsýnilega þar, — að gera alt annað en efna orð sín og vera staðfastir. Hún er og augsæ sú tilhneiging, er athugað er alt sem þessir menn að undanförnu hafa sagt um stjórnarþjónustu-menn. Þeir hafa ó- tæpt haldið því fram að engan mann skyidi reka vegna sinnar pólitisku skoð- unar, — aldrei nema fyrir sök. Nú sópa þeiröllum burtu, er hendi verður áfest og kenna um að þeir hafi tekið þátt í kosninga-baráttunni. En svo gægðist sannleikurinn upp hjá Lister um dag- inn. Hann sagði með ótvíræðum orð- um, að ‘-liberal”-flokkurinn í heild sinni yrði óánægður, ef stjórnin ekki ræki alla sem reknir yrðu. Og þaðer stjórn- in líka að gera. Morðvélin á Frakklandi gekk aldrei liðugra á dögum Robes- pierre’s. en saxið gengur nú í höndum Tarte’s og hans nóta í Ottawa. Til- hneigingin til að standa ekki við orð sín, er og sýnileg í tollmálinu sjálfu. Eftir að hafa lesið bölbænir yfir tollin- um í nærri 20 ár og sýnt fram á hvílíkt lífsspursmál sé að svifta honum burtu, hafa nú sömu stjómvitringarnir ákveð- ið skipa nefnd til að rannsaka það mál, —til að segja hvort þaðervit’eða vit ekki í nokkru því sem þeir hafa verið að prédika f 20 ár ! Þetta er sýnishorn af staðfestu og orðheldni ‘liberala’. Þeir eru staðfast- ir í því að breyta aldrei eins og þeir kenna, — staðfastir í staðfestuleysinu, en heldur ekki öðru. Járnbrauta-veldið. í Vestur-Canada hvervetna, í meg- inliluta Norður-Dakota-ríkis og í norð- urhelmingnum af Minnesota, er ástand- ið áþekt, hvað járnbrautir snertir. Fé- lögin sem keppa um flutninginn eru bara tvö, og af því leiðir, að þau geta vand- ræðalaust komið sér saman um flutn- ingsgjaldið og haldið því á því stigi sem þeim þóknast, alt svo lengi að þau með einhverjum ráðum geta sýnt hlutaðeig- andi stjórnum fram á, að vöruflutnings- magnið leyfi ekki lægra gjald, ef félögin eigi ekki að verða gjaldþrota. Þetta svíður mönnum, enda ekki óeðlilegt, þar sem nærri allur gróðinn af kornyrkju lendir hjá járnbrautarfélögunum fyTrir að flytja kornið til markaðar. Það er þvi ekki nema eðlilegt að menn hér líti öfundaraugum til bændanna sem sunnar eru á sléttlendinu, — í Suður-Minnesota Iowa, Nebraska, Kansas, o. s. frv. Þar er járnbrautafjöldinn og þar ætti þess vegna að vera óþægilegra fyrir félögin að koma sér saman um eitt og sama vöruflutningsverð. Að auki er til stand- andi nefnd Bandaríkjastjórnar, sem á að hafa það á hendi og það eitt, að sjá um að ekkert þvílíkt eigi sér stað. En í þessu efni sem öðru sýnist hann sannur málshátturinn: “Það er ekki alt gull sem glóir”. Það er ekki ósjaldan sagt, að þessi standandi nefnd sé til einskis annars nýt en að draga laun sin. úr Bandaríkjasjóði. Þó er það tæpast rétt. Hún hefir ef til vill engin ráð á að láta járnbrautafélögin hlýða viðteknum lög- um og reglum. En af henni stendur þó það gott, að smámsaman verða klækir félaganna uppvísir. Núna rétt nýlega hafði nefndin fund í Chicago til að rann- saka kærumál gegn einu járnbrautarfé- laginu, þar sem meðal annars varð upp- víst, að brautarfélögin hafa tvennskon- ar verðskrár fyrir flutning, — aðra fyrir bændur og einstaklinga, sem senda vör- ur í smáum stíl, en hina fyrir hina stóru viðskiftamenn félaganna. Brautarfé- lagið sem kært var, var Chicago Great Western-félagið og var það ráðsmanns félagsins að svara hinum frambomu kærum. Meðal annars sagði hann á þessa leið : “Eg hefi nú verið í norðvesturhluta landsins í 85 ár. Og á öllum þeim tíma hefir aldrei komið fy-rir, að kornið hafi verið flutt út úr ríkinu sem það var ræktað í fyrri en bændur og smákaup- menn höfðu neyðst til að selja það stór- kaupmönnunum, því þeir einir gátu komist að aðgengilegum samningi um flutningsgjaldið. Fyrri en það er kom- ið í þessara fáu manne hendur, er út- flutningurinn svo gott sem enginn, og þess vegna neyðast þeir, bóndinn og smákaupmaðurinn, til að selja.” Hér sneri hann sér að formælendum félaganna sem klöguðu hans félag og sagði: “Þið setjið bændunum í Kansas og Nebraska 13 cents fj’rir að flytja 100 pund af korni 200 milur vegar. En hveitikaupmönnunum stóru setjið þið bara 6 cents að flytja það þaðan til Chi- cago, — meir en helmingi lengri leið. Eg má segja ykkur að það eru þessar aðfarir, sem óðura eru að umhverfa mönnum í anarkista fyrir vestan Mis- sissippi-fljót”. Þarna sýndi Mr. Stickney hverjum sem horfa vill, ögn af því sem gerist bak við fortjaldið. Þegar bændur kvarta undan óbærilega háu flutningsgjaldi á afurðum jarða sinna, eru brautafélögin æfinlega til taks með skýrslur er sýna, að fari þau einum eyri lægra, bíði þau tjón, en það þoli þau ekki. þau þurfa að lifa og innvinna sér eitthvað, öldung- is eins og einstaklingurinn. En á þess- um framburði Stickney’s sézt hve mik- ill sannleikur er í þeim skýrslum. t>eim kann að þykja vænt um hveiti eða korn- kaupa-félögin og ef til vill eru þau raeira og minna tengd járnbrautarfélaginu. en þó er tæpast hugsanlegt að járnbrautar- félögin flytji hveiti fyrii þau sér í stór- skaða. Það hlytu þau þó að gera, ef sannar væru sögurnai. er bændum eru sagðar. Því það er meira en lítill mun- ur á að flytja 100 puuii fyrir einn mann 400—500 mílur fyrir 6 u mts, og að flytja þau 200 mílur fyrir an uan og taka 13 cents fyrir. Járnbrautafélög eru ekki gustuka- stofnanir og þykjast hehlur ekki vera það, og þess vegna má geta til að þau flytji kornið sér að skaðlausu, enda fjrr- ir stórkaupmennina. Ef þau þá geta flutt það 400 mílur sér að skaðlausu fyrir 6 cents 100 pundin, þá sézt bezt hvaða rán það er, er þau taka 13 cents frá fáráðum bónda fyrir 200 milna flutn- ing. Með þessum fáu orðum hefir Stickney flett ofan af grimdarlegustu gyðinga-okrun. En svo er eftir að vita hvaða gagn verður að þeirri opinberun. Framburði hans heflr ekki að þessu leytinu verið mótmælt og má þess vegna geta til að hann sé óhrekjandi sannleiki. Af þessu geta menn í Manitoba þá fengið hugmynd um hvað það er mikið sem þcir ofborga járnbrautarfélögum sínum fyrir hveitiflutning. Af þessum íramburði Stickney’s má sem sé ráða að félögin gætu sér að skaðlausu flutt 100 pund af hveiti hvaðan úr Manitoba sem er, til hvort heldur Fort William eða Duluth, fyrir 6 til 9 cents. En það vantar nokkuð á að þau gori það, enn sem komið er. Við því er heldur ekki að búast, þar sem félögin eru ekki nema tvö um flutninginn og þar sem Nort- hern Pacific-fólagið uppfyllir aila sína skilmála við fylkið, sair.kvæmt samn- ingi þess við Greenwav, hinn “libe- rala”,á meðan það setur okki hærra verð fjTrir flutninginn, en C. P. R. félagið gerir. Jafnframt og Mr. Stickney kom með þessar mikilvægu upplýsingar um það hvað járnbrautarfélögin geta gert fyrir góðvini sína í pukri og sér að vændum að skaðlausu, mátti hann samt til að viðurkenna að hans eigið fé- lag braut öll landsins lög á hverjum degi. Járnbrautarfélögin sjálf mega ekki gerast hveitikaupmenn, en hann játaði, að til þess að vinna svig á þess- um aðförum. hefði sitt félag náð undir sig flestum hveitikaupmönnum í þess- um tveimur ríkjum, að það ætti rétt allar kornhlöður í ríkjunum, ræki sjálft kornverzlunina og væri að mestu búið að fá einveldi yfir þeirri atvinnugrein. Það leiðir þá af sjálfu sór, að þegar það hefir náð algerðu einveldi, getur það þokað upp flutningsgjaldinu, eða fært niður verðið á korninu—alt ber að sama brunni—, án þess við verði gert fyrri en þá búið væri að byggja nýjar kornhlöður, en sem önnur félög eru treg til að gera þar sem þær eru nægar fyrir. Að undanteknu tímabilinu á meðan félögin eru að berjast um flutn- inginn og bítast út af honum, er því af þessu auðsætt að félögin hvort sem þau eru eitt eða tuttugu um hituna, ganga allajafna í skrokk á bóndanum og flá hann; — taka til sín allan ágóðann af vinnu hans. Annað einkennilegt sem komst upp við þessa rannsókn er það, að þegar svo stendur á, er þessi standandi nefnd óaf- vitandi brúkuð til að hirta menn, sem ekki vilja brjóta lög landsins. I'að er á móti öllum lögum að járnbrautafélög komi sér saman um að skifta jafnt og bróðurlega á milli sín ágóðanum af flutningi úr einu eða öðru hóraði. En af því Stickney neitaði að skifta milli hinna félaganna ágóðanum af einveldis- kornverzlun og flutningi sínum, klög- uðu hin og vildu láta nefndina kúga hann til að skifta í bróðerni. Þegar lögbrjótarnir sjálfir geta þannig brúkað yfirvöld landsins til að ógna þeim sem ekki vilja brjóta ein- hverja ákveðna lagagrein, þá sýnist sönnu næst, sem Stickney sagði, að þau séu að umhverfa mönnunum i an- arkista. Þau eru að virðist útmetinn anarkistaskóli. Þegar litið er á þetta sífelda stríð við járnbrautarfélögin og þeirra sfvax- anni valderathugað, valc sem stundum sýnist ætla að yfirbuga bæði þjóð og stjórn, þá er ekki undarlegt þó einstöku sinnum heyrist rödd í þá átt, að jám- brautir allar og telegraf ætti að vera þjóðeign, en ekki privat manna. Með þvi fyrirkomulagi losuðust menn þó æfinlega við gyðinga-okrun hvað flutn- ing snertir og við þessi og þvílik laga- brot, sem lýst hefir verið. X X. Á öðrum stað í blaðinu er greinar- korn með undirskriftinni : ‘X X’. Vór höfum fátt eitt um þá grein að segja. Vér viljum að eins láta þess getið, að hinn heiðraði höfundur misskilur mjög ástæðurnar, er hann segir, aðb ‘æði ís- lenzku blöðin hafi tekið að sér að verja þá pólitisku stefnu, er kennir, að gull sé sá eini löggildi gjaldmiðill o. s. frv. Vér megum fullvissa hinn heiðraða höf um að Hkr. hefir ekki tekið að sór neina vörn og ekki heldur sókn í þvi málí, og það er ætlun vor að hið sama megi segja um Lögberg, Hkr. hefir flutt sína skoðun á þvi máli af og til nú á síðastl. ári, öldungis eins og hún fram- setur sína skoðun í hverju öðru máli er við þykir eiga í það og það skiftið. Ekki heldur hefir Hkr. sveigst til að skoða málið eins og hún gerir eingöngu af því að §vo mikið er rætt um það í stórblöðunum liérlendu—ensku blöðun- um, sem maður stundum segir—, þvi henni hafa borizt alt eins mörg blöð ('ensk’) og rit, sem hafa flutt frísláttu- kenninguna. Orsökin er einhver önn- ur. Hkr. og aðstandendum hennar liggur í léttu rúmi hvor flokkurinn má betur—gróðinn verður eílaust sá s»mi í báðum tilfellunum, en skoðun sinni á því máli, sem öðrum, hlýtur blaðið að lialda fram þegar því þykir við eiga að segja nokkuð um það. Hefir þú nokkurntíma reynt Electric Bitters sem meðal við veikindum þínum. Ef ekki þá fáðu þór flösku nú og láttu þér batna. Þetta meðal hefir reynst að vera sérlega gott við öllum sjúkdómum sem kvennfólk á vanda fyrir. Með því það erir líffærín sterk og vinnandi. Ef þú efir matarólyst, hægðaleysi, liöfuðverk, svima, eða ert taugaveiklaður, átt bágt með að sofa etc. þá þarftu að fá þér El- ectric Bitter, það er meðalið sem læknar —50 cts. og $1.00 í öllum lyfjabúöum. íslands-fréttir. Eftir Fjallkonunni. Reykjavík, 3. Ágúst 1896. Gufuskip frá Zöllner & Vidalín, Mount Park, fór héðan 29. f. m. með 600 hesta. Thordahl kom 'hingað 1. Ágúst á gufuskipinu Quiraing með kol og stein- olíu og ætlar að kaupa hesta og fleira og Jfénað í haust. Fornmenjarannsóknir, Daniel Bruun hinn danski fornmenjafræðingur, hélt fyrirlestur hér í bænum á fundi [Forn- leifafélagsins 29. f. m. um fornleifarann sóknir sínar á Grænlandi [og sömuleiðis hér á landi í sumar. — Hann hefir, eins og áður hefir verið frá skýrt í blaði þessu, komizt að sömu niðurstöðu við rannsóknir sínar á Grænlandi, sem dr. Valtýr Guðmundsson í riti sínu um hí- býlaskipun á íslandi í fornöld, og við þá helztu rannsókn, sem hann hefir gert hór í sumar, hoftóft á Ljósavatni (hof Þorgeirs goða) liefir hann komizt að sömu niðurstöðu sem Sigurður Vigfús- son í sínum rannsóknum. — Það var því svo sem ekkert nýtt sem hann fræddi oss á í þetta sinn. — Hann hafði fengið styrk af Carlsbergssjóði til þess- arar farar, sem einkum er gerð til að svipast hér um eftir fornum bygginga- leifum. En hann gerir ráð um að fá megi styrk til að hefja hór meiri rann- sóknir síðar og vill þá vera að nokkru leyti í samvinnu við Fornleifafélagið. Hann er nú á rannsóknarferð f Þjórsárdal ásamt dr. B. M. Olsen. Tannlæknir nýr' hefir nú sezt að í Reykjavík, kand. med. & ehir. Vilhelm Bernhöft, sem mun koma í góðar þarf- ir.’meðþvían tannsjúkdómarnir fara stöðugt í vöxt. Þóttihér missir í Nico- lin heitnum, sem mörgum varð að góðu liði.... 11. Ágúst. Dáinn hér í bænum aðfaranótt !9. þ. m. trésmíðameistari Jakob Sveins- son, hálfsjötugur að aldri. úr nýrna- sjúkdómi. Hann er fæddur 31. Marz 1831 og voru foreldrar hans Sveinn bóndi Guðmundsson og konahans Ingi- björg Þorsteinsdóttir, systir Jóns Ihor- steinson landlæknis.... Manntalsþing í Grímsey. Af Ak- ureyri er oss skrifað : 9. Júli fóru Akureyringar skemti- för til Grimeyjar á gufubátnum ‘Brim- nes’. Þeir urðu 70 samau, karlar og konur, að þeim meðtölduin. sem slóg- ust í förina á viðkomustöðunum út «neð firðinum. Fleira rúmaði eigi báturinn. Veður var gott, lítið norðangráð, sem þeir kalla ‘gæmu’. Þá er í land var komið, sendi Klem- enz sýslumaður þegar hraðboða tileyj- arbænda að mæta í Miðgörðum til fund arhalds. Sótti hann þar manntalsþing; gat hann þess í stuttri og snjallri inn- gangstölu, að sýslumenn hefðu eigi áð- ur haldið þar manntalsþing.—Að loknu þingi var farið austur á bjarg, en þá dreif á hafþoku, sem spilti öllu útsýn- inu, og nutu menn því eigi fararinnar eins vel og ætlað var, enda var viðdvöl- in alt of stutt. Ekki eru húsakjTnni [í Grímsey lak- ari enn sumstaðar annarsstaðar á landi hér..... Enda má telja að framfarir •g menning eyjarbúa sé mjög að þakka ra Pétri Guðmundssyni. Eyjafirði, 22. Júlí:. ‘Um Jsólstöður >kifti um veðráttu með hitum og gróðr- aiskúrum ogmun nú allgóðgrasspretta Viöa byrjað að slá ummiðjanþ. m. Hiti mestur 3.—4. þ. m. 20—21 stig R. —19.—21. þ. m. gerði snjóhret til fjaila. — Agætur fiskafli hjá Ólafsfirði þá síld- beita fæst. |— Hákarlaskip hafa sum fengið ágætan afla. — Hafísinn var ný- lega skamt undan Strandagrunni’. Eftir “Þjóðviljanum Unga.” ísafirði 23, Júlí. Tíðarfar. Stöðugir óþerrar, ýmist kuldaþokur eða rigningar, héldust hér vestra í samfleyttar 3 fyrstu vikurnar af þessum mánuði, svo að til stór-vand- ræða, horfði hjá almenningi með fisk- þurk o. fl.; en 21. þ. m. réttist blessun- arlega úr, og hafa síðan verið beztu þurkar. 31. Júlí. Tíðarfar. Blíðviðrin og þerrarnir, sem hófust hór 21. þ. m., stóðu ekki lengi, því að 26.. þ. m. bjTrjuðu óþurk- arnir aftur, og jafnframt mesta kulda- tíð, svo að enda snjóaði á fjöllum aðfara nóttina 27. þ. m., og varö hvítt af mjölj ofan í miðjar fjallahlíðar. Hr. Sveinn búfræðingur Árnason hefir nú fyrir nokkru lokið við vegagjörð þá hór á Eyrarhlíðinni, er bæjarstjórnin hafði falið honum, og var vegurinn tek- inn út 23. þ.m. af Jóhannesi pósti Þórð- arsyniog Birni lögregluþjóni Árnasyni. Vegurinn er 802J faðm. á lengd og frek- lega 6 feta breiður, allur upphækkaður, sem þörf gerist, og vel frá gengið. Skipíð “Solid,” eign Á. Ásgeirsson- ar verzlunar, sem lagt hafði verið hér upp í fjöruna, til Jiess að hreinsa það, varð fyrir nonkrum skemdum aðfara- nóttina 24. þ. m., með því að steinn gekk inn um síðuna á því, svo að skipið fyltist af sjó og skemdist nokkuð af matvöru o. fl., sem í skipinu var. Talið Bjargaði lífi mínu. Það er ekkert þvaður, held- ur sannur vitnisburður um Soutli American meðöl. Undravert vottorð. Gigt. Hið merka meðal South Ame- rican Rlieumatic Cure er óhult og verk- ar Ifljótt. Linar þrautirnar undireins og læknar á einum til þremur dögum. Eyðir gi,gt og taugagigt frábærlega fljótt. _ 'Eg var svo slæmur að ég varð að brúka staf til að komast um húsið, segir James A. Anderson frá Calgary, N. W. T,. ‘Stundum þjáðist ég óbæri- lega. Eg reyndi öll meðöl sem. ég þekti og eyddi sex vikum í lækninga tilraun- ir á sjúkrahúsi, án þess mér batnaði nokkuð. Loks fór ég að reyna South American Rheumatic Cure, og þegar ég var búinn að brúka upp úr tveimur flöskum fleygði ég frá mér stafnum og fór að vinna eins og áður. Eg hefi unn ið stanzlaust síðan og er það um hálft þriðja ár. Nýrun. ‘Eg held að þaðhafi bjarg að lífi mínu’, er vitnisburður Mr. Jam- esMcBrine frá Jamestown, Huron Co., Ont. Þegar_ hann mintist á það hvern- ig hann hafði læknað sína slæmu nýrna veiki með South Amerikan Kidny Cure. Þessi maður var orðinn svo slæmur að læknarnir Urðu að koma til hans dag- lega til að losa hann við þvagið. Fyrsta inntakan linaði þrautii-nar og hálf flask læknaði hann alveg og uppleysti stýfl- urnar sem orsökuðu sýkina og græddi hin skemdu líffæri. South American Kidny Cure iæknar nýrnaveiki að eins og gerir ætíð það sem ætlast er til að það !geri. Maginn og taugarnar. Tveir þriðju hlutar allra langvarandi sjúkdóma koma af skemdu taugakerfi. Læknaðu taugarnar og þá fer sýkin að verða við- ráðanleg. South American Nervine hefir sannað þetta mörgum sinnum.Það er afbragðs meðal við taugaveiklun og við slæmu meltingarleysi hefir það reynzt framúrskarandi. Geo. Webster frá Forest segir: ‘f mörg ár þjáðist ég mjög af taugaveiklun og sárinduin í vöðvunum. Eg reyndi flest meððl, en komu þau að litlu liði. Að lokum var mér komið til að reyna South American Nervine. Af fyrstu flöskunni fékk ég linun og timm flöskur læknuðu mig. Það er merkilegt meðal og ég á því líf mitt að þakka’. er þó víst, að takast muni að gera við skipið. Grassprettu segja nú bændur hór vestra f fremur löku meðallagi. 8. Ágúst. Tíðarfar. Enn er mjög tregt um þerrana hór vestra, en veðrátta nokkru hlýrri en áður. Smokkreki nokkur hefir orðiðá fjör- um kaupstaðarins, og víðar hér i grend- inni, um undan farinn viku eða hálfs- mánaðar-tíma, svo að sjómenn munu gera sér góðar vonir um fisk-gengd og aflabrögð á komandi hausti. Yfirgangur. Hval rak að Látrum i Sléttuhreppi ný skeð, og var honum fest þar lögfestum, sem lög gera ráð fyrir; en hvalveiðamenn á Hesteyri eignuðu sér hvalinn, og fluttu hann í burtu, að landeigendum fornspurðum. Er slíkt lítt þolandi j'firgangur, og færi betur, að slikir piltar fengju að reyna, að til eru lög á íslandi, ekki síður en annars staðar. Gull og silfur. Þú mundir láta alt sem þú hefðir af hvorutveggja til þess að fá heilsuna. Dr. Agnews merku meðul eru óbrygðul við þeim veik- indum sem þau eru ætluð til. HJARTVEIKI. Hin verstu hjart veikisköst linast á 30 mínútum. Með þessu er að vísu mikið sagt, en reynsl- an og sögusögn þeirra er brúkað hafa Dr. Agnews Cure for the Heart sanna það. Ef hjartað slær óreglulega títt og maður kennir til ónota í hjartastað, þá bendir það á að maöur hati hjartveiki, og ættu menn þáætíð að leita lækninga i tíma. Brúkið ofangreind meðöl, þau bregðast aldrei. Jamos Allan frá St. Stephen, N. B., segir: ‘Eg liafði mjög slæma tilfinníngu í hjartanu og átti stundum bágt með að draga andann.Eg varð undireins uppgefinn við hvað litla áreynslu sem var og hafði oft þrautir undir síðunni. Læknarnir sögðu að mér mundi ekki batna. Ég fékk inór flösku áf Dr. Agnews Cure for the Hart. Fá- einar inntökur tóku burt öll óþægindi. Sex flöskur læknuðu mig alveg, og í dag cr ég hraustur og hoilbrigður. Eg held þetta só hið bezta meðal sem til er við lijartveiki. KVEF. Dr. Agnews Catarrhal Powder upprætir orsakir sjúkdómsins, hrejnsar þau líffærí sem veik hafa verið og gera menn alheila. Þeir s«m liafa læknast, af þessum leiða kvilla lofa og prísa þetta meðal dag og nótt. .Eg er 80ára gamall, hefi haft kvef í 50 ár. Dr Agnews Catarrhal Powder læknaði mig og álít ég lækning mína sannarlegt kraftaverk’. Svo segir Geo. Louis írá Sliamokin, Pa. Stöðugt kvef í höfðinu getur orðið hið fyrsta stig til langvar- andi kvefsýki. Læknaðu kvefið og þú kemur í veg fyrir sýkina. Dr. Agnows Catafrhal Powder er ósaknæmt og létt að brúka þaö. Gylliniæð læknast á þremur til sex nóttum. Dr. Agnews smvrsli læknar öll tilfolli gylliniæðar á frá þremur til sex dögum. Blæði æðin eða gefi frá sér slim er weðalið ugglaust. Það læknar og Tetter, Salt Rheum,Eczimn, Barbers Itch og a'la skinnkvilla. Tíu cents lækna harðlífi og lifrarveiki. Dr. Ag- news lifrarpillur eruhinar fullkomnustu og lækna sem töfrar: höfuðveiki, harð- lifi, gallsýki. meltingarleysi og lifrar- sjúkdóma alla. 10 cents flaskan, 40 iuntök'ir.

x

Heimskringla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.