Heimskringla - 12.06.1902, Síða 1
KAUPID.
Heimskring/u.
r'
i BORQID.
$ Heimskringlu.
XVI. ÁR WINNIPEG MANITOBA 12. JÚNÍ 1902 Nr. 35.
Fregnsafn.
Markverðuscu viðburðir
hvaðanæfa.
í síðasta m&nnði urðu meiri
mannskaðar og eignatjón, en nokk-
urn tíma heflr borið fyrri við í sög-
um. Og er hér að eins syndur íit-
dr&ttur af þeim:
1, Maí. Voðafenginn fellibvlur
fór yflr borgina Decca á Indlandi og
nœrliggjandi sveitir. 416 menn
mistu lífið og eignatjón varð mikið.
8. Mai. Stórkostleg eldsumbrot &
Martinique og St- Vincent í Vestur-
Indium, dr&pu yfir 30,000 menn,
eyðilögðu utór svæði af landi og ollu
miklu eignatjóni. 13. Mai. Þ&
varð nafta sprenging mikil i Sheri-
dan, Penn., 23 menn biðu bana, en
202 meiddust meira og minna. —
14., Mai. Eimskipið Camerta sökk;
það var brezk-indverskt. Auk
skipshafnarinnar voru & skipinu 550
farþegjar. 20 mönnum að eins
bjargað af þvi.—17. Maí. 8 menn
diepnir, 6 særðir, í upphlaupi, sem
varð í Atlanta, Ga.—18. Maf. Var
fellibylur & allstóru svæði I Texas.
Um 100 menn týndust; eignatjón
mikið, og ófengnar fréttir um eyöi-
legginguna fr& sumum stöðum enn
Þ&.— 19. Maí. Loftsprenging var
í n&mu i Coal Creek, Tenn.; um 200
til 300 |menn biðu bana- — 20. Mai.
Stórviðri og skýstrokkur fór yfir
part af Cinsinnate, drap 6 menn og
gerði eignatjón, er nam yflr eina
milíón dala, — 28. Maí. Flóð og
vatnagangur i norðausturhlutanum
f Iowa rikinu. Sama dag kveiki-
loftsprenging í Fe rnie-n&munum f
B. C. Um 170 menn mistu þar líf-
ið.—24. Maí. Nrikkrir - hlutar af
Ulinois, Nebraska, Missouri, Kansas
og fleiri ríkjum urðu fyrir fellibylj-
um og skýstrokkum og hagli, sem
olli mannskaða og eignatjóni* — 26.
Mai. 6 menn mistu lifið og margir
meiddust í ofyeðri, *sem kom i S.
Carolina.—27. Mai. í manntroðn-
ingum, sem urðu I New York, var
1 maðut drepiun og margir meiddir.
Á sama tima hafa margar þús-
undir mannd beðið bana af eldsum-
brotum og jarðskj&lftum í Mið Ame
ríku, og eignatjón orðið afarmikið.
Engar skýrslur fengnar enn þ& um
það.
Edward Bretakonungur bað
þingið að fleygja í Kitchener l&varð
$250,000 f þóknunarskyni fyrir starf
hans í Suður Afríku. Sumir þing-
menn voru strax & móti þessari fj&r-
veitingn. Aðrir vildu gefa Kitch
ener sömu upþbæð, $100,000, og rík
ið gaf Roberts l&varði, þegar hanB
kom heim fir Afríkuför sinni. Blöð
in halda að Kitchener f&i ekki nema
$100,000.
Frft öllum stöðum heimsins nær
að segja eru konnngar og höfðingjar
komnir til Lundúna, til að vera við
krýningarhátíð konnngs vors. Þar
eru ósköpin öll af blökkumanna
höfðingjum úr Afríku. Þeir keppast
um að færa kónungi gjafir af ýmsu
tagi.
Það segja jarðfræðiugar að hit-
inn hafl verið um 2000 stig í St.
Peire þegar Peiee gaus uaa daginn?
Hafl því íhúarnir d&ið eins fljótt o^
elding drepur.
Hesquoit Indí&nar á Vancouver-
ströndinni hafa nýlega fundið flösk
ur með miða í. Það er skeyti fr&
embættismanni á herskipinu Condor,
sem týndist f vetur. A miðanum
stendur, að Condor hafi sokkið langt
út i hafl. Að eins hann og 2 menn
aðrír hafl komist í b&t, og hrekist
þeir fram og aftur um hafið, og séu
alveg & yaldi þeirra höfuðskepnn, er
r&ði yfir því.—Þessir menn hafa ó
efað farizt, því hvergi heflr frétzt
til þeirra. svo kunnugt sé.
Tíu af lánardrottnum mad.
Humbert, sem hefir verið drifíjöðrin
í fj&rglæfam&lin á Frakklandi, og
sagt var fr& í siðasta blaði, hafa nú
þegar framið sj&lfsmorð.
2 af nafnkendustu kiifrurum
heimsins hröpuðu nýlega f Álpa-
fjöllunum ogbiðu b\ðir bana.
Á sérstakri lest, sem flytur far-
andsýningar, komst ungt tigrisdýr
inn i vagna þar sem sýningahestar
voru. Þeir ætluðu að ærast er þeir
s&u þenna óvin sinn. Samt réðist
einn hesturinn fe það, og urðu enda-
lokin þau, að hann geak af þvi
dauðu. En sumir hinir hestarnir
voru bitnir til skaða. Þykir það
undrum sæta að hesturinn bar sigur
úr býtum.
Doukhoborar, sem búa í York-
ton og þar I nfegrenninu neita þvi
og mótmæla, að menn eigi að brúka
ferfætt dýr til vinnu. Þeir segja að
menn eigi að brúka ekki hesta til
aksturs. Það sé brot á móti sönnum
trúarbrögðum.—Þeir sýnaþað lika í
verkinu, að þeir meina þetta, því
þegar þeir geta ekki Ifetið konur
sínar draga heim nauðsynjar, sem
þeir með þurfa, þ& fara þeir sjálfir
og gera það. M6 nú sjá þá á mynd-
um, vera að stritast fefram með
vagna úr kaupstöðnm. Viðast á
myndum eru það konurnar, sem
draga vagnana, en heldur draga
karlmenn þ&, en brúka hesta. Sif-
ton reiknast þetta til inntekta,— og
góðum Doukhobra áhangendum!!
Bóndi nokkur I Ont. hefir sofið
samfieytt í 9 sólarhringa. Hann er
samt & ferli & daginn, og gengur út
og inn, þótt hann starfi ekki. Hann
drekkur mjög mikið af vatni, en
nærist litið. Hann veit ekkert um
það sem fram fer í kringum hann.
Hann hefir verið stundaður af lækn-
um, en þeir geta ekkert að gert svo
honum batni, og ómögulega vakið
hann með nokkrum r&ðum. Kona
hans og börn eru í mestu vandræð-
um út af þessu, sem von er. Maður
þessi er 54 ára gamall, og hefir ver-
ið mesti elju og atorku maður.
Læknaanir óttast að hann deyi úr
hungri, af þvi hann nærist svo litið.
Bandaríkjastjórnin þykist fagna
míögyfir friðnum.sem kominn er á
milli Breta og Búa. Hún ætti að
fara að dæmi þeirra Breta og Búa,
og gefa Filiphine eyjabúum sömu
friðarkosti,
Á fostudaginn var, voru niu
vagnstjórar & strætisvögnunum í
Toronto teknir og settir f varðhald.
Þeir ern allir ftkærðir fyrir þjófnað
og 2 menn þar að auki voru teknir
um leið og fikærðir fyrir að vera í
vitorði með vagnstjórunum. Þeir
st&lu peningnnum úr kössunnm, sem
farþegjar stungu fargjöldunum inn
í. Þeir höfðu búið til sérstakt verk
færi til að n& peningunum upp úr
kössunum. Það voru leynilög-
regluþjónar Pinkertons-félagsins,
sem er eitt hið öflugasta leynilög-
reglufélag í Bandaríkjunum. Þeir
voru búnir að vakta vagnstjórana I
3 mánuðí og komast í kring um þá,
&ður en þeír fönguðu þ&. Strætis-
vagnafélagið hafði lengi grunað, að
menn sinir væru full fingralangir á
fargjalia peningnncm, og 3 æfðir
leynilögregluþjónar trá Pinkerton
voru fengnir til að rannsaka það, og
urðu þetta endalokin íyrir vagn-
stjórunum.
Mr. Tarte segir, að Canadastjórn
ætli eins fiótt og hægt er að koma
á beinum eimskipaferðum og flutn-
ingi & milli Canada og Ástralíu. Að-
alstöðvar, sem þær skipaferðir gauga
frá héðan, en St. Lawrence-fljótið.
—Hefði fyrri átt að vera,
Sir Thomas Lipton hefir afráðið
að keppa enn þá einu sinni við
Bandarikjamenn í siglingu, um bik-
arinn. Það er þriðja tilraun hans
Hún fer fram næsta sumar.
Búar eru óðum að gánga á vald
Breta og viTðast una friðarkostunum
hið bezta. Upphlaupsmenn í Höfða-
nýlendunni eru líka að gefast upp
dagsdaglega. Sigurinn er að nokkru
leyti eins mikill Búa megin sem
Breta.
Konsúll si sem, Bretar hafa
hafa talið konsúlsstöðuna í Banda-
rikjunum, í stað Pauncefote, sem dó
um daginn, heitir Michael Henry
Herbert. Hefir hann verið aðstoðar
konsúll Breta í Paris á Frakklandi.
M. H. Herbert er álitinn einn af
þeim allra fremstu stjórnfræðismönn-
um, sem nú eru í þjónustu Edwarda
VII. Englakonungs.
Snemma 1 þessari viku fór á-
kaflega stórfelt haglveður yfir La-
rimore í N. Dakota, og vfðar. Það
skemdi hveiti lítið vegna þess, að
stöngin er svo lá enn þá. en hamp-
gresi skemdi þar að mun. Þetta
haglveður er hið hrikalegasta, sem
J>ar hefir komið. Haglhnoðin, er
fellu, voru hálfur annar pumlung-
ur ummáli. Eitt haglhnoð var
mælt að Whipple, sem er bænda-
býli, og |var það 8 þumlungar að
timmáli. Af þvf þrumuveður fór
á undan haglfallinu, J>á voru menn
búnir að ná húsum þar, nema Jo-
seph Doyle, sem varð o^ seinn að
komast heim til sín. Eitt haglið
kom í höfuð honum og sprakk 3
J>umlunga langur shurður fyrir
J>ví f hársverðinum. Hann féil
meðvitundarlaus, ec hestar hans
fældust. Loks raknaði hann við
og komst heim. Hann var fluttur
til læknis, sem saumaði saman á-
verkann, og eru vonir um að hon-
um græðist sárið, og hann nái
heilsu aftur.
Nýlega varð bruni f Chicago,
Bygging, sem notuð var fyrir
lækninga hæli handa ofdrykkju-
fólki, og þess háttar bjálfum, á-
samt fleirum, brann til ösku, og
fórust í þeim bruna 12 karlmenn
og 1 kona, en um 30 manneekjur
brunnu meira og minna. Hefir
brenna þessi verið mjög hroðaleg
og átakanleg, eftir þvl sem blöðin
lýsa þar öllu og öllu.
Snjó fjell á einum stað í N. Y.
á mánudaginn var. Fjallgarðarn-
ir Green Moxmtains (Grænu fjöll-
in) og Greyloch voru huldir snjó,
ofan að rótum. Jarðarávextir og
jurtagróður skemdur af frosti.
Á mánudaginn var maður
að nafni F. Martín tekinn fastur í
Ottawa að skipan stjórnarinnar,
og ákærður um peninga fölsun.
Martfn J>essi er 65 ára gamall nú.
Fyrir 20 árum síðar var hann sett-
ur í fangelsi fyrir að búa til fals-
aða seðla, eftir seðlum f Banque
Nationale.
Þann 9. þ. m. dundi önnur
hörmungin yfir bæ, sem Michel
heitir í B. C., 23 mílur austan við
kolanámubæinn Ferrie, sem um
170 menn fórust f um daginn. Eld-
ur olli Jæssum voða viðburði í
Michel, Crows Nest Pass Coal-
félagið átti þar 24 hús og brunnu
J>au til ösku. Tvær og þrjár fjöl-
skyldur bjuggu í hverju húsi. Eld-
urinn tók húsin svo fljótt að ó-
mögulegt var að bjarga neinu úr
þeim. Þar af leiðandi er hið voða-
legasta alsleysi og eymdar ástand
á þessum brunastöðvum.
Eldurinn náði sér f þorpið þann-
ig, að námafélagið var að láta
hreinsa skóg af landi á átta ekrum
sunnan við J>að, og ætlaði að
byggja þar hús handa verkamönn
sínum, En veður var hvast, og
bárust, neistar og glóð frá viðnum,
sem verkamenn vom að brenna á
landinu og norður yfir bæinn, án
J>ess að hægt væri við að ráða.
Kviknaði þegar í húsunum; enginn
slökkvjliðsútbúnaðiir var til að fást
við eltlinn með, og alt var brunnið
á svipstundu.
Eldur er enn þá uppi krfng um
J>orpið í viðarnmnum, og fólkið f
hættu og nauðum statt. C. P. R.
félagið hefir vagna til á sporima Jað
forða fólkinu, ef eldurinn kreppir
svo að þvf, að J>ess þurfi.
THE NEW YORK LIFE.
“Pro bono Publlco”
Þe^ar maður kaupir klut.
Unobodsmenn New York Life ábyr»íðarfélags>ns færðu forseta
félaasins, Honorable John A McCall, 56 milliónir dollars í nýjum lifs-
ábyrgðum á sex vikum. og skðmmu þar á eftir færðu þeir öðrum
varaforseta félacsins hra. Geo. W. Perkins, 62 milliónir doliarsí nýj-
um lífsábyrKðum, Þannis; fékk félaeið EITT HUNDRAÐ OG
ÁTJÁN MILLIONIR DOLLARS virði l nýjum lífsábyrgðum &
fyrstu 3 mánuðum af árinu 1902. Aldrei fyr hefir jafnmikil lifsá-
byrRðar upphæð safnast að nokkru einu félagi i heiminum & jafn-
stuttum tima eins og að þessu STÆRSTA og BEZTA nf öllnm lífs-
ábyrgðarfélðgum. THE NEW YORK LIEE er á undan öllum
keppínautum i heimi. Það er einfalt sameignarfélag án no’kkurra
hluthafa. allur gróði er eicn skirteinahafendanna. NEW YÓRK
LIFE er á undan öðrum félögum i Canada.
Skoðið vaxtasafnsskírteini NEW YORK LIFE félattsins áður en
Þér gangið i lífsábyrgð i nokkru öðru félagi.
J. 4». florgHll, RAÐSMAÐUR,
Grain Exchange, Wiumpeg.
Chr. OIaf»Hon.
islenzkur agent
Sú fregn kemur rétt á eftir þess-
ari framanskráðu, a$ 9 vagnar séu
brunnir og smáhýsi, sem við nám-
urnar voru, og þeytiloftsmylnur
ein eða tvær í námunum, og eldur-
inn sé kominn inn f námagöngin,
og þiu farin að hrynja saman. Til
allrat lukku voru allir verkamenn
komnir út, úr þeim, og ólfklega
verður [manntjón þar.
IsLAND.
• Eftir Norðurlandi.
Akureyri, 26. Apríl 1902,
Bjargarskorturinn hefir alls ekki
orðið tilfinnanlegur enn liér f Eyja
firði, og má kalla, að það séu ein-
göngu tvær verzlanir, sem hafa
birgt almenníbg, að mat sfðan um
miðjan f. m. Gudmanns Efter-
fölger, og Magnús Sigurðsson á
Grund, Laxdal verzlunarstjóri lét
af hendi um 330 tunnur af korn-
mat frá 14. Marz 14. þ. m., mest-
megnis til annara en reiknings-
manna sinna, Jvf að þá hafði hann
áður birgt. Auk þess seldi hann á
sama tíma um 4000 pd. af melis.
Magnús kaupmaður Sigurðsson
hefir alt af haft matvæli og getað
birgt framfjörðinn. Hér hafa þvf
engin vandræði orðið, og nú eru
margir búnir að birgja sig langt
fram á sumar. Úr fljótum og
Siglufirði er sögð neyð af bjargar-
skorti: lítill matur þar til í verzlun
um síðan um nýár. í Ólafsfirði
hafa aftur á móti verið nægar
birgðir. I Skagafirði hefir verið
mjög kornmatarlftið f allan vetur.
t koaspónafrétt af Langanesi segir
mestubágindi þar, jafnvel farið að
skera til matar.
Fiskiafli allmikill hefir verið
kringum Hrfsey síðan snemma í
Msrf Jqgar gefið befir fyrir veðr-
um og hafís. En þar fyrir utan
og innan hefir hann verið lftill,
þangað til nú nýlega, að farið er að
aflast inn undir Hjalteyri. Af sel
hefir mikið aflast, síðan fyrir páska
út við Látur og utar, eins og drep-
ið var & f Norðurl. sfðast. Fjöldi
manna hefir 6tundað þá veiði og
fengið 10 til 20 seli á bát.
3. Maf. Nýtt 6trandgæzluskip
kom tilReykjavíkur í Marz, í stað
Heimdalls. Það heitir Hekla og
yfirmaðurinn er R. Hammer höf-
uðsmaður, sá er verið hefir yfir-
maður á Diönu hér við land undan-
farin ár við landmælingar.
Samsæti. Þann 17, Aprfl síð-
astl. héldu Eyfirðingar sýslumanni
Klemens Jónssyni allf jölment sam-
sæti að Hrafsagili, til J>ess að
fagna heimkomu hans úr utanför-
inni.
Eftir Þjóðviljanum.
Bessastöðum, 30. Aprfl 1902.
27. Marz sfðastl. andaðist í
Stykkishólmi prófastsfrú SoflBa
Emilia Einarsdóttir, kona Sigurð-
ar prófasts Gunnarssonar í Stykk-
ishólmi, hafði verið veik sfðan um
síðustu áramót.
Látin er 14. Marz frú Elinborg
Kristjánsdóttir á Skarði í Dala-
sýslu, ekkja séra Jónasar heitins
Guðmundssonar, er síðast var
prestur að Staðarhrauni (d. 1897),
en dóttir Kristjáns sál. Magnús-
sens kammerráðs að Skarði.
6. Maf. Aðfaranótt þess 2.Marz
p. á. andaðist konan Guðmunda
Jónsdóttir á Næfranesi í Eyrafirði,
éftir barnsburð. Hún ól 2 bi>rn
andvana p. 25. Febr. eftir lang-
vinnar pjáningar, en lifði eftir pað
við miklar kvalir 4 sólarhringa.
Að kveldi þess 3. Marz andaðist
á heimili sínu óðalsbóndinn Guð-
mundur Þórarinsson á Næfranesi,
fæddur í innri Lambadal í Dýra-
firði 1837, þar sem foreldrar hans
bjuggu, Þórarinn Sveinsson og
Valgerður Guðmundsdóttír.
Jarðskjálftakipp, J>ó eigi harðan,
varð vart við hér 29. f. m. kl. 10|
f. m.
Sumarveðrátta má heita að ver-
ið hafi hér einatt síðan sumarið
byrjaði, talsverður hiti flesta dag-
ana og úrkoma skapleg. Síðustu
dagana norðanátt með kælu.
12. Maí. Látin er í Reykjavfk
2. þ. m. frú Jónína Magnússon,
ekkja séra Finnboga Rúts Magnús
sonar prests til Húsavíkur (d,1890)
en dóttir Markúsar kaupmanns
Snæbjamarsonar á Geirseyri við
Patreksfjörð.
Eftir Austra.
Seyðisfirði, 10. Maf 1902.
N/lega er látinn óðalsbóndi
Þórarinn Þórarinsson á Grásíðu í
Kelduhverfi, nálega níræður.
Enn fremur lézt á föstudaginn
langa ungfrú Sigurveig Guð-
mundsdóttir á Lóni í sömu sveit.
Hún var góð stúlka og vel gefin,—
að' eins um tvítugt.
Tíðarfar hefir nú undanfarandi
verið hið blíðasta og ís loks leystan
allan af firðinum og rekið til hafs.
í dag er nokkuð kaldara, þoka og
súld.
Skip sökk út af Skjálfandaflóa
seint f f. m. Menn komust allir
af. Skipið var fermt kolum til
Poppsverzlunar á Sauðárkrók.
Kaupför eru nú kominn á
Vopnafjörð, Húsavík og Siglu-
fjörð
17. Maí. Mannalát. N/ dáin
er ekkja Jóns Arasonar á Víði-
mýri, hjá syni sfnum séra Sigfúsi
á Mælifelli; hún var merk og gáf-
uð kona.
Hafísinn. Hann mun nú eigi
siglingum til fyrirstöðu, hvorki hér
eystra eða fyrir autanverðu Norð-
urlandi, en við og við kemur hafís-
hroði inn á Eyjafjörð á austurreki,
jafnóðum er hann rekur út af
Húnaflóa, sem er svo lengiað tæm-
ast.
Heppileg sigling. Hólar bratu
fyrst lagísinn utan við Oddeyri
inn að Wathnes bryggju þar, og
svo braut Njölair sig inn á Pollinn
svo lagísinn komst þá á útrek; há-
karla og fiskiskipin gátu þá loks
komist út.
Sfhreyfivél.
Ólafur Hjaltsted, er nú hefir
verið í Höfní vetur tilþess að full-
komna þessa uppfynding sína, hef-
ir verið boðið 50,000 króna, að eins
fyrir einkaleyfi til að mega selja
pumpuna úr vélinni, en Ólafur vill
ekki láta pumpuna undir 100,000
krónum.
Skipsbruni. Hvalveiðamaður
Berg sendi eitt af skipum sínum í
vor til Jan Mayen til að líta þar
eftir hvölum; hitti skipið þar á
fsnum 45 menn, lítt vistaða, af sel-
veiðaskipi, er hafði brunnið J>ar
upp, og flutti J>á alla til IsíPfjarðar.
HNAUSA, MAN.. 3. Júnf 1902.
(Frá fréttaritara Hkr.).
Hitar og skúrir hafa skifst á
um tfma, og útlit fyrir mikið gras-
ár, enda sagt svo vel sprottið 1
nýju bygðinni vestur af Geysi, að
vel mætti fara að heyja þar, ef
hægt væri, votlendis og vætutiðar
vegna.
í síðastliðnum mánuði hljóp
skot úr byssu skáhalt í bak ungl-
ingspilti0 við Icelandic River, og
heyhnffur datt úr heystakk ofon á
annan pilt hér í Breiðuvík um
sama leyti og skaðaði hann milli
herðanna. Báðir eru á góðum
batavegi.
I fyrri nótt brunnu inni í fjósi
Ingólfs bónda Magnússonar,
Hnausa, 4 kýr og 1 kálfur, til
dauðs. Orsökin til brunans halda
menn að hafi verið eldur, sem ver-
ið var með við fjósið um kveldið,
heldur en að J>rumur, sem gengu
um nóttina, hari kveikt 1 þvl.
O. G. A.
Úr bréfi til ritstj H.kringlu.
Friðurinn.
Ef trúa má hraðskeytum og
fréttum hinna mörgu stórblaða þessa
lands, þ& er nú friður saminn milli
Breta og Búa, friður, sem hefir \trið
dýru verði keyptur. Sú fjár upp-
hæð sem Bretar hafa eytt í þessum
ófriði er svo stórkostleg að fáir geta
gert sér grein fyrir því þó tölumar
séu gefnar. Eins er óvíst að nokk-
urn tíma verði réttar tölur gefnar
yfir það hræðilega manntjón, er
biðar hliðar biðu I þessu ójafna
striði. Ójifna segi ég, þar sem &
aðra hlið voru tvö í&tæk og f&menn
lýðveldi, en & hina hliðina var B;eta
veldi með óeyðandi fj&rmagn og her-
mannafjölda, og þess utan vin&ttu ef
ekki hjfelp hins voldugasta lýðveldis
í heiminum,
Hver hngsandi maður gat ’ '
séð þegar í byrjun hvernig
tlóðugi hrikaleikur mundi fai >, en
fáir munu þeir verið hafa er b. ugg.
ust við að Búar mundu sýna þ&
yörn er þeir gerðu, og gera Br tm
sigurinn eins kostnaða'rsaman. Því
þó sumir menn og blöð haldi >d
fram að Búar hafi komist að ága-.um
friðarsamningum, þá er það ekkeri
annað en hljómfagurt gjamm. r
töpuðu því, sem þeir lögðu líf o; i>
sölurnar fyrir. Þeir töpuðu ,f-
1 stæði og tilveru sinni sem séiswk
þjóð. En Bretar á hina hliðina
unnu það, sem þeim þótti mestu
varða, sem var lýðveldisstjórnin í
Afriku.
Og þó vér getum gr&tið yfir því
að þessi tvö lýðveldi eru ekki lengur
til, að ranglætið varð yfirsterkara,
eins og svo oft feður f heiminum, þá
höfum vér allir, sem elskum frið og
hötum stríð og blóðsúthellingar, á
stæðu til að gleðjast yfir því að fifð-
ur er fenginn, þó hann hafi verið
dýr, hræðilega dýr.
G.“A. Dai.mann.