Heimskringla - 03.03.1898, Side 3

Heimskringla - 03.03.1898, Side 3
HEIMSKRINGLA, 3. MARZ 1898 Hugurinn. Hraðfleygur hugur sér léttir Húrnköldu jörðunni frá. Fróðleik vill nema og fréttir Fjarlægu hnöttunum á. Himinsins hátignar roða Honura eí nægir að sjá, Sjálfur vill sólkerfin skoða; Sannleikans bústöðum ná. Hvers vegna reikandi hnettir Hreyfast um víðbláins skaut ? Eru til einskis þeim settir Afmældir tímar otr braut? Heíjast þar heimkynni dauða? Hlustanði með þér ég svíf. Sérðu þar eyðimörk auða? Eða þá fegurð og líf ? Dagljómans dýrðlega veldi, Dularfull stjórn þín er gjörð. Nærist af andlegum eldi Eitt þetta sandkorn, vor jörð? Ógnar þér |hikandi hugur Hvíldarstað engum að ná ? Það er sem dvíni þinn dugur Dásemdarverkin að sjá. Ris hér upp rökkur og móða, Rannsóknar sjónin er sló. Veit hann að gullreifið góða Geymt er i djúpinu þó. Svo fer um síðir hann mæðist Svífa um ókendann geim, Lítið á ^fluginu fræðist, Ferðlúinn kemur svo heim. Aldrei þó kyrsetu eirir, Akvörðun friðar ei sú, Andan sem ráðþrota reyrir Rannsóknarlausa við trú. Alt af ég fylgi þér feginn; Fjötur ég legg þig ei á, Þó eignist ei útmældan veginn, Engum sem veittist að sjá. S. S. Ísfelð. Gildi hins stóra gagnvart því smáa. Hvað er það stóra, háleita, hrífandi, Af hverri helzt tegund í aldanna röð? Frumefnis-agnir og atvik aðvífandi, Er eina heild mynda í sérhverri stöð. Og fyrir hvað er það vér förum svo margs á mis, Og margoft ei vitum þá stefnum er breytt ? Við höfum það stóra fyr’ augunum ein- ungis, Um alt þetta smáa vér skeytum ei neitt. Af frækorni eilitlu eik sérðu gnæfandi; Einn Adam, hann breytist í stórmikla þjóð. Tíminn er augnablik. ár, dagur líðandi, Og urmull af vatnsdropum mynda stórt flóð. Ef gætum að öllu í iífinu’ er framhjá fer Ver finnum hvað veldur sældum og þraut ; Að atvikin smáu og augnabliks tiðin er Andanna stjórnari’ á misjafnri braut. Fátæktin, auðæfin, yndi og andstreymi Er orsökum bundið—eitt lukkunnar spii, Gátan er óráðin, enginn finst þýðandi, En alt hefir gildi sitt, sannið þið til. Því léttasta hismið er hlekkur í Keðjunni Eitt hrykaiegt stórvirki er ekki full- traust, Og vöntunin kennir að virða það dýr- mæta Er velsælan álítur þýðingarlaust. Er ekki titrandi tárið á hvarminum Eins tilkomumikið og döggperlan blíð? Gleðin er svipul og samhliða harminum. Svona er þá lagað vort mannleea stríð. Muntu’ ekkí kjósa svo fljótt sem að færðu þekt Þá fríðustu meyju og hafa þér dvöl? En hvað er svo meyjarbros, eldheitt og yndislegt ? Augnablikssæla, en sumum lífsböl. Neistinn er sldur og eldlausum auðæfi, en óttalegt skaðræði sumum er bá). Einn vatnsdrykkur þyrstum er himin- vaf svalandi, Ein hálf stnnd sem árahvíld þjakaðri sál Ein lítil hugarfró afléttir byrðinni, Eitt réttmælt vinarorð sefar mörg tár, Og til eru augnablik eins mikils virðandi Og alt sem að skeður í herrans mörg ár' Ef vöntunin kennir að verðleggja smá» muni, í veraldar skóla er hún lærdómsrík grein Sorgmæddur veit bezt hve huggun er hressandi, Því heilbrigður skilur ei sjúklingsins vein. Einn vatnsdropi er vatn, og eins nærri’ er sanninum Að eitt hár af sauðkind, það sé þó ull. Og sæluríkt augnablik margþjáða manninum Mörg hundruð þúsundfalt dýrara’ en gull. Þorsteinn M. Borgfjörð. i»e easffix-rs Er auglýsing okkar í maeríkönsku blöð- unum, og lesendur þeirra hafa mætur á því sem Noregur framleiðir einna mest af, nefnilega Hvalambur-áburður. Það er óviðjafnanlegt sem áburður á als konar leður; einnig ágætt til þess að mýkja hófa á hestum. Það mýkir, svertir og gerir vatnshelt bæði, skó, olíuklæði og alt þess kyns. Norskt meðalalýsi. Nýtt og hreint. Flaskan 75c. Sent með pósti, burðargjald borgað, $1.00. Kökujárn—aðeins 50c. Það er fljótlegt og þægilegt að brúka þau. Send í fallegum umbúðum með góðum leiðbeiningum. Það ættu allir að eignast þau. Norsk litarbréf. Allir litir, til að lita með ull, bómull og hör. Bréfið iOc , 8 bréf fyrir 25c. Innflutt frá Noregi. Hljómbjöllur, beztu í heimi, 25c. til $1.15 Ulíarkambar ...................1.00 Stólkambar.....................1.25 Kökuskurðarjárn.........lOc. og 20c. Sykurtangir, síld, fiskur og sardínur, mðursoðið. Innflutt svensk sagarblöð, 30 þuml, löng, með þunnum bakka. Allskonar kökujárn, mjög falleg og þægileg, með mismunandi verði. Skrifið til Alfred Andresen & Co. The Western Importers. 1302 Wash Ave, So, Minneapolis, Minn. Eða til G. Swanson, 131 Higgin St. Winnipeg Man. Aðal-umboðsmanns í Canada. B. G. SKULASON ATTORNEY AT LAW. SKRIFSTOFA í BF.ARE BLOCK. (>i':iih! Forks, X. I>. Dr. N. J. Crowford PHYCICIAN AND SURGEON ..... 462 MainSt.. Winnipeg, Man. Office Hours from 2 to 6 p.m. EDMUND L. TAY'LOR, Barrister, Solicitor &c. Rian Block, 492 Main Street, WlNNIPEG. Þegar þú þarfnast fyrir <> lrrangn ----þá farðu til- IIVIVEAYXr. Hann er sá eini útskrifaði augnfræðing- ur af háskólanuin í Chicago, sem er hér í vesturlandinu. Hanu velur gleraugu við hæfi hvers eins. IV. R. Imnan & Co. WINNIPEG, MAN. Auglýsing. Islenzkan skólakennara vantar fyr- ir ‘‘Holar Public School”, No 317 East, Assiniboia, N. W. T., fyrir næstkom- andi sumar. Kennarinn þarf í öllu falli að hafa Third Class Certificate — betra tíecond Class, og að öðru leyti fullnægja þeim kröfum, sem lögin gjöra að skilyrði fyr- ir skólastyrk. Þeir sem óska að [fáj stöðu þessa. verða að senda bónarbréf um það ásamt meðmælingum til undirskrifaðs, fyrir 1. Marz næstkomandi. Einnig þarf hann að ákveða hve mikið hann heimt- ar í mánaðarlaun. Skólatíminn er sex mánuðir frá 1. Maí. Tantallon P. O., 25. Janúar 1898. S. Anderson. (Chairman). Look Out! Akaflega mikið af nýjum vörum kemnr bráðlega í China Hall 572 Main St. L. H. COMPTON, ráðsmaður DREWRY’S Family Porter er alveg ómissandi til að styrkja og hressa þá sem eru máttlitiir og uppgefnir af erfiði. Hann styrkir taugakerfið, færir hressandi svefn og er sá bezti drykkur sem hægt er að fá handa mæðrum með börn á brjósti. Til brúks í heimahús- um eru hálfmerkur-tíöskurnar þægilegastar. Eflwarö L. Drewry. Redwood & Empire Breweries. Sá sem býr til hið nafntogaða GOLDEN KEY BRAND ERATED WATERS. Beliveau & Go. VIN-KAUPMENN, 620 MAIN STR- WINNIPEO. Komið inn og lítið yfir það sem við höfum af allskonar Víni og Vindlum Spíritus fyrir $4.00 gallonan. Pínt vín “ 1.25 Það borgar sig að muna eftir staðnum, því vér seljum ódýrara en nokkrir aðrir Bezta vínsöluhúsið Paul Sala, eftirmaður H. L. CHABOT, 513 Main Street 513 Gegnt City Hall, Minnipeg. Beztu berjavín og áfengi. Bezti spíritus. Bezta Whiskey í Manitoba. PAUL SALA, 531 MaW Str. Selnr demanta, gullstáss, úr, klukkur og allskonar varning úr guili og silfri. Viðgerðir allar afgreiddar fljótt og vel. - - - Búðir í - - - Cavalier °? Pembina. ########################## # # # # i Hvitast og bezt •'>V m # # # # # ER— Ogilvie’s Mjel. | Ekkert betra jezt. # # # # # # # # # # # ########################## LÁTIÐ raka YKKUR , OG HÁRSKERA HJÁ S. J. Scheving, 200 Rupert Str. Alt gert eftir nýjustu nót- um og fyrir lægsta verð. S. G. Geroux, Eigandi. Steinolia Ég sel steinoliu hverjum sem hafa vill ódýrara en nokkur annar í bænum. Til hægðarauka má panta oliuna hjá G. Sveinssyni, 131 Higgin Str. D. McNEIL, 38 MCDONALDST. Fatnadur og Haisbunadur Fyrir karlmenn, fæst hvergi betri og ódýrari en hjá - - - Weir & Co. 598 Main 8treet. Ganadian Paciíic RAILWAY- John O'Keefe, prófgenginn lyfsali, CAVAVIER, N-D. Meðöl eftir læknisfyrirskrift afhent á hvaða tíma sem þarf. Búðin opin nótt og dag. John O’Keefe- «02 Jlain 8t. Kaupir og selur fisk og fugla af öllum tegundum. Aðal-fiskmarkaður bæjar- ins. Peningar borgaðir út í hönd fyrir hvað eina, W. J. GUEST, GETA SELT TICKET Til vesturs Til Kooteney plássins, Victoria, Van- couver, Seattle, Tacoma, Portland og samtengist trans-Pacific-línum til Ja- pan og Kína og strandferða- og skemtiskipum til Alaska. Einnig fljótasta og bezta ferd til San Franc- isco og annara Californiu staða; Pul- man-vagnar alla leið til San Francis- co. Fer frá St. Paul á hverjum mið- vikudegi. Þeir sem fara frá Manitoba ættu að leggja af stað sarna dag. — Sérstakur afsláttur (excursion-rates) á farseðlum alt árið um kring. Til suðurs Hin ágæta braut til Minneapolis, St. Paul, Chicago. St. Louis o. s. frv.; eina brautin, sem hefir borðstofu og Pullmans svefnvagna. Til austurs. Lægsta fargjald til allra staða í Aust- ur-Canada og Bandaríkjunum í gegn um St. Paul og Chicago eða vatnsleið frá Duluth. Menn geta haldið stanz- laust áfram, eða geta fengið að stanza í stórbæjunura ef þeir vilja. Til gamla landsins Farseolar seldir með öllum gufuskipa- línum, sem fara frá Montreal. Boston New York og Philadelphia til Norð- urálfunnar; einnig til Suður-Ameríku og Ástralíu. Skrifið til eða talið við agenta North- ern Pacific járnbrautarfélagsins, eða skrifið til H. Swinford, General agent. WINGIPEG - - - MAN. Skrifið eftir bókinni sem lýsir Yukon- héraðinu, telur upp siglingadaga og gef* ur aðrar áætlanir og upplýsingar. SlGLINGA-ÁÆTLUN, FeBR. & MARZ Danube Victorian ... 9. “ Ning Chow .. 10. “ Cottage City .... ... 11. “ Queen ... j2. “ Islander ... 15. “ Thistle ... 17. “ Victoaian ... 19. “ Danube ...22 “ Queen ...24 “ Allir umboðsmenn þessarar brautar geta selt ykkur farseðla, sem innibinda bæði máltíðir og rúm. Snúið ykkur til næsta C. P. R. um- boðsmanns. eða skrifið til Robert Kerr, t Traffic Manager, WINNIPRG, MAN. Nortliern Pacific R!y TIME TABLE. MAIN LINE. Alrr. | Arr. Lv l,00a| l,30p Winnigeg l,05p 7,55all2 Ola Morris 2,32p 5,15ajll,00a Emerson 3,23p 4,15a 10,55a Pembina 3,37p 10.20pJ 7,30a Grand Forks 7,05p l,15p 4,05a Wpg Junct 10,45p 7.30a Duluth 8,00a 8.30a Minneapolis 6.40a 8,00a St. Paul 7.15a |10,30a|Chicago 9,35a Lv 9,30a 12,01p 2,45p 4,15p 7,05p 10,30p MORRIS-BRANDON BRANCH. Arr. Arr. ll,00a l,25p Winnipeg 8,30p ll,50a Morris 5,15p 10,22a Miami l‘2,10a 8.26a Baldur 9,‘28a 7.2öa Wawanesa 7.00a 6.30a Brandon Lv 1.05p 2,35p 4,06p 6.20p 7.23p 8,20p Lv 9,30p 8.30a 5,115a 12, Op 9,‘28p 7,00p PORTAGE LA PRAIRIE BRANCH. Lv. Arr. 4,45 p.m Winnipee 12.55 p.m. 7,30 p.tn Port laPra’rie 9,30 a.m. C. S. FEE, H. SWINFORD. Fen.Pass.Ag..St.Paul. Gen.Ag.,Wpg, 50 YEARS’ EXPERIENCE pATENTS Trade Marks Designs COPYRIGHTS &C. Anvone sending a sketrh and descrlption may qulckly ascertain our opinion free whether an invention is probably patentable. Communiea- tions strtctlyconfldenttal. Ilandbookon Pntents sent free. Oldest agency for securing patents. I*atent8 taken through Munn & Co. receive 8peciul notice, without chnrge, in the Scientific flmcrican. A handsomely illustrated weeklv. linrgest eir- culation of any scientíflc Journál. Terms, a year: four months, $1. Sold by all newsdealers. MUNN & Co.36,Broadwa»‘ New York Branch Offlce, 625 F St., Washington, D. C. — 28 — í sinar glæsilegu hugsjónir, hefði hann að líkind- um þegar gáð að því að eitthvað óvanalegt var á gangi i gestgjafahúsinu. Húsráðandinn var í skrifstofunni,' sem var mjög óvanalegt, og í lát- bragði hans var eitthvað ógðfelt, er ,hann heilsaði upp á Ivor, þegar hann kom inn. Hár maður í síðum bláum kufii var hjá honum, og iitu þeir hvor 1 til annars er Ivor nálgaðist þá, eins og eitthvað væri í bígerð. Ivor hélt áfram upp í stigann. Herbergi hans var á þriðja iofti, og er hann nólgaðist það og sá inn með hurðinni að ljós var i herberginu, varð hann hálf hissa, því hann mundi |það fyrir víst, að hann hafði slökt ljósið þegar hann fór út. Én er hann lauk hurðinni upp varð hann forviða. Ljósið logaði skært, og allir hlutir í herberginu voru á víð og dreif. Þrir menn í einkennisfötum jlögregluliðs- ins rússneska voru í óða-önn að rífa í sundur allan farangur hans, hvolfa úr kistum og köss- um öllu sem i þeim var, og voru enda búnir að rífa hverja spjör úr rúminu og fletta upp gólf- teppunum áköfium. Laglegur maður meðyfir- Vararskegg og hökutopp, var i ákafa að ríia upp úr einu koffortinu hrúgu af bréfum, skjölum og bæklingum, og tróð þyí [ofan í tösku, er hann bafði meðferðis. Áður en Ivor var búinn að átta sig svo að hann gæti fariðað spyrja hverju Þetta alt sætti, var maðurinn með töskuna bú- inn að gá að honum, gekk til hans og sagði : “Eg legg hendur á þig í nafni keisarans. Eg vara þig við að sýna enga mótspyrnu”. “Þér eruð frá vitinu !” hrópaði Ivor, “Ef það er nokkurt réttlæti til á Rússlandi, þá skal — 29 — yður verða hegnt fyrir þessa ósvifni. Þér hafið mig fyrir rangri sök”. “Er þetta hevbergi yðar, og heitið þéi Pet- rov?” “Já” “Þá eruð þér maðurinn, sem ég ér að leita að. Þér fáið bráum að vita að þér eruð ekki hafður ranglega fyrir sök”. “En ég veit að þér farið vilt”, sagði Ivor bystur. “og á því skuluð þér fá að kenna. Hvað hafið þér verið að gera með skjölin þau arna. Þau heyra mér ekki til. Ég hefi aldrei séð þau fyr en nú ?” “Máské þér gangist ekki við að eiga þetta heldur”, sagði lögregluþjónninn og sýndi honum tvær skammbyssur og hnif, sem þeir voru ný- búnir að finna. “YAur hefir verið náð mátulega núna. kunningi”. Ivor varð yfirkominn um ieið og honum datt í hug hvernig á öllu saman stóð. "Þettaer svívirðilegt samsæri”, hrópaði hann "Glæpamaðurinn sem þér eruð að leita að hefir auðsjáanlega leynt þessum hlutum í herbergi mínu, til þess að koma sjálfum sér úr hættunni. Ef þér viljið ekki trúa mér, þá farið til Maximy Petrov á Ccurt Quay. Hann getur sannað það sem ég hefi sagt. Eg er frændi hans”. Það lék efabros um varir lögregluþjónsins, og hann sagði : “Eg er Stamm, umsjónarmaður og ég er að eins að gera það sem mér hefir verið skipað. Það bætir ekkert fyrir yður að þrjózk- ast við mig”. Þar eð Ivor sá að öll mótspyrna var árang- urslaus, réð hann af aðþegja. — 32 — borginni, en allir löghlýðnir borgarar voru að sjálfsögðu mjög glaðir. Sérstaklega voru tveir menn í Pétursborg, sem klöppuðu lof í lófa og það voru þeir Maximy Petrov og Feodor Guns. berg. Samsæri þeirra liafði haft tilætlaðar af- leiðingar og nú var óttanum lyft af þeim. Pet- rov réð sér vavla fyrir fögnuði og skoðaði þetta bæði sem hefnd,og sem vernd fyrir sig gegn öll- um þeim glæpum er hann hafði framið. En hvernig leið Ivor ? Það voru ekki hafð- ar margar sveifiur með hann. Það fyrsta sem að vakti hann af vondum draumi var það, að morgunglætan gægðist inn til hans, þegar hann vaknaði, i gegn um litla glufu í veggnum é klefa hans, en ekki i gegn um neinn verulegan glugga Hann heyrði hringt klukku úti og þekti undir- eins að það var klukkan i kyrkjunni, sem köll- uð er Peturs og Páls kyrkja, og vissi hann þá undireins að fangahúsið sem hann var í var kastalinn i S. Pétursborg. Dagurinn leið og Ivor var yfirkominn af ótta fyrir þvi sem hann |bjóst við að eiga i vænd- um. Fangavörðurinn, sem færði honum mat- inn, fékst ekki til að tala nokkurt orð. Þegar kvöld var komið koro inn til hans lögregluþjónn ail-ófrýnlegur og tyeir aðstoðar- menn. Þeir færðu Ivor úr fötunum og létu hann klæðast i buxur og treyju úr grófum grá- um dúk, Hann reyndi hvað eftir annað að fá þá til að segja sér hvað það væri sem hann var á- kærður fyrir, og lét þá vita að hann væri frændi Maximy Petrovs. Hann fékk ekkert svar. Loks ins létu þeir yfir hann svarta kápu, og fóru með — 25 — vörmu spori og tók við bréfinu, en áðnr en hann færi, hvíslaði Maximy eiuhverju í eyra honum og bað hann svo hraða sér. Maximy Petrov var nú í hinu bezta skapi. Hann færði sig úr stólnnm yfir í legubekkinn og bað Ivor að setjast hjá sér. Þeir toluðu saman um alla heima og geima í nærri tvo klukkutíma, og mintist Ivor á margt það er. fyrir hann hafðí komið á síðastliðnum tuttugu árum. Við og við skaut frændi hans inn í einhverju sem skeð hafði áður en Ivor mundi eftir sér, og var hann að lokum búinn að fá svo mikla tiltrú til frænda síns, að allur grunur og tortrygni var horfin. Kvöldverðurinn var hinn viðhafnarmesti, og vínin sem tekin voru úr vínkialla hins dauða manns liðkuðu hina ströngu og stirðu borðregK ur að mun, Maximy Petrov lék við hvern sinn fingur. Hann var fyndinn og skemtinn, og áð- ur en máltíðin var já enda, voru þeir frændur orðnir mestu mátar. Ivor fanst hann hafa feng- ið nýtt heimili, og hann réði sér varla fyrir á- nægju, þegar hann hugsaði um alla þá dýrð sem gæti verið samfara lífinu í hinni snækrýndu höf- uðborg Rússlands. Þegar kvöldverði var lokið fengu þeir sér vindla og vín í skrifstofu Maximy, og að þvi búnu skildu þeir og ætlaði Ivor þá til gestgjafahússins að taka til farangur sinn, en Maximy sagðist senda mann eftir því. Ekki datt Ivor í hug að nokkuð væri undar- legt við það að honum skyldí ekki vera boðið að keyra til gestgjafahússins. Hann vildi líka held- ur ganga, þvi það var svalt og bjart, og hann

x

Heimskringla

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.