Heimskringla - 12.07.1900, Blaðsíða 4

Heimskringla - 12.07.1900, Blaðsíða 4
HEIMSKRINGLA, 12. JÚLÍ 1900. Lesid! Sökum binna nýju laga, sem bæjar- stjórnin hefir auglýst að komi í gildi hinn 20. þ. m., og sem skipa svo fyrir að allar búðir lokíst ekki seinna en en kl. 6 að kvöldinu, þar með eru inni- faldar “uppboðssölur”. þá hef ég afráð- ið að selja út eins mikið og mögulegt er i millitíðinni, til þess að hafa pláss fyrír nýjar vörubyrgðir, sem með þeim umbótum og stækkun, sem ég er að láta gera við búðina mun setja buð •yora i röð hinna fyrstu “retail” verzl- ana í bænum. 260 ágætir karlmanna alfatnaðir ‘ Blue Serge”, okkar vanaverð $4.75, seljum það nú á $2.00. Q5C. karlmanna alullarbuxur Tweed. venjulega seldar $1.35, seljum þær nú á 95c. 160 Ljómandi fallegar svartar worsted silki röndóttar buxur, eru alstaðar seldar á 8.50, fæst nú hjá okkur sökum ofan- greinda ástæða fyrir $1.60 fyrir neðan innkaupsverð. 45c- Hvitar og mislitar stífaðar 5QC. og óstífaðar skyrtnr, beztu kaup á 75c—$1.00, fást nú á 45c, —50c. 25C. Karlmanna nærfatnaðir, sem eru vanalega seldir á 50c. stykkið, seljum vér nú fyrir 25c. hvert. ^ |-2 Svartir sokkar “Herms dark dye” fást nú fy ir 7Jc. Komið og skoðið þetta því það er þess virði og kostar ekki cent. A. W. Leise, Gold Mine Auction Rooms 550 nain Street. Kennsla. Þeir foreldrar eða aðstandendar barna, innan fermingaraldurs, sem vildu koma þeim til kennslu i kristin- dómi og bóklestri' núna i sumarfríinu, einhvern címa úr virkum dögum vik- unnar, gjöri svo vel að gefa sig fram við undirskrifaðan, sem neit.ir tilsögn i slíku. Borgun væg, einkum ef börn geta hópað sig dálítið saman, BjarnlÞúrarinsson 559 Ellice Ave. EINKALEYFI. Hér með auglýsist að þeir sem vilja kaupa einkaleyfl til að selja veitingar í sýningargarðinum á Is- lendingadaginn 2. Ágúst í sumar verða að senda tilboð sín í lokuðum umslögum til undirskriíaðs fyrir 20. Júlí næstkomandi. Þeir sem vilja fá einkaieyfl til að hafa “Canerack” Kniferack” “Dolls & Balls” eða annað þess hátt- ar, verða einnig að senda tilboð um það fyrir 20. Júlí næstk. í umboði nefndarinnar Jóseph B. Skaptason ritari P. O. Box 305 Winnipeg. 5afn af Sögum og kvæðum —EFTIK — SIG JÚL. JÓHANNESSON byrjar að kema út í sumar í litlum hefturn. Pyrsta heftið kemur út í Ágúst og verður með mynd höfuudar- ins; í því verða einunis kvæði og kost- ar að eins 85 cent. Þeir, sem kunna að vilja eignast þetta hefti, gjöri svo vel að skrifa sig fyrir því hjá höfundinum sem fyrst. 358 Pacfic Ave. ifinnipeg. Með viusemd og virðing. Sig. Júl. Jóhannesson. —JÖBP meri tapaðist 8. Júní, á milli Shoal Lake og Álftavatnsnýlendunnar, hún er blind á hægra auga, hvit neðan við hófskegg á öðrum afturfæti, með þykt'en dálítið skelt tagl. Pinnandi heðinn að koma henni til undirskrif- aðs mót sanngjörnum fundarlaunum. E Thorkelsson. , 777 Portage Ave. Winnipeg Man. Kostar ekki cent. Kvenna eða karlraanna fílabeins- skeftur vasahnífur; karla eða kvenna ljómandi fallegt "Locket’, og fjöldi annara ágætra muna. sem vér ekki get- um talið hér upp, verða gefnir burtu með hverri 1 dollars pöntun af okkar á- gseta kaffi “Baking Powder”, engi- fer eða Sukkulade etc. Betri og meiri verðlann verða gefin með stærri pöntun um, frá $2, $3, $4 eða $5. Beynið eina pöntun, með pósti. Það verður ekki sú siðasta. Great Pacific Tea Co. 1464 St. Catherine St. Montreal, Que. Winnipe^. Stúkan “Skuld” nr. 34, heldur út- breiðslufund miðvikudagskvöldið 18. þ. m. á North west Hall kl. 8J. Ó- keypis aðgangur, fjörugt “prógram”. S. T. Goodmanson, frá San Franc- isco, kom hingað til bæjarins i síðastl viku, til að mæta fólki sínu, sem hann átti von á að kæmu að heiman með vesturförum. Mv. Goodmundson lætur mjög vel af llðan sinni og annara ís- lendinga (innan 1Q að tölu), sem hafa aðsetur þar í bænum. Bóndi einn, Bobt. Jackson, að Prairie Grove, Manitoba, kom til bæjar- ins í síðustu viku með afarstórt gæsar- egg, það ar 12 þumL að ummáli á langveginn en 9 þuml. á þverveginn og vóg llj únzur. Mr. Jackson voru boðnir $5.00 fyrir ekkið, en hann neit- aðiþví. “Býður nokkur betur?” Sagan “Drake Standish”, nálega 400 hlaðsíður að stærð, verður tafar- laust send öllum þeim, sem byrjuðu að kaupablaðið eftir að hún byrjaði að koma út, og sem hafa borgað árganginn að fullu. Þeir sem vilja kaupa söguna geta fengið hana fyrir 35 cents fyrir- fram borgun, og fyrir 40 cent sendum vér hana til íslands. Nýir kaupendur að blaðinu sem senda oss fyrirfram borgun, fá sögu þessa í kaupbætir meðan hún endist. Hra. Mgnús Kristjánsson frá Otto P- O. kom inn á skrifstofu Hkr. um helgina. Hann kvað tiðindalaust þar. Hann hafði góðar vonir um, að gras- spretta þar yrði alt að því í meðallagi, eftir útliti tíðarfars nú. — Þeir herrar Þorlákur Einarsson.Sveinbjörn Sigurðs- son og B. S. Lindal, Markland P. O. komu einnig inn á skrifstofuna. —Hra A. ísfeld Eiríksson, Húsavík P. O., var hér á ferð á föstudaginn var. Lét hann all-illa af sprettu útfiti isína bygðarlagi. Stórkostllegar rigningar gengu yfir Manitobafylki í siðu3tu viku og hefir það gert mikla breytingu til hatnaðar á uppsketuhorfum í fylkinu. Fréttir berast nú frá öUum pörtum fylkisins um það, að uppskeran á komandi hausti verði miklu betri en menn höfðu gert sér vonir um, og nú er talið að hún verði i meðallagi að vöxtum, 04 von er um hátt verð á hveiti í haust. Hey- birgðir er áætlað muni verða nægar { fylkinu, þó ekki jafnmiklar sem í með- alári. Gras vex rúman þnmlung á dag að jafnaði, í hagstæðri tið og hefir það því nægan tíma enn þá til þess að ná 3. feta hæð áður en það er slegið, Þar sem jarðvegurinn er hentugur fyrir það. Eins og vér höfum áður getið um, verður sýningin hér í ár 23.—28 Júli. Það er óefað, að sýningarnefndin gerir alt, sem i hennar valdi stendur til þess, að sýningin verði sem bezt og mikil- fenglegust i alla staði. Hún hefir látið auka talsvert við byggingar í sýningar garðinum, eg einkum hafa áhorfenda- pallarnir verið stækkaðir að stórum mun. Svo er og verið að byggja sér stakan sýningarskála fyrir sýnismuni frá Britisk Columbia: Á meðal skemt- ana sem verða á sýningunni, má geta þess, að þar verða sýndar eftirlíkingar af ýmsum orustum i Suður-Afríku. Eins og áður hefir verið, verður stór- kostlega niður sett fargjald hingað með öllum járnbrautum, sýningarvikuna. Islenzkir innflytjendur komu hing- að til bæjarins á mánudaginn var. Þeir voru 248, sem hingað komu, en 260 lögðu af stað frá íslandi, þann 18, Júni. Hra. Jóhannes Siðurðsson frá Hólum í Laxárdal Þingeyjarsýslu, var túlkur á leiðinni. Hann befir verið áður hér í Ameríku, Hkr. býður hann velkom- inn aftur, og alla innflytjendur. Fólki þessu haf i ekki liðið sem bezt á leið- inni. Viðurgerningur ekki notalegur, vesöld og þrengsli átti sér stað á meðal þeirra.—Fólk þetta lætur all-illa af al- mennu ástandi á Islandi nú. Einn af vesturförum sem vér átt- um tal við. kvað fólk þetta hafa verið fullan mánuð á leiðinni vestur. Skipið fói frá Sauðárkrók 10. Júní, og tók þar margt fólk, og einsá Akureyri 12. Júní, en 17 kl. tíma varð skipið teft í þoku áður en það komst inn á Vopnafjörð. Og á suma austfjörðuna komst það als ekki vegna þoku. Þetta hafði þau á- hrif að þeir komu tveim dögum síðar til Skotlands en ákveðið hafði verið, og urðu því að biða þar í 6 sólarhringa með því að skip það sem átti að flytja þá þaðan hafði farið deginum áður en vestuifararnir komu þangað. Þetta fólk flutti frá íslandi til Skotlands eins og hvert annað ferðafólk, en tók sér svo farbréf þaðan með Beaver línunni, Als kostaði fargjaldið frá íslandi til winnipeg 131 krónur og 50 aura i stað 160 króna í fyrra með Allanlínunni. 2 ungbörn dóu á leiðinni vestur, og æ Actina Ekkert meðala- sull. Varnar blir Endurlífgar sjónina. Vér höfum gert marear sterkar staðhæfingar um “Actina" og vér erum jafnan við því búnir að standa við þær Um 18 ára tímabil hefir " Actina” verið undur verald- arinnar, og læknað veik og veikluð augu, “Catar”, andar- teppu, kvef, lungnaveiki o. fl. o. fl. Það gefur áreiðanlega og vissa hjálp. “Actina”, óviðjafnanlegt vasa-rafmagns “Battery” og er jafn þénanlegt fyrir unga sem gamla, og brúkun þess er algerlega tempruð eftir þörfum þess sem hrúkar. Það er engin þörf að brúka meðöl, “Actina” er einhlýt. Ef þú liður, þá er það þess virði fyrir þig að rannsaka þessst makalausu lækninga-aðferð. “Actina” og Prof. Wilson’s rafmagns conservative- undirfatnaður verður sérstaklega til sýnis á iðnaðarsýning- unni frá 22. til 28. Júlí. Fríar ráðleggingar gefnar frá kl. 6.30 til kl. ^8 á hverju kvöldi. Karl K. Albert, 268 McDermott Ave. WINNIPEQ, riAN. segja vesturfarar að það hafi orsakast af illu viðurværi. Eitt barn dó hér á innflyténdahúsinu i fyrradag og höfum vér það eftir lærðum læknir að það hafi dáið úr hungri, Það er öll ástæða til þess að halda rannsákn i svona lög- uðum tilfellum. Svo að ábyrgðin getl lent þar sem hún að réttu á heima. Næsti hópur, um 200 talsins er, væntanlegur hingað snemma í næstu viku. Það fólk mun vera af Suður- landi. Síðar er von á enn öðrum hóp, en ekki er vitanlegt hve margt fólk það verður. Samkvæmt ályktun á siðasta safn- aðarfundi i Tjaldbúðinni messar séra Bjarni Þórarinsson í Tjaldbúðinni á sunnudaginn kemur, hinn 15. þ. m., kl. 7 síðdegis. Jóh. Gottskálksson, forseti. Með síðasta ísfandspósti bárust oss nokkur eintök af ' Tjaldúðinni VI, eft- ir séra Hafstein Pétursson. Bæklingur þessi er prentaður i Kaupmanuahöfn 1900, og er 16 blaðsíður að stærð, hann er í 2 köflum. Hinn fyrri er um inn- flutningsmál kirkjufélagsins. Hinu sið- ari um Islendingadagsmálið. Aðalefni rits þessa er að sýna að stefna Lögbergs og aðstandenda þess og eining kirkjn- félagsins, hafi frá árinu 1888 verið sú, að hlynna að útflutningum frá Islandi til Vesturheims. Þetta hafi verið gert með því að senda agenta til Islands til að vinna að útflutuingi fólks þaðan, sem að einum manni undanteknum (B. L. B.), hafiallir verið Löghrgs og kirkjufélagsmenn. Hallmælis ritgerðir og níðkvæði um Island hafi verið birtar í Lögbergi og setur séra Hafsteinn eitt af kvæðum þessum í bæklinginn það er svona: Volaða land, horsælu hérvistar 6lóðir, hásgangsins trúfasta móðir, volaða land! Tröllriðna land, spjaliað og sprungið af eldi, spéskorið Bánar af veldi, Tröllriðna land! Hraunelda land, hrákasmíð hrynjandi skánar, hordregið örverpi Bánar, Hraunelda land! Hafisa land, ískrandi illviðrum marið, eilífum hörmungum barið, hafisa land ! Stórslysa land, fóstrað af feiknum og raunum, fóðrað með logandi xaunum, stórslysa land! Blóðrisa land, mölvað af knútum og kögglum, klórað af hrimþussa nöglum, blóðrisa land! Vandræða land, skakkt eins og skothendu kvæði, skapaði guð þig i bræði ? vandræða land! Drepandi land, búið með kjark yorn og kjarna, kúgandi merg þinna barna, drepandi land! Drepandi land, hvað er helzt, sem þú safnar? Sult vorn og örbirgð þú jafnar, drepandi land. Vesæla land, setið er nú meðan sætt er, senn er nú jetið, hvað ætt er, vesæla land. Hrafnfundna land, munt þú ei hentugast hröfnum ? Hjeðan er bent vorum stöfnum, Hrafnfundna land! Um íslendinnadagsmálið segir séra Hafsteinn um Júnimenn að “þeir vilja ekki halda neinn þjóðhátiðardag i minningu um merkisatburði í sögu is- lenzku þjóðarinnar. En þeir vilja halda hátiðardag í minningu um inn- flutning frá íslandi.” En jafnframt bendir séra H. P. á það að fyrstu ísl. sem fluttu til Vesturheims hafi flutt til Utah 1855 og að það lægi nær að halda innflutnidgshátíð i minningu um komu þeirra þangað heldur en um komu Jóns Gislasouar til Quebec 1870, 15 árum siðar. Að síðustu segir séra Hafsteinn: "Ástæðurnar fyrir innflutningahá- tíð þessari, sem formenn kirkjufélags- ins nú vilja koma á fót, eru þessar: 1.. Islendingadagurinn skal settur i samband við íslenzka kirkjuþingið, Hann skal haldinn á sama tíma (19. Júní) og kirkjuþingið byrjar. 2. Islendingadagurinn skal gjörður að innflutningsdegi. Alt, sem fer fram á þeim degi skal hafa það mark og mið að efla innflutning frá íslandi. Islendingadagsmálið virðist þannig ætla að skifta Vestui-íslendingum í tvo flokka: 1. Þeir sem bera hlýjan hug til fs- lands, lialda þjóðhátíðardag 2. Ágúst i minningu um byggingu íslands 874 og stjóruarbótina 1874. 2. Þeir sem vilja landauðn á íslandi, halda hátíðardag 19., Júní, í minningu um útflutning frá íslandi til Vestur- heims". Ég Thorst. Thorkelson Grocer að 539 Boss Ave., geri kunnagt, að ég sel nú Jelly fötur á 55c. sem áður, og al- staðar annarstaðar seijast á 7Ec., Jelly brúsa 45c., áður 60c., bezta Lax 12Jc. kannan, áður 15c, önnur tegund af laxi 10c., áður l2Jc. Bezta tegund Baspbeary 15c. kannan, annarstaðar 20c., Jelly glös lOc. hvert, Jelly könnur 15c. Sápa og Baking Powder með hreinasta gjafverði. Álskonar glertau, hnífapör, Granite-vara einnig katlar af beztu tegund—úr kopar frá hvirfli til ilja—með hálfu vanaverði fyrir peninga út í hönd. Noröurlanda harðfiskur og Ný-íslenzkur harðfiskur af beztu teg- und. Alskonar aldini, “Ham” og hangið kjöt af beztu tegund. Sætt brauð af öllum "sortum” með austurfylkja verði. “Ammonia” ó- brigðult til þessað ná blettum úr fötum. Þjóðrækms-sjóðurinn. Áður auglýst.......... " $264180 Frrá Wild Oak, Man.:— D, Valdimarsson................. 50 B. Jónsson...................... 50 P. Josephson.................... 25 Ó. Thorleifsson................. 25 A. Thorsteinsson................ 85 J. Jóhannsson .................. 25 S. Björnsson.................... 25 B. Benedictsson................. 15 V. Thorsteinsson................ 25 B. S. Thompscn.................. 25 B. Ingimundarson................ 25 J. Davíðsson.................... 25 Þ. Eivindsson................... 25 J. Crawford..................... 25 G. Jónsson...................... 25 B. Austmann..................... 20 Ó. Ólafsson. Westbourne......... 50 Frá Glenforsa:— B. Stephansson.................. 50 E. B. Stephansson............... 50 Miss 8. D. B. Stephansson..... 50 E. Stephansson.................. 25 Ó. G. Johnson.................... 50 G. O. Johuson................... 25 Samtals............... $272 15 * * # # # * DREWRY’S nafnfræga hreinsaða öl “í’reyðir eins og kampavín.” Þett er óáfengur og svalandi sælgætis- drykkur og einnig hið velþekta Canadiska Pilsener Lager-öl. Ágætlega smekkgott og sáinandi i bikarnum , BáJir þ““«ir drykkir er seldir í pelaflöskum og sérstaklega ætl- ir til neyzlu í heimahúsum. — 3 dúsin flöskur fyrir $2.00. Fæst # * # # # # REDWOOD BREWERY. EDWARD L- DREWRY- manntactnrer & Jmporter, WISSIPEG. ########################## OKKAR MIKLA- FATA=5ALA HELDUR ENN AFRAM Vvið höfum ennþá fínlega 0g endingargóða 0 1 H ÍZ /1 Tweed alfatnaði tyrir................... 0 / U.DU 12 svarta worsted stutttreyju- alfatnaði (square cut)... Þessa viku gefum við einnig helmingi meiri “Trading Stamps” með öllum drengjafötum Drengjabuxur á 25 og 50 cents $10.50 10 dusin hvitar skyrtur 25C. hver. DEEQAN’5 55ÓMain Str. Islands-fréttir. (Eftir Þjóðviljanum). ísafirði, 21. Maí 1900 Tíðarfar. Síðan norðanhretinn slotaðiö. þ. m., hefir haldizt lygn og mild veðurátta svo að sólinni hefir þeg- ar mikið áunnizt að bræða fönnina, er dyngdi niður i hretinu. Látinn er í f. m., að Sæbóli í Aðal- vík, Guðmundur Kjartansson, sem í mörg ár hefir stundað sveitakenslu bæði í Aðalvik, Súgandafirði og víðar hér í sýslu, Hann var á sjðtugsaldri. í þ. m. andaðist að Búð í Hnifsdal unglingsmaðurinn Bjarni Halldórsson, sonur Halldórs heitins Pálssonar í Búð og Sigríðar Össursdóttir, er þar býr enn. 15. þ. m. andaðist hér í kaupstaðn- um húsfrú María B. Kristjánsdóttir frá Vigur. Veikindi. — Vatnsleiðsa. Það er álit læknanna hér á Isafirði o. fi.,að taugaveikis-sjúkdómar þeir, er gengið hafa hér i kaupstaðnum í vetur, muni stafa af því, að taugaveikis “bacteriur” hafi á einhvern hátt borizt í brunnana hér í bænum, og skemt eða eitrað neyzluvatnið. Ýmsir bæjarbúar eru því hættir að þora að neyta brunnvatns nema soðið sé, og hefir bæjarstjórnin því séð sig tilknúða, að reyna að ráða bót á þessum vandkvæðum með því að áforma að láta í sumar leggja vatns- leiðslupípur í jörðu, er leiði neyzluvatn handa bæjarbúum úr Eyrarhlíð ofan í kaupstaðinn. Búist er við að kostnað- urinn við vatnsleiðslu þessa muni nama um 8 þús. kr., sem ætlast er til að bæj- arsjóður taki að láni, og endurborgi siðan smám saman á fleiri árum. 12. þ. m, andaðst í Skálavík i Mjóa firði, úr afleiðingum inflúenzu-veikinn- ar, gamalmennið Þórunn Gísladóttir, 6. Júní. Tíðarfar. Síðan siðasta nr. hlaðs- ins kom út hefir haldizt hér suðvestan- veðurátta, og fremur mild tíð all-oft- ast. — Stöku daga hafa þó verið kalzar og rigningar. 28. f. m. andaðist að Garðsstöðum í Ögurhreppi Guðmundur Bunólfsson, sonur Búnólfs bónda Jónssonar í Hey- dal i Vatnsfjarðarsveit. Síld 'og aflabrögð. Á Skötufírði aflaðist töluvert af síld í ádráttarvörpur vikuna sem leið, og hefir verið seld til beitu á 24 kr. tunnan. — Prýðisgóð aflabrögð hafa fengizt á síldina f ytri veiðistöðunum, all-oftast hlaðafli hjá öllum almenningi, og eigi ótitt, að sex- æringar í Bolungarvik hafi orðið að róa fyrir seilum, eða orðið aðskilja eftir lóðir, af því að skipið hafa eigi borið. — í innri verstöðum hefir og yfirleitt ver- ið mikið góður afli síðustu vikuna. Vikupóstferðir til útlanda. í sum- ar, líklega til Ágústmánaðarloka.ganga í viku hverri gufuskip frá Flateyri í Önundarfirði til Hull á Englandi, og koma þau á leiðinni frá útlöndum við á Patriksfirði.—Skip þessi flytja póst- bréf, og eru því bréf send héðan frá póstafgreiðslunni i viku hverri, degi áður, en skijin fara frá Flateyri. Vikuna fyrir hvítasunnu hafa sum- ir í Bolungarvíkinni fengið yfir 100 kr. til hlutar, eftir blautfiskverði, en hlutir aiment eigi undir 50 — 60 kr. vikuna sem leið. Suma dagana hafa fengizt 25—30 kr. til hlutar í ytri verstöðun. um. Viðarreki hefir í vetur og vor verið ómunalega mikill hvívetna á Horn- ströndum, bæði á fjörum einstakra. manna og á almenningum.—Mest kvað þetta þó vera smáviður, en fremur litið af tiettandi trjám. (Eftir Fjallkonunni). Mannalát. í Maí lézt að Melum f Hrútafirði Jón .bóndi Jónsson, sonur Jóns sýslumanns á Melum, á áttræðis- aldri; sonur hans er Jón prófastur á Stafafelli, og dóttir hans Ingunn kona Björns alþingismanns Sigfússonar á Kornsá. —Jón hóndi á Melum var í röð merkustu bænda. Nýlátinn er og sagður Jón bóndi Þorkelsson, ASvaðastöðum í Skagafirði, ríkasti hóndi á Norðurlandi, hniginn að aldri. Átti yfir 100,000 kr. eignir, og fundust eftir hann að sögn 60 þúsund kr. í gullpeningum. (Eftir Bjarka). Seyðisfirði, 26. Maí 1900. Fiskur hefir verið lítill hingað til, en í gær er sagt að nokkrir bátar hói út i firðinum hafi fiskað vel, væri þess þörf að nú færi að lifna. Flensborg skógræktarmaður, sem getið er um f skipaskránni að kæmi með Vestu, hólt norður tíl Akureyrar og ætlar að gera tilraunir með trjárækt þar í sumar á Akureyri og um Eyja- fjörð; nefndi hann Grund í Eyjafírði sem einn af tilrauna stöðunum. Hann nýtur þess styrks sem siðasta þing veitti til þess augnamiðs. Flensborg er ungur maður hvatlegur og viðkunn- anlegur. Hann hafði með sér grúa af niðursetni n gsplön tum. Dýralæknirinn var |hér á ferð með Ceres, á leið til Danmerkur; fer þangað að tilhlutun Búnaðarfélags íslands, til þess að vera á landbúnaðarsýningu Þeirri, er haldin verður i Óðinsvjeum um mánaðamótin Júní—Júlí. Land- bunaðarfelagið danska hafði boðið Bún- aðarfélagi íslands ókeypis far fyrir nokkra menn á sýninguna og auk þess dálítinn fjárstyrk handa þeim sem Bunaðarfélagið veldi til fararinnar- Búnaðarfélag Islands kostar svo ferð- ina að nokkru leyti. Sigurður bóndi á Helli i Bangárvallasýslu fer þessa för ásamt dýralækninum og að likind- um einn maður úr norðurlandi. 11. Júní. Moss, eitt gufuskip- um Th. E. Tuliniusar, brann til kaldra kola á Beykjavíkurhöfn 2. þ. m., var þar með viðarfarm. Stúdentaför til íslands. Von kvað vera á 90 stúdentum dönskum til ís- lands nú með Botniu i Juli. Þeir ætla til Bvikur, Þingvalia, Geysis og Gull- foss. Ferðin á að kosta 300 kr. fyrir hvern að ölln töldu, og er svo ódýr af þvi að fjöldi rikra Dana hafa gefið fé til ferðalagsins og eins kváðu nokkrir íslenzkir kaupmenn hafa gert. Blöð Dana fagna mjög þessu fyrirtæki og vona að það verði til að glæða velvild- arhug miili þjóðanna og kunnunleik. Vér tökum og fyllilega undir þetta og segjum stúdentana velkomna.

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.