Heimskringla - 15.08.1901, Blaðsíða 4

Heimskringla - 15.08.1901, Blaðsíða 4
HEIMSKRINGLA 15 . AGÚST 1901 Winnipe^. Forstöðumenn Winnipeg-sýningar- innar eru vel ánægðir með aröinn af sýningunni í ár. Nær 60.000 utanbæj- armenn komu ásýninguna; einn daginn var mannfjöldinn þar 24,000 og annan dag 22,000 auk allra þeirra, sem höfðu frían aðgang. Inntektir af sýningu nni er sagt að hafi veriö rúin $27,000, og er það nokkuð betra en í fyrra, Einn af austanmönnum þeim sem komu hingað um helgina til að vinna að uppskeru hér í fylkinu gerði tilraun til sjálfsmorðs. Hannler sa;;ður geðveikur og verðnr sendur austur aftur. Allir sem brúka BOBS, PAY ROLL og CURRENCY tóbakstegundirnar, ættu að halda saman þeim Snoe Shoe tags sem eru á tóbaksplötunum. Fé- l&ginu or annt um að menn fái að njóta þessara góðu vei ðlauna sem það gefur fyrir þessi Snoe Shoe tags. Thorkelsson, Grocer á 539 Ross Ave. hefir fengið Telephone No. 1439 í búð tina. Þettá eru viðskiptamenn hans beðnir að muna. Horra Jón E. Eldon hefir verið hættulega veikur um s.l. 2 vikur, svo að stundum hefir verið tvísýnt um líf hans. En nú er hann kominn svo til bata að læknarteljahann úr allrihættu. Ávarp til bænda . í Áltavatns- og Gruncavatnsnýlendu, kemur í næsta blaði. ___________________ Maður að nafui Fisher 60 ára gam- all var á reiðhjóli að fara yfir C. N.-br. hór hjá bæuumálaugardigskvöld ið var maðurinn er heyrnarlausog heyrði ekki aðvörun vagnlesta rinnar sem blós lengi áðuren hún kom að honum. Lestin rakst á manninn og kastaði honum um 30 fet framundan sér, þar féll hann nið- ur milli banda á sporveginum og ö 11 vagnlestin rann yfir hann. Þegar manniuum var lyft upp þá kom það í ljós að hann var að mestu ómeiddur og læknar segja hann yerði jafngóður eftir fáa daga. Það þykir undrum sæta að maður þessi misti ekki lífið við þetta tilfelli. _______________ Um 10,000 menn hafa þegar komið hingað vestur frá austuríylkjunum til að vinna að uppskeru. Talið víst að nægilég mannhjálp muni fást að austan svo að 20,000 manna verði komnir hing- að vestur innan fárra daga. Sunnudaginn kemur 18. þ. m. verð- ur messað í Unitara kirkjunni á venju legum tíma (kl. 7 að kveldinu.) Allir eru beðnir og velkomnir. Safnaðar fundur verður haldin á eftir guðsþjón- ustunni._________________ Um 40,000 manna hafa flutt inn í Manitoba og Norðvesturlandið á érinu frá 30. Júní 1900 til jafnlengdar 1901. Af þeim voru um 14,000 frá Bandaríkj- unum. Hra. Jóhannes Helgason, héðan úr bænum, kom heim úr ferð um Ný-ís- land nú fyrir helgina. Hann fór’skemti förumNýja ísland. Hann segir að vegir þar séu ekki mjög blautir um- ferðar, má vel keyra um þá alla, en svo er mikil .bleyta í ísafoldarbyg ðinn að sumir bændur eru fluttir úr henni, og tvísýni á að þeir geti sezt á jarðir sínar aftur þetta sumar.—Heilsufar al- ment gctt, og heyskapur gengur vel.— Landmælingamenn stjórnarinnar eru að hamast við landmælingar á sviðinu vestan við Geysirbygð ina. Þann 30. Júlí var stórflóð mikið í Winnnipeg vatni. Flæddi Hnausa- kryggjan í kaf, en það rénaðí fljótt aftur. Éftirfyjgjandi, voru sett inn í em- bætti í stúkunni ,,Skuld” á miðviku- dagskv. 7. þ. m. af stórritara Guðrúnu Jóhannsdóttur: Æ. T. Sig Júl. Jóhannesson; V. T. Salóme Danielsdóttir; G. U. T. Kristján Kristjánsson; K. Halldóra Fjeldsteð; F. R. Gunnl. Sölfason; G. Helgi Jónsson; R. F, Swanson; A. R. Guðjón hjaltalín; D. Olga Olgeirson; A. D. Kristiana Kriscjánsdóttir; V. Gunnl. Jóhannsson; Ú. V. Magnús Jónsson. Meðlima tala stúkunnar fer stöðugt vaxandi, og fjárhagur í góðulagi. Sjúk- rasjóð hefir stúkannú talsverðann. Þreskjarar og uppskeruvinnendur eru menn sem brúka mikið af munn- tóbaki, munu finna BOBS, PAYROLL og CURRENCY tóbakstegundirnar þær hollustu sem hægt er að fá, holl- ari mikluenhinar eldri tóbakstegund- ir, af því að ekkert nema hreinustu efni eru notuð í þær. Menn geta tuggið eins mikið og þeir yilja af þeim án þess það saki þá að nokkru leyti, og svo fá menn verðmæta muni fyrlr Snoe Shoe plöturnar ef menn halda þeím saman. Á sunnudaginn kemur messar 'séra Bjarni Þórarinsson á Point Douglas kl. 1. e. h., en kl. 7 að kveldinu í Tjaldbúð- ar kyrkju.__________________ Hinn3. þ. m. gaf séraBjarni Þór- arinsson saman í hjónaband hr. Svein Björnsson og ..Mrs. Guðnýju Einars- dóttir frá Selkirk, og á máuudaginn yar, hinn 12. þ. m. gaf sami prestur saman Mr. Vilhjálm Olgeirsson og Miss Jóhönnu Gisladóttur, Hamingjuósk Hkr. fylgir þessum nýju hjónum. Herra Eyjólfur Eyjólfsson hefir flutt frá nr. 285 McDermot Ave. til 550 Sargent Ave. Jafnaðarmannafélag Islcndinga i Winnipeg heldur fund á Unity Hall, horninu á Nena og McWilliam, mánu- dagskveldið þann 19. þ. m. Allir með- limir beðnir að mæta. Laugardaginn hinn 10. þ. m. and- aðist hór í bænum (Fort Rouge) ógift stúlka, Rósamunda Guðmundsdóttir, eyfirzk að ætt. Banamein hennar var lungnatæring. Hafði hún legið mjög lengi, aftur og aftnr og nú síðast á þriðja mánuð. Hið alkunna líknarfé- lag jhér i bæ, kvenfélagið fslenzka “Gleym mér ei' , annaðist hana alla hennar löngu banalegu, kostaði útför hennar og fylgdi henni til grafar. Hún var jarðsungin á mánudaginn var af séra Bjarna Þórarinssyni. Herra Halldór Austmann, frá ís- lendingafljóti kom til bæjarins á fimtu- daginn var, ásamt með konu sinni og börnum- Hann er á leíð til Miunesota f kynnisför til foreldra hans þar. Hann býst við að dvelja að eins skamma stund syðra. Hra Austmann segir flóð óvanalega mikil i norðurhluta Nýja Is- lands—ísafoldarbygðin f kafi; bændur sem búa á löndum fyrir neðan bæjar- stæðið á Lundi, hafa flestir orðið að yfirgefa hús sin um tíma. Hra Aust- mann telur víst að ef það sem eftir er af sumrinu verði votviðrasamt, þá verði bændur þar í vandræðum með heyskap handa gripam sfnum. Mr. Kristjón Finsson hefir flutt sögunar- mylnu sína suður að Árnesi og er tek- inn til að saga þar við fyrir bændur. Frá 400 - 500 timburmenn hér í bæn um gerðu verkfall á mánudn ginn var. Þeir heimtatalsverða kauphækkun frá því sem verið hefir, vilja hafa minst 40 cents um tfmann og þaðan af hærra, alt að 80c. um timaun fyrir nætur- vinnu. Rat Portage Lumber Go. Ltd. Teleplione 1372. Yér getum selt yður með mjög lágu verði 4. ffokks ceiling 1x4 Glatlstone & Higgin St. Jno. M. (Tiisliolm. Manager. ffyrrv. Manager fyr Dick, Banning & Co.] í þessu blaði stendur auglýsing verk- manna um skrúðgöngu þeirra og skemtanir, sem fram eiga að fara Jí Winnipeg 2. Sept, næstkomandi. Vér biðjum lesendur að tak< eftir þessu. Loyal Geysir Lodge 71191.U.O.F., M.U., heldur fund á North West Hall mánu- dagskvöldið þann 19. þ. m. Hálfsárs skýrsla stúkunnar og ýms árfðandi málefni verða rædd á fundinum. Allír Oddfellows ættu að sækja fundinn. Árni Eggertson. p.S. mánudag 2. Sept 1901 Verkamannafélögin ætla að halda stórkostlega minn- ingarhátíð í RIVER PARK- Prócessía verður látin fara fram á götum borgarinnar að morgninum klukkan 10, Base bolta- kappleikur milli Union-manna og St. Boniface-manna fer fram kl. 4 sama dag. Einnig aílraun á kaðli (TUG-OF-WAR)- Leikir fyrir félagsmenn og börn fara, fram á staðnum. Aðgangur 25c* Börn inn- an 12 ára I0c. ,Hra Halldór Jónssan, sem fór heim til íslands f sumar, og getið var um í blaðinu um daginn, fór alfarinn ofan til Selkirk i gær. Hann byrjar að verzla þar með allslags brauðtegundir og aldini m. fl.—Hkr. óskar honum til hamlngju. Thorkelsson, Grocers að 539 Ross Ave. hefir til sölu f búð sinni til 20. þ. m. þessar vörur. ásamt’ýmsu fleiru: 9J pund af bezta I: affi......$1.00 17J ,, röspuðum sykri..........$1.00 15 ,, molasykri...............$1.00 7 punda fötur bezta Jelly.......60c. 2 laxkönnur.....................25c. 12 bollapör.....................90q. 12 diskar........................90c. 25 stykki Royal Croun sápu.....$1.00 Tepottar könnur og skálar með miklum afslætti. Hangikjöt hv. pund............lOc. Besta Ham lOc. pundið, annarstaðr 13c. 4 pakkaraf stifelsi 25c. vanaverð er lOc. hver pakki. Eggs 15c. dúsínið, og eggs 12Jc. Vanilla og Lemon glös 12ic. annarsta'ar 25. Strawberry og Gooseberry könnur 15c. annarstaðar kostaþær 25c. Stove- sverta í 15 centa glösum, koslar hér að- eins 25c. fyrir hver 3 glös meðan hún end:st. Sætabrauð af beztu tegund 2 pund fyrir 25c. Kúrínur lOc. pundið. Rúsfnur No. 1. lOc. og No. 2. 44 pund fyrir 25 cents, Tomatos 25c, Hákarl ekki fáanlegur i búðinni. En gnægð af bezta neftóbaki ætíð á reiðum höndum með afar lágu verði. Þessi sala stend- ur yfir til 15. þ. m. með þvf verði, sem að framan er sagt, mót peningum út í hönd. Allir kaupendur fá ískalda svala- drykki eins og hver getur þambað með- salan stendur yfir, fyrfr als ekkert. — ,,Býður nokkur betur?” Komið sem fyrst, kaupið sem mest borgið reiðilega, og drekkið lyst yðar bjá Thorkelsson, 539 Ross Avenue. Telcphone 1439. HAPIÐ ÞÉR nýlega fengið yður einn disk af ísrjóma frá Boyd? Ef ekki, þá er nú hentugur tfmi til að næra sig á honum. fsrjóminn hans er að öllu leyti ómengaður, holl- ur og nærandi, gerður úr hrein- asta efni og keimurinn eftir hvers eins smekk. Svo eru brauðin þau heztu í þessu landi send heim á hvers manns heimili daglega. ís- lendingur keyrir þau til við- skiftamanna, sömuleiðis als- kyns sætabrauð og kökur, alt með sanngjörnu verði. Gleymið ekki að ísrjóma- stofurnar eru upp yfir búðinni. XV. J. BOYU. 370 og 579 Main Str. mm**m*mm**mm*mmm*mmm$mm*** 9 9 9 * m m DREWRY’S nafnfræga hreinsaða öl # # # # # # # # # # # | EDWARD L- DREWRY- . * Manntactiirer & tmpoiTer, WUOilPIíCI. jí ########################## “í'reyðir eins og kampavín.” Þett er óáfengur og svalandi sælgætis- drykkur og einnig hið velþekta Canadiska Piisener Lager-öl. Ágætlega smekkgott og sáínandi i bikarnum Aáóir þ“os'r drykkir er seldir í pelaflöskum og sérstaklega ætl- aðir til neyzlu i heimahúsum. — 3 dúsin flöskur fyrir $2.00. Fæst hjá öllum vín eða ölsölum eða með því að panta það beint frá REDWOOD BREWERY. S # s # # #####################mmmm 9 # i i # # i i # # t # # # 3j #################### mmmmm Areiðanlega það bezta er Ogilvie’s Mjel. Sjáið til þess að þér fáið OGILVIE’S. # # # s s # # Tilkynning til væntanlegra skilvindu- kaupenda. Vestfold, Man. 5. Júlí 1901. Mr. Wm. Scott. Kæri herra:— Rjómaskilvindan sem ég keypti frá yður á síðastl. vori „T'lic t iliíed Statea" hefir reynst ágætlega. hún rennur létt og skilur mjólkina vel. Eg vildi ráðleggja hverjum þeim sem ætlar að fá sér rjómaskilvindu, sérstaklega ef hann þarf stóra vél, að kaapa „The United States“ ogenga aðra. Sigukður Eyjólfsson. Winnipet Creamery & Proince Co. LIMITED. y S, M. Barrc, - - raiNmailnr. Bœndur! Sendið rjómann yðar á elsta. stærsta og beztstjórnaða smjörgerðarhúsið í Mani- toba. Starfsaukning 400% á 4 árnm. Vér ábyrgjumst að gera viðskífta- menn ánægða. Fullar upplýsingar fást með því að ritta til 240 KING ST. WINNIPÉG. Ódýrust fðt eftir máli selur m— S. SWANSON, Tailor. 512 Harylaml St. WINNIPEG. foodMie Restaarant Stærsta Billiard Hall í Norð vestrlandinu. Fjögur “Pool”-borð og tvö “Billiard”- borð. Allskonar vin og vindlar. JLennon & Hebb, Eigendur. Nýtt aktygja- og skó- verkstæði að Mary HillP. O. Man. Hér með tilkynni ég við- skiptavinum í Áltavatns- og Grunnavatnsnýlendu, að frá 10. Ágúst verður mig að finna daglega í verkstofu minni að Mary Hill þar sem ég sel ný aktygi og skótau af öllum sortum. Einnig geri ég við aktygi og skó, og tekur gömul aktygi í skiptum fyrir ný, ef menn óska þess. Eg lána áreiðan- legum mönnum vörur mínar um stuttan tíma eftir samn- ingi. Eg þakka mönnum fyrir liðin viðskipti og óska eftir áframhaldandi verzlun þeirra. Staddar í Winnipeg 25. Júlí 1901. íi. C. Reikard. T- 266 Lögregluspæjarinn. þetta bréf og skipaði méV að skila því tafar- laust”. “Hvenær yfirgaf hún þig ?” “þriðjungi stundar fyrir klukkan þrjú”. “Hvar var það hér um bjl á Elyisisvöllunum sem hún skipaði þér að staðnæmasí ?’ “Nokkrum föðmum áður en við komurn að bogadregna horninu”. “Hveri fór hún svo?” “Eg veit það ekki nákvæmlega. Það eru svo margar götur sem b'ggja út þaðan í allar áttir. Það var þó vfst að hún hélt i norður, eitthvað í áttina til Tanborgargötu”. “Flýtti hún sér?” “Þetta líka hitt! Hún átti að eins að borga mér þrjá franka, og beið ekki eftir að ég skifti tuttugu franka peningnum. Ég veit annars ekkert hvernig það fer. Það skyldi þó ekki vera falsaður peningur !” Hann þrífur skyndi- lega ofan í vasa sinn, tekur upp peninginn, sem hann hafði fengið hjá Loaisu, og skoðar hann og reynlr sem bezt hann má, “Stígðu upp í kerruna og aktu aftur þang- að sem þú skildir við stúlkuna. Gerðu það fljótt og segðu engum lifandi manni eitt ein" asta orð um þetta, eða þú skalt elga mig á fæti. Heyrurðu það ?” Ökumaðurinn gerir eins og fyrir hann var lagt. Þeir eru komnir þangað sem Louisa skildi við hann eftir að augnablik líður, De Verney ög Microbe leita á öllum götum er í norður liggja, en finna ekki Louisn og eng- aa er séð hafi stúlku líka þeirri er þeir Spyrja Lögregluspæýarinn. 271 sitja um líf yðar. Þér hafið glæpamennina í yð- ar höndum; þér vitið hvað þeir ætluðu að gera; haldið þeim í ævilöngu varðhaldi, en farið að ráðnm mínum og látið ekki rannsaka málið op- iaberlega.! “Ég býst við að þér hafið rértt að mæla”, sv&rar keisarinn. Eftir augnabliks umhugsun haldur hann áfram: “Ég áengin orð til íeigu minni til þess að lýsa þakklæti rnínu fyrir þetta, herra de Ver- ney!” Svo gengur hann í burtu, tekur í hend- Ina á de Veraey og segir: “Góða nótt, kæri vin; þér skulið hljóta öll þau virðingarteikn, er ég get veitt á morgm þegar þér færið mór ill- menni þau er ætluðu að ráða son minn elskuleg- an af dögum; ég meina hana Louisu, sem hann treysti eg elskaði”. I De Verney hneigir sig fyrir keisaranum, en titlana og krossana íékk hann a’.drei, því hversu mikið sem þeir leggja sig fram að leita he^a Claude, Microbe, Regnier og Jolly, þá ffcna þeir aldrei blómsölumeyna fögru, Hennar hefir alck'ei orðið vart ( Paris síðan. 14. KAPÍTULI. Þremur vikum eftir þetta er það eitt sinn að Claude kemur inn til da Verneys á Haitville- götu, fleygir bréfverju á borðið og segir bros- andl: ‘‘Skfpun tilþín að fara til Afiíku”. “Að farahvert?” 270 Lögregluspæjarinn. eyðiieggja mannkynið með ranglátrí syndsair- legri, ógeðslegri stjórn!” De Verney gengur í burtu steinbissa; hon- um steudur ógn af æðisloga þeim er brennur í augum Hermanns. Það er vel skiijanlegt ,að de Verney gat tæpast gert sér grein fyrir hvað alt þetta átti áð þýða, þvi sá fiokkur manna var þá ekkí Kunnur í Evrópu, er telur sér svo vanstjórn að, að manndráp sé eina lækningin, eina skyn- samlega ráðið. Þó hefir nokkrum sinnum bor- ið á þeim á Rússlandi; þar hafa keisarar verið ofsóttir og jafnvel ráðnir af dögum fyrir tilstilli þessara manna De Verney veit tæpast hvaða ráð hann skal taka. Þó verður það ofan á að hann fer á fund keisara og segir honum upp alla söguna og af- sakar vanrækslu sína þar sem Louisa sé að lik- inkum sloppiri úr greipum þeirra. Keisaranum verður gersamlega orðfall við þessa fregn. Hann dregur þungt andann og segir. “Ðrengnum er víst alveg ókunnugt um þá hættu sem hann var í ?” “Hann veit ekkert um það enn þá, yðar há- tign. Óg ef ég má vera svo djarfur að gefa yð- ur ráð, þálátið hann aldrei fá vitneskju um það”. De Verney segir nú frá samtali þvi, erhamu hafði átt við Hermann og kveðst hann mest ott- ast að þótt kornið verði í veg fyrir þetta nú, þá verði eitthvað annað fundið upp ekki befcra eða hættuminna. Ef þér látið halda opinbera rann- sókn i málinu, þá megið þér trúa mér til þess að íélagar<tieirra heima á Þýzkalnndi rísa upp og Lögregluspæjarinn, 267 eftir. Þetta er reyndar ekki annað en vænta mátti, því þessar götur eru alþaktar fólki og ekki við því að búast að einni óþektri persóou sé sérstaklega gaumur gefinn. De Verney heldur áfram leitinni fram til náttmála; er hann þá orðinn staðuppgefinn, hryggur og reiður. Hann sneri aftur til Haut- villegötu. Hann þykist samt enn vera sann. færður um að Louisa hljóti að vera i Faris og sendLr Microbe til herra Olaude til þess aðfá, all- ar þær upplýsing^r, er hann kunni að geta veit. Það var ekki alls kostar ólíklogt að hann hefði orðið einhvers áskyU|a á járnbrautarstt»vun- um. í kring um klukkan níu kemur hann inn til de Verney og segir með hæðDÍsglotti: “Þú hefir látið hana sleppa í Regn um greipar þér, lags». maður”. “Nei”, svarar de Verney; “ef þið hafið gætt nógu vel járnbrautarstöðvanna, þá er hún ekki sloppin. Hann segir nú herra Claude upp alla söguna. “Ó, Louisa lítla er í Paris enn þé!” ægrr hann hlægjandi, “eg efast ekki um þad. Bu þú hefir ekki verið nógti kænn, herra de Veroey. Þú áttir að hafa augun alstaðar, gæta vel að Vignisgötu, Marborggötu og fylgja Louisu eftir hvtrt sem hún fór. Þú hefir verfl slakur; þú hefir svikið sjálfau þig; þér hefir misheppnast þessi þáttui i leikuum og það var illa ínrið”. Hann fer því næst út og skilur de Verney eftfr hálfreiðann, bæði við sjélfan sig og hann. Claude gerir nú alt sem brogt er til þess að he/ja ná-

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.