Heimskringla - 13.01.1898, Blaðsíða 3
HEIMSKRIN GLA, 13.JANUAR 1898
“Yerði ljós
Mánaðarrit fyrir kristindðm
og Ifristilesran fróðlelk. Út
gefendur Jón Helgason og
Sig. Pétursson. Rvík 1897.
Annaðhvort “Ljóssins faðir” eða
einhver önnur góð vera hefir sent oss
það sem út er komiðaf þessum árgangi.
Vér getum varla sagt að vér hefðum
séð rit þetta áður, nema hvað hinum j'f-
irlætislausa (?) titli hafði brugðið fyrir
augu vor að eins.
Vér höfum blaðað nokkuð í þessum
árgangi og lesið katía og kafla hér og
hvar, og höfum vér orðið að ýmsu fróð-
ari, en því miður engu kristnari eftir en
áður.
Vér ætlum nú ekki hér að gera alt
ritið að umtalsefni. heldur minnast lít-
ilsháttar einkum á síðasta tölublaðið og
minna svo á tilveru þessa rétt-trúnaðar
málgagns.
“Verði ljós” er auðsjáanlega ramt
rétt-trúnaðar málgagn ; er það sjálfsagt
kostur í þeirra augum sem sjálfir eru
strang-rótt-trúaðir á allar kreddur og
bókstafs-kristindóm, en þá ætlum vér
gerast sífelt færri og færri í landinu og
þykir oss það jafn-gleðilegt sem “V. 1.”
muni þykja það sorglegt. En það er nú
ekki nema eðlilegt, þar sem vér erum
annarar trúar.
Oss virðist “V. 1.” sverja sig að ýmsu
leyti í ætt við “Sameininguna” og
“Aldamót,” þótt þaðstandi þeim báðum
að baki að ofsafengni, og “Sameining-
unni” jafnframt að baki að rithagleik.
Að ytrí húningi er það all-álitlegt
fyrir augað að prentun og pappír, en
málið er óvandað, og er auðséð, að útg.
telja það ekki til syndanna að misbjóða
móðurmáli sínu.
Það þykir oss undarlegt, að “V. l.*>
skuli vera svo andstætt afnámi þjóð-
kyrkjunnar, og finst oss, satt að segja,
það vera alveg óskiljanlegt, ,því að eftir
allri stefnu blaðsins að öðru leyti, hefð-
um vér búist við þvi einmitt í broddi
fylkingar fríkyrkjumanna.
Nóvember-bl. “V. ljóss” flytur með-
al annars fróðlegar skýrslur um messu
föll og altarisgöngur hér á landi árið
1896. Sýna þær, að í helming allra
prestakalla landsins hefir verið messu-
fall annan hvern messudag ársins og
þar yfir. í 18 prestaköllum hafa messu-
föllin orðið 40 og þar yfir. Prófast finn-
um vér þar efstan á blaði, er ekki mess-
ar nema 6 sinnum á ári (54 messuföll).
Ekki vill útg. "V. 1.” kenna prest-
unum öll þessi messuföll, en hins vegar
sér hann að það er barnaskapur að
kenna (dauðu) náttúrunni (veðri, vindi,
vatnsföllum o.s.frv.) um þau öll. Verð
ur þá fyrir honum eftir sú ástæða, að
það sé söfnuðunum (eða áhugaleysi
þeirra) að kenna. En af hverju það
stafi—út í það fer hann ekki. í Grims-
ey hafa orðið 42 messuföll, ekki víðlend-
ari né örðugri en sú kyrkjusókn er. Dá-
gaman væri að vita, hvort þau hafa ekki
verið talsvert færri í tíð séra Péturs.
Ekki er það fremur i fátækustu
köllunum, þar sem guðsmennirnir eiga
við þrengstan kost að búa, að messu
föllin eru tíðust; það sést á því aði
Hjarðarholti í Dölum verða 54 messu
föll, i Vatnsfirði 51. á Sauðanesi 46,—
Að þeir sem mest eru kyrkjuljós, trúefl-
endur og kyrkjulegir endurbótamenn
kyrkjublöðunum, séekki ávalt spámenn
í sínu föðurlandi (sinni kyrkjusókn) má
marka af því að t. d. prófasturinn undir
Felli* fær 41 sinnum hvíld frá að messa
á einu ári.
Hyggur nú útgefandi “V. 1.” að
nokkur frikyrkjusöfnuður mundi lengi
*) Vér ritum hvorki Undornfell né
Undirfell (!), því að það er rangmæli.
Réttmæli er að segja : “séra Hjörleifur
undir Felli,” en ekki: “séra H. á Und-
irfelli,”
halda sem prest og launa honum sem
þeim prestum, sem bezt eru launaðir i
landinu, nokkurn þann mann.sem söfn-
uðurinn vildi ekki hlýða á meira en 6—8
sinnum á ári ?
Vér erum ekki alveg eins vissir um
það eins og útg. “V. 1.” að það sé nær
ávalt að kenna trúardeyfð safnaðanna
hve mörg verða messuföllin. Ef t. d.
sálusorgarinn er voðalegur pokaprestur,
þá virðist oss það lýsa rneiri trúaráhnga
hjá sóknarbörnum að lesa í heimahús-
um góðau húslestur í Pálspostiílu. held-
ur en að misbjóða sjáifum sér með því
að sitja undir bullinu úr pokanum.—
Hitt mun fágætara, að trúheitan og
andríkan kennimann skorti að öllum
jafnaði tilheyrendur, þó vér vilium ekk'
synja fyrir að það eigi sér þó stundum
stað.
Einkennilegt er það, að með þrem
undantekningum er svo að sjá á skýrsl
unum sem altarisgöngur sé hvað al-
mennastar í þeim söfnuðum. þar sem
sjaldnast er messað. Getur það verið
vottur um eitt af tvehnu : annaðhvort
um það, að safnaðarmenn eru trúmenn
þrátt fyrir það, þótt þeim þyki ekki
hlýðandi á messur prests síns ; eða þá
hitt, að vanakristindómur getur verið
býsna ríkur hjá þeim, sem annars ekki
hirða um helgar tíðir.
I 12 prestaköllum landsins var þetta
ár engin sál til altaris, hvorki. prestur
né fermingarbörn, og í 5 prestaköllum
voru frá 1 til 5 til altaris.
Og í einum þrettán af öllum presta-
köllum landsins hefir svo mikið sem
heliningur fólks á altarisgöngu aldri
verið til altaris. Hér í Rvík, þar sem
útg. “V.l.” er aðstoðar sálusorgari, hafa
af 3293 fermdum einir 152 verið til altar-
is (og af þeim hefirliklega helmingurinn
verið fermingarbörnin.)
Annars er eDginn efi 4 þvi, að það
að menn hafa hér á lahdi að miklu leyt:
;lagt niðut altariégöngúr,er enginn vott-
ur um trúardeyfð eða skort á trúará
huga, heldur öllu fremur vottur um
trúar-breyting. Þrígyðis-trúin er smátt
og smátt að hyerfa fyrir eingyðis-trú
(unitarism), og getur enginn ætlazt til
að vér teljum það mein, þar sem vór er-
um þeirrar trúar sjálfur.
Og síðan þjóðkyrkjunnar óskilgetna
glæfrabarn gerði henni þann óleik að
þýða kvæðið hans Wesselsum “Smiðinn
og bakarann” á íslenzku, hefir friðþæg-
ingartrúin ekki styrkzt meðal alþýðu
en þá er líka von að sakramentistrúin
íslenzka dofni.
Hins vegar ætlum vér, að sá krist-
indómur, sem er vægur í dómum, vin-
gjarnlegur í orði og liknandi og hjálp-
samur í verki, sé jvarlají rýrnun meðal
þjóðar vorrar.
Og má vera að það gildi á endanum
ekki minst hjá þeim, sem dæmir menn-
ina “einn og sérhvernjeftir hans verk-
um,” en ekki eftir hans trúarjátning.
(Eftir “Nýju Öldinni.”)
EDMUND L. TAYLOR,
Barrister, Solicitor &c.
Rian Block,
492 Main Street,
WlNNIPEG.
Spunarokkar!
Spunarokkar !
Spunarokkar
eftir hinn mikla rokkasmið Jón sá-.
ívar8son. sem að öllu óskaplausu smið-
ar ekki fleiri rokka í þessum heimi.
V’erð : $3.00, með áföstum snældu-
stól $3,25. Fást hjá
Ennfremur hefi ég norska ullar-
kamba sem endast um aldur og æfi ef
þeir eru ekki of mikið brúkaðir. Þeir
kosta einungis einn dollar.
Þessir hafa kamba til sölu fyrir mig:
Stephan Oliver, West Selkirk; Thorst.
Borgfjörð, Geysir; Thorst. Thorarinson,
Búð A. Friðrikssonar, Winnipeg. —
Agenta vantar alstaðar hérnamegin á
Jiessum hnetti.
G. Sveinssyni,
131 Higgen Str.. Winnipeg.
Manhattan Horse and Cattle Food
er hið bezta þrifafóður handa gripum.
Tilbúið af R. H. Peel, Winnipeg, Man.
Mr. Gunnar Sveinsson mælir með
þessu gripafóðri.
DREWRY’S
(Ltd)
THE—
Hart Company
Bóka og rit-
fanga-salar.
Farið til þeirra þegar þið þarfnist bóka
og ritfanga. Númerið er
, 364 Main St.
WJNNIPEG.
BO YEARS’
EXPERIENCE
OLI SIMONSON
MÆLIR MEÐ SÍNU NÝJA
Fæði $1.00 á dag.
718 Main Str.
Brunswick Hotel,
á horninu á Main og Rupert St.
Er eitt hið ódýrasta og bezta gistihús í
bænum. Allslags vín og vindlar fást
þar mót sanngjarnri borgun.
McLaren Bro’s, eigendur.
Patents
I RAUL mAnns
Designs
COPYRIGHTS &C.
Anyone sendlng a sketch and. desQrlntion may
qulckly ascertain our opinion free whether an
invention ts probably patentable. Communica-
tions strictly confldential. Handbook on Patenta
sent free. Oldest agency for securíng patenta.
Patents taken tnrough Munn & Co. recelve
tpecial notice, witbout cnarge, in the
Scientifíc flmcrican.
A handsomely illustrated weekly. Largest clr-
culation of any scientlflc Journal. Terms. fá a
year ; four months, fL Sold by all newsdealers.
MUNN & Co.36,Broadway New York
Branch Offlce. 626 F St.. Washington, D. C.
Family Porter
er alveg ómissandi til að styrkja
og hressa þá sem eru máttlitlir og
uppgefnir af erfiði. Hann styrkir
taugakerfið, færir hressandi svefn
og er sá bezti drykkur sem hægt
er að fá handa mæðrum með börn
á brjósti. Til brúks í heimahús-
um eru hálfmerkur-flöskurnar
þægilegastar.
EflwarU L. Drewry.
Redwood & Empire Breweries.
Sá sem býr til hið nafntogaða
GOLDEN KEY BRAND
ERATED WATERS.
John O’Keefe,
prófgenginn lyfsali,
CAVAVIER, N-D.
Meðöl eftir læknisfyrirskrift afhent
á hvaða tíma sem þarf.
Búðin opin nótt og dag.
John O’Keefe.
Stewart liovil
233 Hlain Str.
Verzlar með mél og gripafóður, hey
ýmsar korntegundir og land-
búnaðarvarning.
Alt selt lágu verði.
Stewart Boyd,
i
Sérstök kjörkaup
- - - - Á ALLSKONAR - - -,
CHINA IIALL
572 Jlain Str.
L- H COMPTON,
ráðsmaður.
Heildsala og smásala á
TÓBAKI, VINDLUM,
TOBAKSPÍPUM O.FL.
Við höfum þær mesta vörubyrgðir
fyrir Jólaverzlunina, og alt fyrir
sanngjarnt verð. Komið inn og tal-
ið við okkur.
W. BROWN
co.
541 Main Str. Winnipeg.
602 JlaÍH 8t.
Kaupir og selur fisk og fugla af öllum
tegundum. Aðal-fiskmarkaður bæjar-
ins. Peningar borgaðir út í hönd fyrir
W. J. GUEST,
Fyrir Hatidirnar
seljum við allar tegundir af víni með
óvanalega lágu verði, svo sem
SPÍRITUS,
ROMM.
BRENNIVIN,
WHISKEY, o. fl.
Einnig höfum vór það sem kallað er
NATIVE WINÉ,
ljómandi drylikur, fyrir 25c. pottinn.
E. BeHiveau & Co.
620 Main Street.
Bezta vínsöluhúsið
Paul Sala,
eftirmaður H. L. CHABOT,
518 Main Strcet 518
Gegnt City Hall, Minnipeg.
Beztu berjavín og áfengi.
Bezti spiritus.
Bezta Whiskey
í Manitoba.
'PAUL.SALA,
513 Malm Str.
Stórkostleg kjörkaup 1 Janúar. 15pc. afsláttur fyrir peninga.
C. A. Gareau, 324 Main 5t.
Lesið eftirfarandi verðlista. Hann hlýtur að gera ykkur a^veg forviða.
GRAVARA.
Wallbay yfirhafnir.......$10.00
Buffalo “ $12.50
Bjarndýra “ $12.75
Racun “ $17.00
Loðskinna-vetlingar af öllum teg-
undum og með öllum prísum. Menn
sem kanpa fyrir töluverða upphæð
í einu, fá með heildsöluverði stóra,
Gráa geitaskinnsfeidi.
TILBUIN FOT.
Stórkostlegar byrgðir.
Allir þessir fatnaðir eru seldir
langt fyrir neðan vana verð. Lítið
yfir verðlistann og þá munuð þér
sjá hvílík kjörkaup þar eru boðin.
Karlmanna-fatnaður, Tweed, alull
$3.00, $3.75, $4.00, $4.75, $5.00
og upp.
Karlmanna-fatnaður, Skotch tweed
$5.50, $6.50. $7.00, $8.50, $9.00,
$10.00 og upp.
Takið fram verðið er
þér pantið með pósti.
Af þessum verðlista getið þér dæmt um, hvort eigi muni borga sig að verzla við mig.
VERDLISTI.
Framhald.
Karlmann buxur, tweed, alull 75c.
90c., $1.00, $1.25, $1.50, $1.75
og upp.
Fryze yfirhafnir handa karlmönn-
um, $4.50 og upp.
Beaver yfirbafnir fyrir karlmenn,
$7.00 og upp. — Ágæt drengjaföt
fyrir $1.50, $1.75, $2.00, $2.25.
Pantanir með póstum
afgreiddar fljótt og vel.
CA ^ARFAI I Merki: Gy!tSkæri
. n EZ_r\ LJ . ÍI24 MAIN STR.
10 prósent afsláttur af allskonar fatnaði gerðum eftir máli.
Viltu eignast ur?
653
gltu Vrið seljum þau með svo
lágu verði.að það borg-
L.oitt ar sig ekki fyrir þig að
vera úrlans. Við höfum
þau af öllum stærðum
og með öllu lagi. En
við nefnum hér að eins
tvær tegundir.
Elgin eða W altham
úr með besta gangverki
og lokuðum kassa.held-
ur ágœtan tíma, fallega
útgrafið, Dueber kassi,
'4? mjög vel gullþvegið,
eudist að eilífu, kvenna
‘ eða karla stærð. Við
skulum senda þér það
e»t» með fullu leyfi til að
7*™ skoða það náhvæmlega.
Ef það er ekki alveg eins
og við segjum, þá sendu
það til baka. Það kostar
þig ekkert. Ef þú ert á-
nægður með það, þá borg
aðu express agentinum
burðargialdið og §6.50.
^ ÚR í LOKUÐUM KASSA,
fallega útskornum, bezta
“ gangverk, hvaða stærð
sem er, vel gullþvegið (14k), lítur út eins
og $40 gullúr, cengur alveg rétt. Við
sendum það til Fxpress Agentsins þíns
og leyfum þér að skoða það —sömu skil-
málarnir sem við sendum öll okkar úr
með—og ef þú ert ánægður með það þá
borgarðu honum §3.95 og flutnings-
gjaldið.
Ef þú vilt taka orð okkar trúanieg
og ’sendir peningana með pöntuninni, þá
fylgir mjög falleg keðja með úrinu og
við borgum flutningsgjaldið, fyrir sama
verð og nefnt er hér að ofan.
Boyal Manafactorine Co.
334 DEARBORN ST CHICACO, ILL
Nortliern Pacific R’y
TIME TABLE.
MAIN LINE.
Alrr. Arr. Lv Lv
l.OOa 1.30p Winnigeg l,05p 9,30a
7,55a 12 Ola Morris 2.32p 12,01p
5.15a ll.OOa Emerson 3,23p Í2,45p
4,15a 10.55a Pembina 3,37p ’4,15p
10.20p 7,30a Grand Forks 7,05p 7,05p
l,15p 4,05a Wpg Junct 10,45p 10,30p
7,30a Duluth 8.00a
8.30a Minneapolis 6.40a
8,00a St.. Paul 7,l5a
10,30a Chicago 9,85a
MORRIS-BRANDON BRANCH.
Arr. Arr. Lv Lv
ll.OOa l,25p Winnipeg 1.05p 9.30p
8.30p ll,50a Vlorris 2.35p 8.30a
5,15p 10.22a Miami 4,06p 5.115a
12,10a 8,26a Baldur 6.20p 12, Op
9.28a 7.25a VVawanesa 7.23p 9.28p
7,00a 6.30a Brandon 8,20p 7,00p
PORTAGE LA PRAIRIE BRANCH.
Lv. Arr.
4,45 p.m Winnipeg 12.55 p.m.
7,80 p.m Port la Pra’rie 9,30 a.m.
C. S. FEE. H. SWINFORD,
Fen.Pass.Ag.,St.Paul. Gen.Ag.,Wpg.
— 108 —
“Lifandi er það, hvað sem það er”, sagði
Ford hálf órólegur.
“Mig iangar til að senda því eina kúlu”,
sagði Englendingurinn. "Það er einn faf þess-
um hannsettu Indíánum!”
“Vertu ekki svo vogaður", gall Keeth við
skyndilega. “Ætlar þú að stefna öllum þessum
skara af óþjóðalýð utan um okkur ? Við skulum
fara á eftir honum”.
En skuggi þessi var horfinn, og Keeshmint-
ist þess, sem Imozene hafði sagt honum, að
hjarðmennirnir væru hræddir við að koma ná"
lægt þessum hluta dalsins, af ótta fyrir svip
bandingjans, sem lagt hafði inn í þessi dular-
fullu göng, og var honum því hálfónotalegt, er
hann hélt áfram þangað. Til^ugsunin var half-
hryllileg.
Vatnið sauð um steinana. er það steyft'st
niður í hina dökku rifu undir klettnnum. En
flóttamennirnir þrír hikuðu sér ekkert, er þeir
komu að farveeinum. Gekk Keeth fyrstur eg
kveikti á einu blysinu áður en hann gengi innar
frá munnanum. Hélt hann blysinu yfir höfði
sér og gekk varlega áfram, en ljósið dansaði og
lék á fhinum steinþöktu veggjum hellisins og
sauð á blysinu, er rakinn úr þakinu lak ofan í
það.
- 109 —
13. KAFLI.
Eins og flugur í flösku.
Faryegurinn á þessu undirheimafljóti var
allur stráður stórum steinum og brotnum trjá-
bútum, sem sópast höfðu þangað frá heiminum
ytri í undanförnum rigningum. I fyrstu var
bergið að ofan lítið eitt yíir höfðum þeirra. en
er þeir komu lengra inn var hallinn meiri á hell-
inum og varð skjótt liærra upp undir þakið.
Vatnið rann yfir steinana með vaxandi nið og
brátt bárust drunur í fossi að eyrum þeirra.
“En erum við að komast í klípu”, sagði Ford
“Hvernig fer ef við komnmst ekki' yfir þennan
foss, sem við erum bráðum komnir að ?”
“Við skulum ekki búast við neinu þesshátt-
ar”, sagði Keeth stuttlega. 1 Ég hefi gamla
kaðalspottann með mér. sem við höfðum svo mik
íð gagn af ekki alls fyrir löngu”.
Innan stundar varð hávaðinn af vatninu svo
mikill. er það féll niður fossinn, að þeir urðu að
æpa hver að öðrum, ef að þeir vildu talast við,.
Þeim hafði gengið ferðin seint og voru kanske
um hálfa mílu frá mynninu. Vatnið rann yfir
hellu eina mikla og féfl beint niður 15 fet. Keeth
rendi fljótlega lykkju yfir snös eina og handfang-
aði sig niður; kom hann niður í vatn, sem náði
honum í miðjan legg.
“Komið þið nú fl’sagðihann og veifaði hattinum
til vina sinna uppi, en þó að þeir gætu ekki
heyrt til hans, þá sáu þeir þó hreyfinguna við
birtuna af blysinu sem hann hólt á og komu þeir
4 eftir honum báðir.
— 112 —
“Hver grefíllinn er þetta?” sagði Ford í
smeikum tón.
Fitch hristi höfuðið, en 4 andliti vélamanns-
ins sást að hann skildi hvað það var.
“í guðanna bænum dragið þið mig upp,
drengir !” kallaðihann. “Það er þruma”.
Þeir brugðu við orð hans og fóru að herða
sig; tóku þeir fast í kaðalinn, og er þeir höfðu
togað nokkuð gátu þeir komið honum upp á
steinana aftur. En hann var svo lémagna orð-
inn af áreynslunni og kaldur, að hann gat varla
sraðið.
Aftnr heyrðu þeir sama voðahljóðið, lang-
dregið og skelfilegt, óma niður hellinn, sem var
eins og heyrnarpípa milli þeirra og heimsins.
“Snúíð aftur eins fijótt og þið getið, drengir’,
sagði Keeth, og settist upp með hörkubrögðum
"Bíðið ekki eftir mér. Þið vit.ið hverju þau eru
lík þrumuveðrin hérna. Á örskömmum tíma
vex á þessi og þið drukknið eins og rottur í
holu”.
“En þú þá?” spurði Ford.
■’Bíddu ekkl eftir mér maður. Þetta er ykk-
ar eina lífsvon. Komist þið upp þangað sem
hellinn er breiðari”.
‘Hvað þá !” spurði Eitch. “Og skilja yður
eftir?”
“Mikill grasasni ertu. Hví skylduð þið fara
að hætta lifi ykkar fyrir mig !”
"Þú ert grasasni sjálfur”, sagði Eord. ‘Held-
urðu að við séum þau fúlmenni. Við skulum
bera þig, ef þú getur ekki gengið”.
Svo tóku þeir hann, hvað sem hann sagði,
— 105 —
fangi sínu á steinbekkinn við glugg-
ann.
“Hann er dáinn”, hvíslaði stúlkan og reyndi
ekki til að losa sig úr faðmi hans, en hættí nú að
gráta.
“Inzalkl ?"
“Já, herra minn. Trumburnar boðuðu þjóð
minni þessár sorglegu fréttir. Veizt þú hvað
það hefir að þýða fyrir þig — og fyrír mig?”
"Hvað mig snertir, þýðir það hættu, prins-
essa, ef að Gonnatzl tekur við stjórn. En hvað
þig s-vertir, þýðir það sorg; aðhafatapað góðum
vín og ráðanaut. Þú munt ráða yfir þjóð þinni
með Gonnatzl ?”
“Svo ætlaðist afi minn til. En verður það
nokkurntíma, herra minn ?”
“Því þá ekki ?” spurði Keeth í hásum rómi.
Nú færðist stúlkan hægt og hægt úr fangi
hans og settist lijá honum á bekkinn.
,'Þóað ég hefði lykilinn að féhelli forfeðra
vorra — að hellinum, sem þjóð mín týndi fyrir
löngu síðan að vilja guðanna —. þá mundi Gon-
natzl aldtei eiga mig. Hann hefir sagt það. Ég
giftist aldrei, lierra minn. Égereinog— ein-
mana !”
Höfuð hennar hneig nú niður hægt og hægt
þangað til enni hennar 14 á köldum steinbekkn-
um. Hárið huldi. andlit hennar svo liann sá
það ekki. og aftur setti að henni ekkann svo hún
engdist öll af gráti.
Keeth stökk á fætur og laut að henni. Einu
sinni rétti hann út faðminn til að taka hana í
fang eér. En hún barðist á móti freistingunni.
t