Heimskringla - 18.10.1900, Qupperneq 1
U> ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦!
2 I/ r Amerík- X
♦ Hitunarotnar. enskirioft- x
X heldir hitunarofnar frá $3.25 til $18.00. X
X Vér höfum ágræta eldastó X
X fyrir $15.00. Bezta verð á öllu |
♦ WATT& QORDON, X
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦©>
Æ.
Lnmnnr HenK'lauiPar'borð
—•UiIIjJH! . lestrarstofu-lampar.
Sjáið vorar margbrey tilegu
vörur og vöruverð. Hvergi
* betra né ódýrara í borginni.
WATT & GORDON,
Corner Logan Ave. & Main St.
•♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦0
♦
♦
♦
♦
♦
&)♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ ♦ <
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
XV. ÁR
WINNIPEG, MANITOBA 18. OKTÓBER 1900.
Nr, 2.
Frjettir.
Markverðustu viðburðir
hvaðanæfa.
Sambandsstjórnin hefir leyst upp
þingið og auglýst ríkiskosningar. TJt-
nefningadagur þingmannaefna er mið-
vikudaginn 31. þ. mM en kosningadag-
urinn í ríkinu 7. Nóvember næstkom-
andi. Þessi kosningadagur verður ó-
efað einn af merkisdögum í sögu Ca-
nada, hvor sem vinnur, Laurier-
stjórnin er sú sviksamasta stjórn sem
i Canada hefir verið. Það mæla stjórn-
fróðir menn, að Sir Charles Tupper
muni bera sigur úr býtum með 50 til
70 þingmenn í meiri hluta.
Ottawastjórnin hefir skipað svo
fyrir, að frá 20. þ. m. sknli öllum
stjórnarsparibönkum haldið opnnm á
laugardagrkveldum frá kl. 7J til 9, svo
að verkafólk eigi kost á að leggja pen-
inga sína í -sparisjóðinn, án þess að
verða að leggja til þess vinnutima
aðra dags.
Bæjarstjórnin í Antwerpen á Holl-
landi hefir stranglega bannað nokkur
fagnaðarlæti eða opinberan gleðivott,
þegar Kruger gamli komi til borgar-
innar. Er þetta gert til þess aðýfa
ekki skap Breta. Bæjarstjórnin hefir
gert strangar ráðstafanir til þess að
hvergi beri á fagnaðarlátum við það
tækifæri.
Skaðar miklir hafa orðið í Nova
Scotia í tilefni af 118 kl. tíma stöðug-
ugum stórrigningum þar. 8 fiskiþil-
skip strönduðu á sama stað í þessu
ofsaveðri hjá Canso. Á Prince Ed-
ward-eyju skemdir einnig mjög miklar.
Brýr, bryggjur, hús og járnbrautirhafa
skolast til og skemdir á löndum manna
urðu voðalega miklar.
86 uppreistarmenn í Suchow í Kína
hafa verið hálshöggnir fyrir að gera til-
raun tíl þess að ná bænum á vald sitt
með ofbeldi.
Login hraðfrétt varð konu í
Chicago að bana í síðastl. vlku. Þau
Mr. og Mrs Haidy urðu ósátt og mað-
urinn fór í bræði sinni til New York.
Þaðan kom hraðskeyti til konunnar,
sem sagði að maðurinn væri dáinn.
Henni varð svo mikið um fregnina að
hún fór upp i svefnherbergi sitt og
skaut sig til ólífis. Hardy hetir játað
að4 hann hafi látið senda hraðskeytið í
þeirri \ on að kona sín hætti að hugsa
um málsc-kn móti sér. Hann hefirver-
ið handtekinn.
Grimmur hundur í bænum Tanton
í Nova Scotia reif 2 börn til dauðs í
síðustu viku. Móðir barnanna komst
að því að hundurinn hafði náð í börn-
in og fór að hjálpa þeim, en varð of
sein. Konan var stórskemdeftir huud-
inn þegar menn komu henni til hjálp-
ar.
Kona að nafni Marie Steinaker hef
ir hafið mál, f Stratford, Ont., móti
John Ort fyrir heitrof. Trúlofunin
f ór fram um haustið 1894 og konan beið
róleg þar til nú að maðurinn giftist
annari stúlku. Dómarinn dæmdi henni
$1200 skaðabætur og málskostnað.
Stórborgirnar í Austur-Canada
keppa hver við aðra í þviað heiðra
gamla ,Lord Strathcona. Hann er i sí-
feldum veizlumog þótt hann sé stöð
ugt á ferðinni, verður hann þó að neita
ýmsum tilboðum um frija máltíð. Mað-
tir þessi hefir ætíð verið vinsæll í Ca-
nada. En aldrei jafn vinsæll og nú,
síðan hann lagði út háifa milíón dollara
til þess að borga kostnaðinn við send-
ing Canada riddaraliðsins til Suður-
Afríku.
Óeirðir miklar eru sagðar á Balkan
ekaganum um þessar mundir. Mace-
doniumenn og Búlgarir eruósáttir við
Tyrki og gera ýms spell í löndum sol-
dánsins.
ítalski morðinginn Mussolino, sem
gettö var um hér í blaðinu, að heföi ver-
ið dæmdur til dauða, en sloppið úr
fangelsi og drepið dómarann sem dærni
hann, og vitnin i máli hans og alla
kviðdómendur nema 2 sem dóu af
hræðslu við þenna útlaga. Hann hefir
ekki enn þá náðst. 100 hermenn fóru
nýlega að leita hans. Þeir fundu haan
og slógu hring um hann, en Musselino
varðist þeim alian daginn, drap suma,
en særði marga, og um kvöldið slapp
hann úr greipum þeirra. Næsta dag
sendi hann formanni þeirra skammar-
bréf fyrir ódugnað manna hans Yfir-
mepn þessara 100 hermanna hafa verið
handteknir og ætlar Ítalíustjórnin að
höfða mál á móti þeim fyrir að hafa
látið morðingjann sleppa úr greipum
sinum.
Evró puþjóðirnar hafa náð 54 viður
kenningar skýrteinum, sem fundust i
bænum Tien-Tsin eftir að hann var tek-
in. Skjöl þessi sýna að Kínastjórn
hefir borgað allan kostnað við Boxers-
uppreistina, borgað öllum Boxers-her-
mönnum og séð um fjölskyldur þeirra,
sem særðust eðadóu; með öðrum orð-
um: Boxers voru bara umboðsmenn
Kínastjórnar til að drepa kristna menn
og evrópiska borgara.
Störmikill pólitiskur fundur var
haldinn i Brandon á iaugardaginn var
og segir Free Press að 4000 manns hati
verið þar viðstaddir. Um 800 af þeim
höfðu komi ð frá Winnipeg og margir
sóttu fundinn úr fjarlægum pörtum
Brandon -kjördæmis og öðrum stöðum.
Orsökin til þessarar miklu aðsóknar í
Brandon var sú, að Sir Charles Hib-
bert Tupper talaði þar á móti Mr. Sif-
ton, sem sækir þar um þingsæti mótí
Hon. Hugh J. Macdonald. Báðir þess-
ir menn eru ræðuskörungar og þetta
var í fyrsta skifti, sem Tupper yngri
hefir haldið ræðu í þeim bæ. Hann
lagði aðal-áherzluna á Yukon óstjórn
þeirra Siftons og Laurier’s,] og kvað ef-
laust að Konservatívaflokkurinn kæm-
ist að völdum við þessar kosningar.
Stórkostlegar rigningar gengu í
New Brunswick í samfleytta 118 kl,-
tíma í síðustu viku. liegnfallið varð
fullir 10 þumlungar. Járnbrautalestir
urðu að hætta ferðum sinum vegna þess
að vatnsaginn hafði eyðilagt sporveg-
ina á mörgum stöðum og grafið undan
brúm. Skaðinn er metinn marga tugi
þúsunda dollars, og ástand bænda er
vorra nú en það hefir verið í mörg und-
anfarin ár.
Areiðanlegar fiéttir fió sendimönn
um Krugers í Hollandi segja, að garali
maðurinn leggi á stað frá Delagoaflóan-
um með hollensku herskipi: Geiderland,
snemma í þessurn mánuði áleiðis til
Hollands. Þar ætla sendimenn hans að
mæta houum og hjálpa honum til þess
að yinna verk sinnar köllunar, en það
er að gera tilr aun til þess að fá eitthvað
af Evrópuþjóðunum til að skerast í
ieikinn með Transvaalbúum svo að þeir
geti haldið áfram að halda sínu lýð-
veldi, þrátt fyrir það þótt Bretar
vinni stríðið. Bretar á hinn bóginn
kenna Kruger um framhaid ófriðarins;
segja hann hafi fært þjóð sinni falskar
fregnir um alt ástandið og komið henni
til að trúa því, að Bretar væru að bíða
hvern ósigurinn eftir annan, en Búar
stöðugt að færa út kvíarnar. Það er
talið víst að Kruger verði ekkert ágengt
við Evrópuþjóðirnar.
Fjögur ný lífsábyrgðarfélög er nú
verið að mynda í Canada. Eitt þeirra
á að hafa aðal-skrifstofur sínar i Winni
peg, annað á að hafa aðsetur vestur j
Yancouver. Höfuðstóll þessara félaga
á að verða að jafnaði ein milíón dollars
fyrir hvert féiag.
25 miUónir dollais virði af guUsandj
hefir verið flutt út úr Klondyke-hérað-
aðinu á þessu sumri. Síðasti hluti af
þessari upphæð—um hálf miUón doUars
virði—var sent frá Dawson þann 4. þ.
m. Meira verður ekki sent út í haust.
Sagt er að Dawson City sé nú óðum að
byggjast og innflutningur þangað stöð-
ugt að vaxa Bólusýkin hefir brotist
út þar i bænum, en ekki er búist við að
húu verði skæð. Nokkrir námalóðar-
partar voru nýlega saldir þar við upp
boð og græddi stjórnin 26 þúsund doll-
ars á sölunni. Það hefir verið auglýst
að eftir 1. N óvember næstkomandi verð
öllu námahéraðinu slegið opnu fyrir
námameuu. Stjórnin hefir til þessa
áskilið sér vissan part af laudinu til rík-
isinntekta, en nú eiga námamenn að fá
landtökurétt á öllutn þeim námalöðum.
Það gefur stjórnarþjófunum en meira
tækifæri til að stela, en nokkru sinni
fyrr.
Róstusamt varð i kolanámunum i
Pennsylvania í síðastu viku og nokkrir
stórslagir urðu þar meðal verkamanna.
Lögieglan skarst í leikinn með barefl-
um og skammbyssum. Nokkrir voru
skotnir til bana og rnargir særðir. Einn
þessi slagur orsakaðist á þann hátt, að
námaeigendur ætluðu að flytja vagnles,
af kolum frá námunum niður að vatni,
til þess að hlaða þeim á skip er lá við
bryggju þar, en verkfallsmenn og konur
þeirra réðust á lestina með grjótkasti og
stórskemdu lestarstjórann og aðra
verkamenn. Yfirmenn námanna og
lúterskur prestur, sem þar var á staðn-
um, báðu fólkið að gera ekki uppreist,
en hegða sér siðsamlega. En fólkið gaf
þessu engan gaum og hélt áfram grjót-
kastinu. Lestin fór áfram i hægðum
sínum, en námamenn eltu hana með
byssum og ^rjótkasti. Þá var skotið á
fóldið. Nokkrir létu þar lífið og ýmsir
höfðu um sár að binda. HerUð var
ekki til staðar um þessar mundir.—
Námaeigendur hafa boðið námamönn-
um 10 per cent kauphækkun, ef þeir
vilja hverfa aftur til vinnu, en það boð
hefir enn þá ekki verið þegið, með því
að verkamenn hafa ýmsar aðrarkröfur,
sem námaeigendur vilja ekki gauga að.
Þó hafa þeir lofað að lækka verð á
púðri samkvæmt óskum verkamanna,
en það er að eins eitt af mörgu, sem
námamenn heimta og segjast þeir ekki
hefja vinnu að nýju fyr en námaeigend-
ur gan„a að öllum kröfum þeirra.
I vikunni réðist skríll á gov. Roose-
velt, þegar hann keyrði eftir strætum í
bænum Fort Wagner, Ind. Mr. Roose
velt ætlaði aðhalda þar ræðu í forseta-
kosningura Bandaríkjanna. Þá hann
kom til fundarstaðarins, dreif á grjót-
kast og kom allstór steinn á herðar
honum; annar sem miðað var höfuð
honum, komí andlit manni, sem sat
hjá honum í vagninum. Roosevelt
meiddist ekkí og hló að þessum viðtök-
um. Hætti þá skríllinn að grýta hann
Merkilegt var, að engin óhljóð fylgdu
steinkastinu, sem þó er venjulegt þeg-
ar skríll ræðst í aðrar 3Íns framkvæmd-
ir og þessa.
Sagt er áreiðanlegt að Roberts lá-
varður haldi á stað heira til Bretlands
í síðustu viku þessa mánaðar.
Af 30,000 brezkom hermönnum, er
sárir hafa orðið í Búa stríðinu, eru nú
29,000 sagðir grónir sára sinna og
komnir aftur í herinn. Bretar sjálfir
segjast hafa mist 10,000 hermenn í við-
ureigninni við Búa. Þegar litið er á
tímalengdina og allar aðrar hliðar á
ófriðuum í Suður-Afriku, þá virðist
það stórkostlegt að 10,000 grafir handa
brezkum hermönnum skuli hafa verið
teknar síðan í Október í fyrra í afrík-
anskri jörðu. Afríkanska jörðin gefur
gnægt af gulli úr iðrum sér, en hún
heimtar líka mikið í staðinn.
Blöðin halda því fram, að Kruger
gamli ætli að flytja sig alfann til Brus-
sel innan fárra daga.
Tveir menn vopnaðir æddu inn í
sölubúð í Fargo, N. D., þann 8. þ. m.
og heimtuðu peninga húsbóndans eða
líf hans. Húsbóndinn rak upp hljóð
mikið og við það hurfu mennirnir út á
götu. En lögregluþjónn, sem kom þar
að af tilviljun, skaut annan manninn
til ólifis, en náði hinum. Sá kvaðst
heita Sam. Davis.
Dominion Línu skipið “Ottoman”
rakst á klett í St. Lawrence ánni í sið-
ustuviku. Skipið ætlaði til Liverpooi
og var hlaðið vörum. Gat aikið kom
á skipið og vatnið í því varð 15 fet á
dýpt. Mikið af vörunum skemdist og
skaðinn verður mikill. Skipið var strax
tekið til Montreal til viðgerðar.
Kosningarnar á Englandí upp að
þessum tíma sýna, að Conservatíva-
stjórnin þar heldur áfram að vera við
völdin. Hún hefir nú yfir 80 fram yfir
audstæðingana. Yfir 60 af þeim 80
voru kosnir gangsóknarlaust. Það lit-
ur út fyrir að yfirburðir stjórnarinnar
í næsta þingi verði þeir mestu, sem
nckkur stjórn hefir haft á Englandi.
Governor Roosevelt ferðaðist um
Nebraska fyrir fáum dögum og hélt 13
ræður á einum degi. Alls hafði hann
3000 áheyrendur.
W. K. Vanderbilt í New York hefir
gefið dóttur sinni, sem er gift hertogan-
um af Marlboro, hálfa milíón dollars.
Þessi gjöf er þakkarfórn fýrir það að
hertoginn kom heill heiisu heim frá
Afríku eftir 7 mánaða hernað þar. Van-
derbilt gaf dóttur sinni aðra hálfa milí-
ón dollars í jólagjöf um síðustu jól.
Frúin er nú í París á Frakklandi að
eyða skildinguuum.
Ottawastjórnin er í vandræðum
yfir þvi, að nokkrir skipaeigendur eru
að stefna henni fyrir skaðabætur fyrir
tap á flutninggjaldi. Það hefir venð
siður að undanförnu að leifa flutnings-
skipum yfi-Atlantshaf að flytja dekk-
hleðslu á timabilinu frá 1. Október til
16. Marz. En Sir L. Davis rýrakaði
nokkuð um þessi lög. En svo er að
sjá að sumir embættismenn stjórnar-
innar hafi ekki gefið þessu nægan
gaum og heimtað hlýðni skipseigenda
við gömlu lögin. Þetta orsakar skipa-
eigendum ftutningstap og þar af leið-
andi missir á flutningsgjaldi. Þe>s
ve„na heiiuta þeir skaðabætur af
stjórninni.
Svertingi, að nafni Townsend 1
Alabama, var í siðustu viku bundinn
við staur og brendur lifandi, fyrir að
hann hafði veitt konu áverka í bænum
Wetempka þar í ríkinu.
I Halifcx er mikill undirbúningur
með að takg vel á móti einni canadisku
herdeildinni, sem nú er á leiðinni frá
Afríku, og á að lenda í Halifax innan
fárra daga—um hálft fjórða hundrað
manns. All-margir stjórnmálamenn
er búist við uð verði þar á staðnum til
þess að heilsa hermönnunum eg bjóða
þá velkomna.
Baráttau í Bandarikiunum er orðin
ströng og ákveðin, Mest vinna þeir
Bryan ogRoosevelt. Roosevelt hefir
ferðast 9,628 mílur á 26 dögum i síðastl.
mánuði og haldið 208 ræður í 44 ríkjum;
als hefir hann komið við í 186 bajum
og borgam. Hann hefir talað á stöð
um, sem liggja 10,200 fet yfir sjávar-
mál, og í námnm, sem liggja 1200 fet
fyrir ueðan tti borð jarðar. Flesta á-
heyrendur hflii- hann fengið: 28,000 i
einu í Kansas City. Hann hafir haldiö
að jafnaði 8,ræður á dag i viðurvist
15,000 mannsjid jafnaði á hverjum degi.
í Kansas-ríkinu talaði hann fyrir 120
þúsund kjóseudum á tveimur dögum.
Ails hefir harin um hála milón áhang-
eudur á ræðufundum sínum í Septem-
bermánuði, Bryan hefir veriðeinsið-
inn að sínu ieyti og þykir halda betri
ræður nú en nokkru sinni áður. Hann
hélt 18 ræður á 15 kl. tíma ferðalagi í
Wisconsin í síðustu viku.
ítalskur n'aður, að nafni Mussolino,
var fyrir nakkrum tíma dæmdur í 25
ára betrunarhússvinnu fyrir að hafa
orðið fátækum bónda að bana. Musso-
lino strauk úr fangelsinu og gerðist út-
lagi. Hann hét þvíaðdiepa alla þá
sem á einhvern hátt hefðu verið við mál
sitt og styrkt að því að koma sér í
fangelsi. Þetta hefir hann efntjnú þeg
ar, er hann búinu að bana öllum vitn-
unum á móti honum, tveimur hermöun
um, sem gættu hans í varðhaldinu og
dómaranum. Enn fremur hefir hann
drepið 7 af þeim 12 kviðdómendum, er
fundu hann sekann. Þrír hafa dáið af
eiuhverjum ótta fyrir þessum manni
En tveir eru enn þá óhultir og verndað-
irnóttog dag af lögreglunni.Mussolio
heitir að ná þeim líka áður langt líður.
Ekki hefir enn þá tekist að handsama
þennan morðingja.
Rússar ætla að leggja 63,113,482
rúblur til hergagna á næsta fjárhags
ári, en þaðer 10 milíónum meira en á
yfirstandandi ári 60 milíónir fara í
vanalegan herkostnað, að meðtöldum
16 milíónum til að auka sjóflotann, 3
milíónir fara til hafnbóta á Liban, 2
milíónir til Vladivostock og 3 milíónir
í Port Arthur í Kína. Rússar eru að
búa um sig í Manchuria-ríkinu og talið
víst að þeir muni siá eign sinni á það
riki, hvað sem hver segir.
C. P. R. félagið hefir gefið út skýrslu
ýfir starfsemi félagsins á fyrstu 6 mán-
uðum þessa árs. Hún sýnir að gróðinn
nemur 7% á .nnstæðuféð og að félagið
vonar að auka þessa vöxtu á síðari
helming ársins. Er þetta talin mestur
gróði félagsins siðan það byrjaði starf
sittf Canada.
Mynd af Walter Gordon, morðingj-
anum frá Boissevain, er prentuð í blöð-
unum og $300 verðlaunum heitið hverj-
um þeím sem flnni hann og geri lög-
reglunni aðvart.
Kínastjórn er sein á sér að útbúa
friðarsamningana við Evrópuþjóðirn-
ar, en lætur þó í veðri vaka, að hún
óski eftir friði. En svo kemur það alt
i einu upp, að hún er að útbúa 200,000
hermenn til þess að halda ófriðnum á-
fram.
Það er nú sagt að hinn, áUtni morð-
ingi, Walter Gordon, semhaldiðer að
hafi drepið þá félaga, C. Daw og J.
Smith, nálægt Boissevain, Man., hafi
nú skrifað vinnumanni sínum Jackson
frá Omaha, Neb. Hann segir vinnu-
manninum að skifta sér ekkert um
hvað sagt sé um sig. Hann segir og
vinnumanninum nákvæmlega fyrir
hvar hann eigi að taka nauðsynjar síu-
ar, og kemur það nú upp, að Gordon á
inni í þeim verzlunum, sem hann vísar
á.
Það kemur nú upp úr kafinu, að
að Liberaíar i Brandon hafa leigt
straka á laugardagskvöldi var, til þess
að hrópa og góla fyrir innanríkisráð-
gjafann Sifton, meðan hann talaði. Li-
beralar höfðu farið um Brandon-bæ og
nágrennið á laugardag og keypt strák-
ana til að gera þetta skrílverk fyrir 25
cents hvern. Maður þar vestra býðst
til að sanna þetta með eiðstaf ef þörf
þyki.
Frá löndum
DAWSON CITY 17. Sept. 1900.
Ritstj. Hkr. —Kæri vin:—
Eg sé að þú ert farinu að gera alt,
sem í þínu valdi stendur, til þess að láta
mig fá Hk., því nú hef ég fengið 2
registeraða pakka, Mér kemur þettn
mjög vel því oss hér langar til að frétta
úr bygðum íslendinga eystra. Félagi
minn J. J. Bíldfell hefir fengið Lögb. í
síðastl. 2 mánuði, svo að nú höfum við
báðar hliðar málanna, og þessi blaða-
koma til okkar er búin að gera kofa
o kkar að nokkurskonar aðalsamkomu-
stöðvum fyrir þá landa okkar sem hér
eru við Dominion lækinn.
Islendingar eru heldur að fjölga hér,
jafnvel þó 4 þeirra fari heimleiðis í sum-
ar og haust, þá hafa þó fleiri komið.
Þeir sem.heim fóru eru: Sölvi Sölvason,
eins og þér mun vera kunnugt, Björn
Jónsson og Ólafur Jónsson frá Utah.
Svo stendur til að Tomas Kloe frá Cali-
fornia fari heim þangað nú um mán-
aðamótin með konu sína og tvö börn,
annað nokkurra daga garnalt,
Auk þeirra landa seu hingað komu
með Teit Thomas, komu tveir Islend-
ingar hingað nú fyair fáum dögum,
annar þeirra Sveinbjörn Guðjohnson,
frá Húsavík.
Allir liafa landar okkar vinnu hér,
nú sem stendur, en vera má að örðugt
verði að haida henni í vetur því margir
námaeigendur eru komnir að þeirri
niðurstöðu að kostnaðarminna sé að
vinna náma sína að eins yflr sumar-
límann. Verður þvi hætt vinnu i haust
þegar frostin koma og ekki byrjað aftur
í þeim fyr en á næsta vori.
' Fjöldi af alslausum verkalýð er nú
að koma hingað með degi hverjum frá
Cape Nome, svo enn þá verður of
margt fólk í Klondike.
Stærri verkgefendur eru búnir að
setja vinnulaun niður í $100 nm mánuð
inn, með fæði. Fjöldi þeirra borgar
samt enn þá 80c um kl.timann.
Það sem mestum tíðindum sætir
héðan er það, að fjöldi mikill af náma-
mönnum hafa farið héðan upp með
Stewart ánni í gullleit. Margir þeirra
œtluðu sér upp að upptökum árinnar.
Flestir eru menn þessir útbúnir til eins
árs og og sumir til tveggja ára. Staður
sá er sumir þeirra, er fóru, höfðu auga-
stað á, er um 600 mílur frá Dawson
City, svo að nú eru menn að fara, ekki í
hundraða- heldur í þúsundatali, til að
taka sér námalóðir við iæk eða læki
sem renna í Stewart ána, um 80 mílur
frá mynni hennar. Þar þykist einhver
hafa fundið gull, og mun nokkuð vera
satt í því. Eg hef talsverða trú á því
að gull muni vere einhverstaðar langt
upp með Stewart ánni, þvi sandeyrar
og malarkambar með fram þeirri á, eru
allir gullberandi. Það gull hlýtur að
koma einhverstaðar frá, og vist er það,
að ekki hefir það borist þangað upp eftir
ánni.
Árni Þórðarsou, frá Winnipeg, bið-
ur að heilsa þér og öðrum kunningjum
þar eystra. Hann býr í kofa okkar J,
BíldfeUs og vinnur stöðugt á næsta
nómi.loti við okkur, og svo hefir hann
fengið lofun um vinnu hjá okkur að
meir eða minna leyti i vetur.
Með beztu kveðju til allra landa
okkar i Manitoba,
Þinn einlægur.
E. Sumarliðason.
MINNEOTA, MINN., 30. SEPT. 1900.
(Frá fréttaritara Hkr.).
Tíðarfar meiri hluta þ. m. hefir
verið fremur óstöðugt; regufaU með
meira móti, svo kornstakkar hafa víða
sætt skemdum, en nú virðist sem held-
ur sé farið að snúa til þurkáttar, enda
gerist þess þörf, því allmikið er enn
þá eftir óþreskt. — Hveitiverðið hefir
kornist í 69Jc. bush. — Verkamanna-
þurð hefir verið hér svomikil.að þreskj-
arar hafa orðið að borga $2 á dag i
haust.
Pólitíkin er orðin all-heit hjá okkur
um þessar mundir. Flokkarnir berast
á andlegum banaspjótum, láta ekkert
orð eða atvik ónotað, er hvor um sig á-
lítur að sér muni verða til hagsmuna;
oft og tíðum harðari riirman um menn
en málefni. Flokki Bryans fylgja allir
sannir þjóðviuir.
Björn B. Gislason sækir um héraðs-
lögmanns-embættið í Lincoln-héraði
undir merkjum sambandsliða. Von-
andi að allir ísletdingar, er þar búa,
sjái svo sóma sínum borgið, að þeir
veiti honum að málurr. áu tiUits til
flokks. — Frá Cubamönnum kemur sú
frétt, að þeirn líði ver trndir stjórn
McKinley og Mark Hanna, en þeim
hafi liðið í höndum Spánverja, og krefj-
ast þess af hinni ameríkönsku þjóð, að
hún losi þá úr járngreipum þeim er nú
klemma þá — “Með lðgum sbal iand
byggja, en ólögum e.vða”.
Sigurður S. Eastmann er kominn
hingað aftur alfarinn at Kyrrahafs-
ströndinni.
B. L. B. Eg hefi átt tal við marga
hér, viðvíkjandi krabbameinslækninga-
lagafrumvarpi yðár og allir eru sam-
mála um, að frá sjónaimiði mannúðar-
iunar hafi þér þrætt þar rétta leið; sé
svo, að kona þessi nnfi fundið veg til
að yfirbuga þenna voðasjúkdóm, þá
sannarlega á mannfélagið heimtingu á
því að hún njóti lagalegrar verndar.
Einn af vorum beztu og vinsælustu ís-
lendingum hér iþjáist af krabbameini;
það virðist ekki úr vegi að hann reyndi
hvað þessi canadiska kona gæti gert,
því sagt er að læknar álíti mein hans
ólæknandi, Hann er maður á bezta
aldri enn, og gæti því unnið margt
þarft fyrir sjálfan sig og aðra, ef þessi
meinsemd læknaðist, — Reyndu að
skreppa norður, vinur; einu má gilda
hvort mefnabótin kemur frá doktor eða
ólærðri konu, að eins ef líkn fœst.
TINDASTÓLL, ALTA., 2. OKT. 1900.
(Frá fregnrita Hkr ).
Veðurátta ill og óstöðug næstliðinn
mánuð, úrkomur tíðar og stórkostlegar
bæði regn og snjór. Sunnudaginn 23.
Sept. æddi hér yfir snjóstormur, sem
helst til 25. Snjófallið var ákaft, meir
en nokkru sinni næstliðinn vetur. Snjó-
inn dreif i stórfenni svo mikið, að sum-
staðar lagði slett af girðingum og hús-
ttm. Flóð hljop i ár og iæki og vegir
urðu ófærir. Síðan hefir þiðnað að öðru
hvoru, svo snjór hefir tekið nema stór-
fenni, sem litlar líkur eru til að leysi á
þessu hausti. í gær og i dag er norð-
austac kuldi og snjókoma. Haustáfelli
þetta er hið versta sem íslendingar hafa
feng ð um þetta leyti í þessu j lassi og
afleiðingarnar verða að þvi skapi vond*
ar. Heyskapur hefir gengiðseint sökum
veðráttunnar og ýmsir eiga óhirta af
ökrum og engi og mjög fáir búnir að ná
upp úr görðum, sem viða mundu gefa
góða uppskeru, ef að notum kæmi. —
Heyföng munu alment í meðallagi; þó
munu nokkrir ekki hafa verið búnir að
losa alt það heyer þeir þurftu, fyrir
snjóinn. Albertamenn eru að jafnaði
vanir fagurri og yndælii hausttíð og
bregður því mjög við, ef haustið verður
erfitt ofan á ilt sumar, Komi nú ekki
góður haustbati, verður vetrar undir-
búningur á skepnum og fleira í versta
lagi.
Nýlega er dáinn eftir langvinn veik
indi, Mrs. Kristín Sigurðar Grimsson-
ar. Dauðamein hennar yar hjartasjúk-
dómur. Einnig er nýdáinn efnilegur
unglingspiltur, sonur Ófeigs bónda Sig-
urðssonar. Banamein hans var fiekku-
veiki, sem haldið er að hafi flutzt þang -
að á heimilið frá Red Deer bænum.
Fleiri börn Ófeigs veiktust, en eru tal-
in á batavegi. Ekki hefir veiki þessi
breiðzt út enn sem komið er, svo menn
viti. Að öðru heilbrigði almenn í þess-
ari bygð.
Misprenti.st hetir í seinustu fréttum
héðan: flestir”—átti að vera “fæstir”.