Heimskringla - 10.05.1900, Page 1
!♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
Eldastór íyrir $8.50
Isakápar lyrir 8.50
Steinolíueldastór $5.00 og yfir
Tradiug Stamps. Cash Coupons.
ANDERSON & THOflAS,
w Jarnvqrusalar Main St.
^♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦^
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
!♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦!!!
Screen Doors,
Screen Windows,
Vírnet til ad búa til úr sumarhurðir og
glugga; Vírnet til fuglagirdinga.
'l’rading títauips. Cash Coupons
ANDERSON & THOMAS,
JaRNVÖRUSALAR 538MAINtíT.
!♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
I
:
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
XIV. ÁR WINNIPEG, MANITOBA 10. MAI 1900. Nr. 31.
PENINQAR LANADIR. Hægar mánaðar afborganir.
Vér erum umboðsmenn fyrir hið bezta og ríkasta lánfélag
sem bækistöðu hefir í Winnípeg.
VILTU EIQNAST Laglegt og vel vandað einloftað hús
(Cottage) á Alexander Ávenue ? Það er úr timbri,. á
steingrunni og kostar $1200.
TAKID VATRYGGING— í “The phoenix of london”.
Það er hið elzta og bezta vátryggingafélag í heimi.
Nares, Robinson & Black,
Bank of Ilamilton Cliambers.
The Home Life Association
of Canada.
Aðalskrifstofa i Toronto.
Höfuðstóll—ein millíón dollars.'
1 ill trygging í höndum sambanc(sstjórnarinnar.
Lifsábyrgðarskýrteiui Home Life félagsins gilda hrar i heimi sem er. Eng-
in höft eru lögð á skirteinishafa hv:ið snertir ferðalög. bústað eða atvinnu. Þau
eru ömótmælanleg eftjr eitt ár frá dagsetningu.
Skírteinin hafa ÁBYRGST VERÐGILDI í uppborgaðri lífsábyrgð, pen-
ingum og lánsgildi, eftir þrjú ár.
Leitið upplýsinga um félagið og ábyrgðarfyrirkomulag þess hjá
W. H. WHITE, ARNI EGGERTSSON,
MANAGER. GENERAL AGENT,
I?lclntyrc lilock, Wiimipeg, P.O Kox;245.
Frjettir.
Markverðustu viðburðir
hvaðanæfa.
Skýrslur póstmálastjórnarinnar í
OttaWa eru nýútkomnar, ná þær yfir
síðasta fjárhagsár upp til 30. Júní síð-
astl. Tap stjórnarinnar á póstflutning-
um á árinu var $398,000, sem orsakað-
ist af lækkun burðargjaldsins á bréfum
niður í 2e. Tala bréfa frá Canada á ár-
inu var 150J mílíónir. 12J milíónir
bréfa gengu gegn um pósthusið í Win-
nipeg á árinu og er nú Winnipeg orðin
3. stærsti bærinn í Canada að því er
snertir póstflutninga.
Sendinefnd af Canadamönnum hefir
heimsótt admiral Dewey í Chieago og
boðið honum að ferðast um Canada og
þiggja heimboð í ýmsum borgum her í
Júli næstk., en Dewey hefir neitað boð-
inu, segist vera svo önnum kafinn að
hann hafi ekki tíma til að vera svo
lengi að heiman þó hann annars vildi
gjarnan verða við tilmælum nefndar-
innar.
Ejórir ítalskir verkamenn voru að
sprengja 'ilett með dynamite á Rainy
River-járnbrautinni, sprakk þaðfyrr
en þá varði, og tætti þá alla sundur í
smá agnir.
Rússakeisari hefir nýlega gefið ensku
auðmannafélagi leyfi til að vinna auð-
uga gullnáma á 8000 ferh.miina svæði í
Neztsehmsk í Síberíu. Land þetta er
prívateign keisarans og námarnir hafa
að þessum tíma verið unnir undir um-
sjón ráðgjafa hans. Frakkar og Þjóð-
verjar höfðu beðið um leyfi að mega
vinna þessa nátna, en keisarinn kaus
heldur að veita Englendingum það, og
er það talið vináttumerki við ensku
þjóðina.
Bóndi, að nafni Houls, sem bý: ná-
lægt Pembina, drap konu sína með eldi-
viðarspítu á sunnudaginn var. Höfðu
þau hjónin farið til kyrkju í Pembina
og frá kyrkjunni fóru þau yfia til tít.
Vincent, til að fá sér hressingu. Fékk
maðurinn sér vín og heldu þau svo
heimleiðis. Ýmsir gestir höfðu verið i
húsinu síðaripart dagsins og,varð ekk-
ert sögulegt, en þegar allir voru farnir.
höfðu hjónin lent í orðakast, sem end-
aði þannig, aö bóndi greip eldiviðar-
spítu og batði konuna til dauðs. —Ekki
hafði messugerðin betrandi áhrif á
þann náunga.
Þann 27. f. m. rákust 2 vagnalestir
saman á C. P. R. brautinni, 60 mílur
vestur af Sudbury, Ont. 18 vöruflutn-
ingsyagnar og 2 gufuvagnar brotnuðu
og vörur skemdust og eyðilögðust; lest-
in að vestan flutti hveitikorn, en sú að
austan hafði matvæli og pappír til
kaupmauna í Winnipeg. Liun maður
lét lífið yið slys þetta, sem orsakaðist
af vangá tveggja mauna; annar svaf
þegar hann átti að vaka, en hinn var
hraðskeytasendimaður, sem af óað-
gætni lét vestanlestina halda áfram
framhjá vagnstöðvum sínum, án þess
að vera viss um að austanlestin væri
ekki á brautinni milli næstu stöðva að
austan og þeirrar er vestanlestin fór
frá. Tap C. P. R. félagsins er talið
$50*000.
Fréttir frá Pekin, Kíua, segja lík-
legt að Lmperor Kuang Hsu muni
bráðlega verða líflátinn. í tilefni af
þessu eru stjórnarþjónarnir nú að
kaupa sorgarbúninga, og svo er eftir
sóknin mikil að þeir seljast við þrisvar
sinnum hærra verði en vanalega gerist.
Stórkostlegt slys varð í kolanámn
Pleasant Valley félagsins hjá Schofield
í Utah þann 1. Þ- Hafði kviknað í
nokkrum könnum af sprengipúðri niðri
í námunutu, þar sem 250 menn voru að
vinna. Sprenging þtíssi drap 100 manns
og særði marga. Er talið víst að allir
sem í námunum voru hafi litið lilið.
Eldur kom upp í kolanámu í len-
nessee 1. þ. m. og létu þar nokkrir
menn lífið í eldinum. Einnig kvikuaði
í kolanámu í Virginia og köfr.uðu þar
nokkrir menn, en ekki er enn þá ljóst
hvad margir fórust þar.
Dominionstjórnin hefir veitt $100,000
og borgin Ottawa önnur $100 000 til
hjálpar þeim sem bíðu tjón við eldsvoð-
ann í Hull og Ottawa. Flestir bæir
ríkisins hafa gbfið mismunandi fjárupp-
hæðir. Winnipeg gaf $1000.
Bæjarkosningarnar í St. Paul,
Minn., gengu Demókrötum í vil þann
1. þ. m. Repúblíkar hafa haldið þar
völdum siðastl. 4 ár. En nú sópuðu
Demókratar þeim gersamlega út. Ro-
bert A. Smith var kosinn borgarstjóri
með2000 atkv. umfram, og 9 af 11 bæj-
arráðsfulltrúum eru Demókratar. Öll
önnur embætti, sem háð eru atkv. al-
mennings, gengu Demókrötum í vil.
~s.
30 Bandaríkja hermenn á einni áf
Filipseyjunum sýndu nýlega drenfeilega
vörn móti ofurefli liðs. Nokkur hundr-
uð eyjarskeggjar sóttu að þeim, en þeir
komust í steinkyrkju eina og vörðust
þar í 5 sólarhringa. Eyjarskeggjar
kveiktu í þakinu á kyrkjunni og féll
það ofan á þá, sem inni voru. Létu 20
Bandamenn þar lífið, en fallið höfðu
af eyjarskeggjum um 200, áður en 9
Bandaríkja hermenn komu til hjálpar
þeim 10 eftirlifandi Bandamönnum, er
varist höfðu svo lengi án svefns og mat-
ar og orðið að halda uppi hvíidarlausri
skothríð. Þegar þessir 9 Bandaríkja-
hermenn komu, lögðu eyjarskeggjar á
flótta, en skilJu dauða og særða eftii á
vígvellinum. — Það er og sagt að Agu-
inaldo, foringi uppreístarmanna þar á
eyjunum, hafi fallið í bardaga við Ig-
garitis, en engin áreiðanleg vissa er enn
þá fengin fyrir því.
Regina-þingið stendur nú yfir og
hefir til meðferðar mjög þýðingarmikið
spursmál fyrir framtíð Norðvestur-
landsins. Þingið fer þess á leit að Do-
minionstjórnin láti rannsaka alt ástand
norðvesturhéraðanna í því augnamiði,
að veita þeim fylkisréttindi. Mr. Haul-
ton, stjórnarformaður, hélt fjögra kl.
tíma ræðu um þetta mál í þinginu 2.
þ. m. Hann játaði að vísu að ekki
væri vonlegt að héruðunum yrði veitt
fylkjaréttiudi að svo stöddu, en það
væri nauðsynlegt að taka málið ræki
lega til íhugunar og umræðít. Hann
kvað Norðvesturhéruðin vera að
ýmsu leyti afskekt vegna þess að þau
hefðu ekki fylkisrétt, til að styðja mál-
stað sinn með. Héruðin væru skoðuð
sem ómyndugir meðlimir fylkjafjöl-
skyldunnar; bænir þeirra væru ekki
heyrðar af Ottawastjórninni og héruð-
unurn væri fært til reiknings ýmsar
upphæðir, sem að réttu lagi ættu að
borgast af Manitoba og Ontario,
Kvartanir hafa borizt Ottawastjórn-
inni ,yfir því, að ýmsir menn hafi það
fyrir atvinnuveg að selja Indíánum í
Norðvesturlandinu áfenga drykki. Er
þetta brot móti ríkislögum og varðar
þungri hegningu. Stjórnin hefir samið
við Hudsonflóafélagið og stjórn Norð-
vesturhéraðanna viö lögreglulið Norð-
vesturlandsins og við missíóns-prest-
ana í héruðunum, að gera alt sem í
þeirra valdi stendur til að fyrirbyggja
sölu áfengis til Indíána og kyublend-
inga og til að fá hverjum þeim manni
stranglega hegnt, sem verður uppvís að
óleyfilegri vtnsölu þar.
Fátækur vélasmiður i London, Ont.,
Francis E. Brooks, hefir nýlega fengið
tilkynningu um að ættingi hans hefði
dáið í California, og hefði skilið honum
eftir arf, 9 milíónir dollars. Brooks tók
við arfinum með ánægju.
Síðustu herfréttir segja Gen. Ro-
berts haldi liði sínu í ákafa áleiðis til
Pretoria, og að hann sé tæpar 200 mílur
frá þeirri borg. Bretar hafa tekið þorp-
in Wineburg, Rooidam og Brandford,
og eru komnir yfir 2 stórár (TFot River)
Nokkrir bardagar hafa verið háðir á
þessari leið, og er svo að sjá sem Bret-
ar hafi alstaðar haft betur. Búar, sem
teknir hafa verið fangar, segja ekki lík
legt að Bretum verði veitt nein veruleg
mótspyrna fyr en komið er til Pretoria.
Þeir sýnast ekki vera mannskæðir
allir þessir bardagar, má t. d. nefna
bardagann við Wat River 5. þ. m.
Voru þar Bretar og Búar andspænir
hvorir öðrum og skutust á yfir ána.
Var barist frá kl. 1 til sólseturs og
buldu fallbyssukúlurnar á herbúðum
beggja flokka, og segir fregnln aðBú-
ar hafi skotið vel, en þó særðist enginn
einasti maður af liði Breta i 8 klukku-
stunda skothríð.
Borassa þingmaður, sá sem var rit-
ari stjórnmálauefndavinnar, er saman
kom í Washington í fyrra, til að ræða
um deilumál Canada og Bandaríkjanna,
hefir verið krafin reikningsskapar fyrir
eyðslu á rúmum $2000 af ríkisfé, sem
hann varð af með i “túrnum”. Bor-
assa kvað þingnefnd þásem fjallaði um
málið ekkert varða um útgjaldaliði
eína. Kostnaðurinn hefði verið um
$1400 á dag íyrir sig; en ekki vildi
hann segja til hvers þeim peningum
hefði verið varið. Kostnaður nefndar-
manna var um $50 á dag fyrir hvner
mann og árangurinn af öllutn funda-
höldum og kostnaðinum varð—enginn
Það er nú taiað í Ottawa, að Do
minionkosningar muni ekki verða fyr
en í Október í haust, með því að Mr.
Tarte verði á Frakklandi fram að
þeim tíma.
Otis, herforingi Bandamanna á
Filipseyjunum, er nú á heimleið. Fór
frá Manila 5. þ. m .
Sagt er að canadiska Stratchona-
herdeildin hafi áunnið sér mikið hrós
hjá Roberts hershöfðingja fyrir fram-
komu sína á vígvellinum. Það voru
þeir sem fyrstir allra af her Breta
kornust yfir TKet-ána og þótti þáð vel
gert, þar sem þeir voru undir ákafri
skothríð frá Búunum meðan þeir voru
að komast yfir ána.
Fyrsta canadiska herdeildin, sem
hafði 1093 meun þegar hún fór að heim-
an, hefir nit eftir 751 heilbrigða menn;
44 hafa fallið í orustum og rúmir 200
eru særðir og veikir af ýmsum sjúk-
dómum.
Stórt pappirsgerðar verkstæði brann
í Grand Mere í Quebec á sunnudaginn
var. Pappír hefir mikið hækkað í
verði síðan Eddys pappírsverksmiðjan
í Hull brann um daginn og þessi í
Quebec.
Yoðaeldur kom upp í bænum San-
don í British Columbia og brann hann
tilösku. Brunnu þar 250 familíuhús,
50 búðir og gestgjafahús, Telegraph
Office C. P. R. félagsjns, pósthúsið,
bankahúsið og kyrkjur. — Potter bæj-
arstjóri sendi um alt Canada hraðskeyti
þannig orðað: “Sandon bærinn er ger
samlega brnnninn til ösku, 4. Maí”.
—Bær þessi liggur vestarlega í Kletta-
fjöllunum og hafði 1500 íbúa. Fólkið
er nú alt matar- fata- og húsnæðislaust.
Sjálfsagt verður skotið saman til að
hjálpa því, eins og gert hefir verið fyrir
það sem beið tjón víð eldinn í Hull og
Ottawa.
Nær 1100 Búar hafa verið sendir
til St. Helena. Geueral Cronje raeð
konu sinni og nokkrum öðrum föngum
var áður kominn þangað Það er farið
vel með fólk þetta Cronje og kona
hans skemti sér við það að ferðast á
hestbaki um eyna og er þeim víðast vel
fagnað.
Samskotin til allsleysingjanna í
Hull og Ottawa eru orðin yfir hálfa
milíón dollars.
Gen. ll'hite, sá sem lengst og bezt
varði Ladysmith fyrir Búum, hefar ver-
ið sæmdur heiðursorðu af Yictoriu
drotningu.
Blaðamenn frá ýmsum stöðum í
Canada hafa farið á fund Ottawastjórn-
arinnar og mælast til þess, að hún taki
allan toll af prentpappir, um stundar
sakir, að mi nsta kosti, þar 11 búið sé
að byggja upp aftur þær tvær pappírs-
gerðar verksmiðjur í Canada, sem ný-
lega hafa brunnið. Kvarta blaðamenn
um að verð á prentpappír hafi hækkað
nær því um helming á fáum mánuðum,
og að nauðsynlegt verði að hækka verð
blaðanna, nema tollurinn sé aftekinn.
Enn fremur er stjórnin beðin að létta
póstgjaldi ‘af bJöðum. Laurier lofaði
að athuga málið, og það eru uokkrar
líkur til þess að þessu íáist framgengt.
Þríloftað múrsteinshús hrundi til
grunna ííKansas á mánudaginn var og
létust allir sem inni voru.
•
Sendinefnd Búanna, sem nú er á
leið til Bandaríkjanna, er bráðlega
væntanleg til Washington. Er búist
við að henni verði vel tekið, án þess þó
að óskir hennar verði uppfyltar frá
hendi Bandarikjastjórnarinnar, við-
víkjandi stríði Breta og Búa. Banda-
menn vilja ógjarnan ganga í berhögg
við Breta með afskiftum í þvi máli.
Samkoma
að Möðruvöllum.
Samkvæmt áður útgefinni auglýs-
tngu tilkynnist, að laugardagurinn 26.
Maí næstk., er ákveðinn til samkom-
unnar að Mcðruvöllum í Hörgárdal.
Akureyri 20. Marz 1900
Þorv. Davíðsson j
M. B. Blöndal T Akureyri.
Páll Jónsson )
Guðm. Guðmundsson Þúfnavöllum
St. Stefánsson Fagraskógi
Frá löndum
WILD OAK, MAN., 19. APRÍL 1900.
Ritsti. Heimskrinelu.
Hér er ljóroandi veður dag og nótt,
jörð er að byrja að grænka og verður
brátt algræn, cf þessi góða tíð helzt
framvegis, sem alt útlit er fyrir.
Hagur bænda hér er í góðu meðal
lagi, það ég til veit. Nautgripir eru i
háu verði. Gripakaupmenn borga $3B
til $40 fyrir þriggja ára uxa og $20—$25
fyrir tveggja ára uxa. Smjör er í háu
verði. 20c. pd., í Gladstone, sem er að-
al-verzlunarstaður vor íslendinga á
vesturströnd Manitobavatns.
Heilsufar roanna hér hefir vertö
með lakasta móti i vetur. Mislingar
geysuðu hér og 'ögðust þungt á marga;
nú gengur hór i/.flúenza og eru margir
töluvert lasnir.
Framfarir hér i bygð, hvað almenn
fyrirtæki snertir, mega heita sára liti
ar. Það er um þessar mundir blæja-
logn á fólkinu. Skemtanir virðast vera
að deyja út í þessari bygð. Að sönnu
tóki' nokkrir mennsig saman og mynd-
uðu leikfélag og léku hér í skólahúsinu
þann 80. Marz síðastl, ogtókst það vel.
Léku sumir leikendur ágætlega, sér-
staklega þegar þess er gætt, að þeir
höfðu lítinn undirbúningstíma og fáar
æfingar. Leikritið var “Afturhalds
maðurinn”, og er þessi “afturhaldsmr.
ur” aðal p rsónan í leiknuro, og var
snildarlega leikintt af herra Bjarna
Davfðssyni, Að öðru lej'ti ætti ég ekki
að dæma um leikendurna og er að lík-
indum ekki fær til þess, enda of langt
mál að fara út i það, að eins skal þess
getið, að öllum leikendum tókst vel, og
óska áhorfendur að fá að sjá þenna leik
aftur á næstft vetri. Eitt var þó að í
sambandi við þessa leiksamkomu, og
það vt.r það, hve illa bygðarmenn sót'u
þessa einu samkomu, sem haldin var á
vetrinum. Annað eins er ekki rétt,
þegar menn eiga vel heimangengt og
geta ferðast á góðum vegum, í góðu
veðri, til að horfa á skemtilegan leik
fyrir satna og ekki neitt gjald. Ég
vildi óska að bygðarmenn gerðu það
að skyldu sinni að sækja vel okkar
næstu leiksamkomu hvenær sem hún
verður.
Eki/ert er hér enn þá rætt um ís-
lendingadagshald í sumar, hvorki 17.
Júní eða neinn annan dag. Og tals-
vert sjálfsdýrkunarbragðfinst mér vera
að samþykt þeirra Argylebúa. Skyldi
sá dagur Júnímanna eiga nokkra fram-
tíð í vændum ?
Ljót er árás Lögbergs á séra Haf
stein Pétursson, og sjálfsögð skylda
þeirra sem bezt þektu hann hér vestra
að bera til baka annan eins óþverra á
slíkt valmenni og séra Hafsteinn er i
allri framkomu. Hvað gengur annars
að Argylebúum að taka ekki málstað
prestsins með einu orði? Eru allir
gömlu safnaðarlimir hans þar sam-
þykkir Lögbergi í þessu máli ?
Þá er að minnast á fiskveiðarnar i
Manitobavatni. Þær hafa gengið fiem-
ur tregt í vetur, en verðið var gott um
tíma, 5c. pd. í hvítfiski, en féll siðar
niður i 4Jc.; nálfiskur var um tima
borgaður með 2|c. pd., og pækur og
birtingur 2c. pd,, en þetta vorð hélzt að
eins stuttan tíma, og sögðu menn að
verðlækkunin stafaði af of góðri tíð, er
vel getur hafa verið.
Svo er að minnast, dálítið á sumar.
veiðina, sem stundum hefir verið, en
sem Ottawastjórnin virðist vera búin
að fyrirbjóða með ákvæðum þeim, sem
hún hefir nýlega gert eins og auglýst
hefir verið í blöðunum. Margir hér hafa
óskað eftir slikri reglugerð um veiði i
Manitobavatni, en hinir eru þó eflaust
fleiri, sem verða óánægðir með þau;
þeim finst að atvinnuvegur þeirra vera
of mjög takmurkaður með þessum lög-
um, og að þeir njóti ekki sama réttar
og hinir, sem búa við Winnipegvaín,
sem er undanþegið þessum veiðibanns-
ákvæðum, því komið hafa kvartanir
um það, að fiskurinn sé þar að minka,
ekki síður en í vestari vötnunum. Það
er hætt við að ýmsir líti svo á, að
stjórnin hafi ekki viijað þröngva kost-
um auðfélaga þeirra, sem hafa veiðisiöð
sína við TTinnipegvatn.
Burtflutningur er að verða héðan
talsverður. 7 menn um það farnir og
fleiri á förum. Orsakast þetta af því
að ekki fæst heimilisréttur á þeim lönd-
um, sem þeir hafa setið á; en þó hefi ég
frétt að sama óvissan hvíli yfir þeim
löndum, sem þeir ætla að flytja á og er
þvi flutningurinn að minni hyggju ó
ráðlegur. Þeir sem nú eru að flytja
héðan. fara allir til '*Big Grass”, sem
er skamt héðan. Þar er nú að risa
unp íslenzk bygð, sem væntanlega á
góða framtið.
Svo enda ég með góðri þökk fyrir
stækkunina á Heimskringlu. Kaup-
endur hennar hér eru vel ánægðir með
biaðið og óska því góðrar framtíðar.
Ingím. ólafason.
GIMLI, MAN., 23. APRÍL 1900.
Herra ritstj. Hkr.
Af þvi sem engir senda blöðunum
fréttir héðan, þálaDgar mig til að rjúfa
þögnina.
Heilsufar manna hefir verið heldur
bágt seinnipart vetrarins og hafa nokk-
ur börn dáið úr mismunandi veikind-
um. Nú fyrir stuttu dó yngsta barnið
hjá Ouðna Þorsteinssyni, og var það
jarðsungið þann 18. þ. m. Af því full-
orðna fólki, sem látist hefir hér og ekki
verið getið neinstaðar í blöðuuum, má
geta Einars R. Björnssonar, sem dó
hér á Gimli í siðastl. mánuði, eftir að
hafa legið þunga og kvalamikla legu
síoan t fyrrasumar. Hann var stund-
aður af Einari lækni . Jónssyni allan
þenna tíma, og munu laun E. J. vera
mest innifalin í hjartnæmu þakklæti
e.ikjunnar, sem nú situr eftir syrgjandí
mann sinn, einntana og að mestu leyti
allslaus með 4 börn. Þessari familíu
hefir verið veitt dálítil hjálp af fólki hér
í grendiuni og einnig af sveitarstjórn-
inni, en það má til að gera eitthvað
meiraen búið er, ef þessir munaðarleys-
iugar eiga ekki að líða og það til muna.
Félagsskapur hér virðist mér held-
ur að skána. Vitanl. er margt í félags-
málum vorura, jsem ekki ætti að eiga
griðland riokkursstaðar, og það er hið
mikla áhugal. einstaklinganna lyrir sín-
um félagsskep. Persónulegur kali og
tortrygni eru einnig ríkjandi öti, sent
eiga sinn hlut í því að gora félagslífið
erviðara en annars mundi, ef það ætti
sér ekki stað, en þá mun sannleikurinn
vera sá, að þetta só ekki í stærri stíl
hér en á sér stað víða annarstaðar. — í
viðbót við þau félög, sem hér voru áður
s. s. Bændafél., Lestrarfél., Kvennfél.,
Söngfél og “Foresters”, var myndaður
hér á Gimli lúterskur söfnuður af séra
R. Marteinssyni, þegar hann var hér á
ferðinni síðast; einnig Bindindisstúka
af hr, Sig. Júl. Jóhannessyni, er kom
hingað til Nýja Isl. í þeim erindum.
Um þessar tvær hreyfingar er enn ekki
hægt aö stgja annað en það, að tals-
vert starf og líf hefir verið í þessum
fél. síðan þau mynduðust. Samkomur
hafa verið hér nokkuð margar og flest-
arvelsóttar. I flestu munu þær hafa
verið líkar því sem gerist annarstaðar.
Skólamál munu óefað vera meira
vakandi í hugum manna en átt hefir sér
stað á undanförnum tímum. Föstud.
20. síðastl. var byrjað á að kenna og er
Miss Vopni kennarinn. Það mun mörg-
um hafa þótt tími kominn til þess.
Næsta dag á eftir var almennur skóla-
fundur haldinn til að ræða um lántöku
til þess að byggja skólahús hér á þessu
samri, einnig til að kjósa skólanefndar-
mann í stað J. Féturssonar, sem fór úr
nefndinni sökum skiftingar á skólahér-
aðinu, er fór fram síðastl. vetur. Af-
rá ið var að taka $700 lán til bygging-
arinnar, og eru nú líkur til að við fáum
skóla, er ekki sé fólkinu og plássinu til
minkunar ogerþad vissul. þakklætis
vert. Benedikt Freeman var kosinn
skólanefndarmaður, og munu allir vel
una þeim skiftum. B. F. er þektur að
öllu öðru en því að láta blinda partisku,
óþolandi trassaskap og skeitingarleysi
ráða fyrir með þau störf, sem honam
eru á hendur falin, en það eru þær á-
kærur, sem G. Þ. og J. P. hafa enn
ekki reynt að hrinda af sér, og sem þeir
eru brennimei ktir með sem opinberir
embættismenn almennings. Sero sagt,
menn trúa því ekki að G. Þ. stingi B.
F. í vasa sinn, eða hafi hann fyrir lepp
.til að hylja sínar brellur með. Menn-
eru nú loksins farnir að þekkja pilt-
inn(G. Þ.). Menn vita að það er hon-
um og J. P. einfaöngu og aðallega um
að kenna, að skólahéraðið fær aldrei að
njóta þess hagnaðar sem hefði getað
orðið af kyrkjuhúsinu hér á Gimli, ef
því hefði verið haldið fram, sem al-
menningur var búinn að samþykkja í
einu hljóði með ráðstöfun á þessari
marg-umræddu kyrkju. Og annað, að
þeir eru búnir að koma því þannig ?yr-
ir, að hús þetta verði bitbein fólksins
framvegis eins og að undanförnu, og
það er ekki smáræði unnið við það.
Astæðan fyrir þe8sari framkomu og
skoðanabreyting G. Þ. er auðsjáanlega
sú, að nudda sér upp við lúterska söfn-
uðinn og fá byr í segl sín úr þeirri átt.
Það gerir svo setn ekki mikið til, þótt
G Þ. hafi bannfært alt það starf á liðn-
um tímum. Það eröldinönnur núna.
Nú þarf að fá lið frá þeim flokki, og þá
er að smjaðra fyrir þeim. Ég óska
söfnuðinum til lukku með kallinn.
Ekki má gleyma heldur göfug-
menskunni, sem G. Þ. fékk “Dakoting-
inn” til að hrópa sér til lofs og dýrðar,
og sýna almenningi að hefði legið til
grundvallar fyrir ráðntngu á A. Kristj-
ánsson síðastl. keuslutímabil. Kærleik
urinn og meðauntkunin til þessarar fá-
tæku fatnilíu stóð að eins fratn að þeim
tíma, að G. Þ. var fullviss utn aö hann
gat ekki fengið A. K. til að gangt sína
pólitisku sannfæring á bug, og gelta
eins og Guðui vildi sjálfur. Fyrir þá
ástæðu að sesja sannfæring sína, koma
hreinn og beinn fram, varðA.K, að
víkja sem kennari, þrátt fyrir að hafa
áunnið sér almennings hylli fyrir starf
sitt í þeirri stöðu. Kærleikurinn sem
Dak.-draugurinn básúnaði mest yfir.
var kafnaður. Meðaumkunin dauð og
sannleikurinn sofnaður. A. K. fat n
euga náð í augum Guðna framar.
Þetta er í stuttu máli framkonta G. Þ.
sem skólanefndarmanns, og skyldu
menn ekki muna eftir henni á næsta
hausti þegar hans tími er úti í því em-
bætti. “Vér bíðum og sjáum hvað
setur”.
J. kafteinn hefir keypt gufuketil til
að hreyfa tneð þreskivél þá. er keypt
var fyrir nokkru síðan, Voru vélarnar
reyndar á höfrum óg hveiti, sem hann
(J. K.)ogJóh. V. Jónsson á Bólstað
áttu, og reyndust þær vel. Það er ó-
efaö rnikið framfaraspor, sem þeir kaft-
eins-menn hafa stigið með þe*su fyrir-
tæki, ertda eru uú margir bændur að
hreinsa .bletti tii að sá í á þessu vori.
—Þetta mun hrinda jarðrækt raeira á-
fram, en nokkuð aunað atriði hefir gert
fram á þenna dag. og eiga þeir íélagar
mikla þökk skilið þar fyrir.
Ég man ekki eftir fleiru nú sem
stendur, en ég hugsa mér að láta þess
getið sem hér gerist framvegis, og óska
ykkur til allra heilla.
B. B. Ouson.
llnion Brand
. Intnrnatfoii.%1
HEFÍR g KAUPIÐ
ÞETTA "iiP ElvKERT
MERKI Þ^ÍlíP® ANNAÐ
(HCQISTCRED)