Heimskringla - 18.03.1897, Síða 2
HE1M6KRINGLA 18 MARZ 1897.
Heimskringla
PUBLISHED BY
The Heimskringla Frtg. & Publ. Co.
•• ••
Verð blaðsina í Canda og Bandar.:
$2 um árið [fyrirfram borgað]
Sent til íslands [fyrirfram borgað
af kaupendum bl. hér] $ 1.
••••
Uppsögn ógild að lögum nema
kaupandi sé skuldlaus við blaðið.
• •••
Peningar sendist í P. O. Money
Order, Registered Letter eða Ex-
press Money Order. Bankaávis-
anir á aðra banka en í Winnipeg
að eins teknar með afföllum.
• • ••
EGGERTJOHANNSSON
EDITOR.
EINAR OLAFSSON
BUSINESS MANAGER.
• • ••
Office :
Comer Ross Ave & Nena Str.
P. «. Itox 305.
Stórmál á dagskrá.
Það vora tvö þýðingarmikil mál
á dagskrá á síðasta sveitarstjórnar-
fundi í Nýja-íslandi. Yér höfðum
ekki fengið nema ónákvæmar fréttir
af þeim fundi þangað tii á laugar-
daginn var, að vér náðum tali af
oddvita sveitarinnar, Jóh. kaupm.
Sigurðssyni að Hnausum. Fundur-
inn var settur að Ósi við Islendinga-
fljót hinn 3. þ. m. og stóð yfir í tvo
daga og seinni daginn uppihaldslaust
fram undir miðnætti. Er það að lfk-
um lengsti sveitarstjórnarfundur,
sem enn hefir verið haldinn í Gimli-
sveit, enda voru þar rædd og afgreidd
milli 40 og 50 mál alls. Stærstu og
þýðingarmestu málin sem rædd voru
og afgreidd á fundinum, voru þessi:
Samkvæmt áskoran frá almenn-
um fundi á Gimli, var samþykt að
senda nefnd manna á fund fylkis-
-stjórnarinnar og biðja um $5000 til
vega og brúargerða í sveitinni. Var
það síðar samþykt, að í nefnd þessari
skyldu sveitarstjórnarmennirnir allir:
Oddviti Jóh. Sigurðsson og meðráða-
menn Kr. Lífmann, Gísli Jónsson,
Gunnsteinn Eyjólfsson og Jóhann
Straumfjörð. Er ákveðið að þessi
nefnd mæti á skrifstofu ráðherra op-
inberra starfa í fylkinu, á mánudag-
inn 29. þ. m.
Hið annað stórmálið var það, að
samþykt var að senda bænarskrá til
sjó og veiðimálaráðherra Canada
og biðja sambandsstjórnina að lengja
friðunartíma hvítflskjar og nálfiskj-
ar (Pickerel) og hætta algerlega að
veita fiskifélögunum veiðileyfi í
Winnipegvatni. Það sem farið er
fram á í bænarskránni er það: að
hvítfisk megi veiða á sumrin frá 15.
Maí til 31. Júlí, og að friðunartími
hans byrji 1. Ágúst og endi 15. Nóv-
ember ár hvert, að Pickerel friðun-
artími byrji 15. Apríl og endi 15.
Júní. Hvað veiðileyfi snertir, þá er
beðið um að engir fái veiðileyfi nema
búendur við vatnið, eftir að hafa bú-
ið þar árlangt, og að hver þeirra hafi
leyfi til að halda úti 1500 föðmum
(3000 yards) af netum ; að veiðium-
sjónarmaður skuli ávalt á veiðistöðv-
unum alla sumarvertíðina, til að sjá
um að lögum öllum og regium áhrær-
andi fiskveiði sé framfylgt. Þáerog
beðið um að fiskiklakshúsið í Selkirk
sé aldrei látið standa ónotað, en að
flskiklaki sé altaf haldið áfram og að
minsta kosti 1 milj. ungra hvítfiska
VEITT
HÆSTU VBRÐLAUN A UEIMSSÝNINOUNN
DH
BáKING
POWDiR
IÐ BEZT TILBÚNA
óblönduð vínberja Cream of Tartar
powder. Ekkert álún, ammonia eða
önnur óholl efni.
40 ára reynslu.
slept 1 Winnipegvatn á hverju ári, og
að gætur séu hafðar á, að þeim ung-
flski sé ekki slept i Rauðá eða rétt
við Iíauðárósa, þar sem þeir þá und-
ir eins verða öðrum fiski, Pike o. s.
frv., að bráð, heldur að ungfiskurinn
sé fluttur nokkrar mílur norður á
vatn áður en honum er slept úr kist-
unum, sem hann er fluttur í.
Hin önnur málin sem rædd voru
og afgreidd á fundinum, kunnum vér
ekki að nefna. Þó má geta þess, að
vegastjórunum var falið á hendur, að
fá girðingar, hvar sem eru á vega-
stæði innan sveitarinnar, færðar út
fyrir vegastæðið, eða á útjaðar þess,
eins og rétt er samkvæmt lögum.
Það væri myndarlegt ekki síður en
rétt og sjálfsagt, að fá þetta fram-
kvæmt, því í augum umfarenda virð-
ist það órækur vottur um drasl og
sóðaskap, þegar vegstæðið hefir alla
hugsanlega breidd á fárra mílna
svæði.
Fróðleg skýrsla
Það er fróðleg skýrsla sem fram
var lögð á fylkisþingi fyrir skömmu.
Það var áætlun um fólksfjölda í hin-
um ýmsu sveitum í fylkinu, tala
kvikfénaðar, tala ræktaðra ekra og
verð fastra eigna og lausra í hverri
sveit, samkvæmt matskrá sveitanna.
Það er í fyrsta skifti að þesskyns
skýrsla hefir komið fram, en það verð-
ur sjálfsagt ekki í seinasta skiftið.
Þvert á móti eru allar líkur til að
samskonar skýrsla komi framvegis á
hverju ári og þá fyrst nær hún fylli-
lega tilgangi sínum. Menn geta þá
á hverju ári séð hvert efni manna í
þessari sveitinni eða hinni, hafa auk-
ist eða rýrnað á árinu, og þá sýnir
hún einnig hvernig menn færa út
kvlarnar og hvað mikið á ári hverju.
Vitaskuld getur þessi skýrsla aldrei
orðið nákvæm, þar sem hún vitan-
lega er tekin eftir matskrá og öðrum
slíkum gögnum hinna ýmsu sveita-
stjórna. En haldi hún áfram að
koma út sýnir hún samt fjölgun fólks,
svona nokkurnveginn, 1 hverri sveit
fyrir sig, fjölgun kvikfénaðar og
fjölgun ekra, sem ræktaðar eru. Af
skýrslunni má þess vegna æfinlega
sjá, hvert þessi sveitin þroskast á-
fram eða stendur f stað á árinu.
Af þvi engin samskonar skýrsla
er til svo kunnugt sé, er samanburð-
ur algerlega ómögulegur í þettasinn.
En af henni sjá menn þá samt, hvað
gerst hefir á ákveðnu tímabili, og af
því svo margir “liberal”-gæðingar í
bændaröð nýbúnir að lýsa ástandinu
hér þannig, að bændur væru ver
komnir en þrælarnir í suðurríkjunum
forðum, er sérlega heppilegt og þakk-
lætisvert að hún var gefin út, þvf
hún rekur lýgina hlífðarlaust niður í
kok þeirra leigutóla. Það mætti
benda á æðimörg atriði í þessari
skýrslu, sem sanna svo vel sem verð-
ur að frajnburður “liberal-patrón-
anna” er.hæfulaust álas um fylkið.
En vér látum nægja að benda á eitt
einasta arriði þessu til sönnunar. Það
er atriðið sem höndlar með Mennón-
íta-byggðina nálægt suðurjaðri fylk-
isins, — Rhineland sveit. Innflutn-
ingur þangað hófst um það bil, er
íslendingar fyrst fluttu til Manitoba.
Mennónítar eru auðvitað viðurkendir
dugnaðarbændur, sem kunni alla
búnaðaraðferð eins og hún tíðkast hér
á sléttunum, því Svartahafssléttan í
Rússlandi er áþekk mjög sléttunum
hér. Sumir þeirra, ef til vill fleiri
hlutinn, hefir líka komið hingað með
dálítil efni og nokkurir með mikil
efni. En þó vora þeir sem fyrstir
fluttu ekki fjölskrúðugri en svo, að
þeir tóku stjómarlán ekki síðuv en
íslendingarnir fyrstu—fengu lánaða
marga tugi þúsunda dollars, en sem
þeir nú fyrir 4—5 árum hafa lokið
við að endurborga, með fullum vöxt-
um. Nú er sveit þessi—bygð mennó-
nttum eingöngu—fólksflesta bænda-
sveitin í fylkinu og með þeim auðug-
ustu, eins og fylgjandi skýrsla sýnir:
íbúar í sveitinni eru 7860; ekrur af
landi ræktaðar 133,088; hestar í
sveitinni 6233 ; nautgripir 14,362;
sauðfé 1784; svín 4759. Matsverð
fasteigna $1,550,817; matsverð lausa-
fjár $961,636. Matsverð allra eign-
anna því $2,512,453. Nú er það eins
víst eins og það að sólin sldn, að
matsverð eignanna upp og ofan er
miklu lægra en það sem nokkur þess-
ara bænda mundi vilja selja þær fyr-
ir, miklu minna enda en þeim yrði
boðið fyrir þær. En setji maður svo
að matsverðið sé fult ígildi eign-
anna, þá kemur á nef hvert í bygð-
inni sem næst $320, sé eignunum
jafnað niður, eða $1600 á hverja með-
al fjölskyldu. Þegar á það er litið,
að þessir menn hafa nú borgað stjórn-
inni (endurgjald lánsins með vöxtum)
eitthvað um $20 á nef hvert í sveit-
inni, fætt sig og klætt og gert alt það
sem nýbyggjar þurfa að gera og sem
ekki er metið nema lítils virði, þó
það kosti ígildi mikilla peninga, -þá
er auðsætt að hér er um ekki svo lít-
inn gróða að gera, ekki neinn stór-
gróða að vísu, enda Mennónítar langt
frá því að vera stórgróðabragðamenn
en framhaldandi gróði ár eftir ár,
bezti og vissasti gróðinn, er sprottinn
er af hægri en sígandi framför í bún-
aði.
Þaðeralment talið að Gimli-
sveitin sé jafngömul þessari Mennó-
nita-bygð, því bygðin var hafin í
báðum svejtum um sömu mundir í
fyrstu. En svo er það í rauninni
ekki alveg rétt. Það var allur þorri
nýlendubúa sem flúði úr N.-ísI. eftir
fá ár, og þeir fáu sem eftir voru
héngu þar óvissir í hvort heldur að
fara eins og hinir, eða bíða betri tíma.
Það millibilsástand hélzt til þess 1884
til 1885, að innflutningur hófst þang-
að á ný. Sem framhaldandi, vaxandi
nýlenda, er þvr Nýja ísland í raun
réttri ekki nema 12—14 ára gömul,
og framhaldið og vöxturinn hefir
sannarlega verið skrikkjóttur alt til
þessa. Það er líka sannast að það er
munur á skýrslu Gimlisveitar og
Rhineland-sveitar. Gimli-sveitar-
skýrslan er á þessa leið : Ibúar eru
taldir 1,612, ekrur af landi ræktaðar
2005; hestar í sveitinni 38; nautgrip-
ir 2752; sauðfé 2571; svin 19 ; mats-
verð fasteigna. $128,057 ; lausafé
$18,501. Matsverð allra eignanna
því $146,558, og kemur þá á nef
hvert $91,00, eða um $455 á hverja
meðalfjölskyldu. Þetta er munur og
miklu meiri en hann ætti að vera,
enda þótt vitanlegt sé að Islending-
arnir flestir, sem flutt hafa til Nýja
íslands í seinni tíð, hafi verið efna-
lausir menn. Það er vitanlegt líka,
að þó eins kappsamlega hefði verið
unnið að landbúnaði i Nýja ísl., eins
og I Rhíneland, hefði samt orðið fifik-
ill munur á ekrufjölda undir ræktun.
Það gerir skógurinn og aðrir örðug-
leikar, sem ekki eru í Rhineland. En
það sýnist eigi að sfður ástæða til að
ætla að efnahagur N.-ísl. hefði verið
miklu betri en hann er, ef menn hefðu
lagt meiri trúnað á jarðyrkju en
treyst þeim mun minna á fiskiveiðar.
Það fórust merkum N.-ísl. orð á þá
leið, núna ekki alls fyrir löngu, að
þrátt fyrir ágæti Winnipeg-vatris og
veiðarinnar í því, væri hann nú far-
inn að álíta að fiskiveiðamar væru
niðurdrep nýlendunnar. Þegar at-
hugað er hve ómöguleut er fyrir einn
efnalítinn mann að • unda í senn
bæði landbúnað og skiveiðar og
gera hvorttveggja þu -kil sem þarf,
hlýtur maður að viðn .enna að það
er talsverður sann: • <.i fólginn ;
þessu áliti um áhrif kiveiðanna á
nýlenduna.
Annað sem ath> •nvert er við
þennan samanburð, ei .éttbýl ið. Það
er óefað eitt af því, sem staðið hefir
N.-Isl. fyrir þrifum, að menn hafa
þanið bygðina yfir svo víðáttumikið
landflæmi, þanið hana með fram
vatninu svo að hún er öll á langveg-
inn. Væri Ný-íslendingar jafnmarg-
ir á hverri ferhyrningsmílu, eins og
Mennonítar í Rhineland, ætti Ný-ísl.-
bygðin ekkiað taka yfir stærra svæði
en svarar 6x15 mílur. Með öðr-
um orðum kæmust N.-Isl. þá allir á
spildu 6 mílna breiða frá vatninu og
sem næði frá Gimli norður á Árnesið
norðanvert,—að Oddnýjarstöðum t.d.
Það leynir sér ekki, að væri bygðin
svona þétt þá væri hún æði mikið
skemtilegri fyrir nýlendumenn sjálfa
og að með sama tilkostnaði, sama
vinnuafli og eytt hefir verið í vcga-
gerð í nýlendunni, væru orðnir við-
unanlega góðir vegir um alla bygð-
ina, ef hún væri ekki víðáttumeiri en
hér segir.
Aðferðin hefir að mörgu leyti
verið öfug við það sem heppilegast
hefði verið í Nýja Islandi til þessa.
Spursmálið er hvort ekki eru tiltök
að breyta henni í þeim atriðum sem
viðráðanleg eru.
Margt er til.
Fylgjandi samtíning áhrærandi
einkaleyfi höfum vér eftir einkaleyfis-
umboðsmönnum : Marion & Marion,
Teraple Building, Montreal. Sýna þéssi
atriði hvað til er af einkaleyfum í Banda
ríkjum og Canada á þeim fáu hlutum
sem nefndir eru :
Það oru til 2487 eínkaleyfi á alls-
konar útbúnaði til að bjarga fólki úr
eldsvoða í stórhýsum í borgurn.
Sodavatn og aðrir áfengislausir
svaladrykkir eruhúnir til eftir formúl-
um, sem 278einkaleyfl hvíla á.
2465 einkaleyfi hvila á spjöldum og
útbúningi til að takmarka og hefta
grfustraum úr gufuvélum.
Til umbóta og breytinga á telegraf-
vélum og áhöldum í því sambandi, hafa
verið gefin út 3075 einkaleyfi.
Fiskimenn geta valið um veiðarfæri
allskonar sem 2677 einkaleyfi hvíla á.
4389 einkaleyfi hafa verið gefin
mönnum sem fundið hafa upp nýtt lag
á stólum eða einhverjum hlutastólanna.
Þegar þessa er gætt er ekki að kynja
þótt stólar sem í fyrra voru ,hæst móð-
ins,” séu algerlega úr gildi i ár.
Það eru ekkí til nema 1332 tegundir
af einkaleyfísmeðulum, sem fengið hafa
einkaleyfi hér í landi,—pillum, sarsapar-
illum og öðru altlæknandi lifsinsvatni!
7400 einkaleyfi hafa verið gefin út til
umbóta og breytinga á aktýgjum og
reiðfærum.
455 menn hafa fengið einkaleyfi til
þess ymist að setja saman efni í stórhýsi
sem ekki á að geta brunnið, eða til að
koma upp þeim byggingum úr almennu
efni, en með nýrri aðferð og eftir nýjum
reglum. sem koma eiga i veg fyrir bruna.
Uppfindingar til málmblöndunar og
smíða úr málmi allskonar eru margar. i
Þau einkaleyfi eru yfir 25 þús. talsins.
4435 einkaleyfi hafa verið gefin út i
til að bæta og breyta smjörgerðarvélum j
áhöldum sem að smjörgerð tilheyra og j
til að breyta aðferð við smjörgerðina.
Smiðatól trésmfða eru af mörgum |
tegundum, enda eru til 4235 þesskyns
einkalevfi. Meðal kynlegustu uppfind-
inganna er nafar sem borar ferhyrnda
holu.
Matreiðslukonur geta rist, skorið
eða höggið garðávöxtu ineð 2005 ólíkurn
áhöldum, ef hagnýtt væru öll þau einka-
leyfi sem til eru.
5833 einkaleyfí hafa verið gefin út
til bóta og breytinga á prentvélum og
áhöldum ýmsum er að prentverki lúta.
Stein tilbúinn af mannahöudum,
kalk og vatnslím má búa til samkvæmt |
1159 einkaleyfis-formúlum.
Til að bæta og breyta áhöldum sára-
lækna hafa verið gefin út 3335 einkaleyfi. j
Æfiminning.
Þess var getið í blaðinu nýlega, að j
kona mín væri látin, lmsfreyja Miidríð- j
ur Jóhannsdóttir. Eius og frá var
skýrt í blaðinu var hún 72 ára að aldri j
er hún lózt, 2. Marz 1897. Við þetta j
tækifæri finst mér viðeigaodi að minu-
ast, hennar raeð nokkrum þakklætis og
virðimrar orðum. Eft.ir 40 ára sambúð j
með mér í hjónabandi á hún skilið svo |
litla viðurkenningu. Hún var mér ást-
úðleg eiginkona og stóð kvenna bezt'í
sinni stöðu. Fyrst um sinn þurftum j
við að leggja hart á okkur til þess að j
þurfa ekki að verða upp á annara hjálp 1
komin, og sem hún átti sinn fullan þátt í
í að tókst. Eg má minnast þess hve !
hetjulega hún gekk fram í því stríði
okkar og barðist möglunarlaust, eins j
og takmarkaðir kraftar hennar framast j
leyfðu. MildríðurVar gáfuð kona og !
mjög hneigðtil bóknáms, en á ungdóms ;
árum hennar gafsthenni engiuu kostur
á að framfylgja þeirri löngun sinni, að
mentast. Faðir hennar var forn í .skapi
og liugði börnum sínum hentara að j
stunda bú en bóknám. Hún var gjaf- |
mild kona og svo viðkvæm, að hún i
mátti ekki aumt sjá, enda inun martrur j
sá, er minnist heunar nioð þakklæti.
Hún hafði annað álit á vináttn en al- 1
ment gerist, og af því leiddi, að þó hún
gæti ekki aumt séðeða látið nokkurn
fynjandi frá sér fara, var hún sér aldrei
úti um marga vini; hún víldi hafa þá
fáa, en hún vildi að það væri vinír—
virkilegir vinir.
A þriðja búskaparái i okkar mistttm
við mestan [bústofn okku sauðfénað
allan, af völdum fjárkláð ms. og rná af
því ráða. að við áttum ei *;11 uppdrátt- j
ar, Þó var það ekki eina i aunin á því j
tímabili, því samtímis sýkml Mildríð-
ur sál. og lá þungt haldiu i •> mánuði
samfieytt. Allar þessar þrautir bar j
hún með stökustu þolinmæði. Að ári |
“Eg hefi brúkað Ayer’s Cherry k
Pectoral í húsi mínu í 22 ár og f
mæli með því við aðra, við kvefi
og hósta og kíyhósta. Hefi ekki fe
heyrt um eitt einasta dæmi þar jf
sem það hefir brugðist við kíg- ^
hósta. þegar * a
Hœdni og hosti.
fW-w -W iBf •JSf twr TWIIFnsjr £
Maðurinn sem hæðist að því, er
vinur hans ráðleggur honum að ‘taka
eitthvað við þessum hósta." heldur
áfram að hósta þangað til annaðhvort
að hann breptir skoðun sinni, eða breytir um jarðneskan bústað sinn í
hinsta sinni. Það er annars undarlegt hve menn eru þráir og hve lengi
þeir tefla á tvær hættur, þó heilsa og líf sé í veði, þegar þeir gætu fengið
læknað hóstann, kvefið og lungnaveikina með nokkrum inntökum af
Ayer’s Cherry Pectoral.
* Þessi vítnisburður er fullum stöfum i Ayer’s “Carebook” ásamt
hundrudura annara. Fæst ókeypis hjá-J. C. Ayer Co., Lowell, Mass.
liðnu byrjuðum við búskap aftur, að
Osum á Vatnsnesi í Húnavatnssýslu,
og þar bjuggum við svo þar til 1874, að
við fiuttum til Ameriku. Á Ósum þjáð-
ist hún stórlega af sjúkdómi í 3 mánuði
samíieytt, en síðan var hún hin heilsu-
hraustasta, þangað til þetta mein fór
að vaxa utan við brjóstið og sem lækn-
ar sögðu nokkurskonar krabbamein og
ekki til neiris að skera burtu, af því
rætur þess stæðu svo vítt, að fyrir þær
yrði ekki tekið. Þjáningar tók hún
engar út, enda viðhöfð öll meðöl til að
aftra því. Óþolinmæðisorð beyrðist
aldrei af vörum hennar, enda vissi hún
að lausnin var í nánd. Hún æskti þess
eins að fá að að liða burt þrautalaust,
og sú ósk bennar var uppfylt. Það smá
dró af henni máttinn. þar til lífsaflið að
lyktum var algerlega þrotið og hún
sofnaði siðasta svefninn, með nafn Jesu
Krists á vörunum.
Við þetta tækifæri vil ég af hjarta
þakka. öllum r.om veittu henni og mér
virðingu með því að vera við útför
hennar og tóku þáttí sorg minni. Guð
hlessi þá alla og gefi þeim styrk og þol-
inmæði í þeirra dauða stríði.
Wiunipeg, 10. Marz 1897.
Guðrnundur Ólafsson.
Þeim lát nu’ er vegsemd veitt
Þeir vefjast Jesú arm,
Og hvíla höfuð þreytt
Við tierrans föður harm.
Ó, frið sjón helg og há,
Sexn hvergi skugga ber;
Þeir liósa Ijós það sjá,
Er lýsti í móðu hér.
Þá leiðir líknar hönd
-Og létt er mæðu’ og synd—
[Tm eilífleiknns lönd,
V'ið lífsins svalalind.
En vor er sorgin sár
Og saknaðs tár við gröf,
Og JLjós sem leifðu ár
Og langra skugga töf.
Því þeirra ástar-orð
ög elskuríka trygð,
Er horfin hér á storð;
A himnj á hún bygð.
0, hjfirtu hrein og blíð,
(), horfnu lifsins fet!
Nú er vor tára-tíð; —
Sinn trygð-vin Kristur grét.
En sól á sólarborð
Ins síðsta dags er vís,
Þá dunar drottiiis orö :
“Frá (lauðuiu vakna, — rís !”
(í. Ólafsson.
Sigurhjörg Guðmundsdóttir.
Mfira um Agsborgarjátning.
Eftir Ara Egilsson,
Brandon, Man.
Þegar maður Ktur til baka og horfir
svo yfir það ástand sem kyrkjan er nú í,
þá er þaö sorgleg sjón. AUur hennar
líkami er ekki annað en sár, benjar og
þroti frá hviríii til ylja. Plástrarnir
hafa aldrei verið hreinsaðir. Það eru
játningarrit hermar. í þeim hefir sama
ólyíjanin verið ár eftir ár, öld eftir öld.
Kyrkjan er nú líka dauð, steinrunnin !
Maðurinn sem grafinn var úr jörðu í
fyrrasumar og sem verið var að sýna
hér í Manitoba og viðar, ‘representerar’
hina andlega dauðu kyrkju í heiminum.
Þegar ég sá hann kom mér til hugar
parturran af gömlu íslenzku gátunni :
“eina hefir hún tönn i haus og þó er
hún líflaus.” Svona er nú kyrkjankom-
in fyrir lúrðuleýsi og lesti kyrkjufor-
stjóranna. I ni þetta ástand kyrkjunn-
ar spáir Esaias { 56. kap., 10.—11. vers :
“Vökumenn ktistninnar eru blindir;
enginn þeirra v»ít, neitt. Þeir eru allir
eins og hljóðlausir hundar sem ekki geta
gclt. Þeir sjá siónir, liggja og þykir
vænt um að sofa. Hundar þessir eru
gráðugir og verða aldrei saddir. Þeir
erii að söniui liirðarar, en með öllu að-
gæ-/Julausir ; hver gengur sína götu,
hver b'tur á sinn hag,” o. s. frv.
Menn hafa hugsað að þessi spádóm-
ur Esaiasar h&fi eingöngu verið stýlað-
ur upp á kyrkjuforstjóra Israelsmanna.
En enginn skildí láta sér koma slíkt til
hugar. Þessi spádómur nær alt fram á
þonnan dag, stýlaður upp á kyrkju
vorra tíma. Eða finst þér ekki, lesari
góður, að andinn í spádóminum eigi vel
við yfirstandandi tíma ? Ég veit mikið
vel að kennimenn vorir hafa skákað í
því hróksvaldi, að þessi orð sóu ekki
töluð til þeirra. En þau orð er drottinn
hefir talað fyrir munn sinna heilögu spá-
manna, standa stöðug til eilífðar. Það
er hægra fyrir guð drottinn að skapa
tíu veraldir, en að láta hinn minsta titil
lögmálsins líða undir lok. Þó heyra
menn nú daglega frá ræðustólum kyrkj.
unnar, að menn standi nú ekki leugur
undir lögmáli guðs.
Það þýðir lítið að tala um “mein
vorra tíma” og gera svo ekki neitt, vera
svo andlega blindur að sjá ekki í hverju
meinið liggur.
Þegar Norðmaðurinn Vergeland var
spurður að, hvað væri nú eiginlega mein
vorra tíma, svaraði hann því, “að við
sigldum með lík i lestinni.” Hér mun
hann haf& átt við vantrúna. Hann
gat ekki um af hvaða rót það var runn-
ið, og svo var það ekki rannsakað meir.
Hann lagði ekki til að því væri kastað
útbyrðis og kyrkjan siglir með það enn.
Það þýðir ekkert að blása eins og
hvalir í Norðurhafsstraumum, sem eltir
eru af (H)nýðingum, og gera svo ekki
neitt, tala um eitthvert brennandi trú-
arspursmál kristindómsins, en ræða það
svo ekki. í stað þess að ræða þau og
lyfta anda vorum upp, hafa þeir dregið
anda vorn niður 1 sorphauga hinnar
heiðnu fornaldar. Þeir hafa látið anda
vorn smjúga með sér niður 1 hinar rotnu
grafir hinnar fordæmdu Babílónar. Af
steinahrotum með rúnatleyg hefir þeim
þótt tilhlýðilegt að fara að sanna gildi
ýmsra rituingargreina fyrir vantrúar-
mönnum. Hvíhk heimska! Þar sem
þeir þó höfðu hid lifandi orð á tungu.
mált Abrahams, ísaks og Jakobs, og á
sínu eigin móðnrmáli.
Það sýnist reyndar vera komið svo
langt í þeim efnum að það sé naumast
hægt að sauna gildi ritmnganna með
mannlegum orðatiltækjum, svo andlega
blindur er heimurinn á þessum tímum.
Þeir skilja það ekki. Og þetta er eðli-
leg afleiðing af því.að kennimenn kyrkj-
unnar hafa flækt sig í því neti sem þeir
verða ekki greiddir úr. Þetta net er
það andlega krabbamein, sem nú hefir
náð til hjartans.
Grundvöllur Ágsborgarjátningar-
innar er sú hneykslunarhella sem sví-
virðingin stendur á.
Menn hafa ekki vitneskju um meðal
hinna fanatisku skurðgoðadýrkenda, að
þeir liafi verið svo blindir að innbyrla
sór, aðeitt skurðgoðið geti annað goð
með sjilfu sór, og svo að þriðja goðið
gangi fram af þessum tveimur í sam-
einingu, eu myndi þó öU til samans eitt
aöalsk'irðgoð ! Hefðu þeir fengið slíka
grillu i höfuðið, mundu þeir hafa orðið
vitlausir á sama augnabliki. Við þekkj-
um orðið svo mikid til villimanna, að
maður ætti að geta gert sér þetta atriði
ljóst, en þetta er þó einn af þeim stóru
sjónarleikjum, sem daglega eru sýndir á
“platformi” kyrkjunnar.
Guðfræði vorra tíma er því heimska
orðin og athlægi, enda sveima þeir nú
ráðalausir á hafi spillingarinnar með
sverð eyðileggjarans yfir höfði sér.
Kennimenn vorra tima eru það fíkjutró
sem guðsmaðurinn leitaði ávaxta á, en
fannekki. Og hann formælti trénu ;
ávöxturinn aðeins “visin hlöð á skræln-
uðum greinum.”
Is lnvaluable, if you are run
t down, as it is a food as well as
f a medielno.
: Tho D. & L. Emulsion
t Wi!l build you up if your gcneral heaith is
£ iuipaired.
[ Tho D. & L. Emulsion
► Is the best and most palatable preparation of
t Cod Liver Oil, agreeing wiih tbe mostdelí-
b cate stomacbs.
r The D. (k L. Emulsion
£ Is prescribed by the leading physicians of
£ Canada.
E The D. & L. Emulsion
P Is a marvellons flesh producer and will give :
£ you an appetite.
EGc. & S1 per Bottlo
t Be sure you get | DAVIS & LAWBtHCE Ca.. LTD. :
E the genuiue | montreal
CfelilAI