Heimskringla - 01.12.1898, Page 4
BMMsmaíjratA, 1. desember isss.
Hurra Fyrir Vetrinum
Húrra fyrir yfirhöfnunum, hlýju fðtnnum,
húfunum, vetlingunum. nærfötunum, og
öllu sem hjálpar til að halda manni hlýjum.
Hér er búðin sem er troðfull upp undir loft
af allskonar karlmanna og drengjafatnaði.
Altsaman það bezta í landinu, og það sem
mest á ríður : með undur iágu r»t di.
The Commonwealth,
HIOOVEB &c CO.
CORNER MAIN STR. k CITY HALL SQUARK.
Winnipeg,
Ritdómur um “Valið” kemur í næsta
blaði; komst ekki að í þetta sinn.
Ólafur Ólafsson, frá Moos Jaw,
eini islenzki lestastjóri (conductor) sem
aem til er í Canada. kom snöggva ferð
lil bæjarins í síðustu viku.
Hr. Einar Jochumsson kom til bæj
arins á laugardaginn var, frá Argyle.
Hann lætgr vel af líðan sinni og landa
þar vestra.
Járnböndin á Stonewall-lenginguna
af C. P. R. brautinni eru nú lögð norð-
ur að Foxton. Smáþokast nær Nýja
íslandi, þó hægt fari.
S.' J, Anderson, skólakennari frá
ölenboro, kom hingað til bæjarins fyrir
nokkrum dögum. Hann stundar nám
i kennaradeild Collegiate-skólans hér í
vetur.
Á fimtudaginn var gaf séra Hafst.
Pétursson saman í hjónaband Mr.Krist-
ian E. Kristianson og Miss Margrétu
Einarsdóttur. Heimskringla óskar
brúðhjónunum til lukku.
Tíðin var köld og hrjóstug fram að
siðustu helgi. en það sem af er þessari
viku hefir verið mjög frostvægt, en all-
tuikla fönn hefir drifið niðnr og mun
snjór nú vera hér um 1 fet á jafnsléttu.
Snorri Jónsson og systir hans Mrs.
J ihanna Thorsteinson frá Qu’Appelle-
daKnýlehdunni voru hér í bænum um
síðustuhelgi áleiðis til Norður-Dakota
í kynnisför til fólks síns þar. Þau bú-
ast við að hverfa heiin aftur fyrir jólin.
James G. Harvey hefir ákveðið að
gefa kost á sér fyrir bæjarfulltrúa fyrir
4ðu deild. Hann hefir áður verið í hæj-
ai stjórninni, og er þar að auki einn af
stærstu fasteigna eigendum í dejldinni.
Hann biður um fylgi kjósendanna á
k.ördegi.
Hra. Einar Guðraundsson, frá Gimli,
s.- nlegið hefir hér í almenna sjúkra-
h 'isinu síðaní júlí m. síðastl. í tauga-
veiki. er nú kominn til heilsu og lagði
*f stað héðan heim til sín þann 27.
síðastl, mánaðar,
Hra. Jón Thorleifsson, frá Church-
br dge, var hér á ferðinni um helgina.
Haun hefir góðfúslegu tekið að sér út-
sölu og innheimtu fyrir Heimskringlu í
Thingvalla og Lögbergs nýlendunum
og vildum vér biðja menn í þeim bygð-
um að snúa sér til hans í erindum
blaðsins.
Aðfaranótt 18. Nóv. andaðist að
Sunnuhvoli í Víðirnesbygð i Nýja ís-
landi Páll bóndi Ounnlögsson. Hann
hafði legið hér á spitalanum í Winnipeg
alt síðastliðið sumar, en var fluttur
heim til sín fyrir rúmum mánuði. Tær-
ing mun hafa verið banamein hans.
Á mánudagskvöldið kemur(5. Des )
kl. 8 e. h. ætla Unitarar að halda fund í
kvrkju sinni til að ræða mjög mikils
varðandi málefni. Eru allir íslenzkir
Unitarar í bænum beðnir að koma, hver
og einn einasti, og yfir hðfuð allir þeir
sem hlyntir eru Unitaramálefninu. Það
er áríðandi að menn sæki fundinn.
Hinn 25. Nóv. gaf séra Magnús J.
Skaptason saman í hjónaband Mr
Magnús Pétursson, yfirprentara Heims-
kringlu og Miss Guðrúnu Guðmunds-
dóttur. Fór hjónavígslan fram í Uni-
tarakyrkjunni og var hún troðfuil af
fólki sem kom lil aðóska ungu hjónun-
um hamingju. Heimskringla árnar
brúðhjónunum allrar hamingju og von-
ar að allir komandi dagar verði þeim
eins gleðilegirog þessi.
Nokkrir fasteignaeigendur hér í bæn-
um hafa myndað félag til að hafa eftir-
lit rneð því. hverjir verði kosnir í bæjar-
srjórn hér fyrir komandi ár, og með
gjörðum bæjarstjórnarinnar framvegis.
Menn eru að sarinfærast um að nauð-
synlegt sé að hafa strangt eftirlit með
því, að bæjarbúum sé ekki ofþyngt með
sköttum.
• ---------------------
Enginn selur betri drengjaföt en
Commonwealth.
LOYAL GEYSIR LODGE,
7119 I. O. O. F., M.U.
heldur fund næsta þriðjudagskvöld,kl.8,
á Unity Hall. Áríðandi að allir með-
limir komi á fundinn. Nýir meðlimir
verða teknir inn og áríðandi mál rædd.
Á Eggertsson, P. S.
Verktrúr maðnr getur fengið vinnu
nú þegar fyrir allan veturínn við að
hirða gripi. Helzt óskað eftir manni
sem kann að rojólka kýr. Góðkjör boð-
in. Menn snúi sér til /
K. Vai.oabðssonar,
236 McGee Str.
$10.00 föt, hvergi betrí an hjá
Commonwealtli.
Skugga-Sveinn verður leikinn iSel-
kirk 5. 7. og 9. þ. m. Dans á eftir öll
kvöldin. Sjá auglýsingu á 1. bls.
Bæjarráðsfulltrúi O. H. Wilson held-
ur fund með kjósendum í Ward 4 á
miðvikudagskvöldið þann 7. þ. m. á
North West Hall. Hann óskar eftir að
allirísl. kjósendur i deildinni verði við-
staddir. Á þessum fundi verða haldnar
ræður af borgarstjóraumsækjendum
og bæjarfulltrúaefnum.
Það er sagt að fundist hafi vottur
þess að olía sé i jörðu í Birds Hill, á
landi Mr. C. F. Hutchings, 7 mílur hér
frá bænum. Vatnsbrunuar sem grafn-
hafa verið þar, hafa orðið ónýtir vegna
þess hve vatnið hefir verið olíukent o g
daunilt. Þeir sem kunnugir eru olíu-
brunnum i Pennsylvania og séð hafa
land Mr. Hutchings segja, að jar ð-
myndun öllsé lík á báðum stöðum og
að mikil líkindi séu til þess að olia sé
þar til staðar, ef grafið sé eftir henni,
8ýnishorn af jarðvegi, sem olían er álit-
in að vera í, hefir verið sendur til skoð-
unar jarðfræðingum, og undir skýrsln
þeirra verður það komið, hvort tilraun-
ir verða gerðar til að grafa eftir olíu
hjá Birds Hill.
Verkfræðingar Winnipeg-bæjarhafa
nú gert áætlun um kotsnað viðaðkoma
upp rafljósastofnun fyrir bæinn, sem
hati 250 ljós, hvert með 22,000 kerta-
ljósa birtu.
Áætlun er:
Hús og grunnlóð............... 5.000
Kafljósa útbúnaður allur..... 39,950
Ýmislegur kosnaður............ 5,050
Kosnaður als................. 50.000
KoSnaður við að halda stofnaninni
við í 365 daga. eða í heílt ár.
Éldsneyti..................... 7,300
Carbons.................... .. 200
Olía og ‘Waste”................. 500
Ljós og hiti.................... 140
lsti vélarstjóri................ 900
2ar “ 720
1 eldmaður 12 mánuði............ 600
1 eldmaður 7 “ ......... 350
1 maður með hesti til að lítaeftir
ljósþráðum...................... 900
Rentur af $5^000,00 á 3J%..... 1,750
Slit og aðgerðir.............. 1,750
Eldsábyrgð ..................... 200
Lagt í sjóð til afborgunar á $50,000
láni (Sinking Fund)............. 750
Kosnaður viðhvertljósádag 17Jc.
Kosnaður als................ $16,060
GÓDIfí LANDAfí.
Þar eð eigandi verzlunarinnar sem ég
vinn við hefir leyft mér að selja yður
löndum mínum með mjög lágu verði,
Dá finn ég það skyldu mína aðlátayður
vita af því nú þegar, svo þér getið keypt
það til fata sem þér þarfnist fyrir vet
urinn, meðan þetta kostaboð varir. Þér
getið t. d fengið ágæta loðkápu fyrir
að eins $8.00, sem æfinlega og alstaðar
hafa verið seldar fyrir $15 og $16 ; einn-
ig alfatnað úr góðii ull fyrir $5.75, sem
seld eru alstaðar fyíir 9—10 dollara.
En þett.a verð varir ekki lengi, og því
ættuð þér að sinna þessum kjörkaupum
nú strax á meðan þau gefast.
Yðar einl. landi og vinur.
/
Guðm. G. Islelfsson
Fyrir The PALACE
CLOTHINQ STORE
45H nniu »t.
Verkamannafélagið í Vancouver
hefir kvartað undan þvi að C. P. R. fé-
lagið hafi látið gera við tvo gufuvagua
hér í Winnipeg, sem annars eru notaðir
abrautum félagsinsí British Colurabia.
Verkamönnum þykir sjálfsagt að það
sé gertvið þá vagna í Vancouver, sem
bi úkaðir erú á brautum þar. Hér sem
oftar kemur verndarhugmyndin í Ijós,
sú, að halda sem mestri vinnu heima
fyrir, en sækja sem minst frá öðrum
stöðum.
Auglýsing.
“ Valid”. Skáldsaga estir Snæ Snæ-
land, verð 50 cents i kápu, er til sölu
hér i bænum hjá Kr. Á3g. Benidikts-
syni, 350 Spence St, Magnúsi Péturs-
syni, skrifstofu Heimskringlu. Albert
Jónssyni, skrifstofu Lögbergs. Gunn
ari Sveinssyni 131 Higgin St. Jónasi
Danielssyni, Lydia St, H. S. Bardal
King St., Miss W. Finney, Kate
Street. Utsölumenn annarstaðar eru:
E. H. Johnson, Spanish Fork. S. Guö-
mundssyni Mountain.Box 13, S. Berg-
mann, Garðar. Gesti Jóhannssyni,
Selkirk. G. Helgasyni, Hnausar. Jóni
Bjarnarsyni, Baldur. Fr. Friðriksyni,
Glenboro. B. Jónssyni, Brú. Um-
boðsmenn auglýstir jafnóðum og sagan
er send þeim.
KAUPBÆTIR. Allir þeir, sem hafa
keypt eða pantað söguna fyrir febrúar-
mánaðarlok næstkomandi 1899, fá örk-
ina í næstu skáldsögu, eftir höfund
“Valsins”, að eins þrjú c. Öðrum
verður seld hún 5 c. Sú saga verður í
sama broti og ‘‘Valið”. og eigi færrí
arkir. Kemur út næsta haust. Út-
sölumenn mína bið ég að skrifa öll nöfn
kaupenda niður fram að tilteknum
tíma og senda mér. Nafnanna verður
vandlega gætt, og geymd þakksamlega.
—Hver sem sendir 50 c. til mín fyrir
bókina, verður send hún tafarlaust.
Kr, Áso. Bbnbdiktsson.
Til kjósenda í fjórðu
kjördeild.
Herrar.
Ég æski eftir atkvæðum yðar og
stuðningi til þess að koma mér í bæjar-
ráðsstöðu fyrir 4. kjördeild þessa bæjar
fyrir komandi kjörtímabil.
. Yðar með vírðingu.
James G. Harvey.
Járnbraut til Nýja-Islands
Nú kvað vera orðid víst, að járn-
braut verði lögð til Nýja-íslands, en
af því að nú er alt frosið og snjór
kominn, þá þykir ilt að eiga við hana
í vetur. En í þess stað ætlar Mr.
Mills að láta luktan og vel hitaðan
sleða verða á fljúgandi ferðinni í vet-
ur í hverri viku, alla leið frá Winni-
peg til íslendingafljóts. Ferðum
verður þannig hagað, að sleðinn fer
frá Wpeg kl. 2 til Selkirk á sunnu-
dag, og frá Selkirk á mánudags morg-
un kl. 8og kemurtil íslendingafljóts
á þriðjudagskveld. Fer þaðan á
finmitudagsmorgun kl. 8, og kemur
til Selkirk kl. 6 á fostudagskveld og
fer til Wpeg næsta dag. Heldur til
að 605 Ross Ave. íslendingur keyrir
sleðann, tíuðm. Christie; hann er góð-
ur hestamaður, glaðlyndur, gætinn
og reglumaður. Reynið hvernig er
að ferðast með honum.
Yðar einlægur,
Mills.
OTTO WATNE LÁTINN.
Það eru fáir menn á íslandi hvers
dauði mundi verða almennara sorgar-
efni fyrír þjóðina heldur en dauði Otto
Watne, sem skeðiáskipi hans “Vaagen”
nálægt Færeyjum, þ. 15. octóber.
Hjartveiki varð honum að baua. Lík
hans var flutt heim til íslands að ráð-
stöfun ekkju hans. sem var með honum
á skipinu þegar hann dó.
Greiðasala.
Ég undirskrifaður sel ferðamönnum
og öðrum allan greiða, svo sem fæði,
húsnæði og þjónustu, með mjög sann-
gjörnu verði. Einnig hefi ég stórt og
gott hesthús f.yrir 16 gripi. sem er nv-
gert við og dyttað að að öllu leyti, og
er hvergi betra gripahús i öllum vestur-
bænum. Munið eftir staðnum—gamla
greiðasöluhúsið, <>05 Honn Ave.
Sveinn Sveinsson.
44
Extension”
Hin fegursta búð fyrir
vestan Aðalstrœti.
Hin stærsto búð.
Hið lægstí* verð.
Komið og sjáið hinar miklu byrgðir af matvöru, leirtaui og glasvöru.
“Dinner Setts” “Tea Setts” Svefnherbergja “setts” skraut bollapör o. fl.
R. H. WINRAM,
Corner Isabel & Elgin Ave.
Telephoae 469.
Sólskin að síðustu !'
The BLIIE STORE,
Nerki: ^rsVas, 435 Maln Street.
Sólskin að síðustu segjum vér, eftir hin skaðlegu votviðri í landinu. Það
er ekki til neins að neita því, að það hefir algerlega eyðilagt fatnaðar og grá-
vöruverzlunina í Manitoba á þessu hausti. Og þessvegna verðum vér að segja
fólki, að vér höfum þrisvar sinnum of miklar vörubyrgðir í búð vorri. Vér
verðum að koma þessum vörum i peninga og það nú strax. Eftirfylgjandi
verðlisti mun sýna yður að oss er full alvara.
Karlmanna Tweed Buxur.....$7.50 virði nú á $4.75
“ góður slitfatnaður 8.50 “ “ 5.00
“ Nýmóðins alfatnaðr 9.50 “ “ 6.00
“ Aalullarfatnaður 13.50 “ “ 8.50
“ Skozk vaðmálsföt 16.50 “ “ 10.50
“ Léttar yfirhafnir 9.00 “ “ 5.00
“ Léttar skrautkápur 15.00 “ “ 9.00
Karlmannabuxur af öllum mögulegam tegundum, frá $1.00
og þar yfir ; allar fyrír helming vanaverðs.
Drengjabuxur frá 50c. til $2.75; allar fyrir minna en
helming vanaverðs.
Drengjaföt fín og þykk...$6.50 virði nú á $4.00
“ sterk úr alull... 5.50 “ “ 3.50
“ úr gráu vaðmáli.... 4.00 “ “ 2.50
“ Sailor-föt...... 1.75 “ “ 90 cts.
Drengja Stutttreyjur í þúsundatali.
Drengja Yfirhafnir í þúsunnatali
Grávara ! Grávara ! Grávara !
Kvenna selskinnsyfirhafnir $30—$35 virði, nú á $20—$22.50
“ Bulgariu lambskinns-yfirhafnir $38 virði, nú á $27
“ Tasmaniu Coonskinns-yfirhafnir $35.50 virði, nú á $25
“ ágætar Coonskinns-yfirhafnir $48.50 virði, nú á $37.50
Karlmanna Coonskinns-yfirhafnir $25—45 virði, nú á $18—$35
“ Victorian Va.laby yflrhafnir $16.50—28 virði,nú $12—20
Karlmanna Badger yfirhafnir og svartar skrautyfirhafnir 4 $10
Ágætir Geitaskinns og Buflfalo-feldir við mjög lágu verði.
434 JWAIN fSTK., WIJIMI'EG,
A. CHEVRIER
— 74 —
hreyfanlegi andlitssvipur, hin djúþa, háfleyga
> il þessa hins mikla manns veldur þessari virð-
inguoggerir það að lotningu eins og liggur í
loftinu í kringuin hann, og ef að hann væri einn
í hóp manna sem ekkertþektu hann, þá mundu
l-eir allir ósjálfrátt kannast við að hann ætti að
vera foringi þeirra.
Hann hneygði sig með alvörugefni þegar
t'Mm Preston og Chiquito var fylgt inn tll hans.
Á járnharða andlitinu sáustengin merki sorgar-
inriar, sem hann bar eftir sinn bezta vin, eða ó-
h pp það og tjón sem Cúba hafði heðið við dauða
JIarti’8. Þettastálbjarta gat ryðgað hið innra,
t ó að enginn sæi þess merki.
“Fáið ykkur sæti”, sagði hann rólegur.
*'Mér er sagt að þið haflð í höndum bréf til mín’.
Dró þá Preston fram bréf eitt, sem Garcia
h Jði fengið honum til hershöfðingjans. og rétti
1 niium það, en sagði ekkert. En á meðan garnli
h i inadurinn var að lesa það, horfði hann ná-
h æmlega á hann. Löngu seinna i samtali við
• iKiininn, [sem sendi hann í ferð þessa, sagði
li .nn svo frá áhrifum þeim sam Gomez hafði á
t.aun: I því augnabliki sem ég leít Gomez aug-
vini þarna í tjaldi hans, þá sá ég að ekki gat orð-
iðl nema einn endirinn á striðí Cúbamanna. Ég
fnnn það, að erindum minum var lokið; það eina
sein ég átti eftir var að sanna þetta”.
“Þú ert, eenor Preston, líka nefndur Pela-
yo?” spurði hershöfðinginn, þegar hann var bú-
iiiii að lesa bréfið.
“Já, hershöfðingi”.
— 79 —
finnum við lyktina af púðri og þurfum að rí?a
hart áður en við komum aftur".
“Já, Ch quito. Það er bezt fyrir þig, dreng-
ur minn, að hvíla þig”, sagðí Preston. “Ég
kem fljótlega aftur”,
E i Ciiipuito þverneitaði, með því að
hrista (höfuðið.
9. KAFLI.
Miðnæturförin.
Það var uppreistarforinginn Felix Buen, —
sami maðurinn sem hafði boðið þá velkomna
Gomez og Marti, er þeir komu til Cúba —, sem
bauð Preston að fylgja sér og þegar Chiquito
stóð fast á þvi að fara líka, þá vildi haun ekki
neita hinum djarfa félaga Bandarikjamannsins
að fara með þeim.
Þegar þeir voru að fara á kak, þá sagði hann
þeim að njósnarmenn þeirra hefðu komið aftur
úr sendiför og sagt þeim að lík JoseMarti’s hefði
flutt verið til Ramanganagua, og þaðan ætti að
flytja það til borgarinnar 8ant.iago de Cúba, höf-
uðborgarinnar á austurenda eyjarinnar og átti
þar að hafa það alþýðu til sýnis, svo að allir
gætu geugið úr skngga nm aðhirin mikli foringi
Cúbamanria væri fallinn, En þar á rnóti var
það þjóðráð fyrir Cnbamenn að ná líkinu, ef að
mövulegt væri, og neita því að hann væri dauð-
ur, því að menn ætluðu að það mundi hafa vond
áhrifáþanu hluta þjóðveldisins og frelsisstríð
— 78 —
/ fýrir lífi sínu, og hann sagði að til væru miklu
alvarlegri hlutir en lítið, og þá—”,
‘-Það er eins og þú hafir heyrt Jþað alt sam-
an”.
“Það var ekki nauðsynlegt. Ég veit að þú
treystir mér; og þegar ég fór út úr tjaldinu, þá
vissi ég að hershðfðingjanum geðjaðist vel að
mér. Þekkir hann Anitu ?”
“Hann hefir séð hana”.
“Sagðir þú honum að ég elskaði hana, Chi-
puito ?”
“Náttúrlega ekki. Það er þitt leyndarmál,
en ekki mitt”.
“Satter það. En gamli hermaðurinn getur
getið sér til þess, þegar hann sér hve vænt mér
þykir um bróður hennar”.
í þessu kom til þeirra herforinginn, sem
hafði verið svo snúðngur um morguninn, þegar
hann sá þau fyrst, og urðu þeir að hætta sam-
talinu. Nú gekkjhann til þeirra og rétti þeim
vingjarnlega ;hendina.
“Eg þarf aðtbiðja afsökunar, senor Pelayo”,
mælti hann. “Ég(er nú kominn til að bæta fyr
ir orð mín og hgatvísi. Ég ætla að taka .með
mér fáeina menn og riða um sveitina. Máskó þú
viljir koma með mér?”
“Það vil 'ég reyndar”,
“Kondn þá”.
l’e- ar P'eston snerist við til að fylgja hon-
um, slóst Chiquito meðí föiina.
“Það er bezt að Rta drenginn veJða eftir”,
sxgði berforinginn stillilega. “Að líkindum
— 75 —
"Og þessi drengur er Chiquito, sem hér er
getið um ?"
“Já, hershöfðingi”.
“Mér er ánægja að kynnast þér, senor Pela-
yo. Þetta biéf mælir sterklega með þér, enda
skaltu hafa liðveizlu mína. En viltu lofa mér
að vera einum með drengnum stundarkorn?
Seinna þegar óg hefi hvílt mig, þá skal ég tala
við þig”.
Þetta samþykti Preston með að hneigja höf-
uðið og með nokkrum velvöldum orðum- Kall-
aði þá hersðöfðinginn saman lófum og kallaði á
aðstoðarmann sinn og varð Bandaríkjaraaðurinn
að fara um herbúðirnar að vild sinni og var hon-
um sýnd sú gestrisni, sem latnesku þjóðirnar
einar eru vanar að sýna.
Þegar hann var farinn. sneri hershöfðinginn
sér að drengnum. Það var hálfgert bros á vör-
um hans, er hann sagði f vinarróm :
“Senorita (frú rnín); ég veit ekki hvort ég á
að hæla þér eða sneypa þig fyrir það sem þú
hefir gert’’
“Senor Preiton veit ekki um það hershöfð-
ingi. Enginn maður veit neitt um það, nema
Don Manúel, móðir mín. Pancho og ég”, svaraðí
Anita,
“Ekki er ég nú svo viss um það. Senor
Preston lítur ekki út fyrir að vera maður. sem
lótt séað fara á bak við. En ef að þú heldur að
hann viti ekkert um það. þá er það betra. Fn
óg vildi að þú segðir mér það og segðir sannleik-
ann; hefir hann aldrei létið á því bera, að hnnn
vissi að þú ert ekki það sern þú sýnist vera ?’’