Heimskringla - 29.11.1900, Side 1
#♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦11
♦ — - * — i
Amerik-
enskir loft-
heldir hitunarofnar frá $3.25 til $18.00.
Véi höfum ágæta eldastó
fyrir $15.00. Bezta verð á öllu
WATT & GORDON,
Coknek Logan Ave, & Main St.
♦ Hitunarofnar.
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
£!♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦j
!♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦!
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
*
♦
♦
♦
♦
♦
/ nmnnr HöI,K,1‘luJP“r' ho.ðoK ♦
. lestraistofu lampar. «
Sjáið vorar margbreytileg-u ♦
vörur og vöruverð. Hvergi ♦
betra né ódýrara í borginni.
WATT & GORDON,
Corner Logan Ave. & Main St.
!♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ ♦
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦^1
XV. ÁR
WTNNIPEG, MANITOBA 29. NÓVEMBER 1900.
Nr. 8.
Frjettir.
Markverðustu viðburðir
hvaðanæfa.
Blaðið ‘‘Daily Mail” i London seg-
ir það áreiðanlegt aðhertoginn og her-
toginnau af York, hafi fastlega ákveðið
að koma i kynnisför til Canada að
sumri eða eftir að þau eru komin úr
kynnisför þeirri er þau ætla að hefja til
Astralíu.
Nýafstaðnar kosningar i Nýfundna-
landi hafa lyktað þannig, að Bond-
stjórnin hefir mikinn meirihluta í þing-
inu. Sagt að hún hafi 33 fylgismenn,
en að eins 3 í andstæðingaflokki. Allir
katólsku þingtnennirnir, J 3 að tölu,
eru með scjórninni og 19 af 22 prote-
stantatrúar þingmönnum eru einnig
með henni.
Ný gimsteinanáma hefir fundist í
Cape nýleudunni í Afríku, er hún sögð
mjög auðug af ágætum demöntum.
Frétt frá Wichita, Kansas, segir
að þúsundir manna frá austurfylkjun-
um séu sifeldlega að ferðast um í bygð-
um Indiáua í því ríki í leit eftir
auðugum konum. Þeir hafa lesið í
ýmsum blöðuin Bandaríkjanna, að það
væri fjöldi kvenna meðal Indíána, sem
ýmist væru auðugar eða stæðu tíl að
eignast mikil auðæfi. Menn þessir fást
ekki urn það þó konurnar séu blakkar á
hár og hörund og þó þær hafi ekki alist
upp við siði hvítra kvenna eða fengið
nokkra mentun. Ekki heldur láta þeir
það fyrir brjósti brenna þó þeir skilji
ekki eitt orð i Indíána máli, sem er það
eina mál er þessar ko lur tala, bara að
þeir fái að giftast þeim og nó í þenna
ímyndaða auð þeirra. Giftingaleyfis-
bréfasalar segja að á síðastl, fáum mán
uðum hafi verið mikil eftirsókn eftir
leyfisbréfum og að 3000 hafi selzt.
Mönnnnum hofir orðið ágengt.
Skipskaðar hafa orðið við austur-
strönd Canada í síðustu viku. Skipið
Lena Pickup strandaði í mesta óveðri
og stóisjó nálægt bænum St. John.
Tveir af skipverjum druknuðu en hinir
komust af með illan leik, allir mjög
þjakaðir af þreytu og kulda. Annað
gufuskip fórst í Bell-Isle-fundinu. Allir
skipverjar komust af þó blindbríð væri
á, Skipið var metið $150,000. Var
vátrygt fyrir $75,000,
Sagt er að Bandaríkja auðmenn
séu að kaupa Atekokan járnnámalönd-
in, sem liggja fyrir norðan Duluth í
landeign Canada ríkis, og að hinir nýju
eigendur ætli að eyða miklu fé til þess
að láta vinna þessi lönd, sem eru sögð
mjög málmrík. Fjöldi manna á ) á
vissa stöðuga og arðberandi atvinnu.
Bólusýkin hefir gert vart við sig
hér í fylkinu i þessum mánuði, i bæn
um Birtle, og ráðstafanir hafa verið
gerðar til þess að stemma stigu fyrir
útbreiðslu hennar. Einnig er sýkin
sögð að hafa náð fótfestu í Bi itish Col-
umbia, en ekki er álitið að hún verði
þar skæð eða nái að breiðast út þaðan.
Stórkostlegur vindstormur gekk
yíir bæinn Colorado Springs í síðustu
viku. Hann feykti öllu sem lauslegt
var og gerði mikid tjón. Vindhraðinn
var 70 mílur á tímanum. Fólk þorði
ekki út úr húsum sínum í nokkra kl,-
tíma meðan vindurinn var mestur.
Lord Kitchoner er harðstjóri i Suð-
ur Afríku. Nú segja blöðiu að hann sé
búinn að ákveða aö enda óíriðinn svo
fijótt sem mögulegt er. Að hann hafi
i liyggju að láta hermenn sína aðhafast
tthvað það sem ekki er fagurt til
frétta, má ráða af því að hann hefir
skipað öllum fréttariturum að hafa sig
tafarlaust buitu úr landinu. Öll blaða-
útgáfa er er stranglega bönnuð, að und-
anteknu einu blaði, sem Kitchener
leyfir að láta koma út á vanalogan hátt.
Er þetta kallað ófrjálslegt í mesta máti>
og ósamboðið nútíðarmenningu, jafn-
vel á ófriðartímum.
Sir Arthur Sullivan, enska tón-
skáldið og söngfræðingurinn mikli, varð
bráðkvaddur i Lundúnum i síðustu
viku. *
Yfirvöldin í Colorado ríkinu ætla
að höfða glæpamál móti skrfihóp þeim,
sem brendi á báli um daginn svertingja
nokkurn, fyrir stúlkumorð.
German National bankinn í New
port Kp. í Bandarikjura, hetir orðið
gjaldþrota. Stofnfé bankans var að
eins $100.000. Skrifari og gjaldkeri
BankausFrank M. Brown, hefir strok-
ið. Ytirskoðun bóka bankans sýnir að
hann hetir verið búinn að eyða rúmum
$200 000 af því fé sem bankinn hafði
með höndum. en það er helmingi meira
en alt stofnfé bankans. Svona lagaður
þjófuaður er ekki gerður af öðrum en
stórhuga- og hæfileika mönnum?
Mr. W. J. White, innflutninga
agent stjórnarinnar í Ottawa. segir að
útlitið fyrir mikinn innflutning til Can-
ada á komandi ári, sé mjög gott, Hann
telur líklegt að ekki færri en 60 00)
manna muni flytja hér inn í Canada á
fyrsta ri aldarinnar, mestmegnis frá
Bandaríkjum og nokkuð einnig frá Ev-
rópu öudunum.
Stórkostlegur fellibylur æddi yfir
part af l’ennessee rikinu í síðastl. viku
og gerði mikinu skaða, vindurinn sóp-
aði öllu sem fyrir varð, í bænum
Longrange felti hann 8 hús og 3 kirkj-
ur tíl grunna og deyddi nokkra menn.
3 svertingjum heuti vindurinn í loft
upp og feykti þeim 3 mílur vegar á
svipstuudu. Leifarnar af þeim fundust
þar sem þeir komu niður. Allur jarð-
argróði var eyðilagður á stóru svæði.
Búar hafa náð sé. nokkuð aftur
eftir ósigrana er þeir biðu fyrir Bretum
uýlega. De Wet, herforingi Búa hefir
safnað að sér allmiklu liði og ráðist á
Breta i Orange Kiver-héraðinu. t>ar
féll einn Brezkur herforingi og 3 her-
rneun.
Lord Roberts sendir þá frétt til
Englands að Búar séu ákafir og óeirð-
arsamir í sumum héraðum landsins og
að þeirhefji hveiu bardagann á fætur
öðrum mót mönnum sínum.
Nýlega tóku Búar 13 brezka her
menu og nokkur vagnhlöss af matvæl-
um. Mennirnir voru látnir lausir og
leyft að halda vopnlausum til félaga
sinna, En Búar gerðu sér gott af
matnum. Það er skoðun brezkra her-
foriugja í Suður Afríku að Bretar verði
að bei jast þar ínokkra mánuði enn þá
áður en nokkur likiudi fáist fyrir því að
friður komist á þar í landi.
Sú frétt kemur frá Shanghai að
keisarekkjan í Kína hafi nýlega sent
leyuiboð til allra fylkjastjóra í Kínlandi,
og aunara háttstandandi embættis-
manna þar, að búa landslýðinn undir
stríð við sambandsþjóðirnar, Þess orð-
sending drotningarinnar hefir komist i
hendur herforingja Evrópuþjóðanna
þar eystra, og hafa þeir nú komið sér
saman um að herða á kröfum sínum við
Kínastjórn, og að ' fram fylgja þeim
kröfum af ýtrasta megni tafarlaust.
Alt útlit er fyrir að ófriðurinn þar
eystra sé langt frá því að vera til lykta
leiddur. Sendiherrar Evrópuþjóðanna
heimta skilyrðislaust að æðstu embætt-
ismenn Kínastjórnar, þeir sem áttu
þátt í því að koma af stað ófriðnum
gegn kristniboðum þar eystra og lífláti
þeirra, séu drepnir. En þessu neitar
Kínastjórn með öllu, en hefir i þess
stað lofað að dæma s . ma þeirra í æfi-
langt fangelsi. Meira vill hún ekki
gera, berjast heldur.
Prestar Methodista kirkjunnar i
Chicago, hafa kotnið sér saraan um að
skora á McKinley forseta að láta þess
getið í næsta ávarpi sínu til Congress,
að á siðastl. 10 árum hafi 2000 manna
verið teknir af lífi (liinched) í Banda-
ríkjunum án dóms og laga, og jafn-
framt ætla þessir presta að fara þess á-
leit við forsetann að hann geri kunna
stefnu sína í því máli. Prestarnir vilja
að Congressinn geri öflugar ráðstafanir
til þess að slík mannslátur eigi sér ekki
stað framvegis. heldur sé dómsvaldinu
leyft að láta proia uu, sakamanna og
aðþeiraðeins séu líflátnir sem dæmd-
ir verða til þess aö þola þá
hegninRu, og að a)t lííiát fari fram sam-
kvæmt lögum. En að “lynching” sé
algeilega aftekin. Þessi samtök prest-
anne orsakast af því að svertingi nokk-
ur var nýlega brendur lífandi á báli, af
skríl hóp. fyrir kvennmorð.
McKinley forseti hefir látið þess
getið aðhann vilji lækka útgjöld þjóð-
arinnar til bernaðarþarfa. um 20 mil.
dollara á næsta ári, og hefir má’ þetta
verið rætt af þingnefnd í Washington.
Nefndin ákvað að lækka ekki toll áþví
sem nú er lOc af pundi og að breyia
sem allra minst núverandi tollskrá
Ban daríkjauna.
Verzlun Bandarikjanna við út-
heiiniun hefir verið meiri á þessu ytír-
standandi árien á nokkru undaugengnu
ári í sögu landsins. Útfluttar vörur
hafa stigið yfir 100 mil. dollara virði á
hverjum mánuði að jafnaði og f Octó-
ber mánuði nam verð á útfluttum vör-
um úr Bandaríkjum 163 mil. doll. I
Xgúst síðasl. var verð á útfiuttnm vör-
um nálega 200 mil. dollara. Mikið
framfara þjóðveldi eru Bandaríkin.
Bændafélag í Brantford Ontario,
sem býr til hveitiband hefir í ár goldið
meðlimum félagsins 90 per cent ágóða
af hverju hlutabréfi, og árið þar á und-
an 60 per cent, og þó er tvinninn seldur
þar talsvert ódýrar en hér f Norðvest
urlandinu. Manitobabændur ættu að
fara að dæmi þessfua Ontariobænda-
Professor F. P. Leavenworth i
Minneapolis tók nýlega mynd af stjörnu
þeirri er Eros nefnist, og fundin var
ekki all fyrir löngu. Professorinn kvað
stjörnu þessa hvorki sjáanlega með
berum augum né heldur með neinnm
þeim sjónauka sem vísindamenn í
Minneapolis hafi völ á þar i borginni.
En hann gat samt reiknað nákvæmlega
út þann punkt á himinhvolfinu þar sem
hann vissi að stjarna þessi hlyti að
vera, og svo miðaði hann myndavél-
inni á stjörnuna, sem hann sá ekki, og
sem haun segir vera i 34 millión mílna
fjarlægð, og myndin kom út á plötunni
og hafði lekist vel.
Walker dómari, sem hafði umsjön
á endurtalning atkvæðanna i Selkfrk,
hefir úrskurðað að Mr. McCreary sé
löglega kosinn þingmaður fvrir Selkirk-
kjördæmið með ein u atkvæði umfram
Mr. Haslam. Kjördæmið stendur þvi
bókstaflega i sama fari og það gerði við
kosningarnar 1896 þegar Mr. Mac-
donell var kjöriun þingmaður með einu
atkv. um frain gagnsækjanda sinn Mr,
Hugh Armstrong.
Þann 26. þ. m. var fjarskalegt
hvassviðri á Erievatninu og yfir norð-
urhlutann af Ohioríkinu, Vindurinn
stóð af norðri og fór 60 mílur á kl.
timanum. Veðrinu fylgdi bleyt.a oi;
krepja. Vatnið umhverfðist, og sKip
áttu nóg með að halda sér í hafnarlagi.
—Sama dag var svo livasst í Montreal,
aðlestaferðir og skipagöngur heptust.
Blaðið Mail segist hafa fengið
hraðskeyti frá Cape Town nú nýlega,
og segi það friðarástandið á þessa leið:
Hið brezka hatur er óðum að gripa um
sig í Cape-nýlendunni. Hatur þetta
mótibrezku stjórninn er sprottið að
miklu leyti af fölsuðum sögum, sem
lægsti klassinn af Bretum sjálfum hefir
brei tt út um Orange River nýlenJuna
og Transvaal. Stjórnarsinnar haldaað
samkall þingsins í næstu viku muni
þýða ófrið og upphlaup. Konungsinri-
ar segja skýlaust, að ófriðar útlitið
hafi aldrei verið jafn ískyggilegt sem
nú í Caiæ-nýlendnnni.
Mælt er að Kruger gamli sé byrjað-
ur að skora á stórveldin í Norðurélf
unni að hlutast til um sanngjarna frið-
arsamninga milli Englands og Trans-
vaal. Fer hann fratn á, að stórveldin
fari eftir fri arsamninga formúlum,
er fundurinn í Haguo kom sér saman
um. Haft er 9ftir gamla Kruger, að
tvö stórveldin séu þcgar búin að lofa
sér fylgi sínu við þessa samningsaðferð,
en hin öll hafi mælt á móti henni.
Blaðið Evening Standard segir á
þriðjudagskveldið var, að samsæri væri
þegar royndað til að rnyrða Roberts lá-
varð. I því samsæri voru mest útlend-
ingar. Námamaður muni vera for-
ingi samsærisins. Félag þetta hafi ætl-
að sprengja kyrkju í Johaunesburg á
sunnudaginu vaí, er Roberts lávarður
gekkí. En vakt hans hafi komist að
þessu í tíma og getað ónýtt fram-
kvæmdina. Tíu samsærismenn hafa
náðst. Eru þeirtiestir ítalir.
Sú fregn keinur líka frá Hoboken í
N. Y., að leynifélag hafi myndast til að
ráða Mr. McKinley, forseta Bandaríkj-
anua af dögum. Hafi franskur maður
orðið fyrstur til að gera lögregluliðinu
aðvart. Nákvæmlega vita ir.enn ekki
enn þá um alt þetta samsæri, því upp-
ljóstrarmaðurinn geti ekki gert- sig
skiljanlegann á enskri tungu og hafi
því skrifað lögreglunni á frönsku, en
bréfið var að eins aðvörun, en ekki út-
skýringar. En þeir sem hafa talað við
uppljóstrunarmanninn enn sem koraið
sé, hafi litlu visari orðið, vegna þess að
þeir skilja ekki frönsku, og hann geti
ekki gert sig skiljanlegau i ensku
Nafni hans er lialdið leyndu enn þn.
1 regnriti Mails segist hafa haft all-
langt i»mtal við gamla Kruger, sem sé
mjög þægilegur viðtals. Hann segir
samt að þessi nafn frægi Suður afriku
stjórnmála garpnr hafi orðið æfur þegar
hiinn gaf honum í skyn að Bretar
mundu brjóta á bak aftur hverja hans
tilraun í friðarsamningi milli hans og
Breta. Og þess vegna raundi málið ei
komast í gerð. Kruger sagði Mr
Chamberlain hefði skifað undir fundar-
gerðina í Hague, og gæti ekki tekið
samþykki sitt til baka Hann sagði að
Bretland ætti skilið hegningu fyrir heft
ingu á frjálsu fyrirkomalægi. og væri
nokkui Guð til—sem hann vissi sann-
arlega væri til—,þá hlyti það hegningu
fyrri eða síðar.
S- G. Northfield. Edinbnrg, N. D.
Stækkar nú myndir billegaaog betur en
nokki u sinni áður. Hann býðst einnig
til að laga rnyndir sem fólk er óánægt
með, fyrir litla borgun. Sendið honum
"Photograph” og hann sendir aftur
fallega “Cráyon” eða Water-colar-
mynd , eftir þvi sem umer b>ðið. Skrifa
þarf augna-lit og hár-lit ef beðið er um
litmynd.
Vei zlunarmenn í Winnipeg hafa
komið sér satnan um að hætta að gefa
„Trad'ng Stamps”. Kostnaðnrinn við
þessa Srampa þykir draga ofmjög frá
þeim ágóðan sem kaupmenn haf á vör-
,um sínutn.
Ankakosning til fylkisþingsins fór
fram í St. Boniface á laugardaginn var.
Mr. Bernler. konservativinn, var kos-
inn með 158 atkv. umfram. Þannig
hefir koii8ervativestjórnin grætt 2 sæti
Mið-Winnipeg og St. Boniface, síðan
Mr: Rohlin varð leiðtogi flokksins og
stjórnui formaðnr hér í fylkinu.
Nokkrir Liberal náungar sem föls
uðu n kvæði i Brandon kjördæminu,
með þvi að greiða þau undir annara
nöfnmn, hafa verið sendír upp fyrir
æðri dómstóla, og sitja í fangelsi til
vorþmgs. Sagt ei að þetta sé að eins
jitiJfjilog byrjun þeso aem á eftir
kemur.
M iss Phoeba Benni varð úti ná-
lægt bæiiun' Stonewall hér í fylkinu þ.
14. þ. m. Húu fiausí hel, líkið fanst
daginn eftir.—Einnig fraus maður til
bana skamt vestur frá Rat Portage í
siðastl. viku.
Mr L). McNichol. varafors ti C. P.
R.-félagsius, var hér á ferð í síðustu
viku Segir hann félag sitt hafa fast-
ákveðið nð bvggja nýja járnbrautar-
brú ytii Rauðá, svo að hraðlestir fél.
þui ti ekki að stauza við brúna meðan
uxalestir séu að fara fram og aftur yfir
haua, eins og lestir félagsins verða nú
iðulega að gera við Louis brúna. Nýja
brúin íi að verða hin vandaðasta og á
að leggjast yfir ána í línu við Point.
Douglns Avenue Brúin á að verða í
þremur lengdum. hver lengd 240 fet og
á hún að hvíla á steinstöplum. Mr.
McNickt.1 segir flutningsmagn félags
ins nú vera orðið svo mikið að því sé
nauðsynlegt að hafa sérstaka brú fyrir
lestar sínar. Verkið verður byrjað
innan skauis tima.
MINNEOTA, MINN., 17, NÓV. 190o.
(Frá fréttaritara Hkr.).
Tíðarfar frá því um miðjan Október
óg til þessa tíma hefir veðurátta verið
hiu bagstæðasta. I dag féll snjór, svo
grátt e r í rót. •
Þá er nú alríkiskosningastríð Banda
rikjanua um garð gengið í þetta sinn og
fór ekki sem æskilegast. En pening-
arnir eru meiri stjórnarmegin, enda var
ekki sparað að kanpa menn og mál-
gögn. — Taugaveiki hefir verið á meðal
íslendinga í Vesturbygð.
Dauðsfall: Nýdáin er hér Þu.ríður
Halldórsdóttir, 95 ára gömul, frá
Tjarnarnesi í Saurbæjarhrepp í Dala-
sýslu. Hún var stjúpmóðir Guðmund
G. Henrys og þeirra systkina.
Landnámssaga tslendinga
í Miunesota-nýlendn
Eftir
iS. jl/. S. Axkdal.
Gnðmundnr Guðmundsson (Henry
það nafn tekið hér í landi) kom hingað
árir 1878, hafði áður dvalið um tíma í
rikinu Wisconsin; fórheiratil íslands
til að sækja föður sinn, ættingja og
vini. er hanu kom með hingað og sett-
ist hér þá að til fulls. Hanti var sonur
Guðmundar bónda á Tjarnarnesi i Saur
bæjarhrepp í Dalasýslu. Asgeröur hét
kona hans; var hún Pétursdóitir: þau
voru stjúpsy8tkin. Guðroundur var
greindur vel og kátur í lund, meðan
j hanu varbeili heilsu. Af börnum þejrra
eru 3 á lífi: Jóhannes, María og Aðal-
steinn.
Eggert Eggertsson Féldsted frá
Seljum í Helgafellssveit, kom híngað
árið 1878. Kona hans var Sigriður
Einarsdóttir frá Brimilsvöllum i Ólafs-
vík í Innbeshreppi i Snæfellsnessýslu.
Þau eiga 3 börn, 2 dætur og 1 son, er
Albert heitir.
Árið 1878 kom hingað Sigbjörn Sig
urðsson (S. S. Hofteig). Hanner sonur
Sigurðar Rustikassonar, er bjó á Breiðu
mýri í Vopnafirði og Solveigar Sigurð
ardóttur konuhans, systur Egils danne
bio.isiiianns Sigurðssonar. Kona hans
er Steinunn Magnúsdóttir Péturssonar
frá Skeggjastöðum á Jökuldal, systir
Jóns Magnússonar, er þar býr nú. Af
börnuin þeirra lifaþessi: Guðný skóla-
kennari i Minneota; Guðríður, gift Jó-
hanni Gunnlaugssyni; Kristjana Sól-
veig, gift Sigurði Gunnlaugssyni; Hall-
dór Beuedikt Stefán og Margrét Signr
björg; em öll börn þeirra vel að manni.
—Sigbjörn er félagslyndur maður og
einu af helztu forkóltum kyrkju og
safnaðarmála.
Á fyrstu landnámsárum hér koin
hingað Árni Þorkelsson frá Selstöðum í
Seyðisfiiði eystra.
Oblandaðursannleikur.
Herra ritstj.
I þeirri von og með þeirri vissu, að
lesend ir Hkr. séu æti fúsir á að heyra
óblandaðan sannleikann. bið ég þig
u.n rúm í blaði þínu fyrir fáeinar línur.
I L'ögbergi nr. 44 þ. á. segir Banda
ríkja Isiendingur (mun yera Gunnlaug-
ur Vigfússon, en seinna meir George
Peterson), en hvort hann mun að síð
ustu skrifa sig Kvillanus-Blesa oða ei‘t-
hvað annað þvi um likt, er ekki hægt að
segja með vissu), að mér hafi misreikn-
ast. Ég kannast ekki við það. 4.
Míuz 18:13 þegar Repúblikar fóru frá
völdum. voru hér um bil $48,000,000 ó-
xborgaðar f viðlagasjóði, sem hefðu átt
að vera bbrgaðir þangað fyrir þann
tíma, og er þvi sökin sú sama, hvort
sem þeir svikust um að borga féð í sjóð-
inn. eða að þeir stálu því þaðan eftir
að það var þangað komið. Ég endur-
tek það hér sem ég sagði í Pink Paper,
að ýmsar aðrár skuldir voru þann dag
óborgaðar, setn voru þó fallnar í gjald
daga og nam sú upphæð mikils, er það
því skollablin duleg reikningsaðferð, er
fær $2,341 674 tekjuafgang út úr þeirri
súpu, ekki sizt þegar tekic er til greina
$235,000,000 tekjuafgangur frá forseta-
árum Clevelands. Fjármálaritara
Harrisons mun hafa 1 tist likt á þá
reikninga og mér, þvi í Desember 1892
hafði hann látið grafa og gera til reiðu
ríkisskuldabréfa prentspjöld (Plates),
en þá uppgötvaði einhver nýmóðins
finauzfræðin;;ur flokksins, að hægt
væri að láta alt hólkast þar til að De-
mókratar tækju við, enda er hægt að
lesa það út úr ræðu, er Dolliver frá
Iowa hélt snemma i Janúar 1893, að
uppi muni hanga þar til4. Marz, “en
úr þvi er það Demókrata, en ekki okk-
ar, að sjá um fraratíðina”. Að ég hafi
sigt að Roosewelt hafi skotið “menn’
i bakið, er ósatt. Mann meina ég, er
ég segi “Negrann", og er sá illa læs og
en ver hugsandi, sem gerir fleirtölur úr
því. Að ég hafi skotið Rossevelt bak-
ið, eru vist draumórar landa tetursins,
og gpta þeir hafa komiðaf slæmri sam-
vizku, því landinn ætti að þekkja mann
nær sér en mig. sem það er hægt að
segja um, bæði bókstailega og í lík-
ingu. Ég verð að biðja landann fyrir-
gefningar á því, að ég þekki ekki
eiukaleyti hans til að rita um þjóðar-
mál okkar á islenzkri tungu.
Um [afstöðu beggja fiokkanna i
svertingjamáliuu ætlaégekkiað ræða
i þetta sinn. En ef landinn síðar meir
fer að ræða það mál ^og hallar til um
sanuleikaun, má hann eiga það víst, að
ég skal reyna að fá tiina og tækifæri til
að leiðrétta framsögu hans af ýtrasta
megui, því framvegis, sem hingað til,
mun mér verða mikið annara um mál-
efni en raenu. Laudanum óska ég
ei nkis verra, en að brauðskorpa sú er
hann hetír fengið fyrir stöðngt. flokks-
fylgi, verði æ smjörugri og þykkri eftir
því sem timar lh'a fram, þvi ég skil
hvað það þýðir, þó ég sé ekki i þeim
flakki dýranna. sem tíuir mola þá sem
detta af borðum hinna pótitisku
dt ottna.
Mun ég svo ekki um sinn koma
fram á ritvöllinn í þessu máli, hvað svo
sem lengi 1 andinn kann að segja, eða
Kaupahéðinn hinn Lögberski.
Joiiaxn G. Daviösson.
Milton, N. D.
Ókunnur vinur.
Með síðusta siðasta íslauds pósti
voru J. Magnúsi Bjarnasyui, skóla-
kennara, að Geysir, Manitoba, sendar
eftiifylgjanki vísur:
“Þín eru ljóðin ljúf og hrein,
‘ Þau líða í hjartað mitt inn;
“Þau mýkja sár og sollin mein,
“Þau svæfa’ oss með tár-vota kinn.
“Þau eruu blíð; svo barnslegt mál;
■ Þau beiua’ oss á kærleikans braut:
. Þau eru fædd í Sannri sál,
‘ Er sorgmæddra græða vill þiaut”.
Vísurnar voru skrifaðar á guilrent
spjald og var ekkert annað áritað, að
uudantekinni íyrirsögninni: “Til Jó-
hanns M, Bjarnasouar”, og undir vís-
úrnar var ritað: “G. E.” Mr Bjarna-
son hefir þess vegna ekki allra minstu
hugmynd um hverjum hann á að þakka
þetta vinsamlega, en nafnlausa skeyti
frá “Fróni”, og tekur því það ráð, að
biðja “Heimskringlu” að færa þessum
ókunua vin kveðju sína <>g innilegt
þakklnrti fyrir sendinguna, — sendingu
sem hann lofar að geyma sem dýrmæt-
an menjagrip.
Jón Jónasson á annað borðið
(sjá Heimskr. 22. þ. m.).
Séra B. Þórarinsson, virðist vera
hálf hræddur um, að ég ætli mór í
kapphiaup við hans söngfróða vin Jón-
as Pálsson, en það er misskilningur.
Ég hef aldrei ætlað mér að róa á borð
mótihorium. hvorki sem háseti né út-
gerðarmaður.
Það eru vinsamleg tilmæli min til
þeirra. < em eftirleiðis kynnu að sjá á-
stæðu til að mæla söngfræðisleza hæfi-
leika nianna, að vera sér út um annan
mælikvarða en mig. Ég hef aldrei
haldið því fram að ég væri söngsnill-
ingur heldur aldrei beðið nokkurn
mann að gera það.
JÓN JÓNASSON.
Til Noi’ðui pólsins.
Rússar ætla að gera út skip
mikið í norðurpólsför næsta sumar.
Skip þetta beitir Yersnak og er sér-
staklega útbúið til þess að kljúfa sig
gegnuin hafíslög hversu þykk sem
þan eru. Skipið var smíðað fyrir
nokkrum árum, og þá reynt til hlýt-
aríöllumþeim ísalögum sem þekt-
ust við strendur Rússlands, og reynd-
ist það þá svo vel að admiral Mak-
aroff kvaðst sannfærður um að það
gæti kouiist að norðurpólnum og rif-
ið sig gegnum íaalög norðurhafsins
með4— 5 mílna hraða á tímanum.
Nú er aðmirállinn að lát« laga ^
styrkja allan framhlut þessa skips
með því augnamiði að ryðja sér veg
á því til norðurpólsins ánæsta sumri
Ailur útbúnaður á að verða hinn
bezti, og vistir nægar til margra
árs, ef óhöpp kynni að bera að hönd-
um svo að skipinu fatlaðist förin að
einhverju leyti.
Aðmirálllnn telur víst að skip
sitt geti komist að pólnum og til
baka á einu sumri. En honum þyk-
ir vissara að búa svo um sig að hann
geri lifað góðu lífi um langan tíma
út við pólinn, ef á þJrf að halda.
Vísindainenn í Evrópu, sem skoðað
hafa skip þetta, láta vel yfir að það
sé iíklegt rð bera sigur út býtum í
viðureign sinni við náttúruöflin í ís-
haflnu.