Heimskringla - 13.03.1902, Side 1
J r A TTTJTr> ^ J
J Heimskring/u. J
| BORGIÐ^-^^ J
J Heimskringlu. J
XVI. ÁR
WINNIPEG, MANITOBA 13. MARZ 1902.
Nr. 22.
Frjettir.
Markverðustu víðburðir
hvaðanæfa.
Þeir Wamarans og Wessels
sendjmenn Búanna til Bandaríkja
forsetans, áttu samtal við ríkisskrif
ara Hay, og sfðan við Roosevelt
forseta á miðvikudaginn var. Þeir
óskuðu eftir að Bandarfkjastjómin
skærist að einhverju leytí í leikinn
að miðla málum á milli Breta og
Búa. En f>eir Roosevelt og Hey
kváðust hvorki vilja gera pað né
geta f>að. Sendimennirnir óskuðu
f>á eftir að Bandarfkjamenn seldu
Englendingum ekki hesta tii her-
]>jónustu í Suður-Afríku, eins og
peir hafa gert að undanförnu, en
Mr. Hay kvað stjórnina ekki geta
haft á móti f>ví að bændur seldu
vöru sína hæstbjóðanda, hvar í
heimi sem hann væri.
Prendergast dómari í St. Bo-
niface hefir verið skipaður háyfir-
dómarf í Norðvesturlandinu af sam
bandsstjóminni.
ítalfa er aðalheimsból Sósíal-
ista um mörg undanfarin ár. Menn
hafa vitað að þeir hafa verið sí-
starfandi að stefnu sinni og mál-
efnum, en það hafa menn ekki vit-
að fyrri en nú, að þeir hafa verið
að auka og efla samsæri til að
steypa stjómiuni úr völdum. Nú
rétt nýlega munaði ekki hársbreidd
að innbyrðis borgarastríð yrði j>ar.
Sósfalistar voru búnir að i>úa sig
ágætlega undir. Félagslimir peirra
eru yfir 1,000,0(K) af öllum stéttum
í landinu, og deiklir í hverjum ein-
asta bæ, smáum og stórum. Aðal-
framkvæmdarvaldið hefir aðseturs-
stað í Róinalxirg og stjórna félög-
nnum með ríkisstj. fyrirkomulagi
og reglum. Það hafði um miljón
til að grípa til vopna og gera upp-
hlaup, hve hær sem það skipaði,
og þóttist vera nógu öflugt til að
taka á sitt vald allan iðnað, verzlun
sg akuryrkju innan 24. kl. tima, í
öllu rfkinu. Föstud. 25. m. átti
aðal framkvæmdarvaldið að gefa
merki um að gera verkfall á öllum
járnbrautum á Italíu, en sú mis-
tök var á pessari fyrirætlun, að
signor Morjani, hfifðingi Sósfalista
í Turiin lét menn sfna byrja verk-
fa.ll nokkrum dögum of snemríla.og
varðtþað til að opna augun á stjórn
inni, og tók hún strax í taumana
með herliði. Turein var samt í
höndum uppreistarskrflsins nær
]>ví í tvo sólarhringa og gerði stór-
skemdir. Vfða annarsstaðar liefir
verið óeirðasamt, og enn ]>á lítur ó-
friðlega út, en stjómin hyggur að
hún muni vera búin að taka svo í
taumana, að upphlauplýðurinn
komi engu bolmagni við og óeirð-
ir fari minkandiog spektir og frið-
ur komist á aftur.
Vinir Sir Lauriers segja að hann
verði heiðraður með baróns nafn-
bót á krýningarhátið Edwards VII.
Titill hans verði: Baron Artha-
kask.
Þýzkalands-prinsiön kom til
Niagara Falls á miðvikudaginn
var. Mætti Minto landstjóri í Ca-
nada honum þar ásamt fleiram, og
dvaldi prinsinn ]>ar dálitla stund
Canadamegin við landamærin.
Hon. Joseph Chamberlain
hefir beðið stjórnina í Canaila að
útvega 40 góða alÞýðukennara til
að kenna um 1 ár í Suður-Afríku.
Launin eru £100 og frí ferð fram
og til baka.
Sú fregn kemur nú, að norður-
skautsfarinn André og félagar
hans hafi verið brepnir af Eski-'
móflokki. Þessi fregn gaus upp
fyrir 3 árum, og lögðu Jmenn þá lít-
inn trúnað á hana. en nú eiga
menn, sem vinna fyrir Hudson
Bay félagið á nyrstn stöðvum ]>ess
f Amerfku, að hafa látið rannsaka
pessa drápssögu, samkvæmt beiðni
sænska konsúlsins á Englandi, og
þykja fullmiklar líkur til, að petta
sé satt.
Reikningur Dominionstjóm-
arinnar um kostnaðinn við viðtök-
urnar, sem hertoginn af Comwall
og York fekk í Canada á sfðastl.
sumri, eru útkonmir og sýna, að
kostnaður ríkisstjórnarinnar í þessu
sambandi hefir orðið $478,000, —
sem næst hálfri millíón dollara.
Auk þess kostaði hver fylkisstjóm
talsverðu fé íj sama augnamiði og
svo'hver bæjarstjórn f þeim bæjum
sem hertoginn lagði Jeið sfna um.
Ontario-pingið hefir sampykt
að láta ganga til atkvæða um vfn-
bannsmálið ]>ar í fylkinu í næstk.
Nóvembermánuði.
Brezka stjórnin hefir hækkað
kaup hermanna sinna. sem sendir
eru til Suður-Afrfku, f þvf skyni að
gera f>á fúsari til að gefa sig fram
til herpjónustu. En þetta hefir
haft svo lítii áhrif, að stjórnin læt-
ur f>ess nú getið að hún muni verða
að nauðga herfærum mönnum f
stríðið, eins og gert var í gamla
daga. Enn fremur hefir hún kom-
ist að þeirri niðurstöðu, að til þess
að hafa ætfð nægilegt varnarlið
fyrir höndum, J>á sé nauðsynlegt
að Canada leggi til 4 herdeildir, er
ætíð séu við þvf búnar að láta reka
sig út i opin dauðann. Að Astra-
lfa leggi til 2 deildir og Bretar
sjálfir 6 deildir. Alt sem um Búa-
strfðið er talað f brezka þinginu,
virðist bera f>ess vott, að stjómin
sé orðin í mannhraki til að halda
uppi hernaðjnum í Suður-Afrfku.
tívo mikil eftirsókn er nú eftir
sætum með fram veginum þar sem
skrúðganga konungshirðarinnar fer
um í Lundúnum. fegarhann verð-
ur krýndur f>ann 27. Júnf næstk..
að $350 hafi þegar verið boðnir fyr-
ir hvert sæti f gluggum með fram
veginum, og til ]>ess að sjá her-
skipa æfingarnar, sem eiga að fara
fram í sundinu milli Eríglands og
Irlands. Þá hafa þegar verið boð-
in £18 eða, um $90, fyrir hvert rúm
í f>eim gufuskipum, sem verða við
stötld þessa athöfn. Það er talið
vfst að eftir f>vf sem nær lfður hin-
um mikla degi, eftir því verði
hærri boð gerð f sæti frám með
götum þeim sem skrúðgangan fer
um.
Þýzk blöð eru nú farin að flytja
myndir af Búastríðinu og sýna Þau
útför þar sem verið er að grafa
Englands mikla makt og veldi og
Kruger gamli stendur yfir moldum
]>ess. Önnur mynd sýnir árið 1950
og ]>á eru Bretar ekki búnir að
vinna stríðið, en Búar bjóða þeim
byrginn og virðast ]>á vera orðnir
mannfleiri en Bretar.
Bú*ir hafa unnið stórfeldan
sigur á Bretum ]>ann 8. f>. in.
Methuen herforingi var á ferð með
900 riddaraliðs og 3—400 fótgöngu
liðs með 5 fallbyssur, frá Wynd-
burg til Leichtenburg, og féll f
hendur Búa. Methuen var sierður.
3 brezkir liðsforingjar og 38 liðs-
menn féllu' og 5 liðsforingjar og
75 menn særðir og auk þess týndu
Rretar yfir 200 manna í ]>essum
slag, en 500 komust undan á flótta.
Þetta er talið stórt óhapp fyrir
Breta og bendir á að Búar séu enn
]>á miklu liðfleiri en meun hafa
gert sér nokkra hugmynd nm. Búar
náðu öllum fallbyssunufn og öllum
farangri Breta og tóku Methuen
herforjngja tilfanga.
íslands-fréttir.
Eftir Fjallkonunni.
Beykjavík, 30. Des. 1501.
Dáinn hér í bænum nýlega Bjarni
Eliasson skipstjóri.
Færeyjakolin. Lítið heyrist um
þau nú, nema að kolalögin séu að
THE NEW YORK LIFE
1. Fyrir 10 árum voru árlegar inntektir félagsins yfir $30 millionir.
10 árum siðar, eða 1901, voru árlegar inntektir orðnar $70 mill.
2. Fyrir 10 árum voru gildandi lífsábyrgðir $575 millionir. Við
síðustu áramót voru þær orðnar $1,360 mil.
3. Fyrir 10 árum voru allar eignir félagsins metnar $125 millionir.
Við siðustu áramót voru þær orðnar yfir $290 millionir.
4. Fyrir lOárum borgaði félagið skírteinahöfum, árlegayfir$llj mill.
Á siðasta ári borgaði og lánaði það til skírteinahafa $34J million.
Við síðustu áramót var New York Life félagið starfandi í hverju
stjórnbundna ríki i heiminum, og hafði stærra starfsvið í flestum
rikjum, heldur en nokkur önnur samkynja félög, útlend eða þarlend.
Öll ábyrgðarskirteini þessa félags eru ómótmælanleg strax frá út-
gáfudegi þeirra.
J. €1, JHorgan, raðsmabcr,
Grain Exchange, Wiunipeg.
Chr. OlafsMon,
islenzkur agent.
jafnaði 3 álnir á þykt og er sagt að
þau séu góð. Framkvæmdar fjár-
stofn þess er námugröftinn rekur er
sagður um 7 milj. kr. að upphæð.
Árnessýslu (neðanv.) 30. Des.:
Þetta 6r, sem nú er að enda, má að
mörgu leyti telja meðal beztu ára
hér um sveitir....
Dánir eru í þ. m. Helgi Jónsson
bóndi 6 Ósabakka á Skeiðum, tæp-
lega miðaldra, og Þorkell Ögmnnds-
son bóndi í Oddgershólum, 63 ára
bjó mörg ár í Kióki í Hraungerðar
hreppi, góður bóndi.
Ofsastorm af útsuðri gerði sunnan
lands á þiettándanum og urðu tals-
verðar skemdir af.—Hér í bænum
fauk hús, sem var nýbygt, á Lauga-
vegi, það var tvíloftað, og fauk fyrst
efri hlutinn norður fyrir veginn og
síðan neðri hlutinn, og hrundi þar
með nokkuð af grunninum. Skemd
ir urðu og 6 nokkrum húsum, glugg
ar brotnuðu, o, s. frv.—Fiskiskip rak
upp í Hafnarfirði, “Morning Star ‘,
eign Ág. Flygenring, og skemdist.
Austanfjalls urðu talsverðar ske . d-
ir á húsum og fiskibátar fuku.
Síld var í afar-háu verði erlendis
er síðast fréttist, yfir 30 kr. tunnan.
Maður hengdi sig á Akureyri að
faranótt 26. f. m.,tJóu Sigurðsson af
Eskiflrði, kvæntur maður, barnlaus;
hafði drukkið eitt glas af vini áður
en bann fór að hátta og kvað það
skyldu vera síðasta glasið sitt. Menn
halda að hann hafi ráðið sér bana af
fátækt.
Drukknun. 15. þ. m. fórst bátur
af Kjalarnesi með 2 mönnum. Þeir
voru á heimleið úr Reykjavíc, og
hét annar Jón, bóndi frá Austurvelli
á Kjalarnesi Jónsson (kallaður Klofa
Jón), en hinn Guðmundur Guð
brandsson, vinnumaður frá^Saurbæ
á Kjalarnesi.
24. Jan. Baróninn frá Hvítár-
völlum héfir skotið sig. Hann fanst
skotinn 6 Engiandi í fyrsta fólks
vagni sunnudagskveldið milli jóla
og nýárs.
12. Febr. Síðan veðrið spiltist
fyrir mánaðamótin hefir verið norð-
anrok og all-frosthátt. Frostið alti
að'13 stig á C.—Hafís hafði sést við
Strandir, bæði austanmegin og vest-
anmegin, að sögn, seintí Jan., þó
ekki mikill.
Eftir síðustu fréttum (með Laura)
er stangl af hafísjökum alt suður 6
Breiðafjörð.
Norsk blöð segja að ónefndur Is-
lendingur (F. B. Anderson?) hafl
haft bréfaskifti við Marconi um að
koma á þráðlausum ritskeytum milli
íslands, Færeyja og Hjaltlands ann-
ars vegar, og Grænlands og Canada
hins vegar. ./
Dáinn er hér í bænum 8. þ. m.
kand. fil. Vilhjálmur Jónsson (Borg-
flrðings) póstassistent (afgreiðslum.)
á pósthúsinu. Hann var rúmlega
þrítngur að aldri, fæddur 30. Ágúst
1870. Hann var efnisinaður og vel
að sér og fróður í hinum nýjari bók-
mentum Norðurlanda. Hafði hann
ritað ritgerðir bókmentalegs efnis í
erlend tímarit og blöð.
Honúm var lungnastúkdómur að
bana. Að honum er mannskaði.
Séra Jón Stefánsson á Halldórs-
stöðum í Bárðardal lézt4. f. m.
Úti varð eða drukknaði 8. Jan-
Halldór Stefánsson, frá Giljum á
Jðkuldal, ungur efnismaður, hafði
verið veikur um morguninn og var
á ferð.
Skagafirði, 24. Jan. Siðan um ný
ár hafa ýmist verið útsynningur eða
florðanhrlðar, og nú haglaust fyrir
allar skepnur. Frost um 20 stig á
C. síðuslu daga.
Húnavatnssýslu (austanv.) 1. febr.
Nú í 3 vikur hefir verið versta harð-
indatið, og víða orðið haglaust, en
skifti 'flm síðustu daga og gerði
hláku, svo nú er nær alautt
29. Jan. Alþingi kvatt saman.
Með opnu bréfl, dags. 10. Jan. þ. á.
heflr konungur kvatt alþingi saman
laugardaginn 26. Júlí þ. á., og á-
kveðið að það megi ekki standa
lengur en mánuð.
Mikil frost hafa verið hér að und-
anförnu, og talsverð frost síðan fyr
irjól. Síðustu dagana hefir frost
verið hæst alt að 15 stig C.
Fiskilaust við Faxaflóa, enda hafa
her verið stöðugar ógæftir síðan
nokkru fyrir jói.
Átta lfk eru rekin af botnvörpu-
skipinu (Nilssons), sem fórst í
Grindavík. 5 eru þá ófundin að
sögn.
Dáinn er Ásgrímur bóndi Sigurðs-
son á Gljúfri í Ölfusi ll.þ. m., 68
ára, góður bóndi í sinni röð.
4. Febr. Látinn í Kaupmanna-
höfn Sofus Högsbro, fyrv. tormaður
fólksþingsins, hniginn á efri aldur.
Stokkseyri 47. Jan. Síðan fyrir
jólaföstu var hér hæg norðanátt með
litlu frosti, og stóð sú veðrátta fram
yflr nýár. Allan þann tíma að kalla
voru hér stöðugar sjógæftir og ágæt-
ur fiskafli. Haustvertíð hefir því
verið hér góð. Meðalhlutur síðan
eftir réttir mun vera nálægt 700 kr.
Hæstur hlutur nálægt 1100.—Síðan
snemma I þ. m. heflr verið mjög um-
hleypingasamt. Mest frost 12-—13.
þ, m. 16—18 stig C-
Veðrið hefir verið mjög blitt nú í
nokkra daga, alt að 6—7 stiga hiti á
Celsius.
Árnessýslu, 24. Jan. Þorri heils-
ar með norðan kafaldsbyl og er ekki
“mjúkur á manninn". Undanfarna
daga hefir verið útsynningur, fyrst
með þíðu, en síðan með snjógangi og
stormi.
Bráðkvaddur varð aðfaranótt hins
1. f. m. Ögmundur bóndi Gíslason í
Laugarnesi; vaknaði í rúmi sínu við
óþolandi höfuðverk, og var látinn
eftir stutta stund. Hann var ungur
miður og efnilegur, nýgiftur og byrj-
aði búskap næstl. vor, greindur
vel, stiltur og vinsæll —hafði áð-
ur kent höfuðveikiskasta.
Eftir Þjóðviljanum.
Bessastöðum, 28. Jan. 1902.
Snjóflóð banaði 2 mönnum. 24.
Des. stðastl. (urðu tveir menn fyrir
snjóflóði i svo nefndu Holtsgili í
Mýrdal í Vestur-Skaptafellssýslu, og
hröpuðu til bana. Voru þeir vinnu
menn séra Gísla Kjartanssonar að
Felli í Mýrdal, og hétu Þorgeir Jóns-
son og Ásgr. Rúnólfsson, báðir ungir
menn, ókvæntir.
Sænski Nilson druknar. Enskt
botnvörpuskip, Anlaby að nafni,
strandaði í Grindavík fyrir skömmu
og brótnaði í spón.
Skipstjóri' á Anlaby var Nilscn
sænski, er olli manndauðanum i
Dýraflrði haustið 1899. Hann var
nýsloppinn úr betrunarhúsiuu eftir
að hafa tekið þar út hegninguna, og
réðst þegar, sem skipstjóri á Anlaby,
og lagði af stað frá Hull, í -fyrstu
veiðiferð sína á jóladagsmorguninn.
Enginn vafi getur á því leikið, að
skipshöfnin á Anlaby hefir öll
drukknað, enda voru tvö lík rekin i
Grindav ík, er síðast fréttist.
Svo er að sjá, sem þeir félagar hafi
verið að ólöglegum botnvörpuveið-
um, því að botnvarpan var í sjó, en
þá orðið of nærri landi, sakir þoku
eða myrkurs, og skipið steytt á steini
og liðast þar sundur, en skipverjar
ekki fengið borgið sér til lands sakir
brims.
Brottför Nilsons úr heimi þessum
heflr því orðið all-kynleg og svaða-
leg,—að (drukkna þannig, er haun
leitaði landsins aftur, fyrsta skifti,
og var tekinn til fyrri yðju sinnar,
ólöglegra landhelgisveiða.
21. Jan. Skipstrand. í síðastl. Des
rakst gufuskipið Inga, eitt af skipum
Thor. E. Tuliniusar, á isjaka fram
undan Melrakkasléttu, og gerðist
þegar svo lekt, að skipverjar áttn
fult á fangi að hleypa því á land áð
ur en það sykki.
4. Jan. síðastl. andaðist að Ála-
fossi í Gullbringusýslu ungfrú Odd-
ný Jónsdóttir, 19 ára að aldri, dóttir
Jóns hreppstjóra Ólafssonar á Sveins-
stöðum í Húnavatnssýslu.
10. Febr. Nýr fríkirkjuprestur.
9. Jan. síðastl. hetír kank. phil.
Guðmundur Asbjarnarson hlotið
staðfestingu konungs, sem forstöðu-
maður frikirkjusafnaðarins í Reyðar-
flrði.
Úti varð 22. Jan. síðastl. Signrður
bóndi Sigurðsson frá Efravelli f
Gaulverjabæjarhreppi f Árnessýslu.
Hann var á heiuileið frá Eyrarbakka
og fanst örendur skamt frá ‘heimili
sfnu. '
Herra ritsjóri Heimskringlu:
Gerðu svo vel og Ijáðu eftirfar-
andi línum rúm í þínu heiðraða
blagi:
Maðurinn minn sálaði, Gfsli
J nsson, sejn druknaði 3. ágúst síð
astl. haíði kevpt eitt þúsund doll-
ara lífsábyrgð í “Mutual Reserve”
lífsábyrgðarfélagiu fyrir mörgum
árum síðan, og hafði stöðugt borgað
iðgjöld sfn og allar aðrar kröfur fé-
lagsins fram að dánardægri. Eltir
fráfall hans gerðiég kröfu til félags-
ins fyrir þessaii upphæð, og fékk ég
lengi vel ekkert iullnægjandi svar
upp á hana, en þar sem ég var hér
einstæðingur og átti engan að sem
staðið gæti í bréfaskiftum við félag-
ið fyrir mína hönd, varð ég að kaupa
lögmann til að framfylgja kröfum
mfnum, og starfaði hann að því f
næBtum 6 mánuði.
Ísíðastl. mánuði fékk ég loks-
ins ávísun upp á $846.63 (átta
hundruð fjörutíu og sex dollara sex-
tíu og þrjú cent) og sagði lögmaður-
inn mér, að það væri alt sem ég
fengi frá félaginu. ÞetU varð ég
auðvitað aa láta mér nægja, jafnvel
þó mér þyki þessi borgunarmáti
nokkuð einkennilegur á réttri skuld, j
því þegar ég er búin að borga allan
f>ann kostnað sem kominn er á, víð
innheimtu peninganna, er höggvið
talsvert skarð f upphæð þá sem mér
bar með réttu.
Af því ég hef séð stundum f ís-
lenzku blöðunum þakklætisgreinar
frá konum dáinna manna, sem trygt
höfðu líf sitt f þessu félagi, þykir
mér vel við eiga að lofa almenningi
að sjá hvernig því hefir farizt við
mig í okkar viðskiftum. — Betur að
engar fleíri ekkjur yrðu fyrir því
sama. Um aðra viðurkenningu en
þessa frá minni hendi er ekki að
ræða.
Keewatin, Obt. 1. Marz 1902.
Kristiana Johnson.
íslenzkur dáleiðari.
FZerra S. Christie (Sigurgeir
Kristjánsson) hér í bænum. sem
um [nokkur undanfarin ár hefir
lagt fyrir [sig nám dáleiðslufræð-
innar^og annara lærdómsgreina og
hlotið fullnuma skýrteini frá vfs-
indaskólanum íNew York, hefir á-
kveðið að[sýna list sfna á opinber-
um samkomum, sem haldnar verða
i Unity Hall, homi Pacific og
Nena*St., 25., 27. og 31. þ. m., kl.
8-J að kveldi. Mr. Christie er tal-
in vel fær í þessari vísindagrein
og hefirjþar að auki sér til lijálpar
æfða menn í missýningafræði, sem
einnig skemta á samkomunum.Mr,
Christié er fyrsti íslendingurinn,
sem opinberlega gefur sig frain
sem vísindalegur dáleiðari, og ]>að
má óhætt búast við góðri skemtun,
Kostnaðurvið undirbúning þessara
funda er allmikill og þess vegna
mælum vér með þvf að landar vorir
sæki samkomumar vel. Það er í
fyrsta skifti, sem þeir eða margir
þeirra hafa átt kost á að sjá slíka
skemtun, og þeir ættu ekki að
missa það tækifeeri, sem þeir nú
hafa. Aðgangur 25 cents fyrir
hvern. (Sjá augl. f næsta blaði).
PRESTKOSNINGIN
verður leikin 17. og 18, þ, m. kl. 8
á Unity Hall, Aðgöngumiðar verða
til söiu hjá H. S. Bardal og kosta
beztu sæti 35c., almenn sæti 25c.,
barna sæti 15c. Ágóðanum verður
varið til hjálpar veiku og þurfandi
fólki.
s
Athugið.
Fargjald fyrir vesturfara
frá íslandi til Winnipeg kosta
nú í sumar $35. Islendingar
í Vestur‘Canada, sem óska
að senda fargjald til vin»
sinna á Islandi, geta sent
peningana til “The Commis-
sioner of Immigration, Win-
nipeg“, er sér um ao farbref-
in verði tafarlaust send til
viðtakeúda.
Referendum.
Ástæður fyrir því, hvers vegna
að þú átt að greiða atkv. á móti
vfnbannslögunum 2. Apríl næstk.
1. Vegna þess að vfnsölubann
hefir allstaðar misheppnast.
2. Vegna þess að skikkanleg
hótel með vínsöluleyfi era áreiðan-
lega æskilegri, en laumnsala á ó-
vönduðnm víntegundum,
3. Vegna hess að öll löggjöf er'
gengur í þá átt, að ákveða hvað
fólk skuli eta og drekka, er hin
hættulegasta lagasmfði, getur leitt
til fleiri ákvarðana, er Jveikja per-
sónulegt frdsi, .
4. Vegna þess, að jafnvel með
heilum her af embættisþjónum og
æmum kostnaði, er óni(">guh*gt að
setja vínbannslög 1 gildi, vegna
þess að meiri hlutinn er á móti þyí,-
5. Vegna þess að í Norðvestuy
landinu, þar sem lögregluliðið er
svo þúsundum skiftir, og eiðsvar-
in skylda þess var að stöðva vín-
söluna, kom það fram að slíkt var
ómögulegt, og fólkið þar fagnaði
yfir þvl, að leyfi má fá þar til að
Selja vín.
•
6. Vegna þess. að vínsölubann
þýðir aukin útgjöld á hvert nef, er
í fylkinu býr.
7. Vegna þess að vfnsölubannið
hefir öréttlát áhrif á verzlunarvið-
skiftin og er hættulegt fyrfr landa-
oghúsasölu 1 öllu fyíkinu.
8.. Vegna þess, að vínsölubanni
fylgir ósandyndi og deilur, og býr
til spæjara og fjölgar meinsærum.