Heimskringla - 11.08.1898, Qupperneq 2
MjLMSKKÍNGLA, 11. AUGUST 1898
Heimskringla.
Verð blaðsins í Canada og Bandar. $1.50
?m árið (fyrirfram borgað). Sent tu
slands (fyrirfram borgað af kaupend-
ud blaðsins bér) $1.00.
Peningar seudist í P. 0. Money Order
Begistered Letter eða Express Money
Order. Bankaávísanir á aðra banka en í
Winnipeg að eins teknar með afföllum
B. F. Walters,
Útgefandi.
Office
Corner Princess & James.
P.O. BOX 305-
Bismar< k.
Nú er hann látinn, gamli mikil-
hæfl maðurinn, sem samir elskuðu
svo mjög, en aðrir hötuðu með ðllu
því hatri sem þeir áttu til í eigu
sinni, og viljum vér nú henda mönn
um á helztu atriðin í sögu hans:
Hann var fæddur 1 Apríl 1815
í höllinni Shönhausen, þar sem for-
feður hans höfðu búið mann fram af
manni, og varhann aðalsmaður að
ættum. 6 ára gamall var hann í
skóla sendur og svo í einn af öðrum
þangað til hann kom á háskólann
garnla og fræga í Göttingen. Var
hann námsmaður ekki meira en í
meðallagi, en óeirðarseggur hinn
mesti og háði qvert einvígið á fætur
öðru við stúdentana. Þóttu stúdent-
ar í þá daga óróaseggir í Göttingen,
en þó var Bismarck verstur allra.
Hann var stór og sterkur, fullar 3
álnir á hæð, rekinn saman og herða-
breiður, hann hvolfdi í sig heilum
fötunum af bjór og brennivíni; hann
var æflnleg albúinn, ef í slag þurfti
að fara. En vinur var hann vina
einua, tryggur og fastheldinn.
Þegar frá háskólauum kom tók
hann próf í lögfræði og slangraðist
í gegnum það. En ekki féll honum
sú iðn, og að ári liðnu gaf hann frá
sér lagastðrfin og fór að búa og gift-
ast.
Var hann svo kosinn á þingið í
Frankfurt: Þá var Þýzkaland alt í
smá molum, ótal smáríki, hvert
þffícru f4@inar ferhyrningsmílur að
stærð, álíka og vænar bændajarðir í
An.c iku taöig þeiru.. Það var
1847 sem hánn giftist- Þá var ein
frelsisaldan frá Frakklandi að velta
yfir Norðurálfuna. Þjóðirnar eru að
fá þessar kviður,eins og sjúkir menn,
kviður undan ofurvaldi aðalsins,
prestanna og konunganna. Eina
þessa kviðu fengu menn þá og vildu
velta úr stóli öllum konungum. En
Bismarck var ekki lengi að hugsa
sigum hvora hl'ðina hann skyldi
taka. Hann trúði því fastlega að
konungunum væri af guði sjálfum
gefið valdið yfir þjóðunum og hann
hafði að erfðum fengið einstaka fyr-
irlitningu fyrir alþýðunni.
Þessi frelsisalda veltist yflr
löndin að vestan og leit út fyrir að
hún myndi skola með sér kórónum
öllum og svelgja Prússland, en það
ríki elskaði Bismarck, og hann elsk-
aði konungsættina líka, og þegar
háskinn barði að dyrurn, þá óð Bis-
marck fram í öllum mætti sínum,
harðsnúinn, kænn og víglegur og
gekk með lífi og sál fram í fylking-
um konungsinna.
Var hann svo sendur á þingið í
Frankfurt 1851. Var það mest
prinsa- og prelátafundur og vildu
þeir í engu tilslaka og engar frelsis-
kröfur veita, hversu sanngjarnar
sem voru. Þar kom Bismarck ör-
ugglega fram, því að maðurinn var
einarður vel og skörnngur hinn
mesti. Eftir þingið var hann gerð-
ur sendiherra í Pétursborg. Og þeg
ar Vilhjálmur I. gerðist konungur á
Prússlandi 1861, þá varð Bismarck
æðsti ráðgjafi hans, og um það leyti
var hann af alvöru farinn að hugsa
‘um að draga saman öll smáríkin á
Þýzkalandi í eina heild undir einni
krúnu,
Um þetta leyti var Bismarck á-
kaflega illa þokkaður; menn spýttu
á eftir honum, menn gerðu um hann
hvert níðið á fætur öðru, menn höt-
uðu hann sem þeir mest gátu, eink-
um voru það frelsismennirnir, verka
mennirnir, stúdentarnir, iðnaðar-
mennirnir, því að öllum þessum stóð
af honum stuggur mikill. En Bis-
marck kærði sig kollóttann og héit
áfram stryki sínu að sameina smá-
ríkin á Norður-Þýzkalandi og mynda
úr þeim eina heild, sem væri svo
voldug, að hún gæti boðið byrginn
hverju stórveldinu sem vildi.
í'yrst byrjaði hann á því að
lemja á Dönum. Hann var eins og
að þukla fyrir sér hvað hann væri
sterkur; hann var að reyna hvort
htrákarnir prússnesku dygðu nokkuð
ef að þeir sæu framan í byssukjafta
Ilann rcðist á Dani til að taka af
þeim Slesvig, Holstein og Lauen-
burg, sem í rauninni voru þýzk
lönd, en Danir höfðu haft þau langa
lengi og farið illa með. Til farar
þessarar kvaddi hann með sér Aust-
urriki, en lítið báru þeir úr býtum
annað en ferðalagið. Þetta var árið
1864. Danir urðu undir, sem von-
legt var, og stóðu sig þó að vonum-
Sex mánuði var leiðangur sá. Ei.
þegar skifta skyldi herfanginu urðu
þeir saupsáttir Prússar og Austur-
ríkismenn, og hafði Bismarck séð
það alt fyrir, Leiddi missætti þetta
til stríðsins 1866 milli Prússa og
Austurríkismanna. Eina sögu man
ég frá þeim tíma, sem sýnir
virðinguna, er Bismarck bar fyrir
konungi.
Áður en stríðið hófst voru bolla-
leggingar miklar um það hvort rftð-
legt væri fyrir Prússa að fara á móti
Austurríkismönnum og var konung-
ur ragur mjög að segja þeim stríð á
hendur. Hafði Bismark þá sent
til konungs Mannteuffel (manndjöful)
markskálk til þess að láta hann
fá konung til að undirskrifa skjaiið,
er segði Austurríki stríð á hendur.
Ilafði Manntcuff'el setið lengi hjá
konungi og ekkert ágengt orðið.
Bismarck kom ekki fyrri en Mann-
teuffel var að fara og mætti honum í
biðsalnum og frétti að konungur
vildi ekki undirskrifa. Heyrðu
menn að Bismarck sagði reiður mjög:
Er s c h a 11 doch unterschreiben
der Dummerkopf’. (Hann skal
samt undirskrifa grasasninn sá arna).
Svo vindur Bismarck sér inn með
skjalið og að fáum mínútum kom
hann aftur með undirskrift konungs
og stríðið byrjar. Því stríði lauk
mcð orustunni við Sadowa 2. júlf
1866 og höfðu Prnssar sigur og
knúðu Austurríki til að ganga að
öllum kröfum sínum.
í þes9u braski sínu hafði Bis
marck ágætunn hjálparmann í Moltke
greifa, hermanni miklum. Hann
bjó út herinn og æfði hann og skip-
aði fvrir um hergöngur í ófriði og
fvlkingarskipun í bardögum, en
Bismarck átti við stjórnmálin og
sendi Moltke á stað með hersveitirn-
ar þegar á einhverjum þurfti að
berja.
Eftir orustu þessa fór Bismarck fyrír
alvöru að vinna að því hinu aðallega
ætlunarverki, sein hann hafði sett
sér, að sameina alt Þýzkaland í eina
heild undir einni krúnu. Hann
kipti upp einura smákonunginum á
eftir öðrum og tók lönd þeirra og
þegna og lét alt ganga undir Prússa
konung eða í Norður-Þýzkalands-
sambandið.
Nicurlag í næsta blaði.
“Peningar eru afl þess sem gera
skal”.
Vér vildum annars óska að sem
allra flestir sendu oss álit sitt og upp
ástungur um þetta mál nú sem fyrst,
því tíminn líður og verkið sem gera
þarf er margbrotið, og að mörgu
leyti all-ervitt viðfangs.
Sir Wilfrid Laurier, stjórnar-
forinaður Canada, kom hingað til
bæjarins í fyrradag og með honum
hinn alræmdi rádgjafi innanríkismftla
Hon. Clifford Sifton. Liberalir klíku-
stólpar hér i bænum héldu fnnd með
sér á laugardaginn var og ákváðu
þar, að þeir skyldu ekki bjóða
Laurier að tala hér opinberlega á
meðan hann stendur við hér í bæn-
um. Þótti mörgum þetta kynlegt í
fyrstu, að þeir skyldu ekki vilja
nota þetta tækifæri til þess að 1 tta
þctta átrúnaðargoð sitt prédika hér
þeirra pólitísku tröllatrú. Það er
hvort sera er ekki nema svo sem
einusinni á hundsaldri að þessi Solon
þeirra lýtur svo lágt, að heimsækja
þetta “vilta Vesturland” og var því
nokkur ástæða til að halda, að þeir
mundu nota þetta tækifæri og kjamsa
út um báðumegin. En gritta grevin
hér voru í vanda staddir; þeir vissu
sem sé, að kjósendur hér voru ekki
búnir að gleyma þeim loforðum,
sem þessir menn, Laurier og Sifton,
og ýmsir aðrir stórir og smáir l.vgar-
ar í gritta hópnum höfðu geflð kjós-
endum — loforð sem voru að eins
gefln til þess, að draga menn á tálar
og svíkja með þeim út atkvæði
handa stjórninni eða ýmsum áharg-
endum hennar, því svo má kalla að
hvert einasta af þessum loforðum hafi
verið svikið er til framkvæmda skyldi
koma. Þessi grittaklíka hér sá því
þann kost vænstan, að láta Laurier
alls ekki halda neina opinbera ræðu,
til þess að gefa ekki fólki hér tæki-
færi til þess, að láta í ljósi óánægju
sína og fyrirlitning við stjornina og
allar hennar aðgerðir. — Þetta er á-
stæðan fvrir því að Laurier er ekki
látinn tala hér opinberlega í þessari
ferð sinni. Þeír eru hræddir við al-
menningsálitið,—og þeim er vorkun.
Island.
Ræda flutt á íslendinga-deKÍnum i
Winnipeg 2. Ágúst 1898.
Eftir G. A. Dalmanx.
Til fólksins.
Vér erum hra. E. H. Johnson
þakklátir fyrir hans góðu undirtekt-
ir í Islandsfararmálinu. Og vér get- inn
um vel skrifað undir alt sem hann
segir f grein sinni, nema skjallið
sem bann þylur um kyrkjufólagið.
Þar erum vér honum ekki samdóma,
en bæði er það, að hann heflr eins
miiknn rétt til sinna skoðana eins og
vér og hver annar, og svo hitt, að
slíkt ketnur ekkert þessu máli við
og því er það, að vér ætlum ekki að
yrðast við hann eða aðra um neinar
kyrkju-klíkur í sambandi vjð þetta
mál. Uppástunga hans finst oss að
mörgu leyti skynsamleg. Það er
sjálfsagt, að nefndin sem fyrir þessu
stæði, ætti að vera skipuð mönnum,
bæði frá Bandaríkjunum og Canada,
því með því er enn raeiri von til
góðs samkomulags og almennra und-
irtekt.a En bér er sú þúfa í götu, að
til þess að þessi nefnd geti starfað
saman, þarf æði-mikið fé til þess að
borga ferðakostnað og annað þvíum-
líkt, því það er ekki hægt að ætlast
til að nefndarmenn sjálflr legðu það
út úr sínum vasa. En hvernig á að
fá þetta fé saman ? Með samskotum
eða samkomum ? Um þetta vildum
vér fá uppástungu, því það er fyrsta
sporið til að hrinda málinu áleiðis.
Af þvi að mér er nú farið að leiðast
sá sægur af fyrirspurnum sem mér ber-
ast víðsvegar að. bæði munnlegar og
skriflegar, um það, hvort ég sé alveg
hættur að leiðbeiua Lögb. á fjósloftinu
í pólitiskum málum. og af því að það
eru svo fjölmarglr sem óska þess að ég
haldi því góðverki áfrnm, þá læt ég læss
hér getið, að ég mun efna það loforð
sera ég gaf lesendura Heiroskringlu fyr-
ir nokkrum vikum síðan um það, að ég
mundi ekki leyfa ritstjórriarskrímsli
Lögbergs að hafa siðasta orðið í þeim
málum framyfir næstu fylkiskosningar
að minnsta kosti. Ástæðan fyrir þvi
að ég hefi ekki látið til mín heyra um
nokkurn tíma, er ekki sú, að ég hafi enn
úttalað um þessi mál. Nei, langt frá,
því fjárglæfraklækir hinna Liberölu
halda altaf rfratn, og þyngja stöðugt
syndapokann, eins og meistari Magnús
Paulsson benti lesendum Lögbergs á
fyrir fáum vikum, E" bæði hefir ís-
lendingadagsmálið tafið talsvert fyrir
raér, ög svö var það hitt, áð ég hefi ver
ið að bíða eftir því að Logbergsritstjór
bindi einhvern enda á loforð það
sem hann gaf í mútuskæklinum sínum í
síðustu skammaromsunni í minn garð
26. Maí í vor. Hann lofaði þá að hann
ætlaði að rekja íeril minn dálítið betur
en hann var búinn að gera, og kvaðst
hann vera að eins lítilfjörlega byrjaður
á þvl góðverki að leiða mönnum fyrir
sjónir, hversu mikill skaðræðisgripur
ée væri í mannlegum félagsskap og gaf
hann mönrium að skilja, að þeir mættu
eiga von á frekari upplýsingum og
sönnunum í því efni. En svo datt botn-
inn úr þessu eins og svo mörgum öðr-
um loforðum þessa manns, því ekki
hefir hann með einu einasta orði minnst
á mig síðan, og er það eitt út af fyrir
sig næg sönnun fyrir því, að maðurinn
er jafu frámunalega svikull sem hann er
svívirðilega lyginn. En með þessum
línum vona ég að geta unnið tvennt,
fyrst það, að láta menn vita, að ég er
við þvf búinn að standa við loforð það
sera ég hefi þegar gefið, um að halda
hrakmenninu ritstj. Lögb. við málefnið
að svo miklu leyti sem það er hægt, og
svo hitt að korna honum til að hrista
úr asnahófunum svo að einhver brögð
verði að. Enda mun nú tíminn hentug-
ur til slíkra umbrota. þar sem þinggerð-
ir eru allar prentaðar og Islendinga-
dagsmálið útkljáð—um stund.
B. L. Baldwinsox.
Herra forseti, konur og menn
Það hefir margt komið fyrir mig á
lífsleiðinni, sem ekki hefir verið eins
geðfelt og ég hafði vonað. Mörgum
sinnum hafa vonir mínar og loftkastalar
hrunið til grunna og legið í rústum við
fætur mínar, svo gjörsamlega eyðilsgð-
ar, að mér hefir sýnst ómögulegt að
byggja nokkuð nýtilegt úr brotunum.
Oft hefir vonarskip mitt strandað á boð-
um og blindskerum viðburðanna, svo
mér heflr virst ómögulegt að byggja
annað skip úr flekunum; ég hefi ekki
getað skoðað það eins og skáldið sem
kveður um skip sinnar vonar á þessa
leið :
“Þó vér ætið byggjum bát
Betri en hinn, í staðinn.”
Hann hlýtur að hafa haft aðrar hug-
sjónir en ég er hann kvað þessar hend
ingar, og litið öðru visi á lífið en mér
finnst íslendingum alment eðlilegt. Það
hefir trauðla fyrir komið að betur h»fi
gengið eu ég hefi vonað. Ég hefi orðið
ð gegna opinberum störfum af og til
um næstliðin 20 ár, og ég hefi reynt að
koma þessu eða hinu til leiöar er mér
sýndist meðbræðrum mínum til bless
unar og oss íslendingum til sóma. Eg
veit það vel, að þegar einhver af okkur
gerir glappaskot við opinbera fram-
komu, þá er ætíð viðkvæðið : Þetta er
okkur mátulegt, við ættum ekki að
leyfa þessum bansettum Islendingum
að ráða fyrir okkur eða trúa þeim fyrir
opiuberum störfum ; að grafa og moka
er þéirra verkahringur, það er þeirra
heimur og þar er bezt að halda þeim. —
Þessir náungar eru ekki ánægðir með
að sakfella þann seka, heldur álasa þeir
undant.ekningarlaust öllum vorum litla
þjóðflokki. Við þetta ranglæti varð ég
var á fyrstu árum mínum hér vestan-
hafs, og því hefi ég reynt eftir fremsta
megni að leysa vel af hendi þann starfa
sem mér hefir verið trúað fyrir, og á
þann hátt af veikum mætti að halda
uppi heiðri vorum sem íslendinga. Eri
oft hefir mér fundist mér verða svo und
ur lítið ágengt, og hefi þá stundum æðr-
ast. Við eitt slikt tækifæri varð ég að
láta undan síga ; ég reiddist og hótaði
að segja af mér, þegar ég á einu augna-
bliki sá mina fögru loftbygging hrynja
og hverfa eins og vatnsmóðu fyrir
morguní-ól. Auðvitað var þetta hin
mesta yfirsjón og alveg ósarnboðið sönn
um íslendingi, sem aldrei má gefast upp
eða láta undan sí -'a ; enda kom þá einn
vinur minn mér til hjálpar, og áminti
inig á þessa leið : ' Það sem eiginlega
gengur að þér er það. að þú rniðar of
hátt, ef þú miðaðir læsrra. þá yrði fallið
ekki eins hátt og þú meiddir þig ekki
eins mikið.” Og þetta voru sannindi.
ef maður hugsar eingöngu um að meiða
sig ekki. en a hinn bóginn get ég ekki
skilið það, að vér getum miðað of hátt í
þeim skilningi er vinur minn meinti.
Samverkamenn vorir eru samiíningur
af flestum þjóðmn heimsins. Vérerum
ef til vill minnsti þjóðflokkurrnn og
verðum því eins og hálfgerð olnboga-
börn hinna þjóðflokkanna, sem þykjast
betri en vér.
Vér verðum þvi að miða hátt og
hugsa vel svo meðbræður vorir neyðist
til að veita oss eftirtekt og viðurkenna
að stefna vor sé rétt, að ráð vor séu góð
og að þeir megi til með að fylgja oss ef
vel á að fara.
Þetta er frá mínu sjónarmiði sá ein
asti vegur til að halda uppi virðing
vorri og heiðri föðurlandsins, sem vér
allir í dag og æfinlega minnumst með
virðing og ást. Eg hefi mörgum sinn-
um óskað að viðburðanna rás hagaði
því svo. að ég fengi tækifæri til að
kynnast lpndum mipum hérna jnegin!
landaffiærahna óg kömast í nánara sam-
band við þá, að geta lært að þekkja
kröfur þeirra og land það sem þeir búa
í; en ég hefi haldið að það mundi ekki
ætla að heppriast, einkum vegna ann-
ríkis er mestu ræður hjá okkur syðra.
Við erum ákafamenn þar syðra, og það
er eins og v<V búumst við heimsenda að
morgni hvers komandi dags og verðum
því að gera alt í dag. Það er eins og
hver einstaklingur hngsí að ef hans
missi við, þá fari alt á hðfuðið.
segja má um óblíðu náttúrunnar á ís
landi, harðstjórn og hindurvitni, ónytj
ungsskap og stefnulejrsi þjóðarinnar
hungur og harðrétti, fátækt og flakk.
—hvað sem segja má um alt þetta, þá
mun vera óhætt að ganga að því vísu.
að vér allir berum hlýjan hug til fööur-
landsins. Það virðist að vera náttúru
lögmál eins órjúfanlegt eins og það lög
mál, sem diegur segulnálina til norðurs
Ég hefi tekið eftir því, að til eru menn
á meðal norðurlandaþjóða. sem þykir
skömm að þjóð sinni og ljúga til um
þjóðerni sitt, en sem betur fer eru slíkir
menn fáir, enda eru þeir fyrirlitnir af
öllum nýtum mönnum og skoðaðir sem
andlegir vanskapningar.
En h vað á þá að segja um Island ?
Eiguin vér að fara að rifja upp fyrir oss
sjóferðir landnámsmanna, sem yfirgáfu
óðul sín i Noregi og lögðu út á hið ó-
kunna Norðurhaf. án uppdiátta eða
áttavita. Gagnteknir af brennandi
frelsisþrá sögðu þeir eins og Patrick
Henry löngu seinna : “Gef mér frelsi
eða dauða.” Með upplyftum andlituni
störðu þeir á pólstjörnuna, sem þá eins
og nú tindraði á hinu segulbláa norður-
hveli, og benti þeim að koma þangað er
enginn hai ðstjóri væri. er þvingaði þá
tilhlýðni. En þó vér heiðrum þessar
fornu hetjur og þó oss þyki væDt um að
hið forna norræna sækonunga blóð ólg
ar enn í æðum vorum, þá virðist mér
það þó ekki samkvæmt kröfum nútím
ans að einblína á hinn forna frægðar-
ljóma, því bæ.ði er sú frægð fyrir svo
löngu liðin og ávöxtur hennar að mestu
leyti falinn í rústum liðinna alda. Við-
burðanna rás bíður aldrei eitt augna-
blik, og það er mín trú og óbifanleg
saunfæring. að vér verðum að snúa
brjóstum á móti holskeflunum fram-
undan, og hafa gætur á hinni komandi
tíð með hennar óteljandi viðburðum og
urubrotum, en það getum vér ekki ef
vér starblínum á hið forna en snúum
bakinu við því nýja. Og mér virðist
Iika að' mikið af hinum forna frelsis
ljóma og gullaldarglamri sé að miklu
leyti ímyndun. Vér verðum að gæta
að því, að sagan er ekki nákvæm ; hún
sýnir oss að eins björgin og stólpana er
mynduðu hið fræga musteri fornaldar-
innar, en alla smásteinana og veggfest-
una fæst, hún ekkert um, því það eru
einstaklingarnir er þá lutu hnefaréttin
um. eins og þeir þann dag i dag lúta
auðvaldinu, er sópar þeim til hliðar og
fyllir með þeim holur og grifjur á fram-
sóknarbrautinni, sem aldarandi vorra
tíma xallar braut framfara og menn-
ingar.
Ékki heldur finnst mér ástæða að
fara að tala um frelsisbaráttu þjóðar
vorrar á hinum síðari árum. Þar virð
ist alt vera á ruglingi og hringlanda ;
hver höndin virðist að vera nppi á móti
annari og hugsa mest um að rífa niður
það sem bygt er, ef annars nokkuð
verulegt er bygt, og það sem mér virð-
ist mestur voðinn er það, að enginn
virðist að vita hvað hann vill berjast
fyrir eða leggja nokkuðí sölurnar fyrir.
Allir segja að sig j’anti stjórnarbót
—meira frelsi. En hvernig á að ná því,
það er alt óráðiii gáta falin á bak við
skýbólstra komandi tíðar. Með öðrum
orðum : Endurbót á stjórnarfyrir-
komulagi Islands er ekki einu sinni í
skýjunum, heldur mikið lengra í burtu,
einhverstaðar i hinu ómælilega rúmi.
Það mætti margt segja um vorar
fornu bókmentir, því þæi eru hér um
bil það eiua sem hefir knúð hinn ment-
aða heim til að veita oss eftirtekt og
skoða o8S sem sérstakan þjóðflokk með
einkeuuilegura þjóðernis liteskiftum.
En bæði er það, að mér mun slíkt mál-
efni ofvaxið, og svo virðist mér að hér
sé ekki staður eða stund til að tala um
slíkt. Fyrirlestur um það efni væri
æskilegra að einhverjir af vorum lærðu
mönnum héidu á ensku máli í einhvei ju
vísindafélagi eða á einhverjum almenn-
um roentafundi,
En aldrei hafði ég vonað eða látið
mér koma til hugar, að eg ætti á meðal
yðar aðra eins vini og ég hefi nú þegar
reynt. Þeir hafa sýnt mér meiri velvild
en ég fæ með orðum lýst, sérstaklega
þegar ég hugsa um vanmátt minn að
endurgjalda yður alla yðar velyild og
vináttu mér til handa. Þegar ég með-
tók málþráðarskeytið frá íslendinga-
dagsnefndinni, þá fór líkt fyrir mér og
Senater Tillmann er hann sagði forðum
"Hvar er ég staddur." Ég var í efa um
hvar ég væri staddur, hvað ég ætti að
gera og hvað ég ætti að segja, hvort eg
ætti að vera svo sjálfbyrgingsfullur að
halda hér ræðu á vorri hljómfögru og
frægu feðratungu, sem ég kann svo
undur lítið í, hér á meðal yðar, sem eig-
ið svo margar islenzkuhetjur og ræðu-
skörunga, sem skilja kröfur íslands
mörgum sinnura betur en ég. sem skilja
íslenzka tungu svo vel, að hún er eins
og bergmál þeirra innra eðlis. Og vand-
ræði min fóru vaxandi þegar ég varð
þess vísari, að mér hafði verið úthlutað-
ur sá heiður að tala fyrir minni vors
kæra föðurlaDds. Því hvað mikið sem
En það er eítt sem mig íangár til að
minnast á með fáum orðum, og það er
flótti vöf frá föðurlandinu Vestur um
haf. Ég kalla þad flótta, ekki í Jreiin
skilningi sem það orð er vanalega brúk-
að, heldur vegna þess, að mér finst það
lýsa betur minum tilfinningum þegar
ég yfirgaf föðurlandið, en nokkur annnð
orð er ég þekki. Einn af löndum vor-
um sagði ekki alls fyrir löngu i ræðu er
hann hélt á opinberum fundi, að hann
áliti að vesturflutningarnir séu annað
merkasta atriðið i sögu íslands. Ég
vona að allir vlðurkenni þann djúpa
sannleika sem felst í þessari setningu.
í það minsta er það rnerkasti atburður-
inn í minni lífssögu, þegar ég fór vestur
um haf, og ég er viss um að flestir ein-
staklingar, þegar þeir fara að gera upp
sinn sögulega reikning, ef þeir á annað
borð eru ráðvandir i sinni reiknings-
færslu, að það séu virkileg sannindi, að
vesturflutningarnir séu rojög merkilegt
atriði á leiksviði íslenzkrar sögu.
Eg man það vel, það var sumarið
1874, þegar öll" blöðin og öll skáldin
sunvu mest um frelsi íslands, þegar
skáldið Páll Ólafsson gleymdi svo gjör-
samlega öllu velsæmi, er hann sagði :
"Legg þú kóngi hönd um háls,
hans er gjöfin, þú ert frjáls.”
Þegar Matthías prestur lét árnar
og fossana syngja angurblíða frelsis-
söngva, þegar alt landið virtist berg-
iriála af endurteknum frelsisglamranda.
Ég var staddur á hinni söguríku Blá-
skógaheiði í Þingeyjarsýslu ; það var
snemma i Júlí og ein af þessuin guðdóm-
leg: fslenzku sumarnóttum, sem
Victor Salcs.
Ábyrgðir að þola hvaða eldbað sem
er. Allar stærðir. Fyrir $15,00 og
upp. Komið inn og skoðið þær eða
sendið eftir príslista.
Karl K. Albert,
SVestern Agent.
1481'rlncessSt,, IViunipeg.
Brniisffick Hotel,
á horninu á Main og Rupert St.
Er eitt hið ódýrasta hezta gistihús í
bænum. Allslags vín og vindlar fást
þar mót -anngjarnri borgun.
McLaren Bro’s, eigendur.
Munið eftir Því
að beza og ódýrasta gistihús (eftir
gæðum), sem til er í Pembina Co. er
Jennlngs House,
Cavalier, N. Dak.
PAT. JENNINGS. eigandi.
National Hotel.
Þar er staðurinn sem öllum ber saman
um að sé hið ódýrasta og þægilegastaog
skemtilegastá gestgjafahús í bænum,
Fsedi atl eins $ s ,OÖ a (lag.
Ágæt vín og vindlar með vægu verði.
Munið eftir staðnum.
NATIONAL HOTEL.
HENRY McKITTRICK,
—eigandi.—
Góðir landar!
Komið á hornið á King & James
St. Þar er margt sem ykkur girnir að
sjá. Þar fáið þið alt sem litur að hús-
búnaði, svo sem RÚMSTÆÐI með öllu
tdheyrandi, HLIÐARBORÐ, ný og
og ömul, STÓLA, forkunnar fagra,
MATREIÐSLUSTÓR af öllum mögu-
lnvum stærðuin. OFNAR og OFNPÍP-
UR, ljómandi LEIRTAU. og margt
íieira sem hér yrði of langt upp að telja.
Alt þetta er selt við lægsta verði.
Við vonum að þið gerið okkur þá
ánægju að koma inn og líta á samsafnið
áður en þið kaupið annarstaðar, og þá
sjálfsagt að kaupa ef ykkur vanhagar
um eitthvað.
Gætið þess að kaupa ekki köttinn i
sekknum.
Yðar þéuustu reiðubúnir
Pálson & Bárdal.
IMinp'!
Lítið á eft rfylgjandi verðlista &
hinni nafnfrægu Lisk’s Blikkvöru,
sem er ábyrgst að riðga aldrei. Hún
fæst í harðvöi'ubúðinni ban§
TRUEMNER,
I Cavalier.
Mr. Truemner ábyrgist vöruna sjálfur
og lofar að gefa ykkur nýjann hlut fyrir
sérhvað eina sem þið kaupið af Lisks
Blikkvöru og sem riðgar hjá ykkur með
sómasamlegri brúkun.
Áður seldar Nú á
16 potta fötur 90 cts. 67 cts.
14 potta fötur 75 " 55 "
12 potta fötur 70 " 62 "
14 “ “ með sigti $1.10 78 “
17 potta diskapönnur 90 ct. 70 11
No. 9 þvatta Boilers$2.50 $1.90
J. E. Tmemner
Cavalier, N-Dak.
Kaupið þér
gott brauð ?
Það er spurning sem hver heimil-
isfaðir ætti að íhuga nú, þegar
brauð er svo ódýrt, ekki nema
5-6 c. braudid.
Því þá ekki að kanpa það bezta
brauð sem búið er til i Canada,
sem er áreiðanlega brauðið hana
Boyd’s
Þá fyrst finnur þú mismuninn
sem er á brauðum ýmsra bakara.
Kallið á einhvem af keirurum
vorum oe verzlið við hann.