Heimskringla - 01.04.1897, Síða 4

Heimskringla - 01.04.1897, Síða 4
flETMSKRINGLA 1 APRÍL 1897. Winnipeg. Séra Jón Bjarnasou brá sér suður til Dakota á föstudaginn. “BICYCLES ###### # J J Hjartveiki. Dr. Agnews Cure for the Heart eyðir hinum verstu þrautum hversu gömul sem veikin er. Þetta meðal yfirbugar sýkina á hálfum tíma. John Crow læknaði sig með fimm flöskum. Þetta er vottorð hans. Eg hefi samið um kaup á nokkrum reiðhjólum (Bioycles), sem eru álitin ein af I>eim AI.LRA BEZTU, sem búin eru til. Þau ódýr- ari eru áreiðanlega betri en nokkur önnur, sem ég þekki fyrir þá pen- inga. Karlmanna-hjól eru $40, $55, $75, og $100. Kvenn-hjól $55 og $75. Nokkur afsláttur ef alt hjólverðið er borgað út í hönd. Hjólin eru til sýnis í búð Mr. A. Friðrikssonar, og á skrifstofu Lögbergs. Komið og skoðið þau. B. T. BJORNSON. . *m*M>*= ----------->«»*** Athugasemd. Herra Þorsteinn M. Borgfjörð frá Geysir kom til bæjarins á fimtudag og dvaldi til sunnudags. Herra Jörundur Ólafsson fór í vik- unni er leið vestur i Vatnsdalsnýlendu og dvelur þar um tíma á bújörð sinni. Prentvilla. í síðasta blaði var sagt að Jörgen sál. Kröyerhefði búið á Mýrá í Þingeyjarsýslu, en átti að vera Nipá. Hr. Stefán Anderson, sem hefir dval- Íð í Nýja-íslandi í vetur, kom til bæjar- ins fyrir helgina. Indlands-hjálparsjóðurinn í Mani- toba er nú orðinn samtals nærri $18 þúsund. Það verður tekið á móti sam- skotum til 8. þ. m. (Apríl), en lengur ekki. Hra. Pétur Árnason að Lundar í Álftavatnsnýlendu í Man., kom til bæj- arins í vikunni sem leið með veikan mann, Guðlaug Jóhannesson, semhann flutti á sjúkrahús bæjarins, Hra. Hugo Carstens, sem verið hef- ir innflytjenda umboðsmaður hér í bæn- um, en sem Laurier vildi ekki hafa, hef- ir nú keypt þriðjungseign í þýska blað- inu ‘Nordvestern’ og verður ritstjór þess framvegis. Þessi nr. af Hkr. verða keypt á skrifstofu blaðsins fyrir sanngjarnt verð : Nr. 541 af 10. árg. (1896) og nr. 1, 35, 36, 51 og 52 af 9. árg.(1895). Þeir sem vilja selja eru beðnir að senda blöðin sem fyrst. Mrs. J. Anderson fór suð^ til Da- kota á föstudaginn var og dvelur þar hj á föður sínum mánaðartíma. I för með henni var Ragnheiður Jóhanns- dóttir, ekkja Jóns heitins Ólafssonar frá Lýtingsstöðum í Skagafirði, er brá sér til Dakota f kynnisför. Fyrir eitthvað mánuði siðan lét Laurier-stjórnin reka Alex. Norquay, son fyrrverandi stjórnarformanns í Manitoba, úr stjórnarþjónustu. Þetta vakti svo mikla óánægju, að nú er búið að setja hann í embættið aftur. Þess var getið í síðasta blaði, að Guðmundur ÞorsteinsSou hefði verið fluttur til bæjarins á sjúkrahúsið, þá fyrir skömmu, vestan úr Qu’Appelle- nýlendu. Hann lézt sama daginn og blaðið var prentað — 24. Marz. Sumarveður er nú loksins komið fyrir alvöru. Gekk í garð á sunnudag- ínn 28. f. m. Bleytuveður af suðri á laugardaginn, en síðan hláka og hlý- indi, en regn meira en æskilegt er, þeg- ar litið er á snjóþyngslin. Á mánudag ste.vpiregn fyrir hádegið og fylgdu þrumur, sem sjaldgæfar eru í Marzmán uði. Snjór um það burtu, að undan- teknu stórfenni hér í bænum. Það hefir lengi verið talað um að C. P. R. félagið sé i undirbúningi með að byggja nýja vagnstöð hér í bænum og vandaðri og þægilegri en hjall þann er notaöur er enn. Það er ekki víst að á því verki verði byrjað í sumar, en vist er það, að nú fyrst viðurkenna formenn félagsins hér í bænum, að núverandi vagnstöð sé ónóg orðin og að alvarlega sé talað um að gera einhverjar umbæt- ur áður en langt líður. Ég neyðist hér með til að auglýsa, að fyrir ástæðulaus samningsrof og svik útgefandans að Bókasafni alþýðu, fæ ég ekki ritið til útsölu. Það er að eins fyrir fáum dðgum síðan að ég hefi fengið bréf þessu viðvíkjandi. En til þess að geta þó að nokkru leyti staðið við orð rtxin, hefi ég gert samning við herra H.S.Bardal sem hefir fengið bókina til sölu, um að senda hana öllum þeim sem höfðu pantað hana hjá mér, með sömu skilmálum og ég hafði lofað þeim, Winnipeg, 29. Marz 1897. M. Pétursson. Engin akveöin loforö um fjárveiting tilvega-og brúargerða í Nýja íslandi fékk Gimlisveitarstjórnin, sem hingað kom til bæjarins um síðustu helgi, og sem herjaði á náðardyr stjórnarinnar á þriðjudaginn 30. Marz, samkvæmt fundarsamþ., og bað um $5000 i veginn. Watson þótti stórt tiltekið, gat engu ákveðnu lofað,; en gaf 1 skyn að eitt- hvað talsvert yrði gert, ef vel gengi að fá $700,000, eða um það bil, sem fylkis- stjórnin segist eiga hjá sambandsstjórn og sem nú á að gera ganskör til að fá- ist. Þó ekki fengist neitt ákveðið loforð hafa sreitarráðsmenn samt von um að $1000 eða svo verði varið til vegagerðar i nýlendunni í sumar. — Nefndarmenn- irnir héldu af stað heimleiðis á miðviku daginn. Fylkisþingi var slitið undireins og það kom saman, kl. 3. e. h. á þriðju- daginn 30. Marz. L.TÓÐMÆLI Sigurðar J. Jóhannes- son, ný-útkomin, með mynd höfund- arins, fást innfest í kápu fyrir 50 cents, og í góðu bandi á 80 cents, Jijá höfund- inum, að 710 Ross Ave., hjá H. S. Bar- dal, 613 Elgin Ave., á afgreiðslustofu Heimskringlu og á afgreiðslustofu Lög- bergs. Enn þá eru útsölumenn í út- sveitum ekki ákveðnir, en verða það inn- an skamms. í millitíðinni geta þeir ut- sölumenn sem viðskifti hafa við Mr. Bardal, pantað báfcina hjá honum. Þess má og geta, að þeir sem vilja fá bókina bundna, geta ekki fengið band á hana fyrir neitt þvílíkt verð sem höfundurinn nú auglýsir. Hann hefir komist að ser- stökum kjörum í því efni, svo framar- lega sem hann lætur binda ákveðinn fjölda bóta. Það er því hagur fyrir menn að biðja höfundinn um hana í bandi. Mikið tap og engin ábyrgð. Konur í Canada tapa þúsundum dollara árlega á fötum og dúkum, sem skemmast í litum þegar óekta litir eru brúkaðir. Þar eð það er engin trygg- ing gegn skemdum og skaða, sem or- sakast af ónýtum litum, sem sviknir eru út við kvennfólk, þá er ekki hægt að koma fram ábyrgð á hendur þeim er valdir eru að skemdum. Við skulum muna eftir því að hver deild af Diamond Dye er viss að gera það sem henni er ætlað að gera. Þeir sem búa til Diamond Dyes eru þeir einu menn í öllum heimí, sem búa tilgóða deildaliti, og þeim gengur vel að selja þá, af því þeir eru sterkir og fallegir og endingargóðir. ÖNNUR ÁRLEGA íslenzka Leikfimisfélagsins verður haldin í Unity Hall Fimtudagskvöldið 8. Apríl 1897 Programm: 1. I. A.C. March............H. L I. A. C. Orchestra. 2. Minni íslenzku leikfimisfél. S.J. J. C. B. Julius. 3. Dumb bell Class............... 4. Comic solo.......St. Anderson. 5. Jumping & Kicking............. S. Johnson & F.W.Frederickson. 6. Recitation (Charlie McGee). Miss G. Freeman. 7. Boxing........................ J.lý.Johnson & O.A. Eggertsson. 8. Cornet Solo......H. Lárusson. 9. Club swinging class. 10. Recitation.......J.K.Johnson. 11. Slack Wire.........J.G.Johnson 12. Stump Speech.....Womensright. Uncle Josh. 18. Fencing ...................... J.K. Johnson & Karl K. Albert. 14. Comic song... I bet you a dollar you don’t.........O. A. Eggertsson. 15. Icelandic Wrestling........... Hans Einarsson & Paul Olson. 16. Club Swinging.... O.A.Eggertson. 17. Wrestling,...Catch as catch can. J. K. J. & O. A. E. 18. Cottage Act .................. J. K. Johnson & Skuli Hannesson. “God save the Queen.” íslenzkir mjólkursalar. S. M. Barré, smjör og ostasrerðar" maður, hefir i hyggju að setja upp smjör- gerðarhús í nánd við skrifstofu sina á horninu á King og Alexander St., ef hann getur fengið næga mjólk hjá mjólkursölumönnum í bænum til að byrja fyrirtækið. Hann mælist til þess að allir sem hafa mjólk í aflögum, eða eru líklegir til að hafa meira heldur en þeir þurfa að brúka yfir sumarið, finn sig að máli þessu viðvíkjandi. Þetta ætt.i að koma sér vel fyrir Is- lendinga ekki síður en aðra. í Hkr., sem kom út 18. þ. m., stend ur, að söngflokkur 1. lút. kyrkjunnar hér í bænum hafi ákveðið að minnast sumardagsins fyrsta með concert, og að sumardaginn fyrsta beri upp á 25. Apríl þetta ár. En það er ekki rétt. Sum- ardaginn fyrsta ber æfínlega upp á fimtudaginn milli þess 19. og 25. April með báðum þeim dögum meðtöldum, en í ár er 1. April á fimtudag og 22, á fimtudag, sem er sumardagurinn fyrsti. Winnipeg, 27. Marz 1897. J. S. Þetta er rétt, en rangt í blaðinu. Þar yar sem sé sú stafvilla, að úr 22. varð 25. April. Það var von til að þessi samkoma yrði auglýst betur innan skamms og því látið vera að leiðrétta þessa villu, Ritstj. Stórvægilegt. Gylliniæð læknuð á 3 til 6 nóttum. Skinnsjúkdómar með blóði og sviða læknaðir á einum deci. Dr. Agnews áburður (Ointment) læknar allar tegundir af gylliniæð á þremur til fjórum dögum, Einn skamt- ur minkar óþægindin. Innvortis gyll- iniæð sem blæðir úr, læknar það mjög vel. Það læknar einnig skinngjúkdóma svo sem tetter, salt rheum, eczema, bar- bers itch og svo framvegis. Kosta 35c. Til Myrrha. Min göfuga systir, mig gleðja þín ljóð, Eg geymi þau inst mér í hjarta. Ég veit ekkert fegra’ en þinn vantrúar óð, ' Þá veglyndis geislana bjarta, Það raannelsku blómið er blómstrandi rós, Sem brýst gegnum kyrkjunnar Þymi. Þinn mannúðarandi er ið mærasta ljós I mannlífsins hugsjóna stirni. Þær réttlætis kröfur er rísa hjá þér, Mót ranglæti goðanna stríða; En fólkið skóp goð það sem gildandi er, En goð fylgja lögmáli tfða. Þú hugrekki ber til að hrinda á braut Því heimskunnar ófreskju safni, Sem klerkarnir flagga á kyrkjunnar skaut I kærleiks og siðgæðis nafni. Þú skarpskygni ber til að skilja það tál. Sem skröksögur klerkanna valda, Er guð skapar voðalegt vítis bál Og vesalings mennirnir gjalda. Þú hreinskilni ber til að hrinda þeirri trú, Sem hyggurðu ranga og lióta. Og vel sé þeim hverjum er hefir sem þú Nein hræsninnar goð til að blóta. Freyk. Frá löndum. MINNEOTA, MINN., 25. March. (Frá fregnrita Hkr.) Vorkosningar. Kosningar fóru fram í Minneota 9. þ. m. Bindindismenn unnu sigur með miklum meiri hluta ; allir þeirra menn komust að völdum. Úr flokki íslendinga náðu þessir kosn- ingu : G. A. Dalmann, bæjarstjóri. C. M. Gíslason, gjaldkeri. St. Gilbertson, ritari. G. A. Dalmann er vist sá fyrsti íslend- ingur hér í landi, sem náð hefir bæjar- stjóra-sæti. Ddin er hér Sígurborg Sigurðardótt- ir frá Lýtingsstöðum í Selárdal, Vopna- firði. Lögbót : Á síðasta ríkisþingi Minne- ota var verð á þegnfestuskjali fært nið- ur úr $2 í $1. Svínakólera : I 16 héruðum hér í Minneota hefir sú sýki gert vart við sig í ár, skaði metinn $375,150. AtvinnuleyH: Sú bón kemur frá Chicago til Minnesotablaðanna, að þau láti þess getið við lesendur sína, að þar (í Chicago) sé fjöldi manna er vilji kom- ast í vinnu hjá bændum. Tíöarfa/r: Nú er snjó farið að leysa af jörðu, en hægfara er hlákan, frost á hverri nóttu, og norðanvlndur næðir oft um daga, Trúmálakvæðið er Hkr. flutti eigi alls fyrir löngu, og ritg. í Sunnanfara, "Á auðninni,” hefir vakið nákvæmaeft- irtekt ýmsra. John Crow, sonur Mr. George Crow, bóndi í nán.il við Tara, Ont., skrifar þannig: “Ég var injög illa kominn af of tíðum hjartslætii. og ótu sem safnað- ist að hjartanu. Eg hafði þetta í því nær tíu ár, og reyndi öll hin nýjustu meðul og alla þá læknishjálp sem ég gat fengið, en þaö kom mér að litlu haldi. I blaði einu sem gefið er út hér í grend- inni, gáði ég að auglýsingu um Dr. Agnews Cure for the Heart og kom það mér til að reyna þetta meðal. Eftir hálfan tíma var mér farið að skána. Ég hefi brúkað upp úr fjórum flösknm og er ég nú eins hraustur eins og ég hefi nokkura tíma verið. Eftirspnrn. Hver sem kynniað vita hvar Kon- ráð Egilsson er niöurKominn,—ef hann annars er á lífi—, er vinsamlegast beð- ín að gefa upplýsingu um það sem allra fyrst til annarshvors íslenzka blaðsins hér í Winnipeg. Sömuleiðis hver sem vissi til að hann væri dáinn, er beðinn að gefa til kynna, hvar og hvenær það hafi aðborið. — Nefndur Konráð erætt- aður úr Þingeyjarsýslu og fl.uttist af Islandi árið 1873, en seinast vita menn hér það til hans, að haustið 1883 kom hann hingað til Winnipeg, þá á ieið til Cólorado. — Móðir hans. sem kom heim an af Islándi næstliðið haust, er mjög umhugað um að fá einhverjar fregnir af honum. Slys vilja til. En í þetta skifti var það sendinp' frá guði til Mr. John Brown, G. A. R. hermanns frá2446 Marshall St.,Phila delphia. Hann vann fyrir þjóð siua og fékk upp úr því hættluegan sjúk dóm. En Dr. Agnews Catarrhal Powd er læknaði hann til fulls. Honum far- ast þannig orð: “Fyrir hreinustu tilviljun náði égí Dr. Agnews Catarrhal Powder, Ég var mjög slæmur af hinni vondu veiki, Cat- arrh. Það gleður mig að geta tilkynt þeim sem veikir eru, að þetta meðal læknaði mig fljótt og vel, og ég er svo þakklátur fyrir það, að ég væri til með að eyða því sem eftir er æfinnar til að útbreiða þessar góðu fréttir meðal þeirra sem þurfa þess við. DÁNARFREGN. Hinn 19. Janúar næstl. andaðist að heimili sinu í Gimlisveit, hjá dóttur sinni Kristínu Árnadóttir og tengdasyni sínum Andrési Eyjólfssyni, ekkjan Sig- urbjörg Matthiasdóttir, 77 ára gömul. Hún kom til þessa lands fyrir 8 árum síðan frá Söilastöðum í Seyðisfirði í Norðurmúlasýslu. — Þetta tilkynnist hér með hinum mörgu ættingjum og vinum hinnar látnu merkiskouu. Um samaleyti mistu og sömu hjón 7 mánaða gamla stúlku, Jónírni Elísa- bet Hólmfríði, eftir langar sjúkdóms- þjáningar. • TÆRING SÓTTNÆM. Það hefir oft verið talað mikiö um að hafa sérstök sjúkrahús fyrir þá sem veikir eru af tæringu, en margir vísinda menn halda því fram að sú aðferð sé ó möguleg og segja, að meðölin ein verði að bjarga í þessu sem öðrum tilfellum. Uppfinding Dr. Stevens ‘Canabís Sati- va’ er hið stærsta stig vísindanna í þá átt að útrýma tæring. Það heitir öðru nafni The East IndisConcumption Cure Þúsnndir mannahefir þetta meðal lækn að, og það ee nú engin efi á því lengur, að þetta meðal er framúrskarandi við öllum lungnasjúkdóinum, svo sem and- arteppu, kvefi, barkabólgu og tauga- veiklun sem af þeim leiðir. Hversem éendir frímerki og minnist þess hvar hann sá þessa auglýsingu, fær allar nauðsynlegar upplýsingar fritt. Skrifið til W. A. Noyer Bowers Berck, Roch ester, N. Y. TÆRING LÆKNUÐ. Læknir einn gamall gaf upp læknri störf sin, en áður hann gerði það fyrsi fult og alt. fann hann það skyldu sína að gera meðborgurum sírium kuuna samblöndun lyfs eins úr jurtarikinu, e" kristniboði eínn úr Austur-Indlandi hafði sagthonum frá. Á meðal það fyr- ir fult og alt að lækna tæring, barka- bólgu, kvef, andþrengsli og alla aðra háls- og lungnasjúkdóma. Það er einn- ig óyggjandi meðal við allskonar tauga slekju og taugaveiklun. Var læknirinn búinn að reyna kraft þess í þúsund til- fellum. Knúður af hvötum þessum og lönguninni til að létta mannlega e.ymd, skal eg borgunarlaust senda fyrirsögn á tilbúningi lyfs þessa til allra, er þess óska, á þýzku, frönsku og ensku, :neð skýrum leiðbeiningum fyrir notkun þess. Sendist meO pósti að fenginni ut- anáskrift á bréfspjaldi með tilgreindu blaði því, er auglýsing þessi var í fundin. W. A. Noyes, 820 Powers Block, Rochester, N. Y. Break I3p a Go!d in Time Tlie Quiek Curo for COUGIIS, CÓLDS, CKOITp, KJION- CIIITI3, HOARS2SNESS, «tc. Mps. Josrph Níjpwick, of Sorauren Ave., Toronto, writea: ‘'i'yny-PoctoTal 1ia» never ffcllcd to cure my rliflilren ot cmup efter a few doseg. It curod luysoif of a lonz-standiiiK cough after Hovoral otbor rftniodi.*g had D«.ll«d. It haa olso provfid an oxcellent ceuph c.ure for my fwni'.y. I p>efnr 11 to any othnr medicino for couglis, croup or L’Oftrgoneas.” H. O. Barbour, of Little Rocher, N.B., writes: "An a cure for C''!i*rh$ PyDy-I'octoral la tho boKt Bellin^ medu ine I have; my c'ja- tomeri wlll have no other.” Large Bottle, 25 Cts. DAVIS & LAWRENCE CO., Ltd. Proprietors, Montreal Fylkisþingið. Á þriðjudaginn 23. Marz var helzt ekkert gert á þingi, — allur dagurinn gekk ttl að vinna á nefndarfundum. Á miðvikudaginn aftur var mikið unnið. Meðal annar var þá ákveðið að lána Manitoba-háskólastjórninni $60,000 til að koma upp viðunanlegri háskóla- byggingu til að byrja með. Þá var og lögð fram áætlun um aukafjárveitingar á árinu og er hún samtals $67,400, og þar af ganga fyrgreind $60.000 til há- skólabyggingar og að auki $2,500 sem auka-árstillag til háskólans, sem nú fær $6000 úr fylkissjóöi. Loks er því svo koinið að von er á háskólabyggingu hér í bænum, þó ekki verði hún mikilfeng- leg í byi-jun. A fimtudaginn var aftur unnið að kappi, því þingmenn margir eru nú orðnir heimfúsir. Þá var felt frumvarp um að leyfa St. Boniface-mönnum að veita félagi einu styrk, sem nú þegar hefir komið upp verkstæði litlu í þorp- inu. Merkustu málin voru : Ályktun um, að sambandsstjórn endurnýi því að eiiis leyfi Gieat Northwest Central fé- lagsins til að byggja járnbraut sína norð- vestur um land frá Brandon, • að félagið uppfylli án frekari undandráttar alla skilmála. Félag þetta er fyrir löngu búið að byggja 50 mílna langan brautar- stúf, hagnýtir hann daglega, en gerir svo ekkert frekar. Úr þessu á að bæta ef kostur er. Annað stórmálið er það, að samþykt var ályktun þess efnis, að algert vínsölubann væri æskilegt í fylk- inu og að stjórnin þess vegna leiti sér upplýsinga um það hvaða völd hún hef- ir í þvi efni, svo að það mál verði alvar- lega og greindarlega rætt á næsta þingi. Það sem stjórnin á að uppgötva er það, hvort hún hefir vald til að fyrirbjóða innflutning áfengisdrykkja, tilbúning þeirra og sölu í fylkinu. Nú má því segja að bindindismálið sé fyrst fyrir al- vöru komið á dagskrá. Greenway tók ályktun þessari vel, enda einn af vildar- mönnum hans, R. H. Myers frá Minne- dosa, sem flutti hana, Á föstudaginn sat þingið lengi og kom saman aftur kl. 7J um kvöldið og sat þá rúmlega klukkustund. Mörg frumvörp til laga voru yfirfarin og gekk alt friðsamlega. Sú ályktun var rædd og samþykt að ráðaneytið og þeir Roblin og Fisher skyldu skipaðir í nefnd til að semja ávarp frá Manitoba-mönnum til Victoríu drottningar til minningar um 60 ára krýningarhátíðina í sumar. Greenway bar fram tillöguna og flutti við það tækifæri tilhlýðilega ræðu. Rob- lin studdi uppástunguna og flutti einnig viðeigandi ræðu. Báðir gerðu yfirlit yfir sljórnarár Victoriu og báðum sagð- ist vel. Fylkisþingið kom saman aftur á laugardaginn, sem þó er sjaldgæft og sat fram á kvöld. Voru þá fjölda mörg frumvörp yfirfarin og samþykt. Á mánudaginn 29. Marz urðu kapp- ræður allmiklar út af kosnmgalögunum í Manitoba og hvernig þau hefðu verið hagnýtt að undaníörnu. Um kvöldið sat þingið aftur og spunnust þá kapp- ræður milli þeirra dómsmálastjóra og Rohlins út af málsókn stjórnurinnar í sambandi við kærurnar um atkvæða- fölsun, o. fl. þvílíkt. Var dómsmála- stjóri að afsaka hvað lítið honum hefði orðið ágengt í að sanna kærur sínar. Handa þér, handa öllum. Hið miklabjargræði. Paines Celery Compound léttir af öilum byrðum. ÞAÐ ER HIÐ BESTA MEÐAL AÐ VORINIT TIL. ÞAÐ LÆKNAR MEÐ ÚNDRAVERÐ UM KRAFTI. f .oforð um góða og Jiagstæða fram- fíð, jafn gleðileg fyrir alla. Menn og konur byrja sumarið nið- urbeygð af veikindum af ýmsu tagi, er koma af skemdu taugakerfi. Þessir kvillar orsaka meiri þjáningar og fieiri uauðsfðll heldur en önnur veikindi og einmitt þess vegna er Paines Celery Compound að verða svo algengt. Af öllum meðölum, sem hrúkuð eru , ;ð taugaveiki, læknar ekkert eins fljótt oiös og Paines Celery Compound. Við taugagigt, gigt og mjaðmagigt rir þotta meðal óyggjandi. Svefnleysi orsakast af vansmíði á taugakerfinu og verður naumast ráðin bót á því nema með Celery Compound. A voriri þegar blóðið er óhreiut, næringarlitið og ó- nýtt, þá er bezti vegurinn til að lækna sig, að hrúka Paines Celery Compound. Það gerir monn hrausta og sterka. Þegnr þú ert búinu að brúka Paines Celery Compound um stund sannfærist þú vonandi á því, að þú hafir náð ímeð alið sem sé hið rétta fyrir sumartímann I’ogar þúsundir manna hafa losað sig úr veikindafjötrum með þessu meðali, og þú getur gert það sama, ef þú tekur þetta meðah Paines Celery Compound að eins gefcur komið að liði. Taktu ekki viðneinuððru meðafi frá lyfsala þín- um, hversu vel sem haun mælir með því. / Kjólasaumur. Mrs. W. A. Johnson, 96 McDonald Str. tekur að sér að sníða og sauma kvenn- kjóla og annan kvennfatnað, gegn lægsta verði. TIL SOLU ÁBÝLISJARÐIR alstaðar í Manitoba, HUS cg LÓÐIR með lágu verði í öllum pörtum bæjarins. Aðgengilegir skil- málar fyrir kaupendur, Nares & Robinson. Financial & General Agsnts, Basement Livingstono Block, Winnipeg, Man. W. Brown & Go. verzla með Tóbak, Vindla, Pípur og annað tóbaki tilheyrandi. Hérlendur og útlendur varningur fáanlegur. Ar.ny&Navy 541 MAIN STR. heildsöluhúð, Winnipeg, Ábýlisjörð. Ef þig langar til að eiganast 75 ekrur af ágætu plóglandi, hesta og aktýgi og sleða og yms jarðyrkjuáhöld, aðeins 9 mílur frá Winnipeg, þá getur þú fengið það mjög billegt — fyrir peninga, eða skuldlausar fasteignir í bænum, hjá Guðm. Jonssyni, So. West Cor. Ross Ave. og Isabel Str. “ISI1A.JÍ D.” Blað þetta er gefið út í Reykjavík. Ritstjóri er Þorsteinn Gíslason. Langstærsta og ódýrasta blaðið, sem gefið er út á íslandi. Kem- ur út einu sinni í viku, 1 stóru arkar- broti. Askrift að eins bindandi fyrir einn ársfjórðung. Verð ársfjórðungsins er 35 cent. Borgist fyrirfram. Menn snúi sér til H. S. BARDAL, 613 Elgin Ave., Winnipeg. Briinswicli Motcl, á horninu á Maine og Rupert St, Winnipeg. Hvergi í bænum betri viðurgerningur fyrir $1 4 dag. Bestu vín og vindlar. Fríflutn- ingur að og frá járnbrautarstöðvum. McLaron Bro’s, eigendur. Matur á reiðum höndum dag og nótt. Stærstur og skrautlegastur "Billiard” saluríbænum. Ekkert nema vönd- uðustu vín oc vindlar á boðstólum. Pat. O ’CoTmor, Eignndi.

x

Heimskringla

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.