Heimskringla - 28.10.1897, Page 3
HEIMSKRINGLA, 28. OKTOBER 1897.
svolitið lengui, en helzt af öllu þangað
til að við gætum orðið samferða. — En
það gengur nú svona, maðurinn er svo
breyzkur. Og því er ekki að leyna að
ég er einn af þeim mönnum, sem eiga
ósköp bágt með að krjúpa, en allra helzt
fyrir grimmum ofríkismönnum og ó-
þokkum. Og svo finst mér þá líka
stundum að ég ætti að hafa óhindrað
frelsi til að hugsa og álykta sem aðrir
menn, án þess Cað vera rægður og of-
sóttur eins og illræðismaður, og það án
allra saka.
I þetta sinn ætla ég að leyfa mér að
fara nokkrum orðum um vélina mina,
sem Sigtryggi þóknaðist að segja að
hefði orðið Vestur-íslendingum til
minkunar. Eins og Sigtryggur veit
vel, þá er það lygi framborin í þeim
augsýnilega tilgangi, að gera mér með
því skapraun og skaða, ef mögulegt
væri.
Umþaðhefiég enn fremur þetta
að segja:
Þó nú að svo væri, sem þó er ek'ki,
að það væri nú þegar sannað, að vélin
væri ónýt og óbrúkleg, þá samt væri
hún öllum Islendingum fremur til sóma
en vanvirðu; fyrst og fremst vegna þess
að hér var þó að ræða um hið fyrsta
stórfyrirtæki í þessari grein meðal Is-
lendinga, sem var stórmikils virði að
hafa ráðizt í, þegar sanngjarnlegt tillít
er tekið til allra kringumstæða, með
því að líkurnar fyrir því að vélin væri
góð, væru svo sterkar (eins og þær eru
enn), að flestir þeir hér innlendir menn,
og aðrir, sem skoðað höfðu uppdrætti
af vélinni höfðu látið í ljósi eindregið á-
lit sitt um að vélin væri góð, langtum
betri en allar aðrar vélar á alt slétt hey-
laud, og margir þeirra höfðu þó með
höndlað sláttuvélar í mörg undanfarin
ár; jafnvel heyrði ég sagt að menn úr
óvinaflokki (Lögbergs-klikunni) hefðu
gefað það álit sitt á vélinni, að hug-
myndin væri góð og myndarleg, en að
hún mundi þurfa umbóta við, Og enn,
þá höfum við í höndum bréf frá félagi í
Bandaríkjunum sem saman stendur
af vélafræðingum og lögfræðingum, og
sem hefir stundað þá atvinnu nú yfir
20 ár að útvega og selja einkaleyfi um
allan faeim. í þessu hréfi stendur með-
al annars, að sláttuvélín mín sé sú
bezta af þvi tagi, sem það félag hafi
nokkru sinni séö (' the best of that kind
we have come a cross”), og það félag
sótti ákaft eftir að fá að útvega okkur
einkaleyfi á vélinni í Norðurálfunni, sér
staklega á Þýzkalandi, og bauðst það
til að leggja sjálft út allan kostnnð til
hálfs á móti okkur upp á að fá það aldr-
ei endurborgað nema í 10% commission
of Sale”. En því boði gátum við þá
ekki tekið, þvi miður, höfðum ekki ráð
á þvi.
Með allar þessar líkur og ótal fleiri
fyrir því, að vélin sé góð, er það þá gef-
ið ^að hún er íslendingum heldur til
sóma en vanvirðu, e ns og nú stendur,
og það jafnvel þótt nú væri sannað að
hún væri eftir alt óbrúkleg og einskis
virði, sem þó er ekki, eins og ég tók
fram, og sem aldrei sannast sem betur
fer. Eg veit að vélin er eins tróð og ég
liefi nokkurntíma sjálfur hafthuginynd
um, þótt hún þurfi kanské umbóta við
eins og allar aðrar vélar og öll manna-
verk, og auk þess er hugmyndin eða
“prinsipið” sem hún byggist á áreiðan-
legt fyrir bæði handsláttuvél og sjálf-
bindara; það sannar framtíðin, þótt
vondum mönnum kunni að takast að
standa á móti því að ég hafi gagn af
því, sem ég vona að ekki verði.
Enn fremur:
í stað þess að það sé nú sannað að
vélin sé óbrúkleg. þá er nú alt að því
sannað, að hún er góð, gerð í réttum
stærðahlutföllum eg réttu formi, þótt
sú “prufa”, sem gerð var af henni sé
að ýmsu leyti ófullkomin aðjformi og
frágangi.
Það eina sem svarar til fullnustu
spurningunni um það hvort vélin sé
eins góð og vonast var eftir eða ekki,
er sú sannraun hvort
hún slær gras á sléttu engi með t, a. m.
10 feta ljá (ekki 20 feta Ijá eins og Lög-
berg segir) og með 2—3 hestum fyrir.
Og með þeirri spurningu er nú mikið
svarað til fullnustu. Með því að þegar
hún var tekin út til reynslu í annað
sinn, þá sló hún það gras sem fyrir
henni var —3—4 faðma—með2 hestum
fyrir, þangað til að stykki brotnaði í
henni á ný, sem óinótmælanlega orsak-
aðist af því að.vélin stóð á sér á 3—4
stöðum, og sem stafaði af vansmíði ein-
ungis. Að sönnu hefðu allir partar vél-
arinnar átt að vera svo sterkir að vólin
hefði þolað að standa á sér, með að eins
2 hestum fyrir, án þess að brotna. En
svo er það engu að síður sjálfsagt að
til þess aðein eða önnur vél geti gengið
og unnið Csitt verk, þarf hún að vera
syo gerð, aðhinir einstöku partar og
hjól geti Ifhindrunarlaust unniðsaman.
standi ekki á |sér — það ættu allir að
geta skilið—. Það er t. a. m. mjög
skiljanlegt, að tannahjól, sem saman
ganga í vélum, þurfi að vera með ná-
kvæmlega jafnþykkum tönnum og með
jöfnum ^millibilum, ef vélin á að geta
gengið. En nvi er tilfellið það, að milli-
bilið milli tannanna á þeim tveimur
tannahjólum sem saman ganga í vél
minni, er mismunandi svo að nemur alt
að fjórðaparti úr þnmluugi og er það
eitt nægilegt til þess að gera vélina ó-
brúklega. Að þessu er þannig varið
getur hvar einn sannfærst um sem vill*
með því að skoða vélina. Auk þessa þá
var annað tannahjólíð svo rúmt á ásn-
um, að það gekk til hliðar fram og aft-
ur, og rak sig þannig á í tveim stöðum
á aðra hlið og einn stað á hina, eftir því
á hvora hliðina það gekk til. Það er
þess vegna enginn furða þó að vélin
gangi ekki vel og liðugt, og þó gekk
hún sem sagt svo vel, að hún sló milli
þess sem hún stóð á sér svo að hestarn-
ir komust hvergi. Hvort sem nú þessi
oií önnur vansmíði á þessari vél eru af
klaufaskap eða ásetuingi gerð, — um
það geta menn þráttað fyrir mér—, þá
eru þau óneitanlega vélaruppgötvun-
inni óviðkomandi. En það, að vélin
gat þó gengið nokkra ögn svona úr
garði gerð, og slegið gras með 2 hestum
fyrir, er að því er ég get bezt séð hin á-
reiðanlegasta sönnun, sem hugsast get-
ur fyrir því, að vélin er í aila staði góð,
ef hún er gerð í réttu formi og réttum
stærðahlutföllum.
Það sem menn finna að afturenda
vélarinnar er einkaleyfinu Jóviðkomandi
og því hægt aðbreyta til batnaðar mjög
auðveldlega, eftir vild, og kostnaðar-
lítið.
Ég uppástend, að þegar búið er að
gera vélina upp á ný, |þá slái hún með
tveimur hestum fyrir; því eins og hún
er nú úr garði gerð, gengur hún þó “in
gear” með tveggja manna átaki, og ef
hún gerir það, þá er hún helmingi betri
en hinar almennu vélar á alt slétt hey-
land, með því að þá gerir hún helmingi
meira verk en þær á sama tíma með
sama afli. Og auk þessa þá er hún
helmingi betri en hinar vegna þess, að
hún hlýtur að endast helmingi fleiri ár
en hinar almennu vélar, fyrir jafnmikið
heymagn járlega, af því að hún slær
jafnmikið á einum degi og hinar á tveim
ur; það er: að þá er hún tvisvar sinn-
um helmingi betri en þær almennu; eða
roeð öðrum orðum: það borguðisig eins
vel að gefa alt að $200 fyrir mína vél
eins og $5—60 fyrir almennu vélarnar.
En fyr er nú nokkur umbót en svo
miklu nemi, en svo yrði mín vél lítið
dýrarí en hinar almennu. Slái velin
þar á móti ekki minna en með þremur
liestum, jafn-auðveidlega og hinar með
tveimur hestum, þá samt er vélin góð,
og mikil umbót frá gömlu vélunum,
því að þá slær einn maður eins mikið
með henni á einum degi með 3 hestum
fyrir, eins og tveir menn slá á einum
degi með 2 af hinum almennu vélum
vélum með 4 hestum fyrir. Auk þess
sem min vél yrði þá endingarbetri en
hinar, eins og ég tók fram, fyrir helm-
ingi minna brúk árlega, Og auk þess
er min vél mikið hættnminni en hinar
gömlu vélar; í fyrsta lagi af því að hún
gengur á undan hestunum. en allir vita
að menn og skepnur óttast fremur ó-
sýnilega ímyndaða voðann að baki sér,
en hinn sýnilega sem framundan er,
enda fór vélin að því 1 eyti mjög vel fyr-
ir hestunum, bæði skiftin sem hún var
tekin úf I öðru lagi er hún og hættu-
minni vegna þess, að þótt að hestarnir
kynnu að fælast, þá komast þeir ekk-
ert eða lítið áfram, |af því að þá liggur
vélin með öllum sínum þunga á hálsun-
um á þeim, ef þeir fara að brjótast um
og stökkva.
Að reynslan hafi sýnt að 20 feta
langur ljár sé mikils til of langur, eins
eg Sigtr. segir, er bara rugl, Sannleik-
urinn er sá, að reynslan hefir sýnt að 6
feta langur ljár er það mesta sem hægt
er að koma að, við vélar gerðar á gamla
'prinsípinu’. En hér er um nýrt ‘prin-
síp’ að ræða, og aðalkosturinn við það
‘prinsíp’ er ómótmælanlega sá, að ljá-
inn má lengja eftir vild; nærri þvíí það
óendanlega; jufnframt og það er gefið,
að jafnvel 20 feta langur ljár væri óbrot
hættari á minni vél, þar eð honnm
halda uppi 3 armar með jöfnum milli-
bilum, jafnlangtfrá báðum endum, en
4—6 feta langur ljár á gömlu vélunum,
sem han gir í lausu lofti með alri sinni
len gd og óllum sínum þunga lárétt út,
á öðrum eudanum.
Ummæli Sigtryggs um vélina mína
eru því bara rógur. Það er það eina
sem hann gat látið í té, til styrktar,
eins myndarlegri tilraun, sem þegar er
búin að fá svo mikla viðurkenningu, að
fremur er til sóma en minkunar fyrir
Islendinga, og er Jsjálfsögð að ná til-
gangi sínum að fullu, ef ekki tekst að
rægja alla trú úr fólki á fyrirtækið.
Þetta sem ég hefi hér sagt um vél-
ina er á margra manna vitund nú þeg-
ar að er satt og rétt, og auk þess hverj-
um innanhandar sem vill, að sannfær-
ast um að svo er, En svo er það auð-
vitað að míklu leyti undir Islendingum
hér komið hvað verður úr þessu fyrir"
tæki, vegna þess að ég er ekki sjálfur
einfær um að koma því til fullnaðar
framkvæmda,
W innipesc-markaðurinn.
Gott, heimagert smjör 12 —14 “
‘Factory”-ostur .......... 10 —12“
Egg, tylftin ..........i... 15 —16“
Endur (parið) ............ 15 —30 “
Gæsir, viltar,hver ....... 30 —50“
Svínafeiti, 20 pd. fata... $1.70
Nautakét.................. 4 —6 “
Kindakét.................. 7 —8 “
Svínaket.................. 6—7“
Kálfakét.................. 5 —7 “
Lambakét ................. 7 —8 “
Nautahúðir, pundið ....... 6J—7 “
Fersk sauðskinn .......... 30—35“
Hestahúðir................ 75—1.25
Ull, pundið (óþvegin)..... 8—9J “
Tólg ..................... 3i
J arðepli................. 25—35 1 ‘
Naut, á fæti, pundið ..... 2—2J“
Hey (tonnið)..................... $5—7
Eldiviður (faðmur) :
Tamarac............ $4,25—4,50
Pine................. 4,00—4,25
Poplar............. 3,00—3,25
Brunswick Uotel,
á horninu á Main og Rupert St.
Er eitt hið ódýrasta og bezta gistihús i
bænum. Allslags vín og vindlar fást
þar raót eanngjarnri borgun.
McLaren Bro’s, eigendur.
EDMUND L. TAYLOR,
Barrister, Solicitor &c.
Lian Block,
492 Main Strebt,
WlNNIPEO.
KOL! KOL!
Beztu Bandaríkja harðkol $10 tonnið.
Beztu Hocking Valley linkol $7 tonnið
Pocabontas reiklausu kolin $8 tonnið.
Wiiuiipeg Coal Co.
C. A. Hutchinson,
ráðsmaður
Vöruhús og skriftsofa á
Higgins og May strætum. faone UO.
Meðöl eftir læknisfyrirskrift afhent
á hvaða tíma sem þarf.
Búðin opin nótt og dag.
John O’Keefe-
Bezta vínsöluhúsið
John O’Keefe,
prófgenginn lyfsali,
CAVAVIER, N-D.
Stewart Bopl
233 llain Str.
Verzlar með mól og gripafóður, hey
ýmsar korntegundir og land-
búnaðarvarning.
Alt selt lágu verði.
Stewart Boyd,
Wm. Conlan,
CANTON,-----N. DAK.
Rplnr mQt.rXm fofnort L
Paul Sala,
eftirmaður H. L. CHABOT,
513 Main Street 513
Gegnt City Hall, Minnipeg.
Beztu berjavín og áfengi.
Bezti spíritus.
Bezta Whiskey
1 Manitoba.
PAUL SALA,
513 Main Str.
PATENTS
IPRDMPTLY SECUREDl
GIT RICH QUICHLY. Write to-day for
onr boautif ul illustratcd Book on Patents and
the fasclnating story of a poor Inventor who
made $250,000.00. Send us a rough. sketcli
or model of your invéntion and we will
promntly tcll you FREE if it U new and
probaoly patentahle.
Nohnmhug, Honost Service. fipecialty:
Tough cases rcjectcd in other hands and
foroiyn anplications. References: Honor-
able T. Berthiaume, prop. of “La Presse,"
Ilonorable D. A. Hoss, tho leading news-
paper», Banks, Exnress Ckimpanies & clienta
ín any locality. All Patentssccurcd throuc:h
our agoncy are brought before the public by
a special notice in over 300 newapapers.
MARION & MARION, Patent Experts,
Temple Building.l85öt. JamesSt.,MontreaL
The only flrrn of Graduata Englneers i n
tho Domlnion transacting patent business
xclusively* Meutionthispaper.
Horöœni Paciflc R’y
TIME TABLE.
MAIN LINE.
Arr. Arr. Lv Lv
ll,00a l,30p Winnigeg l,05p 9,30p
7,55a 12.01a Morris 2,32p l‘2,01p
5,15a U,00a Emerson 3,23p 2,45p
4,15a 10,55a Pembina i3,37p 4,15p
10.20p 7,30a Grand Forks 7,05p 7,05a
l,15p 4,05a Wpg Junct 10,45p 10,30p
7,30a Duluth 8,00a
8,30a Minneapolis 6.40a
8,00a St. Paul 7.15a
10,30a Chicago 9,35a
MORRIS-BRANDON BRANCH.
Arr. Arr. Lv Lv
ll.OOa 1,25p Winnipeg 1.05p 9,30p
8.30p ll,50a Morris 2,35p 8.30a
5,15p 10,22a Miami 4,06p 5,15a
12,10a 8,26a Baldur 6.20p 12,10p
9,28a 7,25a Wawanesa 7.23p 9.28p
7,00a 6.30a Brandon 8,20p 7,00p
PORTAGE LÁ PRAIRIE BRANCH.
Lv. Arr.
4,45 p.m VVinnipeg ' 12.55 p.m.
7,30 p.m Port la Pra’rie 9.30 a.m.
C. S. EEE, H. SWINFORD,
Fen.Pass.Ag.,St.Paul. Gen.Ag.,Wpg,
nýbúinn að fá miklar byrgðir af allskonar fatnaði, sem ég hefi keypt með
afarlágu verði. Það borgar sig fyrir alla að koma og skoða vörurnar,
enginn getur boðið betri kjör en ég.
Wm. Conlan,
Canton, N. Dak.
S. W. flINTHORN,
L Y F S A LI,
CANTON, - - - N. DAK.
Læknaforskriftir afgreiddar með mestu nákvæmni.
Komið til okkar þegar þið þurfið á meðölum að halda.
ur. b. við eruín að losa okkur við það sem við hötum af hnífum og
borðbúnaði, og seljum það fyrir neðan innkaupsverð.
Mrs. Q. Glassgow, '
Cavalier, - - N. Dak.
Hefir nú fylt búð slna af vörum
fyrir haustverzlunina, og selur
HATTA,
HÚFUR,
FJAÐRIR,
ULLARVARNING,
ogallskonar KVENNSKRAUT með
svo lágu vérði að þið hljótið að kaupa
ef þið komið og skoðið varninginn.
Komið við, — það kostar ekkert,
ADAMS BRO’S
oaanaaa3l,i:e_r, ist. uaajs:
Verzla með harðvöru af öllum tegundum, tinvöru, eldavélar og hitunarvélar,
Þakplötur úr járni og blikki, mál af öllum litum, olíu og rúðugler
og afian þann varning sem seldur er í harðvörubúðum.
Leiðin liggur fram bjá búðardyrunum, — komið við.
ADAMS BROTHERS,
CAVALIER, N. DAK.
J. P. SHAHANE,
BACKOO, X. DAK.
Ilefir beztu IIARÐVÖRUBÚÐINA í Pembina County, og mælist til þess
að Islendingar skoði varning sinn svo að þeir geti sannfærst um
að þeir fái hvergi annarsstaðar betri kjörkaup.
Munið eftir að koma við hvort sem þér kaupið eða kaupið ekki.
BACKOO, S. DAK.
T“
— 20 —
þeir náðu mér. Það er mark fsem allir Indíánar
í Andesfjöllunum þekkja. Ef að það hefði ekki
verið, þá mundi ég —”,
Hann þagnaði og leit spyrjandi í augu
Eords.
"Þá mundir þú, hvað?” spurði Ford.
“Þá mundi ég snúa aftur og ná þessum
týndu auðæfum Incaanna”.
Nú færði Fitch sig nær honum,
“Sjáðu nú til”, mælti hann með áhuga mikl-
um, “Mundir þúleggja það á hættu, ef að hægt
væri að gera við merkið svo að enginn sæi það?”
“Getið þið það, herra rainn?” sþurði Spán-
verjinn með undrandi augum.
“Ég held það”, mælti prangarinn. “Ég
hefi einhversstaðar grútarmál í plöggum mín-
um, sem leikarar brúka. Ég hefi sitt af
hverju, Ég held íú) ég geti málað þig svoað
móðir þín mundi ekki þekkja þig !”
“Ef að þér gætuð það. herra minn----”,
Rodrigeus leifnú til yngri mannanna beggja
að sjá hvernig þeim litist á þetta.
“Ætlið þér að fara allir þrír ?” spurði hann.
“Það er nóg harula öllum og meira en það. En
það erhættulegt. Dauðinn bíður manns þar
ekki einungis af hendi hinna viltu manna heldur
einnig í strengjunum, á hinum straumhörðu ám,
sem við þurfum yfir að fara, áhengiflugum þeim
sem vérþurfum að klifrast um. En launin —
bugsið um launín! Meiri auðæfi en yður hefir
nokkurn tíma dreymt um, herrar mínir ! Viljið
þór fara ?”
— 21 —
3. KAFLI.
Voðalegur atburður.
Þoir Keeth og Ford litu spyrjandi hvor á
annan. Virtist hinum tíðarnefnda æfintýri það
sem Spánverjinn stakk upp á lokkandi mjög, en
fyrir Keeth var það freistni mikil, þessi mögu-
leikí að finna auðæfi þau, sem Rodrigues sagðist
séð hafa, og Keeth sjálfur, að eins vélasmíður,
sem var að berjast i gegnum heiminn.
Reyndar var saga Spánverjans ýkjuleg, —
virtist jafnvel ómöguleg á iþessum tímum, árið
1890 ogmeira. En Rodrigues leit út sem ærleg-
ur maður, Saga hans var sennileg og sterkasta
sönnunin voru gullstykkin, sem þeir sáu. Það
var ekkert áfátt við þau.
Keeth rétti fram hendina og tók í hönd Ro-
drigues.
“Ég fer með þér”, mælti hann. “Hér er
hönd mín tíl staðfestu”.
“Og þið, herrar mínir?” spurði Spánverjinn
og sneri sér að Kinsale og prangaranum, sem
var æstur mjög.
“Ef að Keeth vill hætta á það, þá skal ég
gera það”, sagði Ford,.
“Og hvað mig snertir”, sagði Lundúnamað-
urinn og þurkaði ákaft svitann framan úr sér
með silkiklútnum, “Þá munuð þið aldrei geta
losnað við mig. Bob Fitch sleppir aldrei tæki-
færinu að verða ríkur, vona ég”.
— 24 —
setja á kinnar hans, En þegar alt var búið leit
það allvel út.
“Eg skal ábyrgjast að enginn Indíáanna
skal þekkja þig, herra minn”, sagði Fitch á-
nægjulega. Þú verður að eins að gæta þess að
þvo þér ekki í framan. Annanhvern dag þarf
að mála þig upp aftur”.
“Jæja, höldum þá áfram”, sagði Keeth.
“Hvernig líður yður.herra Rodrigues?Haldið þér
að þér getið fylgzt með, ef að þér styðjist við
handlegg minn ?”
“Já, það held ég”, sagði Spánverjinn. “Lát-
ið mig reyna”.
Hann reis á fætur og þó að hann væri ó-
styrkur í fyrstu, þá gekk hann samt nokkurn-
veginn með því að Keeth leiddi hann,
“Rektu forustudýrið á stað, herra Kinsale”,
mælti Fitch; “sláið þér í það, ég vona að þetta
verði seinasta rverzlunarferðin, sem Bob Fitch
nokkurntíma fer”.
‘ Gerðu þér ekki of góðar vonir”. sagði Ford
hlægjandi, “því að vonbrygðin verða þá því sár-
ari, ef að við finnum ekki fjársjóðinn !”
“Verið ekki að örvænta, herra minn”, sagði
prangarinn. “Ef að gull er í hæðunum þarna
líkt og það sem herra Rodrigues sýndi okkur, þá
ætla ég aðná mínum hluta; verið þið vissir um
það!”
Innan stundar komu þeir llamadýrunum á
stað eftir stignum. Var Fitch í fararbroddi, en
Spánverjinn á eftir og studdist við handlegg
Keeths og haltraði þannig áfram áleiðis til
Hualpa. Náðu þeir þangað um kvöldið. Ekki
— 17 —
skyldu allir vita að ég hefði sloppið úr höndum
þeirra. Það er merki—já, líklega bending, hver
veit, til allra Indíána að drepa mig”.
Aheyrendur jhans litu forvitnislega hver á
annan.
“Skýrðu það betur”, sagði Keeth. "Þetta
sem þú segir er alt gátafyrir okkur”.
Spánverjinn dreyfti aftur á víninu og færðist
þá roði í andlit hans.
“Ef að þú krefst þess, herra minn”, sagði
hann alvarlega, “þá skal ég segja þér það. Þú
hefir bjargað lífl mínu, Og það er alveg sann-
gjarnt að þú vitir sögu mína”.
“Haltu áfram”, sagðí foringinn og var að
fylla pípu sína. “Þetta er sú skrítnasta byrjun
sem ég hefi heyrt”.
"Vitið þá”, sagði Spánverjinn, “að i 3 ár hefi
ég verið bandingi hjá Indíánaflokki einum marg-
ar milur hór fyrir norðan, — hjá Indíánum, sem
eru eins ólíkir þessum aumu skepnumá strönd-
inni sem Ijós er myrkri!”
“Hveruig lízt þér á þetta, Fitch?” spurði
Ford Kinsale.
“Þegi þú Ford!” sagði Keeth, “lofa þú
herra Rodrigues að segja sögu sína”.
“Mér hefir æfinlega þótt gaman að æfintýr-
um. herrar mínir”, sagði Spánverjinn. ‘F.g var
á veiðum með einn fylgdarmann hátt uppi í An-
desfjöllunum. Réðist þá á okkur flokkur mik-
ill af villimönnum þessum. Fjdgdarmaður minn
var drepinn og og tekinn höndum. í þrjú ár
heti ég lifað hjá jieim”,
'Herrar mínir, þeir eru ótamdir, eins hei ská-