Heimskringla - 13.03.1902, Blaðsíða 3
I
HEIMSKRINGLA 13. MARZ 1902.
nefnda. Hann aagðs það væri ekki
rafmagn sem Marconi sendi yfir haf-
ið eða til annara fjarlægra staða,
það væri að eins -‘hreyfing” og raf-
magns öldur er flyttust staða í milli
á sama hátt og loftið, þegar öldur
þess væru vaktar með einhverjum
hljóðgjafa (sounding body) og sem
þá flyttu hreyfinguna frá hverjum
smálofthJutanum til annars uns þær
rækjust á hljóðhimnu eyrans. Titr-
ingur eða hreyfing sú sem við loft
öldubrot þetta kæmi á hljóðhimn-
una væri svo það sem heilinn kall-
aði "hljóð”. Á alveg semu grunn-
reglu kvað Dr. Laird ljósframléiðslu-
og rafmagnsskeyta 'sendingar bygðar.
J. E.
DÁINN
að heimili sínu i N . Dak,, 17. Febrúar
1892 merkismaðurinn Guðmundur
Sveinsson, ættaður og upprunninn í
Húnaþingi á íslandi. Hannvar fædd-
ur að Forsæludal í Vatnsdal 15. Maí
1830. Foreldrar hans voru Sveinn
toóndi Ögmundsson og kona hans Guð-
ríður Gisladóttil:. Hann misti ungur
föður sinn, en ólst upp hjá móður sinni
og stjúpföður, Krlstjáni Jónssyni, að
Dalgeirsstöðum í Miðfirði, þangað til
hann var 20 ára. Þaðan flutti hann að
Heggstöðum viðMiðfjörð og giftist þar
ungfrú Lilju Oddsdóttir. stjúpdóttur
Eggerts Eggertssonar bónda, og dóttur
konu hans Steinunnar Björjjsdóttur.—
Guðmundur byr jaði búskap að Dalgeirs-
stöðum og flutti svo að Útbleiasstöðum
og þaðan að Heggstöðum, þá að Bálka
stöðum við Hrútafjörð, svo þaðan að
Stórahvolsá í Strandasýslu, og þaðan
til Vesturheims, Eftir 4 ára búskap að
Hvolsá misti hann konu sina Lilju'
Oddsdóttir og höfðu þau þá eignast
saman 13 hörn; af þeim lifa 5 bræðnr og
eina systir í Ameríku, öll vel Ltin og
vel standandi.-Guðmundur átti mörg
alsystkini og hálfsystkini í Húnaþingi
og fjölda annara ættingja. Hann var
vel greindur og hið vandaðasta góð-
menni, —og minning hans ilifir í þakk-
látri virðingu allra sem þektu hann.
Heimskriagla er beðin að auglýsa
þessa dánarfregn hér i Ameríku, — og
Fjallkonan í Reykjavik er yiusamlega
beðin að flytja hana til allra ættmanna
og vina hinslátna á íslandi.
Aðstandendur og vinir hins látna.
I Goodtemplara stúkunni
Skuld setti umboðsmaður Rósa
Egilson, eftir farandi í embætti 12.
Febr. 1902:
F. Œ. T. NannaBenson;
Æ. T. Gunnl. 8ölvason;
V. T. Kristj. Thorarenson;
K. Sigrfdur Péturson;
R. Karólína Dalmann;
A. R. AðalborgBenson;
F. R. Jón Ólafsson;
G. Vilhjálmur Olgeirsson;
D. Gunnlaugur Jóhannsen,
A. D, Pétur Lydes;
G. U. T. Sigurl.Jóhannesson;
V. Jónas BergÁian;
U. V. Halldór Jóhannesson;
Stúkan hefir aukið sjóð sinn og
fjölgað meðlimum síðastl. ársfjórð-
ung; hún hefir nú 235 manns; hún
he fir aldrei komist svo hátt fyrr.
Dr. Ólafur Stephensen Ross Ave.
563 ætíð lieimafrá kl. —3^ e. m.
og 6—8-J e. m. Telephone 346.
Kasrið þeim ekki burt — það er eins
og að henda frá sér peningum þegar þér
kastið burt Snoe Shoe Tags þeim sem
eru á hverri plötu af PAY ROLE
UHEWING TOBACCO.----------------
Haldíð þeim þess vegna saman, Það
veitir yður kost á 150 ágætum gjafa-
muuum,—‘‘Tags‘‘ gíldatil 1. Januar
1903. Biðjið kaupmenn yðar um
mynda Iista vorn yfir þessa gjafahluti.
***************************
HEYRNARLEYSI
er eigi auðið að lækna með algengum
tneðölum, þar eð þau geta ekki ná til
hins sjúka hluta eyrans. "Heyrnar-
leysi” verður því aðeins læknaðáeinn
hátt, sem sé þann, að nota þau meðöi,
sem eru eftir byggingu h ns sjúka.
Heyrnarleysi kenlur af bólgu í slím-
bimnunni, .-iem liggur innan í heyrnar
pípunni. Þegar þessi ptpa er orðin
veikluð, kemur suða fyrir eyru þér eða
þá að heyrnin hverfur til muna. Og
þegar pipan lokast með öllu, er afleið-
ingin algert heyrnarleysi, og sem aldrei
batnar nema bólgunui í þessari pípu sé
útrymt. Níu af tíu heyrnarlausum
mönnum eru á þenna veg orðniriheym-
arlausir.
Vér viljum gefa eitthundrað dollara
fyrir hvern sjúkdóm (sem kominn er af
bólgu í slímhimnnnni) sem ekki lækn,
ast með Halls Catarrh Cure. skrifið
eftir upplýsingum
F. J. Cheney&Co.
Toledo Ohio,
Fæst í lyfjabúðum fyrir 75c.
FERÐA-AÆTLUN
milli Ný-íslands og Winnipeg
Sleðinn leggur á stað frá 605 Ross
Ave. kllhvern sunnud. og kemur til
Selkirk kl. 6; fer írá Selkirk kl. 8 á
mánud.morgna og teemur til Gimli kl.
6 að kv.; fer frá Gimli á þriðjud.m. og
kemnr til Icelandic River kl. 6. Fer frá
Icel- Riv. i bakaleiðkl. 8 á fimtud.m. og
kemur til Gimli samd.; fer írá Gitnli kl.
7.30 á föstud.m. kemur til Selkirk kl, 6
sama kv.; laugatd. kl. 8 frá Selkirk til
Winnipeg.—Hra. Runólfur Benson, er
sleðan keyrii, er að finna að 605 Ross
Ave. á laugard. og sunnud., og gefur
hann allar nauðsynlegar npplýsingar
ferðalaginu viðvikjandi. Engin hætta
að fólk tef jist, þars þessi sleði flytur
póstinn og skuldbundinn til að vera á
ákveðnum tíma á hverri póststöð.
niLLIDGE BR0’5.
Weat Selklrk.
Kennari getur fengið stöðu við
Svvan Creek skóla frá 1. Maí. til
1, Nóvember 1902. Verður að*hafa
2. or 3rd class certificate. Lysthaf-
ar snúi sér hið fyrsta Jtil undirritaðs.
og skýri frá reynslu sinni við barna-
kenslu, og tilgreini kaupgjald er
þeir æskja.—Tilboð verða að vera
kominfyrir 1. Apríl 1902 til
Helga Oddsonar.
Sec. Treas.
Cold Springs.
Man.
Rafmagnbeltin. margreyndu
eru nýkomin enn einusinni á skrif-
stofu Heimskringlu, og allir feng-
ið þau keypt, er vilja, Þetta er
líka sagt þeim til upplýsingar, er
verið hafa að spyrja eftir þeim
undanfarna daga.
Hefurðu gull-úr, gimsteinshring,
gleraugu eða brjóstnál ? Tliordur
Johntion 292 Main St. hefir fulia
búð af alskyns gull og silfur varningi,
og selur þaðmeð lægra verði en að ir
Hreinsar úr fyrir $1,00 og gefur eino
árs ábyrgð.
Komið, sjáið, skoðið og sannfær
ist. Staðurin er:
MAIN STREET.
Thordur Johnson.
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
LANG BEZTA ER,
Ogilvie’s Mjel.
Sjáið til þess að þér fáið OGILVIE’S.
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
**************************
Ódýrust föt eítir máli —
S. SWANSON. Tailor.
512 Marvland St. WINNIPEG.
—TIi JolmHon kennir fiólínspli
og dans.
614 Alexander Ave.
Winnlpe^-
Ég hefi gnægð af pen-
ingum að lána á lönd og
lausafé. Ég vil því biðja þá
sem þurfa að fá peningalán
að snúa sér til mín og þið
munuð sannfærast um að
þið hafið bezt af því sjálfir.
Yðar.
E. H. BERGMAN.
Garðar, N. Dak.
OLISIMONSON
MÆLIR MEÐ 8ÍND NÝJA
SMinará Hotel.
Fæði $1.00 á dag.
718 Main Str
Ef einhverjii; af mfnum' gömlu
og góðu kunningjum hér í Ameriku
vildu vita addressu mfnu, pá er
liún P. O. Boxl283 WinnipegMan.
Mér er f>ökk og ánægja af að fá lfn-
ur frá þeim, um lfðtin þeirra og
kringumstæður f þessu landi, m. fi.
Jón Jónsson, frá Hjaltastöðum
í Skagafirði.
* Fyrir minna verð
en hægt er að fá nokkurstaðar annar-
staöar, tekur undirritaður að sér út
búnáð eignarbréfa (Deeds), veðsknlda-
bréfa (,Kortgages) og alskonar samn-
inga (Agreements), og ábyrgist laga-
legt gildi þeirra fyrir dómstólum i 4/an-
itoba.
B. B. OLSOJÍ.
Provincial Conveyancer.
Gimli 4/an.
AUGLYSING.
Hér með gef ég til kynna, að ég
hefi til sölu talsvert af góðum bæjar-
arlóðum viðsvegar umbæinn. Sumar
með alskyns aldinum og heyi, eirinig
með snotrum íbúðarhúsum, on aðrar
óbygdar en þó ágætar til ábúðar.
Yfir höfuð er alt það áminsta hillegt
og á góðum stöðum. Ættu því allir
landar að flnna mig að máli er hefðu
í hyggju að setjast hér að, áður en
þeir kaupa fasteignir af öðrum.
Spanish Fork City Utah 10. Febr. 1902,
BJARNI J. JOHNSON.
• BÍÍKI N!
‘j BÖKIN!
\V BÖKIN!
HYER BAKAR?
YER BOKUM!
BOYD
bakaralla hluti, sem bakaðirverða.
Prófið brauðin okkar prófið kökurnar
okkar, skorpu kökurnar, eplakök-
urnar, bollurnar og alt og sérbvað
sem þið óskið, og reyndin verður sú
að þér finnið að brauðgerð vor er sú
bezta, sem völ er á. — Heildsala og
smásala.—Vér höfum 12 keyrara. —
Biðjið þá um brauð.
W. J. BOYO.
370 og 579 Main Str.
TIL SOLU,
Ábúðarland 2 mílur norðan
við Gimli 140 ekrur, liggur að
vatni, byggingar og girðingar, gef-
ur af sér átta kýrfóður, góður byrki
skógur. Þetta land fæst með kjör-
kaupsverði, verður verðmætt land
innan skams tíma. Frekari upp-
lýsingar fást á skifst. Hkr.
Macioíall, Hauari & WMtla.
Lögfræðingar og fleira.
Skrifstofur í Canada Permanent Block,
HUGH J. MACDONALD K.O.
ALEX. HAOÖARD K.C.
H. W. WHITLA.
(Janadian Pacific J[,il way
Fljotusta og
skemtilegusta leidin
AUSTUR
og
VESTUR
TORONTO, MOTREAL,
VACOUVER,
SEATTLE.
CÁLIFORNIA
KÍNA.
og til hvers annarfstaðar á hnettinum
sem vera vill.
Allar upplýsingar fást hjá
Wm. STITT C: E. McHPERSON ,
aðstoðar umboðs- aðal umboðsmaður
maður farþega farþegalestanna.
lestanna.
WINNIPEG.
Brunnir til ósku
Það er sagan sem gengur um okk-
ar nafnfrægu “ T. L. ” VINDLA.
í þeim er hieinasta Havana tóbaks-
lauf, mlld og ljúffei g, þrí brenna
þeir upp til ösku.
WESTERN CIGAR FACTORY
TIiom. Lee, eigandi. "WHT3NIFEG.
flANITOBA.
Kynnið yður kosti þess áður en þér ákveðið að taka yður bólfestu
annarstaðar.
íbúatalan í Manitoba er nú............................... 250,000
Tala bænda i Manitoba er................................. 35,000
Hveitiuppskeran í Manitoba 1889 var bushels.............. 7,201,519
“ “ 1894 “ “ ............. 17,172,883
“ ‘ 1899 " “ .............2'. ,922,230
Tala búpenings i Manitoba er nú: Hestar.................. 102,700
N autgripir............... 230.075
Sauðfé..................... 05,000
Svin....................... 70.000
Afurðir af kúabúum í Manitoba 1899 voru.....*............ $470,559
Tilkostnaður við byggingar bænda í Manitoba 1899 var... $1,402,300
Framförin í Manitoba er auðsæ af fólksfjölguninni, af auhntm
afurðum lanisins, af auknum járnbrautum, af fjölgun skólanna, af vs i-
andi verzlun, af vexti borga og bæja, og af vaxandi vellíðan
almennings,
í siðastliðin 20 ár hefir ræktað land aukist úr ekrum. -....... 50,000
Upp í ekrur....................................................2,500 000
og þó er siðastnefnd tala að eins einn tíundi Muti af ræktanlegu landi
í fyikinu .
Manitoba er hentugt svæði til aðseturs fyTÍr innflyténdur, þar er
enn þá mesta gnægð af ágætum ókeypis heimilisréttarlöndum og mörg
uppvaxandi blómleg þorp og bæir, þar sem gott er til atvinnu fyrir
karla og konur.
f Manitoba eru ágætir frískólarfyrir æskulýðinn.
í Manitoba eru mikil og fisksælveiðivötn, sem aldrei bregðast.
í bæjunum Winnipeg, Brandon, Selkirk og fleiri bæjum mun nú
vera vfir 5,000 íslendingar, og í sjö aðal-nýlendum þeirra í Manitoba,
eru riimlega aðrar 5,000 manna. Þess utan eru í Norðvesturhéruðunum
og British Coiumbia um 2,000 tslendingar.
Yfir 10 millionir ekrur af landi i Manitoba, sem enn þá
hafa ekki verið ræktaðar, eru til sölu, og kosta frá $2.50 til $6.00 hver
ekra. eftir gæðum. Þetta land fæst með vægum kaupskilmálum.
Þjóðeignarlönd í öllurnpörtum fylkisins, og járnbrautarlönd með
fram Manitoba og North IFestern járnbrautinni eru til sölu. •
Skrifið eftir nýustu upplýsingum, kortum o. s. frv. alt ókeypis, til
HOX. B. P BOKLIM
Minister of Agriculture and Immigration,
WINNIPEG, MANITOBA.
Eða til:
Joseph B. Skaptaaon, innflutninga og landnáms umboðsmaður.
eru beztu, ódýrustu ogeyðsluminstn
hitunarvélar sem gerðar erui þær
gefa mestan hita með minstum
eldivið. Eru bygðar til að endast
og vandalaust að fara með þær.
Fóðursuðu-katlar fvrir bændur
gerðir úr bezta járni eða stáli, ein-
mitt það sem þér þarfnist. Biðjið
árnvörusala yðar um þá, þeir selja
a)lir vörur vorar.
THE HECLA
CLARE BRO’S & Co.
Verksmiðjur:
PRÉSTON, ONT.
Winnipe.
Box 1406.
4 Mr. Potter frá Texas.
sökunarblæ, næstum eins og hún skammaðist
sin fyrir eitthvað, sem hún var þó ákveðin í að
gera.
‘‘Þeir yfirgáfu mig ekki!”
“Hvernig í dauðanum stendur þá á því, að
þú ert hér?”
"Ég sá þá fara. Brezki konsúllinn heimt-
aði að ég færi með þeim, !en égneitaði því. F.g
sagði honum að ég þyrfti að finna þig, og ég
væri komin langt að. Það var sent hraðskeyti
frá Cairo, að þú hlytir að verða komin hingað
þessa nótt, og svo hefi ég beðið og beðið, og svo
varð um seinan að komast héðan burtu. Ég
flýtti mér ofan á ströndina, og varð þess vísari
að ómögulegt var að hafa fregnsamband við skip
in. sem liggja út á höfninni. Hvað gat ég gert
—kona—stödd í ókunnugri borg, og get ekki tal-
að eitt. orð í hinum austrænu tungumálum?
Fylgdarmaður minn flutti mig aftur að þessu
hóteli, en svo var hann svo smeikur, að hann
hljóp í burtu frámér. Sólin gekk til viðar, á
gaslömpunum Ivar ekki hægt að kveikja, þvi
gaspipurnar voru lokaðar, svo ég varð að hýrast
hér í þessu mannlausa hóteli; — svo heyrði ég
umgang. Ég forvitnaðist um hann með var-
kárni, i þeirrivon, &ð:éggæti fengið hjálp eða
aðstoð, og—sá þig kveikjaá kindlinum, og guði
sé lof ! — Littu á, enskt konu andlit! Ég hefi
séð myndina þína. Þú ert Karl iErrol, sonur
Ralph Errols í Melbourne.í Ástraliu”.
“Já. en þú ert-----?”
“Lafði Sarah Annerley’”.
“Lafði Anneriey? — í nótt stödd i Egypta-
Mr. Potter frá Texas, 5
landi?" nöldraði hinn ungi maður í mestu for-
undrun, því þetta konunafn hafði oft áður birzt
í blöðunum, nafn, sem stendur hátt í mannfé-
laginu, og er fyrirmynd siða og tízku iannálum
höfðingja lifsins.
"Já”, svaraði hún, “Sarah, ekkja vísigreifa
Annerlys, en einkadóttir Sir Jonas Stevens. Ég
þarf að tala við þig í hálfan klukkutíma; ég hefi
komið alla leið frá Evrópu til þess !”
“Hálfan klukkutíma 1 Ef jvid stönzum hér
svolengi erum við dauð, pá sá tími er liðinn”.—
Hann kiptist við ogskalf ábeinunum.þegar hugs
unin um svona langa bið flaug í gegnum huga ^
hans; en því lengur sem hann horfði á þessa
konn, og veitti henni og látbragði hennar eftir
tekt, því meir varð hann undrandi og hræddari
Við háska og hættur, sem vofðu yfir þeim — við
að sjá hana—hertekna ef til vildi.—“Veiztu ekki’,
hélt hann áfram í flýti, eins og tíminn væri að
hverfa fram hjá, “að á þessari stundu erum við
eflaust hinar einustn mánneskjur enskar, sem
lifandi eru staddar í Alexandríu, þessa voða-
þrungnu nótt. Á sama augnabliki og enski sjó-
flotaforinginn' lætor fyrsta fallbyssuskotið ríða
af, á egypsku hervirkin, fá hinir austrænu hálf-
brjáluðu liðsmenn merki um, að drepa hverja
flnnar.lega manneskju, sem hefir önnur trúar-
brögð, en Múhamedstrú, því þeir trúa því að
Allah blessi þá þúsundfalt fyrir hvert það
mannsmorð, er þeir fremja. Og þeir skilja ekki
við fyrri en þeir hafa drepið hvern einasta Evr-
ópumann, háan og lágan, sem ekki er nú staddur
út á skipunum. Allir hafa ’.flúið út á þau í dag
8 Mr. Potter frá Texas-
um, því hún hafði nákvæmlega litið eftir vopn-
um hans og sá að Remington riffillinu hans var
rykugur, eftir gönguna.
“En ég ætla að segja þér”, greip hún fram í
og studdi sig við handlegg hans um leið og tál-
aði með skrítilegum tilburðum og áherzl^: “Ég
hlýt að segja þér”, og liún ætlaði að halda áfram
en hann tók orðið af henni og sagði:
“Remipgton riffillinn minn sýnist rykugur.
Gefðu mérdulu til að þurka af honum með,—
vasaklútinn þinn, eitthvað.—rífðu ræmu af silki-
pilsinu þarna; eigandinn vill ;má ske ekki missa
það!” —
. Lafði Annerley hlýddi honum, en hann hélt
áfram: "Haltu kindlinum héma fyrir mig,
gerðu svo vel, svo ég sjái betur inn I riffillásinn,
Hann getur bjargað þér engu siður en sjálfum
mér".
Um leið og hún tekur kindilinn að lýsa hon-
um, þá heldur hún áfram: “Svo er mál með
vexti, að ég kom frá Evrópu hingað, til að segja
þér dálitið leyndarmál, sem viðkemur föður þín-
um—
Um leið og hún sagði þessi orð, smelti hann
bógnum á kveikipipuna, svo það kom töluverður
smellur, en hann sagði um leið: “Faðir minn
getur beðið, hann er ekki í lífshættu sta,ddur sem
þú".—Þá hljóðaði hann: “Slöktu á kindlinum!"
. “Hvi þá?”
Hann svaraðiengu, en slökti ljósiðf höndun-
umlhenni, og rak hún npp hljóð af undrun.
“Hve gerir þú þetta?” spurði hún í máttlitl-
um málróm.
SÖGUSAFN IIElMSUIHKGI.r
Mr. Potler fra Texas.
EFTIR
«
Archibald Clavering Gunter.
Snúið úr ensku á íslenzku
af:
Kr. Ásg. Bcneiliktssyni.
WINNIPEG
PRENTSMIÐJA HEIMSKRINGLU
1903.