Heimskringla - 15.03.1900, Blaðsíða 1
XIV. ÁR
WINNIPEG, MANITOBA 15 MARZ 1900.
Nr. 23.
The Home Life Association
of Canada.
Incorporated by special act of Parliament.
Hon. R. HARCOURT, A. J. PATTISON, Esq,
President. Gen. M anager.
'Höfuðstóll—ein millíón dollars.'
Yfir fjögur hundruð þúsund dollars af höfuðstól HOME LIFE félaesíns
hafa leiðandí verzlunar-rnenta og peninga menn í Mamtoba og Norðvestur-
landinu keypt. HOME LIFE hefir þessvegna meira afl á bak við sír í Mani-
toba og Norðvesturlandinu en nokkurt annað lifsábyrgðarfé’ag.
Lífsábyrgðarskýrteini HOME LIFE eru af ölhim er sjá þau áiitin að vera
hin fullkomnustu lífsábyrgðarskýrteini, er nokkru sinni hafa boðist,
Þau eru skírt prentuð, auðskilin, laus við tvíraeð orð. Dánarkröfnr borg-
aðar samstundis og sannanir um dauða félagslima hafa borist féiacinu. Þau
eru ómótmrelanleg eftir eitt ár.
Öll skýrteini félagsins hafa ákveðið peningaverðmœti eftir 8 ár. oe eru pen
ingar lánaðir út á þau með betri skilmálum en nokkurt annað lífsábyrgðai felag
Leitið upplýsinga um félagið og ábyrgðarfyrirkomuiag þess hjá
W. H. WHITE, ARNI EGGERTSSON,
MANAG-ER. GENERAL AGENT.
Mclntyre Block, Winnipcg;. P.O Itox 245.
Enn er tækifoeri
að fá sérstök kjörkaup hjá Stefáni Jónssyni á niðursettu vörunum; þær
eru samt öðum að minka. Þeir sem hafa keypt þæs-, hafa virkilega álit-
ið það sinn gróða. Einnig er altaf að koma inn sumarvat ningur aföll-
um mögnlegum tegundum fyrir fólkið, drengjafatnaður, karlmannafatn-
aður með ágætu sniði (sem kallað er “Fitt Reform”), Reyiiið að finua S,
Jónsson þegar þið þurfið að fá ykknr fallegt (Suit ot Clothe*), líka fyrir
litlu drengina, S. Jónsson óskar að sem flestir komi. Ilann er ætíð
reiðubúinn að gera það bezta sem hægt er fyrir sína viðskiftavini.
S. J0HNS0N.
N. E. IIORN ROSS AVE. 0(í ISABELL ST.
Frjettir.
Markverðustu viðburðir
hvaðanæfa.
Kolanáma er nýfundin 19 rnilur frá
Dawson City í Yukorthéraðinu. Nám-
an er á svonefndri Rock Creek. Eru
kol þessi sögð ágeet og 8000 tons af þeim
hafa verið tekin út úr námunum i vetur
Flutningsgjald á vörum frá Victo-
ria til Dawson er nú 8145 fyrir hvert
ton. En séu vörurnar yfir 5 ton að
þyngd, þá er gjaldið $125 fyrir hver*
ton. Fyiir nautgripi og hesta er flutn-
ingsgjaldið $85 fyrir hvern grip, ef ekki
færri en 14 gripii eru sendír í einu.
General Lawton var myrtur á Fil-
ips-eyjunum, eins og áður hefir verið
skýrt frá. Uppreistarmenn skutu þeg-
ar saman fé til að launa þeirn sem vann
þetta níðingsverk. Samskotin urðu
$100,000. En það þótti nóg að borga
morðingjanum $25,000. Hinum $75,000
á að verja til verðlauna handa þeim
sem framvegis myrða hershöfðingja
Bandamanna. Vinir Lawtons sál. í
Bandaríkjunum hafa skotið saman
$85,000 og gefið ekkju hans.
Sú spurning var nýlega borin fram
í Senatinu í Ottawa, hvort Dominion-
stjórnin hugsaði til að leggja $50 nef-
skatt á Japaniska innflýtjendur, á sama
hátt og gert er við Kínverja. Mr. Mills
svaraði fyrir hönd stjórnarinnar að
það væri ekki hyggilegt að hefta inn-
flutning frá Japan á þennan hátt, enda
væri það andstætt stefnu Bretlands-
stjórnar og samningum hennar við
stjórnina í Japan. $50 nefskatturiun á
Kínverjum hefði litla þýðingu, með þvi
að um 2000 þeirra flyttu árlega inn í
Canada þrátt fyrir skattinn. Fargjöld
þeirra, sem gengju til C.P.R. félagsins
væru um einn fjórði úr miilíón dollars
árlega og þess utan væri verzlnn við
Kína mjög að aukast ár frá ári. Verzl-
un við Japan væri orðin mikil og það
væri ekki viturlegt að egna þá á móti
sér með nefskattsálögum á fólk þeirra
sem kynni að vilja flytja til þessa lands
Herfréttir eru tíðindalitlar síðan
Gen. Gronje gafst upp með 4000 her-
manna og Buller leysti Ladysmith úr
umsátinni. Sagt er að Bretar hafi nú
hreinsað svo til í Natalhéraðinu, að
hvergi verði þar yart við búana og að
tiltölulega fáir þeirra séu eftir í Cape
Colony. Aftur er þess getið að Þjóð-
verjar og Hollendin^ar i Prieska, Ken-
hardt og öðrum héruðum i Cape Colony
sóu nú að safna að sér vopnum og vist-
um og byrjaðir að hefja uppreist móti
Bretum. Sagt er að Hollenzka kyrkjan
hafi gefið út ávarp til fylgjenda sinna
og þar stranglega haldíð því fram, að
Transvaal lýðveldið haldi áfram að vera
frjálst og óháð lýðveldi. Þykir nú illa
áhorfast þar syðra, með því að ekki sé
óhugsandi að Þjóðverjar finni hvöt hjá
sér til að skifta sér af málum þegna
sinna þar, á saina hátt og Englending
ar fundu ástæðu til að skifta sér af mál-
um þegna sinna þar syðra. Svo láta
og Rússar þess opinberlega getið í blöð-
um sínum, að þeim taki sárt til Búanna
og þykí fyrir að Cronje skyldi neyðast
til að ganga á vald Breta. Segja blöð
þeirra að nú sé tími til að seilast í lend-
ur Breta á öðrum stöðum. Enda er
talið víst að Rússar búi yfir einhverjum
leyniráðura í þá átt, þótt enn sé ekkert
orðið opinbert um það. Að Bretar
vænti ófriðar frá Evrópuþjóðunum þyk-
ir sannað með því. að þeir eru að auka
herafla sinn allan að miklum muu meira
en aðrar ástæður virðast benda á að
nokkur nauðsyn sé til. Bretar eru að
draga lierskip sín saman á vissa staði
til að hafa þau til taks hvenær sem þörf
gerist Hermálamenn telja stríð við
Rússland óumflýjanlegt, með því að
Rússar séu orðnir Bretum alt of nær-
göngulir í Mið-Asíu. Þeir ætli ser að
ná í góða höfn í Persíu-flóanum og liafi
augastað á Herat.
Séra T. J. O’Connor, prestur frá
Eng.andi, hafði verið nokkra mánuði í
Ontario fylkinu og kynst fólki þar eins
og vanalega gerist. Eiii af konum
þeim sem hann hafði kynst fékk nýlega
bréf frá Englandi, og var presti þar
harðlega ámælt, sagt að það væri holt
að hafa sem minst við hann að sælda.
Kona þessi r.taði svo vinkonu sinni
þetta, og brátt gengu bréf milli margra
kvenna, sem öll vöruðu við því að liafa
nokkur kynni af prestinum, Prestur
höfðaði sakamál á hendur tveimur af
konum þessum sem bezt gengu fram í
að útbreiða óhróður út um hann, og
fékk þær dæmdar í $750.00 sekt fyrir
bréfaskriftirnar.
C- P. R. félagið lækkar fargjöld frá
15. þ. m. (i dag) niður í 3 cents á miluna
á öllum brautum sínum í Manitoba, og
verður þannig jafnt N, P. félaginu,
sem lækkaði fargjöld sin í 3 cent á mil-
una fyrir nokkrum mánuðum. Ein-
hver fargjaldalækkun verður gerð a C.
P. R brautinni í Assinniboia-
Annað Dreyfusmái er á prjónun-
um í Frakklandi. Stjórnin þar er að
höfða mál móti manni að nafni Philipp.
H*ann er kærður fyrir að hafa gert
sainninga um að selja Bretum leyndar-
mál liermálastjórnarinnar frönsku fyr-
ir $5,000. Það er alment álitið á Frakk-
iandi að þetta sé ofsóknarmál og á
engum rökum bygt, og þykir trúÞg-
ast að það verðl núverandi stjórn þar
að falli.
Tveir ráðgjafar Laurier stjórnar-
innar, þeir Tarte og Sifton eru á leið til
Evrópu til að leika sér þar meðan þing-
ið situr í Ottawa. Það sýist nokkuð
undarlegt að þeir tveir ráðgjafar, sem
ráða yfir stæstu stjórnardeildunum
skuli geta verið á skemtiferð um E?-
rópu einmitt á þeim tíma sem þeir ættu
að sinna þingstörfum og gera þinginu
grein fyrir ráðsmensku sinni.
Vindlagerðarmenn í Tampa, Florida.
fengu nýlega tilkynning frá vindla-
kassagerðarmönnum. að framvegis verði
kassarnir seldir með hærra verði eu áð-
ur. Vindlagerðarmenn gerðu ser hægt
um hönd og settu upp vindlakassa-
verkstæði og búa nú til 20 þúsund
kassa á hverjum degi.
W. Hammett var dæmdur í 5 ára
betrunarhúsvinnu, i Cornwall Ontario,
fyrir að eiga tvær konur.
Pólitíkin í nýfundnalaDdi er svipuð
eins og i British Columbia. Stjórnar-
formaður, TFinter, hefir sagt af sér og
fyrir hönd ráðgjafa sinna, en enginn
virðist geta myndað nýja stjórn. Þing-
menn eru skiftir í 4 flokka og enginn
einn flokkur er nógu sterkur til að
halda stjórntaumunum móti hinum
þremur.
Þær fréttir koma frá Fire Creek,
Va., að sprenging hafi orðið í Red Ash
námunni þann 6. þ. m. og að um 100
manna sem i námunni voru hafi tapað
líti. Er þetta talið stæst námaslys sem
komið hefir fyrir þar i ríkinu i fjölda
mörg ár.
Gamla Soffia Padger andaðist í
Chatham, Ont. 28. Febr. síðastl., 107
ára gömul. Hún var fædd og uppalin
íCanada. Börn hennar, 13 talsins, og
barnabörn og barna barnabörn eru als
187. Mun þetta vera með stæstu fjöl-
skyldum í Canada.
Lord Rosebery hefir sagt af sér for-
mensku í skozka liberal félaginu og
heiðursforsetastöðunni í Midlothian-
liberalfélaginu. Er þetta talin afleið-
ing I«s« að bann er orðinn fráhverfur
stefnum þessara liber'alfélaga, þó hann
hafi verið formaður þeirra um 20 ár.
Það er á orði að brezka stjórnin
hafi í hyggju að taka 150 millión doll.
lán til að standast herkostnaðinn í Suð-
ur-Afríku, og að þessi upphæð eigi að
borgast til baka með rentum á næstu
12 árnm.
Canadastjórnin hetir ákveðið að
senda hermenn frá Canada til Suður-
Afriku til að fylla pláss þeirra sem fall-
ið hafa þar.
BlaðiðSt. PaulGlohe flytur þá frétt
frá Manilla dags. 3. þ. tn., að uppreist-
arinenn í Filips eyjum séu enn þá ekki
koranir til værðar eða hættir ófriðnuin,
og að hópar uppreistarmanna séu sífelt
að herja á Bandamenn, Er svo sagt að
samtök þeirra og fréttasamgöngur séu
en betri og öflugri nú en nokkrusinni
fyr, Þess er og getið að ýmsir menn
sem á yfirborðinu látast vera meðmælt-
ir Bandamönnum og sumir endaí þjón-
ustu þeirra, séu í rauninni í samsær-
inu með uppreistarmönnum, og sviki
þannig Bandamenn í trygðum. Sér-
staklega kvað hafa borið á þessu í
norður fylkjunum á Luzon-eyjunni um
siðastliðnar nokkrar vikur. U[ preist-
armenn kváðu hafa njósnara hvervetna
i liði Bandamanna sem stöðugt færa
þeim fréttir um fyrirætlanir þeirra.
AðaJ aðsetur þessarar njósnardeildar er
sagt að sé Manila. Ellefu menn hafa
verið handteknir, kærðir um landráð
og hafa tveir þeirra borið á sér sak-
næm skjöl, og $4000 sem þeir höfðu
fengið fré almenningí til þess að hjálpa
til að halda áfram uppreistinni. Er
sagt að landsfólkið sé hlynt uppreistar-
mönnum og að jafnvel þeir tem lagt
hafa af hollustueiða við Bandarikin og
þegið embætti í bæja- og sveitastjórn-
ura, séu með í uppreistarsamsærinu og
leggi liði Aguinaldo til bæði matvæli og
peninga.
Yfirleitteru nú Bandamenn einráð-
ir í norðurhéruðunum- En í suðurhér-
uðunum eru uppreistarmenn með fullu
fjöri og gera náttáhlaup á Bandamenn
hvenær sem þeir sjá færi á því.
Sum Londonblöðin færa þá frétt að
Cecil Rhodes ætli sér að víggirða bæinn
Mafekíng strax að atioknu stríðinu.
Mr. Rhodes óttast að algerður friður
fáist ekki í Afríku þó að striðið verði til
lykta leitt, og þykir því betra að vera
við öllu búinn. A hinn bóginn halda
Londonblöðin því fram að Mr. Rhodes
Muni ætla að búa svo um hnútana að
hann geti hindrað ensku stjórnina frá
að hafa ofmikil vöid þar syðra. Rhodes
trúir ekki mikið á innflutning í landið
og vill ekki þola ntanaðkomanði af-
skifti, jafnvel ekki fráBretum. Segja
blöðin að hann muni reynast brezka
ríkinu þegn hollur á meðan enska
stjórnin hjálpi gróðafyrirtækjum hans
áfram, og ekki lengur.
Byggingar róðrarfélagsins í Tor-
onto brunnu til ösku þann 6. þ. m.,
skaðinn metin $15,000, Eldsábyrgð var
$5,000.
Haglstormur æddi yfir Chicagoborg
5. og 6. þ. m. Vindhraðinn var 30
tnílur á kl.stundu. Sagt er að .margir
hafi slasast og einn maður rotast við
það að detta á gangtraðirnar. Svipaðar
sögur eru sagðar fiá ýmsum stöðum í
Illinois, Iowa, Wisconsin og New York
ríkjunum.
MINNEOTA, MINN.5. Marz 1900.
(Frá fréttaritara Hkr.)
Tiðarfar, jörð snjólaus, en um-
hleypings vindar, ýmist þýðvindi, eða
norðan næðingar.
Ferðamenn: Séra B.B. Jónssor er
nvkominn heim, norðan frá ykkur
Canada-búum.—J. H. Frost brá sér
vestur á Kyrrahafsstrendur, í þeim er-
indum að sjá sér út bólfestu þar.—M.
R. Magnússon frá Selkirk er hér í
kynnisför hjá fólki sinu.
Gifting: Nýgift eru Mr. Walrath
(járnbrautarstöðva umsjónarmaður hér
í Minneota) og Bertína Albertsdóttir
frá Breiðumýri í Vopnafírði, móðir
hennar er Ágústa Grimsdóttir dóttir
Guðnýar yfirsetnkonu, en Guðný er
dóttir Árna skipasmiðs á Hellisfjöru-
bökkum við Vopnafjörð.
Nýdáin er hér Þórdýs kona Jóhans
V. Jsefssonar; hún var dóttir Snorra
Jónssonar dýralæknis úr Papey, og
Kristbjargar Helgadóttir, systir þeirra
Jónasar og Helga söngfræðinganna í
Reykjavík.—Slys: Jón J. Hoff (sonur
Jósefs frá Strandhöfn) við Vopnafjörð)
datt úr vagni og braut á sér höfuðskel-
ina, svo mjög að Þórður læknir hugði
honum ei lifsvon, en svo er honum nú
farið svo að batna, að læknir segir að
líkindi séu til að hann lifni við-
Hreppakosningastríð hér syðra er i
nánd, búist við að Minueota bindindis-
me-nn gangi hart á móti vínsölunni.
Framfarir: Bjarni Jónsson kjöt
sölumaður í Minneota, hefir nýlega
keypt gasolfuvél er hann brúkar á þrjá
vegu, sagar kjöt, malar gripafóður og
dællr vatni.
Heynmrkaðurinn.
Bæjarstjórnin í Winnipeg fékk ofur
lítinn lagaskell á síðasta fundi. En
því máli er svo varið, að í Sept. 1898
tók bæjarstjórnin landspildu nokkra ú
Higgin St. á feigu til 10 ára, og átti að
borga $250 leigu á árt. En i Des. voru
aukalög um kaup á landi þessu fyrir
$12,500 borin undir atkv. bæjarmanna,
en þau aukalög voru ekki samþykt,
með því að landið var að eins virt á
$5000 af sjálfri bæjarstjórninui, og
skattað fyrir þeirri upphæð. Eigend-
um landsins var þá tilkynt að gamli
leigumálinn yrði upphafinn og annar
leigusamningur gerður við þá til 5 ára,
og skyldi bærinn borga þeim eftirfylgj-
andi leigu fyrir 5 árin. fyrirfram borg-
að, þannig: $2,500, $3000, $2 875,
$2,750, $2,625. Alls $13,750. Á þenna
hátt ætlaði bæjarstjórnin að kaupa
landið fyrir þetta afar-háa verð, þvert
ofan i vilja og atkv. bæjarmanua, þvi
að með þvi að þegar 5 ára tímabilið
væri útrunnið og bærinn væri búinn að
borga út þessar mörgu þúsundir, þá
hefði hann fengið eignarbréf fyrir þess-
ari landspilku fyrir einn dollar og þann
ig eignast landið.
Á síðasta bæjarstjórnarfundi var
lesið upp bréf til bæjarstjórnarinnar frá
Tupper, Phipper & Tupper, lögmönn-
um, og henni tilkynt, að þessi samn-
ingur hennar við landeigendurna væri
sviksámleg undanfærsla við lögin, sem
ákveða að aukalög bæjarins verði að
vera borin undir kjósendurna, og ef að
haldið væri áfram með þessa samninga
og nokkur dollar af bæjarfé borgaður
samkvæmt samningunum, þá yrði höfð
að sakamái á hendur borgarstjóranum,
boraar-gjaldkeranum og reikningshald
ara (comptroller) bæjarins og þeim hald
ið persónulega ábyrgðarfullum fyrir
slíkum útborgunum á bæjarfé.
Þetta lögmanns bréf kom nokkuð
flatt upp á bæjarstjórnina og það eru
likindi til að hún hugsi sig tvisvar um
áður en hún borgar út peningana. Svo
er það hending fyrir þá sem nú eru og
framvegis kunna að verða í bæjarráð-
inu, að fara frómlega og krokalaust
með bæjarmál og fé.
lölands-fréttir.
Nýlega var sakamál höfðað gegn
Einari Sveinbjarnarsyni i Sandgerði
fyrir lögregiubrot út af viðskiftum hans
við botnverpinga. Einar var sýknaður
en landsjóður borgaði málskostnað.
Látinn 6. Des. síðastl. Friðrik Guð-
mundsson, bókbindari á Eyrarbakka,
62 ára gamall. Nýdánir : Jón Jónsson
bóndi í Laxárdal í Hrunamannahreppi
og Árni Helgason á Brekku í Holtum
og Einar Vigfússon á Bjólu í Rangár-
vallasýslu.
Druknaðir 5. Des. af bát við Stokks
eyri, Þorkell Magnússon frá Stokks-
eyri og Ögmundur Jónsson frá Aust-
vaðsholti, báðir dugnaðarmenn.
Dánir í Reykjavik Guðrún Jóns-
dóttir frá Isólfsskála i GrindavÍR, Þur-
íður Jónsdóttir frá Jaðri í Kaplaskjóli.
Ólafur M, Norðfjörð, fyrrum faktor i
Keflavík. Jón Einarsson, sjómaður ftá
Bíldudal. Þórður Árnason Vesurgötu.
Vigfús Ólafsson Hverfisgötu. Sigurður
Jónsson frá Innri-Njarðvík. Eyvind-
ur Ólafs-on frá Hvassahrauni fanst
dauður i Eskihlið. Ásgrímur Gunnars-
son Hyerfisgötu.
Önnur mannalát. Margrét Guð
mundsdóttir, ekkja Bergstaðaste (51).
Guðrún Ólafsdóttir úr Árnessýslu (68)
Margrét Jónsdóttir, vinnuk. Vestur-
götu. Hólmfriður Pétursdóttir, ekkja
Oddgeirsbæ (64). Benidikt Vigfússon í
Bráðræði (44). Þórður Jónsson í Bergs-
koti (20). Guðmundur Ögmundsson
Tjarnargötu.
Ibúar Reykjavikur munu nú vera
hálft sjötta þúsund talsins, og eru óð-
um að fjölga.
Kaupfélag hafa Seltyrningar stofn-
að. Páll Toi fason er kaupstjóri þess.
Hann hefir keypt “Hotel Reykjavík’’
fyrir 13—14000 krónur.
Vínsölulögin. Samkvæmt hinum
nýju vinsölulögum hafa 14 kauþmenn
keypt vínsöluleyfi (fyrir 500 kr. hver)
og álíka margir hafa orðið að hætta
vínsölu.
Látin i Reykjavík 6. Des., ekkjufrú
Þuríður Kúld.
Rannsókn hefir verið hafin i Rvík
útaf reikningum sem Einar Finnsson,
vegagerðarmaður hefir lagt inn ti
stjórnarinnar. Sagt þar séu taldar
upphæðir sem þar ættu ekki að vera.
Tíðarfarið segir fjallkonan dags. 27
Jan. þ á. að sé ilt, oftast útsynningur
og stundum norðanátt snjór kominn
talsverður. Vegna stöðugra storma
síðan um nýár gefur aldrei á sjó. Póst-
stjórnin heíir látið hefja pósgöngur um
bæinn síðan á nýári kl. 7.30, á hverjum
morgni eru þá bréf borin um allan
Rvíkurbæ. Einnig hafa 4 póstkassar
verið settir upp í bænum. En pósturinn
tæmir þá', daglega og kemur bréfunum
til skila. Það er að koma dálítill
menniugarbragur á ibúa höfuðstaðarins.
Til hjálpar Norðmönnum, aðstand-
endum'þeirra sem drukknuðu í miklu
mannsköðunum i haust, var haldin hér
Tombóla um daginn, Arðurinn um
1000 kr.
Úr bréfi úr Húnavatnssýslu dags.
í Des. er þess getið að alt sé þar fult af
ilmandi Ameríku bréfnm sem ein haldi
fólkinu vakandi og bð nokkuð margir
fari þaðan úr sýslu fyrir fargjöld sem
send séu héðnn að vestan.
Taugaveiki er farin að ganga i
Rvik og annarstaðar sunnanlands og
er að sögn talsvert mannskæð. Engar
ráðstafanir höfðu yfirvöldin gert til að
stemma útbreiðslu sýkinnar er síðast
fréttist.
Svo ramt Icveður að eldiviðarleysi
á suðurlandi, hjá almenningi, að engin
dæmi eru til slíks. Með því að eldivið-
ur gersamlega ónýttist hjá ahnenningi
víðasthvar, og er það sagt austan úr
sýsium að sumir éti matinn hálfhráau,
en aðrir brenni öllu því sem hönd á fest-
ir. svo sem innviðum húsanna og
heyjum.
Ofantaldar fréttir eru teknar eftir
Fjallkonunni. Hún kemur hingað
til vor í nýjum og stærri búningi en
fyr. Fjallkonan er nú í svipuðu formi
og Þjóðólfur en að eins nokRuð lengri,
um 2 þuml. hver síða. Frágangur Maðs-
ins er allur mjög myndarlegur og ies-
málið vel valið og fróðlegt . En það
þykir oss leitt að Valdimar ritstjóri
virðist vera að verða andstæðari vest-
urferðum upp á síðkastið en hann var
fyrrum. Þetta er því lakara sem vér
vitum til þess að Vaidimar er maður
skír og fróður um hagi Vestur-íslend-
inga flestum öðrum Islendingum frem-
ur, þeirra er ekki hafa haft persónuleg
kynni af landinu og fólki voru hér.
Vér vildum stuðla að þvi að Valdimar
kæmi hingað vestur og skoðaði sjálfur
hag fólks vors hér.
“Austri”, fram að 9. Febrúar, kom-
in hingað vestur. Éngar markverðar
fréttir í honum í þetta sinn, nema ef
telja skyldi ferðaáætlun póstgufuskip-
anna Egils og Vaagen. Frá Kaup-
maanahöfn fara þau a leið tíl íslands
10. Apríl, R0. Maí, 13. Júlí, 27. Ágúst
11. Okt., 23 Nóv. Frá íslandi til
Hafnar fara þau frá Evjafirði 19. Marz
27. Apr., 16. Júní, 1. Ágúst, 14. Sept.,
28. Okt. 11. Des. Eyjafjörður er vest-
asti viðkomustaður skipanna. Þaðan
halda þau á suður, norður og austur-
hafnir og fara síðast frá Berufirði, og
koma við á höfnum i Færeyjum báðar
leiðir. En ekki koma skip þessi við á
Skotlandi, eins og skip dönsku póst-
gufuskipa-linunnargera.
LJÓÐMÆLI.
Ný útkomið er ijóðmælasafn eftir
Kristinn Stefdnsson og er til sölu hjá
höf. að 789 Notre Dame Ave. West, og
hjá H. S, Bardal að 557 Elgin Ave.
Winnipeg. Kostar í kápu 60 cts.
“Á ferð og flugi”
EFTIR
Stephan G. Stephansson.
Þetta er ný Ijóðafcók eftir þenna
alkunna höfund, sem ég hefl fengið
til útsölu. Útgefandi er herra Jón
Ólafsson, ritstjóri, og er útgáfan öll
prýðilega vel vönduð.
Bókin er 64 bls. í stóru 8 bl.
broti og kostar í kápu 50 cts.
Blöðin ísafold og Fjallkonan
hafa lokið verðugu lofsorði um þessa
bók.
E x hefl og enn eftir óseld nokk-
ur eintök af ljóðabók Páls Olafssonar;
vei ð, í kápu, $1.00. Bækurnar send-
ar hvert sem vera skal kaupendum
að kostnaðarlausu.
M. PETURSSON.
P. O. Box 305, Winnipeg.
Atvinimleysi í Noreg'i.
(Úr bréfi frá Kristjaniu).
Hér er svo ilt árferði, sem verst
getur verið; allir kvartn og kveina; all-
ir hlutir, sem menií þarfnast, ?ru afar-
dýrir og hækka í verði með degi hverj-
ura. Þessu er samfara hið mesta at-
vinnuleysi, og öll vinna er illa borguð.
Mesti grúi af fólki hefir enga atvinnu;
leitar fjöldi manna burt héðan úr Krist
janiu og margir af landi brott. Þessi
borg hefir orðið fyrir stór hnekki.
Gjaldþrot hafa verið svo tíð. að enginn
dagur hefir svo liðið í haust, að ekki
hafi einn eða fleiri farið á höfuðið. —
Hér er drepandi samkepni, gjaldþrot,
svik, okur með peninga o. s. frv. —Enn
fremur má telja stórbrennu þá, sem
varð hér föstudaginn fyrir jól, er hér
brunnu tii kaldra kola stórhýsi, og
skaðinn metinn miljón króna.
Orge! Pianos
Og önnur hljóðfæri ódýr og góð
og indislega falleg, þau beztu sem
fást í bænum, selur
Gunnar Sveinsson,
Manager Heimskrinolu.
Ég undirritaður bið alla þá sem
hafa bréfaviðskifti við mig, að skrifa
mig að 350 Toronto St.. flhnnipeg, en
ekki að skrifstofu Heimskringlu, þar
eð bréf til min þangað hafa enn ekki
komið til skila fiá 5 Febr. síðastl.
Vinsamlegast.
Kr. Ásg. Benediktsson.
Auglysing.
Ég Þorsteiun Þorkelsson Grocer
á Ross St. geri kunnugt, að í þessum
mánuði sel ég:
15 centa “Bacon” fyrir lOc. pd.
12^ cts “Pic-nic Ham”, fyrir 9c. pd.
9 cts sauðakjöt, fyrir 7c pd í skrokk.
6 cts súpukjöt, fyrir 5c pd
30 cts “Beefsteak”, fyrir25c (3 pd)
5 pd Jamfotur fyrir 35c
6 Jellyglös fyrir 60c
20c Jellyglös fyrir 15c
lOc laxkönnur, 12 fyrir $1.00
12 Pease-könnur fyrir $1’00
1? { cts Strawbery-könnur fyrir 14c
17^ cts Rasberry-könnur fyrir 14c
Alt þetta fæst að 535 Ross Ave.
Th. Thorke/sson.