Heimskringla - 18.03.1897, Blaðsíða 1

Heimskringla - 18.03.1897, Blaðsíða 1
XI. ÁR. NR. 12. WINNIPEGr, MAN., 18 MARZ. 1897. FRETTIR. DAGBÓK. FIMTUDAG, 11. MABZ. í Hamborg á Pýzkalandi er það upp komið, að maður einn sem keypt hatði lífsábyrgð fyrir konu sína upp á 50,000 mörk, dáleiddi hana svo og ráð- lagði henni á meðan hún var í því á- standi, að taka af sér lífið. Þetta fékk svo á hana aðhún veiktist og var lækn ir kallaður til hennar, sera þegar sá að hún þjáðist af umhugsunum um það sem henni hafði verið sett fyrir að vinna á meðan hún var í dáleiðslu. Til þess að komast fyrir hvað það var, dá- leiddi læknirinn hana og lét hana svo segja sér alla söguna. Konan var flutt á lækningastofnun í Vínarborg, en mað nr hennar flúði úr landi. — Þessi saga sýnir hve háskalegt hypnotism er, þýg- ar vondir menn eiga hlut að máli. Það er ætlast á að í Bandaríkjum liggi óseld í vörzlum bænda um 88 milj. bush. af hveiti. Það er mikil upp- hæð, en á sama degi í fyrra voru í Bandaríkjum óseld 123 milj. bush, — þriðjungi meira hveitimagn en nú er til. Canadamenn hafa aldrei selt eins mikið af varningi á Englandi á vetrar- mánuðunum tveimur, Janúar og Febr., eins og á þessum síðastliðnu. Orusturnar, sem áttu sér stað á Krítarey í fyrradag og í gær komu að sögu til af því, að grískur sjóflotastjóri, Reineck að nafni, hafði ekki birt Krít- eyingum bann stórveldanna, eins og hann þó hafði samið um að gera. — Það bendir margt á að Rússar hafi eitthvað sérstakt í huga, að því er snertir mál Grikkja og Tyrkja. Sem vottur þess, að eitthvað standi til, er bent á það, að í samkvæmi með konungi Serba og Fer dinand fursta í Búlgaríu, flutti æðsti byskup Serba bæn fyrir Rússakeisara og nefndi hann í bæninni: “verndara Serba. Búlgara og allra slavneskra þjóða”. Þetta vakti alvarlega eftirtekt og þótti undrum sæta. Annað það sem einkennilegt þykir er það, að Rússar hafa boðið að ljá Serbum 120 þúsund hríðskota-rifla. Er sagt. þeir séu nauð- synlegir til heræfinga. Gullnáman ‘Le Roy’, í grend við Rossland, British Columbia, var í gær seld auðmannafélagi fyrir 5 miljóirir dollars. FÖSTUDAG, 12. MARZ. Srórveldin eru óráðin í því enn, hvernig þau eigi að fara með Grikk- land, — í millitíðinni draga Grikkir saman lið sitt á norðurlandamærunum og er nú sagt að þeir hafi um 50,000 hermenn undir vopnum norður í Þessa- líu, og að Tyrkir hafi 100,000, Macedo- níu megin við landamærin. í Bombay á Indlandi ^er nú unnið kappsamlega að bólusetning gegn “svarta-dauðanum”, og er sagt að sú lækningatilraun takist ágætlega.—Frá því veikin byrjaði og til 12. þ. m. hefir hún banað 12,201 mönnum í Bombay- stjórnarumdæminu. Kvillasamt í Mexico. Þar gengur nú influenza, gulu- og bólusótt — alt í senn, og drepa menn í hrönnum, að sagt er. Illviðri megn á Atlantshafi um undanfarna viku. Frá öllum hafnstöð- um koma fregnir af gufuskipum, sem tafizt hafi i ferðum sinum og laskast meira og minna í óveðrinu. Fylkisstjórnin í Ontario hefir gefið ensku félagi einveldi til að leita að námum og grafa úr jörðu í 3 ár í tveim ur landspildum í Skógavatnanámahér- aðinu. Félag þetta fær alveldi yfir 46 þúsund ekrum af landi. Mælist þetta illa fyrir. Inn nafpfrægi háskólakennari Henry Drummond, í Glasgow á Skotlandi, lézt í gær, 46 ára gamall. Ritverk mörg liggja eftir hann og er eitt þeirra kunn- ugt mörgum Islendingum, bæklingur- inn: “Mestur í heimi” (kærleikinn). LAUGARDAG 13. MARZ. Rússar hugsa um að útiloka Breta og Frakka frá samvinnu í Krítar-þræt- unni, af því báðir séu óheilir og líklegir til á hverri stundu að afsegja alveg að beita þvingunarlögum gegn Grikkjum. Segir sagan að af stórveldunum séu það aðeins Rússar, Þjóðverjarog Austurrík- ismenn sem séu sammála og sem vilja beita ofbeldi við Grikki. — Annar stór fundur yar haldin í London í gærkvöldi til að ræða um þetta mdl og andæfa til lögu stórveldanna að kúga Grikki. Með- al ræðumanna voru Herbert Gladstone John Dillon og Henry Labouchere. Eft ir síðustu fregnum að dæma, hafa flota- stjórar stórveldanna við Krít framsett uppástungu um úrlausn vandræðamáls ius og hefir hver þeirra telegraferað ráðsályktun þessa til sinnar stjórnar í fám orðum sagt er uppástungan þessi: að lokað sé öllum höfnum á Krít; að lokað sé Pirushöfninni og enda fleirum á Grikklandi; að tekinn sé flotinn við telegrafstöðvarnar í Syríu; að grísk her skip skuli tekin og geymd við eyna Milo; að sökt skuli grískum herskipum er skjóti á skip stórveldanna; að herjað skuli á gríska torpedobáta, ef þeir leit- ast við að nálgast herskip stórveldanna; að hvert eitt stórveldanna sendi 600 fót- göngumenn til Krítar, af því stór- veldin þarfnist allra sjómanna sinna á öðrum stöðum. Þjóðverjar, Austurrík- ismenn og ítalir hafa þegar tekið vel í þetta. MÁNUDAG, 15. MARZ. Frá London kemur nú sú fregn, að eftir útliti og stefnu að dæma hljóti Bretar innan skamms að koma fram and víg stórveldunum. Er það fullyrt að Salisbury sé algerlega á máli Grikkja, en að hann friðarins vegna hafi gert alt sem einni stjórn er unt að gera, til að halda stórveldunum sammála. Fyrir- ætlun hans á að hafa verið sú, að her- menn Grikkja og Tyrkja rýmdu af Krít samtímis, og að George prinz, sonur Grikkjakonungs, yrði kvaddur tii stjórn ar sem jarl á eynni og skyldi hann sjálf- ur kjósa sér meðráðamann. Að þetta hefir enn ekki haft framgang er ein- göngu sagtað kenna Vilhjálmi Þýzka- landskeisara, sam nú sé algerlega á bandi Rússa. Er sagt að þegar opin- beruð verða öli bréfaviðskifti út af þessu máli muni Salisbury stórum vaxa sem stjórnmálamaður. Rísi Salisbury opinberlega gegn hinum stórveldunum, er búist Við að af því muni leiða strið við Rússa og er því bætt við, að allur þorri manna á Englandi mundi taka því vel, þyí þá yrði loks þetta þrætu- mál alt útkljáð. 30—40 þúsund manna mættu á fundi á Trafalgartorginu í London í gær, til að mæla máli Grikkja Á Krítey og Grikklandi stendur alt i stað, af því svar er ókomið frá stór- veldunuin. En áfram halda Grikkir að hervæða sig. rétt eins og þeir væru bún ir að segja Tyrkjum stríð á hendur. Æsingar miklar á Bretlandi gegn Þjóðverjum á ný og er ástæðan sú, að Vilhjálmur keisari vill fá svo mikla f jár veitingu til herskipagerðar. Bretar segjast hafa ætlast á herskipasmíð eftir útliti um nýár, en ekki gert neitt við óvæntum stórstigum í því efni hjá einni eða annari þjóð. Þegar þar við bætist framkoma ViJhjálms keisara í Kritar- málinu, þá er sízt að undra þó æsingar fari vaxandi gegn þýzku stjórninni. Canadastjórn hefir ákveöið að gefa út sérstök 3 centa frímerki í minningu um 60 ára krýningarhátíð Victoriu drottningar. Er gert ráð fyrir aðhafa þau á boðstólum í 3 mánuði að eins. Transvaalstjórnin er að sögn að reyna að fá Orange-ríkið í bandalag með sér. Kruger gamli er þar á ferð og flutti ræðu i samkvæmi nýlega, þar sam hann sagðist sjálfur hafa orðið enskum mönnum að bana í Jameson- áhlaupinu. Hann taldi Bourunum vísan sigur í stríði við Breta. Fádæma flóð í Missisippi. Flóðið er svo mikið, að í gær auglýsti gufu- skipafélag eitt skemtiferð á tveimur stórum gufubátum 50 rnilur út á land frá fljótinu, yfir akra og engi og milli húsa um það í kafi, eða á floti. Þetta er í Arkansas og i Tennessee er ástand- ið hið sama. ÞRIÐJUDAG, 16. MARZ. 55. þjóðþing Bandaríkja kom sam- an í gær, sem aukaþing, í þeim tilgangi að ráða fram úr fjármálum þjóðarinnar, breyta toll lögunam o. s. frv. í ávarpi sínu hinu fyrsta yfirfór McKinley for- seti sjóðþurðarsögu ríkjanna á síðari ár uro og sýndi fram á, að eini vegurinn til að koma í veg fyrir tekjuhallann væri sá, að auka tekjurnar. Eini vegur inn til þess væri sá, að auka. tollinn á aðfluttum varningi og það væri aðal- verkið sem nú lægi fyrir þinginu, er hann kvaðst vona að það leysti af hendi fljótt og vel. Sú fregn kemur nú frá Aþenu, að Rússar séu að fara í gönur með stór- veldin. Að þeir séu að gera leynisamn- ing við Grikki þess efnis, að samsturid- is og Grikkir ráðist á Tyrkja í Macedo- niu skuli Rússar finna góða og gilda á- stæðu til að taka Konstantínópel. Þeir skuli 8vo síðan halda borginni, en sjá um að Grikkir fái Macedoníu til eignar. Samtímis búa stórveldin sig til að loka höfnum á Grikklandi og senda lið til Krítar, til að halda eyjarskeggjum í skefjum á roeðan verið er að mynda fyr- irhugaða sjálfsstjórn á eynni. Á Grikk landi standa menn að sögn tilbúnir að herja á Tyrkja samdægurs og stórveldin loka höfnunum. Frá Cuba kemur sú fregn, að Spán- arstjórn sé um það að gefast upp og sleppa eynni við eyjarskeggja. "Dingley”-lög eiga toll-lögin nýju í Bandarikjum að heita, eftir höfundi þeirra. Af frumvarpinu að dæma verð ur tollurinn að meðaltali eins hár og hin nafnfrægu ‘McKinley’-tolllög. Á ymsum vörutegundum verður tollurinn endahærri. “Bad Young Man”, eða Charcoal. Indíáninn, sem drap 4 eða 5 menn í Al- berta vestra í haust, var hengdur í Mc- Leod, Alberta, í gær. / Islendinga-dagrinn. Eftir Jón Ólafsson. Chicago, 1. Marz 1897. Herra litstjóri. — Eins og yður og lesendum íslenzku Winnipeg-blaðanna er full-kunnugt, hefi ég i öll þessi þrjú ár síðan ég hætti að stýra íslenzku blaði, algerlega sneitt mig hjá deilumálum landa liér vestra. Svo grandvarlega hefi óg forðazt það, að jafnvel þóttbeint hafi verið að mér nafngreindum fólslegum svívirðingarorðum, þá hefi ég eigi svo mikið sem svarað einu orði. Þegar ég nú bregð af þessari reglu' þá er það af því, að mér þykir hér skifta máli, er í raun réttri varði alt þjóðerni vort hér vestra, að ég ekki segi sóma þjóðernis vors. Það er ávarpið 1 báðum íslenzku blöðunum um íslendinga-daginn, sem ég á hér við, þaðer 8 menn hafa skrifað undir. Ég vona að þótt sumir af þess- um mönnum sé og hafi jafnan verið meðal kærustu vina minna, þá virði þeir raór þrð ekk> ♦?] óvingjinar ftðóg IpiVns' við að sýna, að ávarp þeirra sé vanhugs- að, og aðalástæðan fyrir aðaltillögu þeirra sé bygð á því, sem aldrei hefir átt sér stað, og sé því engin ástæða. Allir þeir erlendir þjóðflokkar hér í landi, sem halda árlegan minningardag fyrir sig, hafa mér vitanlega valið til þess einhvern þann dag, er var söguleg- ur merkisdagur innar upphaflegu ætt- jarðar Jieirra og þar með alls þjóðernis- ins. Eðlilega velja þær þjóðir, er ætt- jörð þeirra hefir áunnið sér sjálfsforræði, helzt þann dag til minningardags, er sjálfsforræði þeirra er við bundið, ef það verðr með vissu dagsett. I>annig lialda frændr vorir Norðmenn 17. Maí helgan, því að það er stjórnarskrárdairr þeirra, enda kveðr mest að hátíðahaldi þeirraaf öllum erlendum þjóðum hér, enda eiga þeir flestum öðrum þjóðum meira að fagna. Danir hér í landi halda og ár- lega stjórnarskrárdag sinn hátíðlegan, þótt flestum þeirra þyki stjórnarskráin ærið ófullkomin og helzt til illa haldin. Hún markaði þó þau tímamót í lífi þjóðarinnar, að einveldið konungsvalds- ins endaði með henni. Irar veslingar liafa engri sjálfstjórn að fagna, en ekki dettr þeim í hug að halda minningardag síns fyrra þjóðfrels- is, sem þeir sjálfir glötuðu fyrir vesal- mensku og ódrengskap sjálfra sín,alveg eins og vér íslendingar glötuðum voru forna frelsi fyrir sömu orsakir. Þeir hafa heldr valið sér dag þjóðdýrlings síns (Patriks byskups ins helga, er forn- sögur vorar geta um). Sama er um Skota, að þeir halda sinn Andrésar-dag. Það er nú svo um oss Islendinga, að vér höfum enn eigi heima á Islandi neinn almenhan þjóðlegan minningar- dag, er alment sé haldinn um alt land árlega. Orsök til þessa er sú ein, að eigi er auðið að halda þar samkomur undir berum liimni. eða reyndar neinar stórsamkomur, að vetri til sakir veðr- lags, en um þann tíma árs, sem ætlandi er á gott veðr, eru annir svo miklar um hinn stutta bjargræðistíma, að eigi er við að búast að menn til sveita eyði neinu af honum til hátíðahalda. Heima er því vart að búast við neinum almenn- um hátíðisdegi ólögboðnum, nema ef vera skyldi 1 Reykjavik og öðrum kaup- tilhneiging til að halda einmitt 2. Ágúst liátíðlegan. Það hefir iðulega verið gert í Reykjavik, enda þótt ekki á hverju ári stundum með samsæti, stundum með ræðuhöldum og hljóðfæraslætti á Aust- urvelli, og víst ávalt er flaggað þar á hverri stöng þann dag, og svo er víðar í kaupstöðum á íslandi. Það eru öll líkindi til, að 2. Ágúst konrist svo nálægt þvi, sem auðið er eft- ir atvikum, að verða haldinn sem merk- isdagr á íslandi. En hvað sem því líðr, þá er vert að athuga, hvað það er, sem kemr útlend- um þjóðum hér i landi til að halda hér þjóðlegan merkidag. Það getr engum dulizt, að tilgangr- inn er sá, að vekja og glæða þær minn- ingar og tilfinningar, sem þeim þjóð- flokki einum eru sameiginlegar, en það eru þær minningar og tilfinningar, er tengja hann við ættjörð sina, við vöggu síns þjóðernis. Vér Islendingar viljum halda ossís- lendinga-dag til þess, að minna sjálfa oss og aðra á, að vér erum Ixlendingar. Til þess að vegsama Canada-land eða Bainlaríkin þurfum vér engan sérstak- an Islendinga-dag að halda. Vér getum gert það ásamt öðrum á Dominion-dag- inn og á 4. Júlí. Ef vér fyrirverðum oss fyrir þjóð- erni vort, eða ef vér berum kala í brjósti til þess og ættjarðar vorrar, þá höldum í guðs bænum engan íslendinya-dag. Það er þúsund sinnum sómasamlegra, en að halda daginn í þeim tilgangi, að nota færið til svívirða alt, 'sem heima er unnið og gert ; að nota það til að lasta ísland og ljúga óhróðri upp á þá sem hei ua eru og vinna þar eftir megni að fraraför lands og þjóðar; að nota það til að láta 1 ljósi trúleysi á framtíð Islands samfara gyllingum á ástandinu hér vestra; að nota daginn sem vestrfara- agn. Þeir menn eru til meðal vor hér vestra, sem helzt vilja halda Islendinga- dag i þessu skyni. Það er eðlilegt, að þei-n hafi frá öndverðu verið iila við. að jflsj.M.iuowj bnndin.n vi.a »niintf insuna um sjálfsforræði Islands, um ina póli- tisku endrfæðing ættjarðar vorrar, því að það, að heiðra slíka minning, felr jafnframt í sér trú á framtíð Islands. En þeim mönnum, sem mest er um að gera að lokka sem flesta að heiman hing- að vestr, þeim hlýtr fyrst og fremst að vera um að gera, að eyða allri trú á framtíð íslands ; þeim hlýtr að vera meinilla við sérhvern vott um það, að vér Vestr-íslendingar viðrkennum, að þjóðflokkr vor geti átt framfararíka framtíð í vændum heima á ættjörð vorri. Ég vil engin nöfn nefna hér, því ég vil engan særa að nauðsynjalausu ; en það er mér fullkunnugt, að mótspvrnan gegn 2. Ágúst er í Winnipeg runnin úr þessari átt. Vitaskuld voru aðrar á- stæður bornar fyrir, og þær eru það auðvitað, sem þér, hr. ritstjóri, og nokkrir aðrir þjóðlyndir og góðir dreng- ir hafið faflizt á, af því lika að þér hafið ekki eygt ið sanna samhengið. Ef nú á að miða íslendinga-dag við nokkurn merkisatburð í Islands sögu,er lifandi standi i meðvitund þjóðarinnar allrar og meiri þýðing hafi og varanlegri fyrir heillarika framtíð landsins, en nokkur annar, þá getr um engan við- burð verið að ræða, er til jafns komist við það, er land vort fékk sjálfstjórn. Enginn hefir borið við að nefna nokkurn annan viðburð, er nálgazt gæti þennan að þýðingu. Ég heli einhverstaðar séð þá athugasemd, að 2. Ágúst væri rangt valinn, því að stjórnarskráin hafi öðlazt gildi 1. Ágúst, en ekki 2., og er þetta bygt á því, að í henni stendr, að hún öðlist. gildi 1. Ágúst 1874. En það varð þó að eins á rappírnum, Hún kom í verkinu fyrst til framkvæmdar sunnu- daginn 2. Ágúst, þjóðhátíðardaginn. Þegar hún var gefin út um vetrinn, var þjóðhátíðardagrinn enn ekki ákveðinn. Hann var síðar settr 2. Ágúst, og til að gera hann sem hátíðlegastan og minnis- verðastan merkisdag, frestaði konungr- inn, sem þá var á Islandi, að fram- kvæma þá fyrstu stjórnarathöfn henni samkvæmt, sem nauðsynlegt var til að koma henni í framkvæmd, þar til 2. Ágúst, enda þótt sá dagr væri sunnu- dagr og annars sé eigi vant að gora stjórnarathafnir á sunnudegi. En þenn- túnum. En þar hefir líka sýnt sig talsyerð an dag kvaddi konungr sér ráðgjafa fyrir ísland, og við það myndaðist in sérstaka stjórn Islands.* Aðrir viðburðir, sem nefndir hafa verið sem nógu merkir til að binda þjóð- minningardag við, eru þessir : 1. Setningardagr alþingis ins forna. Þar má því til svara, að sá dagr hefir enga beinlínis þýðingu fyrir ísland og íslendinga nú á dögum. íslendingar glötuðu sjálfir frelsi sínu og gengu und ir konringsvald. Síðar afsöluðu þeir sér löggjafarvaldi og játuðust undir kon- ungs-einveldi. Með því hvarf ísland úr ríkjatölu sem xjálfstœtt land, og þar með slitnaði allr samhengisþráðr milli vors forna þjóðfrelsis og vors núverardi rétt- arástands- Að minnast með blygðun vesalmensku forfeðra vorra er litið há- tíðarefni. Og hve fjarri setning ins forna Alþingis sé meðvitund vor nútíð- armanna, sést bezt á því, að þessir átta menn, sem nú skora á oss að halda þann dag helgan, vita ckki einu sinni, Jivein dag alþingi var sett i fornöld. Því að það er algerlega HANGT, að sá dagr sé fimtudagrinn, sem fellr 11.—17. Júní. Það er merkilegt, að enginn þeirra skuli hafa athugað þetta. Tveir af þeim (hr. Björn Halldórsson og hr. Kristinn Stefánsson) hljóta að hafa ritað undir áskorunina of umhugsunarlítið, þvf að þeir hljóta að vita, að t. d. 17. Júní eftir gamla stýl er all annar dagr, en 17. Júní eftir nýja stýl (núverandi timatali). Alþingi á Þingvelli var upphaflega sett þá er níu vikur voru af sumri, þ. e. fimtudaginn er byrjaði 10. viku sum- ars.** Nú var sumardagr inn fyrsti sami dagr þá sem nú, en sakir þess að þá fylgdu menn gamla stýl, var það fimtu- dagrinn, sem féll næst á undan 16. April, en verðr eftir voru tímatali fimtu- dagrinn næsti á undan 26. Apríl. Af þessu leiðir, að fimtudagrinn í 10. viku sumars var sá er féll, eftir því sem forn- menn töldu, næst á undan 18. Júni ; en eftir voru (rétta) tali er það fimtudagr- inn-, sem fellr næst á undan 28. Júní (getr því borið í fyrsta lagi upp á 21., en i síðasta lagi-upp á 27. Júní), Með Jiessu er allr fótrinn fallinn undan tillögunni um fimtudaginn átt- menninganna. Auk þessa er það tví- sýnt, hvort rétt sé að álíta, að ið íslenzka lýðveldi hafi eigi verið stofnað fyrri en þingið var flutt að Öxará (930) að ráði IJlfljóts. Ulfljótslög voru þá þrem ár- um eldri. En auk þess var á íslandi háð árlegt þing (Kjalaruesþing) löngu áðr. Það stofnaði Þorsteinn sonr Ing- Olfs Arnarsonar.*** En það sýnir, að menn hafa þegar þá sett sér lógbundna stjórn. En hvað sem um það er, þá hefir setning forna alþingis enga minstu bein- línis þýðing framar fyrir Islendinga nú og framtiö þeirra. slendr í engu sögu- legu samhengi né sambandi við stjórn- arkjör íslands nú eða framv^is. 2. Fundr Islands. Sá fyrsti nafn- greindr maðr, er fann Island, var Nadd- aðr víkingr. Engin minstu atvik eru nú af sögum kunn, er bendi á nokkur líkindi til þess, að það hafi fremr verið í Júní, en t. d. í Júlí eða Ágúst að hann fann Island. Áuk þess vita menn, að írar höfðu fundið Island fyrri en það. 3. Ameríku-fundr Leifs Eiríksson- ar. Það er nú svo fjarri því, að líkurn- ar lúti að því, að Leifr hafi fundið Ame- ríku í Júnimánuði, að auðvelt er að færa allsterkar likur til, að það hafi verið talsvert síðar á sumrinu. 4. “Það er vafalaust að inir fyrstu íslenzku landnámsmenn á þessari öld stigu fyrst, fæti á land í Ameríku, til að taka sér bólfestu í landi Leifs ins hepna, í Júnímánuði 1870.” Svo segja höfundarnir. í Júnímánuði 1870 veit ég ekki til, að menn hafi sagnir um að neinir Is- lendingar hafi stigið fæti á land í Ame- riku, nema þeir Jón Gíslason og Árni snikkari Guðmundarson, báðir frá Eyr- arbakka, Guðmundur Guðmundsson frá *) Þessi og fleiri konunglegar stjórn- arathafnir, er konungr þá framkvæmdi í Reykjavik með /síanrfs-ráðgjafa einan við hlið sér (þar á meðal konungs-úr- skurðr) án þess að nokkurt ríkisrkd væri haldið, sýnir, að kgl. stjórnarathafnir í íslcnzkvn* ínálum þurfa (og eiga) ekki að liggja undir rikisráð Danaveldis. **) Sjá íslendinga-bók, 7. kap. ***) Islendinga-bók. 3. kap. Mundakoti og Jón Einarsson frá Reykjavík. Þeir settust að í Wisconsin. “Land Leifs ins hepna” veit nú enginn með nákvæmri vissu, hvar verið hefir, auðvitað á austrströndirini einhversstað- ar, í Bandaríkjunum. En höfundarnir virðast nefna alla álfuna (Ameríku) með því nafni hér, og er ég ekki að finna neitt að þvi. Ef þetta hefði nú verið fyrstu Is- lendingar, sem fluttu til Ameríku, þá væri það þó harla ómerkr viðburðr fyrir Island og íslendinga i heild sinni. Það gæti að eins talizt nokkur merkisvið- burðr fyrir Fe«fr-íslendinga. Gæti því að eins gefið tilefni til Fesfr-íslendinga- dags, en ekki til lslendinga-dags. Leiddi og líklega til þess, að Bandaríkja-Ís- lendingar mintust þess d»gs (sem elcki mun verið hafa áðr nefndr fimtudagr), og ættu þá Canada-íslendingar að taka sér annan dag, þegar fyrstu landar stigu þar fæti á land. En auk þess vóru pessir menn ekkí fyrstu Islendingarnii sem stigu fæti á land í Ameriku til að setjast þar að* Ekki allfáir Islendingar höfðu löngu áðr flutt sig til Suður-Ameríku, og nokkrir til Bandarikjanna. 1874 talaði ég liér í Bandaríkjum við Islending, sem var Bandaríkja-þegn, og búinn að vera hér svo lengi, að hann hafði að mestu gleymt að tala íslenzku, þótt hann skyldi hana bæði talaða og á bók. Ég þekti ætt hans á íslandi. Áttmenningarnir hafa því komizt að þeirri niðurstöðu að “velja” til þjóð- minningardags fimtudaginn næsta fyrir 18. Júní (sem ýmist getr orðið í 1. eða 9. viku sumars !), þann dag, er enginn þjóðminnilegr viðburðr í íslands sögu á neitt skjdt við ! • Það hefir verið talin sem ástæða til að flytja daginn fram að menn ættu svo annríkt um 2. Ágúst. Þá væri komið fast að uppskeru-tíma og menn væru þá að enda við hirða hey sín. Bæjarbúarnir verða riú væntanlega jafnan þeir, sem almennast halda íslend- ingndskg. og læim cru a'Hr .sumardi-gar •> ámóta annsamir. Annars hugði ég, að hej skapr stæði einna hæst um miðjan Júlí meðal landa liér vestra. En hvað hafa svo þeir landar gert, sem vikið hafa frá 2; Ágúst með hátíðahaldið ? Alftvetningar hafa valið sér 16. Júlí; Argylebúar héldu daginn í fyrra 16. Júlí; Alberta-menn héldu hann 25. Júlí. Að eins Minneota-menn ákváðu daginn 6., en frestuðu honum svo til 11. Júní. Engin bj-gð valdi Júní-lok, enda er þá kj-rkjuþing á ferðinni ven.iulega, ‘ Þeir sem vikið hafa frá 2. Ágúst, hafa þá helzt kosið 16.—25. Júlí. Það er nú ekki allfjarri 2. Ágúst, og víst fult svo mikill annatlmi fytir mörgum.— (Hér í Chicago var íslendinga-dagr haldinn í fj-rra 2. Ágúst). Það er lítilmótlegt til afspurnar heim, að í þessum glæsilega Vestrheimi höfum vér ekki ráð á að verja einum degi að sumarlagi til að minnast ætt- jarðar vorrar. Ég er viss um það, að ekki verða menn alstaðar hér syo hverflyndir og ó- þjóðræknir, að láta ijaldboð fárra ótil- kvaddra manna í Winnipeg aftra sér frá að halda Islendinga-daginn 2. Ágúst. Og ég vona, að Winnipegbúar, sem mest ber á í þessu efni, haldi fast yið 2. Agúst að sinni. Eftir að ég hafði lokið framanrituð- um línum, fæ ég bréf frá einum inna merkustu þingmanna heima á íslandi, og ber svo merkilega til, að hann minn- ist þar á íslendinga dag vorn, og hefir við orð að bera frumvarp fram um það á pjngi í sumar, að löglielga 2. Ágúst sem íslenzkan þjóðminningardag, líkt og 4. Júli er hér. Væri það nú ekki býsna ólögulegt, ef vér færum þá einmitt nú að breyta til um daginn ? F.g vona, herra ritstjóri, þótt þér séuð af “Lögbergi” talinn frumkeöðuU að þessu ískndingadags-hringli. að þér unnið línum þessum rúms í næsta blaði Hkr., þvi frernr sem ég liugði yðr mörg- um fremr hljmtan 2. Ágúst.

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.