Heimskringla - 18.03.1897, Side 4

Heimskringla - 18.03.1897, Side 4
flEIMSKRINGLA 18 MARZ 1897. Winnipeg. Skemtisamkoma 'c í Unity Hall í kvöld. _________________ Nr. 11, 24 og 31 af Hkr. síðastl. ár verða keypt á skrifstofu Heimskringlu. Hra. Þorgeir Símonarson, bóndi í vesturströnd Manitobav tns, kom til bœjarins í vikunni sem leið. Indlandshjálparsjóðurinn í Mani- toba var hinn 11. þ. m. orðinn samtals fyllilega $13,000. Loksins setlar aðhlána. Frostlaust um miðjan daginn, hinn 16., f fyrsta skifti nú lengi, og hlývindur á suðaust- an og regnlegt útlit f dag (miðvikudag 17. marz). í Minneota “Mascot’’ et þess getið, að 10. þ. m. hafi látist Guðlög Magnús- dóttir , 65 ára gömul, til heimilis hjá hr. Jónasi Bergssyni. Hr. Sveinn Magnússon, fótógrafi, bróðir Páls kaupmanns Magnússonar í Selkirk, er lengi hefir unnið í Chicago, er fluttur til Minneota, Minn., og bú- inn að setja upp fótografstofu þar í bæn- um, fyrir eigin reikning. (“Mascot”). Söngflokkur 1. lút. kyrkjunnar hér í bænum hefir ákveðið að minnast sum- ardagsins fyrsta, sem ber uppá 25. Ap- ríl næstk., með concert mikilli f kyrki- unni. Er flokkurinn nú þegar farin að æfa sig og má af því ráða að hann leysi sitt fyrirsetta verk vel af hendi. Þá sjaldan þessi flokkur hefir haft concert að undanförnu hefir hann fengið hrós fyrir hjá öllum fjölda áheyrenda. Það má þess vegna búast við venju fremur góðri skemtun á sumardaginn fyrsta, Á stórtúkuþingi Orangemanna, er haldið var í Brandon í vikunni sem leið, var samþykt ályktun þess efnis, að skólalögiu sem nú eru fyrir fylkisþing- inu — aukargreinarnar við lögin frá 1890—veiti kaþólskum meiri hlunnindi en rétt só. Sumir sem á fundi þessum voru álita ályktun þessa óbeppilega, af því að hún muni Laurier gagnleg til að lægja ofsann í Quebecfylki. Hann geti bent á að þau séu sönnun- fyrir að hann vírkilega hafi rétt hluta kaþólíka. 1 bréfkafla frá Westbourne, sem birí- ist í Hkr. dags. 7. þ. m., iiafa' slæðst inn tvær villur, sem vér erum beðnir að leið- rétta. Barn það er getið var um að dá- ið hefði var 2£ en ekki 6J mán. gamalt Annað er það, að aðeins einn maður hefir hagnýtt skólakennarann, auk þeirra sem pöntuðu hann. — Fundir höfðu verið haldnir þar í bygðinni 28. Febr. og 3. þ. m. til aö ræða um að senda mann á fund stjórnarinnar og biðja um styrk til landskoðunar norður við Swan River, norðvestur frá Daup- hin. — Þar við má bæta að sendimaður þessi. hra Þorgeir Símonarson, hefir flutt erindi sitt hér í bænum og fengið góðar undirtektir ; mun hugmyndin að senda þrjá menn norðvestur, til landskoðunar. Þrátt fyrir allar bænarskrárnar um að afbiðja brúlagning ákveðinna stræta f sumar komandi, verða síðartöld stræti að sögn brúlögð undir öllum kringum- Stæðum. (Tölurnar innan sviga sýna hvað kostar að brúleggja hvert stræti), Henry Ave. ($2,900); Nena Str. ($13,492); William Ave. ($14,438); Logan Ave. ($4, 000); Fort Str. ($1,868), Ross Ave. ($13,8 08); Isabel Str. ($10,561); Cooper Str. (81. 200); Donald Str. ($11,363); Gomez Str. ($1 ,(X)0). Þessi, sem sagt, eru sögð alveg vís, en svo eru fleiri í tákinu og er sagt að víst sé að $100,000 verði varið til brú- lagninga hér í bænum á komandi sumri, og er vonast eftir að byrjað verði á því verki undireins og snjó leysir og svörð- urinn þiðnar. Ungur maður einhleypur, Pétur Þorvarðarson að nafni, kom liingað til bæjarins 10. þ. m. heiman at Islandi (af Akranesinu). Yfir hafið varð hann sam- ferða 2 Islendingum, er áður höfðu ver- ið hér megin hafsins og fóru þeir til New York. Annar þeírra var Ingvar Olson en nafn hins mundi hann ekki. Þegar hann fór frá Rvík (5. Febr.) var góð tið, frost nokkur en snjór litill. Afli var þá enginn á suðurlandi, nema lítilfjörlegur reitingur í Grindavík og Höfnum. Ekki voru botnvörpuveiðimenn þá komnir til íslands, en voru á ferðinni. Vesturfara- hng sagði hann nokkurn á suðurlandi, en bjóst samt við fáum útförum úr þeim sveitum, af því menn skorti efni til að komast. Faigjaldið sem hann mátti borga var um 220 krónur, en af því hann keypti ekki farbréf alla leið í Rvik, er óvíst að hann hafi fengið það eins ódýrt og ella. Hann sem sé keypti fyrst farbréf til Leith, þaðan til Glasgow og þaðan svo til Winnipéfe, Eigi að síð- ur virðist að fargjaldshækkunin sú í haust er leið, nái til íslands ekki síður en annara staða í Evrópu og að fargjald- ið þess vegna sé nokkru hærra en að undanförnu. Þeir sem sækja skemtisamkomuna í Unity Hsll í kvöld, eiga vísa ágætustu skemtun, hljóðfæraslátt, söng og kapp- ræðu. Alt fyrir 25 cents. Alþýðuskólinn Pembina School í Fort Rouge, hér í bænum, brann til rústa á þriðjudaginn. Eignatjón er lítið eftir að ábyrgðarfeð hefir verið goldið. Magic Lantern sýning og dans verð- ur haldinn á North West Hall miðviku- daginn 24. þ. m. Sýningin stendur yfir frá kl. 8—9, svo verður dansáð til kl. 2. Aðgangur fyrir fullorðna 25 c., fyrir börn iunan 12 ára 15 c. Mrs. Jean Marris Ellis, höfuðskelja- fræðingur, flytur mjög skemtilegan lyr- irlestur á North West Hall á fimtudags, föstudags og laugardagskvöld, 18.19. og 20. þessa mán. Á hverju kvöldi eftir að fyrirlestrinum er lokið, skoðar hún op- inberlega þá sem tilheyrendurnir kjósa til þess. Inngangur ókeypis en sam- skot verða tekin. Þeir sem vilja láta skoða sig prívat- lega, geta hitt Mrs. Ellis á Clarendon Hotel frá kl. 10 f. m. til kl. 6 e. h. Þrfr sendimenn bænda í Geysirbygð i Nýja Islandi, þeir herrar Tómas Björnssen, Gestur Oddleifsson og Jón Sveinsson, komu til bæjarins á fimtu- dagskvöldið var. Islendingafljótinu er gjarnt til að flóa yfir bakka sína á því sviði í leysingum á vorin. Af þessu leiðir að bændur allir í grendinni verða fyrir stórtjóni og óþægindum svó oft á vorin. Á síðastl. 8 árum hefir flóð komið 5 sinnum og á komandi vori ótt- ast menn nú meiraflóð en nokkru sinni áður, vegna hinnafádæma snjóþyngsla. í tilefni af þessu var kallaður saman almennur fundur að Geysir 6. þ. m, og mál þetta rætt alla vega. Kom mönn- um saman um það, að vær hrís og skóg ur, rekaviður o. s. frv. hreinsað af fljóts- bökkunum innan bygðarinnar og á sviðinu sem aðskilurefri og neðrí bygð- ina, mundi mega koma í veg fyrir flóð- ið að miklu leyti. Á fundinum lofuðu bændur 200 dagsverkum til þessa, ef fylkisstjórnin vildi veita $1000, er þann- ig skiftist: $600 til að hreinsa ruslið ag $400 til að skeraskurð milli fljótsins og svo nefnds ‘Langavatns’, er liggur skamt fyrir norðan fljótið. Fundar- ályktanir þetta áhrærandi voru sam- þyktar og fyrrgreindir menn kjörnir til að fara á fund fylkisstjórnar og fá lið þingmanns sins til að útvega þennan styrk. Síðan höfum vér heyrt, að þeim hafigengið þolanlega vel, að þeir hafi fengið $250 til að byrja með, gegn því loforði að héraðsmenn sjálfir leggi til jafna upphæð. Það var álitið ómögu- legt að gera meir en $500 virði af þess- um umbótum nú áður en ís leysir. Dagsbrúnarmenn. “Betur má ef duga skal.” Það er að eins komin helmingur þeirra peninga sem þarf til að borga það sem Dagsbrún skuldar, Það ætti að vera hægðarleikur fyrir þá semskulda blaðinu að borga það sem upp á vantar fyrir lok þessa mánaðar svo hægt verði að gera ákvörðun um útkomu þess eftir- leiðis. Skuldin er aðeins um $50,00 en útistandandi eignir hátt á þriðja hundrað dollars. Borgi menn fáein cents hver, er skuidinní lokið. Ykkur hlýtur að leiðast húmið. Borgið og fá- ið Dagsbrún. Þeir sem skulda bæði Dagsbrún og H-“imskringlu geta sent borgun fyrir bæði blöðin í sama bréfi. Einar Ólafsson. Lánsamir menn Lánsamir og ánægðir eru menn þeir, og ólundarhrukkur sjást aldrai á andliti þeirra, hverra konur, systur, mæður og dætur brúka Diamond Dye til heimilis þarfa. Það er svo handhægt og vandalaust að lita að nýju gömul upplituð föt og gera þau sem nýja vöru, að bóndinn hlýtur að samgleðjast konu sinni yfir því. Það eru lánsöm og glaðleg heimili með góðum húsmæðrum til forráða, er bruka Diamond Dye. Sterkir, fallegir og varanlegir litir eru æfinlega afleiðingin af því að brúka Diamond Dye, Látið ekki kaupmann- inn narra yður til að kaupa neina aðra liti. Virði þyngdar sinnar í gnlli. Bar örin í gröflna. TÆRING SÓTTNÆM. Svo vottar Frank S. Emerick frá Alvin- ston, Ont. Segir að South American Kidney Cure hafi borgið lífi sinu. — Batnaði á 6 klukkustundum. ‘í 2 ár bjáðist ég af nýrnasýki. Kvalir voru ákafar og ég gat oft ekki unnið; reyndi lækna stundum, en ekki til neins. Fór mér svo að versna og kvalir jukust. Sá ég þá South Ameri- can Kidney Cure auglýst sem hraðverk- andi lyf, og keypti eina flösku, er bætti mer stórum á fáum stundum. Stöðugt fór mér batnandi og er nú albata. Lyfið er virði þyngdar sinnar í gulli, því að vissulega bjarg það lífi mínu’. ÚR BREFI ÚR NORÐUR DAKOTA. Sú fádæma fönn komin, að enginn hefir séð hér annað eins. Það er víða orðið slétt af fjósum og verður fyrir- kvíðandi vatnsgangur þegar fer að þiðna. Ég frétti i gær að Elin Thorlacius ætlaði heim til íslands í vor með þeim Jakob Lindal og Einari Brandssyni’. DÁNARFREGN. Meðalíslands frétta er þess getið, að Benedikt Kristjánsson, bóndi á Há- túni í Glaumbæjartorfu í Skagafjarðar- sýslu. sé dáinn. Benedikt sál. var fæddur á Úlfsstöð um í Blönduhlíð í Skagafirði árið 1837 og bjó þar því nær 20 ár, fyrst lengi með móður sinni þar til árið 1877, að hann giftist ungfrú Ásdísi Hallgríms- dóttir frá Bakka í Öxnadal í Eyjafirði, systur Jónasar Hallgrímssonar bónda við Garðar, N. Dakota, myndarkonu,. sem hann misti fyrir 6 árum síðan. Eyddi þúsundum í lækningar, en fékk ekki þessa mestu af gjöfum guðs, þangað til hún fór aðbrúka the Great South American Rheumatic Cure. Þjáðist ákaflega i 12 ár. Mrs, F. Brawley frá Totrenham, Ont., segir: ‘Eg þjáðist nærri stöðugt í 12 ár úr gigt og mun bera þess menjar til grafarinnar, og þó að liðamótin um olnboga og úlfliði séu stirð enn, þá hef- ir þó South American Rheumatic Cure losað mig við kvalir aflar. Það reynd- ist mér aðdáanlega. Ég hefi eytt þús- undum dollara í lækna og lyf þeirra til einskis. Fimm flöskur læknuðu alla kvöl. Eg er heilsuðetri nú en ég hefi verið í 10 ár. wa (patrón) og R. P. Roblin. Sömu menn fóru og fram á, að í stað $20,000 yrði varið að eins $5000 til innflutnings- starfa. I umræðum um þetta atriði gat Roblin þess, að það væri enginn hlyntari því að kappsamlega væri unn- ið að innflytjendamálinu en hann og í rauninni væri hann ekki mótfallinn þvi að veitt væru þessi $20,000, en kurteis- is vegna kvaðst hann hafa stutt uppá- stunguna, til þess þá að benda á breyt- ingar sem orðnar væru. Blöð í aust- ur-Canada og stjórnmálamenn, sem áð- ur hefðu haft alt á hornum sér, er snerti vesturlandið og ávítað fyrrverandi sam bandsstjórn fyrir fjárveitingar til inn- flutningsmála, hefðu nú snúið við blað- inu alt í einu. Nú væri um að gera að ausa sem mestu fé til innflutningsstarfa og jafnframt því að tvöfalda laun þeirra sem að því ynnu. Til dæmis benti hann á, að maður, sem conserva- 4 alsyskini Benedikts sál., 2 bræður og 2 systur, eru lil heimilis í Eyford og Mountain bygðum í Norður Dakota, og eru þau: Kristján og Sigurður, bændur við Eyford, Kristíana, kona Armanns Stefánssonar við Eyford, og Ingibjörg kona Matúsalems Einarssonar að Mountain." Benedikt sál. var póstur í 4 ár milli Reykjavikur og Akureyrar, og var vel metinn og virtur af öllum er til hans þektu. Hans er því sárt saknað af syskinum og hinum mörgu eftirlifandi vinum og vandamönnum, því þeim er höggið það skarð sem seint fyllist. Benedikt sál. átti að eins einn son — Kristján, nú til heimilis í Winnipeg. Útgerð. Mrs. Harkley, kona kapteins Harkleys vatnakapteins, velþektur frá Owen Sound, Ont., segir frá því hvernig La Grippe tæknaðist og hve læknarnir og ættfólk hennar voru orðnir von- lausir um bata hennar. The Great South American Nervine var leiðar- steinn hennarí heilsunnar kröfu. ‘Eittlivað fyrir lárum þjáðist ðg af La Grippei g var alveg útgerð orðin. Eg lávikum saman, reyndi marga lækna og mörg lyf. en ekkert dugði. Vinirmín ir urðu hræddir. Sá ég þá auglýsingu um South American Nervine og réði af að reyna það. Fyrsta flaskan bætti mig svo ég hélt áfram »g varð albata og á það þessu lyfi og engu öðru að þakka’. Fylkisþiagið. Á þriðjudaginn 9. Marz bar ekkert sérstakt til tíðinda. Frönsku þing- mennirnir Paré og Lauzon beiddu um að fyrir þingið yrði lögð skýrsla er sýndi landmælingar allar í suðaustur- hluta fylkisins, gerðar í því augnamiði að járnbraut yrði lögð suðaustur um fj-lkið. Enn fremur að fram yrðu lögð öll bréf.'er farið hefðu milli stjórnar- innar og félaga eða einstaklinga áhrær andi járnbrautarbygging á þessu svæði og sýnt væri hvað mörg félög væru nú til, sem hefðu leyfi til að byggja járn- brautir. Þeim lið svaraði stjórnin strax —að ekkert þvílikt félag væri til nú; leyfin öll útrunnin. Á miðvikudaginn 10. Marz voru fjárlögin rædd enn, og þau að lyktum samþykt (það var í gáleysi sagt í síð- asta blaði Hkr., að þau hefðu verið sam þykt 3. Marz; það var þá lokið við um- ræður um ársskýrslu fjármálastjóraus. en eftir þá a? yfirfara fjárlögin sjálf lið fyrir lið). Nokkrar orðahnyppingar áttu sér stað út af ýmsum atriðum, og nokkrar breytingar og uppástungur bornar fram, en til einskis. Meðal þéirra breytinga var sú, hin sama og í fyrra, að lækkuð væru laun þing- manna, þingsforseta og ráðherranna, en eins og í fyrra var sú uppástunga feld. Þeir sem báru fram uppástung- una voru þeir W. F. Sirrett frá Neepa- TÆRING LÆKNUÐ. Læknir einn gamall gaf upp læknri störf sín, en áður hann gerði það fyrsi fult og alt. fann hann það skyldu sína að gera meðborgurum sínum kunna samblöndun lyfs eins úr jurtaríkinu, er kristniboði eínn úr Ajistur-Indlandi hafði sagthonum frá. Á meðal það fyr- ir fult og alt að lækna tæring, barka- bólgu, kvef, andþrengsli og alla aðra háls- og lungnasjúkdóma. Það er einn- ig óyggjandi meðal við allskonar tauga slekju og taugaveiklun. Var læknirinn búinn að reyna kraft þess í þúsund til- fellum. Knúður af hvötum þessum-og lönguninni til að létta mannlega eymd, skal eg borgunarlaust senda fyrirsögn á tilbúningi lyfs þessa til allra. er þess óska, á þýzku, frönsku og ensku, með skýrum leiðbeiningum fyrir riotkun þess. Sendist meo pósti að fenginni ut- anáskrift á bréfspjaldi með tilgreindu blaði því, er auglýsing þessi var í fundin. W. A. Noyes, 820 Powers Block, Rochester, N. Y. tívar hefðuhaft fyrir innflutningaagent á Irlandi gegn $1200 launum, hefði ver- iðrekinn, en maður vinveittur núver- andi stjórn skipaður í staðinn, gegn $4000 árslaunum. Þá fór og Roblin fram á að strykað væri yfir $600 fjár- veitingu, sem stjórnin bað um til að kosta för bænda á fund sambandsstjórn arráðherranna, til að tala um tollmálog til þess að “lasta landið”, eins og sumir þeirra gerðu. Á fimtudaginn 11. Marz gekk fylk- isstjóri í þingsalinn undireins og þing var sett og staðfesti fjárlögin, er sam- þykt hjjifðu verið deginum áður. A ð þeirri athöfn iokinni bar Cameron dómsmálastjóri fram þá tillögu, að skólalagafrumvarpið, sem samið var samkvæmt samningi fylkisstjórnar og Lauriers yrði nú yfirfarið í annað sinn og við það tækifæri flutti Cameron langa ræðu, þar sem hann leit. yfir sögu þessa þrætumáls alls frá upphafi. Reyndi hann í ræðu sinni að sýna fram á, að þrátt fyrir þessa fyrirhug- uðu breytinga á skólalögunum frá 1890, hefði fylkisstjórnin alls ekki vikið frá fyrirtekinni stefnu sinni í þessu máli. Næstur honum tók Roblin til máls og talaði til klukkan 6, er umræðum og fundi var frestað. Sem við var að bú’ ast leit hann alt öðru vísi á málið en dómsmálastjórinn. Áleit það hrapar- legt slys, ef þessi lög yrðu samþykt þar þau á engan hátt fullnægðu kröf- um kaþólskra, en sviftu burtu grund- vallaratriðinu úr skólalögunum frá 1890. Samkvæmt þeim lögum væri öll- um gert jafnt undir höfði og ekkert til- lit tekið til þess hvaða trúar þessi eða hinn væri, en í þessum lögum væru skólastjórnirnar skyldar til að launa kaþólskan kennara, svo framarlega sem 25 kaþólsk börn gengju á þann eða þann skólann. Með því ákvæði væri kaþólskum veitt einkaréttindi sem engir aðrir trúflokkar í fylkinu fengju. Ann að atriðið sem hann áleit ótækt alveg varþað um tungumálakensluna. Aleit það gæti enginn gert sér hugmynd um hvað af því leiddi, að skylda skóla- stjórnir til að útskýra enskuna á er- lendu máli á skólunum, svo framarlega sem 10 erlend börn gengju á þann skóla og ef foreldrar þeirra eða aðstandendr ur færu fram á það. í lok ræðunnar framsetti hann þá tillögu, eða breyt- ingaruppástungu, að frumvarpið yrði ekki lesið nú, heldur að 6 mánuðum liðnum. Á föstudaginn 12. Marz var ekkert gert nema jagast um skólamálið og það langt fram á kvöldið, er fundi var frest- að til mánudags. Merkasta ræðan um þetta mál á föstudaginu var sú er Mr. Fisher flutti. Hann sagðist vera óánægður með frum- varpið, en sagðist þó ekki geta annað en samþykt það. En það hélt hann, að eins og nú stæði gætti fylkisstjórnin ekki vel státað af sigri í þessu máli.það biði nokkuð langur tími enn, þangað til liún gæti það. ©S> © © W 9 ©O © © © © O® ííff$ t 1 tír w m zU PLÍ.STF.R Price 25c. [ Davi» & Lawrence Co., Ltd, © I Sole Proprietors, Montru/l. I hnrc presrribt d Meuthol Plasterlniiiiiimbcr neutalfíic aud rhcumath: pains.^uui ver/ u h pler.Eed with tiio rtr**i t8 and j l^-naiirnes* of Iti appli',ati<'n. —W’. 11. CAliPKN* tlr, M.D., Hof«l Oxford. Bœton. I have usotl Monthol Plasfoi g in scvoral caaos r*f tnuscular ílmuniatisin, and find 111 every cnse thntlt ravealinoKtlnstant and perrnhnent relief. —J. B. MocRK M.D . Wanhiníftnn. D.C. It Cures Sriiitiea, L.itmhiit;o, Neti- ralgia, Pains in íiack or Side, ’or any Bluscular I’ains. o ð o e « u Það hefir oft verið talað mikið um að hafa sérstök sjúkrahús fyrir þá sem veikir eru af tæringu, en margir vísinda menn halda því fram að sú aðferð sé ó- möguleg og segja, að meðölin ein verði að bjarga í þessu sem öðrum tilfellum. Uppfinding Dr. Stevens ‘Canabis Sati- va’ er hið stærsta stig vísindanna i. þá átt að útrýma tæring. Það heitir öðru nafni The East Indis Concumption Cure Þúsnndir mannahefir þetta meðal lækn að, og það ee nú engin efi á því lengur, að þetta meðal er framúrskarandi við öllum lungnasjúkdómum, svo sem and- arteppu, kvefi, barkabólgu og tauga- veiklun sem af þeim .leiðir. Hversetn éendir frimerki og minnist þess hvar hann sá þessa auglýsingu, fær allar nauðsynlegar upplýsingar frítt. Skrifið til W. A. Noyer Bowers Berck, Roch ester, N. Y. Ónýtt blóð SÝKI SEM GERIR MARGA AÐ AUMINGJUM. Það orsakar taugaveiklun, þruutir í bakinu og slæman .höfuðverk, hjartveiki, og leiðir að síðustu til dauða, ef bati er ekki fengin hið fyrsta. Tekið eftir Sussex N. B. Record. Menn geta á margan hátt gert man- kyninu gagn. Sumir eyða stór upphæð- um til að reisa byggingar og til að skreyta skemtigarða í bæjum og borg- um. Aðrir eyða peningum sínum í að hjálpa fátækum og bætá kjör þeirra er bágt eiga og fyrir þessar orsakir eru þair hafðir í hávegum. Þá sem þjáðst hafa af einhverium kvilla og fundið ráð til að lækna sig og gefur almenningi upplýsingar um það, gerir almenningi ekki minna gagn en hinir. Á meðal þeirra sem þannig hafa gert góðverk er Miss Elena 0,’Neil, dóttir Mr. Jas. O. Neii, velmetins bónda nálægt Millstresg Kings Co., N. B. Það sem gekk að Mim O’Neil var af því að of lítið af næringar efnum var í blóðinu, sem því miður er alt of algeng sýki meðal ungra stúlkna, og sem ætíð leiða til dauða, ef bót er ekki fengin í tíma. Þar eð. Miss O’Neil hefir komist að því, að það er til meðal sem læknar þessa sýki hefir hún afráð- ið að gefa öðrum tækifæri til að reyna það lika. Hún sagði sögu sína fregnrita blaðsins Record, ogerhún á þessa 'leið; ‘Eg hefi þá skoðun að ef ég hefði ekki tekið það fyrir að brúka Pink Pills, þá hefði veiki mín leitt mig til bana. Veik- in byrjaði í mér svo hægt, að það var illmögulegt að segja hvenær hún byrj- aði. Það fyrsta Sem bar á var fölvi á hörundinu og máttleysieftir hverja litla áreynslu. Að lokum varð ég föl eins og liðið lík og ákaflega óstyrk, hafði verk hingað og þangað í líkamanum og fór alt af versnandi. Ég hafði talsverðan hósta og ef ég þurftiað ganga upp stiga varð ég svo þreytt, að ég þurfti að hvíla mig. Matarlystin hvarf og ég hafði annað slagið svimaköst og ákafan höfuðverk. Mér fór alt af versnandi þangað til ég var búin að fá leið á líf- inu. Ég var búin að reyna mörg maðöl en þau gerðu mér ekkert gagn. Það í þessum vonleysis kringumstæðuin að las af tilviljun í blaði sem ég hafði náðí frásögu um samskonar veikindi eins og þau sem óg hafði. og að sjúkiingum hefði batnað af Pink Pills. Þossi frá- saga ýar svo hughreystandi að ég nfréð að reyna þetta meðal. Það reyndist mér eins og stúlkunni sem ég hafði les- ið vm, afleiðingarnar voru stórskostleg- ar. Þrautirnar sem ég hafði haft í síð- unum hurfu alveg og varð ég styrkari og matarlystin batnaði, og yfir höfuð fékk ég alveg nýan kraft. Eg er nú eins og hyer annar á heimilinu og hefi ekki fundið hið minsta til veikinnar síð- an að óg brúkaði Dr. Williams Pink Pills. Alit mitt á þessu meðali og þakk- læti mitt til þeirra sem búa það til er mikið. Eg vona að frásaga mín meg koma einhverjum líðandi að gagni, Á- hrif Pink Pills á Miss O’Neil sýna, að þær eiga ekki sinn jafningja til að bæta blóðið og styrkja taugarnar. Stúlkur, sem eru fölar, daufgerðar, hætt við jartveikisköstum, eru máttlitlar o g þreytast fljótt, ættu að byrja að brúka Pink Pills tafarlaust. Þær bæta blóð- ið á stuttnm tíma oggera útlitið hraust legt og fallegt. Þær eru óyggjandi við veikindum, sem eru einkennileg fyrir kvennfólk, og karlmenn, sem þreyta sig um of á andlegu eða líkamlegu starfi, ættu einnig að brúka þær. Dr. Williams Pink Pills eru seldar í öskjum (aldrei lausar eða í tylftatali) fyrir 50 cents askjan, eða 6 öskjur fyrir $2,50, og fást hjá öilum lyfsölum, eða með pósti frá Dr. Williams Medicii-e Co. Brockville, Ont. Crcúk Up a Go!J in Tiine [ mmm ^ Tlie Qulck Cure for COUGIIS, ' COI.DS, CKOIT, liIÍO.N- ^ CIIXÍIS, HOARSENESS, etc. Mrs. Jokeph Norw’íck, of Cá Soraui en Ave., Toronto, writeg: •• ryny-I’ectoral haa never fallcd to cure my diildren of croup after a few doaes. It uured niyHclfofíi loi:jr-Btandiníf cough after h vural oilier remeilies had falled. It han M (•> jiroved nn ex< ei:«nt cough cure for my f.imi y. I jnefer it to anv other mcdiciue lor coughs, eroup or hoarseness.” II. O. BArnouR, of Liitle Kocher, N B., writes : As n cure for conghs Pyny-Pectoral ls th toinc'. .........fíhs Pyn; it sellii if rnedii ine I have; my cus- wlll have no othor." I.urge Hottle, 25 Cts. DAVIS & LAWRKNCE CO., Ltd Proprietors. Moíitrf.al kk.au yr Fjöldi hinna dánu, Heimskulegar læknareglur eru orsökin. Frændur og vinir syrgja og sakna. PAINES CELERY COMPOUND HEPÐI GETAÐ FRELSAÐ FJÖLDA MARGA. ÞAÐ BJARGAR LÍFINU ÞEGAR ÖLL ÖNNUR MEÐÖL BREGÐAST. Hinir köldu vetrarmánuðir færa oft dimman sorgarskugga vfir hin oanadisku heimili. Feður, mæður, systur og bræður, alt hefir orðið að falla fyrir hinum grimma dauða; og eflaust hefði mátt bjarga fjölda þeirra, ef vinir þeirra hefðu gefið þeim Paines Celery Com- pound í stað gagnslausra og stundum skaðlegra samsetninga, sem þeir voru neyddir til að brúka. I mörgum tilfellum bar dauðann að höndum að eins vegna þess, að menn fylgdu of stranglega læknaforskriftum. Paines Celery Compound hefði svo þrá- faldlega gert fyrir aðra í samskonar til- fellum. Og svo kom örvænting og eft- irsjá yfir að hafa ekki neytt allra ráða sem fyrir hendi voru. Viltúþá. vinur minn, leyfa dauð- anum að hrífa burtu elskaðan vin þinn, vegna þess að þú vildir ekki reyna við hann Paines Celery Compound. Líkurn- ar til að það dugi honum, eru margar og sterkar. Jafnvel þótt vinir ykkar hafi lengi kvalizt og séu komnir á það stig, er læknirinn getur ekki að gert. Jafn-" vel þá getur Paines Celery Compound komið að góðu liði. In mörgu tilfelli um frábær Éekninga áhrif Paines Celery Compound, eru ó- hrekjandi vitni um kraft þess. Allir ráðvandir og góðir læknar eru nú farnir að viðhafa Paines Celery Compound sem hiðbezta meðal við öll- um ^veikindum, er stafa af snöggum veðrabreytingum. Óhlutvandir menn hafa og búið til gagnslausar eftirstæl- ingar af því. Gætið þess vandlega að þér fáið hina einu ekta tegund af Cele- ry Compound með öllum róttum vöru- merkjum. Auglýsing Þeir sem vilja eignast hið ágæta íyf “Our Native Herbs” sem er heilsustyrkjandi og gott fyrir blóðið, geta fengið það hjá undirrituðum eða hjá Mr. Gunnlögi Helgasyni, í búð Á. Friðrikssonar. sem einnig hefir bað til sölu. Jóh. Th. Jóhannesson, 892 Fonseca Str., Winnipeg. Ábýlisjörð. Ef þig langar til að eiganast 75 ekrur af ágætu plóglandi, liesta og aktýgi og sleða og yms jarðyrkjuáhöld, aðeins 9 mílur frá Winnipeg, þá getur þú fengið það mjög billegt — fyrir peninga, eða skuldlausar fasteignir í bænum, hjá Guðm. Jonssyni, So. West Cor. Ross Ave. og Isabel Str. “ISI.AX II.” Blað þetta er gefið út í Reykjavík. Ritstjóri er Þorsteinn Gíslason. Langstæfsta og ódýrasta blaðið, sem gefið er út á íslandi. * Kem- ur út einu sinni í viku, í stóru arkar- broti. Áskrift að eins bindandi fyrir einn ársfjórðung. Verð ársfjórðungsins er 35 cent. Borgist fyrirfram. Menn snúi sér til H. S. BARDAL, 613 Elgin Ave., Winnipeg. Fluttur, Eg hefi flutt flutt frá Notre Dame Ave að 561 Elgin Ave. (Jemima Str.) og er mig þar að hitta með alslags góðgæti sem öllum er kunnugt. Ég vonast eftir að sjá mína fyrrum skiptavini, og marga nýja. HANS EINARSSON 561 Elgin Ave. (við endan á Kate Str.) Brnitswiclt Hotel, á horninu á Maine og Rupert St, Winnipeg. Hvergi í bænum betri viðurgerningur fyrir $1 á dag. Bestu vín og vindlar. Fríflutn- ingur að og frá járnbrautarstöðvum. McLaren Bro’s, eigendur. “BJARKI,” ritstjóri Þorsteinn Eulingsson, langhesta blaðið sem gefið er út, á Is- landi. Kemur út í hverri viku. Kostar að eins $1.00 um árið. Útsölumenn fá góð sölúlaun. Skrifið til M. PÉTURSSÖNAR, P.O. Box 305, Winaipeg. Fræðiblað með myndum. Kemur út f Reykjavík einu sinni á hverjum mánuði. Eina íslenzka ritið er stöð- ugt flytur myndir af nafnkunnum ís- lendingum. Ritstjóri og eigandi Þotsteinn Gíslason. Blaðið kostar í Amerlku, fyrirfram borgað, einn dollar árgangurinn.

x

Heimskringla

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.