Heimskringla - 15.04.1897, Síða 1
NR. 16.
XI. ÁR. WINNTPEG, MAN., 15 APRÍL. 1897.
Cheapside,
Abatast a reynslunni.
20
Centa afslattur
i fatabud vorri.
Tls h
458 MAIN STREET.
-*■
Hver sem kemur í búð vora til að kaupa
eitthvað og1 heflr með sér þessa auglýsingu
eins og hún stendur í Heimskringlu til
sýnis, fær 20% afslátt af öllu sem hann
kaupir, — alfatnaði og yflrhöfnum, buxum
og öðru fatnaði tilheyrandi--------------------
Góð kaup á höttum, húfum, skyrtum, hálsbindum,.
krögum og öðru þessháttar.
The Palace Glothing Store
458 MAIN STREET.
Hver sem sýnir oss þessa auglýs-
ingu, á heimting á því að 20% sé
sleginn af öllum alfatnaði sem hann
kaupir ef verðið er upprunalega
meira en $5,00. T. d. fót sem eru
merkt $6,00 fást fyrir $4,50 og föt
sem kosta $10,00 fást fyrir $8,00.
Vér höfum eitt hið stærsta og bezta
upplag af fatnaði sem til er hér í
Winnipeg, og verðið er mjög lágt.
Svar til ‘‘Lögbergs
um Islendingadag og tímatal.
ítétt í þessu berst mér Lögberg 25.
Marz, og í þvi grein ritstjórans um ís-
lendinga-daginn út af grein minni í
Hkr. 18. Marz.
Þetta er helzt að athuga við hana
frá minni hálfu :
Eg hefi aldrei sagt “að það /lafi ekki
verið neinn merkidagr þegar ið forna is-
lenzka þjóðveldi var stofnað.” Hinu
hefi ég haldið fram, að þessi sögulegi
merkidagr hafi litla sem enga beinlínis
áhrifaþýðingu fyrir kjör vor og framtið
nú. — Þetta er alt annað.
“Eftir ófriðinn einn milli Dana og
Norðmanna létu inir síðarnefndu Island
af hendi yið Dani.” Þetta er ný saga.
Sauuleikrinn er, að Margrét dóttir
Valdimars 4. Danakonungs, giftist Há-
koni 8. Noregskonungi (1868). Eftir
dauða Ólafs sonar síns (1887) varð hún
rikjandi drotning yfir Noregi og íslandi.
en áðr hafði hún erft ríki í Danmörk
eftir föður sinn. Þannig komust Noregr
Island og Danmörk undir vald eins og
sama konungs (drotningar). Það gerð-
ist á friðsamlegan hátt, og ísland var
ekki “látið af hendi” af konungi sinum.
Síðan vóru þessi riki undir einum kon-
ungi öl} þar til í byrjun þessarar aldar,
er Friðrik 6. var kúgaðr til að láta Nor-
eg af hendi. Þá hélt hann íslandi, og
var það, eins og allir ættu að vita, heldr
ekki afleiðing af neinum ófriði við Nor-
eg-
Á 17. öld gáfu íslendingar sjálfir ó-
þvingaðir Friðriki konungi 8. einveldis-
rétt yfir sór og niðjum hans, er þeir lög-
tóku konungalögin frá 14. Nóvember
1665. Kópavogssamningrinn er svart-
asti blettrinn í sögu íslands. Það var
ræfilskapr og vesalmenska íslendinga
sjálfra, sem svifti þá frelsi og fornum
réttindum.
Þegar íslendingar fengu rdðgefandi
þing, hafði enginn Islendingr farið fram
á að fá annað eða meira; þeim hefir
varla dottið það í hug. Danir gáfu þeim
það ekki, því þeir höfðu ekkert löggjaf-
arþing þá sjálfir. Kristján 8. veitti ís-
lendingum það og hvatti þá til, að haga
þinginu nú sem þjóðlegast og likast al-
þingi inu forna ; en þeir höfðu þá ekki
uppburði til annars, en að þinga fyrir
luktum dyrum og settu sér sjálfir hin ó-
frjálslegustu kosningarlög.
Það var fyrst 1848, er Friðrik 6. af-
salaði sér emveldi sinu í hendr allra
þegna sinna, að stjórnarbarátta íslend-
inga hófst, og þó að vísu engin barátta
fyrri en með þjóðfundinum 1851. Frá
því og fram á vetrinn 1871—72 stendr
barátta milli Dana og íslendinga, sem
mest stafaði af því, að ísland og Dan-
mörk höfðu ekki aðskilinn fjárhac, og
fór Dönum þar ekki drengilega í því
máli, en oss Islendingum fór og barna-
lega í sumu og stundum ósanngjarnlega
CHEAP5IDE,
578 og 580 Main St.
Rodgers Bro’s
<te co.
P.O. Box 639.
Þessu lauk nú við nýjársbyrjun 187:-!, er
fjárhagrinn varð skilinn með lögum, er
að visu voru valdboð rikisþings Dana.
Enginn hefir farið fram á að hafa mikið
við minning^ess dags. En upp frá því
var afskiftum ins danska löggjafarvalds
af Islands löggjafarmálum lokið.
Stjórnarekrá íslands, sem tveim fir-
um síðar varð til, hefir aldrei verið lögð
undir atkvæði Dana, sem ekkert at-
kvæði áttu heldr um það mál. Ríkis
þingið hafði oft farið fram á það, en
fengið þau svör hjá konungi, að það mál
lægi ekki undir það þing, en væri ein-
göngu mfii milli konungs og íslendinga.
Það er því alveg rangt sagt, að “Danir
létu íslendinga fá stjórnarbótina frá
1874.” — K-itstj. Lögbergs blandar hér
fjárskilnaðinum saman við stjórnar-
skrána ; og öll hans ummæli um stjórn-
arsögu Islands sýna, að hann er henni
alveg ókunnugr. — Danir hafa aldrei
viðrkent, að þeir hafi svift oss voru
forna frelsi (bví það gerðum vér sjdlfir),
og þeir hafa aldrei gefið oss stjórnarskrá
Og þannig er það tómr hégómi að setja
hana í nokkurt samband við vora fornu
þjóðvaldsstjórn.
Mér hefir aldrei komið í hug né
hjarta að kaila tillagið til fslands úr rik-
issjóði “náðargjöf” — mjög fjarri því.
Ég hefi aldrei á það minzt í þessu máli,
því það kemr því ekkert við, og á ekk-
ert skylt við 2. Ágúst. Ég hefi heldr
ekki kallað stjórnarskrána “naðargjöf,”
og óg fæ ekki séð, að hún væri oss meira
virði fyrir það, þótt hún væri það, heldr
en það, sem hún er : árangr af þraut-
góðri baráttu þjóðar vorrar.
I því sambandi sem hér er um að
ræða, nefnil. hvort stjórnarskrárdagr-
inn sé þýðingarmikiil fyrir þjóð vora,
stendr það á engu, hvernig stjórnar-
skráin er undir komin, eðr hvernig ís-
lendingar mistu frelsi sitt. Hitt er að-
alatriðið, að stjórnarskráin er órjúfan-
leg viðurkenning á rétti vorum til sjálf-
stjórnar, og veitir þióðinni í heild sinni
víðtækara sjálfsforræði, en hún hefir
nokkru sinni haft síðan landið bygðist,
og getr, Svo áfátt sem henni er, verið
grundvöllr óyfirsjáanlegra þjóðþrifa og
framfara, ef þjóðin ber hyggindi, þrek
og gæfu til að neyta sín. Og ekki er
vert að láta sér gleymast það, að vor
þrálofaða þjóðstjórn í fornöld var stjórn
goðanna, arfgengra höfðingja eða
manna sem keypt höfðu sór goðorð, en
ekki vóru kosnir fulltrúar alþýðu. Al-
þýðan hafði lítið frelsi þá í samanburð;
við það sem hún hefir á íslandi nú. Það
vóru höfðingjarnir einir, sem öllu réðu.
Ekki er það rétt hjá ritstjóranum
að eg þykist “vera eini íslendingrinn
hér í landi, sem nokkuð veit.” Það er
fjarri því. En hitt er það að þegar ég á
jafnauðveldan aðgang sem nú að nauð-
synlegnm bókaforða, til að kynna mér
mál, sem ég vil taka þátt í að hugsa og
ræða um, þá verðr mér að vegi að nota
mór þær þekkingar-uppsprettur, heldr
en að flana í blindni til að rita um málið
án þess að vita upp né niðr í því. Þeg-
ar tillaga áttmenninganna um setning-
ardag alþingis forna kom mér fyrir
augu, var ég ekki fróðari um “gamla
stíl” og “nýja stíl” en margir aðrir
kunna að vera af löndum minum hér
vestra. Ég vissi reyndar að fornmenn
reiknuðu aldrei eftir rómverskum mán-
uðum (ég ætla Rímbeygla ein nefni róm-
verskt mánaðarnafn). Ég vissi líka að
setningardagr alþingis var fimtudagrinn
í 10. viku sumars, því mér eru ekki al-
veg ókunnar fornsögur vorar. En
hvaða mánaðardagr þessi dagr hafði ver-
ið eftir gamla stýl, eða hver mánaðar-
dagr hann gæti verið eftir nýja stýl, það
mundi ég ekki. Ég sá, hvað áttmenn-
ingarnir sögðu, og fór að athuga það.
Fann þá, að Guðbrandr og Maurer
hvorir um sig telja svo, að 10. vika sum-
ars hafi byrjað 11. —17. Júní eftir gamla
stýl. Að þeir hefðu rétt í þessu, efaði ég
ekki þá i svipinn, og hefi gengið út frá
því í tveim greinura, sem ég hefi ritað í
Hkr. En síðan hefi ég kynt mér málið
betr, og það ætti inir heiðruðu 8 menn
að gera líka. Ég vil vísa þeim sér í lagi
á eitt merkasta rit um tímatalsmál, en
það er : Iíeiitsberg-Duringsfeld'á Kalend-
erkunde (1876). Sé hún ékki til i Winni-
peg, mun þó síðasta útg. af “Encyclop.
pedia Britarinica’ vera þar. Betri en alls
ekkert er Chambers Information for Ihe
People (I. bd., s. v. “Chronology—Horo-
logy”). Þá bók minnir mig að séra Jón
Bjarnason eigi.
Ef þeir nú vilja kynna sér málið og
leita þess, hvað rétt sé (en ekki revna að
fóðra rangt mál með þvergirðingi), þá
munu þeir komast að raun um, að bæði
Maurer og Guðbrandi skjátlar með mán-
aðardagatalið eftir “gamla stýl,” svo
fróðir menn sem þeir annars báðir eru.
Hvorugr hefir auðsjáanlega farið djúpt
í rímfræðina hér, og getr það verið
mjög skiljanlegt og afsakanlegt eftir at-
vikum.
Til að skýra, hvernig i þessu liggr
og að öðru leyti til fróðloiks lesendum,
svo að hyer og einn geti skilið í málinu,
skal ég nú skýra h'tið eitt frá timareikn-
ingi að fornu og nýju.
Rómverjar skiftu fyrst ári sínu í 10
mánuði, en Núma Pompilíus innleiddi
tunglár; vóru í því tólf tunglmánuðir
eðr 355 dagar; svo var af og til skotið
inn hlaupársmánuði, inum þrettánda, í
árið, til að rétta tfmareikninginn. Alt
um það var þetta svo ónákvæmt, að
tímareikningrinn færðist smám saman
úr lagi og fór að inuna æ meir og meir
frá réttum árstiðum, svo aðátíðjúh'-
usar Cæsars féll vor-jafndægri eftir
tímatali nærri tveiin mánuðum síðar en
að náttúrlegu eðli, Cæsar fékk þá
stjörnuspekinga tvo. annan grískan en
hinn rómverskan til að leiðrétta tima-
talið. Þeini taldist -svo til, að náttúr-
legt ár væri 865 dagar og J úr degi;
menn höfðu þá eigi sigrverk og gátu
ekki mælt tíiua svo nákvænilega sem
nú). Samkvæmt þessu skyldu vera 365
dagar í ári, og 4. hvert ár 366 dagar
(lilaupár). Þemian tímareikuing inn
leiddi Júlíus Cæsar43árum fyrir Krists
burð; er hann við hann kendr síðan og
nefndr “júlíanskt rím,” en stundum
“gainli stýll.” Honum fylgja Rússar
og Grikkir enn í dag. En ársleugdin
var ekki alveg rétt enn, þvi að með því
að bæta inn í heilum degi 4. hvert ár
(hlaupár), þá varð viðbótin nálega %
klukkustundar (44 mínútum og 48 sek-
úndum) of mikil, og gerði þetta á hverj-
um 400 árum 3 daga, 2 klst., 41 mín., 16
sekúnda skakka. lvyrkjuþingið í Nicæa
(325) hnfði ákveðið, að jafndægra-dagr
að vorlagi skyldi vera 2i. Marz, en 1582
var skakkinn á tímataliuu orðinn svo
mikill, að uam 10 döguin, svo að réttr
iafndægradagr féll þá á 11. Marz, í stað
21 eftir tímatalinu. Þá gaf Girgir páti
inn 18. út bullu þá er bauð, að þetta ár
skyldi 10 daga fella úr Októbermánuði,
svo að næst éftir 5. Okt. var þá látinn
koma 15. Okt. Og til að tryggja þaö,
að eigi skyldi aftr í sama horf sækja
sem áðr, heldr jafndægradagr haldast ó-
breyttr, þá var ákveðið, að hvert aldar-
loka-ár skyldi hlaupársdagr niðr falia,
ueina þau árin er hundraðatal áranna
væri deilanlegt með 4 afgRiigslaust.
Þannig var árið 1600 hiaupár, 1700, 18tK)
og 1900 ekki. en árið 2000 aftr hlaupár
o. s. frv. Þannig verðr nú næsta hlaup-
ár eigi fyrri en 1Q04, en hlaupár var í
fyrra, og eru því nú 7 ár rnilli hlaupár •
anna, eðr 8 ár milli hlaupársdaganna
(29. Febr. 1896 og 29. Febr. 1904). Þessi
tímareikningr er ýmist nefndr Girgis-
rím (gregorianskt tímatal) eða “nýj
stýll,” og er það svo rétt og nákvæmt
sem þörf gerist.
Þegar nú maðr, sem ekki hefir sér-
staklega sett sig inn í tímatalsbreyting-
una, slær upp í handbók, svo sem ein-
hverri af inum smærri og handhæpri
eycurpcedí-um, verðr honum skjótt á það
litið, að þegar “nýi stíll” var inn leiddr
1582, þá var mánaðardagatali hleypt
fram um tíu daga, svo að sá dagr, sem
árið 1581 (undir gamla stíl) var t. d. 5.
Nóvember, varð hann jafnan síðan og
er enn 15. Nóvember. Munrinn milli
gamla og nýja stíls var þannig 10 dagar
og eftir þessu álítr hann þá, að ekki
þu-fi annað, en að flytja hvern mánað-
aröag, sem er, fram um 10 daga frá því
ser r nú er, til að fá út mánaðardaginn
eft r gamla stíl. Þannig hefir Guðbrandi
farið.* Það má sjá á mörgum stöðum i
orðabók Cleasby’s (sem Guðbr. gaf út),
að hann hefir fylgt þessu sem fastri
reglu, að setja mánaðardag hvers við-,
burðar í fornöld fram um 10 daga frá
núverandi tímatali og kallar svo þetta
“ettir gamla stíl” (sjá t.d. s.v. “alþingi”
“sumar” og víðar).
Fimtudagrinn í 10. viku sumars er
eftir voru tímatali sá fimtudagr, er fellr
næst á undan 28. Júní. Guðbrandr seg-
ir þyí hiklaust, að þessi fimtudagr hafi
fallið “11. til 17. Júní” (þ. e. fimtudag-
inn næstan á undan 18. Júní) í gamla
stíi. En þetta er alveg rangt hjá Guð-
brandi. Eg glæptist á að fylgja þvi í
fyrstu ritgerð minni og aftr í svarinu til
rits; j. Heimskringlu, af því að ég tók
Guðbrand trúanlegan rannsóknarlaust.
En eins og gefr að skilja hverjum þeim,
er rannsakar júlíanska tímatalið (gamla
stil) og sér, af hverju skekkja þessi kom
og smá-óx með timanum, svo sem ég
áðr hefi sýnt fram á, þá hefir fimtudagr-
inn í 10. viku sumars upphnjlega (borið
.(4. 4 cjiniíi vnái'aðardag sem eftir nýta
stíl), því að gamli stíll byrjaði rétt, en
smá-aflagaðist. Eg hefi áðr getið um,
hve miklu skekkjan mnnaði á gefnu
tímabili, svo að liún var orðin 10 dagar,
þegar Girgir páfi leiddi inn nýja stíl
(1582).
En alþingi forna var ekki sett í fyrsta
sinni drið 1582, heldr 652 árum fyrri,
eðr ár 930, en þá var skekkja gamla stíls
ekki orðin nema 5 dagar, og þá var því
flmtudagrinn í 10. viku sumars sá, er
féll næst á undan 23. Júni (þ.e. 16. til 22
Júní). Þetta er sú rétta aðferð til að
reikna út, hvern mánaðardag eftir gamla
stit að 10. vika sumars hafi byrjað á 10.
öld.
Þessi meinlausa deila um íslend-
ingadaginn hefir þá orðið til þess, að ég
hefi nú getað leiðrétt sögulega villu, sem
hingað til hefir gengið ómótmæld í orð
bókum og sagnfræði-ritum. Hvorki
Lögberg né neinn annar þarf að kýma
að því, að ég þykist leiðrétta menn eins
og GuðbrandVigfússon og Konráð Maur
er. Leiðrétting min er óyggjandi vís-
indalega rett, og ég mun samstundis
koma henni fyrir augu fræðimanna í
vísindalegu tímariti. Og það er óhætt
að reiða sig á það, að leiðrétting min
verðr tekin til greina af öllum vísinda-
lega mentuðum mönnum og henni héð-
an af fylgt í söguritum að því er alþing-
issetning fornu snertir og aðra viðburði
er líkt kann að standa á með.
En að því er kemr tilágreiningsefn-
is vors liér, þá varðar það mestu, að
forfeðr vorir reiknuðu hór alls ekki eftir
rómverskum mánuðum og mána.ðar-
dagatali. Eg mun hafa tekið frekara af
en rétt var í svari til ritstj. Hkr., er ég
ínun hafa haldið því fram, að menn
teldu nú fáa eðr enga sögulega viðburði
eftir gamla stýl. Ég hefi nú rannsakað
þaö betr, og sannleikrinn er sá, að menn
'elja suma ina fornu viðburði eftir réttri
dagsetning þeirra samkvæmt nýja stíl,
en aðra eftir því sem þeir voru dagsettir
í gamla stíl. En þetta er ekki af handa-
hóti gert, heldr samkvæmt fastri reglu.
Hún er þessi : ef viðburðrinn hjá forn-
möntium er miðaðr eingöngu við mán-
aöaidag þann, er hann bar upp á eftir
þeirra tali, þá halda menn þeirri dag-
*) Maurer hefir tekið slna dagsetn-
ing beint eftir Guðbrandi, og áttmenn-
ingarnir hafa svo tekið hana eftir
Maurer.
setning enn í dag. En ef viðburðrinn
var miðaðr við "árstíð (tunglkomu, jafn
dægri. skemstan dag árs eðr því um
hkt), svo að daginn, sem hann var við
miðaðr, gat borið upp á sinn mánaðar-
dag hvert árið, þá eru slíkir merkisdng-
ar jafnan nú taldir eftir því sem þá ber
réttilega upp árlega eftir voru (rétta)
tímatali. Þannig er varið pdskadegi í
kristinni kyrkju, og öðrum þeim merki-
dögum, er miðaðir eru við afstöðu frá
honum. Kyrkjuþingið í Nikæa kvað
svo á, og helzt það siðan, að páskadag
skyldi halda sunnudaginn næsta eftir
fylling tungls, þá er að ber næst eftir
vorjafndægr (21. Marz, strangt tekið :
eftir að tungl verðr fyrsta sinn 14 daga
gamalt næst eftir 21. Marz). Eftir þessu
verðr að telja t. d. föstudaginn langa,
hvítasunnudag, uprstigningardag. Eng-
um manni dettr nú í hug að telja dánar-
dag Krists þann mánaðardag eftir
ganila atil, er reikna má út að föstuuag-
inn hafi borið upp á árið sem hann var
krossfestr.
Alveg eins or með alþingi ið forna.
Setningaidagr þess ár hvert var bund-
inn við fyrsta dag í tiltekinni sumar-
viku, en sumarvikur eru taldar frá sum
ardegi fyrsta, sem jafnan er fimti fimtu-
do.gr eftir jafndœgradag (21. Marz). Þessi
dagr (5. fimtud. eftir jafndægr) var og
fyrsti dagr í mánuðinum Uörpu eftir
tali forfeðra vorra. Guðbrandr segir í
orðabók Clasby’s, að sumard. fyrsti hafi
í gamla stíl verið næsti fimtudagr fyiir
16. Apríl). En þetta er ekki rétt nema
að eins um það timabil, er tímatals-
breytingin komst á. Þd var sumard.
fyrsti fimtud. næsta á undan 16. Aprll.
En á 10. öld var það fímtud. næsti á
undan 22. Apríl. Hjá þeim þjóðum, er
enn nota gamla stíl, er nú vor 26. April
hvorki tahnn 22. né 16. Apríl, heldr 14.;
og 1890 verðr vor 26. Apríl 13. Apríl eft.
ír gamla stíl. því að það ár flytr gamh
stíll árið enn einn dag úr réttu lagi, með
því að telja það hlaupár, sem ekki á að
vera.
Að vísu er nú þetta tímatalsmál alt
nokkuð utan við aðalefnið um íslend-
ingadaginn, hvort hann skuli haldinn í
Júní eða 2. Ágúst; en það er svo mark-
vert I sjálfu sér, að það verðskuldar eft-
irtekt. Og vilji einhverjir endilega fara
að halda upp á setningardag alþingis
forna, er þó óneitanlega viðkunnanlegra
að gera það á réttum degi en röngum.
En eini rétti dagrinn I því efni er:
fimtudagrinn í 10. viku sumars.
Það er nokkuð nýstárleg fullyrðing
hjá ritstj. "Lögb.” að hver þau lög, er
löggjafarþing þjóðar samþykkir, sé
“valdboð,” nema frumvarpið hafi áðr
verið lagt undir atkvæði alls almenn-
ings (“referendum”). Það er enn ekkert
land I heimi, nema Svissland, að ég
ætla, sem gefr almenningi kost á slikri
beinlínis atkvæðagreiðslu um löggjafar-
mál alment. ,
Hitt veit höf. líklega, að ekaert
frumvarp getr orðið að lögum, nema
það sé fyrst samþykt i hvorri alþingis-
deild um sig (eða i sameinuðu þingi).
Hann veit og að öll neðri deild er þjóð-
kjörin og hálf efri deild, en 6/7 alira
þingmanna í sameinuðu þingi. Hvert
einasta lagaboð verðr því að fá meiri
hlut allra þjóðkjörinna atkvæða (eða f
sameinuðu þingi § allra atkv.). Hvaða
átyllu höf. hefir til að kalla meiri hlut
allra þjóðkjörinDa þingmanna á íslandi
“dansksinnaða,” þaö er mér óskiljan-
legt. Og jafnóskiljanlegt er mér það,
því dansksinnuðum mönnum ætti að
vera vel við stjórnarskrá íslands (höf.
má ekki slengja henni saman við stöðu-
lögin 1872!). Hitt er miklu auðskildara,
að hverjum óþjúðlegum íslendingi sé
meinilla við hana.
Loks gefr höf. í skyn, að mér auð--
vitað muni þykja vænt um dönsk vald-
boð. Satt að segja held ég, að ef höf.
hefði viljað segja eitthvað mér meinlegt,
þá hefði liann ef til vill getað fundið
eitthvað það til annað, sem líklegra væri
að nokkur mundi trúa eða við mig
mundi loða.
Þegar þessi grein birtist í Heimskr.,
(sem ég vona að verði 8 Apr.), býst ég
við að vera að leggja af stað í ferð heim
til íslands. Ég get því ekki svarað fyr-
ir mig aftr í þessu máli. En síðasta orð
mitt til landa minna allra hér vestra,
þeirra er vilja gefa þeim gaum, eru
þessi : hyggið vel að röksemdum þeim,
sem ég hefi framfært í þessu íslendinga-
dagsmáli, og fylgið því sem yðr virðist
við bezt rök eiga að styðjast og þjóðlegast
vera.
Chicago, 31. Marz 1897.
Jón Olafsson.
Ábýlisjörð.
Ef þig langar til að eiganast 75 ekrur
af ágætu plóglandi, hesta og aktýgi og
sleða og yras jarðyrkjuáhöld, aðeins 9
rnílur frá Winnipeg, þá getur þú fengið
það mjög billegt — fyrir peninga, eða
skuldlausar fasteignir í bænum, hjá
Guðm. Jonssvni, So. West Cor. Ross
Ave. og Isabel Str.
J. F. MITCHELL, Photographer.
Photographic Studio
211 Rupert St.
Winnipeg, - - - Man.
Telephone 511
#
######
#
“BICYCLES”
Eg hefi samið um kaup á nokkrum reiðhjólum (Bicycles), sem
ern álitin ein af þeim ALLRÁ BEZTU, sem búin eru til. Þau ódýr-
ari eru áreiðanlega betri en nokkur önnur, sem ég þekki fyrir þá pen-
inga.
Karlmanna-hjól eru $40, $55, $75, og $100.
Kvenn-hjól $55 og $75.
Nokkur afsláttur ef alt hjólverðið er borgað út í hönd.
Hjólin eru til sýnis í búð Mr. A. Friðrikssonar, og á skrifstofu
Lögbergs. Komið og skoðið þau.
B. T. BJORNSON.
###### --------=---■■ —♦♦###