Heimskringla - 26.04.1900, Blaðsíða 4
HEIMSKKINGLA, 26. APRIL 1900.
Winnipeg.
C.P.R. félagið seldí 7000 ekrur af
landi í siðastl. mánuði fyrir 23,000 doll
Bosa Lutz, ung rússnesk stúlka
hér í bsenum, hefir verið handtekin fyr
ir aö hafa giftst 2 mðnnum, sem báðir
húahér í bænum.
Þau Mr. Stephan Th. Vestal og
Miss Paulina Jacobina Sigurðson
Minneota voru gefin saman í hjóna-
band þann 15. þ. m. Heimskr. óskar
til lukku. ________________
Herra Jón Búason frá Winnipeg-
oses og Miss Björg Jónsdóttir frá Win-
nipeg vðru getin saman í hjónaband þ.
18. þ, m., búast við að setjast að
West Selkirk fyrst um sinn.
Mayor Wilson segist vona að nýja
vatnsverkið verði fullgert innau 6 vikna
og að bærinn muni taka að sér að búa
til á eigin reikning alt það kalk sem
þurfi til að hreinsa og Jina vatnið. En
til þess þarf 6 “Tons” á sólarhring.
Fréttir frá Ottawa segja að fyrir-
hugaðar umbætur á St. Andrews
strengjunum muni ekki verða gerðar
að svo stöddu, og að engir samningar
séu enn þá gerðir um að framkvæma
þetta nauósynjaverk.
Gufubáturiun ‘‘Víkingur”,eign hya
Ármans Bjarnasonar hér í bænum, var
settur á flot og fór til Selkirk í síðastl.
viku. Hra. Bjarnáson býst við að
vinna með bát sínum norður á vatni í
sumar, við fólks og vöruflutninga.
Dookhobors þeir sem ætluðu til
Californiu fyrir nokkrum dögum, eru
orðnir leiðir að bíða í Emerson. Þeir
skilja ekkert í Alien Labor lögum
Bandaríkjanna og skoða sig brögðum
beitta. 12 af hópnum hafa lagt af stað
fótgangandi áleiðis til Winnipeg, í von
um að fá hér vinnu, og hinir segjast
fara sömu leið, ef Bandarikjastjórnin
geri ekki fljótlega út um mál sitt.
Pétur Árnason, Sigursteinn Odd-
son, frá Lundar. Gísli Ólafsson frá
Mary Hill voru hér á ferðinni í síðasl.
viku. — Herra Pétur Gíslason, frá
Joliette N.-D.—Hra. Jóh. Straumfjörð,
frá Selkirk, með konu sína, var hér á
ferð í kynnisför í síðastl. v ku.—Einnig
var hér á ferðinni fornkunníngi vor hra.
Þorsteinn Antoníusson. Hann býr hér
norður með Kauðá, en hugsar til flutn-
Jngs norðvestur í fylkið áður langt
líðuf.
Blaðið Tribuna bendir á Það. að
Winnipeg græði mikið við að selja sjálf-
ur vatnsverkið og ratíjósin. Bærinn
hefir þegar grætt nokkur þúsund doll-
>rs á vatnsverkinu síðan hann tók við
því, og nú kosta ljósin að eihs 20Jc. á
kveldi fyrir hvert ljós, í stað 47c. með-
an félagið hafði einveldi. Bærinn græð-
ir þannig yfir þúsund dollars á mán-
uði á því að eiga sín eigiu ljós, auk
þess sem þau eru miklu betri en þau
gömlu. í sambandi við þetta er þess
getið, að gróði Manitobafylkis á því að
eiga sínar eigin járnbrautir, muni
verða samsvarandi gróða bæjarins á
ljósum og vatni, hvenær sem fylki >
getur komið því við að ráða sjálft yfir
járnbrautum innan sinna takmarka.
Prentvilla í síðasta blaði segir að
Sigurður Guðmundsson hafi dvalið í
Nýja-íslandi síðan 1896, á að vera 1886
eins og öll greinin ber með sér.
Jón Eiríksson, Steíán Björnsson
Páll Björnsson frá Mary Hill, og Jón
Jónsson frá Lundar, voru á ferð hér í
borginni í síðustu viku.
Þjóðverjar hér hafa gefið $550.00
“Patriotic Fund”, og $66.00 í “India
Famine Fund”, og $45.00 til alsleysingja
í þeim héruðum á Bússlandi sem líða
fæðuskort fyrir uppskerubrest.
L. A. Hamilton, áður land com
missioner fyrir C P.B fél. hér í bænum
ætlar til Cuba í erindum fyrir Sir TFm
van Horn, og dvelur þar urn óákveðinn
tíma
Með þessu blaði r-endum vér kaup-
endum Heimskringlu, í sumargjöf,
myndir af coHservative-flokknum
Manitobaþinginu, og biðjum þá að
virða þessa litlu gjöf i sama • anda og
hún er gefin af útgefendum blaðsins.
Ungu stúlkurnar í Heklu halda
skemtisamkomu á Nort West Hall á
mánudagskvöld ð kemur, 30. þ. m
Prógram, sem auglýst er hér í blaðinu,
er vandað mjög og veitingar þess utan
ágætar. Allir Good Temphuar ættu
að sækja þessa samkomu. Arðurinn
gengur í húsbyggingarsjóð Good
Templara.
Free Press dags. 18. þ. m. birtir
nafnalista yfir 170 Gyðinga hér í bæn-
um sem gefið hafa í "Patiotric Fund”,
Þessar gjafir nema als $349.85 og var
það afnent Patterson fyikisstjóra þ, 17.
þ. m. En hann þakkaði gjöfina með
mörgum fögrum orðum um þegnholl-
ustu Gyðinga og lofaði að rita sjálfur
til landsstjórans um leið og hann sendi
honum þessa höfðinglegu gjöf.
íslenzku vesturfararnir, sem getið
var um i síðasta blaði, komu til Win
nipeg á íimtudaginn var. Þessir voru
í hópnum. Þórður Zoega rneð konu og
börn. Frímann Frímannsson, Jón
Jónsson, Sveinn Sveinsson, Guðmundur
OddssoD, Ingibjörg Helgadóttir, Sets-
elja Jónssdóttir, öll frá Beykjavík.
Guðmundur Bergmann og Jón Tríggvi
Jónsson úr Húnavatnssýslu. Þórður
Gislason úr Árnessýslu. Kristgeir Jóns-
son og Guðmundur Narfason úr Borg
arfjarðarsýslu. Þess utan er Haldór
Friðleifsson með konu og 4 börn, frá
Reykjavík. Eitt af börnum þessara
hjóna veiktist á skipinu yfir Atlanzhaf
og var því fjölskyldan sett á land í
Halifax. Þar andaðist barnið fám dög-
um síðar ög köm því fjölskyldaQ hingað
til bæjarins nokkrum dögum á eftir
hinu fólkinu, Yfirleitt er fólk þetta
ungt og hraustlegt og líklegt til að hafa
sig vel áfram. En illa lætur það af að-
búð sinni á sjóleiðinni.
Voðalegar fréttir berast frá Edin-
burg, N. D. Eldur kom upp í lyfjabúð
þar í bænum þann 20, þ. m., er ekki
varð slöktur. Sagt er að allur aðal-
hluti bæjarins hafi brunnið, um 20 hús
alls. Nokkrar fjölskyldur hóldu til i
herbergjum uppi yfar búðum bæjarins
og komust þær með naumindum ut ur
húsunum allslausar. Engu varð bjarg-
að. Sagt er að tvær íslenzkar konur,
Mrs. Jakobson Lindal og Mrs Björns-
son, hafi brunnið til bana, og haldið að
barn hafi einnig brunnið til dauðs. 2
kornhlöður brunnu og nokkrir járn-
brautarvagnar Great Nerthern járn-
brautarfélagsins. Allar sölubuðir og
vörur í bænum eru gersamlega eyöi-
lagðar svo að ekki var nægur matur
eftir i bænum til að endast daglangt,
en prívat íbúðarhús er sagt að hafi lit-
ið skemst í eldi þessurn.
Þær tvær fsl. konur sem létust í
eldinum voru kona Mr. Jakob Líndals
í Edinburg og kona Júlíusar Bjarnason
á Garðar.
ísl. verzlunarmenn sem biðu eigna-
tjón i þessum bruna voru Melsted & Co.
Hansen & Co. og Hermann &. Co,
Þessir síðastnefndu eru akuryrkju-
verkfærasalar og er sagt að tap þeirra
sé um tíu þúsund dollara.—Fargo bær
hefir gefið $250.00 til hjálpar þeim sem
eru nauðlýðandi í bænum, og Garðar og
Park River-búar hafa einnig skotið
saman fó til hjálpar hinu nauðstadda
fójki. Matvæli og fatnaður var strax
sent til bæjarins, og það er vonað að
hægt verði að bæta úr bráðri hörf allra
er nauðlýðandieru af orsökum brunans,
Séra Bjarni Þórarinsson prédikaði
á North IFest Hall á sunnudáginn var,
eins og auglýst hafði verið. Húsið,
sem rúmar yfir 300 manna var troðfult
hornanna á milli, Ekki einasta var
hvert sæti skipað heldu' var einnig alt
það rúm sem notað varð til að standa,
þétt skipað fólki, bæði herbergin sem
eru við uppgönguna voru og þétt skip-
úð af áheyrendum og gangurinn fyrir
framan aðal-salinn niður í miðjan stiga
einnig. Þó urðu margir frá að hverva.
Áheyrendui voru mjög vel ánægðir
með i4aðu séra Bjarna, og margir létu
þá skoðun í ljósi að þeir hefðu ekki
vestan hafs hlustað á betur samda eða
betur flutta ræðu. Það er vílji margra
hér í bænum að séra Bjarni haldi áfram
þessum sunnudags prédikunum fram-
vegis. Að eins óska þeir að hann fái
sér svo stórt hús að fólk þurfi ekki frá
að hverva vegna plássleysis.
Cl.
í
CA
O
z
5
<
ot
H
A. JOHNSON,
---ItJOTKAM------
614 Ross Avenue.
Verzlar með allskonar NÝTT K JÖT,
SALTAÐ SAUÐAKJÖT,
SALTAÐ NAUTAKJÖT,
SALTAÐ SVÍNAKJÖT
SALTAÐAR TUNGUR,
HANGIÐ SAUÐAKJÖT,
HANGIÐ SVÍNAKJÖT,
’ ALIFUGLA.
0g sérhvað annað, sem kjötsalar verzla með. '
---o--
Allir, sem æskja þess, geta fengið “Trading Stamps”, eða
“Prize Tickets”, sem veita tilkall til 5% uppbótar í pening-
um, eftir að keypt hefir verið fyrir upphæð þá, er téð
“Tickets” sýna.
Alt flutt heim til manna hvert sem er í bænum.
A- JOHNSON,
614 Ross Ave. Winnipeg.
Prize Tickets.
XI
70
N
m
o
z
m
s
Trading- Stamps.
KAUPID HUS
Med lagu verdi og
Hægum borgunarskilmalum.
Tvídyrað hús á McMillan Ave., Fort Bouge, framhlið úr múrsteini,
herbergi hvert hús, á stórum lóðum.—Einlyft hús (Cottage) ög verzlunarbúð að
444 og 446 Notre Dame Ave west. Lóðin er 45X120 fet. — Tvílyft hús að 937
399 og 477 Young Str. — Fimm hús áföst (Terrace) 405 til 413 McDermott Str
Tvídyrað hús, 356, 358 Pacific Ave. — Tvílyft hús á horninu á Lulu og Comm-
on Str.—Tvílyft hús að 155 Alexander Ave.—Nr. 255, 259, 261 Stanley Str., ein-
lyft hús(Cottage) og tvidyrað hús. —Nr. 490 Logan Ave.— Nr. 23 og 25 Martha
Str.— Nr. 138 og 140 Angus Str.
Mánaðar-afborganir, aðeins lítið hærri en venjuleg húsaleiga, eru þeir
borgunarskilmálar sem vér gefum kaupendum. Komið og talið við okkur.
Q. A. Muttlebury,
459 flain Str. — Winnipeg.
Mr. B. B. Olson, Gimli, hefir tekið
að sér útsölu Alexandra Cream Seper-
ators í Nýja-íslandi.
G. Swanson.
Ég Thorsteinn Thorkelson, Grocer
á Boss Avenue, geri kunnugt, að ég
sel nú ágætt hangikjöt fyrir 9c pundið
ef 5 pund eru tekin, Ham lOc pd., tólg
3 pd, fyrir 25c. Jam í stórum tréfötum
40c fatan, Jeily í 5 pd. fötum, 18 pd. af
bezta rasp sykri fyrir $1.00, 15 pd. bezta
mola sykur $1.00, Oranges 25c tylftin,
12 laxkönnur fýrir $1.00 og alt annað
eftir þessu. Islendingar ættu að skoða
vörurnar áður en þeir kaupa annar-
staðar fyrir' hærra verð. — Gleðilegt
Sumar!
TH. THORKEESON.
Bandaríkjafréttir.
Af verkamannahreyfingunum hér i
bænum er það helzt að segja, að það
varð einskonar vopnahlé með vélasmið-
um og verkgefendafélaginu þ 31. síð-
astl. Stondur það yfir þangað til
nefnd sú er gerð á að semja með hlut-
aðeigendum, gefur úrskurð sinn. A
meðan á gerðinni stendur skuldbinda
verkamenn sig til að ganga aftur til
vinnu, og verkgefendur að láta þá sem
í verkfallinu tóku þátt óáreitta. Yerk-
fall byggingarmanna heldur enn þá á-
fram.
Chicago 11.— 4—1900.
P. M. CliEMENS.
Voðalegur skógareldur æddi yfir
uðausturpart fylkisins ísíðustu viku
með fram Suðausturbrautinni og hefir
gert ógna skaða. Þeir herrar N. Keith
og Buehanan hafa tapað um 100,000
cords af eldiviði, sem þeir höfðu látið
höggva í vetur. Eldurinn er sagður
að hafa verið 3 mílur á breidd og flaug
undan skörpum vindi frá suðaustri til
norðvesturs, og svo hafði hitinn og
reykurinn verið mikill að ekki varð
komist nær skóginum en í 4 milna fjar-
lœgð. Mikið af timbri er talið vist að
hafi brunnið fram með brautinní, og
það er enda sagt að bæði menn og hest-
ar hafi farizt í þessum voða eldi. —
Mestur hafði eldnrinn orðið í kringum
9. og 10. “siding”, með fram Suðaustur-
brautinni, nálægt nýlendu íslendinga
við Pine Creek. Má vera að eldur
þessi hafi ollad löndum vorum i landa-
mæranýlendunni eitthvert tjón, en enga
áweiðanlega frétt höfum vér um það
enn þá. Kunnugir menn telja líklegt
að skógaréldar muni gera vart við sig
á fleiri stöðum í vor, af því að veður
hefir verið hlýtt og þurkar miklir og
skógurinn því óvanalega þur um þenna
tíma árs.
Eitthvert þýðingarmesta mál nú á
dagskrá Bandaríkja, er Porto Rico-toll-
málið, sem nú liggur fyrir fulltrúadeild
þingsins. Republikanar í þinginu hafa
tvískifzt um þetta mál. Þykir sumum
þeirra það mesta óhæfa að leggja tolla á
vörur milli Bandar. og Porto Rico. Þar
sem Miles hershöfðingi hafði lofað íbú
um eyjarinnar, þegar þeir gengu frí-
viljugir á hendur honum, að eyjan yrði
innlimuð í Bríkin. Neyðina sem nú er
eynni, hefir stjórnin verið að reyna að
minka með fjárframlögum. Eyja-
skeggjar heimta fría verzlun við Brikin
og segja sér þá vera borgið. En það
sem stjórninni gengur til, að sögn
fylgjenda hennar, er að slá því föstu,
að þing og stjórn Bríkja hafi rétt til að
semja lög fyrir “Nýlenduruar”. Þetta
verða þá hin fyrstu lög sem nokkurt
þing Bandarikjanna semur fyrir aðra
þjóð. Þetta er það sem kallað er “Im-
perialism”. Hafa Republikanar oft
neitað því að útbreiðslustefna stjórnar-
innar væri imperialista” stefua; en
þetta dregur öll tvímæli af því, og ger-
það núverandi stjórn Bandaríkja að
keisaraveldisstjórn og republikanaflokk-
inn að postulum þeirrar kenningar.
Litlar fséttir koma frá Filipseyjum,
enda þótt ætla megi að ekki gangi þar
alt sem friðsamlegast. Samkvæmt
skýrslum frá Otis herfor. dags. 3. Apr.
hefir 81 hermaður verið drepinn af
Bandarídjaliðinu síðan 1. Jan. þ. á. Að
öllu samlögðu hafa verið drepnir 467
Bandar. herm. þar’siðan 6. Ágúst 1899.
Á þessu sést að þeir sem drepnir hafa
verið þessa þrjá síðustu mánuði eru
meir en einn fimti hluti þeirra sem
drepnir voru i öllu stríðinu þar á undan.
Það hefir komist á orð að Banda-
ríkin keyftu eyjar Danaí Vesturindium;
en ekki hefir neitt orðið útkljáð um það.
Vilja eyjamanna í því máli rná marka .
afþví, að þeir héldu óvanlega mikið sem hann
upp á fæðingardagDanakonungsifyrra s,nnl-
dag, og tjáðu sig/Sfúsa að ganga undan
Stjórn hans, og undir Bandaríkin.
Sama skeyti segir að Danir hyggi til
umbóta á verzlunarfyrirkomulaginu á
eyjunum. Er þar konungseinokun eftir
því sem mér skilst; en eyjaskeggjar eru
flestir svertingjar.
í síðustu viku komu blöðin með þá
fregn, að Dewey flotaforingi hefði tjáð
sig fúsafln til að sækja um forseta em-;
bættið; en í dag er sagt að hann sé _
hættur við það.
Nýr minnisvarði.
Það á að fara að byggja nýjan
minnisvarða yfir Abraham Lincoln,
hinn alþekta Bandaríkja forseta. Minn-
isvarði þessi á að standa í Springfield i
Illinois ríkinu. Þessi minnisvarði verð-
ur að mestu leyti eftirliking af þeim
sem nú er til, nemaþessl nýi á að verða
15 fetum hærri. Það var byrjað að
byggja þann gamla 1869 en eigi var
hann fullgerður fyrri enn 1893. Hann
kostaði $215,000. Fyrir nokkru síðan
fór hann að skemmast, og ganga af sér.
Litlu eftir að hann var fullgerður gaf
undirstaðan eftir. Rifur og sprungur
komu i ljós á steinverkinu. Minnis-
varðinn sem er með allra fallegustu
vörðum þar um slóðir, leit út að mundi
þá og þegsr falla í rústir. Þingið í 111.
hefir nýlega áætlað og lagt fram pen-
inga til að rífa gamla varðann og
kyggja annan nýjan i staðinn. Á að
grafa fyrir undirstöðu ofan á klöpp, en
það eru 14 fet í jörðu niður. Nú er bú-
ið að flytja lík Lincolns, sem er í málm
kístu, tilOak Ridge kyrkjugarðsins, og
verður geymt Þar i likhvelflngunni á
meðan verið er að reisa þenna nýja
minnisvarða.
Það er í ellefta skifti • sem lík
Lincolns er handfjallað, frá því það
var tekið upp af gólfinu i Ford leikhús-
inu 14. Apríl 1865 og borið inn i Hvíta-
husið (forsetahúsið).
Það var gengið inn í grafhvelfing-
una að norðanverðu, í gamla minnis-
varðannm. I grafhvelfingunni voru 6
grafhvelfingahólf jafnhliðft, og i fjórum
af þeim vo'ru lík af nánustu vandafólki
forsetans geymd. Til vinsti handar
forsetans hvíldi kista konu hans, en til
hægri handar honum hvildu 3 synir
hans. Á kistu hans standa þessi ein-
kunnar orð haus í hálfhring: Fjandskap
gegn engum, en umburðarlyndi við alla.
Að sunnanverðu var gengið inn í
minningarherbergið. Þar eru geymdir
ýmsir munir, sem forsetinn hafði og
átti. Þar er brjóstmynd af honum,
skrift hans, eins og hann reit uppkastið
af stjórnarskrá Bandaríkjanna. Stóll
hafði einlagt i skrifstofu
allrahanda jarðmælingar-
verkfæri, sem hann brúkaði við land
mælingar á yngri árum sinum, á ýms-
um stöðum nærliggjandi Springfield.
Ennfremur púðurhorn sem afi hans átti,
og hét Abraham Lincoln, og var í
hernaði um tíma. Og fleiri eru forn-
menjar þar að finna.
Forsetakosningakvöldið 1896 gerðu
tveír menn tilraun til að stela likinu úr
grafhvelfingunni. En varðmaðurinn
I varð þeirra varr í tíma, og kom í veg
fyrir að þessir óþokkar gætu fran ið
I verkið.
*****mm**mmmm**mmm&**m**m
f ^ ^ — *
* nnr\A/n\/>n #
i
#
#
#
#
#
#
#
#
#
i
*
#
jUl
■w
#
#
JtL.
w
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
DREWRY’S
nafnfræga hreinsaða öl
“ÍTeyðir einsog kampavín.”
Þett er óáfengur og svalandi sælgætis-
drykkur og einnig hið velþekta
Canadiska Pilsener Lager-öí.
Ágætlega smekkgott og sáínandi í bikarnum.
jjaJIr þ«ssir drykkir er seldir f pelaflöskum og sérstaklega ætl-
aðir til neyzlu í heimahúsum. — 3 dúsin flöskur fyrir $2.00. Fæst #
hjá öllum vín eða ölsölum eða með því að panta það beint frá
REDWOOD BREWERY.
EDWARD L- DREWRY
mannfacturer & Importer, WOiMrEtt.
•«»#***«***#«*•***•»**#•*$
i
*
*
*
*
Hver sem
Klippir út þessaauglýsingu, kemur með hana til vor og kaupir af
oss alfatnað fyrir §10.00 eða $10.00 virði af vörum, fær okeypis
í kaupbætir $2.00 hatt. Þeim sem kaupa fyrir $15.00 gefum vér
besta hattinn í búðinn, og mega þeir velja hann sjálflr. Þér verð-
ið að sýna oss þessa anglýsing til þess- að fá þessar kanpbætur.
Þetta gildir þar til öðrnvísi verðnr auglýst.
LOIVG <&: CO.
Palace Clothing Store, Winnipeg.
‘458 MAIN STREET.
Sjónleikurinn
“ÆFINTÝRI Á GÖNGUFÖR”
verður leikinn tvisvar í samkomusal
Good-Templara í Selkirk, nefnilega
miðvikudagskvöldið 2. og föstudags-
kvöldið 4. Maí næstkomandi. Inn-
gangur fyrir fullorðna 30c.; fyrir
börn innan 12 ára 15c. Veitingar
verða seldar á staðnum. Dans á eft-
ir leiknum fyrir alla sem vilja.
Byrjað verður að leika 15. mínút-
um eftír kl. 8 bæði kvöldin.
Concert,
Social og
Dans
Verður haldinn á Albert Hall,
corner Main og Market Str.,
Fimtudagskvöldið 26. Apríl
1900, kl. 8, — undir umsjón
kvennfélagsins “Gleym mér ei.”
PROQRAH
Samspil:
Solo:
Recitation:
Solo:
Recitation:
Solo:
Duet: The
Mrs Murrell and Mr. Wm.
Anderson;
Miss B. McKenzie;
MissOddný McKenzie;
Dr. O. Stephenson;
R. J. Buckingham;
MissB. McKenzie;
School playground
Miss Tossie McKenzie and Master
Bobbie, McKenzie;
Comic Solo: William Keena;
Solo: B. McKenzie;
Solo: • Mr. VFarning;
Samspil: Mrs Murrell, Mr. IFm.
Anderson.
Viðbót: Mr. Wyley, með söngflokk
sinn syngur, einu sinni eða oftar á sam-
komunni.
Aðgangur 25c. fyrir fullorðna,
15c. fyrir börn.
Skemtisamkoma
og veitingar.
Undirumsjón nokkurra ungra stúlkna
úr stúkunni Heklu, á North West Hall,
mánudagskvöldið 30. April 1900. Til
Arðs fyrir byggingarsjóð stúknanna.
PROQRAm:
Instrumental Music — Mr. Anderson,
Mrs. Merrill.
Upplestur—Mr. Kr. Ásg. Benediktson.
Söngur—Nokkrar ungar stúlkur.
Ræða—Séra Bjarni Þórarinsson.
Solo—Mr. J. Power.
Hecitation—Miss H. P, Johnson.
Veitingar.
Instrumental Music — Mr. Anderson,
Mrs. Merrill.
Recitation—Miss Valdís Valdason.
Solo—Miss Jónína Hannesson.
Instrumental Music—Mr. Clark.
Dialogue: Restraining Jotham.
Ipstrumental Music— M. Anderson,
Mrs. Merrill.
Byrjar kl. 8. Salurinn opnast kl. 7.30.
Inngangur 25 cts.
Kaupið Fleury’s $13.50 alfatnað
(( i( 12.00 ((
il (( 10.00 ((
il (( 8.00 ((
ll (( 6.00 (<
tl (( 5.00 ((
ii (( 4.00 ((
Kaupið Fleury’s $ 8.00 yflrkót
ii (( 10.00
a (( 12.00 ((
t < (( 15.00 ((
Kaupið Fleury’s $ 1.00 Buxur
li (( 1.25 ((
ll (( 1.50 ((
(( (( 2.00 ((
Kaupið Fleury’s $ 0.50 Hatat
(( (( 1.00 ((
(( (( 1.50 ((
(( (( 2.00 ((
Kaupið Fleury’s $ 0.50 Nærföt
(( (( 0.75 ((
(( (( 1.00 ((
D. W. Fleury
564 JIuin Street,
Gagnvart Brunswick Hotel.
Victorla Kiuploynient Iturean
482 Main St. Winnipeg.
útvegar stúlkum vistir, sem eldakonum
og við borðstofu og uppiverk á gest-
gjafahúsum, einnig vistir í prívathúsum
W. W. COLEMAN, B. A.
SOLICITOR ETC..
Wimiipeg uml Stonewull.
308 McIntyre Block.
Deacon & Ross
JMerclmiit ThíIoi-n
á horninu á Princess og James Str.
Búa til föt eftir máli. Alt verk velvand-
að og mjög ódýrt. Reynið oss einu-
sinni. Þér komið þá aftur.
asmrnmmmmtmmmm
SZZ Allir sem vilja reykja góða
S~ vindla og fá fullvirði pen-
inga sinna, reykja
g TIe Keystoiie Cipr
y— Okkar beztu vindlar eru
S£_ Tlie Keyxlnne,
»: Pine Itm-r ojj
E1 JTlodeio.
S- Verkstæði 278 James St.
% Keystone Cigar Co.
Tiimimimimm
MeClary’s
nafnfrægu eldunarvjelar.
VERÐ FRÁ $11.00—$50.00
Verðið mismunandi eftir því hve
vélarnar eru þungar, stórar og
fallegar!
Qilmer & Co.
55lMAINSt. - WINATI»K«,-
Næstu dyr fyrir norðan Heimskringlu.