Heimskringla - 17.08.1899, Síða 1
jjf n # 'g g
neimskringia.
XIII. ÁR WINNIPEGy MANITOBA 17. ÁGÚST 1899.
Skrifað upp
Frjettir.
Markverðustu viðburðir
hvaðanæfa.
Einsetukarl nokkur fanst dauður í
herbergi sinu i [ Montreal núna í vik-
unni. Hamn hafði lifað á bónbjörgum
og var álitinn blásnauður. En að hon-
um látnum fundust 817,000 í veðskulda
hréfum, saumað í garnla yfirtreyju,sem
hann átti, og í kistu hans fanst bánka-
bók upp á $400 og eitthvað af pening-
um fanst i vörzlum hans.
Stjórnin í Washington hefir samið
skýrslu, sem sýnir, að fyrir 23. Októ-
ber næstkomandi verða 46,000 Banda-
ríkja hermenn komnir til Filipseyj-
anna, eða áleiðis þangað Stjórnin
vonar að þessi mannfjöldi reynist nægi-
legur til þess að vinna eyjarnar.
Það á að fara fram bókabruni í bæn
um Toledo í Ohio þann 15. þ. m. Þar
býr Marchal O. Wriggoners. Hann
var trúleysingi mikill og átti stórt
bókasafn, sem er mörg þúsund dollara
virði. Waggoner hefir nú snúist til
kristinnar trúar, og í minningu þess
ætlarjhann að láta brenni', alt bókasafn
sitt, sem að mestu eru vantrúarbækur,
úti á miðju stræti frammi fyrir kyrkju
þeirri sem hann nú tilheyrir.
Nýútkomnar skýrslur á Englandi
sýna, að tala vitskertra manna þar í
landi er óðum að fara í vöxt. Þar eru
nú 105,086 vitskertir menn og konur.
Er það 8114 fleira en í fyrra. Skýrsla
þessi hefir vakið mikla eftírtekt, og er
búist við að næsta þing setji nefnd til
þess að athuga orsakir til þessa yax-
andi sjúkdóms, og bezta meðal til þess
að sporna við útbreiðslu hans. Mest
kveður að þessu meðal fátækasta fólks-
ins í landinu.
Forsetar lýðveldanna: Argectine,
Braziliu og Chili, ætla að hafa fund
með sér í næsta rnánuði, til þess að
semja um samband milli þessara ríkja
til sameiginlegrar varnar móti mögu-
legum árásum Bandaríkjanna. Vilja
þeir koma í veg fyrir að Bandamenn
leggi þessi riki undir sig á sama hátt
og þeir eru að gera nú við Filipseyjarn-
ar. Fundurinn verður haldinn í Bue-
nos Ayres.
Það eru að verða greiðar samgöng-
ur til Dawson. Canadian Develop-
ment-félagið hefir flutt farþegja frá
Ottawa til Dawson á 10i dögum, og frá
Vancouver til Dawson á 6 dögum.
Dominiou og Imperial stjórnirnar
eru að vinna að jþví í samlögum, að
auka og styrkja víggarðana í Victoria
og annarstaðar á Kyrrahafsströndinni.
Er ætlað að sá kostnaður muni nema
8125,000. Hálfur kostnaðurinn verður
greiddur af ensku stjórninni og hinn
helminginn greiðir Dominionstjórnin
Einnig á að bæta þar við nokkur
hundruð hermönnum, aðallega frá Eng-
landi, og eru 320 þeirra nú á leiðinni
hingað. Yfirherforinginn kemur frá
Englandi innan tveggja mánaða.
Yyfirforingi St. John á brezka her-
skipinu Peacock, sem nýlega kom frá
Filipseyjunum, ber Otis, yfirherstjóra
Bandamanna þar á eyjunum, ljótan
vitnisburd. Hann segir Otis gersam-
lega óhæftn til herstjórnar; hann hafi
ekkert vit ft hvað gera þurfi í svc.na
löguðum leiðangri. Hann sé of hik-
andi og framkvæmdarlaus, og það sé
aðallega því að kenna að Bandamenn
gangi svo seint að kæfa upi>reistina.
Flutningsfæri Bandamanna og sjúkra-
hús þeirra segir hann að sé í allra
versta lagi og það sé því að kenna að
nú séu dauðir 5000 hermenn Bandaríkj-
anna þar eystra- Það er vissulega
sorglegt, segir hann, að sjá þessum á-
gætu hermönnum fórnfært þar eystra.
Fj'rsta ’spor Washingtonstjórnarinnar
ætti að vera það, að kalla Otis heim
aftur.
Ottawa-þingið hefir samþykt að
vínsöluleyfi í Yukonlandinu skuli að
elns veitast af stjórninni i Ottawa, en
ekki af embættismönnum hennar í Yu-
kon. Enn fremur hefir þíngið sam-
þj'kt, að engin vín- eða ölgerð skuli
vera leyfileg þar vestra.
Það litur út eins og Boarnir í
Suður-Afríku búist við ófriði við Eng-
lendinga. Þing þeirra hefir nýlega
bætt einum lið við stjórnarskrána, sem
veitir forseta lýðveldisins vald til þess
að taka hvern vopnfæran mann til þess
að berjast fyrir föðurlandið, ef nauðsyn
krefur, og má hann gera þetta án þess
að ráðgast um það við þingið. Enn
fremur hefir þingið samþykt að engin
ástæða sé til þess að taka ráð Cham-
berlaines, brezka utanrikisráðgjafans,
til greina, um að setja sameiginlega
nefnd af enskum mönnum og Bóur-
um, til þess að athuga þau áhrif. sem
nýju kosningalögin i Transvaal-lýð-
veldínu hafi á íbúa landsins. Þykir
þessi samþykt vera óvirðingarmcrki við
England og benda til þess, að gamli
Paul Kruger ætli sér að halda stefnu
sinni gagnvart útlendingum í ríki
hans í sama horfi og verið hefir.
Nýlega gerðar tilraunir á Englandi
sanna, að hægt er að senda hraðskeyti
í loftinu, 170 mflur, án þess að hafa vír
til þess. Það þykir vist, að við frekari
tilraunir verði hægt að sýna og sanna,
að það verður hægt að senda hraðskeyti
á þennan hátt miklu lengri veg, ef til
yill alla leið yfir Atlantshaf.
Herrétturinn á Spáni, sem rann-
sakar kæru stjórnarinnar á hendur
Torel hershöfðingja og öðrum herfor-
ingjum undir stjórn hans fyrir að hafa
gefið upp vörnina við borgina Santiago,
í orustunum við Bandamenn, án þess
að vera neyddir til þess, hefir nú sýkn-
að jhershöfðingjann af kærunni. En
svo skall hurð þar hælum nærri, að
dómurinn féll honum í vil með að eins
1 atkvæði umfram.
Aguinaldo, foringi uppreistarmanna
á Filipseyjunum, hefir sent skjal mikið
til stórveldanna og krefst þess, að þau
viðurkenni Filipseyjarnar frjálsar að
vera og óháð lýðveldi. En ekki er bú-
ist við að hann fái þessa ósk sína upp-
fylta. Bandaríkin standa i vegi fyrir
slíkri viðurkenningu.
Ákafur fellibylur æddi yfir Vest-
Indíaeyjarnar þann 10. þ. m. Regn-
flóðið í bænum Bonce héizt við frá kl.
8 að morgni til kl. 3J e. h. Allur bær-
inn fór í kaf, og 200 manna drukknuðu.
Bærinn má heita algerlega eyðilagður.
Skaðinn metin hálfa milíón dollara.
Sami stormurinn æddi yfir Montsorratt
eyjuna og gjöreyddi byggingum á henni
og drap 100 manns og meiddi marga.
Sagt er að voðaleg neyð þrengi að fólki
því sem eftir lifir á eyjunum.
Hjólreiðar fóru fram í Montreal
í vikunni sem leið. Þar reið John A.
Nelson frá Chicago 100 kilometra (62
mílur 573 fet) á 2 klukkustundum 4 ’mí-
nútum og 13J sek. Hann fór 15 milur
á 28 mínútum 12J sek., 30 mílur á 57
mínútum 28 2/5 sek. Er þetta ein Jsú
tíjótastaferð, sem gerð hefir verið á
reiðhjóli í nokkru landi á þeirri vega-
lengd.
Sú fregn er borin út, að Alex Mc-
Donald, gullkóngurinn mikli f Klon-
dike, sé gjaldþrota, og að skuldir hans
nemi 6 milíónum dollara. McDonald
telur eignir sinar 820 miiíóna virði. En
segist ekki munu geta fengið nóg verð
fyrir þær til að borga allar skuldir sín-
ar, ef hann verði neyddur tíl að selja
þær etrax. Hann vonar að skuldu-
nautarnir veiti sér frest til þess að
koma eignum sínum í verð, svo að
hver og einn geti fengið skuld sína
borgaða að fullu. Kona hans, sem nú
er í Vancouver, segir, að hvorki hún
né bankar þeir, sem þau hjón hafa við-
skifti við. leggi nokkurn trúnað á sögu
þessa, og að lánstraust McDonalds se
eins gott nú hjá bönkunnm og nokxru
sinni áður.
Síðasta herréttarprófið yfir kaftein
Dreyfus stendur nú yfir í Rennes á
Frakklandi. Það er haldið í stórhýsi
miklu. Almenningi er leyft að hlusta
á það sem þar fer fram. Er próf þetta
búið að standa yfir nokkra daga, og
eftir þvi sem lengra líður á tímann,
eftir því er útlitið betra fyrir hinum
kærða. Fyrverandi forseti Frakklands,
Casimer Perier, og fyrverandi her-
málaráðgjafi Mereier. hafa báðir
borið vitni í málinu, og ber þeim svo
illa saman, að vitnisburður Merciers
sem aðallega var andvígur Dreyfus, er
talinn lítt nýtur. Enda æptu áheyr-
endur að honum í dómsalnum með als
kyns hæðnisorðum og bölbænum, en
hrópuðu fagnaðaróp fyrir Dreyfus i
hvert sinn sem hann lagði fram varnar-
orð fyrir sig. Jafnvel dómsforseti
Jouaust, sem áður tók aldrei undir
þegar Dreyfus lieilsaði honum, er nú
farin að taka undir við hann og orðinn
miklu þýðari í allri framkomu gagn-
vart honum, en áður. Að óvinir Drey-
fus hatí verið sannfærðir um að hann
verði sýknaður, sést bezt af því, að
einn úr þeirra flokki lá í leyni fyrir lög-
manni Dreyfus, M Labori, á laugar-
dagskvöldið var og skaut hann í bakið.
Þykir tvisýnt um líf hans. Þetta er,
sem vonlegt er, álitið hið meesta níð-
ingsverk, og hendir ljóslega á hve flokk-
ur þeirra er ráðþrota við að halda raáli
þessu fram með nokkrum heiðarlegum
meðölum.
Jóni Einarssyni til minnis.
“Og eigi þótti mér síður spaugi-
legt þegar ég sá i Hkr. kynbæturn-
ar á orðinu “vor”, sem ég minnist
eigi að hafa séð ættfært öðruvísi en
sem hvorugtkyn, en sem nú var rit-
að í Hkr. sem kvennkynsorð.”
Jón Einarsson í Blaðakaunum.
Það sem Jön þessi á við, eru ef-
laust þessar hendingar úr vísunum
“Vor” eftir mig, sem prentaðar voru
í Heimskringlu :
-----Komin til vor
Er unnustan ástar og kvæða :
Hún andheita, fjöruga Vor.
Það er spauglaust að þurfa að
minna kennara sína á. Eg geri það
líka af handahöfi og alveg utanbókar.
Vetur efra ég eygi.
En ið neðra ég sé
Mey sem höfuð hnegir
Hýr í föður kné.
Hallast Torié vetri nær.
Karls við freðið klakaskegg
Kærust dóttir hlær.
Þessi vísa er eftir Steingrím Thor-
steinsson. Hún er margsinnis prent-
uð og nærri í hvers manns munni.
Eg trúi að Þjóðverjar nefni stund-
um vorið “Fruhjahr”, og ef til vill
“Lenz”, og það kváðu vera hvorug-
kyns orð. Svo er mælt þeir nefni
það líka “Fruhling” og það er “ætt-
fært” sem karlkvnsorð.
“Meyjan af ókuuna landinu” er
fyrsta kvæðið í Svunhvít, íslenzk-
aðri ljóðabók. Það kvæði er eftir
Schiller og er ort um vorið. Svona
byrjar það:
í dal þar hjarðfólk örsnautt undi
Kom alla tíma vors með þey,
Er fuglar kváðu fyrst í lundi,
Ein fríð og undursamleg mey.
I afdal þeira hún ei var borin
Og óvíst hvaðan kom hún að.
Á huldu vóru hennar sporin,
Þá Jiún úr dalnum fór af stað.
Það er líklegt, að einhver þýzkur
Kauna-Jón í málfræðinni, hafi sett út
á þetta, þó ég viti ekki um það. En
lítill hefir árangurinn orðið, því enn
er Schiller talinn merkishöfundur
Þjóðverja, og þetta kvæði með hin-
um fallegri al smákvæðunum hans.
Schiller kveður um vorið serfh
“fríða og undursamlega mey”; Stein-
grímur sem “dóttur vetrarins”—og
ég, sem “unnustu ástarinnar ogskáld-
skaparins.” Það munar efiaust miklu
um skáldskap minn og þeirra, en
meðferð málsins er lík hjá okkur öll-
um, og nú ætti ýJón Einarsson að
ranka við því.
Það ætla ég, að vorið sé nefnt
“Spring” á eiiska tungu, ogþað segja
menn mér að sé hvorugkyns orð líka.
Þessu líkt kveður þó Tennyson í
“Progress af Spring”:
Komdu Vor......
llún kemur—leystir lækir renna’
af stað—
Með ljósgult hár úr klakafléttum greitt,
Ilún lausan möttul limum sveipar að
Úr ljósi og gróðri, en svalann geturleitt
Um brjóstið bert og heitt.
Hér er vorið kvennkent, alveg
umsvifalaust. Víða hefði Jón Ein-
arsson þurft að hrífa um kaunin. Það
er annars hverjum manni ljóst, sem
um það hugsar, að af því vor og sum-
ar eru fegurstu árstíðirnar, hafa
skáldin kvennkent þær, ef þeir lýsa
þeim með mannseinkennum, eða sem
ímynduðum verum.
Sumir fróðir menn beita dóm-
greind sinni helst til þess, að skoða
undir rófuna á einstökum orðum. Það
er eflaust vísdómur út af fyrir sig,
en sjaldan eru þeir menn andlega
giöggvir.
Skáld, eins og Steingrímur, Schill-
er og Tennyson, brjóta stundum mál-
venjuna til að auðga hugsanina,
fegra formið, auka áhrifln.
Það er hverjum manni sæmd að
hafa vilja og vit til að verja móður-
mál sitt lýtum. Hinu má maður þó
ekki gleyma, hin dýrasta auðlegð
hvers tungumáls liggur fremur í yflr-
gripsmiklum hugsunum, en tómum
málfræðis útbrotum.
Sá sem leggur það í vana sinn, að
glypja niður langa orðalopa af efnis-
leysu, spillir tungumáli sínu, þó orð
hans og grein'askipun sé málfræðis-
lega rétt og standi keiprétt, eins og
tóm eggjaskurn í náttúrugripasafni.
Sá sein eykur einni einustu snjallri
hugsun inn í máiið sitt, heflr unnið
því stórgagn, jafnvel þó hann hafl
brotið með því eitthvert boðorð í mál-
fræðinni þess.
En því nær, hvorki ég í kvæðinu
“Vor,” né Jón Einarsson í athuga-
semdinni sinni við það.
Stephan G■ Stephansson.
Fyrirboði.
Einn af þeim allra stærstu stjórn-
málafundum, sem nokkurn tíma
hafa verið haldnir í þessu fylki, var
haldinn nálægt bænum Carberry
þann 10, þ. m. Það var Conserva-
tíva fundur, Það hafði verið aug-
lýst að Hon. Hugh John Macdonald,
leiðtogi Conservatívaflokksins, ætti
að tala þar, og var þar líka og hélt
ágæta ræðu. Um 2500—3000 manns
sótti fund þennan, og keyrðu sumir
um 80 mílur til þess að hlusta á hinn
komandi stjórnarformann þessa fylk-
is. 2 hornleikendaflokkar voru þar
á staðnum; annar frá Cerberry, en
hinn frá Glenboro. Allmargir stjórn-
málamenn töluðu á fundi þessum og
geðjaðist tilheyrendum vel að máli
þeirra. Free Press segir að að eins
500 manns hafi verið þar saman
komin og haft með sér fíólín og org-
el, út af þessu hafi 7 málsmetandi
menn f bænum Carberry vottað það,
að frá 2—3 þúsund manns, og tveir
hornleikendaflokkar hafl verið á
staðnum, og að þetta sé sá stærsti og
fjörugasti pólitiskur fundur, sem
þeir hafi séð í fylkinu, og að öllu
leyti mjög ólíkur ómyndar fundum
þeim, sem Mr. Greenway hefir hald-
ið, svo sem Rapid City-fundi hans,
sem var svo ilia sóttur, að að eins
örfáar hræður voru viðstaddar þar
til að hluSta á marg-upptugginn
þvætting gamla mannsins. Það var
auglý.t að ivagnlest með 16 fólks-
flutningsvögnum ætti að renna frá
Brandon til Rapid City, til þess að
flytja fólk á Greenway-fnndinn. En
þegar til kom, þá fóru að eins 5
vagnar af stað, og fólkið á þeim fór
á allar aðrar stöðvar fram með
brautinni. Þeir sem fóru af lest-
inni í Rapid City voru 3 ráðgjafar
Greenways, sem auglýstir höfðu ver-
ið að tala þar á fundinum, og tveir
aðrir menn, segi og skrifa t v e i r
tilheyrendur frá Brandon. Það var
alt og sumt, sem þessi augiýsta 16
vagna lest flutti á fundinn. Það er
auðséð á öllum atlotum, eftir því
sem nær dregur kosningunum, að
kjósendur eru farnir að bera inni-
lega fyrirlitningu fyrir Greenway
og öllu hans úthaldi, en líta á Hugh
John Macdonald sem hinn komandi
mann.Væri þetta ekki svo, mundi
f ólk ekki sækja fundi hans í þús-
unda tali, og frá 80 mílna fjarlægð,
eins og það gerði á Carberry-fund-
inum.
Tilbúin kol.
Maður að nafni Montag hefir upp-
götvað aðferð til þess að búa til kol og
býr hann þau nú til og selur til elds-
neytis. Hann segir sjélfur fra því að
hann hafi nú tekið einkaieyfi f 23
löndum, fyrir þessar uppfyndingu
sinni. En að svo stöddu neitar hann
að gefa uokkrar upplýsingar um það
hvernig kolin séu búin til en lætur þess
þó getið að 94/100 af efninu í þeim sé
aigeng mold, en 6/100 sé efnafræðislegur
samsetningur. Þessi tilbúnu kol segir
hann vera miklu heilsusamlegri til nota
heldur en vanaleg kol, að því leyti að
þau gefa ekki frá sér neina óheilnæma
lykt eða svælu og eru rniklu hreinlegri
í allri meðferð, mynda ekkert gjall í
eldstæðinu og gefur miklu minni ösku
af sér eu almenn kol. Þau eru bæði
drýgri og ódýrari en almenn kol og
moldina i þau má nota úr hvaða landi
sem er hversu ófrjór sem jarðvegurinn
kann að vera. Vélarnar til að fram-
leiða þessi kol eru mjög ódýrar, kosta
ekki yfir $3,750.00.—Kol þessi gefa
meiri hita og endast lengur en algeng
kol. Eitt tonn af tilbúnum kolum
endist eins lengi og 1J tons af hinum.
Sé þessi uppgötvun áreiðanleg þá ætti
hún að verða að stórmiklu gagn; fyrir
ísland, meðþvíaðþá mætti framleiða
þessi kol þar 1 landi og þar með væri um
leið ráðin gátan um samgöngur og
ýmsan iðnað í landinu.
Kosninga-klækir.
Ekkert mál hefir vakið meiri eftir-
tekt eða megnari viðbjóð á atferli
stjórnmálamanna í Canada, en hin sví-
virðilegu kjörseðlasvik og önnur kosn-
ingabrögð liberala í Ontario fylkinu í
kosningabaráttu þeirra fyrir Ontario og
Ottawastjórnirnar. Ein stór nefnd úr
Ottawaþinginu hefir setið svo mánuðum
skiftir við að rannsaka þessi mál og
niðurstaðan er sú að alt sem gert hefir
verið af hinni svo nefndu kosningavél
Liberalflokksins hafi verið gert að und-
irlagi og með fullri vitund og samþykki
þeirra manna sem standaffyrir framan
í flokksmálum. Það heflr verið skilaust
sannað að einn af ráðgjöfum Ontario
stjórnarinnar heldur nú sæti sinu og
embætti i stjórninni með stolnum og
sviknum atkvæðum og eins hafa þing-
menn til rikisþingsins verið kosnir á
sama hátt. Svikin atkvæði komu í
tugatali úr kössunum, og einir rnaður
játaði að hatm hefði greitt 22 atkvæði
á einum degi fyrir liberal umsækjanda.
Það var Farr kjðrstjóri. Hann fékk
$500 fyrir vikið og fríja ferð til Dakota
og nú er það komið upp að sá sem
borgaði honum skildingana og sendi
hann út úr ríkinu, var J. Vance, yfir-
umsjónarmaður fyrir liberalflokk.nn
við kosninguna í West Huron-kjördæm-
inu. Þessi sami James Vance var að-
stoðar Organizer liberalflokksins í Ont-
ario-fylki. Enginn veit enn þá hvaðan
hann fékk peningana til að koma Farr
undan, en það er talið ólíklegt ad hann
hafi borgað það fé af eigin eignum sín
um. Við próf þessara mála í Ottawa
kom það í ljós að leiðtegar liberalflokks-
ins gerðu alt sem í þeirra valdi stóð til
þess að hindra það að sannleikurinn
gæti orðið leiddur í ljós, T. d. var búið
að kalla 9 vitni frá Goderich í Ontario
og flytja þau tií Ottawa, en liberalar,
sem voru í meirihlúia í nefndinni, neit-
uðu að láta þau i era vitni i tnálinu og
máttu þau því fara svo búin heim aftur,
en ferðakostnaður og vitnakaup þeirra
nam $400, borgað úr ríkissjóði. Með
þessu athæfi hafa liberalar sannað. ekki
að eins það að þeir séu meðmæltir þess-
um klækjarefum, heldur að þeir eru í
vitorði með þeim og að þeir æfla sér að
nota þá framvegis við kosningar. Á
hinn bóginn hafa þær opinberanir sem
komið hafa fram við ranusókn þessara
mála fælt ýms blöð og marga heiðar-
lega menn frá liberölum. Þeir fyigdu
þeim af því þeir álitu flokkinn góðann,
og forvígismenr hans heiðarlega menn.
Nú hafa þeir fengið sönnun fyrir hinu
gagnstæða og þess vegna yfirgefið
flokkinn.
Dánarfrejin.
Sunnudagsmorguninn 6. þ. m.
(Ágúst) andaðist að heimili föður síns,
Hallgríms Bachmanns Jí VV. Selkirk,
Man.. stúlkubarnið Anna Sesselja,
rúmra 9 ára að aldai, fædd i Duluth,
Minn.15. Júníl890. Dauðamein hennr
var tæringarveiki, “íslenzk kirtlaveiki
og beintæving,” að Dr. M. Halldórsson
sagði, er hann skoðaði hana í síðastl.
Maímán. Húu var búin að vera stöð-
ugt undir læknisheudi fullkomið ár, en
ekkert stóðaði. hún var gædd frábærri
greind og stillingu, svo ung sem hún
var. Hún var jarðsett frá ísl. ksrkj-
unni, næsta mánud. á eftir. að við-
stöddum miklum fólks fjöida. Séra
Bjarni Þórarinsson, sem þá var stadd-
ur hér í Selkirk, hélt mjög lipra lík-
ræðu í kyrkjunni, og fylgdi síðan lík-
inu til grafar og jós það moldu. Von-
andi að honum auðnist að vinna fleira
fyrir íslendinga hér í landi.
H. B.
S J A l Ð !
Til þess að selja alt sem enn er óseh
af okkar miklu bvrgðum af Muselin
gluggatjöldum, þá seljum viðnú alt sem
enn er óselt af þeim, fyrir að eins
helming
vanaverðs. Allar aðrar vörur seldar
með samsvarandi atslætti
$3.00 gardínur fyrir $1.50.
$1.50 gardínur fyrir 75 c.
574 jUain St*.
Telefón 1176.
RÓSIN.
Sitt höfuð beygir hnigin rós
i húnfl köldu nætur,
þá sér hún ekkert sólarljós
hún syrgir vin og grætur.
Og blómanu missa blóminn smá
og byrgjast hrygðar drunga,
sem grátin ekkja grafreit hjá ,
þú grúfir rósin unga.
En aftur geislinn að þér suýr
Með ástar kossum löngum.
og þér svo veitist þróttur nýr
hann þerrar tár af vöngum.
Þá alt þín fegurð hrífur hér
og helgar sumardaginn,
svo drotning engin dýrðleg er
þú dansar létt við blæinn.
Af moldu býr og saumar sól
þinn sumarbúning skæra.
Þá sig af nýjum silki kjól
ei svannar þurfa að stæra.
Þú náttúrunnar faðmi frá
ei falska liti tekur,
þin saklaus, hrein'og svefnhýr brá
þó sanna undrun vekur.
Og samt þín biður sorgarspil
hið síðsta stríð að heyja.
En hvenær vanstu hefndar til
á hausti strax að deyja.
S. S. ísfeld.
GÓÐ TÍÐINDI
hljóta það að vera öllum sem veikir eru
að rafmagnsbelti mín (Electric öalvaoic
Belt) eru þaú undraverðustu belti í
heiminum, þar eð þau lækna sjúkdóma
betur en önnur belti sem kosta $5.00 til
$30.00. Þessi belti min endast æfilangt
og ganga aldrei úr lagi. Þau eru áreið-
anleg að lækna liðaveiki, gigt, tann-
pínu, Kirtlaveiki, alskonar verk sárindi
og kvalir, svefnleysi, hægðaleysi, lifr-
arveiki, hjartveiki, bakverk, nýrna-
veiki, magaveiki. höfnðverk, kvefvéiki
La Grippe, andarteppu, taugasjúkdóma
og alskonar kvennsjúkdóma. Engar
ástæður að vera veikur þegar þér getið
orðið læknuð. Þér verðið varir vid
verkanir beitisins eftir 10 minútur.
Af þvi að ég vil að allir kaupenaur
Heimskringlu eignist þessi belti þá sel
égþauáll.OO hvert, eða 6 belti fyrir
$4.50 um næstu 60 daga. eftir 60 dapa
hækkar verðið.
J. Lakander,
Maple Park,
Cane Connty
Illinois, U. S. A.
Ekkert því líkt.
HEILSUSALTIÐ ÁGÆTA,
ÞORSKALÝSIÐ ALKUNNA
frá Noregi (alveg eins og
og þið höfðuð á fslandi.
PHOENIX LITIRNIR NORSKU
með íslenzkri forskrift, sem
lita alt mögulegt, silki jafnt
sem vaðmál. — Alt þetta og
ótal margt fleira af Norður-
landavörum fást í
Lyíjabúðinni í
Pembina, N.D.
Kennara
vantar til BALDURSKÓLA fyrir
timabilið frá 15. September til 15. Des-
ember næstkomandi, fyrir það fyrsta-
Umsækjendur tiltaki hve mikið kaup
þeir vilja hafa. Tilboðum verður veitt
móttaka af undirskrifuðum til 23.
Ágúst næstkomandi til kl. 12, hádegi.
Hnausa, 15. Júlí 1899.
O. G. Akraness,
ritari & féhirðir.