Heimskringla - 12.02.1903, Page 1
XVII. WINNIPEG, MANITOBA 12. FEBRÚAR 1903. Nr. 18.
Fregnsafn.
Markverðustu viðburðir
hvaðanæfa.
—Roosevelt forseti segir að gerð
arsamningur sá sem sendiherra
Breta gerði við Bandaríkjastjórn
um f>rætumálið út af legu Alaska
landamerkjanna, ^muni ekki verða
samþyktur af senatinu í Washing-
ton.
—Tyrkja soldán er að reyna að
útvega 500.000 punda lán til að
borga vœntanlegan herkostnað í
Maccedoniu. Hann liefir reynt lén
tökima víða, en ekki tekist að fá
það. Nú er hann að semja við
tóbaksgerðarvinveldið um 100 þús-
und punda lán.
—Prefessor Baginski, yfir keis-
aralega barnaspítalanum í Berlin,
hefir tilkynt læknafélaginu, að Dr.
Aronson hafi uppgötvað lyf, sem
tafarlaust lækni skarlatssótt, ef því
sé spýtt inn í líkama sjúklingsins.
— Edward' konungur hefir í
hyggju að ferðast til Irlands ein-
hverntíma á komandi sumri. Brezk
blöð, sem mjög hafa að undan-
förnu talið hann af að fara ferð
þessa, mæla nú með henni og sega
að viðeigandi væri að konungur
gæfi þá Col. Lynch borgaralegt
frelsi í minningu uin f>á ferð. Ir-
um mundi geðjast J>að vel.
—Tvær konur voru hengdar i
Lundúnum 4. f>. m. fyrir barua-
morð. Þær höfðu tekið að sér að
veita móttöku og annast um börn
efnaðra kvenna, sem vildu losast
við pau, en gefa rfflega með þeim.
Lögreglan f>ar í borginni liefir í
síðastl, nokkur ár fundið um 100
hvítvoðunga að jafnaði á ári vfðs-
vegar í borginni. En síðan kon-
ur þessar voru handteknar, hafa
slfkir ungbarna fundir mjög svo
fækkað, og gaf það illan grun um,
að konur þessar hafi á nmliðuum
árum valdið dauða fjölda barna.
Aðrar konur þar í borginni voru
hengdar í Apríl 1900 fyrir sam-
kynja glæpi.
—Strœtisbrautaþjónar í Mont-
real, 1000 talsíns, gerðu verkfall í
síðustu viku. Þeir heimta 1, víð-
urkenning félagsskapar þeirra 2.
launahækkun, 18c. um kl.tíma fyr-
ir menn, sem unnið hafa 1—5 ár
hjá félaginu, og 20c. um tfmann
fyrir þá sem eldri eru í þjónustu
þess. 3. að fölagið taki aftur tafar
laust f þjónustu sína alla þá menn
sem það hefir að orsakalausu vísað
frá vinnu sfðan á nýári. 4. að hér
eftirskuli engum verkamanni fé-
lagsins vikið frá vinnu um stund-
arsakir. 5: að félagið fjölgi verka-
mönnum sfnum, samkvæmt auka-
lögum þess,og 6 :launahækkun|fyrir
menn, sem unnu við sporhreinsun-
arvagnana þ. 3. þ. m, Nokkur of-
beldisverk hafa þegar verið framin
í sambandi við verkfall þetta og
lögreglulið hefir verið sett til að
vernda eignir félagsins. Það er
talið að 150 þúsund manna noti
sporvagna daglega, og að verkfall
þetta komi sér mjög illa fyrir
borgarbúa.
—Fréttir frá Ottawa segja Grand
Trunk félagið hafi breytt fyrra á-
kvæði sfnu um stefnu brautarinn-
ar fyrirhuguðu, og að nú sé ráð-
gert að hún leggist um Winnipeg
og’þaðan norðvestur gegnum Ma-
nitoba og Assiniboia til Prince Al-
bert.
—Mál hefir verið hafið móti New
York Central járnbrautarfélaginu
fyrir $250 þús. fyrir dauða Alf S.
Perrin, sem lét líf sitt í slysi á
brautinni.
—Borgar, bæja ’og sveitastjómir
f Ontario áttu um síðustu helgi
fundmeð dómsmálastjóra Ottawa-
Btjórnarinnar, í sambandi við tal-
þráðalöggjöf |>á, sem á að koma
fyrir næsta rikisþing. Þessi sendi-
nefnd heimtar að stjórnin veiti
borgum og bæjum full umráð yfir
strætunum og öðrum alfara vegum.
—C. N. Ry. félagið hefir keypt
Great Nortnem járnbrautina í
Quebecfylki, als 370 mflur. Sú
braut var fullgerð í Nóvember 1900
og er þvf að eins 2 ára gömul. Hún
liggur frá Quebecborg til Hawks-
burg. Sama félag er og að kaupa
Canada Atlantic brautina, sem ligg
ur upp að Sault Ste Marie. Þegar
sú braut er fengin, f>á fær félagið
að byggja þaðan braut til Fort
William,, að f>vf loknu hefir Cana-
dian Northem félagið óslitna
braut frá Winnipeg til Quebec; f>á
stytztu og fullkomnustu í Canada.
—Blaðið “London Truth'* tekur
til þess hve konur þær, sem veita
forstöðu sjúkradeildinni í verka-
fólksstofnuninni í Colester, eru
matlystugar, f> talsins; mata þeirra
vikulega er, samkvæmt reikn-
ingum stofnuarinnar, sýnd að vera
42 pund kjöt, 42 puup kálmeti, 42
pund brauð, 6 pund molasykur, 4J
pund smjör, 6 pd. ostur, 3 pd. flesk
fi pd,Jam,l3d. egg, 21 pottur mjólk,
90 pottar tevatn og kaffl og 42 pott-
ar af bjór. Þetta gengur næst þvf.
sem nýjustu skýrslur frá Otiawa
s/na um fæðisreikning eius af
þjónum hennar hör í Winniþeg, er
auk kaups sfns gerði reikning fyrir
50c., fyrir hverja af þrem máltfðum
á dag og að auk reikning fyrir 28
aukamáltfðum á einum mánuði.
— Stjórnin f Ástralíu l>yður auð-
mönnum í Ástralfu, Bandarfkjun-
um. Bretlandi, Frakklandi og
Þýzkalandi, að leggja fram tilboð
innan 18 mánaða um áð byggja
1200 milur af járnbraut þar í landi
og býður ]>vf félagi, sem brautina
leggur, 90 millíón ekrur af landi,
sem fullnaðar borgun fyrir verk
sitt.
—Forseti Ontario- kolafélagsins
hefir verið kærður um að vera f
samsæri meðjað hindra samkepni í
sölu kola í Ontario. Mál hans var
rannsakað í lögreglurétti og [>ar
vfsað til æðra dóms, með því for-
setinn færði enga vöm móti kær-
unni.
—Vínbannslögin í Vermont, sem
verið hafa þar í gildi í 50 ár, vom
afnumin með almennri atkvœða-
greiðslu rfkisins þann 4. þ. m. Hör
eftir hefir hvert sveita eða bæja
fölag vald til að veita vfnsöluleyfi
innan sinna takmarka, ef gjald-
pegnarnir æskja f>ess.
—Eldur í Oklahamabæ gerði
$250,000 skaðaþann 4. þ. m.
—í Jan. sfðastl. seldi C. P. R.
félagið 702*581 ekrur af landi fyrir
$428.011. Can. Nortliern fölagið
seldi f sama mánuði 8,820 ekrur
fyrir $53,640, (>ða $1,00 hærra
hverja ekru, en C. P. R. föl.
ÍSLAND.
Fjallkonan, 6. Jan., segir rektor
Bjöm Olson, lektor Þórh. Bjamar-
son og Jón A. Hjaltalín liafa verfð
sæmda riddarðkrossi.
Vinnumaður, sem ritar í Fjall-
konuna, heimtar lagasmfði af
næsta alþingi, sem ákveði:
1. Lögskipaðan vinnutfma, 12
stundir á dag og fyrir hverja stund
sem unnið er framyfir þann tfma,
skuli kaup karla vera 25 aurar um
tímann, en kaup kvenna 20 aurar.
eða önnur hæfileg borgun.
2. Sunnudagar og aðrir helgi-
dagar skulu helgir frá morgni til
kvelds. Sekta skal húsráðanda
500 til 1000 krónur, ef hann lætur
lijú sfn vinna ónauðsynlega vinnu
á þeim tíma, og hjúin sjálf skulu
jafnframt sektuð fry 10 til 20 kr.
Nýdáinn er Sigurður Þorláksson
póst]>jónn f Reykjavlk, úr lungna-
tæringu.
Nýárið hefir heilsað með hrein-
viðri og fegurð, það sem af þvf er
hefir verið hæg kæla með htfið-
rfkju, sáralitlu frosti og hægum
norðanvindi.
Bréf frá
SPANISH FORK, 28. Jan. 1903
Rhst. ' Hkr.”
Þá er blessad samla árið liðið og það
nýja. gengið { aarð; og óskum vér hér að
það verði yður og ödrum löndum vor-
um bagsælt og arðberandi, Svo þakka
ég líka fyrir jólablaðið sem og allan frá-
gang á því. Það gleður víst alla sanna
Islendinga og þjóðvini að eiga kost á
að líta myndir svo margra gáfu og
mentamanna nútíðarinnar, og uð lesa
æfiágrip þeirra, sem ljóslega sýna að
þeir hafa eindregið sálarþrek og vilja-
kraft til að ná takmarkinu. Betur að
sem flestir væru svo. Þá væru Vestur-
Islendingar betur færir um að skipa
vorn bekk hiutfallslega móti annara-
þjóðamönnum, sem keppa mentaveginn
f þessu mikla lýðveldi.
Síðan héðan var síðast ritað hefir
veðurblíðan mátt heita hin ákjósanleg-
asta. Lítil snjókoma og hægt frost,
ekkert sleðafæri nú um jólin, sem þó
hefir oft átt mikinn þátt í jóiagleðinni
hér hjá oss. En í þess stað munu flest-
ir hafa fundið ánægju í að sækja heigar
tíðir og hlusta á hljómfagran sálma
söng hljóðandi um fæðingu frelsara
þessa heims. Þar voru og börnih glödd
með gjöfum af jólatrjánum, sem beygðu
greinar sínar undir þunga kertanna og
gjafanna. Hér í bæ voru jólin hátíð
leg haldin með eins sómasamlegum til-
breytingum eins og elstu landar vorir
hér minnast að hafa vanisc heima á
gamla fróni, en þó kvað mest að því hjá
lúterskum, enda er það samboðið þeirra
trú, að bera virðÍDgu fyrir Krists fæð
ing, þann 25 Des. Þjóðkyrkjan hér i
IJtah yiðurkennir ekki að hann sé fædd
ur á þeim tíma árs, heldur eiuhvern-
tíma í Apríl; um þann 16 ef ég man
rétt, ég læt ósagt hverjir hafa réttara
fyrir sór. En engan má furða á því
þótt þannig trúað fólk haldi jólin meira
fyrir siðasakir og yana, en merkan við-
burð.
Þann 5 þ. m. hélt foi stöðunefnd liins
Isl, lestrarfélags ársfund sinD, og hlatu
kosningu fyrir næsta ár: forseti, G. E.
Bjarnason; bókavörður, Hjálmar
Bjarnason; skrifari b, J. Johnson. fél.
þetta er á góðum framfaravegi, bara
þeir ungu ættu að læra að lesa sitt
hljómfagra og kæra n.óðurmál, það er
sómi en ekki vansæmd fyrir alla, sem
eiga kyn að rekja til isl. þjóðarinnar.
Lestrarfél. græddust nokkrir nýjir með-
limir og erum vér þeim þakklátir fyrir
hjálp sína, einkum hra G. O. Eiriksson,
sem er hingað svo að segja nýkominn
og, sem auk ársgjaldsins, gaf fél. aud
virði nokkurra bóka, sem er hér með
þakkað, G. O E. opnaði myndatöku-
verkstæði sitt þann 1. p. m. og stundar
nú iðn sina ásamt konu sinni, sem eins
og hann, virðist fullnuma i þeirri iðn
Það er ánægjuefn fyrir landa vora hér
að eiga ísl. myndasmið sín á meðal,
enda má vænta þess að þeir leggi sinn
skerf til þess að efla hag þeirra hjóna
hér hjá oss.
Með byrjnn þessa árs hélt lúterski
söfnuður(nn ársfund sinn og kyrkju-
ráðskosningu. Reikningar liðna ársins
sýna að hagur safnaðarins hefir þokast
drjúgum áfram í framfara áttina bæði
að formi, einingu, sunnudagaskólahaldi
og yfir höfuð öllu því er guðsdýrkunar-
starfsemi snertir. Lúterski presturinn
séra H, Marteinson er dugandi kenni-
maður og það, sem mest er um vert,
gefur gott eftirdæmi utan og icnan
safnaðarins; enda er það eina meðalið
til þess að nokkur skynberandi maður
taki nokkurt mark á kennimannsstöðu
nútímaDS fyrir sig eða börn sín. Auð-
vitað getur ekki presturinn míkið ai-
einn, en lúteski söfnuðurinn hér hefir
ætíð átt góða máttarstólpa, sem ekki
hafa dansað eftir annara pipum, en
ætíð haldið stefnu sinni beinni og óbif-
anlegri; hefði ekki svo verið þá væri
hér að líkindum enginn lúterskur söfn-
uður. í stjói narnefnd yfirstandandi
árs voru flestir þeir sömu endurkosnir,
og hra. Sæmundur Johnson kosinn yfir-
kennari sunnudagaskólans, og ungfrú
Sarah T. Johnson aðstoðarkennari oger
það vel valið því bæði eru einkar ná-
kvæm við börnin og kenslunni vel vax-
in, enda elska og virða börniu þau bæði,
einkum konuna, sem frekar öllum öðr-
um hefir gengist fyrir þvi að æfa börn-
in, stór og smá, við söng og lestur, og
hefir framkoma þeirra bæði & jólum og
oftar verið hin ánæjulegasta íyrir aila,
sem hlut áttu að máli; söngur barn-
anna, oft í margmenni, hefir verið af-
bragðs góður, og á ungfrú Sarah þökk
og heiður skilið fyrir þá rækt, sem hún
hetír !agt við skilning þeirra, eins og
ait annað, er hún leggur hönd á.
Um liðan landa vorra alment má
segja að hún sé viðunanleg, þeir þokast
stöðugt áfram í framfara og velmeg-
unaráttina. Þeir hafa keypt um
100,009 hluti í ýmsum námafélögum á
2—4 síðastl árum, og vænta þeir að
hafa af því meiri arð en nokkru öðru,
sem fátælingar eiga kost á að ieggja fé
:útt í. Þeír eru margir af auðmönnum-
Utah ríkis, sein lagt hefa fé sitt í náma-
gröft og á stuttum tíma orðið stór vel
eínaðir af því; því hér eru fjöllin auðug
af næstum alskyns málmum, og má
með sanni segja um Utah að hún er
dýrmætt ríki að fleiru en veðurblíðu, og
er enginn efi á að hún á mikla framtið.
Ráðgert er að innan skams verði byrj-
að á því þæginda- og framftra fyrirtæki
að leggja rafmagnsbraut þvert ýfir
Utahsýsluna og um aila helztu bæi
hennar, alla leið frá Lehi til Pason, um
50 mílur vegar, án allra sambands
greina. Svo þykir líklegt að VVashing-
tonst jórnin veiti fó til vatnsveitinga í
Utah. Fáist það, þá verður gott að
eiga landblett i Utali dalnum, Nú hefir
bæjarstjórnin í Spanish Fork látið mæla
út farveg til vatnsieiðslu hingað, og á-
ætlun um kostnað á því verki. Það
hefir um mörg ár verið rætt um þörf
bessa fyrirtækis, en aldrei komist
leugra fyr en nú að málið verður lagt
undir atkvæði bæjarmanna innan íárra
vikna, og talið líklegt það nái samþykt
um meiri hlutans.
Rétt fyrir jólín giftist dóttír hra. G.
E. Bjarnasonar hérlendum verzlunar-
manni, og óskum vér henni til ham-
ingju.
Bjarni J. Jónsson.
MARKERVILLE, ALTA.
24. |Jan. 1903,
(Frá fréttaritara Hkr.).
Vt'ðrátta er hér nú yfir lang-
an tfma góð og stilt. Um jólin
gerði dálítið kuldakast, en síðan
hefir verið bezta tíð, væg frost,
kyrviðri og engin snjór fallið f
þessum mánuði. Mislingaveikin
geysar hér nú á stöku heimílum,
allskæð, og skilur nálega ekkert
eftir af ungu fólki og bömum, þar
sem liún er komin; fluttist hingað
frá Calgary. Sagt er að bóluveik-
in sé komin meðal enskra fyrir
sunnan Red Deer ána, og að tvö
Township séu undir sóttverði, og
uinsjón lækna, er sendir vora [>ang-
að frá Innisfail og Calgary, þetta
er eftir lausri frétt frá Innisfail,
sem sagði veikina komna í ljós á
10 manns. á allháu stigi.
Ákveðið hefir verið að leika
“Hi>rmanna-glettur“ og annað
leikrit til, öndverðlega í næsta mán
uði, til arðs fyrir lestrarfélagið
Iðunn.
Það var myndarlegt og vel úr
garði gert jólablaðið f>itt Heims-
kringla mfn, og votta ég bæði f>ér
og hinum heiðraða ritstjóra kæra
þökk fyrir það; ég liafði hina
mestu ánægju af að lesa það, og
enga hefi ég heyrt minnast á ]>að
hér f grendinni, án þess að lúka
lofsorði á það. Pappír og allur
frágangur þess er vandaður og
efnið fjölbreytt og hugðnæmt, en
þó finst mér kvæðin eftir þá Sig.
Júl. Jóhannesson og St. G. Steph-
ansson bera af öllum hinum. Kvæð
ið “Anna“ ber vott um, að Sigurð-
ur er skáld, ekki lítið, eins og fleiri
kvæði hans sýna. Kvæði Steph-
áns eru, eins og flest sem hann
yrkir, samin með mestu vandvirkni
og snild. Jólanóttin, eftir G. A.
Dalmann, er afbragð í sinni röð,
enda minnist ég þess ekki, að ég
hafi séð neitt eftir Dalmann öðru-
vfsi en vel ritað; efnið er að jafn-
aði vel valið, hugsunin ljós og vel
samanhangandi og búningurinn og
málið sómir sér vel, og aldrei hefi
ég séð Dalmann grfpa til þess, að
beita persónulegum ósóma, þótt
hann hafi átt við andstæðinga sfna.
En svo er alt 1 blessuðu jólablað-
BW
York |
nsurance l.o.
JOHN A. McCALL, peesident.
Lífsábyrgdir i gildi, 31. Des. 1902, 1550 millioiiír llollars.
700,000 gjaldendur, sem eru félagið eiga það og njóta als gróða.
145 þús. manna gengu i félagiðá árinu 1902 með 302 miliion doll.
ábyrgð. Það eru 40 milliónir meira en vöxtur fél. 1901.
Gildandi ábyrgðir hafa aukist á síðastl. ári um 188 mill. Dollars.
Á sama ári borgaði félagið 5000 dánarkröfur—yfir 15 mill. Doll,—
og þess utan t.i) lifandi rreðlima 14J mill. Doll., og ennfremur var
#4,750,000 af gróða skift upp milli ireðlima, sem er #800,000
meira en árið 1901. Sömuleiðis lánaði félagið 27,000 meðlimum
$8,750,000 á ábyrgðir þeirra, með 5 per cent rentu og án annars
kostnaðar,
O. Olafson, J. fí. Morgan, Manager,
AGENT-. GRAIN EXCHANGE BUILDING,
AA7 HsTNTIPEG.
inu höfundunum til sóma, þrátt
fyrir það. þó eitt beri af öðru, og
mega kaupendur Heimskringlu
vera þeim iunilega þakklátir. Að
eins þætti mér hagkvæmara, að
jólablaðið værl í smærra formi,
svo þægilegra væri að geyma það
óskemt, sem annau menjagrip, til
minningarum Heimskringlu sem
er svo f jölmörgum af oss kærari en
nokkurt annað Yestur-íslenzkt
blað.
Svo óska'ég ritstjóra Heims-
kringlu og blaði lians heilla og
hamingju f framtíðinni.
ÚR BRÉFI FRÁ BALLARD,
dags. 1. Febrúar 1903.
Eftirfylgjandi bréf frá merkum
íslendingi í Ballard er svar móti
spurningu Hkr. um lát Ingvars
sál. Olson.
... .“Á föstudaginn eftir jól,
eða annan í jólnm, fór Ingvar héð-
an frá Ballard inn til Seattle, en á
laugardagsmorguninn snemma
j!anst hann liggjandi í blóði sfnu
með skurð, sem náði frá hársrótum
að aftan yfir utanverf liáhöfuðið
hægramegin og fram á gagnauga,
og annan sem tók næstum frá eyra
til eyra þvert yfir höfuðið, og tvo
minni skurði á hálsinum. Föt
hans voru rifin og hann var með-
vitundarlaus, og fekk liana aldrei
eftir það. Þetta var á bakstræti
sunnan og neðanvert við Yesler-
way. Hann var fluttur þaðan á
spítala skamt þaðan og þar lá hann
þangað til hann dó á þriðjudags
morguninn 30. Des. sfðastl.
Eftir því sem biöðin skýrðu frá
réttarhaldi, sem fram fór f tilefni af
þessum atburði, virðist sem Ingvar
sál. hafi komið inn í Willard Sa-
loon neðst á Yeslerway, mjög seint
á föstudagskveldið og beðið veit-
ingamanninn þar að vísa sér á
gistihús, og að veitingamaðurinn
liafi vísað honum á japaniskt gisti-
hús rétt þar lijá. En sökum þess
að komin var nótt, hafi framdyr
þess verið lokaðar, og Ingvar því
farið út um bakdyr saloonsins í
þvf skyni að komast á gistihúsið
um afturdyr þess, sem vissu eins
og bakdyr saloonsins að bakstræti
því er hann sfðar fanst á. Mat-
reiðslumaðurinn í Þessu gistihúsi
var tekinn fastur, fgrunaður um að
liafa ráðið fngvar sál. bana, en við
prófið sannaðist ekkert á hendur
honum, svo honum var slept- \ ið
líkskoðun þá. sem fram fór. virðist
sem læknunum hafi þótt. sennilegt
að maðurinn hafi verið sleginn
með sandpoka, því höfnðskelin var
brotin, og heilaliristingur hafi or-
sakað þetta langameðvitundarleysi
fremur en blóðmissir. Úr hans var
kyrt í vasa. lians og eitthvað af pen-
ingnm fanst, á honum. Þetta virð-
ist fremur mæla móti því að liann
hafi verið myrtur tll fjár, þó mér
vitanlega enginn efist um að hann
hafi verið drepinn.
Jarðarför Ingvars sál. fór fram
sunnudaginn 4. Jan, að viðstödd-
um mörgum íslendingum. Séra
Jónas A. Sigurðsson flutti ágæta
ræðu í líkhúsinu og embættaði við
greftrunina. Ingvar sál. var graf-
in í Queen Anne Hill grafreitnum.
Sú hæð er víst hæst og himninum
næst af öllum pörtum Seattleborg-
ar, Þaðan er útsýni fagurt ogþar
taka náttúrufegurðin og kyrðin
höndum saman yfir Ingvari sál.
hinum fyrsta íslendingi, sem orðið
hefir herfang hálfvillunnar og ó-
þokkaskaparins í Seat.tle, þessari
miklu Sodoma Kyrrahafsstrand-
arinnar.
SPURNINGAR.
Er sá maður, sem á 2 lönd i sama
skólahéraði, en sem ligeja í 2 vega-
stjóradeildum, skyldur tíl að greiða 4
dagsverk í veginum á ári, þar eð þeir
sem eiga 2 lönd innan sömu vegastjóra-
deildar, þurfa ekki að greiða nema 3
dagsverk?
SVAR. Þessari spurningu getur ekki
orðið svarað algerlega ákveðið, en 2
lögmeun, sem athugað hafa málið, era
þeirrar skoðunar, að sveitin hafi vald
til a>> leggja dagsverkin á á þenna hátt.
94. gr. sveitalaganna tekur fram, að
dagsverk séu lögð á lönd eftir virðing-
arverði þeirra, og orðið Property (eign)
er þar bundið við þau lönd, sem einn
maður á innan einn&r vegastjóradeild-
ar. Sú grein ákveður og, að 1 dagsverk
ekuli lagt á fyrir $200 landeign, og 2
dagsverk fyrir 200—500 dollara eign og
1 dagsvefk fyrir hver $500 í landeign
þar yfir,
Minnisvarði
YFIR
Gest Pálsson.
Nuer fyrsta hefti af ritum bans
fulipreutað.
VESTUR.ÍSLENDING AR!
Látið nú sjá að ýður sé ant um heið-
nr þjóðarinnar o>r kaupið þessa bók;
húu er ekki tiefin út í gróðaskyni. heid-
nr verður
ÖLLUM ÁGÓÐANUM
varið til þess að reisa Gesti PAlssyni
minnisyarða Það er heiður fyrir Vest-
ur-íslendinga að verða fyrri til þessa
fyrirtækis, en bræður þeírra heima,
Bókin verður öll um sextíu arkir i stóru
broti, eða því sem nsest
ÞÚSUND BLAÐSÍÐUR.
Þeir sem kaupa öll heftin fá þau á
$3,00. Bókin fæst hjá:
Sig, Júl, Jóhannessyni, Winnípeg,
Arnóri Árnasyni, 111 O'est Huron Str.
C lictgo, 111.
Birni Benediktesyni, Selkirk,
Steingrími S, Isfeld. Garðar
Magnúsi Bjarnasyni, Mountain,
Gunnari Gunnarssyni, Pembina.
Hirti Davíðssyni, Baldur.
Jónatan K. Steinberg, Ballard.
Thor Bjarnasyni, Dalnth.
J, Ásg, J, Líndal, Victoria.
Arthur Johnson, BraDdon.
Sigurði Jóhannessyni, Keewatin,
Bjarna Péturssyni, Hensel,
E, H, Johnson, 3panish Fork,
og víðar,
Nákvæmari reikningar verða birtir
& prenti yfir allan kostnað og tekjur,
til þess að menn geti séð að ekkl er í
gróðaskyni unnið.
Þetta verður vandaðasta, stærsta
og merkasta [bókin, sem prentuð hefir
verið hér vestra á islenzku máli; kjör-
gripur, sem ætti að vera á hverju heim
ili.
SEXTÍU ARKIR!
ÞÚSUND BLAÐSÍÐUR!