Heimskringla - 02.05.1901, Qupperneq 1
Heimskringla er gef-
in nt kvern fimtudag af:
H imskringla News and
Publishing Co., að 547 Main
St., Winnipeg, Man. Kost-
ar um árið $1.50. Borgað
fyrirfram.
Nýír kaupendur fá í
kaupbætir sðgu Drake
Standish eða Lajla og jóla-
blað Hkr. 19u0. Verð35 og
25 cents, ef seldar, sendar
til íslands fyrir 5 cents
XV. ÁR
WINNIPEG, MANITOBA 2. MAl 1901.
Nr. 30.
Frjettir.
Markverðustu viðburðir
hvaðanæfa.
Ottawastjórnin hefir ákveðið að
hækka laun allra ríkisþingmannanna
úr 31000 umárið, eins og nú er, upp í
$1500 um árið.
Hraðfrétt frá Kaupmannahöfn,
dags. 22. Aptíl. til blaðsins “St. Paul
DecpatchJ, segir stórkostlega kolanámu
fundna á íslandi. Náma þessi er sögð
í eða hjá Norðfirði á Austurlandi og er
talin aö liggja langt inn í land. Kolin
eru sögð góð og stærð námunnar svo
mikil að kolin mega heita óþrjótandi.—
Betur að satt væri.
Ottawastjórnin hefir sett í næsta
árs útgjaida áætlun sína fyrir aðgerð
á Am og brúm og hafnbótumí Mani-
toba $8000; fyrir bryggjur við Wkini-
pegvatn $600«; fyrir lækkun Manitoba-
vatns $5000; fyrir viðgerð á brúm, ám
eg hafnbótum i Norðvesturhéruðunum
$5000.
British Columbia-stjórnin hefir tek-
ið sér fasta stefnu í járnbrautamálum
fylkisins. Hún fer að dæmi Manitoba-
stjórnarinnar og heimtar rétt til að
ráða flutnings- og fargjöldum með öll-
um brautum, sem stjórnin styrkir, og
e;ns beimtar hún kauprétt á þeim.
Joseph Martin fylgir hennl í þessu
máli.
Oufuskipið Empress og China kom
til Vancouve^ 23. Apríl með 500 Kín-
verska innflytjendur. C. P. K. félagið
borgaði stjórninni um $50,000 innflutn
ingstoll af mönnum þessum. Það er
$100 fyrir hvern maun. En ef nokkrír
eru í hópnum, sem áður hafa verið bú-
settir í Canada, þá skilar stjórnin fé-
laglnu aftur $100 fyrir hvern þeirra.
Sagt er að ýmsir af mönnum þessum
muni siðar ætla að sötjast að í New
Mexico i Bandaríkjunum.
Einn belgiskur höfðingi, að nafni
Leopold De Melville, var nýlega tekinn
fastur i New York, kærður um að eiga
of margar konur. Lögreglustjórnin
þar er nú búin a0 fá vitneskju um að
hann mnni hafa gifst um eða yfir 50
laonnm. Margar af þeim eru á ýmsum
stöðum i Bandaríkjunum. Sjálfur sagði
Melville, þegar hann var handtekinn,
að hann ættí svo margar konur að hann
myndi ekki nöfn þeirra allra.
Frederick P. Fish, forseti Bell tele-
phone Co., á að fá $100,000 árslaun frá
1. Júlí næstkomandi.
Lyfjagerðar verksmiðja sprakk i
loft upp í Frankfurt á Þýzkalandi i
siðustu yiku og varð um 150 manns að
bana.
20 bankastofnanir i Japan hafa orð
ið gjaldþrota. Þær voru flestar smá-
stofnanir, og ríkisbánkinn í Japanhefir
komið þeim til hjálpar, en stórbánkar
ríkisins standa á föstum fæti og tiltru
útheimsins á landinu er óskert, þó allir
viti að þar sé peningaekla og landið
skuldugt.
Maður nokkur í Bandarikjunum
er nú að leita að konungsefni fyrir Ser-
víu. Segir hann að maður að nafni
Andre Bogne de Lasar, sem nú búi á
landi nálægt Dedge City i Kansas, sé
ómótmælanlegur ríkiserfingi íierviu.
l.eitandi ætlar að finna de Lasar og
taka hann með sér til Servíu og búa
hann undir að taka þnr við ríkisstjórn.
í orði er að Dominiouetjórnin láti
setja upp riftiakúlugerðaverkstaéði í
Winnipeg innan skamms.
Voða regnstormur mtð þrumum
og eldingum æddi yfir part af Manitoba
á fimtudagskvöldið var og gerði allmik-
inn skaða á sumum stöðum. Mestur
varð skaðinn i bæjunum Rosser og
Stony Mountain. í Rosser fuku ýms
hús og önnur skemdust allmikið og
ýmislegur annar skaði varð af storm-
inum svo sem gripadauði. í Stony
Mountain fauk efsta “tasian” af stóru
tvíloftuðu hóteli og bar vindurinn hana
um 300 fet í burtu. Talsverður skaði
varð og á sumum öðrum stöðura í fylk-
inu.
Það er talið líklegt að Joseph Mar-
tin verði gerður að dómsmálastjóra i
Dunsmuir-stjórninni í British Colum-
bia.
Maður nokkur f Fargo í N. Dakota
hefir fundið upploftþrýstivél, er frapa-
leiðir afl án þess að eyða nokkrum eldi-
við. Vél þessi er fylt með þrýstilofti
þar til 20 punda þungi er fengin á
hverjum tenings þumlungi. Þá byrjar
hún að vinna og framleiðir sjálf sitt
eigið hreyfiafl. Það er álitið að með
þessu só ráðin gátan um það hvernig
knýja megi skip á sjó og lestir á braut-
um án þess að nota eldivið.
Fréttir frá Cape Nome segja 200
manna hafi dáið þar í ofsaveðri, sem
þar kom í vetur, Frostið hafði verið
svo grimdarlega mikið að engin mælir
þar gat mælt það.
1000 ræningjar réðust nýlega á
brezka hersveiti Kína og varð mann-
fall mikið. Hopuðu Bretar undan og
leituðu sér frekari liðstyrks.
Ottawastjórnin hefir lagt fyrir þing-
ið frumvarp til laga um að gera 24. Mai
viðvarandi frídag í Canada. Það er
talið víst að þetta verði samþykt í einu
hljóði. Dagurinn á að heita Victoriu-
dagur.
Pan-American-sýningin i Buffalo
var[opnuð í gærdag.
Þýzkur maður að nafni Blend,
skaut og drap landa sinn nálægt bæn*
um Whitemouth á laugardaginn var.
Hudsonsflóa-félagið sendi nýlega
frá Winnipeg 2 járnbrautavagnhlöss af
hveitimjðli til Hudsons Bay. Þangað
liggur engin járnbraut, en vegalengdin
er sögð að vera um 700 milur frá TFin-
nipeg. Félagið varð þvi að senda mjöl-
ið alla leið til Englands og svo þaðan
aftur vestur til Hudsonsflóans nálægt
7000 mflur alls.
Ottawastjórnin kvað hafa ákveðið
að lækka gulltollinn í Yukgn niður úr
10 per cent, í 5% af gulltekjunni.
20,000 manna er sagt að hafi dáið
úr hungri i tveimur híruðum i Rúss-
landi í siðastl. máuuði. Það er talið
vist að margir tugir þúsundir muni
falla hungurmorða áður en hægt er að
ná þessa árs uppskeru úr jörðinni.
Landstjórnin er algerlega ráðalaus með
að!veita hjálp.
Fréttir frá Rússlandi segja að verzl-
ucardeifð sé þar mjög mikil; 400 verk-
smiðjur í einu héraði hafa hætt fram-
leiðslu og tugir þúsunda manna og
kvenna ganga iðjulausir og allslausir.
Sama frétt segir framtíðarhorfur þar i
landi vera voðalega ískyggilegar.
Skip nokkurt frá New Orleans til
Genoa tafðist svo mjög á sjóferð sinni,
af því að vélarnar biluðu og þurfti
langan tíma til að gera við þær, að
skipið varð kolalaust langt út í hafi.
Skipstjóri tók þá það ráð að láta
brenna sykri, sem skipið hafði meðferð-
is, i stað kola. 3000 tunnnm af sykri
varbrent undir gufukötlunum og náði
skipið að síðustu lendingu á fyrirhug-
aðri höfn.
Bretar hafa fundið 20 Krupp-fall-
byssur og afarmikið af öðrum skot-
vopnum og skotfærum.
Keisaraekkjan í Kina hefir valið
sex manua nefnd til að annast rikis-
stjórn þar í landi, og er gamli Li Hung
Chang formaður þeirrar nefndar. Hann
er því eins og nú stendur aðalrikis-
stjóri, enda talin hæfastur allra manna
i Kina til þess starfa.
Þegar atkvæði voru tekin í brezka
þinginu um hina ýmsu liði fjárlaganna
þá hafði stjórnin að eins um 30 atkv.
um fram og er það talið hættulega lít-
ið, þar sem um 700 þíngmenn er að
ræða, og í svo þýðingarmiklum mál-
efnum.
Tvær vagnlestir með fólk frá Banda
rikjunum og búslóð þess kom hingað
á fimtudaginn var. Fólk þetta ætlar
að taka sér land i Manitoba og Norð-
vesturhéruðunum, Oss er sagt að 60
per cent af öllum innflytjendum til
Norðvesturlandsins flytji inn i Edmon-
ton-hóraðið.
Thorgeímur Thorgrímsson.
Thorgrímur Thorgrímsson.
Thorgrímur heítinn Thorgrímsson
var fæddur 26, September 1868, iólafs*
víx í Snæfellsnessýslu. Foreldrar hans
voru Torfi Jörgen Thorgrimson verzl-
unarstjóri í Ólafsvík, og Sigríður Ara-
dóttir Johnsen frá Hafnarfirði. Thor-
grirnur heit. var yngstur af 7 börnum
þeirra hjóna, og er nú að eins eitt þeirra
á lifi, sem er María, kona séra Helga
Árnasonar prests að Nesþingum i Snæ-
fellsnessýslu. Thorgrímur heit. flutt-
ist til Vesturheims i Ágúsmánuði 1887,
Dvaldi hann þá að eins stuttan tima í
Winnipeg; gaf hann síg síðan að járn-
brautavinnu, sem ha'nn stundaði alt til
dauðadags. — Áriðl897, 29. Júní, gckk
hann að eiga ungfrú Salome Pálínu
Hjálmarson, prófasts frá Hítardal. Þau
eignuðust eitt barn, sem að eins lifði
fáar klukkustundir og var nefnt Torfi
Sigurður, fæddur 2. Aprill900.
Thorgrímur heit. var mikílmenni
til likama og sálar; höfðingi í lund og
sjaldgæft mikilmenni. Hann var vel
mentaður maður, kunni þrjú tungumál
fyrir utan móðurmál sitt, Hann unni
islenzku og islenzkum bókmentum og
var'yfir höfuð Islendingur, í orðsins
fylsta skilningi; gestrisinn mjög og
skemtinu. — Thorgríms heit. er sárt
saknað af öllum þeim, sem þektu hann
því í honumer farinn vinur, vinur, sem
i raun reyndist.
■II —————
En ekkjan, já, hún hefir mist mest;
hún hefir mist alt sem hún átti. Á
einu augnabliki var hún svift um-
hyggju og ástúðlegri sambúð elskulegs
eig'inmanns, sem var henni alt í öllu.
Jarðarför Thorgríms heit. fór fram
í Rat Portage á páskadaginn, þann 7.
April, frá svensk-tútersku kyrkjunni
undir umsjón “Independent Order of
Foresters”, að viðstöddum fjölda
manna. Hann hafði verið meðlimur
þess félags að eins i 45 kiukkustundir.
Keewatin, 16. April 1901.
Vinur.
Þorgrímui Þorgrímsson,
Fæddur 26. September 1868.
Dáinn 5. Apríl 19(Ji.
Ó, lífsgolan bylur svo bitur og grimm.
að brestur i hjarta og tangum,
ogskýin þau fylkjast svo döpur og
dimm,
að dagsljósið sortnar fyr’ augum.
Æ, fregnin er bitur og svíðandi sár
og sorgina grefur i hjarta,
að vinurinn hrausti sé horfinn, og nár
um hádegi æfinnar bjarta.
Og það mátti S6gja hann valmenni var
og virtur af kunnugum grönnum;
og höfuðið bæði og herðaruar bar
svo hátt yfir fjðldan af mönnum.
Og frjálsara lyndi og fjörugra mál
og frækleik jog höfðingsskap mesta,
og þróttinn í mundu og þróttinn í sál
hann það bar svo langt yfir flesta.
Hér sefur nú vært hinum síðasta blund
Og syrgður af fljóðum og körlum,
hinn djarfhuga maður með dáðrakka
lund
og dugandi i mannraunum öllum.
Nú ástvinir kveðja þig siðasta sinn,
og saknaðar flóa í tárum,
og ekkjan mest harmkveður ástyininn
sinn,
og úthellir vonum og tárum.
Með hugraunastríði og svellandi sár
hún syrgir nú ástina þina,
og höfug og þrungin mörg hrynja’
hennitár
á hjartkæra minningu þina.
Ó, sofðu í friði við algleymis óð
í eilifu friðar heimkynni.
í kveðjustað, vinur, ég legg þetta ljóð
sem laufkrans að gröfinni þinni.
U. Þ.
Eftir Stephan G. Stephansson.
IX. Sjöundi dagurinn.
Á segs dögum skapaði Guð’ himin
og jörð. Hann fann upp eitthvað
nýtt hvern þann dag. Sjöunda dag-
inn hvildist hann. Eða, sama sem—
hann skapaði þá bergmálið, prestana
og ritstjórana.
Rugl og rímbeglur.
Eftir Stephan G. Stephansson.
I. VIÐ TÆKIFÆRI.
Á daginn kafinn óða-önn
í að fá að lifa!
Stel af svefni stuttri spönn
Stundum til að skrifa.
Þó að hönd sé þreytt og aum
Þrek ei hugann brestur;
En orðtn verða “ill*í taum“,
Eins og lúinn hestur.
Líf er handviss fýlu-ferð,
Full af vanda nógum;
Stríð við fjandans flugna-mergð
1‘flóum, sandi, skógum.
Einn að róla sér, með sitt,
Soll og ólund flrtir —
Út’ um hóla’ er yndið mitt
Efafsólu birtir.
|" Vísu efni:— “Mér þykir
þessir smá-fuglar fara illa
meðhafranaþina, Stefán.’
Nágranni.
1 Ég veit hvað svöngum
vetur er—
Þú veist það kann ské
líka.”
^ Þorsitenn Erlíngsson.
Um þessara fugla Þorra-töf
Því er til að gegna :
Ég tók þá af Guði’ á gjöf
Greyin — Þorsteins vegna.
II. Vísur sem enginn vill eiga.
Dugar ei hót þó hönd þess manns
Heiti leyni sínu,
Forug þekkjast hunds-spor hans
Hreint á hverri línu.
Ég sálar-hag hans Sáms mér leiði
hjá—
Um sannfœrlng hans þess má að
eins geta:
Að stjórnar-hreppinn henni steypti’
’ann á,
Hjá húsfrú Kyrkju varð hún niður-
seta.
Skraf-flnnur, skrumari, flón —
Hafl skáld verið til í þér Jón:
—Hver óvitlaus efa’ á það dróg—
Eins og stagkálfur, stundum
Á stall sem við bundum,
Það baulaði bara og—dó.
III. ÚR PÓLITÍKINNI.
Hann fer hvert sem veltur vömbin
Viljurðu “þekkja tak“ á honum—
Eins og heima alin lömbin
Eltir þann, sem “gefur“ honum;
Andlegt brot af “almenningi",
Allra-gagn á hverju þingi;
Þetta’ er mesti meinleysingji —
Mundu bara: að “gefa“ honum!
IV. SEÐLARJOGSENDIBRÉF.
Þó að kvöldi’ um kvæðin mín,
Kvakar fjöldi róma.
Nýja-öldin eflir þfn
Óðar-völd og sóma.
f Vísu-efni: Eg er að verða af
■ því fár,
EHin hrukkar brána;
J Nú eru flest min höf-
• uð-hár
Hræðilega’ að grána.
þ Sigurður Jónsson frd Viðimýri.
Stilt er tíð—ei þvingar það
Þrjósku-hríðum drifnum!
Lognsins blíða laðast að
Löngum hlíðum snivnum.
Et fjör og græska hörfa’ í hlé
Hugur æskir betur-
Hverfl æskan, ellin sé
Eins og gæsku-vetur.
Úr bréfi til ritst. “Heimskr.41
KœRi VIN:—
Það markverðasta sem komið heflr
fyrir síðan ég skrifaði þér sfðast, er
að Mr. Emilio Aguinaldo heflr verið
tekinn til fanga. Eins og við mátti
búast þá eru dómar manna mjög
misjafnir um þenna sögulega við-
burð. Eins er um leigutól auðvalds-
ins; þau blöð sem í pólitiskum skoð-
unum eru bergmál eða endurskin af
Mark Hanna-veldi, virðast vera f
vandræðum hvað eigi að gera við
fangann, því Washingtonstjórnin
heflr enn ekkert látið opinskátt hvað
gera skyldi og leigutólin eru hrædd
um að þau geti styggt hans hátign,
ef þau skyldi í einfeldni opintera
einhver sav.nindi f sambandi við
þetta Filipps eyja brask stjómarinn-
ar. Þau hafa margra ára reynslu
við að styðjast, þau vita að sann-
indi er varningur sem Mark Hanna
metur að engu, borgar ekki með
einum eyri. Það stendur lfkt á fyr-
ir þeim eins og embættis undirtill-
unni, er ég nefndi í sfðasta bréfl
mínu, daglegt brauð aflað án sann-
færingar bragðast betur í munnum
þeirra heldur en að draga fram Iffið
undir merkjum einlægni og sann-
færingar.—
Það er því brennandi spursmál
á vörum þjóðarinnar, hvað á að
gera við Mr. Aguinaldo? Einstöku
hundtrygt blað heflr haldið fram
þeim skoðunum að rannsaka mál
fangans fyrir herrétti í Manila, því
þau álitu sjálfsagt að fanginn yrði
dæmdur til dauða, og það hefir þeim
fundist vera í nánu samræmi við
ræður atkvæðasmala Mark Hanna
síðastliðið haust. Þá eru bæði blöð
og pólitiskir þjóðmálaskúmar er
halda því fram að varsamt muni
vera'að taka Aguinaldo af lffl, enað
dæma hann í lífstíðar útlegð á eyj-
unni Guam, sem er nú orðin amer-
isk St. Helena, eða Síbería.. Svo
eru enn nokkrir sem álíta að sam-
kvæmt öllum mannúðarreglum sið-
aðra þjóða, þá hafi hans hátign,
McKinley, hinn fyrsti keisari Filips-
eyjanna* engan rétt að meðhöndla
*) Þeim sem i einfsldni líkar miðar
ad óg kalla forseta Bandaríkjanna keis-
ara Filippi-eyjanna bendi éj? vinsam-
legast á gerðir öldungaráðsins síðustn
dagana af þingtímanum, þeir munu
þar sjá að hann (forsetinn) hefir eins ó-
takmarkað einveldi yfir eyjunum eins
og keisari Rússa hefir. Þeir munu sjá
að flokksbræður hans greiddu atkvæði
gegn hverri þeirri uppástnngu sem upp
var borin tll að ringa veldi þessa ó
krýnda keisara. Þeir munu sjá að
sumir af hinurn allra heiðarlegustvt ðld-
ungum, t. d. Harr og Tillen, bentu á að
stjórnarskráin væri fótum troðin. En
það erínú sannað, að þegar um tvent er
j ar velja, stjórnarskrána eða boðorð
’ Hanna, þá er stjórna-skránni vikið til
hliðar, en boðorð Mr. Hanna látin gilda.
G A. D.
fangann öðruvfsi en hvern annan
stríðsfanga, er vér (því ég er í tölu
þeirra) vitum og kunnum gamla
máltækið “hver kann að segja við
kónginnjhvað gjörir þú.”
Það’eru nær því þrjú ár síðan
Mr. Aguinaldo var fluttur til Manila
áeinu af herskipum þeim er Mr.
Dewéy hafði til umráða, hann steig
á land hjá hervirkjum Bandaríkj-
anna, honum var falið á hendur af
Mr. Ðewey að vfgbúa landa sína er
mótfallnir væru stjórn Spánverja.
Honum eða mönnum hans voru af-
hent vopn, og innan 14 daga segir
Mr. Dewey að Mr. Aguinaldo hafl
haft um 30 þús. undir vopnum, en
biðu eftir tækifærinu að hjálpa til að
taka Manila, eins og þeir líka gerðu,
saman ber Dewey’s hraðskeytum til
hermálaráðgjaf'ans.
Það er haft eftir Aguinaldo að
hann hafl sagt í ávarpi sínu til þjóð-
ar sinnar: “oss er runninn nýr frels-
isdagur, saga vor er lík sögu Banda.
ríkjanna þegar þau á morgni sinnar
þjóðlegu tilveru brutust undan Bret-
um. Frakkar hjálpuðu þeim til að
vinna hinn frægasta sigur er nokkru
siuni heflr verið unninn f heiminum,
af því það var sigur hinna ódauð-
legu sanninda að allir menn séu
skapaðir jafnir í pólitiskum skiln-
ingi.
Eins munu þeir nú hjálpa oss
til að fullkomna vorn sigur og út-
vega voru ástkæra föðurlandi það
frelsi sem vér höfum barist fyrir í
fleiri mannsaldra”.
En nú fyrir fáum dögum er
þes8i sami maður fangi, fluttur til
Manila á herskipi hinnar sömu
þjóðar, hann sér allar sínar vonir
um sjálfstæði og frelsi þjóðar sinnar
verða að engu. Hann sér að þjóð
sú er hann bar traust til, hikar sér
ekki við þeirri Júdasar aðferð að
kaupa hans eigin menn til landráða
og drottinssvika. Hann veit að
hefði það ekki verið fyrir óseðjandi
auragræðgi vissra einokrenda í þessu
landi, þá hefði aldrei nokkru sak-
lausu manna blóði verið úthelt.
Hann veit að félög eru mynduð f
Washington til að ná sérstökum
hlunnindum á eyjunum, svó sem
“Philippine Lumber and innveet-
ment Co.” Af hverju Mr. Hall,
þingmaður frá ríkinu Iowa, er með-
ráðandi og einn af stofnendum.
Hvað sem gert verður við Mr.
Aguinaldo, [og hvaða áhrif afdrif
hans kunna að hafa á framtíð þets-
ftra ógæfusömu eyja. Þá get ég ekki
látið það hjá líða við þetta tækifæri
að láta þig vita, og alla lesendur þíns
heiðarlega blaðs, að óg fyrirlít þá
aðferð er menn vorir brúkuðu við
að handsama þenna fanga. Ég er að
langfeðga tali kominn af mönnum
þeim er mæltu illa fyrir vígum
þeirra bræðra Grettis og Illuga af
þvi þeir voru með svikum og iævisi
unnir. Ég segi ekki þetta mér til
afsökunar, af þeirri einföldu ástæðu
að ég finn ekki til neinnar sektar i
sambandi við þetta mál. Ég er á
móti öllum stríðum og blóðsúthell-
ingum. Mín skoðun var, og er, að
vér sem þjóð hefðum getað hjálpað
Cuba-mönnum til að ná sínu þráða
augnamiði án þess að segja Spán-
verjum stríð á hendur. Mín brenn-
andi sannfæring er að alt þetta
Filipps-eyja vafstur verði þjóðinni til
stór-skammar, því ég hef þá trú að
sannleikinn sigri á endanum, að saga
eyjanna verði einhvern tíma rituð af
öðrum en samvizkulausum bófum, er
selja sjálfa sig hæst bjóðanda til
hvers sem vera skal. Ég hef þá von
að mannúð og frelsisást þjóðar minn- ,
ar verði einhvern tíma sterkari en
mútusjóðnrinn, sem lagður er fram
af vínbruggaraeinveldinu og öðrum
einokendum viðlíka heiðarlegum.
Þinn
Gr. A .Dalmann.