Heimskringla - 09.05.1901, Qupperneq 1
Heimskringla er gef-
in ut hvern fimtudag af:
H imskringla News and
Publishing Co., að 547 Main
St., Winnipeg, Man. Kost-
ar um árið §1.50. Borgað
fyrirfram.
Nýír kaupendur fá
kaupbætir sögu Drake
Standish eða Lajla og jóla-
blað Hkr. 19u0. Verð35 og
25 cents, ef seldar, sendar
til íslands fyrir 5 cents
*
)
XV. ÁR
WINNIPEG, MANITOBA 9. MAÍ 1901.
Nr. 31.
Frjettir.
Markverðustu yiðburðir
hvaðanæfá.
Einn af sjóþráðum Western Union
félagsins hefir slitnað i miðju hafi þar
sem er 3 milna dýpi . Skip hefir verið
sent til að gera við þráðinn 'og er búist
við að það taki að eins 6 klukkustundir
eftir að búið er að ná i endana.
Brezka stjórnin hefir mætt mjög
öflugri mótspyrnui tilefni af útflutn-
ingstollinum, sem hún hefir lagt á kol.
En hún segir kolanámaelgeidur á
brezku eyjunum hafa grætt $145 milí
ónir á síðastl. áriogað þeir geti vel
staðið við að borga tollinn.
Enn frenlur hefir brezka stjórnín á-
kveðið að ganga tafarl. að því að gera
ýmsar mikilsvarðandi umbætur á allri
hermálastjórn og hernaðaraðferð rikis-
i s. Það þykir sannað að hernaðár-
aðferðin sé orðin að miklu leyti úrelt
og þurfi bráðra umbóta við, ef Bretar
eiga að geta haldið afli sínu og virð-
ingu meðal stórþjóðaheimsins.
Eldur kom upp í Dawson City fyrir
nokkrum dögum og gerði $30.000 tjón.
Auðugargullnámur hafa fundist á
Montana- og öðrum lækjum, er renna i
Indian-ána í Yukonhéraðinu.
Stórveldin hafa kraflst þess af
Kínastjórn að hún borgi þeim 1365 mil-
ónir franka, eða $273,000,000 í herkostn
að. En ekki kemur þeim saman um
hvernig léttast sé fyrir þau að tryggja
sér þessa upphæð.
Ottawastjórnin æilar að eyða 2
miliónum dollars til að auka flutnings-
▼agna tölu og annan útbúnað á Inter-
Colonial brautinni, þar i er um $200,000
fyrir sérstaka vagna til að flytja her-
togann af York og, konu hans og fólk i,
þegar hann kemur til Canada.
Tóbakseinveldi hefir verið myndað
i Bandaríkjunum með $10 milióna höf-
stól.
A. P. Lowe, sem um nokkur ár
hefir unnið í jarðfræðisdeild stjórnar-
innar i Ottawa hefir sagt af sér því
starfi. Hann hefir tekið að sér að
vinna i Labradorfjöllunum fyrir auð-
mannafélag í Philadelphia, sem þar á
járnnámalönd. Árskaup hans er 810
þúsund. Annar maður úr sömu deild
hefir sagt af sér embætti sinu til þess
að vinna að námum fyrir sjálfan sig,
og þriðji maður, J. M. Bell, hefir einnig
sagt upp stjórnarvinnu, til þess að
vinna fyrir námaiélag, sem borgar hon-
um fjórfalt hærra kaup en hann fékk
hjá stjórninni.
Hungursneyð ,i Galiciu gengur nú
svo hart að fólki þar. að það gengur í
stór hópum um landiðog heimtarbrauð
eða vinnu. Það brýtur hús og tekur
matvæli hvar sem þau eru fáanleg,
Hermenn tvistra hópum þessum, drepa
suma, særa hina, en ýfirvöldin eru
ráðalaus, gefa að eins von um vinnu
síðar.
Skipið Amur flytur þær frettir frá
Yukon að útþvottur þar á þessu sumri
muni nema um $30.000,000.
London á Englandi hefir nú 4,536,
034 ibúa. Fólkstalan þar hefir aukist
um 308,717 manns á síðastl. 10 árum.
Voðalegt slys varð á Dnieper-ánni
hjáOdessaá Rúselandi. Nálega hver
húsmóðir úr þorpinu Katchkarovka
hafði farið yfir um ána um kvedltíma
til að mjólka kýr sínar Þær tóku
börn sín með sér. Flotbrú var á ánni
og þegar konurnar og börnin voru á
heimleiðinni um kveldið skall á stór-
viðri og eyðílagði brúna. Konurnar og
börnin lentu í vatnið og drukknuðu að
undanteknum fáeinum manneskjum,
er bjargað var af bátum er af tilviljun
voru þar á ánni um það leyti. Sagt er
að nálega hvert hús í þorpinu syi gi
látnar húsmæður og börn.
Chicago-búar ætla að byggja $100,000
musteri í minuingu um Robert G. In-
gersoll frjálstrúarmanninum mikla.
Hungarsneyð i norðurhéruðunum i
Kina er sögð svo mikil að mörg þúsund
manna hljóti að deyja úr hungri, ef
ekki IfsrBt hjálp tafarlaust. Samskot
hafa bvrjað í Bandaríkjunum i þessu
skyni.
Nýtt kornkaupafélag er myndað í,
TFínnipeg með $100,000 höfuðstól.
Voðalega stórkostlegur eldur kom
upp i bænom Jacksonville i Ilorida-
ríkinu á föstudaginn var og eyðilagði
mikinn part af bænum og gerði 9 milf-
ón dollars eignatjón. 6 menn létu þar
lífið. Sá partur borgarinnar, sem eld-
urinn eyðilagði, er 2J milur a lengd og
nær 1 míla á breidd. Jacksonv'lle er
hðfuðborgin i Florida rikinu og hefir
stóra aldina- og kornverzlun, Hún er
aðal aðseturstaður þeirra manna sem á
vetrum leita til Flori da sér til heilsu-
bótar og er sagt að þá séu oft 80,000
aðkoraumenn í borginni.
Eldur gerði $80.000 skaðaíbænum
Gridley. 111., á föstudaginn var.
Eldur gerði $100,000 tjón i bænum
Ewa.-t í Icwa i síðustu viku.
Eldur gerði $100,000 tjón á gripa- og
slátrurhúsura þeirra Armours & Co, i
Chicago i síðustu viku. 16000 naut-
gripir voru uppi á 4. lofti i einu af slát-
urhúsum þeirra félaga; varð þeim með
naumindum bjargað undan eldinum.
Éldur eyðilagði part af innflytj-
andahúsinu í Brandon á laugardaginn
var. Nokkuð af húsgögnum agentsins
og f&rangri innflytanda brann þar inni.
Auðmannafélag í Chicago með 6
milión dollara höfuðstól hefir fengið
leyfi til að vinna að námagrepti í Mexi-
co um 40 ár; þar eru silfur- járn- kola-
og blýnámur. sem félagið ætlar að
vinna af mesta kappi.
Bólusýkin er sögð hættulega al-
menn i sumum stöðum í Bandarikjun-
um. Þaðan barst hún með manni frá
Cleveland til Montreal, Toronto og Rat
Portage og hafa nckkrir þegar dáið i
tveimur fyrnefndum bæjum. Heil-
brigðisnefndir þessara bæja hafa gert
alt sem i þeirra valdi stendur til þess að
útrýma sýkinni.
Allstór hópur manna er nú að
vinna i ákafa að járnbrautagerð frá
West Selkirk til Winnipegvatns, áleiðis
til Gimli.
Um 5000 manna er sagt að hafi
flutt inn i Manitoba og Norðvesturhér-
uðin i siðastl. mánuði, þaraf 2000 frá
Ontario.
Stjórnin i Transvaal hefir kosið sér
til fyrirmyndar og eftirdæmis skóla
fyrirkomulag það sem New Brunswick-
fylkið í Canada hefir og æskir eftir að
fá 3 kennara þaðan tilað hjálpa tilí
i byrjun.
Nýlega hefir fundist ákaflega aoð-
ug gulltekja i Tyhee námunni á Van-
couver-eyjunni. Þessi gullæð er 3 feta
breið, og fást fleiri hundruð dollarar af
gulli úr hverju tonni, sem úr henni er
tekið. Sýnishorn hefir verið sent það
an heim til Englands, r það gullkögg-
ull á stærð við mannshnefa, sem geym-
ir iitið af öðrum efnum en hreinu gulli.
Úr tonninu af jafn auðugum gullblend-
ingi fást fleiri þúsund dollarar. í sama
stað fanst líka silfurblendingur og eir
ásamt gullinu. Þsssi afarauðugi gull*
fundur hefir hlejrpt námalóðum í feyki-
vsrð nú síðustu viku.
Sagt er að Tyrkja soldán hafi ný-
iega skotið læknir sinn. Hann var að
lækna eyrað á soldáni, og olli hon um ó-
afvitandi verkjar; hélt soldán að hann
hygði að drepa sig, og skaut hann sam-
stundis. Pegar herbergisþjónn soldáns
heyrði skotið hljóp hann inn til hans,
til að vita hvað um væri að vera. en
þegar soldán sá hann koma, hélt hann
að myndað væri samsæri að drepa sig,
og skaut á hann þegar 1 bili, en misti
hans.
BRÉF FRÁ ÁRNESI, MAN.,
15. Apríl 1901.
Fátt er tíðinda hjá okkur nú. Á
sfðasta föstudag tapaðist stúlkubarn
7—8 ára gamalt hér norður f Árnes-
bygð, 1 mflu sunnan við Dagverðarnes.
Stúlkan var dóttir ekkju, sem er hjá
Oddi Þorsteinss yni, sem kom hingað
ofan oftir sfðastl. sumar. ' Hún var lát-
in fara raeð kúm frá fjósinu og átti að
reka þær eftir stfg upp að þjóðveginum.
Eftir klukkutfmp. var hennar saknað og
þá farið að leita og hafa nú frá 15—20
menn leitað hennar 3J dag, en alt á-
rangurslaust. Menn eru að imýnda sér
aðhún kunni rð hafa farið f vatnið, en
fyrir því er engin vLsa.
Föstudaginn 25. f. m. dó unglings-
stúlka, Sæunn dóttir Jóns á Jónsstöð-
um f Breiðuvíkinni.
Við höfum frétt hingað norður, að
Gimlibryggjan sé að nokkru leyti eyði-
lögð af is, og nú f nótt skemdist
Hnausabryggjau; lentiisinn á krókiun
cg setti eitt tré inn og lyfti parti af
henni frá vatns yfirborði um lj fet.
Einnig er sagt að raskast hafi suðauet-
urhornið. Þetta er nybygði parturinu
— liberal-parturinn. Hann var ekki
traustar bygður en “princip“ flokkins
er f heild sinni.
Broiðvíkingar mynduðu bændafé-
lag á sumardaginn fyrsta, og gengu 38
bændur og bændasynir í það. Þann
dag rigndi mikið hér annað slagið, svo
vegir eru mjög slæmir yfirferðar með
skepnur.
ÚR BRÉFI FRÁ GLENBORO, MAN.
....Þann 15. Aprilsíðastl. voru þau
herra Guðmundur Jónsson og ungfrú
Guðbjörg Magnúsdóttir gefin saman í
hjónaband. — Þau eru ættuð úr 8æ-
munðarhlíð f Skagafirði. Þau búa við
Assiniboine-ána norðan viðGlenboro.
Tíðin hefir verið þnr og hlý, en engar
skemdir enn þá af þurkum.
SPURNINGAR OG SVÖR.
Herraritstj. Gerið svo vel að gefa
eftirfylgjandi linum rúm f Hkr.
1. Sp. Það er mikið talað um það
manna á milii i Nýja íslandi hverjír
hafi 2. heimilisrétt, og verða ekki á eitt
sáttir. Síðastl. sumar 9. og 30. Ágúst
1909 komu landtökulögin út í Lögbergi
eg munu margir hafa lesið þau með
eftirtekt og jafnframt hugsað sér að
taka annan heimilisrétt, éftir þvf sem
stendur f 6. gr laganna; þar er skýrt
fram tekið hverjir eigi 2. htimilisrétt,
og nefnd gr. skýrir sig sjálf, hana þarf
ekki að setja hér, hún er ljós og auð-
skilin og geta allir lesið hana f Lögb.
Svo kemur maður, sem er f þjónustu
stjórnarinnar, og segir mönnum að
hver sá maður sem ekki hafa fengið
eignarbréf fyrir sfnu heímilisréttar-
landi fyrlr 1889 geta ekki fengið annan
heimílisrétt. Þetta finst vera öfugt við
áðurnefnda lagagr. þegar það er tekið
til samanburðar og valda miklum mis-
skilningi þar sem þessi grein laganna
kemur ekki nærri að minnast á eignar-
bréf. Það er lfka vonandi að ritstjórar
íslenzku blaðanna geri svo vel að svara
linum þessum rækilega; það er mjðg á-
rfðandi að menn viti hið sanna.
24. April 1901,
Gjaldandi Gimlisveitar.
Svar: Eftir því sem. vér skiljum
landlagabreytinguna, þá á hver sá
maður lagalega heimtingu á að fá sf -
ara heimilisréttarland, sem búinn var
að sitja full 3 ár á fyrsta heimilisréttar-
landi sínu fyrir 2. Júníl889 og búinn
þá að gera svo miklar umbætur álandi
sfnu að þau hefðu getið honum tilka.ll
til eif narbréfs, eða viðurkenningar
Land Commissioners um það að verkin
v»ru' nægileg til þess að hann gæti
fengið “Patent“. Það er ekki nauð-
synlegt að landneminn hafi tekið heim-
ilisrétt á landinu, að eins ef það hefir
ekki staðið f annars manns nafni á bók
um stjórnarinnar á þessu tfmabili. Alt
það sem landnemi þarf nú að gera er,
að senda beiðni sfna inn til stjórnarinn
ar um 2. heimilisrétt og um leið færa
sannanir fyrir þvi að hann hafi verið
búinn að búa 3 ár á fýrsta heimilisrétt-
arlandi sinu þann 2. Júnf 1889 og þá
búinn að geralögleg skylduverk á land
iuu; geti hann sannað það, þá fær hann
annað heimilisréttarland. En um hvað
séu lögleg skylduverk, getum vér ekk-
ert sagt. Land Agentinn í Winnipeg
hefir sagt oss að stjórnin athugi kröfu
hvers einstaklings og ákveði hvort
skylduverkin hafi verið gerð eða ekki.
Menn verða þvf að beina málum þess
um beint til stjórnarinnar og leggja
mál sín undir úrskurð hennar.
í sambandi við þetta mál vildura
vér benda lesendum á það, að herra
Joseph ó’kaptason er í þjónustn fylkis-
stjórnarinnar til þess að líta eftir inn-
flutningum ísl. og landnámi þeirra hér
f fylkinu; hann er innflutninga- og land
námsumboðsmaður Islendinga. Þess
vegna vildum vér mega enn á ný mæl-
ast til þess að landar vorir vildu snúa
sértil hans í öllum slikum málum, en
ekki til ritstj. Hkr., sem engan tima
hetir til að sinna slíkum málum,
Ritstj.
2. Sp. Þegar kona gengur frá eigin
manni með tvö ung stúlkubörn, hvað
þurfa þau börn !að vera gömul þegar
faðirinn hefir rétt til að taka annað
barnið heim til sín? eða hefir hann eng-
an rétt á þeim framar?
Sv.: Þetta eru spurningar er ættu
að leggjast fyrir lögmann;' aðrir geta
ekki svarað þeira svo f lagi fari. Vér
getum aðeins sagt að faðirinn er að lög
um talinn sá eðlilegi umsjáandi barn-
anna eftir að þau eru af brjósti móður-
innar. En svo er engin föst regla um
það hvort hjónanna fái umráð barn-
anna er til laga kemur. Það er vana-
lega dæmt eftir málavöxtum. Það
hjónanna sem að siðferði, efnum. inn-
tektamöguleikum og öðru þess háttar,
skarar fram úr hinu, það má jafnan bú-
ast við dómi sér f vil.
Ritstj.
Tilkynning.
Ýmsir menn, enskir 0£ íslenzk-
ir, í vesturhluta Gimlikjördæmis,
hafa ritað hingað til þess að fá vitn-
e3kju um hvort þeir megi eiga von
á að járnbraut verði fullgerð frá
Winnipeg til Oak Point á þessu ári.
Til þess að komast hjá að svara
hverju bréfl, sérstaklega, skulum
vér geta þess að stjórnendur Cana
dian Northern-félagsins hafa sagt
skýlaust, að það væri ásetningur
sinn að byggja þessa braut á þessu
ári. En það verður ekki byrjað á
verkinu fyr en Dominionstjórnin er
búin að samþykkja samninga fylk-
isstjórnarinnar við félagið, og með
þvi að staðfestingarlög Ottawa
stjórnarinnar eru nú áreiðanlega viss
að verða samþykt í Ottawa þinginu
mjög bráðlega, þá vonum vér að
að brautiu verði fullgerð til Oak
Point á næsta hausti.
Ritstj.
Leikfélag Skuldar.
Það má telja með framför-
um meðal íslendinga hér í bæ, að
þeir hafa nú komið npp mynd-
arlegu leikfélagi. — Sjónleikar
eru eitt af þvf, sem fundið
heflr verið upp til þess að menta
og fræða. Þýðing þeirra, ef vel
fara, er meiri en virðast kann í
fljótu bragði. Það er hlutverk þeirra
að lyfta blæju gleymsku, misskiln-
ings og eftirtakaleysis frá öllum
myndum mannlífsins og bregða yfir
þær Ijósi sannleiks og virkileika.
Þeir eiga að sýna lífið og heiminn
frá Cllum hliðum, bæði ljósum og
dökkum; þeir eiga að sýna mennina
eins og þeir eru og geta orðið, ýmist
sem engla eða djöfla og á öllum stig-
um þar á milli. Þeir eiga að setja
oss fyrir sjóuir þrælmennið eigin-
gjarna, sem hugsar ekki um annað
en að hefja sig upp með ðllum ráð-
um, leyfllegum ög óleyfllegum und-
ir hræsnisblæju kærleika og mann-
úðar og þeir eiga líka að sýna göf-
ugar sálir, sem finna til vegna
bræðra sinna og systra og vilja legga
þeim lið. Þeir eiga að leiða fram
til samanburðar, íhugunar, eftir-
breytni og aðvörunar alt það sem til
er í djúpi mannssála rinnar, heiftina,
hatrið og nefndargirnina, sem engu
hlífir; viðkvæmnina, umburðarlynd-
ið og geðprýðina, sem alt vinnur.
Þeir eiga að sýna ástina, trúna, rétta
og sanna, sem ýmist hefir sér við hlið
gleðina hoppandi og hlæjandi, eða
sorgina þögula og þunga. Þeir eiga
líka að sýna hið gagnstæða, sýna
hversu djúpt menn geta fallið og af-
vega leiðst af illum áhrifum. Eng-
in uppeldis aðferð er öruggari en
góðir sjónleikar; ekkert kemur þræl-
menninu fyr til þess að bæta ráð sitt
en það að sjá sjálfan sig leikinn—
skoða sig í þess konar spegli; ekkert
kemur forhertu hjarta fremur til
þess að klökkna, en vel valinn sjón-
leikur; ekkert snertir dýpri strengi í
mannshjartanu né knýr fremur tár
af augum, en það að horfa á góðan
sjónleik. En það er vandí að leika
vel; þá er fyrst vel leikið ef þeir er
það gera, gleyma að þeir séu að leika
og vita ekki annað en að þeir lifi at-
burðina og athafnirnar i raun og
veru, en áhorfendurnir þykist horfa
á virkileg lífsatriði.—Já, þá fyrst er
vel leikið.
Það, sem félagið heflr valið sér,
er “Æflntýri á gönguför11, alþektur
leikur og vinsæll mjög, enda undur
fagurað mörgu leyti. Eini gallinn
á honum er sá að samtal fer víða
fram í ljóðum, sem sungin eru, en
það er í hæsta máta óeðlilegt, Þess
þekkjast engin dæmi að 2—8 manns
tali saman syngjandi í ljóðum, er
þeir sjálfir yrki jafnótt; nei, svo góð
skáld hafa aldrei skapast í heimin-
um. Alt það sem gengur út fyrir
þau takmörk að það geti komið fyr-
ir, spillir sjónleikum sem öðru; gerir
þá ónáttúrlega. Söngur er hin feg-
ursta list og á víða vel við, en í sjón-
leikum er hann oft álíka Jhlægilegur
og að vera í rauðum sokk á öðrum
fætinum en bláum á hinum.
' I
Eg skal leyfa mér að minnast
fám orðum á leikendurna hvern fyr-
ir sig og byrja ég þá fyrst á herra
Olafl Þorgeirssyni- hann leikur
Kranz kammeráð. Er það gamall
maður, kjarklítill og vitgrannur, en
virðinga- og hégómagjarn- hann á
engan vilja ajálfur, en játar öllu
því sem aðrir segja og er sannkallað-
ur vindhani; hann hefir konuríki
svo mikið, að hún ræður öllum hans
hreifingum, orðum og athöfnum.
Olafur Þorgeirsson leikur snildar-
lega vel, limaburður, augnaráð, mál-
rómur og látbragð er altaf svo sam-
kvæmt sjálfu sér, þrátr fyrir margs-
konar breytingar og geðshræringar,
að áhorfandinn verður aldrei var við
nokkra tilgerð; að mínum dómi leik-
ur hann jafnbezt allra leikendanna .
Þá er frú Helena, kona kamer-
ráðsins, hana leíkur ungfrú Rósa
Davfðson. Erúin er skapkona mik-
il, en hyggin og að því leyti gagn -
ólík manni sfnum; hún leggur á ráð
þegar hann er í vandræðum, þykir
lítið til hans koma, en vill þd ekki
gera honum opinbera minkun. Rósa
Davíðson leikur þetta fremur vel, en
þó á það ekki rétt vel við hana; ég
heft séð hana leika annað miklu bet-
ur, annars er vandi að leika frúna
eins og alt, sem litla breytingu þarf.
Þá er Svali Assessor, er hann leik-
inn af herra Jóhanni Davíðssyni og
ferst það mjög vel. Má segja það
sama um hann og Ólaf Þorgeirsson,
að hann leil^ur með samkvæmni og
laust við alla tilgerð, enda er bún-
ingur hans ágætur, einkum; hár og
skegg, en betur hefði mér þótt fara
að hann hefði glófa á höndum; herra
Jóhann mun vera óvanur að leika,
og er enginn efl á að hann er af-
bragðs leikaraefni.
Dóttir assessorsins heitir Lára,
ung stúlka, fríð sýnum, gáfuð, stilt
og gætin, en þunglynd og tilflnn-
ingarík. Hana leikur ungfrú Guð-
rún Indriðadóttir (Einarssonar; ferst
henni það vel, sem vænta mátti, því
hún hefir þótt leika svo vel heima á
íslandi, að henni var jafnað við
Stefaníu Guðmundsdóttir, þá konu
sem bezt hefir leikið allra íslenzkra
kvenna, sem fæti hafa stigið á leik-
svið. Henni tekst mjög vel að
skifta um lágan róm og háan, við-
kvæman og harðan, en bezt af öllu
tekst henni þó að sýna á svip og
augnaráði ýmist sorg eða gleði,
traust eða fyrirlitning, grimd eða
blíðu. Hún er efni í ágætan leikara.
Þá er Jóhanna uppeldisdóttir ass-
essóreins; hún er gagnólík Láru; hún
er glöð og kát, getur grátið með öðru
auganu en hlegið með hinu; hún er
fnikil fyrir sér og ekki sem stiltust.
Hana leikur ungfrú Jónína Jóns-
dóttir; ferst henni það allvel—sum-
staðar ágætlega—einkum þar sem
hún á að leika geðshræringar, til
dæmis þegar hún grætur, er það svo
vel gert að virkilegt sýnist. Annars
er hún betri að leika annað en þetta
líklega bezt allra íslendinga hér í
bæ til þess að leika sorgarleika.
Þá eru tveir stúdentar, heitir ann-
ar Ejbæk en hinn Herlöv. Ejbæk
er gáfaður, góður og ærlegur dreng-
ur en þunglyndur eins og marglr
ungir námsmenn eru; hann setur alt
fyrirsig og lítur á heiminn svörtum
augum. Hann leikur herra Ben.
Ólafsson Ijósmyndari. Er meiri
vandi að leika hann en nokkuð ann-
að í þessu riti, og tekst herra B. Ó.
það furðu vel, þar sem hann mun
vera lítt vanur leikstörfum; hann
leikur sumstaðar mjög vel,en hvergi
illa, einungis þótti mér málrómur-
inn heldur tilbreytingalftill, 'en slíkt
getur verið undir áliti komið.
Hinn stúdentinn, sem er ekkeit
annað en dans og hlátur frá hvirfli
til ilja, leikur herra Valdemar Mag-
nússon; hann leikur prýðis vel; sami
gleðiblærinn hvernig sam veltist, en
þó breytíngar í málróm, augnaráði
og limaburði einkar náttúrlegar.
Hann er óefað efni í leikara.
Pétur, sem er strokuþjófur, leikur
herra B. Ó. Björnsson; hlutverk hans
er svo stutt að nálega er ómögulegt
að sýna í því nokkra leikaraíþrótt,
en honum fórst það fremur vel.
Þá er Vermundur; hann er maður
sem á hvorki sál né hjarta, kaldnr
eins og ís og harður eins og steinn.
Hann er samvizkulaust þrælmenni,
sem svffst einskis, en töluvert fynd-
inn í orðum. Herra Albert Jónsson
kaupmaður leikur hann og gerir það
vel, Hann nær því svo fullkomlega
að tala án tilflnninga eins og hann á
að gera, að manni finst sem kalt
vatn renni sér á milli skins og hör-
unds stundum, svo eru orð hans ó-
hlý.
Loksins er aðalpersónan eftir; það
er strokuþjófur, sem Hans heitir —
kallaður Skrifta-Hans. Hann heflr
leiðst út i það að verða óærlegur
maður af vandræðum og illum fé-
lagsskap, vill verða góður og ráð*
vandur maður aftur, en vantar bæði
fé og rini og verður því afturhvarf-
ið erfitt. Herra Jón Blöndal Ijós-
myndari leikur Hans og mundi
vandleitað að manni, er gerði það
jafnvel. Einkum tekst honum að-
dáunarlega vel að skifta um mál-
róm og setja sig í viðeigandi stelling
ar þegar eitthvað óvnæt kemur fyr-
ir. Áhrifamest I þessum leik er
næst sfðasta atriðið, þar sem þeir
leika saman Ejbæk og Hans. Hans
heflr verið alinn upp f fátækt og van
þekkingu við hörku og miskunar-
leysi; framkoma mannanna gagn-
vart honum heflr skapað þá hugsun
í hjarta hans að þeir væru allir vond
ir; hann hafði aldrei mætt neinu
hlýju, aldrei litið brosandi vinar-
auga, a'drei fundið líknandi og
styðjandi bróðurhönd, aldrei heyrt
laðandi og leiðandi kærleiksorð;hann
hafði séð djöfulinn í öllum mönnum,
hann þekti ekki guð; hann hafðl
verið ölnbogabarn náttúrunnar; fyrir
þessa sök hafði hann orðið vondur
maður og haldið áfram að vera það.
Hann er lifandi dæmi upp á meðferð
á glæpamönnum, sem Heimskringla
talaði um nýlega. Svo finnur hann
loksins eina góða sál—það er Ej-
bæk. Hann verður alveg hissa; hann
grætur, hann iðrast. “Að eins ein-
um manni hefir þótt vænt um mig“,
segir hann grátandi, “og hann kendi
mér að stela“. Herra Blöndal sagði
þetta svo vel að mér fanst að áheyr-
endurnir hlytu að gráta með honum,
að minsta Kosti í huga sér — en ég
heyrði þáhlæja.—Búningarnir voru
yttr höfuð góðir, sumir fyrirtak. þó
hefði skeggið á Vermundi getað ver-
ið betra. Leikljöldin eru ný búin
til af herra Fred. Swanson og sann-
kallað snildarverk- himinn, sjór og
og skógar, svo náttúrlega gert, að
maður gleymir að það sé málverk,
—Það eina sem að leiknum mætti
finna er það að söngurinn fór ekki
vel, en það er að nokkru afsakandi,
því hýsið er óhentugt fyrir söng.
Eg hefi hvorki tíma né tækifæri
til þess að skrifa rækilega nm leik-
félagið, en þess verð ég að geta, að
það hefir starfað ótrúlega mikið á
jafn stuttum tfma. Eru nú í því
flestir beztu leikendur, sem hér er
völ á og það á skuldlaust ágæt tjöld
og annan útbúnað; má treysta því
að það verði íslendingum bæði til
gagns og gamans, og eigi fyrir
höndum langt líf og stórt hlutverk
að vinra, þar sem aðalverksvið þess
er að hjálpa þeim sem erflðar kríng-
umstæður hafa. Engin fslenzkGood-
templarastúka hefir nokkru sinni
haft eins myndarlegt leikfélag og
stúkan Skuld heflr nú. Þess má
geta að á milli atriða fór fram sam-
spil og var að því hin bezta skenit-
un.
Sig. JCl. Jóhannksson.