Heimskringla - 02.12.1897, Síða 1
V W I «f
neimskringla.
XII. ÁR WINNIPEG, MANITOBA, 2. DESEMBER 1897. NR. 8
F R É T T I R.
Ctmada.
Lieut. R, E, Peary er nýfarinn til
Englands og ætlar að halda fyrirlestra
fyrir konunglega landafræðisfélaginu í
London.og skozka landafræðisfélaginu í
Edinborg. Þegar því er lokið fer hann
til Noregs, til að skoða selyeiðaskip
Norðmanna ðg grenslast eftir hvort
þau séu hæf til heimskautafarar.
Dominionstjórnin getur ekki geng-
ið inn á tilmæli Bandarikjanna um að
hætta við selaveiði í Behringssundinu
um eitt ár, án þess að fá til þess sam-
þykki hrezku stjórnarinnar, enda muni
hún ekki kæra sig nm það nema með
svo feldu móti að Bandaríkin vilji gera
Canada einhvern greiða fyrir, t. d. taka
toll af ýmsum vörum, svo sem timbri,
kolum og fleiru.
Eitt af því allra þýðingarmesta, er
gerðist í Washington á selaveiðamáls-
fundinum um daginn, og ekki hefir
verið opinberað fyr en nú, er það, að ef
Bretar og Canadamenn ganga inn á að
hætta selaveiðum á hafi úti í Behrings-
sundinu um eitt ár, þá skuli Bandarík-
in hætta að slátra selnum á landi á
Prehiloff eyjunni, sem liggur í sundinu
og er eign þeirra. Bandarikin hafa
hingað til verið að reyna að koma í veg
fyrir selaveiðar á sæ úti, en Canada-
menn hafa sagt að það væri ósann-
gjarnt að biðja sig að hætta selaveiðum
úti á rúmsjó, en leyfa Bandaríkjaborg-
urum að veiða óhindrað á landi. Þetta
hafa umboðsmenn Bandaríkjanna við-
urkent nú, og var úr því komið með þá
nppástungu, að hætt væri við selveiðar
bæði á landi og sjó um eitt ár. Ef Ca-
nada gengur að þessu nú, þá eru likur
til að samþykt þess efnis komist i gegn
innan skamms, og er það samkvæmt
tillögum Parisarþingsins, sem henti á
að það væri heppilegt að selveiðum í
Behringssundinu væri hætt um tíma.
til að koma í veg fyrir eyðileggingu
selsins.
Bandarikin.
Nú er veri^í undirhúningi með að
byggja þrjú stórskip, sem eiga aðganga
eftir stórvötnunum. Þau verða bygð í
Bay City, Mich. og eigandi þeirra er
John D. Rockafeller. Eitt af skipun-
um á að vera gufuskip, og verður það
475 feta langt, 50 feta breitt og 29 feta
djúft, og tekur 6500 tons. Hitt eru
‘barðar’, sem taka 7000 tons. Þessi
skip verða á borð við stærstu hafskip.
Fréttir frá Washington S segja að
kröfur Japaníta á hendur Hawaii verði
að líkindum borgaðar, og að samkomu-
lagið verði framvegis betrá en þaðhefir
verið. Krafa Japaníta er $200,000’
Irsk félög í Bandaiíkjunum hafa
sont bænarskrá til efri deildar þingsins
1 Washington um það, að gera ekki
samning við England um að leggja öll
þrætumál sín í gerð. Hvort bænarsly á
þessi verður tekin til greina er óvíst, en
ólíklegt þykir það.
Tuttugu og fimm gullnemar frá
Dawson City komu til Seattle hinn 29.
f. m., og segja að eftir núverandi útliti
að dæma verði þar hungursneyð í vet-
ur, því fólk sé alt af að flykkjast þang-
að, en hafi litil matvæli með sér.
Á fjórum stöðum í Bandarikjunum
voru menn líflátnir án dóms og laga
hinn 28. f, m. í Southport, N. C., Dub
lin, Ga.. Montgomery, Ala., og Starke.
Ela. Þesskonar viðburðir væru betur
sjaldgæfari.
Það er álitið að forseti Bandarikj-
anna muni gefa þinginu bendingu um
það, í ávarpi sínu til þess, þegar það
kemur saman, að það sé ekki tiihlýði-
Iegt, að Bandaríkin geri nokkuð í því
að viðurkenna uppreistatmennina á
Cúba sem þjóð, meðan Spánverjar séu
að reyna að Koma á þeim umbótnm
sem þeir hafa nú iofað. Og þar éð
Bandaríkja borgarar sem setið liaf-t í
fangelsi á Cúba, hafa nú verið leystir
þaðan, þá álítur harm að Bandaríkin
hafi enga ástæðu til að skifta sér af
Cúba í því skyni að vernda sína eigin
borgara.
Utlond.
General Blanso, á Cuba, hefir hótað
spönsku stjórninni að segja af sér, ef
hún haldi < kki áfrain með stjórnarum-
breturnar fyrir Cúba, og ef hún hefir
þær ekki eins frjálslegar eins og hún lot-
aöist tii í fyrstu.
Pjarska mikill stormur gekk j'Sr
brezku eyjarnar á mánudagimi v t'. og
fórst í honuin fjoidi skipa baiði við land
og á sæ úti, en hús og munir á landi
skemdust víða mjög mikið. Fjöldi
líka hefirrekið á land áýmsum stöðum.
Það er sagt að þ -tta veður sé eitt hið
versta sem komið hefir um mörg ár.
Frá löndum
Eftirfylgjandi fréttabréf barst oss
of seint til að geta birt það í síðasta bl.
Mountain, N. D., 22. nóv.
Tíðin hefir verið hin ákjósanlegasta
það sem af er haustinu. Heilsufar einn-
ig gott. Þeirra fáu sem dáið hafa heflr
áður verið getið í íslenzku blöðunum.
NokKrir liafa nýleva gift sig. Þeir
sem eru í þessum parti bygðarinnar. og
vér munum eftir, eru : Þorsteinn Ind-
riðason og Miss Þorbjörg S. Söivason,
B. B. Halldórsson og Miss Lilja Sölva-
son, Ch. S. Christianson og Miss Ólafía
Bjarnason, John Borgfjörð og Miss
Martha Johnson.
Thingvall Lodge No. 25 of the A. O.
U. W., hefir ákveðið að stofna til skemti-
samkomu seint í þessum mánuði. Ekk-
ert verður sparað til að fræða fólkiö og
skemta því.
Þann 18. þ. m. var haldinn trúmála-
fundur í kyrkjunni á Mountain. Um-
ræðuefnið var : “Hvaða þýðingu hefir
það að standa i kristnum söfnuði.” Á
undan fundinum var messa og prédikaði
Séra Jón Bjarnason. Að þvi búnu var
fundarstjóri kosinn S. J. Sigfússon, sem
er forseti safnaðarins. Að svo búnu
var tekið til óspiltra málanna, og tóku
allir prestarnir, sem á fundinum voru,
þátt í umræðunum (Jón Bjarnason, F.
J. Bergman, N. S. Þorláksson, J. A.
Sigurðsson og J. Clemens). Þeim kom
öllum dásamlega vel saman, og komust
að þeirri niðurstöðu, aö aðalástæðurnar
fyrir því hve margir ekki vildu ganga i
söfnuðina, væru : guðleysi, “meanness”
eins og séra Jón Bjarnason komst að
orði, heimska, skilningsleysi, sumir
horfðu í kostnaðinn sem það hefði í för
með sér að standa í söfnuði, o. s. frv.
Þrir safnaðarmenn tóku þátt í umræð-
unum, og gamli Einar Jochumsson.
Fundurinn var illa sóttur, jafnvel þó
veðrið væri mjög gott. Engir höfðu
umvenst það vér til vitum.
Séra M. J. Skaptason hefir auglýst
að hanu ætii að flytja fyrirlesturí skóla-
húsinu á Mountain þann 25. þ.m. og
að frjálsar umræður verði á eftir út af
efni fyrirlestursins, sem er: Hvað er
rétt ?
Ritstjóri Sigtryggur Jónasson er
hér á ferðinni í fylgd með iirestuuum.
GEYSIR, MAN„ 22. NÓV. 1897.
(Frá fréttaritara Hkr.).
Herra ritstj. Hhr.:
Héðan er alt bærilegt að frétta. —
Haustið hefir verið hiö langhezta, sem
menn muna eftir, og gátu allir hér í
bygð náð upp nægum heyjum, þó bágt
útlit væri með það i sumar, sökum
vatnsins, sem lá svo lengi á engjum
manna; margir voru við beyskap langt
fi am í Sept. Flestir iengu hér góðá
uppskeru af kartöflum og ýinsum garð-
ávöxtum, en korntegundir voru rýrar.
Gripakaupmenn hafa verið hér á
ferð í [haust og hafa menn selt þeim
töluvert af nautgripum, og peningar
því komið inn í bygðina með meiia
móti. En heldur hefir bændum þótt
þeir gefa litið fyrir gripina.
I vor unnu bygðarmenn kappsam-
lega að því að hreinsa rusl og undirvið
af hökkum Islendingafljótsins, og með
því reynt að fyrirbyggja að fljótið
flæddi yfir bakka sina hér í bygðinni,
sem svo oft hefir átt sér stað undanfar-
in nokkur ár. Fylkisstjóruiu lagði
fram rúma tvö liundruð og sextíu doll-
ara til þessa fyrirtækis, en bændur
gáfu vinnu, sem nam annari eins upp-
hæð. En þó verk það sem unnið var
hér við fljótið í vor, geri mjög mikið
gagn, þá vantar þó enn mikið á að fram
rás fljótsins sé nægilega greið.
Spunarokkar!
Spunarokkar!
Spunarokkar
eftir hinn mikla rokkasmið Jón sá..
Ivarsson. sem að öllu óskaplausu smíd-
ar ekki fleiri rokka í þessum heimi.
Verð : $3 Oi), með áföstum snældu-
stól $3,25. Fást hjá
Ennfremur hefi ég norska ullar-
kamba sem eiidast uui aldur og æfl ef
þeir ern ekki of mikið bi úknðir. Þeir
kosta einungis einn dollar.
Þossir hafa kaniba til sölu fyrir mig:
tbephan Oliver, West Selkirk ; Tliorst.
Borgfj örð, Geysir; Thorst. Thoiarinsou,
í Buð A. Friðrikssonar, Winnipeg. —
Aient.t vantar alstaðar hévnamegin a
þessum hnetti.
G. Sveinssyni,
1‘R H'ggen 3tr.. Wiimipeg. .
VICTORIA, B. C., 9. NÓV. 1897.
Herra ritstj. Heimskringlu.
Ég er yður innilega þakklátur fyrir
Hkr., þ. e. fyrir dugnað yðar í þyí að
drífa hana á fætur aftur. Mér lízt vel á
þau þrjú nr. sem út eru komin af henni
Ræða yðar um ísland er t. d. ágætlega
góð. Það gladdi mig mikið að lesa hana
ekki hvað sízt fyrir það. að það er svo
sjaldgæft að heyr.i Vestur íslending
tala af nokkru viti, nokkurri sanngirni
um ættland sitt, þó undarlegt megi
virðast. — Jæja vinur, ég er ánægður
með það sem komið er af blaðinu og von-
asÞ eftir að ég hafi ætið ástæðu til að
veia það á meðan það er undir yðar rit-
stjórn. Eg óska því bæði yður og blað-
inu langra og góðra lífdaga.
Með þessu bréfi sendi ég yður nokkr-
ar stökur sem ég hefði gaman af að þér
settuð í blaðið. Með þvi að vísur þeírra
Páls Ólafssonar og Jóns vöktu eftirtekt
hefi ég tekið þær með.
Blaðavísur.
Við fregnina um fall Heimskringlu.
I.
Efni hrygðar er það stórt,
Um það flestum semur,
Að hún “Kringla'’ ei gat tórt
Ymsum blöðum fremur.
Margt þó finna mætti að
Mörgu’ er stóð í henni.
Vestur islenzkt betra hlað
Bauðst ei, svo ég kenni.
Jóh. Asg. J, Liudal.
II.
Trúanlegt ei tek ég það,
Til svo hafi gengið,
Heimskringlu að hinsta blað
Höfum, Lindal, fengið.
Lengist dagur drengjum hjá,
Dvínar Þstrarþráin ;
Aðeins Lögberg eitt þeir fá
Af því “Kringla” er dáin !
Magn. 8. Olson.
ENDURREISN HEIMSKRINGLU.
I.
“Kringlan” nýja komin er,
Kætast fríhyggjendur,*
Menta því hún merki ber,
Margra í skal hendur.**
i
Endurborið ágætt blað
Andrikt þori stríða,
Frama sporin feti það
Frjálst sem vorið blíða.
Jíh. Asg. J, Lindal.
II.
Eftir dvalann afstaðinn
Upprís valin "Kringla”,
Um menning talar margbrotin,
Mönnum skal því velkomin.
Þörf á blaði þessu er,
Því að hvaðanæva
Lygaslaður Lögberg her,
Og löngum það í skammir fer.
Magn. 8. Olson.
DAGSBRÚN.
(Blað séra M. J. Skaftasonar.)***
Dagshrún er dágott blað,
Drengilegt, vel ritað,
Frjálslynd og fróð.
Sannleikans leitar hún,
Lokar þótt ygli brún ;
Rýnir í forna rún,
Röksemda góð.
Jóh. Asg. J. Lindal.
FERHENDUMÁL.
s p Á.
(Eftir Bjarka.)
Þegar min er brostin brá,
Og búið er Grím að heygja,
Og Þo*steinn líka fallinn frá,
Ferhendurnar devja.
Páll ÓUtfssort.
GAGNSPÁ.
(Eftir Dagskrá)
Þó að Páli bresti brá
Og bi!i Grím að skrifa,
Og Þorsteinn lika falli frá,
Feihendurnar lifa.
Ol. J. Berysson.
ÖNNUR GAGNSPÁ.
(Eftir íslandi.)
Alt af meðan íslenzkt raál
Ý tar tala og ski ifa,
Fyrðar muna "frater” Pál,
Og ferhendurnar lifa.
Jón Ölafssun.
FJÓRÐA GAGNSPÁ.
Þegar Páls er þakin brá,
Og þrotinn Jón að skrifa,
Fyrðar munu fullvel sjá
Að ferliendurnar lifa.
M. 8. Ólson.
SÖGN EN EIGl SPÁ.
Það er sögn en þeygi spá,
Þrjóti Grím að skrifa,
Páll og Þorsteinn falli frá,
Feihendurnar lila,
Sigf. 8. Ouðmundsson.
*) Héi’ er þetta orð brúkað yfir frjáls-
hugsandi menn yflrleitt.
**) Sbr. “Inn a hvert heimili.”
***) Það þarf líkl. ekki að taka það
fram, að þetta erindi var kveðið
um Dbr. i lifanda líti.
VERÐUR EIGI SÉÐ FYRIR.
Þó að Pál og Þorstein með
Þjóðin döpur heygi,
Fær það engínn fyrir séð,
Að ferhendurnar deyji.
ENGINN EFI.
Um það skáldin ýmsu spá
Óðs í fögru skrifi.
Vissir inenn nær falli frá
Ferhendur hvort lifi.
Samt með vissu vita má
—Vart !>arf á því klifa—
Vér þó allir föllum frá,
Ferhendurnar lifa.
Jóh. Asg. J. Lindal.
ÞJÓÐVILJPNN UNGI.
(Blað Skúla Thoroddsens.)
Ja, Þjóðviljinn er allra hezta blað,
Bæði að stefnu, efni formi og prenti,
Við fólk og stjórn hann finnur hik-
laust að,
Os frjáls í anda segir hvað bezt henti.
Hann vaxa þarf og verða stærsta blað,
Sem verið hefir nokkurn tíma’ á Fróni
Svo þjóðarviljinn því meir komizt að,
Er þræðir veginn lagðan fyr af Jóni.
J. A. J. Lindal.
Dálítil athugagrein.
Erindi þetta um Þjóðv. er ort löngu
áður en hinir Ijómandi fallegu “Þrí-
lembingar, Vagskrd, Bjarki, og ísland,
fæddust. Og þó að ósk mín að því er
vöxt Þjóðv. snertir, hafi tnn ekki ræzt,
þá samt gleður það mig að sja að einmitt
það blaðið á íslandi, (Dagskrá), sem
heldur fram sömu stefnu í stjórnmálum
og Þjóðviljinn Ungi hefir gert, eða með
öðrum orðum, stefnu Jóns forseta Sig-
urðssonar, skuli nú hafa náð því þro^ka-
stigi, þó að það sé barn að aldri.að vera
orðið hið “stærsta blað sem verið hefir
nokkurn tima á Fróni,” þvi að ég—sem
"með vaxandi áhuga, undrun og kær-
leika hefi fylgst með, og tekið eftir hin-
um 8tórstígu framförum”, sem orðið
hafa á ættjörð minni á þeim tíu árum
sem liðin eru síðan ég flanaði hrott frá
henni, í þessa vesturheirfsku, ömurlegu
útlegð,—ég álít þá stefnu hina lang-
heppilegustu og skynsamlegustu, sem
tekin verður í sjálfstjórnarbasáttu ís-
lendinga við Dani, því að algerður
stjórnmálalegur aðskilnaður við Dan-
mörku, sem að flestöllu leyti væri hið
langbezta, get ég als ekki ímyndað mér
að fengízt fremter. heldur miklu síðvr, tín
samþykt á sjálfstjornarkröfum þeirai
sem komið hafa fram í stjórnárskrár-
frumv. síðustu þinga. En aðrir þjóð-
vegir, að því er ísl. stjórnfrelsis-barátt-
una snertir, en þessir tveir eru að mínu
áliti ekki til; hitt eru altsaman ófærar
forar og villigötur. Og hörmulegt er til
þess að vita, að mikill fjöldi af þjóð-
kjörnu þingmönnunum skuli nú orðið
riða gandreið eftir þessum viðsjálu villi-
götum, þ.e. að þeir skuli hringla stefnu-
laust fram og aftur í þessu afar-þýðing
armikla þjóðmáli,—sjálfstjórnarmálinu.
sjálfum sér. þinginu og þjóðinni í heild
sinni til ómetanlegs skaða og skammar,
í staðinn fyrir að allir þjóðfulltrúarnir
ættu ætíð að standa saman í einni órjúf-
anlegri fylkingu, og berjast með sam-
heldn', einlægni og einurð, drengskap
og dáð fyrir frelsi föðurlandsins, móti
hinum þrællyndu og forhertu fjand-
mönuum hinnar islenzku þjóðar.
• ,
J. Á. J. Lindal
FRÁ GIMLI.
Á laugardaginn var átti að halda
fundá Gim)i til að semja bænarskrá til
Dominionstjórnarinnar um að láta gera
bryggju á Gimli; til að ræða um járn-
brautarmálið, sem Ný.íslendingar virð
ast nú farnir fyrir alvöru að hugsa um;
og til að ræða um sveitarstjórnarkosn-
ingar i 1 kjördeild (Víðinesbygð). Um
þáð hvernig farið hetir með þessi mál á
fundinum höfum vér enn ekki frért.
AUGLYSING.
Winnipeg, Nóv, 23., 1897.
A. R, McNICHOL,
Manager of the Mutual Reserve
Fund Life Assocíation,
Wiunipeg, Man,
Kæri herra :—
Hér með votta ég mitt innilegasta
þakklæti til Aíutual Reserve, fyrir um-
yrðalaus og fljót skil á lífsábyrgð mans-
ins míns sáluga. Jónasar Guðmunds-
sonar, samkvæmt lífsábyrgðarskírteini
hans No. 142t70, og enn fremur fyrir að
borga $100 af upphæðinni fáum dögum
eftir andlát hans, þegar mér lá mest á
hjálp. Nú hefi ég meðtekið alla upphæð-
ina $1000. gegnum umboðsniann yðar,
hr. Ch. Ólafsson, áður en hún féll i
gjalddaga samkvæmt reglum félagsins.
Meðkærri þökk til yðar og félagsins í
heild simii, er ég yðar einlæg
.Margrét Guðmundson.
P. S. Ef Jónasheitinn Guðmunds-
son hefði keyptlífsábyrgð í ‘Old System’
félagi og borgað sönni uprhæð og liann
borgaði til Mutual Reserve, þá hefdi
ekkja tians fringið »ð eins $550. í siaðinn
fyrir $1000. Agóði víð nð !,afa 1 fsá-
bvrgði Mutua.1 Reserve $450.
Vill nokkur kaupa hlut fyrir $2, sém
hann getur fergið fyrir$l 7
Til kjósendanna í
Ward 4.
Þar sem sá timi er í nánd. sem
menn á hverju ári útvelja hæfa og við-
eigandi menn, til þess að starfa í stjórn-
arnefnd þessa bæjar, fyrir sitt kjör
dæmi, þá viljum við grípa þetta tæki
færi, til þess að draga athygli yðar að
þeim manni. sem með sinni löngu
veru i bænum og áhuga þeim sem hann
hefir sýnt. fvrir einu og sérhverju vel-
ferðarmáli þessa hæjar, ætti að eiga
sjálfsagt fýlgi yðar og aðstoð við næstu
bæjarkosningar.
Mr. William Small er vel þektur í
Winnipeg sem óþreytandi mótstöðu-
maður alls ranglætis og óþreytamy
meðhaldsmaður sparsemi og dugnaðar í
stjórnarstörfum bæjarins. Við hikum
því ekkert við að færa nafn hans fram-
fyrir kjósendurna i Ward 4, vissir um
að kosning hans þýðir — að svo miklu
leyti sem hann getur að gert —. áhuga-
sama og heiðyirða lúkning starfa síns;
að auki. að við þá höfum í bæjarráðinu
mann, sem er fær um að framkvæma
alt sem honum her sem umboðsmaður
ykkar, ykkur til sóma og bænum til
hagnaðar.
Gleymið því ekki, að í næstu tvö ár
verður varið stórfé fr4 bæjarstjórnar-
innar hendi fyrir alskonar endurbætur í
bænum, og svo til þess að útbúa vatDS-
leiðslu fyrir bæinn. Það er þess vegna
skylda fyrir hvern kjósanda. að vita
hvað hver umsækjandi álítur viðvíkj
þessu stærsta velferðarmáli bæjarins.
áður enn hann lofar aðstod sínni og
fylgi við i hönd farandi kosningar.
Við alítum að umboðsmaður ykkar
í bæjarstjói ninni ætti að vera maður.
sem væri útvalinn af ykkur sjálfum, en
ekki sá sem væri útvalinn af þeim sem
hefðu sérstakan hagnað af kosningu
hans.
Jacob Bye.
Settur Nefndarformaður.
Til kjóyenda í
Ward 4.
W. J. Hinman er ákveðin í að sækja
sem bæjarráðsfulltrúi i Waid 4, og mæl
ist til þess að kjósendur gefi sér atkv.
Hann er með því að nýja vatnsleiðslan
sem talað hefir verið um að undanförnu
að bærinn léti gera, nái framgangi; að
bærinn sjálfur láti vinna verkið og
borgi verkamönnum kaup eftir taxta
verkamannafélagsias hér (Union rate),
en láti ekki verkið í hendur á “contrac-
tors”. Hann er á móti þvi einnig, að
skattar séu lagðir á menn eftir því gólf-
rúmi sem menn nota, þar eð það sé ó-
réttlátt að láta þann -sem þarí stórt
rúm fyrir arðlitla atvinnu borga meira
en þann, sem þarf að eins lítið rúm fyr-
ir dýra muni og arðberandi verzlun eða
atvinnn. Þetta álítur hann mikla þörf
á að lagfæra. og segist skuli gera sér far
um að það verði gert,
Hann álítur að bærinn eigi sjálfur
að eiga þau vatnsleiðsluáhöld, sem
hann þarf, ljósaáhöld og annað því um
likt, og að engin bæjarverk ættu að lát-
ast í heiid ir á “Contractors”.
Kjósendur; munið eftir þessu þegar
að kosningunum kemur. og kjósið.
W. J. HINMAN.
Heildsala og’ smásala á
TÓBAKI, VINDLUM,
TOBAKSPÍPUM O.FL.
Við höfnm þær mestu vörubyrgðir
fyrir Jólaverzlunina, og alt íyrir
samiyjarnt verð. Komið inn og tal-
ið við okkur.
W. BROWM
CO
541 Main Str. Wmnipeg.
Dr. N. J. Crawford
PHYCICIAN AND
SURGEON ....
462MainSt„ Winnipeg, Man.
Ofiice Hours frora 2 to 6 p.m.
Verzlunin
sem stöðugt eykst. hlýtur að haf
eitthvað við sig. Við óskum efti
verzlun þinni af því við kaupum
fyrir peninga út í hönd, og seljum
fyrir peninga út í hönd, og seljum
fyrir nið lægsta mögulega verð —
í Sparið peninga yðar og kaupið
STÍGVÉL, SKÓ, VETLINGA,
VETLINGA. HANSKA, MOCCA-
SINS, YFIRSKÓ, KISTUR, — hjá
FAJH EY,
558 Hlain street.
Ný fólksílutninga-lÍDa
FRÁ *
IcelaiÉ RiTer.
Fólksflutningasleði þessi fer fyrstu
ferð sína frá VVinnipeg mánndaginn 29.
þ.m„ kl. 1 e.h„ og kemur til Icel. River
kl. 5 næsta miðvikudag. Fer frá Icel.
River á föstudaginn kl. 8 f.h. og kemur
til Winnipeg á sunnudaginn kl. 1, og
verður þannig hagað ferðum til loka
Marzmánaðar næstkomandi.
Allur aðbúnaður verður í bezta lagi
og að mörgu leyti endurbættur frá því
sem fólk hefir átt að venjast áður. Tó-
baksreykingar og víndrykkja verður
ekki leyfð í sleðanum, og þarf því kven-
‘fólk ekki að kvíða því að það veikist af
þeim orsökum, eins og átt hefir sér stað
að undanförnu. Einnig er keyrarinn
algerður bindindismaður, sem er afar-
nauðsynlegt, til þess að hann geti haft
alla gætni og góða stjórn á hestúrmm.
Þessi sleði verður einkar vel stöðugur,
þar eð öll yfirbyggingin verður úr mál-
uðum striga, sem gerir hann léttann að
ofan. Farangur allur verður ábyrgstur
fyrir skemdum og engin borgun tekin
fyrir töskur sem vega ekki yfir 25 pd.
Fargjald verður mjög sanngjarnt. Far-
þegjar verða fiuttir frá og til heimila
sinna í Winnipeg.
Þetta er eign íslendings, og er það
í fyrsta skifti.með svo góðum útoúnaöi.
Nánari upplýsingar verða gefnar
hjá Mrs. Smith 410 Ross Ave„ eða hjá
Mr. Duffield, 181 James Str.. þar sem
hestarnir verða geymdir.
Signrður Th. Kristjánsson,
Keyrari.
Þegar þið þurflð að
kaupa fatnað og alt
sem að fatnaði lýtur
þá komið þið við í
Winnipeg
Glothing Houss,
beint á móti Brunstvick Hotelinu.
Þar ftnnið þið - - - -
Mr. D. W. Fleury,
Sem síðustu sex ár hefir verzlað
THE BLUE STORE.
Hann getur selt ykkur karlmanna
og drengja klæðnaði, hatla, aúfar
grávöru og margt íleira.
Munið eftir nútnerinu
Næstu dyr ft'rir norðan W. Weiband,
D. W. Fleury
J~Muttur
, Eg grip þetta tækifæri til að hai a
íslendinEuin i Winnipeg fyrir iii b f ,-
in verzlunarviðskifti, og um leið 1 a • í
vita, að ée ev nú tiuttur f stærri búð. , )
698 Main 3t.
Næsta búð íyrir norða Man«i .Hotcl.
Ég tel mét það til heiðurs “f þ'ð \ ii-jD
koinn inn og tala við inig. Ég !i *" .1
mik! ir ovi gðirnf karlmamiak! , ifi,
og alt með sam lága verði eins > ■ uv,
Munið eftir staðnum —
698 Hain St.
r