Heimskringla - 24.05.1900, Page 1
1 nn nnn Fiueur °p,iMos<iu'
» U l/W it,os” iangaöar.hér á
hverjum degi. Fáið yður hurðir
og glugga úr vírueti. V iö höium
það á ýmsu verði og með allskon-
ar htum,
Ttading Stamps. Cash Coupons.
ANDERSON & THOflAS,
w J ARN VOJ-tUöAi,AK &Ö8 MaíN ST.
^, ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦'
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
:
♦
Lii
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
Hammocks.
en að hvíia sig í ‘Hanimoek.”
Reynið pað eiuu sinni. Vér höf-
um þá á mismunandi verði.
Trading Stamps. Cash Coupons
ANDERSON & THOMAS,
J AltN VoltUSALAlt 588 MAIN Si’.
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦I
XIV. ÁR WTNNIPEG, MANITOBA 24. MAI 1900. Nr. 33.
m
é
PENINQAR LANADIR. — Hægar mánaðar afborganir.
Vér erum umboðsmenn fyrir hið bezta og ríkasta lánfélag
sem bækistöðu hefir í Winnípeg.
^®LTU EIGNAST Laglegt og vel vandað einloftað hús
(Cottage) á Alexander Avenue ? Það er úr timbri, á
steingrunni og kostar §1200.
TAKID VATRYOGING , ,.T p„OMI „ Lond01i„
Það er hið elzta og bezta vátryggingafélag í heimi.
Nares, Robinson & Black,
Itnnk «f Hainiltoii fhainbers.
W
w
w
w
The Home Life Association
of Canada.
Aðalskrifstofa í Toronto.
Höfuðstóll—ein millíón dollars "
í ill trygging í höndum sambandsstjórnarinnar.
Lifsábyrgðarskýrteiui Home Life félagsins gilda hvar i heimi sem er. Eng-
in höft eru lögð á skírteinishafa hvað snertir ferðalög. bústað eða atvinnu. Þau
eru ömótmælanleg eftir eitt ár frá dagsetningu.
Skírteinin hafa ABYRGST VERÐGILDI í uppborgaðri lífsábyrgð, pen-
ingurn og lánsgildi, eftir þrjú ár.
Leitið upplýsinga um félagið og ábyrgðarfyrirkomulag þess hjá
W. H. WHITE, ARNI EQQERTSSON,
MANAGBR. ^ GKNERAL AGENT.
Mclntyre Bluck, Winnipcg. P. O «ox A>45.
Frjettir.
Markverðustu yiðburðir
hvaðanæfa.
‘‘Welland Vale” og ‘‘Canada Cycle
and Motor” verksmiðjurnar í bænum
St. Catherines í Ontario, brann til
grunna þann 16. þ. m. Það voru með
stæstu reiðhjólaverkstæðum i Canaða
og 500 manna höfðu þar stöðuga at-
vinnu,-en eru nú allir- vinnulausir.
Skaðinn er metinn nær hálfa milj. doll.
Congregational prestur i Hamilton,
Ont., hefir verið kærður um óskírlífi og
kirkjudeild sú, sem hann tilheyrir. hefir
sett nefnd til að rannsaka málið. Eftir
itarlega yfirvegun hefir nefndin komist
að þeirri niðurstöðu að sakirnar á prest-
inn séu ekki sannaðar, en að vitnaleiðsl-
an hafi þó verið þannig að nefndin sé í
. efa um sýknun hans.
Herforingi A. E. Turner sagði ný-
lega, í ræðu sem hann hélt í London, að
Bretland gæti ekki haldið nægan her til
að vernda eignir sínar og að ríkið væri
i bráðri hættu frá þjóðum sem byggju
nær, heldur en almenningur hefði húg-
mynd um.
Það þykja markverðar fréttir að
Lord Salisbury hefir nýlega getið þess í
opinberri ræðu á Englandi, að hann
væri mótfallinn bindindishreyfingunni,
sem nú fer vaxandi þar í landi I einni
af ræðum þessum, þar sem Salisbury
lét í ljósi nauðsynina á a iknum heræf-
ingum í landinu, sagði hann: “Látum
oss hafa skotfélög alstaðar og látum
dæturnar færa færa feðrum sínum þang-
að miðdagsverð og bjór”. Bindindis-
og blaðamönnum finst hann hefði mátt
undanskilja bjórinn. Það er áht ýmsra
-blaða s,ð Salisbury hafi farist óvitur-
lega i þessu og er talið líklegt að hann
fái mjög mikla mótspyrnu jafnvel meðal
sinna eigin fiokksmanna.
Sendinefnd frá Toledo, í Bandaríkj-
unuiu, henr veiiö aö íeiðasj uui Iwiö-
vesturhéruðin í Canada í vor og leist
henni svo vel á landið, að hún segir á-
reiðanlegt að um 500 fjölskyldur úr
Ohio-rikinu muni flytja hingað norður,
á heimilisrét’arlönd, á þessu ári.
Voðalegt slys vildi til á Illinois
Central járnbrautinni, nálægt bænum
Boise í Illinoisríkinu. Fólksflutninga-
hraðlest var á bíautinni áleiðis tilPhila-
delphia, með 60 mílna hraða á klukku-
stundimji. Alt í einu sprakk gufuvélin
í loft upp. Vagnarnir hentust út af
sporinu og möibrotnuðu, en margir far-
þegar særðust og nokkrir mistu lífið.
Svo var þessi sprenging stórkostleg, að
vélastjórinn hentist mörg hundruð fet
og kvellurinn af sprengingunni heyrðist
margar mílur og jörðin hristist eins og í
jarðskjálfta.
Menn þeir sem um daginn gerðu til-
raun til að sprengja lokurnar i Welland
skipaskurðinum, eru enn i varðhaldi.
Einn af lögregluþjónum Ontariostjórn-
arinnar, Murraý að nafni, hefir gengið
rækilega fram i að komast eftir því,
hverjir menn þessir séu og hefir honum
tekist að rekja spor þeirra síðan 1894.
Þeir eru af írskum ættum, en komufrá
Lundúnum á Englandi. Þeir tilheyra
leynifélagi í New York og voru sendir
vestur um haf sérstaklega til að vinna
þetta illræðisverk. Félagið sem þeir til-
heyra heitir ‘‘Napper Tandy” og gengu
þeir i það 10. Apríl 1899. Síðan voru
þeir sendir til Washington til að mæta
þar óþektum manni sem átti að gefa
þeim skipanir um hvað gera skildi.Fóru
þeir fyrst til Philadelphia og mættu þar
náunga, sem hvorugur þeirra hafði áð-
ur séð. Skipaði hann þeim að taka sér
upp ný nöfn. Síðan voru þeir sendir
stað úr stað ; þeim voru sköifuð sæmi
leg föt og nægir peningar. Hverjum
þeirra var fengin taska með dynamite
og $100 seðill, áður en þeir fóru til Buff-
alo til að sprengja lokurnar. Þeim var
sýnt hvar ætti að láta sprengiefnið, og
hvernig ætti að kveikja í þvi. Síðan var
þeim sagt að koma til Buffalo og gefa
skýrslu um starf sitt í þarfir félagsins
og fá frekari skipanir um önnur spell-
virki sem þeir áttu að vinna. — Mr.
Murray segir félag þetta vera mjög
skaðlegt. Það svífist einkis og leggur
á síg mikil peningaframlög til að koma
fram slíkum níðingsverkum sem þessu,
að sprengja flóðlokur skipaskurða j
Canada. Á þetta að vera gert í hefnd-
arskyni við Breta fyrir það að þeir hafa
háð stríð á móti Búunum.
Það er talað um að útnefna hinn
nafnkunna hnefaleikara, James J. Cor-
bett, fyrir þingmann í Congress Banda-
ríkjanna. fyrir 12, kjördeild í New York
Er hann sagður gáfaður maður og vel
mentaður og beri meii-a skyn á stjórn-
mál, heldur en margir þeirra sem nú
skipa sæti í Congressinu.
Fréttir frá British Columbia segja,
að undirbúningur undir fylkiskosningar
þar sé nú í fullu fjöri. Þingmannaefnin
í öllum kjördæmum fylkisins ferðast nú
um og halda ræður. Það er talið lík-
legt ao Joseph Martin nái þar völdum,
en engan vegin er það víst.
Maður að nafni Oliver Doyle fanst
nýlega dauður í húsi í Rat í’ortage.
Líkskoðunarnefndin komst að þeirri
niðurstöðu, aö hann hefði.látist af því
að taka inn eitur. Mjög þykir grun-
samt að það hafi verið af annara manna
völdum-
Kýlasýkin er sögð mjög skæð í New
South Kales í Ástralíu. Yfir 200 mans
hafa sýkst þar nýlega af þessari pest og
80 af þeim hafa dáið.
Fregn frá Koping í Svíaríki segir
að 2 skip hafi mætzt þar einhverstaðar
nálægt, og hafi þá maður af öðru skip-
inu stokkið yfir á hitt skipið, og skotið
tafarlaust 12 menn, þar með sjálfan
skipstjórann. Síðan komst hann á
burtu á bát. Talið að hann hafi verið
brjálaður. 6 af hinum skotnu mönnum
dóu strax, en hinir voru sárir mjög.
Stjórnarformaður Laurier hefir lof--
að þvi að sérstök nefnd skuli sett til að
rannsaka kosningasvikin sem framin
voru af liberölum í West Huron og
Brockville kosningunum í Ontario fyrir
ári síi an.
Kvartanir eru um það í blöðunum,
að Canada-sýningarhúsið í Paris sé alt
of lítið og lélegt og ekki samboðið
þessu ríki, Sýningarmunirnir komast
ekki fyrir í þvi og það hefir orðið að
útvega pláss fyrir mestan hluta þeirra
í öðrum byggingum á sýningarsviðinu.
Þykir það spilla fyrir áhrifunum að
geia ekki haft alla syningarmunina frá
Canada undir sama þaki:
40 menn druknuðu nýlega í svo
nefndu Vice-vatni áítalíu, örskamt frá
landi. Fólkið var á heimleið frá skemti
samkomu.
Sendimenn frá Frakklandi eru nú i
Bandaríkjunum að reyna að fá beztu
hnefaleikarana þar til að beriast i Paris
um sýningartímann. Bjóða þeir 125
franka fyrir hvern bardaga. Talið víst
að nógir menn fáist til að þiggja boð
þetta.
Innanstokksmunir þeir, sem Sir
John A. Macdonaid átti i hús,: sínu
Earnscliffe hjá Ottawa, voru seldir við
uppboð í miðjum þessum mánuði. Mesti
fjöldi manna sótti uppboðið og hlutirn-
ir seldust við háu verði. Skrifborð
hans seldist fyrir rúrua 8100 og alt ann-
að þar eftir.
Mafeking er lei.zt úr umsáti Bú-
anna. Það skeði á föstudaginn var.
Herdeild sú sem vann sér frægð með
þessu þrekvirki var undir forustu Col.
B. T. Mahon, sem hafði 2000 hermanna.
Hershöfðingi þessi er talinn hraustur
og hugdjarfur maður. Hann var með
Kitchener lávarði bæði í Dongola og
N ílár-leiðangrinum. Afleiðingin af
þessum sigri Breta ei sögð sú, að ýmsir
af Orangi Free State mönnum hafa lagt
niður vopnin og gengið á vald Breta.
Þykja nú litlar líkur til að Búar veiti
Bretum viðnám fyr en við Johannes-
burg. Kruger gamli hefir sent Salis-
bury lávarði friðarboð með vissum skil-
yrðum, en Salisbury heimtar skilyrðis-
lausa uppgjöf Búanna, og segir að
Bretar skuli einir ráða friðarsamning-
unum
Svo segja blöðin að fagnaðarlætin
í London og öðrum stórborgum á Bret-
landi hafi verið hin mestu í manna-
minnum þegar fréttin um lausn Mafe-
king barzt þangað. Col. Baden Powell
hehr varið borginaí 7 œánuði fyrir á-
rásum Búanna, og sýnt með því að
hann er maður herkænn. En mál var
lionum og mönnum hans á lausninni,
því þeir voru orðnir nálega fata- vista-
og skotfæralausir; höfðu í langan tíma
lifað við þröngan kost. Victoria drotn-
ing hefirsent Ilnkkuóskir sínar til Ba-
den Powells og Lord Roberts.
Rússar hafanýlega komist að samn-
ingum við Coreastjórnina um að fá þar
sjóhöfn þar sem herskip Rússa geti leg-
ið til aðgerðar, tekið kol o. s, frv.
Þetta líka rJapanítum illa og hyggia á
ófrið vicf Rússa, því þeir hafa skipa-
stól betri en Rússar. En annars Þykir
það ískyggilegt, því Frakkar eru taldir
sjálfsagðir að fylgja Rússum að vígum.
Það er sagt að McKinley forseti
hafi gefið sendimönnum Búanna það til
kynna, að hann sjái sér ekki fært að
veita máli þeirra neina áheyrn, og að
Bandaríkjaráðaneytið hafi komið sér
saman um að halda rikinu algerlega
afskiftalausu af þessu stríði.
Félag hefir myndast í Kína, sem
kallar sig “Boxers”. Ákvörðun þess
er að útrýma öllurn kristindómi úr
landinu. Félag þetta er stórstígt í
meira lagi og hótar uppreist móti
Kínastjórn, ef hún hjálpi því ekki til að
vinna að þessu stórvirki. Nýlega lét
félag þetta taka af lífi um 80 kristna
innfædda menn í Pe-Chi-Li-fylkinu —
margir þeirra voru brendir lifandi. —
Þessir heiðingjar eru engu betri en
kristnir menn voru fyrr á timum, þeg-
ar þeir voru að láta brenna “vantrúar-
menn” á báli á Bretlandi og viðar.
Fréttir koma frá Indlandi þess efn-
is, að kóleru-sjúkdómur hafi brotist út
í 40 svelti-héruðunum þar í landi og
að mörg þúsund manna hafi dáið úr
honum. í einu héraði höfðu látizt á
anDaðþúsund manna úr þessum sjúk-
dÓmi; óg óttast menn að hann muui
verða milíónum manna að bana í land-
inu.
Lífsábyrgð kvenna.
Engum þeim sem tekið hefir á sig
það ómak, að gera sér nokkurn veg-
in Ijósa grein fyrir tilgangi og fyrir-
komulagi lífsábyrgðarfélaga, mun
blandast hugur um það, að þau séu
binar þarflegustu stofnanir og að þau
eigi stóran þátt í vellíðan mikils
fjölda fólks, sem annars mundi búa
við þröngan kost og í sumum tilfell-
um fara á vonarvöl. Þetta vita og
játa víst allir þeir sem nokkra lífs
reynslu hafa fengið.
Lífsábyrgðarstofnanir eru tiltölu-
lega ungar og þekkingin á þýðingu
þeirra því ekki eins almenn og full
komin, eins og æskilegt væri. Að
þessum tíma liefir það verið skoðað
svo að lítsábyrgðarfélög væru aðal-
lega fyrir karlmenn, og aðeins þeir
hafa átt kost á að ganga í þau, með
nokkurn vegin þolanlegum kjörum.
Kvennfólk hefir ýmist ekki fengið
inngönguleyfi í þau, eða að þeim
hafa verið sett svo há árleg iðgjöld,
að það hefir verið þeim ofvaxið, að
tryggja líf sitt í þeim. Þetta hefir
orsakast af því, að þær hafa verið á-
litnar líkamlega óhraustari en karl-
menn og það heíir verið skoðað svo,
að lífi þeirra væri yfirleitt meiri
hætta búin, en lífi karlmanna.
Vaxandi þekking með vaxandi
reynslu, heflr á síðari árum sannfært
ýms lifsábyrgðarfélög um það, að
konur verði að jafnaði eins langlífar
og karlmenn, og þessvegna eru þau
nú farin að veita konum inngöngu í
félögin með sömu kjörum að öllu
leyti eins og karlmönnum.
Þessi breyting á stefnu félaganna
hefir orðið mjög vinsæl og kvenn-
fólkið hefir notað sér það og mjög
alment trygt líf sitt í þessum félögum
En samt mun óhætt að fullyrða, að
enn sem komið er taka konur ekki
eins mikinn þátt í þessum fólagsskap
eins og ætti að vera, og er það slæmt
því hann er þess virði að þær veiti
honum alvarlegt athygli, og tryggi
líf sitt í slíkum félögum. Þetta ligg-
ur auðvitað næst þeim sem eru ógift-
ar, og ekki bafa aðra aðstoð en eigin
vinnukraft, en hafa þó oft fyrir öðr-
um að sjá.
Það er í eðli kvenna ekki síður en
karla, að bera umhyggju fyrir ókom-
inni tíð. Löngun þeirra til að fyrr-
ast skort á elliárunum hefir örfamdi
áhrif á framkvæmdaafl þeirra og
knýr þær áfram iil stöðugs erfiðis.
Margar konur hér í landi vinna fyrir
allmiklu fé á hverju ári. Það væri
innan handar fyrir þær að tryggja líf
sitt í einhverju af þessum félögum.
Iðgjaldaborgunin yrði þeim ekki til-
flnnaníeg útgjaldabyrði, en gæfi þó
handbendni þeirra eða vandafólki
trygging fyrir vænlegri fjárupphæð
í dauðstilfelli.
Sé konan gift og hafi ráð á að halda
uppi lífsábyrgð, þá ætti hún að gera
það. Ætti það að vera séreign kon-
unnar og ganga til barna hennar að
henni látinni. Sé maðurinn drykk-
feidur eða á annan hátt óreglumaður
þá er það gott fyrir börnin, er móðir
Þeirra deyr, að vera ekki eingöngu
komin upp á lífsuppeldi frá hans
hálfu, og sé konan ógift, en liafi þó
fyrir börnum að sjá, þá er það bein
skylda hennar að búa i haginn fyrir
þ<-a með lífsábyrgð, ef hún getur
klofið þann kostnað.
Bezt er fyrir konur, ekki síður en
karlmenn, að ganga ungir í félögin,
þá verða iðgjöldin ekki eins tilfinn-
anleg. Og undir vissu fyrirkomu-
lagi gæti lífsábyrgðin verið fullborg-
uð þegar konan væri miðaldra, og
ætti hún þá væna fúlgu til uppeldis
börnum sínum.
Enn sem komið er hafa íslenzkar
konur hér ekki sint nema einu lífsá-
byrgðarfélagi. En þær hafa þegar
fengið reynslu fyrir því, að það er
stór hagur, að eiga kost á að vera í
slíkum félagsskap.
Það er vohandi að konur gefi þessu
máli meira athygli hér eítir en að
undanförnu, og að þær leggi sinn
fuila skerf til að viðhalda þessum
stofnunum. Það er holt fyrir báða
málsparta og alla sem nokkurn hlut
kunna að eiga að þeim málum.
Örðugleikar og ókugur.
Þad er fyrirsögnin á grein nokkuri,
sem ísafold flutti nýlega um skoðun.
manna á íslandi um ástandið þar eius
og það kemur nú fyrir. Blaðið segír
rangt að dyljast þ ss að “óhug nokkr-
um hafi slegið á bændur á íslandi og
að þeir séu samhljóða um að þeir eigi
nú afar örðugt uppdráttar og horfi
með kvíða fram á framtíðina”. Ekki
er bess getið í greininni hverjar séu að-
al ástæður örðugleikanna, að öðru
leyti en því að peningaeklan sé í land-
inu. Segir blaðið að fjöldi bænda virð-
ist þess albúnir að flytja burt af bú-
jörðum sínum, hvenær sem’færi gæfist,
enda séu nú jarðir víða auglýstar til
leigu, en muni ekki byggjast þettaár.
Bændur hafi yfirgefið þær og flutt til
kaupstaðanna eða af landi burt. Að-
sóknin að kaupstöðuuum hefir veriðall
mikil á síðustu árum; bændum hefir
bunást illa og þeir hafa að nokkru
leyti mist móð. Fénaður hefir gengið
af þeim. Vínnulaunin hafa hækkað
svo mjög á síðari árum, séistaklega
siðan vistarbandið var leyst og menn
og konur fengu að lögum að lifa eins og
frjálsar verur. Jarðirnar gefa ekki af
sér nægan arð til að borga vinnuhjúum
og ala bændurna og fjölskjddur þeirra.
Kvennfólk í vistum, sem áður fengu 25
til 30 og ait að 40 kr. í kaup um árið,
oft í reitingi og illa útilátið með meira
en fullu verði, þær fást nú ekki til að
taka ársvistir fyrir minna en 70—80
kr. Og heimta kaupið borgað í pening-
um eða þeim vörum, sem hægt er'að
koma í peninga með fullu verði. Oss
er sagt að það sé með herkjubrögðum
að hægt sé að fá vinnukonur fyrir þetta
kaupgjald. Kaup karla hefir hækkað
að sama skapi eða því sem næst, og
bændur rísa ekki undir byrðinni. Þeir
gátu haldist við á jörðunum á meðan
þeir gátu fengið nauðsynlegan vinnu-
kraft fyrir minna en hann var virði,
en þegar þeir verða að borga hann nokk
urnveginn þolanlegu, verði, þá dettur
botninn jafnskjótt úr búskapnum.
Hverja framtíð búskapUr á íslandi
muni eiga í vændum, má að nokkru
leyti marka af ummælum frá merkum
búmanni og þjóðkunnum, sem ísafold
hafa borist. Hann telur ísjárvert fyrir
unga menn, sem nokkur efni hafi, að
hætta eigum sínum í búskap á íslandi,
eins og nú stendur. En með öllu vit-
laust fyrir efnalausa menn að leggja út
í sjálfsmensku, og hann gengur að því
vísu, að mikið gangi nú af þeim, sem
annars komist af og hér hafa búið um
um sig. Blaðið lætur þess jafnframt
getið, að sá sem þetta ritar sé enginn
nafnlaus flysjungur, heldur sé hann
merkur embættismaður, reyndur og
hygginn búmaður, sem ritar nafn sitt
undir það sem hann er að segja og er
þess albúinn að standa við það.
Þetta er undantekningarlaust sú
hreinskilnasta og ad voru áliti sú saun-
asta yfirlýsing sem vér höfum séð í
nokkru íslands blaði um þetta mál, og
sú yfirlýsing er þess meira virði sem
hún er gerð af manni sem er merkur
og þjóðkunnur, reyúdur og hygginn
búmaður. En hann hlýtur að vera
meira. Það getur ekki hjá því farið að
hann sé samvizkusamur maður og sann
orður, sem skoðar það ábyrgðarhluta
mikinn að dylja landsmenn sína þessev
hann álýtur að þeim sé þarft og nauð
synlagt að yita. Þess vegna segir hann
skoðun sína ótilkvaddur með afdráttar-
lausri hreinskilni, og á hann þakkir
skilið fyrir hugprýði sma í þessa efni.
Það er svo undur nýstárlegt að sjá
sannleikann svona ljóslega samandreg-
in í íslenzku blöðunum um ástandfð á
Islandi, og ísafold á heiður skilið fyrir
að hafa tekið sig Iram um að birta
þenna sannleika. En hvað þýðir svo
þessi játning, játningin um það, að það
sé ísjárvert fyrir unga menn með efni,
að hætta þeim í bústofn á íslandi og
alveg vitlaust fyrir efnalausa menn að
reyna það. Með öðrum orðum, að ekki
sé til þess liugsandi fyrir fólk á íslandi
jafnvel menn á bezta aldri, hvort sem
þeir hafa efni eða ekki, að byrja þar bú-
skap í þeirri von að geta framdregið
lifiðáhonum. Svarið virðist ljóst og
auðgefið. Það, að arðsamur búskapur
á íslandi, eins og nú standa sakir þar
sé algerlega ómögulegur, og þetta svar
vegna þess hve satt það er, hlýtur að
vera mesta hrygðarefni fyrir alla ís-
lendinga, hvort sem þeir eru austan
hafs eða vestan. En ef að búskapur-
inn er þar ómögulegur, ef að landbónd-
inn, sem er bústólpi og búnaðuiinn,
sem er landstólpi, hverfa úr sögunn
þar heima, hvað er það þá sem liggur
fyrir fólkina sem þjóð. Allir geta pkki
komis? að sjávarsiðunni og allir geta
ekki haldist við i kaupstöðunum og all- *
ir geta að sjálfsögðu ekki komist af
landi burt, þó þeir fegnir vildu það.
Framtíðar horfurnar núna um alda-
motm eru alt annað en glæsilegar þar
heima, og ekki er fólki það láandi, þó
það uni illa hag sínum um þessar
mundir.
Hvað það sé sem eigi og verði að
gera á íslandi til að bæta úr öröugleik-
unum og óhuginum í bændastéttinni,
það er mál seru blöð lándsíns Verða að
ræða með alvöru. Hingað til hafa
menn skifst í fiokka með skoðanii á
þessu málefni. Umbótamenn vilja fá
sima frá utlöndum til íslands, til þess
að koma landinu í nánara samband við
umheiminn. Einnig vilja þeir fá sterka
peningastofuun — lánstofuun — inn {
landið og vona að af því leiði mikinn
hag, með því að það mundi greiða úr
viðskiftum manna á meðal og gera fram-
takssömum mönnum mögulegt að koma
á fót verklegum fyrirtækjum. En um-
fram alt þetta vilja þeir fá sfjórnarbót.
Þykir núverandi stjórnarfyrirkomulag
í landinu óhagfelt, ómögulegt til fram-
kvæmda eða framfara og einkis nýtt.
TJm þetta segir ísafold : “Fyrsta ráðið
er stjórnarbót. Með því eina móti gefst
oss tækifæri á að eignast stjórn, sem
verður í samvinnu við þing og þjóð sem
binst fyrir velferðarmálum þjóðarinnar
Stjórn sein leggur alt kapp á að riðja
henni nýjar atvinnu og framfarabrautir.
Á slíkrí stjórn er öllum þjóðum þörf og
í þessa att færist meir og meir stjórnar-
viðleitnin með mentun þjóðanna. En
engri mentaþjóð er slík stjórn jafn sjálf-
sögð nauðsyn sem oss........En ©ngin
þjóð hefir hingað til íaiið jafn varhluta
af slíkri stjórn sem vér.” Þetta er
blátt áfram talað og all þunglega, svo
að skammir hefði það verið kallað.hefði
sama meiningm verið framsett í grófari
búningi, og ekki þurfa stjórnmála og
embættismenn Ísíands að vera stoltir af
þessum vitnlsburði ísafoldar. En ef öll
blöð landsins tækju í sarna streng, þá
finst oss ekki óhugsandi að einhver
breyting kynni að fást á stjórnarfarinu,
fyr eða siðar. Á hinn bóginn sjáum vér
ekki, að ísland eigi viðreisnarvon í því
Sein langmest á ríður. En það er frjó-
samur jarðvegur og hagfeld veðrátta.
Þetta er það sem gerir löndin lífvænleg
til íbúðar, og skapar sjálfkrafa fram-
kvæmdir land-búa og framför í hvi-
vetna. En þetta fæst aldrei með stjórn-
arbót. ísland verður það sem það er,
hvað loftslag og frjósemi snertir, hvort
sern nokkur stjórn er þar i landi eða
engin.) Eh hitt er rétt, að úr því ísland
et bygt af siðaðri og mentaðri þjóð, þa
er Það bein skylda landsmanna að
heimta eins fullkomna og framkvæmda-
sama stjórn, eins og föng eru á, og þess
lakar sem landið er búið af náttúrunn-
ar hendi og þess minui og óvissari sem
arðsemi vinnunnar kann að vera, því
meiri þörf er landsmönnum á því, ad
hafa þá stjórn, sera að vitsmunum,
þekkingu og framtaksviðleitni sé líkleg
til að vinna þjóðinni mestan hag. Fyr-
ir þessu berst ísafold og vér óskum að
hún verði sigursæl í þessum bardaga.
IJnion liraud
HEFIR KAUPIÐ
ÞETTA EKKERT
MERKI (RtaitTIRID) ANNAÐ