Heimskringla - 26.05.1898, Síða 1
XII. ÁR
STRÍÐID.
Það var alt útlit fyrir þegar síðasta
blað vort kom út, að vér myndum geta
fært lesendum vorum endilegar fréttir
af stríðinu í þessu blaði voru, en svo er
ekki. Það má heita að ekkert mark-
vert hafi borið til siðan.
Fréttir hafa borist hingað um al-
gjörðan sigur Bandamanna yfir Spánska
flotanum suðaustur af Cuba, en þar eð
Bandaríkjastjórn hefir ekkert skeyti
fengið um slíkt, þá er hæpið að taka það
trúanlegt, jafnvel þó maður viti að slíkt
verður endirinn, hvenær sem flotarnir
finnast. Þegar síðast fréttist af skipum
Bandaríkjanna, hélt Sampson með flota
sinn suður með austurenda Cuba, en
Schley með “Flying Squadron” hélt suð-
ur að vestanverðu, ætluðu þeir sér að
króa Spánverja inni við suðurströnd
Cuba og neyða þá til að berjast við sig
eða gefast upp að öðrum kosti. Stað-
hæft hafði verið áður að Spánski flotinn
væri kominn inn á höfnina í Santiago
de Cuba, og vonuðust Bandamenn þvi
eftir að geta fundið þá, áður en þeir
hefðu tækifæri til að renna undani ann-
að sinn.
Frá Dewey við Manilla koma þær
fréttir, að þýzki konsúllinn þar hafi
ætlað að koma vörum og matvælum á
land í Manila, en að Dewey hafi bannað
það. Hét þá konsúllinn að brúka til
þess tvö þýzk herskip sem liggja þar á
höfninni. Sagði Dewey að hann gæti
reynt það, en hvort sem það væru þýzk
eða annara þjóða herskip sem reyndu
slíkt, þá mættu þau búast við kveðju
frá Bandaríkjaflotauum.
Tvö herskip eru lögð af stað frá San
Francisco til Manila, sem viðbót við
flota Dewey. Annað þeirra er ‘móni-
tor’, eitt hið bezta bardagaskip Banda-
ríkjanna. Það má því búast við að all
ógreitt verði að taka Manila úr hönd
um Bandamanna, þó slíkt yrði reynt.
Það geta ekki liðið margir dagar
nú þangað til Spánverjar fá sín makleg
málagjöld, og vér skulum lofa lesend-
um vorum því, að þeir skulu fá eins
glöggar fregnir og unt er um viðureign
þá. Þangað til verður þetta að nægja.
Gladstone látinn.
William Ewart Gladstone lézt að
heimili sínu . Hawarden Castle, ki. 5 á
fimtudagsmorguninn þann 19. þ, m., 89
ára að aldri. Banamein hans var
krabbamein f neflnu ofarlega.
Við dauða Mr. Gladstones hefir
ekki einungis hið brezka veldi. heldur
allur hinn mentaði heimur, mist einn
hinn mesta snilling, sem uppi hefir vei-
ið á þessari öld. Heimurinn hefir mist
hér mann, sem með snild mælskunnar,
djúpsærri þekkingu og óbilandi trausti
4 alt það sem var mannlegt og sann-
gjarnt hefir gert meira í frelsis og fram
fara áttina, heldur en ef til vill nokkur
samtíðamanna hans. Vér höfum mist
hér mann. sem nndantekningarlaust
rétti hjálparhönd þeim sem undirokaðir
voru. hvorr, heldur þeir voru brezkir
tegnar eða ekki. vér höfum mist hér
mann, sem áleit, ef dæma má af verk-
um haus alheiminn ættland sitt, mann
sem að lifði að eins til þess að láta gott
leiða af sér, mann sem að ætíð og æfin-
lega var reiðubúinn til þess að breyta
skoðunum sínum þegar hann þóttist sjá
að hann hefði farið vilt, mann sem að
dsemdi hvern og einn, ekki eftir því
hvaðastöðu hann hafði i lífinu, heldur
eftir því, hvort hann var sannur mað-
ur,
Maður hlýtur þvi að sakna Mr,
Gladstone meira, sem sérstaks frelsis
°g mannvinar, heldur enn sem stjórn-
fræðings eða rithöfundar, þó h.tnn væri
oafnfrægur fyrir hvortveggja, og þó
hin pólitiska æfisaga hans megi heita
ein frægðarsaga.
Hann var þingmaður á brezka þing-
inu fyrst 1832, 23 ára að aldri, og frá
Þeim tima í liðug 60 ár var hann sí-
stai fandi í stjói nraálum Breta. Eins
°8 við mátti búast varð liann stundum
1 minni hluta, en alt fyrir það gafsr.
hann aldrei upp við að berjast fyi
Því málefni, sem hann áleit ré‘> ve >i
enda var það sjaldan, að mótrtc iúj. n
hans hefðu löngurn sigr' að fag"t
Það má svo að orði kveða, i
tví hann sté fyrst inn á hið pólitiska
WTNNIPEG, MANITOBA, 26. MAI 1898.
leiksvið Breta, hafi hann ætíð haft hin
vandamestu og erviðustu störf á hendi.
Hinar mikilhæfu og margbreyttu gáf-
ur hans vöktu hina mestu eftirtekt
allra samtiðamanna hans, og var hon-
um því ætíð skipað það sæti sem ervið-
ast þótti viðfangs i það sinnið.
Stjórnarformaður Breta varð hann
fyrst 1888; hélt hann þeirri stöðu þar
til 1874, að hann varð undir í kosning-
um, og mótstöðumaður hans Disraeli
varð stjórnarformaður. 1880 komst
hann að aftur, sat hann þá að völdum
þar til 1885, að hann beið annan ósigur
fyrir mótstöðumönnum sínum; samt
náði hann aftur stjórnarformenskunni
fyrir lítinn tima 1886. Þá fylgdi hann
sem fastast sjálfstjórnarmáli Ira og
bjóst hann við að það málefni mundi
bera flokk sinn með sigri í gegn um
kosningarnar, en það varð eigi. Slepti
hann þá stjórnartaumunum þar til 1892
að hann var endurkosinn með miklum
meirihluta.
Frjettir.
Markverðiistu viðburðir
hvaðanæfa.
Oliver Mowat. frændi Sir Oliver
Mowat. og bókhaldari í Bank of Ham
ilton í Owen Sound, skaut sjálfan sig á
laugardaginn var í kjallaranum undir
bankabyggingunni. Hann var 48 ára
að aldri. Ekki vita menn um neina or-
sök til þessa sjálfsmorðs.
Kínverji einn að nafni Dark Chung
var tekínn fastur af Bandaríkja toll-
þjónum á farþegjalestinni, sem rennur
frá Montreal suður yfir landamærin.
Hann var með tvo landa sína og $1000
virði af ópíum, sem hann ætlaði að
koma tollfrítt inn í Bandaríkin. Kín-
verji þessi hefir búðir bæði í Boston og
Montreal.
Stóreflis samsæti var haldið i bæn
Tampa á Fiorida á afmælisdag Vic-
t«iu drottningar. Þar voru viðstadd-
inallir helztu mennirnir úr Bandaríkja-
hsrnurn, sem hefir þar aðsetur sitt; voru
þcr einnig yfirmenn af brezku herskip
u»um, sem nýlega komu þar.
Islendingadagsmálið.
Hér með auglýsist að samkvæmt á-
skorun verður almennur fundur hald
inn á North West Hall næsta laugar-
dagskvöld kl. 8.. til þess að áiykta um
það hvenær halda skuli íslendingadag-
inn hér í Winnipeg. Það er ósk íslend
ingadagsnefndarinnar, að fullorðið fólk
beinlínis, en ekki börn, sæki fund þénn-
an og leiði málið til lykta.
Winnipeg, 23. Maí 1898.
B. L. Baldwinson
Yeslings Sigtryggur.
Af þessu sést að Mr. Gladstone hef-
ir verið driffjöðrin í hinni brezku póli:
tik í meira en hálfa öld, og þau árin
sem hann var ekki starfandi meðlimur
ráðaneytisins, var hann alt fyrir það sí-
vakandi og eftirlitssamur fyrir velferð
þjóðarinnar, og á þeim árum gaf hann
út meiripartinn af ritverkum sínum.
Ekki var hann það, sem strangir flokks
menn myndu kalla, stöðugur í sínum
pólitisku skoðunum. En hann breytti
aldrei skoðun sinni, nema að hann væri
algjörlega sannfærður um að hann hefði
skoðað það málefni skakt áður, en va ri
þá kominn á þá einu og réttu skoðun
frá hans sjónarmiði; þess vegna veitt-
ist honum ætíð létt að for3vara skoð-
anabreytingar sínar á stjórnfræðinni.
að þær voru ætíð samkvæmt hans
beztu sannfæring.
Betur að við ættum fleiri sem hefðu
djörfung til þess að kasta frá sér þeim
skoðunum, sem sannfæring þeirra vill
ekki viðurkenna sem réttar. Betur að
við ættum fleiri, sem störfuðu fyrir
mannúð ogréttíndi, en ekki einungis til
þess að upphefja sjálfa sig; betur að við
ættum sem flesta er vildu feta sem bezt
í fótspor mikilmennisins, sem nú er
hnigið í valinn.
Gladstone verður lagður til hvíldar
á laugardaginn kemur í Westminster
Abbey, þar sem öll stórmenni Breta
hvíla; einnig verður honum reistur
minnisvarði. Brezka þingið samþykti
að jarðarförin skyidi framfara undir
umsjón þess opinbera og á þess kostnað.
BRÉFSPJALD.
South Edmonton, 17. Maí 1898.
Kæri frændi Magnús :—
Yið erum ekki komnir lengra enn,
en leggjum af stað héðan í fyrramálið til
Fort Assiniboin, við Athabasca-ána. um
85 mílur héðan landveg. Gerum við ráð
fyrir að kaupa okkur bát í Edmonton,
24 feta langann fyrir $75, og förum við
á honum niður Athabasca-ána um 100
mílur, en þaðan verðum við svo að fara
landveg yfir til “Little Smoky”-árinnar
ef við ekki finnum gull áður. Það verð-
ur skollans erfið för og re.vnir á aflvöðv-
ana, að komast frá Athabasca til Little
Smoky, en ég vona að við finnurú ef tii
gull áður. svo við getum sparað okkur
það ótnak. — Flutningsgjald héðan til
Fort Assiniboine er $1 00 á 100 pundin.
Við erum 12 íslendingar hér saman, og
verðum allir samferða norður, og höld-
um ef til vill allir félagsskap í sumar.
Svo verða okkur einnig samferða héðan
norður eitthvað tveir enskir menn frá
Winnipeg, Mr. Griffin og félagi hans.
Berðu kæra kveðju til Walters og
allra kunningja. Gangi þér alt að ósk-
um, vinur. Þinn einl.
J. B. Brynjólfsson.
Hér er t.ækifærið fyrir þá, sem
hafa i hyggju að ferðast eitthvað. —
Northern Pacific brautin hefir nú sett
niður fargjaldið austur og vestur, sem
fylgir: Til Toronto, Montreal og New
York, á 1. plássi $28.20, á 2. plássi $27,
20. Til Tacoma, Seattle, Victoria og
Vancouver, á 1. pjássi $25, og 2. plássi
$20, Við enda ' ferðarinnar borgar fé-
lagið til baka þeim sem halda 1. pláss
farseðli $5. og þeim sem halda 2. pláss
farseðli $10. Svo farseðlarnir eiginlega
Uosta þá að eins $20 á 1. og $10 á 2.
pliíssi. Niðursetningin á fargjaldi til
Kyrrahafsins gildir að eins frá stöðum
í Manitoba. Til staða í Austurríkjun-
um yrði fargjaldið að sama skapi hærra
eftir því sem vestar dregur, Það borg-
ar sig fyrir hvern einn að»sjá umboðs-
mann N. P. félagsins áður en þeir
kaupa annarstaðar.
Dr. N. J. Crowford
PHYCICIAN AND
SURGEON .....
462 Main St„ Winnipbg, Man.
OfiSce Hours from 2 to 6 p.m.
Miss Margaret Smith, skólakennari
í Middlesx County í Ontario, var sektuð
um $5.00 og málskostnað, eða 20 daga
í fangeisi, fyrir að hafa barið eitt skóla-
barn sitt með reglustryku á höfuðid,—
Það er gott að fá að sjá að það eru pó
lög til í landinu, sem hamla skólakenn-
urunum frá að misþyrma börnum sem
á skóla ganga, sem sumum af þeim
hættir við að gjöra.
Voðalegur fellibylur æddi yfir vissa
hluta af Wisconsin, Iowa og Illinois-
rikjunum fyrra miðvikudagskvöld.
Fleiri tugir manna mistu lífið og mörg
hundruð meiddust meira og minna
Enga hugmynd er enn hægt að fá um
hinn ákaflega skaða á eignum manna á
þessu sviði, þar sem stormurinn sópaði
öllu fyrir sér, bæði byggingum og öll-
um gripum og hverju öðru sem mögu-
legt var að hreyfa.
Bandaríkjastjórn biður um tilboð
til að smiða 16 torpido Destroyers, og
12 torpidóbáta Þeir fyrri þurfa að
vera fullgerðir innan 18 mánaða, en
þeir síðari innan 12 mánaða. Þetta
verður góð viðbót við flotann, fyrir ut
an öll hín stærri herskip, sem á að
smíða undireins.
Eftir útliti að dæma ætla Bretar
að vera viðbúnir hvað sem fyrir kann
að koma. Á síðustu tveimur vikum
hafa þeir flutt 100,000 ton af kolum til
Gibraltar, og þar að auk stórkostlegar
byrgðir af skotfærum og vistum.
Hon. Wilfrid Laurier er sagður
töluvert veikur þessa dagana. Veikin
þó ekki talin hættuleg.
Herskípin Oregon, Mariettaog Buf-
falo eru komin með heilu og höldnu til
flotans undir stjórn Sampsons.
Baptistakyrkja í Ingersoli, Man.,
brann til kaldra kola á fimtudagínn
var. Kyrkjan var metin á $14000. Á-
byrgð $10,000.
Þrumu sló ofan í hús i Toronto i
vikunni sem leið og drap hún húsráð-
andann, Mr. J. B. Allenty, sem var
sofandi 1 rúmi sínu.
Hon. William Jenning Bryan, sem
sótti um forsetasæti Bandarikjanna á
móti Mr. McKinley í kosningunum
1896. er nýgenginn i sjálfboða herdeild
Bandaríkjanna í Nebraska sem einfakl
ur dáti. Mr. Bryan sýndi í kosnínga-
stríðinu að hann var snillingur sem
menta- og mælskumaður. I þessu yfir-
standandi stríði mun hann einnig sýna,
að hann er sjálfkiörinn fyrirliði annara,
sem hugrökk hetja og sannur föður-
landsvínur.
Þrefalt húrra fyrir Bryan.
Eldur kom upp í Hilliard-leikhús-
inu i Ilat Portage á fimtudagskvöldið
var og eyðilagði leikhúsið algjörlega og
margar aðrar stórbyggingar. Farley
Dramatic leikflokkurinn lék “She” eftir
Rider Haggard þetta sama kvöld í
þessu leikhúsi, ég fóru áhorfendur allir
heim til sin að afstöðnum leiknum, en
fáum mínútnm síðar kviknaði i því.
Haldið er að eínn maður liafi farizt i
eldinum. Skaðinn nemur fleiri tugum
þúsunda.
Thomas Nulty, sá sem drap þrjár
systur sinar og einn bróðir, skamt frá
Rawdon í Quebecfylki, 4. Nóvember i
haust er leið, var hengdur á föstudaginn
kl. 9 að morgni. Hann var margbúinn
að játa sekt sína, svo enginn efi er á að
hann var sá rétti sakamaöur.
Frumvarp póstmálaráðgjafa Mr.
Mulocks á Ottawaþinginu, viðvíkjandi
niðursetning burðargjalds á bréfum,
miðar hægt áfram, þó líklegt sé að það
öðlist lsgsgildi á þessu þinei. Póst-
málastjórinn var spurður að, hvenær
hann byggist við að breyting þessi yrði
iög, og svaraði haun þvi einu, að hann
gæti ekki séð svo l.tngt fram i timann.
Það þarf ekki sérlega skarpskygna
gáfumenn til að sjá það, að grobbraus
það og lastmælgi sem ritstj. Lögbergs
riður úr sér f síðasta Lögb. ber þess ijós-
an vott, að garmurinn hefir—rétt einu-
siuni ennþá, verið fullur, fjúkandi reið-
ur og ráðalaus, þegar hann var að hnoða
saman skammadellunni um mig og Mr.
B. F. Walters, hinn núverandi eiganda
og ritstj. Heimskringlu. En þó hefir
hann haft vit á því, að forðast eins og
heitan eld að minnast með einu einasta
orði 4 þessa þrjá stórstuldi, sem ég hefi
verið að biðja hann að gera lesendum
sínum einhverja grein fyrir. Hann var
þó búinn að taka drjúgum upp í sig um
það, að ef ég færi með ranga útdrætti
úr fylkisreikningunum, þá skyldi þegar
verða bent á það f Lögbergi. En ekki
hefir honum þótt ástæða til að leiðrétta
neitt af þvi sem enn hefir verið sagt um
hallærisstyrkinn til Lögb., ómagameð-
lagið til lögreglustjórans eða fargjöidii}.
Fólk má því óhætt trúa því, að ritstj.
Lögb. sé f rauninni mér hjartanlega
samþykkur í öllu sem ég hefi sagt um
þetta, og er þá vel að verið. En drengi.
legar hefði mér þótt honum farast, úr
því hann nú er mér samþykkur um
stuldina, ef hann hefði hreinskilnislega
játað syndlr sínar og stjórnarinnar í
þessum efnum. Ef það, að fara aðdæmi
hins iðrandi ræningja á krossinum, gæti
orðið til þess, að kafteinninn á siðan
næði hafnstað f Paradís, þá þættist ég
hafa unnið að minsta kosti eitt góðverk
í heimi hér. En það eru engin iðrunar-
merki á siðustu grein hans, þvi hann
hleður þar synd á synd ofan, fyrst með
því að hæla sjálfum sér meira en hann
með réttu á skilið, og meira en nokkur
maður, sem ekki væri algerlega tilfinn
ingarlaus um sinn eigin sóma, mundi
leyfa sér að hæla honum ; ug svo með
því, að bera mig þeim bríxlum, að ég
hafi um mörg undanfarinþr gert alt sem
f mínu valdi stóð, bæði leynt og ljóst, til
að skemma mannorð hans. Ékkert get
ur verið sönnu fjær en þetta. Eg þori
að ábyrgjast, að honum er alls ómögu-
legt að rökstyðja eða sanna þessa stað-
hæfingu, og skal ég kunna honum þökk
ef hann getur tilfært eitt einasta dæmi,
þar sem ég hefi sagt nokkuð ófrægjandi
um mannorð hans, annaö en það sem
ég er reiðubúinn að sanna hvenær sem
krafist verður, En það mun kafteinn-
inn tæplega geta kallað ófræging á
mannorði, ef sagt er satt um einn eða
annan.
Það hefir enga þýðingu að gera lang-
ar hrókaræður um Loka, Mörð, Júdas
eða Njálsbrennu, þv þessi söguatriði
frá löngu liðnum öldum koma ekkert
við stjórnarfarinu hér, né standa þau í
neinu sambandi við þessa umræddu
stjórnarstuldi.
Yfir höfuð að tala, þá virðast aliar
greinar ritstj. Lögb. bera þess ljósan
vott, að hann se algerlega ráðalaus að
halda uppi vörn fyrir stjórnina og með
öllu vonlaus (eíns og allur þorri hinna
Liberölu hér í fylkinu) um að hún kom-
ist að við næstu kosningar. Hann veit
það vel —þó hann að sjálfsögðu vilji ekki
láta á því bera (honum er ekki borgað
til þess)—að hann og Greenwaystjórnin
er dæmd og léttvæg fundin, og að svo
fljótt sem kjósendum verður gefinn kost-
ur á því, þá hafna þeir bæði honum og
henni. Hvorttveggja er búið að lifa sitt
fegursta; hvorttveggja er búiðaðsyndga
of lengi upp á náð aimennings, og hvort
NR 33
3
I
3
3
*
<•
*
*
*
*
*
jiiJÍfcj|fcjMt.jtfcjSfcjlfcJlfcj8tej8fcjlfcJltejlfc,dfc.*t.jlfcj*fcj«t.JlfcjlfcjlfcJlfcJlfcJlfcJifc
Furner’s
► MILLINERY.
522 Main Street
fVINNIPEG, MAN.
tveggja verður hafnað við fyrsta tæki-
færi. Það er þessi leynilega meðvitund
f brjósti ritstjórans, sem gerir hann hug-
og duglausann til varnar, og það er
þetta sem heldur honum svo reiðum og
gerir pennahaldið hjá honum svo stjórn-
laust, að almenningur er farinn að hafa
hann og það sem hann skrifar að at-
hlægi og veita honum réttmæta fyrir-
litning.
Að því er snertir Mr. B. F. Walters,
þá muu það alment mælast mjög illa
fyrir kafteininum, að ausa hann dóna-
uppnefnum og skömmum fyrir þaðeitt,
að hann er langtum betri drengur og
heiðarlegri ritstjóri, heldur en kafteinn-
inn hefir vit á að vera.
B. L Baldwinson.
Frá löndum.
MINNEOTA, MINN., 20. MAÍ 98.
(Frá fregnrita Hkr.)
Tíðarfar hið ákjósanlegasta, hæfi-
lega mikið regn, og svona hér um bil
mitt á milli sumarhita og vetrarkulda.
Verzlun er hér öll með nýjum lifs-
mörkum, korntegundir aliar í háu verði
og hefir hveiti t. d. komist í $1,15, mais
40c., hafrar 30c,
Stríðið er nú aðal umræðuefni manna
hér; deild vor Minneotamanna liefir
verið kölluð til Philippineyjanna, í þeirri
deild er einn Islendingur héðan, Björn
B. Gislason, sonur Björns bónda Gísla-
sonar frá Haukstöðum í Vopnafirði.—
Ennþá lifir á meðal vor hinn forni frægi
íslenzki orustuandi. B. B. G. er einn
af vorum efnilegustu ungu mönnum.
Hann er hraustur maður til sálar og lík-
ama og því líklegur til frama ; hann á
eftir einn vetur á háskólanum f Minne-
apolis til að ná lögfræðisprófi.
Sigurður G. Austmann og Ingibjörg
Jónsdóttir giftust hér 10. þ. m.
SPANISH FORK, UTAH.,16. MAÍ.
(Frá fregnrita Hkr.).
Héðan er nú alt heldur bærilegt að
frétta; tiðin er yndæl sem stendur og
alt i hinum mesta blóma.
Áfelli kom hér um síðastl. mánaða-
mót og stóð það yfir f viku. Féll þá
talsverður snjór til fjalla, en rigndi nið-
ur í bygðinni. Regnið gerði mikið gott
því jörð var orðin þur, og það svo sum
staðar, að hveiti og aðrar korntegundir
gátu ekki komist upp, og var því hretið
hin mesta blessun fyrir Zions-dali.
Um skaða af áfellinu höfum vér
ekki heyrt getið, nema lítið eitt af ný-
kliftu sauðfé hjá hjarð.nönnum uppi í
fjöllum. Einn sem nýlega hafði flutt
fé sitt hingað frá California, varð einna
verst úti. Hann tapaði 2000 á eínni
nóttu.
Nú er mikið talað um strfðið, og
virðast allir hafa mikinn áhuga á slík-
ura málum. “Uncle Sam,” bað Zions-
búa um 425 liðsmenn (sjálfboðalið) og
varð ekki nein fyrirstaða með að fá það,
því margfalt fieiri buðu sig en þurfti
með. Það var farið eftir þeirri reglu,.
að jafna þessu niður á bæina og bygð-
arlegin. og fengum við Spanish Fork-
búar því ekki nema litið tækifæri, þ. e.:
fáa af hinni gefnu tölu; en á meðal
þeirra sem buðu sig fram hér, og stóð-
ust prófið, voru tveir íslendingar, og
fleiri hefðu eflaust gefið sig fram, ef
þeir hefðu haft tækifæri. þvi hinn forni
vikingaandi, sem einkendi norðurlanda-
þjóðir í fornöld. virtist lifna við að
nýju hjá þeim, eða að minsta kosti virt-
íst að nokkuð af því væri en eftir f blóði
þeirra. Þeir sem fóru héðan af Islend-
ingum, voru bræður tveir, Einar og
Stefán Þórarinssynir, ættaðir úr Vest-
ur-Skaptafellssýslu, og verða þeir send-
ir í dag, ásamt fleirum liðsmönnum frá
Zion, til San Francisco og þaðan til
Philippine-eyjanna, og óskum vér þeim
lukkulegrar ferðar.
Verði beðið um fleiri liðsmenn, höf-
ura vér engan efa á, að 5 til 10 ungir og
friskir landsmenn bjóði sig fram og
leggi þannig sinn skerf til að viðhalda
heíðri og sóma vorrar nýju fósturjarð-
ar — Ameríku,
Siðan striðið byrjaði, hefir hveiti
einlægtverið að stíga í verði; er nú
sumstaðar kc.miðupp í $1,15 bush.
Af útilegumönnunum hér í Zíon
ganga nú margar sögur. Landstjórinn
iUtahhefir lagt $4 500 til höfuðs 22 af
þeim, og svo hafa fleiri, bæði félög og
einstakir menn, heitið drjúgum verð-
launum, svo það nemur í það heila
raiklu, eða skiftir tugum þúsunda, sem
búið er að leggja til höfuðs þeim, sem
nú, þegar þetta er ritað, hefir liaft þau
áhrif, að fjórir af þeim hafa náðzt; það
skeði á föstudaginn var, og voru tveir
af þeim drepnir, en hinir tveir gáfust
upp. Þykir það hafa verið mikil sigur-
för og hreystiverk, ekki nema af sex
mönnum, að yfirvinna þessa karla, og
vona menn nú fastlega eftir framhaldi
af þessu, og að ekki líði langt um þar
til þeir verða allir upprættir eða flæmd-
ir í burtu.
Heldur er atvinna og verzlun dauf,
og mjög lítið um verulegar framfarir
enn sem komið er.
Heilsufar sem stendur fremur bæri-
legt; engrr nafnkendir hafa látizt.
^♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦j^
! §PARID pENINGA. \
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
Þið getið það með þvi að fara til STEFÁNS
JÓNSSONAR, á Norð-austur horni Ross Ave
og Isabel Str., þegar þér þuríið að að kaupa
eitthvað af álnavöru (Drygoods). T. dæmis
Musilinsá4, 5, 8ogl0 cts. Prints 5, fi, 8, 10
12|c. (sum lCc. print næstum yard á hreidd)
Einnig ljósleitir, tvíbreiðir kjóladúkar á 5c
ijómandi fyrir sumarið fyrir kvenntreyjur
og kjóla handa litlum stúlkum. Þáeru dökk
leitir dúkar á 12| og I5c. hreinasta afbragð
Ótal aðrar tegundir af dúkvöru sem ómögu
legt er upp að telja, með mjög lágu vei ði
Ógrynni af Ijómandi fallegum stráhöttum fyr
ir litlar stúlkur og kotiur, eins lágt og 15 og
20c. Þér getið vissulega sparað peninga
yðar með þvi að kaupa hjá mér gcða vöru
með lágu verði. Gleymið þvi ekki að koma
við hjá mér og sjá«hvað ég er að bjóða við-
skiftavinum inínum þetta sumar.
71
Með vinsemd og beztu óskum.
5TEFAN JONSSON.
Norð austnr horn Ross Ave. og Isabel Str.
->
♦
♦
♦
♦
♦
o
♦
♦
s
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
<
<-
<
«►
♦ ■
♦
♦
♦
♦
►5L