Heimskringla - 15.02.1900, Blaðsíða 1
XIV. ÁR
19.
Heimsknngia.
—»• ■ ■ - ■ ■ — ■ ■ —
WINNIPEG, MANITOBA 15. FEBRtJAR 1900.
Frjettir.
Markverðustu viðburðir
hvaðanæfa.
Herfréttir eru sem áður nokkuð ó-
ljósar. Gen. Buller hefir flutt her sinn
allan norður fyrir Tugela ána og fór
það á 2 klukkustundum. með því að
Búar veittu honum engan farartálma.
Á mánudaginn og þriðjudaginn í fyrri
viku var barist hjá Vaal Krantz i Nat
al-héraðinu, og vann Buller þar 2 vígi
frá Búum og hélt þeim. Mannfall hafði
orðið allmikið á báðar hliðar; mistu
Bretar í þeim bardögum 233 menn að
meðtöldum hershöfðingjum. Þessar
fréttir þóttu góðar í Lundúnum, því
að þrátt iyrir mannfallið sem orðiö
hafði, þá var nú talið algerlega víst að
Buller mundi takast að leysa Lady-
smith úr umsáti Búanna. Svo leið tím-
inn þar til á föstudaginn að ekkert
fréttist frá Buller. En þá kom frétt
um það, að hann héfði o rðið að hörfa
frá þeim stöðvum, sem hann var búinn
að vinna, og halda hernum aftur suður
fyrir Tugela-ána. Sé frétt þessi sönn,
og henni er alment trúað, þá er það i
þriðja sinn, sem Búar hafa rekið Breta
af höndum sér. Þetta varð Mr. Bal-
four að játa í þinginu í London á föstu
daginn. og þykja það illar fréttir. —
Blaðið J!iondon Times getur þess til að
Buller muniekki gera fjórðu tilraunina
til aðsækja Búana á þéssum stöðv> m,
og Þykir útséð um að Bretar komist til
Ladysmith í tíma, tíl að bjarga liði því
sem þar er í herkví.
Macdonald hershöf ingi hefir, eftir
síðustu fréttum, hörfað undan Búum
við Modder Biver. Átti hann að halda
liði sínn til Koodoosberg til þess að
hindra Búana frá að mynda þar vigi.
Var svo Babiugton hershöfðingi seudur
með lið sítt til að hjálpa Macdonald til
að ráðast þar á Búa..a. Eu svo er að
sjá að þessi sameinaði her hafi fengið
skipun um að halda til baka til Modder
Biver. En það þykir mjög óskiljan-
legt. — Balfour saýrði ff-á því i þing-
inu á föstudaginn, að stjórnin áliti ekki
rétt að heirnta nákvæmar skýrslur frá
Buller, eða að hann gerði grein fyrir
ástæðum þeim sem hann kynni að hafa
fyrir skipunum sínum uin hreyfingar
hersins þar syðra, og gat þess enn
fremur, að þó stjórnin fengi vitneskju
um þetta eða hitt, þá væri ekki álitið
nauðsynlegt að gera það kunnugt al-
menningi. Þess er og getið að stjórnin
ætli að biöja þingíð um 10,600,000 doll-
ara til þess að auka herskipaflotann, og
65,000,000 dollara er búist við að þingið
verði beðið að veita til annast herkostn-
aðar. í viðbói víð það sem þegar hetír
veriö veitt. Eu þessi upphasð nægir að
eins til enda þessa mánaðar.
Mælt er að Bússa keisari hafi ferð-
ast til Rómaborgar í þeim erindum að
fá stjórn Ítalíu til að leggjast áeitt með
Bússjandi og Þýzkalandi að leiða Breta
Búa-stríðiö til lykta með valdi, ef önn
ur meðul ekki duga.
Eldur ,kom upp í herskipakvíum
Bandamanna, í Brooklyn, og gerði
$100,000 skaða.
General Hutton, yfir hershöfðingi í
Canada, hefir sagt sambandsStjórninni
upp embætti sínu. Hann ætlar til
Suður-Afríku að hjálpa Bretura.
Það er talið áreiðanlegt að England
og Portugal hafi myndað sóknar og
varnar samband, þrátt fyrir það að
stjórnir beggja þjóða látast ekkert vita
um þetta og neita að það sé svo.
Stríðsfréttir á mánudaginn segja
Búana vera að sækja sóknina bæði á
Ladysmith og Kimberley. Það hafði
frézt að Geueral White hefði reynt að
komast úr Ladysmith með her sinn, en
ekki er sagt hvernig Það hafi tekist.
598 lík af Baudaríkja hermönnum
hafa verið flutt til San Francisco, á síð-
astl. 2 vikum, 375 líkkistur hafa verið
pantaðar og eiga að sendast tafarlaust
til Manilla.
Ný frétt frá Kimberley segir á-
standið hjá brezka hernum þar í illu
lagi, fóðurskortur hefir verið þar um
nokkrar vikur og hafa hermenn verið
aldir að mestu á hestakjöti síðan 8. Jan.
síðastl. Konur og börn hafa orðið aö
svelta af því þau gátu ekki þolað þessa
íæðu. Dauðsföll i bænum hafa verið
mjög mörg að undanförnu og fara
stöðugt vaxandi. Þessu ástandi hefir
rerið haldið leyndu fyrir alþýðunni á
Englandi þar til nú að það gat ekki
hulist lengur.
Járnsteypumenn þeir sem gerðu
verkfall, í Clevelatd, fyrir kauphækkun
hafa unnið sigur. Hér eftir á kaup
þeirra að verða $2.50 á dag, það er 25c.
um tímann fyrir 10 tíma vinnu, En
37Jc. á timann fyrir aukavinnu nema á
sðnnudögum þegar þeir fá 50c. um kl.
tímann.
Um 30,000 mormónar ætla að sögn
að flytja frá Utah til W\yoming á þessu
ári, þeir eru orðnir þreyttir á of-
sóknum einkvænisraanna og hafa gert
samninga við Wyomingstjórnina að
setja til síðu 200,000 ekrur af landi sero
þeir ætla að setjast að á.
Algerður sólmyrkvi verður í Banda-
rikjum 28. Maí næstk. Stjórnir Breta,
Frakka, Þjóðvarja og Austurríkis hafa
tilkynt Bandaríkjastjórn að þær ætli
að senda vísindamanna hóp vestur um
haf til að athuga myrkva þenna. En
Bandaríkjastjórn hefir gert ráðstafanir
til þess að veita gestuin þessum sæmi-
legar viðtökur.
Púðurgerðarhús í Kína sprakk í
loft upp í síðastl. mánuöi og mistu þar
190 manna lífið. Eldnrinn hljóp i hús-
in þar umhverfisog allur bærinn braun
til ösku.
Ottawa-stjórnin hefir beðið þingið
að veita 2 milíónir dollara til að borga
canadiskum hermönnum í SuðurAfríku
og til að mynda hjálparsjóð fyrir fjöl-
skyldur þeirra, sem faala í stríðinu.
Það er ætlað að þessi upphæð nægi tii
að borga hermönnunum upp til 1. Júlí.
Verði þeir á vígvellinum eftir þann
tíma, þá verður stjórnin að biðja þing-
ið um meira fé.
Eldur kom upp í verkstæði í Japan
22. Janúar; brunnu þar 60 stúlkur til
bana.
Svartidauði, sem geisað hefir yfir
Kinaveldi og Japan, liefir verið kend-
ur rottum. Stjórnir þessara landa
hafa því tekið það ráð að kaupa allar
þær rottur, sem þeim buðust, og gáfu
vissa upphæð fyrir hverja tylft. Hundr
uð þúsunda af þessum skepnum hafa
verið seldar stjórniuni. og hefir hún lát-
ið kryfja þær og skoða. en engin merki
sjúkdómsins hafa fundist í líkömum
þeirra, og eru þvi rotturnar fríkendar
af ákærunni um útbreiðslu þessa
hrylliiega og inannskæða sjúkdóms.
Eitt þúsund kínverskir kolanáma-
menn börðust nýlega við eitt hundrað
jafaniska vopulausa sjómenn. Japan-
ítar unnu bardagann, þó þeir hefðu að
eins .1 á móti 10.
Rothchild auðmennirnir áEnglandi
hafa nýlega keypt koparnámuland norð
arlega i British Columbia, nálægt Ben-
nett Station, fyrir 2 milíónir dollara.
Er þetta talið hæsta verð, sem enn þá
hefir verið borgað fyrir uokkra óunna
námalóð, euda segja skoðunarmenn
Bochields, að 10 miliónir dollara virði
af málmblendingi liggi ofanjarðar á
svæði þessu.
Lönreglan í Baltimore hefir hand-
samað Authouy Decker, sem er for-
sprakki í peningafalsarafélagi nokkru,
og hafa einhverjir af félögum hans ver-
ið teknir fastir í Ontario. Sagt er að
félag þetta hafi gefið út canadiska $1
bankaseðla. og er mikið af þeim á
gangi í Montreal og öðrum borgum í
Ontario.
Bréf frá Yukon segir veturinn þar
hafa verið veðnrmildan fram að 12, Des.
eftir það herti frostið og varð það að
jafnaði 30 st. fyrir neðan zero, en féll
einstaka sinnum 66 og jafnvel (>0 fyrir
neðan zero, en það er yfir 40 gráður á
Reaumur mælir. Gulltekjau er þar
mikil i vetur og menn eyða peningum
óspart. Margt er og nú miklu ódýrar
en á undanförnum vetrura, sérstaklega
sykur smjör og egg og mjólk; nýtt kjöt
fra 50 til 75c. pundið, Húsaleiga dýr,
búðir 15—20 fet að innanmáli leigjast
frá $150 til $400 um mánuðinn, Póst-
göngur með bezta móti, bréf fara viku-
lega frá Dawson. TFinnipeg blöðin
dagsett 7. Des., komu til Dawson 30.
s. m. Engar nýjar námur hafa fundist
þar í vetur.
Fréttir í gærdag frá Suður Afrfku
segja Búana herða sóknina. H<tfa Þeir
barist við Breta á ýmsum stöðum síð-
astl. 2 daga og haldið sínum hluta, eða
betur. Við Rensburg hefir mest verið
barist og Bretar varist vel. Blaðið
Times í London segir um'.herstjórnina,
að hversu nákvæmlega sem hún sé at-
huguð, þá finnist þar ekki annað en
stefnuleysi og framtíðardraumar, og að
alla fasta ;stefnu og ákveðið markmið
vanti. Önnur London-blöð eru í illu
skapi út af ástandinu og hversu örðugt
Bretum gengur að sigra Búana.
Cape Nome.
Mr. J. L. White, umsjónarmaður
Bandaríkjanna yfir gullnámastöðum í
Cape Nome á Alaskaskaganuin norðan-
verðum, um 200 mílur frá St. Michek'
kom hingað til bæjarins í síðustu viku.
I samtali við blaðamaun hér, gaf hann
eftirfylgjandi lýsingu á Cape Nome,
eða öllu fremur ástandlengju þeirri sem
liggur milli Nome og York höfðanna á
norður strönd Alaska. Mr, Whitesagði:
Ég er gamall námamaður, og get
sagt það með vissu að Cape Nome gull-
upptektasviðið er það undraverðttsta og
auðugasta sem nokkrar sögur fara af.
Margar kynjasögur hafa komið í blöð-
unum um svæði þetta og hið afarmikla
uppgrip gulls þar, en engar þeirra hafa
verið ýktar eða að neinu leyti oflof ura
landið. Þar voru gripnar upp 3 milli-
ónir dollars á 3 mánuðum, með þeim
einföldustu áhöldnm sem hugsast gátu
og á næsta ári verður gulltekjan þar
miklu meiri en í Dawsonhéraðinu. En
þó að gullið í Cape Nome sé miklu
meira en í Yukon héraðinu, þá hafa
námamenn þar við miklu raeiri örðug-
leika að stríða, og fyrir þá sem reka
námagrðft í stórum stíl verður gróðinn
að öllu samtöldu ekki meiriení Dawson
og þar í grend. Það sem einna mest
stendur námamönnum íCapeNome fyr-
þrifum. er algerður timbur skortur og
vatnsþurð. Þegar ég fór þaðan þá vorn
kol $125 hvert ton, og timbur kostaði
$225 hver 1000 fet En þeir sein reka
iðn sina í smáum stíl hafa ekki eins
mikil óþægindi af þessu timbur og
vatnsleysi, af því að þeir hafa svo lítið
um sig. En þeir hafa samt sitt and-
streymi, ekki síður en hinir. Þegar
fréttin fyrst barst út 1898 um gullfund-
inn í þessu plássi, þá sendu auðmanna-
félög menn þangað, og voru þeir út-
búnir mað alskonar lagaiegu uinboðs-
valdi til að mæla út námalóðir fyrir
félög þessi og einstaklinga, Þessir
umboðsinenn mældu talarlaust út alt
bezta námasvæðið í nöfnum hínua og
þessara, svo að ) egar hiuir söiinu náma
menn komust þangað þá var búið að
koma öllum beztu hlutuin þessa svæðis
undir auðfélögin og í eign þeirra. Þess-
vegna urðu þeir að gera sig ánægða
með að taka lóðir a sjálfri sjávarströnd-
iuui og með fram lækjurn sein umboðs
menn auðfélaganna höföu skilið eftir
sem lítt eða einkis virðar námalóðir,
Námamenn græddu samt vel, en hefðu
getað grætt meira ef auðfélögin hefðu
ekki hremsað alt bezta laudið undir sig.
Þetta olli svo ruikilli óánægju að það er
nú verið að gera tilrauu til þess að fa
“Congress” tii að breyta námalögunum
þannig að enginn geti tekið lóð í annars
uafui og það er ekki ómögulegt að þess
um breytingum verði komið í gegn a
þinginu. Eu jafuvel undir þessum
örðugleikum þá fuudu þó sumir náma-
menu ágætar uámalóðir. Við Suák-
lækinn tók einn Euglendingur og einu
Aineríkaui, upp $160,000 á 5 vikum.
Euglendingurinn seldi síðau siuu hlut í
lóðinni fyrir $75.000 og hélt heim til sín,
vel áuægður ineð Cape Nome gróðaun.
Gullið á Nome svæðiuu er þrenus-
konar. Fyrster sjavarsandurinn sem
liggur milli Nome og York höfðanna,
það liggur þar i sandinum sem er frá
6 til 8 fet á dýpt, og nær frá 5 til 6 mil-
ur upp í landíð, Sandur þessi er víðast
þakinn þara frá 1 til tvö fet á þykt. í
öðru lagi er fjöruborðið. Það telst frá
flæðarmáli og 5 til 6 mílur út í sjó, sem
aldrei er dýpra en 15 til 20 fet með há-
flóði. En þessí hluti getur ekki orðið
mældur út í námalóðir, en sumir náma-
menn hafa fundið ríka bletti í sjálfu
fjöruborðinu. Það er ekki hægt að
korna vélum við út i vatni, en sandur-
inn er þar samt eins auðugur og hann
er fyrir ofan sjávarmál. Eg horfðí
sjálfur á mann moka upp $1,200 virði
af gullsandi á 3 dögum í sjálfu flæðar-
málinu, svo að það er auðséð að þar
eru auðugir blettir. I þriðjalagi eru
lækirnir, og þeir eru lang audugastir.
Enginn lækur hefir enn þá verið reycd-
ur svo að ekki hati námamenn þar
fengið ríkulegan ávöxt, Þó að upp-
runalega hugmyndin væri sú, að auð-
veldast væri að ná gullinu úr sand-
svæðinu. Alt þetta Cape Nome svæði
mun reynast afar gullríkt þegar hægt
er að koma hæfiiegum vélum þangað til
að vinna að gulltekjunni. Það'er skoð-
un min að 25.000 menn geti ekki tæmt
það á jafnmörgum árum. Svo hefir ný-
lega frézt að 20 mílur norður frá Cape
Yorke, hafi fundist annað gullsvæði
fyllilega eins stórt og auðugt og það
seméghefnú talað um. Þetta nýja
svæði verður eflaust fylt upp fljótlega,
um 4000 menn hafa þegar ákvarðað sig
þangað, frá Yukon héraðinu, á næsta
vori, og 8 þúsundir manna hafa þegar
pantað far með gufuskipum frá Seattle
og Vancouver.
Dánarfregn.
Ekki alls fyrir lötigu barst sú sorgar-
fregn til okkar undirritaðra, að Mrs H.
W. Menth, sem bjó í Helena, Montana.
væri dáin. Húu hafði verið veik i 6
sólarhringa, og varð banamein heunar
lífhimnubólga, eftir sögusögn læknis
ins. sem stundaði hana. Hún andað-
ist 26. Nóv. síðastl.
Mrs. H IV. Menth var lædd í Hálf"
dár-artungu i Norðurárdal í Skagafjarð-
sýslu 4. Júlí 1869. Skírnarnafn hennar
var Sigurbjörg. Húu var dótur Magn-
úsar smiðs Guðinundssonai og Guðrúu-
ar Guðmundsdóttir. sem bjuggu á
Hálfdáiiartungum þar til árið 1875, að
þau fluttu að Þverá í Skagafirði og ári
síðar til Ameríku og tókn sér þá ból-
festu i Nýja íslandi, í Júlí 1879 misti
Sigurbjörg heit. föður sinn, og var hún
þá 10 ára að aldri. Árið 1880 flutti
hún til Tl'innipeg ásamt móður sicni og
2 bræðfum—Arna og Kjartau. — Hirin
fvrnefndi þá 1(5 ára. Eftir 2 ára dvöl i
IVpg- fluttu móðir hennar og bræður
suður til Dakota og námu land 2 mílur
vestur frá Hallson, þar sem Árni býr
enu þá með móður sinni. Sigurbjörg
varð eftir í Wpg. og dvaldi þar lengst
af þangað til hún fór vestur til Mon-
tana árið 1889. ÍJúníl891 giftist hún
amerikönskum manni. af þýzkum ætt-
um, Mr. H. W. Menth kaupmanni þar
í borgiuni, og lifðu bau í farsælu hjóna-
bandi þangað til að hún dó. Af þessum
samverutíma þeirra voru þau í Minnea-
polis eitthvað á aunað ár. Þau eign
uðust 2 dætur, sem báðar eru á lífi—5
og 7 ára gamlar, og mjög skemtilegar.
Auk þessara tvevgja dætra og eigin-
manns skilur Mrs Menth eftir aldur-
hnigna móðir, 2 albræður — Árna
bóndaað Hallson, N. D.,og Kjartan,
sem nú gengur á skóla i Minneapolis,
Iiai'ibróðir, Jósias, einhversstaðar í
Montana. Móðir Mrs Menth hefir ver-
ið, og er enn, þó öldruð séorðin, kven-
skörungur mikill, bæði hvað graind og
duguað snertir. Árna má óhætt telja
einn meðal hinna bezt sjálfmeutuðu
tnanua hér syðra.
Þaðermeð sorgblandinni gleði, að
vér minnumst hinnar burtförnu æsku-
félagssystur. Það er sannarlega gleði-
legt þegar maður teunir huganum til
baka yfir æskuárin, og sjá í anda alla
þá samfylgdarmenn og konur, einkum
jafnaldra manns, sem hafa hjálpað til
að geia manui lífið skemtilegt. Og þó
að allir hafi 6kki v-erið manni jafn
liugðnæmir þá er manni ljúft að hugsa
til þetrra allra með þakklæti og hlýjura
tilfinningum. fyrir leiðbeinandi og upp-
lífgandi samfylgd á förnum vegi
Það er eins og ljós euduriuinning-
arinuar skýni ætíð bezt við svona tæki-
færi, eins og maður sjái aldrei eins vel
Hiidlitsmyud þeirra, sem maður hefir
átt síuuleið með, og sem að einhverju
leyti hafa vakið hjá manni eftirtekt.
En um leíð verður maður þess var. að
þessar myndir eru misjafnlega djúpt
gi afnar á spjald endurminningarinnar,
að sumar virðast hafa eitthvað pað við
sig sem geri þær ógleymanlegar. Þeir
sein kyntust vel Mrs Menth, muuu
kannast við að hún hati haft einmitt
þessi áhrifároann. Hún var félags-
lynd og frjálsleg í skoðunum, greind,
kát og skemtileg í viðræðum. og blátt
áfram við hvern sem hún talaði. í
stuttu máli: ein af þeim fáu, sem ætíð
flutti með sér sólskin og gleði hvar sem
hún fór. Það er ómótmælanlega gleði-
efni að kalla til baka þær stundir sem
maður hefir átt samfylgd ineð svoleiðis
fólks, svo lengi sem maður veit, eða
hefir von um, að samferðin haldi að
nokkru leyti áfram. En þegar maður
verður þess var, að hin kalda og tilfinn-
ingarlausa hönd dauðans hafi snortið
strengi hjartans, og að það sé hætt að
slá, þá fer endurminniugin að verða svo
söknuði og sarg blandin, að maður verð
ur i fljótu bragði i vafa um, hvort vegi
meira; en hafi söknuðurinn yfirhönd,
þá er ,það sjálfselsku okkar að kenna.
Því þó það sé sárt að sjá á bak æsku-
vínumiæða nánustu skyldmennum, í
blóma lífsins, þáerlíka huggunarríkt
að vita til þess, að þeir þurfi ekki að
þola kulda þann og hretviðri, sem að
oftast fylgja 'elliárunum. En það eru
blessuð litlÁbörnin, sem missa n ó< ui
sina þegarjþau eru svo ung, sem mest
mega sakna, og sem sízt fá skaðann
bættan.
Við sem þetta ritum. finnum þac
glögt að bér hefir verið höggvið stóit
skarð í syskinahópinn. sem trauðlega
verður nokkurntiroa fylt..
Nokkrir æskuvinir hínnar
burtför ju systtr.
Flókaskór með in-|
kaupsverði.
Karlmanna þýzkir (p / r/]
skór.reiumðir ódýrir ! .0 U \
Þýzkir karlm, Congress n /r/í
skór, þt etttldr flóki vnna £. %J U
verð $3 50.
Karlm. ágætir morgun «# C
skór úr tíóka með leður / . U0
sólum vana verð $1.50.
Drengja þýzkir flóka "l rv r» I
skór reimaðir. leður tá I 1111
lappar, stærðir: 10, 11, \ A'.
12,13 1&2 vaiia ve ð 1.50
1.25
Drenaja góöir flókaskór
í iueð leðu táni stærðir 1,
2, 3,4&ö vuna vei ð $1.85
IKarlm. tíóka morgun /1/)
I 8krtr eð f,-lt sólum vana \J UC.
j verð $1 25.
Feningum yðar sKilað
aftur ef vörurnar eruj
ekki ákjósanlegar.
STEWAKT k HYNBMAlf,|
& 5n8 II3tiii St.
LAUGARDAGUR
er sérstaklega fyrir
börn, sérhvert barn
sem kemur með
foreldra sína í búð
vora þann 1 J, febr,
fær vasaklút með
myndum ókeypis
Stewart & Hyiiöœaa,
586 & 588
MAIN ST
The Home Life Association
of Canada.
Iucorporated by special act of Pai liament.
Uon. R. IIARCOURT, A. J. PATTISON, Esq,
Pres dent. Gen. Manager.
'Höfuðstóll—ein millíón dollars.'
Yfir fjögur hundruð þúsund dollars af hofuðstól HOME LIFE félagsins
hafa leiðandi veizlunar-rnentft og peninga menn í Maiutoba og Norðvestur-
landii.u keypt. HOME LIFE hefir þessvegna nieira ofl á bak við sig í Mani-
toba og Norðvesturlandinu en nokkurt annað lífsábyrgðíu fé'ag.
LífsábyrgðnVskýrteini HOME LIFE eru af öllum er «já þati álitin að vera
hin fullkomnustu lifsábyrgðarskýrteini, er nokkiu sinni hala boðist,
Þau eru skírt prentuð, auðskilin, laus við tvíræö orð. Dánnrkröfnr borg-
aðar sainstundis og sannanir um dauða félagslima hafa borist félaginu. Þau
eru ómóttnælanlpg eftir eitt ár.
Öll skýrteini félagsii s hafa ákveðið peuingaverðmæti eftir 3 ár. og eru pen
ingar láoaðir út á þau með betri skilmálnm en nokkurt annað lifsábyrgðaifélag
býður.
Leitið upplýsinga uin félagið og ábyrgðarfyrirkomulag þess hjá
W. H. WHITE, ARNI EGGERTSSON,
MANAQBR, GENKRAL AQENT.
llcDníyre Block. Wiiinipeg. IVO Box !^45.
Feykilegur vöru=afslattur!
Takið oftir: 10—35c. aí hvciju dollarsviiði.
Ladies' Jackets 20—35c. Húfur, kraear og öll loðvara
20c. Karlmanna yfirhafnir, treyjur o. fl 20c. Flóka-
skór 20c. og ýmsar aðrar skótegundir lOc. ásamt mörgu
fleira. þessar og allar vörur eru daglega að hækka í
veiði hjá heildsölumönnunum. Eu þær vörur sem hér
eru boðnar með þriðjungsafslætti voru keyptar áður en
prísarnir hækkuðu. Fólk ætti að nota sér þetta afarlága
verð, sem að eins mun vara stuttan tíma. Komið öll!
Komið fljótt!
Gudmundur Johnson,
Cor, Ross & Isabell.
Alexandra Meloíte
RJOMA-SKILVINDUR.
Ef þú hefir sjö kýr þá eru þær, með því nota rjóma«
■mdur, þéreins arðsamar og þó þú ættir tfu kýr og e
- ilvind , og þess utan er tíinasparnaðuriQn. og spari
u- á vninu og iláta kostnaði. Bændur sem seldu mnþ
’ ‘° P.Vn.dl? hHfa fe,‘Kið 16 til 20c. fvrir það síðan ]
s5!uP FfhúrtlUrna/;0,{ hRft einn Yjórða meira smjör
sölu. Ef þu óskar eftir Sönnunun fyrir þessum staðh
j.ignin eða vilt fá upplýsingar um verð og söluskilmál
sMvindum sem orka þetma vinnusþarnaö
.'iikna groða, þa sknfaðu á íslenzku ef þú vilt til
K. A. Listei* & C’o. Ltd.
232 KING ST.
WINNIPEl