Heimskringla - 03.12.1896, Blaðsíða 2
HEIMSKRINGLA 3 DES.1896.
Heimskringla
PUBLISHED BY
The Ileiniskringla Prtg. 4 L’ubl. Co.
•• ••
Verð blaðsina í Canda og Bandar.:
$2 um árið [fyrirfram borgað]
Sent til íslands [fyrirfram borgað
af kaupendum bl. hér] $1.
••••
Uppsögn ógild að lögum nema
kaupandi só skuldlaus við blaðið.
• •••
Peningar sendist í P. 0. Money
Order, Registered Letter eða Ex-
press Money Order. Bankadvis-
anir á aðra banka en í Winnipeg
að eins teknar með afföllum.
• • ••
EGGERTJOHANNSSON
BDITOR.
EINAR OLAFSSON
BUSINESS MANAGER.
• • ••
Office :
Corner Ross Ave & Nena Str.
P. O. Box 305.
Bæjarkosningarnar.
Menn hafa til þessa gefið bæjarmál
'um alt of lítinn gaum og alt of lítið
hugsað um hverjir það eru sem á ári
hverju eru sendir í bæjarráðið. En
það hirðuleysi má ekki leugur eiga sér
stað. Bæjarmálin fara að vei ða svo stór
að það tjáir ekki að sleppa þeim fram
hjá í hugsunarleysi. Að undanförnu
hefir að vfsu meira verið talað, en fram
kvæmt hefir orðið, en allur sá málandi
hefir samt verið til undirbúnings. Og
þrátt fyrir aðgerðaleysið að undanförnu
að orðaglamrinuöllu frádregnu, er mál-
unum nú svo komið, að framkvæmdir
æru fyrir hendi og óhjákvæmilegar.
Einmitt nú er því meir áiíðandi en ef til
vill nokkru sinni áður, að framsýnir,
gætnir og trúverðugir menn verði kosn-
ir í bæjarstjórnina.
Það liggur nú fyrir mönnum að
rúmlega viku liðinni. að úrskurða með
atkvæðum sínuin, hvort bærinn skuli
*taka til láns $l,u25,000 og koma upp
íyrir það fé raflýsinga- og gasgerðar-
stofnunum og vatnsveitingavélum roeð
öllu tilheyrandi. Lögin um þetta efni,
sem menn eiga að samþykkja eöa fella,
eru þrjú.
Þau fyrstu eru áhrærandi vatns-
veitingar og leyfa bæjarstjórninni að
taka til láns $650,000 til 43 ára gegn
3J% árlegu afgjaldi. Hugmyndin með
vatnsveitingarnar er. að keyptar verði
160 til 200 ekrur af landi í norðvestur-
hluta bæjarins, að þar verði boraðir 50
brunnar, tjörn gerð í grendinni sem
haldi 3 milj. gallóna af vatni. Frá tjörn
þessari, sem gerð verður vatnsheld, er
svo ráðgert að leggja pípur inn í bæinn
og eftir strætum eða bakstígum og inn
í hvert hús. Gufudælur stórar verða
svo látnar vinna hvorttveggja í senn :
dæla vatnið úr brunnunum og vatnið úr
tjörninni eftir pípunum inn í húsin.
Eftir að þetta er upp komið er áætlað
að viðhalds og vinnu kostnaður á ári
hverju verði $40,000. Afgjald stofnfjár-
ins samtals 822,750, og árlegt innlegg í
afborgunarsjóð $6,812,10. Öll gjöld á ári
hverju þess vegna $69,592,10. Tekjurn-
ar á hverju ári eru á'ætlaðar $85,000,
þannig :
Fjrrir vatn i 4000 hús $15 að
meðaltali ................... $60 000.00
Fyrir 200,000 fet af óbygðu
landi við strætin, 10 cents á
hvert fet ................... $20,000,00
Fyrir lokræsaþvott, fyrir að
vökva stræti o. s. frv.....$ 5,000.00
$85,000,00
VKITT
HÆSTU VKRÐLAUN A HEIMSSÝNINGUNN
DH
BAHING
POWDfR
IÐ BEZT TILBÚNA
óblönduð vinberja Cream of Tartar
powder. Ekkert álún, ammonia eða
önnur óholl efni.
40 ára reynslu.
Þrátt fyrir það að hór er gert ráð
fyrir að selja vatn til allra þarfa í hús-
in fyrir helmingi minna verð en vatns-
veitingafélagið selur, er þó fyrirsjáan-
legur tekjuafgangur, sem munar full-
um $15,000, eftir að mætt er öllum
gjöldum í sambandi við eignina. Það
er vitanlegt að á meðanbærinn er vatns
laus eins og nú, hafa menn sömu þæg-
iridi í honum miðjum eins og ef menn
byggju í 100 mílna fjarlægð, að undan-
teknum einstöku strætum, og á þeim
fáu strætum er þá vatnið næstum því
óætt og undireins meiren helmingi dýr-
ara en þarf. Samkvæmt þessari áætl-
un geta mennnotið allra bæjarþæginda
án þess að bæta einum eyri við gjöld
sín í bæjarsjóð, en hafa þvert á móti
tekjuafgang sem lóttir af manni gjöld-
um, er talsverðu mnna. Tilað sannfær-
ast um það, þarf ekki annað en geta
þess, að það er álitið að míla af inaca-
dam á strætum kosti $16—18000. Setji
maður þá sem svo, að tekið vaéri til
l ins fé sem þyrfti til að leggja roaca-
dam á 25 mílur af strætum, þá nægði
vatnsveitina-tekjuafgangurinn áhverju
ári ($15,407,90) til að borga afpjöldin af
því fé öllu. Þetta er hagnaður sem
vert er að liugsað sé um og mönnum er
innanhandar aðverðaþessa hagnaðar
aðnjótandi. Ekki þarf annan en sam-
þykkja vatnsveitingalögin. Enþá þarf
um leið að velja góða menn, hyggna og
trúverðuga, til að meðhöndla alt þetta
fó og sem ekki mundu gugna fyrir vatn
veitingafélaginu, sern mandi vilja selja
sína eign. en sem ekki er viðlit að
kaupa. Að vatnsveitingafél. mundi
gera það er auðsætt, ef satt er að það
sé nú þegar farið að vinna og búið að
sveigja á sina skoðun ýmsa málhvata
náunga, sem nú andæfa þessum lögum
af alefii og búa til úr þeim ægilegar
grýlur.
Sumir kunna að andæfa lögunum,
af því að þeir óttast gjöldin sem af
vatnsveitingunum leiði. Þau eru auð-
vitað mikil, en þægindin eru líka að því
skapi. Vatn til allra hluta í 6—7 her-
bercja hús mundi kosta $10—12 um ár-
ið, á mótí $24—30 hjá félaginu nú. Einn
dollar á mánuði er ekki ægilegt gjald
fyrir gnægð af vatni, sem æfinlega er
við hendina nýtt og ferskt, ef maður
snýr krana á veggnum, það því síður,
er maðnr með því gjaldi einnig greiddi
vöxtu af öllu fénu, er gekk til að brú-
leggja strætið framundan landeigninni.
Það er athugaverður sá sannleiki,
að frá 1. Janúar næstk. verður allur
skattur í borginni Glasgow á Skotlandi
afnuminn. Borgin sjálf á allar eignir,
sem gefa af sér peninga, svosem: stræt-
isbrautir, ljósgerðarhús og vatnsveit-
ingaútbúnað og áhöld. Ágóðinn af öll-
um þessum eignum nægir til að mæta
öllum bæjargjöldum, eftir að greidd eru
gjöld í sambandi við eignirnar. Það er
ekki von á neinuþvílíku í bráð í Win-
nipeg, en “fyrst er vísirinn”. Það er
viðurkent fyrir löngu, að bærinn ætti
að eiga vatnsveitinga útbúnað sinn og
það er komiun tími til að stigið só
fyrsta sporið til þess. Tilvera vatns-
veitingafélagsins er úti árið 1900. Vatn
þess er óhæft (úr Assiniboine-ánni) og
þess vegna ekki um endurnýjun leyf-
is þess að tala, þó menn vildu halda á-
fram að borga því tvo peninga og meira
fyrir einn. Ef bærinn sjálfur á að
standa fyrir vatnsveitingunum er þess
vegna einmitt nú timinn til að byrja.
Sé það gert, verður bærinn tilbúinn að
veita vatni í 4 hús fyrir 1 nú árið 1900,
samdægurs og leyfi vatnsveitingafélags-
ins er útrunnið.
Það hefir verið fundið þessu fyrir-
tæki til foráttu. meðal annars, að þetta
sé að eins tilraun. Það sé langt frá því
vfst að nóg vatn fáist úr 50 brunnum,
eða enda 100. Telja þeir menn því
sæmra að kaupa vatnsfræðinga til að
ráða hvað gera skal, áður en verkið er
hafid. Það er nokkuð í þessu, en hitt er
athugaudi, að af $650 þúsundum, eru
bara $10,000 sem varið verður til brunn-
borunar. Hina upphæðina þarf alla
hvaðan sem vatnið verður tekið. Á það
er og líka að líta, að þeir bæir eru altaf
að fjölga sem á þennan hátt sækja vatn
sitt í yður jarðarinnar, — þykir sú upp-
sprettan vissust og vatnið bezt. Ef
kaupa skyldi nafnfrægan vatnsfræðing,
gæti líka saxast á 10 þúsundin, sem
annars gengju til brunngerðar. Tor-
ontobúar borguðu nafnfrægura vatns-
fræðing í fyrra $15.000 fyrir að koma
þangað og segja þeim aö gera það, sem
þeirra eigin verkfræðingur hafði áður
sagt þeirn, en sem þeir ekki viidu trúa.
Það er hugsandi að sama yrði ofaná
hér.
Hvað sem hinum tVeimur lögunum
liður, þá ættu þessi, um vatnsleiðsluna,
að ná nauðsynlegum fjölda atkvæða.
En þá þarf líka jafnframt þvi að velja
góða menn í bæjarstjórnina, menn sem
ekki raundu svigna íyrir fortölum og
fagurgala vatnsveitingafélagsins, sem
eðlilega leggur sig fram til að hafa eitt-
hvað upp úr eign sinni áður en leyfi
þess er útrunnið.
Hvað snertir meðráðamennina, þá er
ekki enn víst hvað margir verða í kjöri.
En það skyldienginn hikavið að spyrja
þá sem á boðstólum eru hvort þeir séu
viljusir til að andæfa vatnsveitingafé-
laginu, hvort þeir sé viljugir til að
stuðla til að nema burtu sérstaka skatt-
inn (frontage tax) íyrir brúlagning
stræta, og hvort þeir ætli að stuðla til
að eitthvað talsvert af strætum verði
brúlagt i sumar komandi, aðeitthyað
verði gert rneira en tala um það. Það
skaðar ekkí þó þessar og þvilíkar spurn
ingar séu framlagðar.
Hvað mayors-efnin snertir, þá er
þar um auðugan garð að gresja, þar
sem fimm eru á ferðinni. Það má lík-
iega setja svo, að feir séu allir góðir
menn ogréttlátir, en að öllu jöfnu er
Hutchings þeirra álitlegastur. Hann
er stórvirkur maður og framgjarn og
hefir sýnt að hann kann að fara með
efni sín. En svo má segja hið sama
um fieiri af þeim sem í kjöri eru, svo
það út af fyrir sig hefir máskó ekki
mikla þýðingu. En það sem sórstak-
lega er álitlegt við hann í augum hinna
fátækari bæjarbúa, að minsta kosti, er
það, að hann vill hafa fram brúlagning
stræta í stórum stíl og það tafarlaust,
og—hann vill hafa lögin um sérstaka
skattinn (frontage tax) útskafin. Hann
vili brúleggja strætin með sandi og
grjóti og gera það á kostnað bæjarins í
heild sinni, en ekki á kostnað þeirra er
búa við það og það strætið sem brúlagt
er, og sein til þessa liefir verið þrep
skjöldur og hann ókleyfur á vegi fram-
fnranna í því efni, af því að fjölda
manna er of vaxið að risa undir einum
aukaskatti á aukaskatt ofan. En svo
vill hann jafnframt gefa þeim tækifæri
til að borga þennan brúlagningarskatt
sem ekki eru ánægðir með macadam á
strætið sem þeir búa við, en biðja um
‘fínna’, áferðarfegurra efni.
Þetta er ákveðin stefna hans og all-
ir sem nokkuð þekkja manninu vita að
hann er stefnufastur maður, en hringl-
ar ekki alt af frá einui stefnu til annar-
ar. Og þessi stefna er alþýðleg stefna,
hlýtur að vera það. Brúlagning kemst
aidrei áfram á meðan búendurnir við
strætið verða einir aðborga fyrir verkið
á 15 árum. Mennrísaekki undir því,
en menn risu miklu fremur undir því
þó almenni skatturinn væri fyrir brú-
lagningu aukinn um eitt eða tvö mills á
ári. Þetta er viðtekin stefna Mr.
Hutchings, en að því er séð verður er
það ekki stefna hinna, er ekki o r ð i n
það þegar þetta er ritað. Þó þess vegna
jafnt væri á komið að öðru leyti með
þessum fimm umsækjenduin á Hut-
•
chings atkv. skilið ítf»mur en þeir.
/ /
A Iskinds-ferð.
Eftir B. M. Long.
Commercial Hotel, Leith, 9. Nov. ’93
Ég hafði hálfpart inn lofað því þegar
ég lagði á stað í þessa íslands ferð, að
senda Hkr. fáeinar línur við tækifæri,
svo vinir og kunningjar fyrir vestan
haf sæju svart á hvítu ad ég væri þó
lifandi.
Og svo sest ég þá niður ueð blek og
blað. En biðja verð ég lesendurna að
virða vel, þó það verdi hvorki langt eða
lipurt, sem ég skrifa í þetta sinn, því
þegar maður er að hringla hér innan
um húsatröll og hávaða, er ómögulegt
að hugsa neitt í samhengi.
Klukkan 1 á þriðjudag 13. Okt.,
kvaddi ég seinustu knnuingjana á járn-
brautarstöðinui í Winnipeg, settist síð-
an inn í vagn og lestin brunaði á stað
áleiðis til Atlantshafsins. Þegar óghafð.
setið þar stutta stund, hugsandi bæði
þarft og óþarft, kemur þar krossaður
Posiíively Cures
COUGHS and COLDS
iu a surprisingly short time. It's a scl-
cutilic certainty, tried and true, soothing
und beaiing in its effocts.
W. C. McCombkr & Sort,
Bonchette, Que.,
re'*ort In a lotter that Pyny-Hectoral curea Mn$.
0. úíirtuau of chronli: rold In and bronchial
tuh'N. and aiso curoil W. G. McComber ot a
lwii,'.*tanúin, cold.
J. II. IIltty, Chcmíst,
528 VonRc St., Toronto, writes:
“ Asageuoral «x>u<;h and Iuiiíí »yrup Pynr-
rec^»i:t! i» a most iuvaluabla prepur^íion, lt
haa glven tbo utinnnt »aii»facti»n to a!l who
have tri««l it. rnauy havlng ■pok.cn to me of the
beiwfita d»*iivcd froni it» u$e ln thuir iauiili^*.
it \* Hfiitabte for old or yonnir, b* ing plenaant to
tho t:i»te. Its »:i »0 wlth !»» Iias b*»:n wonderful,
hiuI I i' in alway* rrcominend it as a tufo and
íeiiuble cough ruedicine. *'
lai'KC Uotflc, 23 Ctl.
& LAWRENCE CO.
Solc Proprietors
Montkeal
e @ 9 O © O & 0 9 9
\Ralief for*
°Trozibles
©
L
a« B*T3ON and rvll 1
OlftKAS£», riKG OF OLOOO, ©
COIÍOÍf, lOftíi OF A1*PKTXTS»
DJ'i'.itLiTV, »M*m-Ct4 of tftiia
artdclc are uioet cds.uifetu.
Q
By tl.ei.id ofTl'.e “rr. /i Eniuision. I havegmt
Q rid of u h.rckiu* coiutb whi< b had troubied mefor
»v**r a yenr, aud i»*v** gAluud «‘.<*iisideiubly ir»
• wevlit. I lihod thia l*.Tniil>i»n 30 wcd I wa» glad qk
wlitu iho ti.ue caitio arouinl Lo take ít.
q T. H. WIJÍG HA M, C. E., Montreal ^
'(k’. íuiil »1 pcr
® DAVI3& IAV7RtM.CE CO., tTJ., Mohírsal ©
Ö © ® o © © © ©ooo©
kaþólskur prestur og sest i sætið hjá
mér; ég ætla ekki að segja af því; við
fórum þarna út í guðfræði og gapaskap
og létum ganga svo til kvölds, að klerk-
ur fór inn í svefnvagn til að sofa en ég
sat eftir, því ég brúkaði sætið mitt bæði
;yrir setustofu og svefnhorbergi.
Lestin hélt áfram og gamli brúnn
blés mæðilega, en fékk þó ekki að
stansa nema svo sem eina rnínútu á
hverri vagnstöð, þar til á miðvikudags-
morguninn ki. 6 að við komum til Fort
William, þar var stansað í 15 mínútur,
svo var ekki að kalla staðið við aftur
fyrr en í North Bay, þar aðrar 15 mín.
og á fimtudagskvaldið kl. 6, komum við
til Ottawa og þar var stansað í 10 mín.
Kl. 8 um kvöldið komum við til Montre-
al, eftir 55 tíma ferð frá Winnipeg. —
Að segja mikið af landinu á leiðinni, er
naumast hægt, það hverfur sjónum
manna hvorutveggja jafnfljótt, Mani-
tóba o'g slétturnar. Eftir það sér mað-
ur lítiðaunað en hraun og hæðir, gil og
gjár, og grannar skógar hiíslur, þar til
kemur austur undir Ottawa. þá fer
landið aftur að verða fagurt og frítt,
enda finst þar valla blettur óbygður.
Á föstudaginn fórum við Mr. Pa-il-
son um borgina eins mikið og tíminn
leifði. Borgin er stór og húsin há, og
hellulagðar götur en sumsr hefðu göt-
urnar þótt mjóar í Winnipeg.
Um daginn kviknaði þar í sexloft-
uðu húsi, og varð þá mikið hark og háv
aði, þvi margt var af manninum, og
allir vildu komast sem næst. En sá ó-
fagri leikur lyktaði þannig, að eldurinn
varð slöktur. en 4 eldmenn létu lifið;
féllu niður um þakið og ofan í eldinn.
Um kvöldið fórum við um borð í
Allanlinuskipið “Laurentian en sigldum
þó ekki á stað fyrr en kl. 7 á laugar-
dagsmorgunin og kl. 6 um kvöldið kom-
um við til Quebec. Er það mjög skemti-
legt að sigla um bjartan dag eftir fijót-
inu, því landið er víða fallegt á báðar
hliðar, og þéttbygt í meira lagi, en mör§
eru heimilishúsin smá.
Ekki komum við á land í Quebec og
fórum við þó ekki þaðan fyrr en kl. 9 á
sunnudagsmorgun.
Ég dáðist ekki að neinu i Quebec,
sem ég sá af höfninni, nema varnar-
virkinu og þeim byggingum öllum þar
uppi í hömrunum. Ég hef ekki trú á
því, að Quebec yrði fljótt unnin af sjó.
A skipinu voru að eins 23 ferða-
menn, 9 á fyrst plássi en 14 á öðru. Þar
að auki voru á skipinu 360 uxar frá
Manitoba nlfaruir til Englands. En það
gurir nú iiiiust til, því Mr. Paulsonhefir
í hug nö bæta Mauitoba þaö upp aftur á
næsta sun.ri, elki roeö uxum sarot,
injldur Islendingúiu.
Jæja, við sigldum sunnudngiun,
mánudaginn’og þriðjudaginn svo að við
sáum alt af land þar til kl. 10nm kvöld-
ið að við sáum seim'st Ameríku, — Ný-
fiindnaland, á hregri bönd en Labrador
á vinstri, — og var þá eins og ég sanrx*
aði vinar. Þessa þrjá daga höfðuin v'ð
haft gott veður og sléttan sjó. og sama
veður höfðum við í næstu þrjá daga eða
þar til á föstudagskvöld (23. Okt.). Þá
kom á móti okkur stormur og stórsjór,
svo að gekk yfir þetta litla(!) skip, og
það hélst svo áfram þar til á þriðjudags-
kvöld kl. 2 að við komum til London-
derry á írlandi norðanverðu, og var þar
að eins staðið við til að senda póstinn í
land og svo haldið áfram. Var þá tals-
vert far'ð að lygna og stórsjórinn að
minka. Við Mr. Paulson vorum næst-
um fullhraustir alla leiðina yfir hafið
enda er "Laurentian” ágætt skip og að
öllu leyti var farið mjög vel með okkur
á leiðinni (þökk sé þeim fyrir það).
Kl. 8 á þr'ðjudagskvöldið (27. Okt.),
komum við til Liverpool og fórum þar
af skipinu eftir 11 sólarhringa dvöl á
því. Á innsiglingunn til Liveryool
þótti okkur verst að það var orðið dimt
svo við gátum ekkert séð nema ljósa-
raðirnar á landi, sem við sigldum fram
hjá mílu eftir mílu. I Liverpool vorum
við í fimm tíma; þá tókum við eimlest-
ina til Glasgow um nóttina og komum
þangað kl. 7 á miðvikudagsmorguninn,
og þó við værum þá hálfsifjaðir, var nú
ekki farið að sofa, því nvi var timinn
ekki gefinn, en margt að sjá, enda not-
uðum við hann eins vel og við gátum.
Við vorum þar þann dag ojjs næsta dag
til kl. 6. en með því að það var sá 29. en
“ Vesta” átti að sigla frá Leith upp til
Islands þann 30., þá var nú ekki til set-
unnar boðið, svo við settum austur til
Leith urn kvöldið og með alt okkar dót
um borð í ' Vestu”. En þá fór nú held-
ur að fara af gamanið. Vesta var þá 14
daga á eftir tímanum; var rétt komin
Vondur forboði haustveðurs.
Þúsundir manna eru lafhræddir við kvef
þegar "etrarkuldinn kemur. En
kAefið geta menn fyrirbvgt með
töfraafli Dr. Agnews Cathar-
rahl Powder.
Þetta er engin euðfræðiskredda þó að
furðu djúpt kunni að sýnast tekið í ár-
inni. Helstu menn Parlamentisins á
Englandi, fremstu klerkar í bysknpa-
kyrkjunni,pre8bytera methodista, bapt
ista og kaþólsku kprkjunnar hafa vott-
að um ágæti lyfs þessa. Mr. John Mc
Edwards, hinn alkuntii féhirðir á Cana-
dian Pacific skipinu Arthabaska er einn
af þeim, sem læknuðust af sárum kvöl-
um kvefs við notkun lyfs þessa. Hann
er góður drengur og mannkærleikamað-
ur osr hefir mælt með því við alla þá sem
þjáðir eru. B.vggið fyrir kvefið með því
að hafa meðalið við hendina.
frá íslandi og átti oftir að fara til
Khafnar. Við máttum gera svo vel að
setjast hér að (og hér sit ég enn). Dag-
inn eftir kom "Laura” frá íslandi langt
á eftir tímanum — með allar fréttir frá
Frónin>t okkar gamla; háska srijó og
harðindi, hreint yfir alt. Það fenti fé
og fórnst fyrir giftingar og guð veit
hvað hefir gengið á! Kapteinninn á
“Laura” sayðist aldrei hafa fengið eins
vondan sjó á öllum sínum ferðura upp
til Islands. Aftur talaði ég við kapt.
á “Thyra”, sem kom bingaðfrá Islandi
5. þ. m. Hann sagðist hafa fengið á"
gætt leiði alla leið frá Seyðisfirði og
hingað. — Nokkrir íslenzkir farþegjar
vora með öllum þessum skipum á leið
til Khafnar í ýmsum erinda gerðum.
Já hér sit ég og sóa tímanum, ekk1
í yðjuleysi sarnt. því ég er þreittur á'
hverju kvöldi. En arðurinn er að eins
sá, að maður sér alt af eittnvað nýtt.
Ekki þreytist maður af því að maður
þurfi að kafa í for, því liér stígur maður
aldrei af steini. Hér er alt bygt úr steini:
hús. götur, bryggjur. brýr og bágt að
víta hvað margt. Borgirnar hérna eru
stórar og margt í þeim fagurt og full-
komið, en mig undrar hvað sumt af
fólkinu er sóðalegt, hvað það er skitið!
Maður hefir fulla ástæðu til að hugsa
sér að það hafi aldrei þvegið sér, síðan
það fór úr laugartroginu ! Ég kenni
mest í brjóst um blessuð litlu börnin,
sein eru svo þakin í skít á ölluin tímum
dags, að maður á engan kost á sjá hyort
hörundið er hvítt eða svart. En svo er
hér iíka nóg af hvítum lierrum með háa
silkihatta. Það dylst engum sjáandi
manni, að auður og fátækt er hér á
miklu meira mismunandi stígi en fyrir
vestan haf. Skotar hér eru stoltir af
stórborgum sínum, þó einkum af Edin-
burgh; það er sama orðtækið hjá þeim
öllum, þegar maður er að tala við þá
um byggingarnar hérna: “Hefirðu
komið til Edinburgh? Þar sérðu þá
fegurstu borg sem til er í brezkaríkinu”.
Svo einn góðan veðurdag tók ég
eimlestina til Edinborgar, sem ekki er
nema 15 mínútna ferð með North Brit-
ish járnbrautinni og kostar 1 penny (2
cents). Einkennilegt við þá braut hér
á milli er það, að hún liggur meiri part-
inn undir jörðunni, og þegar maður
kemur á brautarstöðvarnar í Edinburgh
gá er maður niðri í gili og þarf því »ð
ganga upp steinstigá (því alt er úr
steini), 82 tröppur, þar til að maður
kemur upp á Princess Str., sem er aðal-
gata borgarinnar. Það fyrsta sem mað
ur rekur augun í þegar maður kemur
upp úr stiganum, er brons líkneski af
Wellington í fullri stærð ríðandi þar ú
ekkert smáum hesti, sem sýnist í þann
vpginn að stökkva oian yfir manii, og 11
liioa liöudina er niarmava ín.vnd af Sir
'ð'nlter Scott, sitj.uiili þar a niiirmuia
tTÖppum og feikna i>*óf tm 11 yfir. se n
ganga má uþpí topp á. f.vrn finU horg-
un. Rótt þar hijá siaiudá 1 v.V Iiihs, nnn-
aö er málinyiifilia st.ofa, eu rr.tl er likrt
eskjasafn. Af því það var fimtndagni.
fékk ég að fara frít tgegH'.m «>.* •’>: i-'.-.-i
hús. og er þar inargt Saguri wk aö syi
Ok ekki ell nyrt.
Euglendingar og Skotar í Wiunipeg
höfðu sagt mér, að Princess gata i
Edinb. væri álitin að vera fallegasta
borgargata í Evrópu. Ég hugsaoi mér
því að ganga hana áfram og gerði það
líka. Og það var nóg til að sannfæra
mig um að satt mundi mér hafa verið
sagt.
Það næsta sem vakti eftirtekt mína
var húsatröll upp á háum klettum í
suðurhluta borgarinnar. Ég spurði ná-
ungann og hann sagði mér að það væri
Edinborgar kastalinn. Ég lagði þvi af
Dauði af köfnun.
Lág við að illa færi ef ekki heföi verið
við hendina Dr. Agnews hjartveik-
islyf. Undarleg saga uin frú eina
i Norðvesturlandinu.
Ætið skyldu menn óttast þaðaðdeyja
af köfnun og er það eitt af vanalegum
áhrifum hjartveikinnar. Frú J. L.
Hiller frá Whitewood. N. W.T., var svo
nær dauða komiri af þessu sem hugsan-
legt var. Hún segir frá söcunni á þessa
leið : “Eg þjádist mjög af hjartveiki og
kvað svoramt að því, að ég þorði ekki
að sofna eða leggjast út af af ótta fyrir
köfnun. Ég reyudialla læknana í grend
við mig en þeir gátu ekkert að gert, En
þá réð lyfsali einn mér að reyna Dr.
Agnews hjartveikislyf. Ég reyndi það
og batnaöi undir eins svo að mér hafði
aldrei jafnvel liðið, og er ég hélt áfram
að brúka meðalið, hvarf sýkin algerlega
Það er ekki of sagt að segja að það hafi
bjargað lifi mínu.”
stað yfir þangaö, en af því að ég var ein-
samall og ókunnugur, en vel hægt að
villast, þurfti ég að fara gætilega og gá
að mörgu. Þegar ég kom upp undir
kastalann, kom til rnin gamall öldungur
með krossum og titlum og kvaðst vera
reiðubúinn til að fylgja mér i gegnum
kastalanu og segja mér sögu bans ef ég
vildi. Jú, það þáði ég, og lögðum við
á stað í gegnum fleiri dyr sem öllum er
lokað með ákafiega stórum og sverum
járnhurðum; eftir það komum við irin á
stórt syæði þar sem fallbyssum er rað-
að hringinn í kring og ekki öllum mjög
smáum. Karl þuldi og bar ótt á, því
sagan er löng, en ég horfði og hlustaði,
og þegar karl hafði sýnt mér alt úti, fór
hann inn með mig. Fyrst í verelsi
drottningar Marju. Það er lítið og
skrautlaust, nema gullkóróna kerlingar-
innar, sem liggur þar á fiossessu. Mér
datt í hug að hafa hettu skifti, en samt
varð ekkert af því. Næst fórum við
inn í vopnaskála og er þar roargt að sjá,
— vopn af öllum sortum og tegundum,
á ýmsum aldri, og svona gekk það þar
til alt hafði mér verið sýnt, sem sýnt er
aðkomandi mönnum til kastalans.
Þennan kastala var byrjað að byggja á
miðri 14 öld.
Hér í Edinburgh eru 24 skemtistað-
ir, sem maður getur fengið að sjá, og
suma frítt á sumum dögum vikunnar.
Á morgun ætla ég að sjá “College Mu-
seum”, því þeir guma mikið af því safni
hér.
Ég vonast eftir Vestu þann 12. eða
13. og verður þá ferðinni haldið áfram.
“Seinna mun ég segja þér
svona hvernig líður mér
i harðindunum heima . . ”
I guðs friði allir, allar og öll.
Æðahnútur læknast á 3—6
nóttum.
Dr. Agnews Ointment læknar allar teg-
undir ædahnúta á 3—6 nóttum. Undir
eins.og á er borið linar manni. Renni
blóð’úr æðahnútnum er það óviðjafnan-
legt. Það læknar líka Tetter, Salt Rhe-
uin, Eczema, Barbers Iteh og yfir höf-
uðöil útbrot önnur á hörundinu. Kostar
35 cents.
Frá löndum.
MINNEOTA, MINN. 19. NOV. ’9G
(Frá frétraritara Hkr.)
Tlðnrfar. Fyrripart þessa mánaðar
vai wðiáitit fremur óstöðug, snjórkom
töhitpi ður (2 [i»ml. djúpur) en tók upp
af*iii-. »11 svoer Imitiu nú aftur farinn að
stijóa.
A'inir. Mttvgir hafahér orðiðseinir
»teð anitir síimr, mais-korn er hjá ýms-
n.» .'lti 11 á akri enn ; þegar gott er veð-
»r sér tnaöor enn alivíða gráa reykjar-
stróka upp úr þreskivélunum.
Yerzlun. Hveiti hefir komist hér í
70c.; grísir hafa dálitið stigið í verði ;
menn búast við að naut muni innan
skamms stíga í verði, því tala þeirra
hefir mjög svo fækkað hór í Bandar. á
þessum síðustu árum.
Þá er nú kosningastríðið um garð
gengið og hitinn farinn að réna, þó eru
dylgjur allmiklar enn með ýmsum.
Minneotamenn senda nú í vetur
fleiri nemendur á búnaðarskóla sinn
en nokkru sinni áður. Þangað hefir
vist enginn Islendingur koinið enn.
I KISTUR
k
Llungnaveika mannsins eru máske ekki
Feins fullar og hann vildi hafa þær
Dóttir min, seytján ára að aldri
var mjög heilsulítil, lungun voru
altaf veik og stöðugur hósti
þjáði hana. Loksins gáfum við
henni Ayers Cherry Pectoral, og
þegar hún var búin úr þremur
flöskum, var hóstinn alvóg far-
inn. Hún er við ágæta heilsu * £eins fullar og íiann viidi Bata þær. en
-jRrv^T'-jnrvjg-'^Tr-ÍK^r-sRrWW'W.f' f hann er hygginn, þá yfirgefur hann
kistur sínar um stund og hugar um heilsuna. Hóstinn, sem í fyrstu ger-
ir lítið vart við sig, er eins og lítill hellusteinn i fjallshlíð. Hann sýnist
lítill og þýðingarlaus þangað til litil mús kemur við hann og veltir hon-
um af stað. Steinninn hleður utan á sig snjónum og loks verður hann
orsök í snjóferð sem getur sópað burtu heilli borg. Hættulog sýki byrjar
oft með litluin'hósta. Ef byrjað er í tíma, má lækna all«n hósta með
Ayer’s Cherry Pectoral.
* Þetta vottorð er alt í Ayers “Curebook” ásamt mörgum fleiri
n’send frítt frá J. C. Ayer Co„ Lowell, Muss.