Heimskringla - 24.01.1901, Blaðsíða 1
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
Heí mskriiigla er gef-
in út hvern ömtudag af:
Heimskrinnla Newe and
Publishing Co., >
St., NVinnipeg, íiUu. iVost-
ar um árið # 1.50. Borgad
fyrirfram.
UO8\0
044 ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦©
♦ Nýir kaupendur fá í ♦
J kaupbætir sögu Drake J
♦ Standish eða Lajla og jóla- ♦
X blað Hkr. 19u0. Verð35 og X
X 25 cents, ef seldar, sendar J
♦ til íslands fyrir 5 cents ♦
^♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦^
XV. ÁR
WINNIPEG, MANITOBA 24. JANÚAR 1901.
Nr. 16.
Utanáskrift Heimskringlu er nú:
Heimskringla News and Publishing Co.
P. O. Box 407, Winnipeg, Man.
Frjettir.
Markverðustu vi3burðir
hvaðanæfa.
Á iimtudaginn í fyrri viku dó i
Toronto Sir Frank Smith. Hann var
fæddur á írlandi og flutti. til Canada
ásamt föður sinum 1832. Var hanr
stórkaupmaður mestanhluta æfi sinnai
f Canada. Hann var viðriðinn ýms
stórfélög, svosem járnbrautarfélög m.
fl. Hann var kjörinn f efri deild sam-
bandsþingsins 1871. * Starfaði hann aft-
ur í ráðaneytiSir John Macdonalds.
Hann var ráðgjafi opinberra verka i
ráðaneyti Abbotts frá 1891 til 1892.
Einnig var hann í ráðaneyti þeirra
Thompson, Bowells og 8ir Charles
Tuppers. Hann hætti við pólitik 1896.
Hann er talinn að hafa verið milíóna-
eigandi.
Koekkoemoor, sem var Búi og
hafði svarið þess eíð, að hann væri
hvorki fylgjandi Bretum né Búura, var
dæmdur til dauða nýlega fyrir þá sök
að hjá honum fundust vopn, Hann
átti heima í Johannesborg.
Morðinginn Morrison var hengdur
á fimtudaginn var af ríkisböðlinun
Radcliffe. Morðinginn Morrison drap
McArthur-familíuna, sem eru hrylli-
legustu morð, er komið hafa fyrir i
Norðvesturlandinu. Hann var 30 ára
gamall.
Rússneska kyrkju-sýnódan hefir
bannfært Tolstoi greifa. Bannar sýn-
ódan prestum kyrkjunnar að jarða
hann í vígðri mold, eða biðja fyrir hon-
um eða messa yfir honum.
Fréttir frá Johannesborg í Suður-
Afriku segja að De Wet herforingi hafi
U?-ifm-yfir VjmvV éna og ssmcin-.
að nokkurn hluta af her sinum við her
Transvaalbúa. Sagt er að þessi sam-
einaði her sé um 7000 manna, vel búnir
að vopnum og vistum. Vistir sínar
hafa þeir að miklu leýti frá Bretum,
því De Wet tók fyrir nokkrum dögum
frá þeim 26 vagna hlaðna af matvælum
sem blöðin segja að sé um $250,009 virði
—og er það góður fengur í bú Búanna.
Sagt er að þessf sameinaði her sé nú
um 60 mílur fyrir norðan Cape Town.
Bretar hafa 20,000 manns i Cape ný-
lendunni og búast við að mœta De Wet
»g mönnum hans svo fljótt sem verða
má. En leitt þykir Bretum á Eng-
landi hve seint Kitchener gengur að
sl ökkva ‘ófr ðareldiun þar syðra,
Mælt er að Kruger hafi í hyggju að
ferðast til Bandaríkjanna í næsta mán-
uði. Honum hetír verið boðið þangað
og lofað góðum viðtökum.
Ógnarlegt ódæðisverk hefir verið
framið í Kansas ríkinu í þessum mán
uði. Svertingi nokkur í bænum Lea-
venwort var tekinn úr höndum yfir-
valdanna og hálfkæfður í steinolíu, síð-
an bundinn við staur og brendur lif-
andi f viðurvist 8000 áhorfenda. Mað-
ur þessi var grunaður uro að hafa myrt
stúlku þar í bænum i síðastl. Septem-
ber, en ekkert varð sannað á hann og
ekki meðgekk hann glæpinn hvernig
sem honum var þrengt til þess Rikis-
stjórinn er afarreiður yfir þessu ódæðis
verki og býður $500 verðlaun fyrir
sannanirnar móti þeim mönnum, sem
gengust fyrir þessum glæp.
Búar hafa skilað Bretum 297 liðs-
mönnura, sera þeir tóku við Belfast,
Helvitia, um daginn,
Bretar eru að fjögla stórskota-
byssum í Cape Town til varnar, ef Bú-
ar skyldu ráðast á bæinn.
I tveimur stöðum hafa B retar og
Búar átt smáskærur nú nýlega. Bretar
hafa á báð-.m stöðum hrakið Búa og
hafa þeir mist nokkra menn. Þeir hafa
verið fámennir þessir tíokkar, sera
barist hafa. svo skærur þessar hafa
enga þ ýðingu fyrir ófriðinn í heild
sinni.
Námaeigendum í Cape-nýlendunni
hefir verið send aðvörun frá stjórninni
að leggja til herverði kring um nám-
urnar, er nemi 1500 mönnum. Náma-
eigendum er fyrirskipað að borga hverj
um varðmanni 5 Shillings á dag og
leggja þeim til allan útbúnað.
Á lfttþektu gistihúsi í Jakobsgötu
mimtmmmraiiin nrm n w - 1 * * 4 5 6 7 8 * w 1
Victona drottning
látin.
H.in andaðist í höll sinni á
Weight-cyjunni um kl 6.45 að kv. é
þriðjudaginn var. Ilún hafði verið
talsvert veik um alllangan tíma, en
rúmföst var hún að eins fáa daga.
Dauðamein hennar var blóðstorknu.i
í heilanum. Victoria drottning vai
i níræði-aldri og orðin mjög elli-
hrum. Er það talið víst að úhyggj-
ur út &f dauða ýmsra skyldmenna
hennar og mai'gra brezkra stór-
menna, í Búastríðinu í Suður-Afríku,
hafi svo lamað heilsu hennar og
líkams og sálar krafta alla að dauð-
ann hafi fyrir þá sök borið fyr a*
höndum en nokkurn varði. Þessarai
konu verður nánar getið síðar.
í Stokkholm í Svíaríki, [höfðu karlmað-
ur og kona tekið sér herbergi til leigu
litlu fyrir jólin. Þeim var litill gaum
ur gefin þar þau voru álitin hjón, sem
gætu lifað og látið eins og þau lysti.
Á laugardaginn milli jóla og nýárs kl.
4 e. h., sagöi ein þjónustustúikan þeim
sem vann á þessu gistihúsi, að hún
ætlaði að hreinsa til í herbergi þeirra
milli kl. 5 og 6. Húd meinti með þessu
að þau færu út á meðan hún væri að
því. Konan svaraði að þau mundu
ekki ónáða hanaá meðan. Þernan ætl
aði því inn i herbergið kl. 5, en þá var
það harðlæst. Hún sagði eigandanum
frá þessu, þegar hann hafði sjálfur gert
tilraun til að komast inn i herbergið á-
rangurslaust, .lét hann sækja lögregl-
una. Hún braut herbergið upp.
Þessar persónur láu þá báðar skornar á
háls í rúminu. Konan hafði auðsjá-
anlega dáið fyrst, en maðurinn var ný.
dáinn. Á gestaskrá gistihússins hafði
maðurinn skrifað með lærðri hönd:
Jóhan Anderson, ferðamaður". Hann
leit út fyrir að vera tæpra 30 ára að
aldrí, en konan sýndist tvítug. Þaa
voru bæði óelað af heldri stéttinni, en
bæði framúrskarandi drykkfeld. Lög
r9glan getur með engu móti fundið
hver þau hafa verið. Hafa þau óefað
farið huldu höfði og verið umrennend-
ur, og endað ævi sína út úr drykkju-
skap, sem meinbugar hafa eflaust verið
orsök til. — Hvað ætli margir drepi sig
og deyi fyrir ofnautnir víns árlega?
Sumir ætla að4af hverjum 10 i sumum
löndum drepi sig. — Þó eru til þauó-
menni enn í dag, sem þykir sómiað því
að vera svínfullir.
Stór bruni var í Montreal á föstu-
daginn var. Thos. May & Sons félag-
ið misti álnavöru ög fatnað m. fl. upp
á $250,000,
Voðalegt járnbrautarslys varð 18.
þ. m. á G. T. brautinni nálægt Locks
Millí ríkinu Maine i Bandaríkjunum.
Fimm menn dóu strax. Er þetta hið
stærsta slys sem orðið hefir hjá því fé-
lagi um mörg ár,
Strathcona herdeildin leggur á stað
heimleiðis þessa daga frá Suður-Afríku
og siglir beina leíð til Halifax og á að
koma þangað 15. Febrúar næstkom-
andi.
Fundur verzlunarmanna frá. ýms-
um pörtum í Canada eru nú í Ottawa
til þess að reyna að fá 'stjórnina þar til
að hækka toll á innfluttum bygginga-
við. Enn fremureru ullarverksmiðju
eigeudur í Ontario og Quebec fylkjun-
um mjög óánægðir með tolla þá sem
nú eiu á ullarvarningi frá Englandi og
öðrum ríkjum og hafa þeir tekið sig
saman um að reyna að fá Ottawastjórn
ina til þess að hækka þessa tolla á inn-
fluttum varningi.
Unglingspiltur og stulka fundust
nýlega á sléttunum nálægt bænum
Morris. Þau voru frosin i hel. Það
er talið víst að þau hafi verið ókunnug
þar í héraði og vilst af réttri leið i blind
bylcum, sem æddi yfir Manitoba á
þriðjudaginn í siðustu viku. Þau fund
ust 100 yards frá bóndabýli því sem
þau ætluðu tU.
Mackenzie and Mann ætla að
byggja risavaxna komgeymsluhlöðu í
Port Arthur. Húsið á að kósta $85ttí
þúsund og rúroa lj milíon bushela a*
hveiti.': Þetta verður með allra stærst.i
kornhlöðum i Ameríku og á að ver.-.
fullger í byrjun næstk. September.
Stjórnendur Wabash járnbrautar-
innar í Chiiago hefir gefið út skipun
um að euginn maður sem vinnur, eðe
vinna kann í þjónustu félagsins, megi
bragða nokkur vín, hvorki i vinnutím;
um eða á undan þeim. Þetta þyðir í
stuttu máli það, að enginn sem vinnuf
í þlónustu félagsins má bragða vin »
nokkrum tíma. Þeir verða að veraf
bindindi, eða ganga úr þjónustu félagsj
ins. Þetta er spor í rétta átt og von-
andi að fleiri járnbrautarfélög fylgii
dærai þeirra Wabash-brautarstjórr,-
enda.
Olíubrunnur einn í Texasríkina
varð óviðráðanlegur i siðustu viku, svii
að olíustraumurinn úr honum stóð
fet í loft upp í 3 daga og er talið að 150
þús. gall. hafi tapast þar. Nú hetír
aftur verið gert svo við hann að olian
tapa3t ekki. Jörð' þar umhverfis er
talin full af olíu og ýmsir olíuleitar-
menn og auðmeun eru að sækja að
staðnum til að grafa eftir ljósmatnum.
Talið víst að þar sé fjársjóður mikill
fólginn í jörðu.
Fjárhagur Rússa virðist að vera í
blómlegu ástandi. Fjármálaráðgjafinn
Dewitt gerii kunnugt. að tekjuafgang-
ur frá síðasta ári hafi verið 73,443,450
rúblur. En á hinn bóginn segir han í
að hernaður Rússa í Kína hafi á þvl
ári numið yfir 61 milión rúblur, og a-
ef til vill hafi hann stigið hærra. Rúss
a; b’.jóta rA v.e*«. »■ ð'io; þ’Að » . i |
geta staðið við að star.da í ófriði við
aðrar fjarlægar þjóðir árum saman og
standast þann kostnað allan án þess að
leggja nokkra aukaskatta á þjóð sína
og hafa samt tekjuafgang.
Frétiir frá Circle City segja matar-
skort mikinn þar í bænum og grend
ínn.. Hveitimjöl er sagt &ð kosti $45
sekkurinn og fæst að eins hjá þeim sem
flytja inn í landið til gullleitar, en ekki
í verzlunum. Jarðepli, kjöt, hrísgrjón
og sykur er algerlega ófáanlegt þar í
héraðinu. Sagt er einnig að gull hafi
fsndist í grjóti hjá Forty Mile læknum,
er nemi $250 i hverju tonni af grjóti, og
að mikil aðsókn sé að þeim stað frá
Dawson City og öðrum stöðum þar
vestra.
Julius Neufisher. Þjóðverji, 18 ára
að aldri, var tekinn fastur f vikunni
sem leið í Elgin, 111., fyrir barnsþjófn-
að. Barnið.sem hann stal, er 3 ára
gamall drengur, að nafni Quito Abel.
Julius stal honum í Berlin i Ontario fyr
ir litlu síðan. Fyrir rétti [segir Julius
þannig frá: Nafn drengsins hið rétta
er Kildaw. Faðir hans á heimaíBer-
lin á Þýzkalandi oger þar mikil^ met-
inn. Sambúð hans við konuna var f
meira lagi stirð, svo konan strauk með
manni að nafni Abel til Ameriku. Hef-
ir hún síðan og sonur hennar gengið
undir því nafni síðan þau komu til
þessalands. Þau settust að i Berlín í
Ontario. Kildaw komst eftir hvar
drengurinn var niðurkominn hér i Ca-
nada gegnum vin sinn, að nafni W
Ahl. Kildaw samdi við Ahl að stela
drengnum og koma honum til sin til
Þýzkalands. Ahl fékk Julius í lið með
sér fyrir lítið fé, Stal hann drengnum
og fór tafarlaust með hann suður yfir
landamærin. Júlíus hefir nú lofað að
flytja drenginn heilan á hófi afturheim
til móður hans.
TINDASTÓLL. ALTA. 10. Jan. 1991.
♦
(Frá fregnrita Hkr.).
Næstl. tvær vikur hefir veðurátfa
verið köld og frostasöm, en snjófall
lítið; frost að jafnaði 30—40 stig fyrir
neðan zero; nú i dag aftur mildara og
stilt veður og útlit fyrir þaðsama.
Heilsufar ekki gott nú ylir lengri
tíma; einkum hafa unglingar fengið
megna hitaveiki með kvefi. — Samsæti
var haldið á gamlárskvöld, í húsi Mr,
St, G. Stephansonar, [til að kveðja 19.
ðldina og segja hina 20. velkopnna. Þvi
miður naut ég ekki þeirrar finægju að
geta verið þar nærstaddur sökum veik-
inda, og er því ekki fær um að segja
gjör hversu þar fór fram. Samkoman
fór vel fram. Voru þar Iræður haldnar
cg minni flutt i bundnum og óbundn-
um stýl, af hinurc eldri mönnum, ril
heiðurs og fagnaðar við AldamótÍD, en
u nga fólkið jók skemtunina með söng
og dans.
Beztu þakkir til Heimskringlu og
ritstjóra hennar fyrir Jólablaðið, sem
færði oss svo margt hugnæmt og
skemtilegt, eftir ýmsa merka höfunda.
Vér árnum ritstjóra Heimskringlu
hags og heilla á þessu nýja ári, á hinni
nýju öld, og þökkum honum alt það.
sem hann hefir unnið til hags og þarfa
Vestur-íslendingum. Heimskringlu
ósknm vér, að hún verði hið langlíf-
asta' og vinsælasta vestur-íslenzkt blað
á þessari öld.
Hvað lesendur segja um
Heimskringlu.
1. Einn landi í Norður Dakota seg-
ir: ‘'Eg óska þér til lukku með bók-
mentalegt gildi Jólablaðsins og frágang
þess. Það skaraði langt fram úr því,
sem beztu vinir þess vonuðu að það
yrði. Og í nafnihinna mörgu vina
þinna hér þa’ika ég þér fyrir það '.
2. Landi í Spanish Fork segir: "Ég
sezt niður til að inna þér verðskuldaðar
þakkir fyrir Jólablaðið þitt. Mér hefir
verið bæði áuægja og dægrastytting í
að lesa þetta Jólablað þitt af Heims-
kringlu með myndunum, kvæðunum
og ræðunum, sem það hafði inni að
halda. Hið sama mætti ég tjá þér frá
hendi og hjarta allra lesenda blaðsins
hér. Það lukuallir upp sama munni
um það, að blaðið hefi verið hreinasta
afbragð, hið lang-bezta af þvi tagi sem
vér höfum átt að venjast nú á langa
\iZ".
3. Landi í Springville. Utah, ritar:
“Jólablað Heimskringlu er að mínu á-
liti eitt af snildarverkum nítjándi'. ald-
arinuar. Eg vona að allir þess spá-
dómar og lukkuóskir komi fram.—
Fyrsta blaðsíðan er það bezta sem ég
hefi séð i íslenzku fréttablaði aðútliti“.
4. “Blaðið er þjóð vorri íheildsinni
til minkunar. en Vestur-Islendingum
sér í lagi til skaða og skammar11.
Sigtryggur frændi.
í Lögbergi no. 52. 3. Jan. 1901.
Nýárs-ósk.
“Allir eiga sér óskastund“j var
mér sagtá bernskuárum mínum, og
allir eiga þijár óskir á þeirri stund.
Ég hygg að stundin sé sama og
æfin og að ég muni hafa kosið tvis-
var.
Fyrst hefi ég óskað mér minnar
eigin velmegunar; þar nw=t þjóð-
flokks þess er gaf mér fyrst tilver-
una, og nú kýs ég í þriðja sinn. —
Hvers áég að óska mér?
Ég óska almennrar velmegun-
unar með þessari upprennandi öld,
og mér segir svo hugur um, að þessi
öld verði öld verkfræða og iðnaðar
eins og umliðna öldin hefir verið öld
vísinda og lista og umliðnu aldimar
síðustu tímar guðfræði og skáld-
skapar.
Sýslanin kemur í stað vísind-
anna, eins og vfsindin hafa komið f
stað trúarkenninganna.
Verkfræðin yflrstígur heims-
spekina, eins og heimspekin hefir
yfirstigið kyrkjuna.
Ég sem nú er dubbaður útkast
úrkas tanna—frá Islandi, heilsa þess-
ari upprennandi öld með jafnaðar-
geði, því ég hefl gert hvað ég gat og
v e r k m i 11 verður ekki ónýtt, þó
það hafi verið svívirt af öllum nema
einum aldavini vestra. Ég þakka
fyrir mig og óska öllum góðum til
heilla.
Heill þeim sem vilja og hng
hafa til að lifa.
Heill þeim sem vit og vopn hafa
til að stríða.
Heill þeim sem afl og efni hafa
til að sigra,
Maðurinn, þessi moldar-ögn,
ekki einn trillionasti partur af efni
jarðarinnar, þessi öskuköggull, sem
áfram syndir um geiminn hring eft-
ir hríng. Maðurinn, þessi vesaling-
ur, sem drepur samferðamenn sína,
sem hann þó þai fnast sjálfur. Mað-
urinn, þetta grey, sem fleygist eins
og Ieiksoppur fyrir öldum hafsins og
fyrir vindi, hann getur samt, þótt
lítjl fjörlegur sé, nfið alge’rðum yfir-
ráðum yfir þessari jörðu og varið til-
veru sína um ótakmarkaóan tíma,
þv’í þetta lítilfjörlega kvikindi, sem
við köllum mann, á í höfði sínu 2—3
þúsundir milíóna heilakorn, sem
hvert inniheldnr milíónir arahverfa
og k hvert þeirra hundruð ara (at-
oms), sem framleiða hugsun og sem
eru reiðubúin til að fylkjast eftir
boði viljans, til þess að vernda mann
lífið og viðhalda því. Hvað geta
ekki þessi 2—3 þúsm d milíónir
liverfi framkvæmt, sé þeim leyft að
neytasín? Hvers virði eru þau sem
upphaflega aðferðin til að betra kiör
manns? Hvað geta ekki þessir 15
hundruð mil. manna sameinaðir sem
eitt félag til að bæta kjör sín, til að
breyta Vesturheimi í vínlaud og
jörðinni I glaðheim!
Pvað geta ekki þessir 3 aðal-
kynbálkar (dökkrauðir, gulir og
hvítir) gert tii að breyta þessum
eymdardal í heimkynni gleðinnar.
Ef menn sameina kráfta sína svo
að hugir ráði fyrir gerðum, vit sé
leiðsögumaður, en velvild standl við
stjórn. Menn geta búið svo um að
eymd og fátækt, og þeirmllíón kvill-
ar, sem þeim fylgja, verði upprætt
eins og illgiesi af jörðinni, og mann-
lífið gert fagurt og þýðingarmikið
fyrir alla.
Evmdin er óþörf, af því jörðin
er rík. Fátæktin et i
maður getur ráðið yfir jörðunni, og
vesöldin er óþörf, af því að hún
sprettur af fátækt.
Jörðin getur framfleytt þúsund
sinnum fleira fólki en er á henni,þótt
ekki sé bcett við neinum nýjum
verkvélum, né nein ný öfl uppfund-
in, og með hverju ári eykst vald
mannsins yfir alheimskröftunum.
Þessar hugsanir detta mér í hug
á þessum fyrsta degi 20. aldarinnar.
Ég sendi þetta eins og offur og seg-
ulfórn, eldfórn til ykkar Vestur-Is-
lendinga, og bið Heimskringlu að
færa ykkur og eins Austur-Islend-
ingum mína beztu ósk:
ALMENNA VELMEGUN.
Ég óska að heima Islendingum
lærist að meta verk yðar forvígis-
manna betur en höfðingjar Islands
hafa metið mitt, og vona vér getum
byrjað þessa öld með því að eíla hver
annars veg og velferð, svo enginn
íslendingur verði hér eftír þurfa-
maður né aumingi, að engin vinni
til einskis, en allir hafi nóg, þá fyrst
verðar þjóierni vort heiðursein-
keDni.
Þá fyrst getum vér heitið dug-
andi menn. Þá fyrst getum vér
sigrað.
Fr. B. Anderson.
4 rue La place. Paris.
Nýmæli.
Háttvirti [herra ritstjóri. Viljið
þér gera svo vel að birta eftirfylgjandi
línnr í blaði yðar.
Á gamlársdag héldu íslendingar i
Chicago guðsþjónustu, en að henni af-
lokinni komu þeir saman til þess að
ræða um að mynda einhvern góðan og
uppbyggilegan félagsskap í aldarlokin
Skrifuðu sig nokkrir menn þá þegar
fyrir félagsmyndun.
13. þ. m. komu þeir aftur saman i
húsih'erra Jóns Jónssonar og var þá
félagið fullmyndað. Sökum þess að
þetta snertir alla íslendinga, vil ég
leyfa mér að minnast á það frekar. —
Félagið heitir ' ‘íslendingafélag", Það
á að ná yfir alla Ameríku þar sem ís-
lendingar finnast og vera í deildum.
Tilgangurinn er aðallega sá , að vinna
að þvi ao íslendingar haldi áfram að
vera til sem þjóð í Vesturheimi. Þaðá
að viðhalda Islenzkum þjóðar mentum
í öllu, er betur má fara.' ísleDzkri tungu
þjóðrækni og ættjarðarást, íslenzkum
bókmentum og skáldsaap. þekkingu á
fórnsögum ísl&nds og öllum högum
bess að fornu og lýju- Það á að sam-
eina alla íslendinga vestan hafs ef
auðið er, i bróðuilegri samvinnu og fé-
lagsskap og sera alt, sem i þes3 valdi
stendur, til þess að efla og viðhalda
góðu samkomulagi og bræðrabai di mill
Islendinga austanhafsog vestan,
Á fundum skulu fara fram fyrir-
lestrar fræðandi og skemtandi, kepp-
ræðurumyms mál, söngur og hljóð-
færasláttur, upplestrar o. s. frv,
Allir, sem á fundinum voru virtust
vera einhnga með því að æskilegt væri
að vinna að þessu máli, ef vér vildum
ekki hverfa inn i enska heln irn. eins
og sandkorn á eyðimörku. San : -inu-
lag var hið bezta um stefnu cg tilpeng
félagsins og allir skildu n ef érægju.
Það er sérstaklega tærst til [að
þessu verði drengilega, fljótt og vel
tekið í Winnipeg, hrfufborg Islend-
inga, þar sem svo nöigum cg póðum
leikmönnum er á að skipa, bæði körl-
um og konum
Eg býzt við að in nan skams veiði
lögin auglýst i blaði j-ðer cg }e'r ttð-
inn &ð gavjrast fyrir þessari félsgs
stefuu í Winnipeg. Það vaðist vel til-
fallið að þið r-tstjóraniir takið seman
höndum í því skyni. JEn ég skrifa þetta
að eins sem fréttir og til þes« eð allir
íslendingar, hvar sem eru, geti tekið
það til íhugunar. Svo er tilætlast að
allsherjarsnmkoma verði haldin einu
sinni rá ári af kosnum fulltrúum frá
hinum sameinuðu deildum.
Islendingar munu vera hér nélægt
100 eftir því. er ég bezt veit. Þeim lið-
ur yfir hö/uðviJ pg auðsætt er það að
'fíéít* Sffl t t'ó
Sama óþreytandi gestrisnin og heima,
alment orð fyrir dugnað og einkum sið-
prýði. Þar þykja Islendingar skara
fram úr öllum þjóðum hér í álfu, og er
það fagnaðar- oggleðiefni.
Chicago, 14. Jan. 1901.
Með ósk um gleðilegt ár.
Sia. JÚL. JÓHANNESSON
Stjómarnefnd Manitoba sm jör- og
ostagerðarfélagsins hér í Manitoba, er
nú í óða-önn að búa undir hinn 14.
ársfund sinn. Nefndiu hefir senteftir-
fylgjandi ávarp tíl skrifara allra deilda
félagsins:
Kæri herra: Aðalársfundur Ma-
nitoba smjör- og ostagerðar félagsins
verður haldinn í bæj..rráðshiisinu í
Winnipeg á föstudaginn 22. Febrúar
næstkomandi. Prógramme fundarins
verður mjög fræðandi. Þessir hafa lof-
aO að flytja ræður um eftirfylgjandi
eini: Prof. James W. Robertson:
Fr&mför srajörs og ostagerðar i Mani-
toba.—J. A. Ruddick: smjör og osta-
gerð í Nýja Sjálaudi og ostéa- og smjör-
gerð i Manitoba. — Wm. Grassick:
Hvernig bezt só að hafa smjörgerðar-
hús, þar sem rjóminn er sóttur til bænd
anna.—C. A. Murrey, formaður smjör-
gerðarskólans í Manitoba: Hvað sýn-
ishorn af smjöri sýud á haustsýning-
um i Manitoba kenna.—J. D, Moran:
Ostagerð i Manitoba.—Einnig er búist
við að ræður verði fluttar af stjórnar-
formanni Roblin; Hugh Mckellar, S.
4. Bedford, N. J. Mitchell, frá Assine-
boia og C. Marker frá Alberta.
Félagið vonar að allir sem láta sér
ant um smjör- og ostagerð, sæki fund
þenna og komi með viní sina með sér.
Það er ekki nauðsynlegt að ganga i fé-
lagið, þó menn sæki fundinn. Far-
gjald með járnbrautum verður sett nið-
ur um helming þann 18,, 19. og 20.
Febrúar.
Nefndin álítur að skýrslur þær um
smjör- og ostagerð, sem lesnar hafa
verið á tveimur siðnstu ársfundum,
hafi verið mjög þýðingarmiklar.og ósk-
ar eftir sem flestum skýrslum þetta ár
um þossi efni:
1. Rjómamagn meðtekið og smjðr
búið til;
2. Mjólkurmagn meðtekið og ostar
búnir til;
3. Kostnaður við tilbúning og með-
alverð á smjöi i og osti;
4. FramleíðslumaBn og verðhækkun
fram yfir siðasta árs prísa;
5. Vegalengd, sem rjómi og mjólk
hafa verið keyrð að verkstæðunum og
kostnaður við það;
6. Hverjir eru sérstakir örðugleikar
í bygð yðar;
7. Hverjir eru sérstakir hagsmunir
við bygð yðar;
8. Hvað,að yðar áliti er nauðsynleg-
ast til þess að bæta smjör- og osta-
gerð.
Slíka skýrslu má lesa upp á 4 mín-
útum.
Ef skýrslur eru sendar, skýldu þær
áritast til
E. Cora Hind,
ritara.