Heimskringla - 02.04.1903, Side 1
XVIÍ.
WINNIPEG, MANITOBA 2. APRÍL 1903.
Nr. 25.
Fregnsafn.
Markverðuscu viðburðir
hvaðanæfa.
Það er fyrsta ,,konan, sem
------- * 1 *
Skotlandi
—Lýðveldisforseti Castro í Vene-
zaela heflr sagt af sér.
—Lausafréttir segja að brezkar
herdeildir hafl umkringt Mullah í
Soamalilandinu í héraði, sem nefnist
Mudug. Eitt er áreiðanlegt, og það
er, að Muilah er ekki & annari eins
fleygiferð og hann heflr verið að
undanförnu. Liðið er nú undir-
orpíð veikindum, og deyr allmargt
af því. Þar að auki er það óánægt
við höfðingja siun.
—Kona *hefir sótt um að verða
tekinn inn í lögfræðihga tölu á Eng
landi.
sækir um þetta þar. Á
sótti kona um það sama, árið 1900,
en var neitað. Sumir halda að
beiðni þessarar fyrnefndu konu fari
sömu leiðina.
—Nú sem stendur eru að eins níu
þingmenn í • efri málstofunni, sem
eru erindiekar þjóðarinnar vestan
við stórvötnin. Síi tillaga kemur
nú fram í sambandsþinginu að fjölga.
þeim, og láta þá vera 24. Strand-
fylkin New Brunswick og Nova
Scotia hafa 24, Quebec 24 og Onta-
rio 24. Uppástungan er, að New
Brunswick hafi 10, en 13 þingmenn,
Nova Scotia sömu tölu. Prince
Edward l9land á að hafa 4 í efri
málstofunni og 4 í neðri. A meðan
fleiri Gonservatívar voru í efri mál-
stofunni, hélt Laurier og Liberalar
því frarn, að senatið væri þýðing ir-
laust, og ættí að afnemast. En síð-
an Liberalar urðn þar fleiri en Con
servat,, þykir öðrum þeim mönnum
mikil nauðsyn bera til að haida því
við, og auka tölu þeirra, meira að
segja.—Mikil er sú laurierska sam-
kvæmni hátt og látt.
—Seint 1 f. m. drap kona f Banda
ríkjunum 4 börn sín. Hún brytjaði
þau sundur með viðarexi. Að því
búnu kveikti ; hún í húsinu og skar
sjálfa sig á háls. Menn bar þar að
áður en húsið brann og sáu hvernig
ódáðaverk þetta hafði verið unnið.
Konan hettr briálast alt í einu.
Uppreistarmenn náðu borginni
San Domingo á Haiti eyjunni á sitt
vald seint í fyrra mánuði. Þeir
hafa tekið að sér öll stjórnarstörf.Ráð
gjafar fyrrverandi stjórnar flúðu
undir þak hjá sendiherrum annara
ríkja.—Lýðveldi þetta var stofnað
1844, og stjórnarskrá þess löggilt 18.
Nóvember s. á. En breytt og end-
urstaðfest 14. Nóvember 1865, eftir
uppreist og burtrekstur spönsku her-
mannanna, sem réðu þar mestu 2
undanfarandi ár. Svo var henni
breytt að meira og minna leyti:
1879, 1880, 1881, 1887 og 1896.
Forseti var ko3Ínn til fjögra ára.
Eyjan er talin 18,045 ferh.mílur
enskar, og fólkstalan er 625,000.
Henni er skift f 6 fylki og 6 strand-
fylki. Fólkið er þar af ýmsum
blökkamanna þjóðflokkum, og rnikið
blandað at Spánverjum. Norður
landamenn eru þar nú mestu ráð-
andi. Bærinn ^Santo Domingo var
bygður 1494, ogstendur við Ozama-
fljótjð. Hanuhettr um 20,000 fbúa.
Eyjarskeggjar hafa þar töluvert
varnatlið og einnig nokkra hermenn
f hverja fylki. Rikið á þi já skot-
báta.
— Einn at' æðstu hersnöfðingjum
Breta, Sir Ilector Macdonaid, drap
sig í vikunni sem leið. Hann var
staddur í Pavis, og skaut sig þar.
Hann var næst þeim allra hæstu
hershöfðingjum Breta, og að eins
um fimtugt að aidri, Hann hafði
unnið mörg hreystívei k, og var lfk-
legur til að verða œðsti hershðfð-
ingi þá þeir væru liðnir undir lok,
sem nú skipa þá stöðu. Framúr-
skarandi kvennafarog enn þá meiri
svívirðing I þá átt olli því að
hann drap aig. Sir Hector var
einn með mestu herforingjum Breta.
Hann var Há-Skoti.
— Hartman Machine Works í
Chemnitz á Þýzkalandi heflr pöntun
frá Canadian Pacific Ry. fél. fyrir
20 brautfetum. Þetta er fyrsta
pöntun, sem komið hefir til Þýzka
lands úr Norður-Amerfku fyrir lest-
drögum.
- Það er sagt að hungursneyð sé
á Japan norðanverðu. Fólkið hefir
ekki annað en gras og rætur að lifa
á. Samskot eru byrjuð, og ólíklega
verður þar mannf'ellir að mun.
—Þingmaður MacNeill, í brezka
þingiuu, spurði Chamberlain eftir,
inn í þingsalnum, í vikunni sem
leið, hvað margir Búar væru enn
hafðir í haldi af brezku stjórninni.
Hann kvað þá vera um 800 Það
væri ekki hægt að láta þá lansa, af
því þeir neituðu að taka hollnustu-
e!ðinn. En hann hefir yonir um að
Botha fái þá til að leggja af eiðinn.
—Það er talað um það á Englandi
að Chamberlain hafl vænt eftir, að
hann yrði einhvers vísari um gull
það, sem Bretar halda að Búar hafl
falið í jörðu, eða gamli Krugor náð
í burtu með sér, en nú er það trú
manna, að Chamberlain hafl einskis
vísari orðið. Það voru sérstaklega
tvær upphæðir, sem hann var að líta
ef'tir. Önnur £250,000, en hin
£750,000. Manntetrið kvað segja,
að hann sé engu nær, og það muni
ekki vera auðgert að ná í þetta
grafna gull, sem líklega heflr eins
mikið og nokkuð annað gint hann
til Suður-Afríkn,
—Mælt er að Kússar hah geflð
Serbum 10 millíónir byssuskot, en
skotfætin vetða ekki flutt suður fyrr
en í Maí.
Uppreist á Trinidad eyjunni.
Skríllinn dreparogæðir um alt.
—Nýlega var biblíuhandrit selt á
Englandi fyrir £610 eða $3,050.
Það var ritað á bókfell og er hið
prýðilegasta. Talið engil norrænt,
og ritað litlu eftir 1200,
- Leikhúsið í Toronto brann um
miðja fvrri viku.
—Liberalar f Manitoba ætla að
leggja út í næstu kosninga með
gamla Greenway i broddi fylkingar.
Hann er nú 65 ára gamall, og orðinn
úrillur f skapi og með þverrandi
sansa. En ei er um auðagan garð
að gresja fyrir þá.
—.Ensk blöð tala mikið og mæla
fast fram með að landlög íra séu
yfirskoðuð og rýmkuð af enskaþing-
inu.—Slfks er full þörf, en Bretar
hafa hingað til ekki lagt sig mikið
í framkróka með frelsisveitingar til
Ira, og er enn óvíst hvert þingið
bætir þessi lög nokkuð.
— Kappsiglingaskipið Shamrock
III. er nú svo langt koraið í smíðura
að farið verður að prófa það 4 sjó.
—Óvanalega mikill vesturflutn-
ingahugur yiiðist nú vera á meðal
Dana, Norðmanna og Svía. Munu
haiðindi valda honum.
—Ráðaneytið í Bulgaria hefir ný
lega sagt af sér. Var það út at her.
málaþrasi.
—Sú saga flýgur nú út, að stórt
meginland munf vera við suður-
heimsskautið. Skipsstjóri Scott, er
réði fyrir skipinu Discovery, helir
komist 100 mflum sunnar en nokkur
annar maður heflr áður gert. Pann
var með kipshöfn sfna f náttúrufræð
is rannsóknum þar syðra. Hann
kveðst háfa fundið þar meginland
mikið, sem sé ákaflega fjöllótt og há
lent, nái alla leið til 80. st. br.gtáðu
og eins largt suður og hann veit.
Hann heldur að það nái alla leið
að suðurpólnurn, og á þvi séu himin-
gnæfandi fjöll. Hann segir að þessi
landfundur sé sú mesta landupp
götvun, sem til sé frá jarðfræðislegu
sjónarmiði, sera gerð hefir verið á
suðuhelft hnattarins. Þeir félagar
voru að kanna land þetta í
Febrúar í fyrra. Þeir komust syðst
á 83 stig 17 m. s.br. og það á sleð-
um; Þá mistu þeir hundana 9veitar-
foringi Shockleton var þá nærri
dauður af ferðavolki.
Gimli fundurinn
Útnefningarfundur Conservative-
flokksins f Gimli-kjördæminu fór
fram í Gimli bæ þann 25. Marz, eins
og auglýst hafði verið, og er það
talinn sá fjölmennasti pólitiski fund-
ur, sem haldinn hefir verið í Gimli-
sveit. Menn sóttu fund þenna úr
öllum bygðum héraðsins, frá Mikley,
ísl.fljóti, Geysir, Árdal, Hnausa,
Árnes, Húsavick og Gimli bygðum,
og er talið að um 200 manna hafi
verið á fundinum. Húsið Skjald
breið, sem fundurinn var haldinn i
var svo þétt skipað áheyrendum að
ekki að eins var hvert sæti skipað
heldur urðu ýmsir að standa sem
fjamarlega voru í húsinu.
Forseti, Jón Sigvaldason, frá ísl,-
fijóti,-setti fundinn kl. 2 30 og skýrði
frá verkefni hans. Stefán Sigurðs-
son frá Hnausum, hélt lipra ræðu og
útnefndi B. L. Baldwinson íyrir
merkisbera flokksíns við næstu kosn-
ingar, Sveinn Thorvaldsaon studdi
þá útnefningu með skörulegri ræðu
og var hún sámþykt í einu hljóði.
B. L. Baldwinson talaði því næst á
annan klukkutfma og varði starf-
semi stjórnarinnar og stefnu liennar.
Hann tók útnefningunni og þakkaði
fyrir heiður þann og tiltrú setn kjós-
endurnir sýndu sér. Að lokinni
ræðu sinni bauðst hann til að svara
hverjum þeim spurningura sem
kjósendur vildu spyrja, en engir
gáfu sig fram. Þá bauð forseti iund
armönnum að taka til máls, en batt
ræðutíma hvers eins við 15 mínútur,
og með því að engir gáfu sig fram
þá var fundi slitið nær kl. 5 um
kvöldið með þreföldu húria fyrir
Roblinstjórnina, þingmanninn og
konunginn.
Hinn 12. þ. m. foru og héðan
upp á nýtt tvær íslenzkar fjölskyld-
nr til Alberta. Það voru herra Guð
mundur Guðmundsson, og Jóhann
Pétur Johnson, tengdasonnr hans,
irá Scofleld. Seldu þeir báðir óðal
stn hér og fluttu svo alfari með bú
slóð ocr feitthvað af gripum, helzt
hestum og nautnm, en hvernig þeim
líst á sig, höfura vér ekki frétt, því
þeir hafa ekki skrifað neinum hér
síðan þeir fóru. Teljum vér víst, og
óskum, að þeirn farnist vel, því þeir
eru bæði ráðdeildar og dugnaðar
menn, og er oss fyrir þá sök hin
raesta effirsjón að burtför þeirra héð-
an úr vorum fámenna íslenzka hóp.
Herra Guðmundsson er maður hnig-
in við aldur, en samt ern og frískur
enn. Hefir hann staðið hér í
fremstu röð, sem félags og framfara
maður, og búið hér laglegu búí, svo
oss er sérstakur bagi að burtför hans
fyrir margra bluta sakir. Létu
landar vorir og löndur það ltka bezt
í Ijósi, að þeím þítti eftirsjón í bui t-
för hans og þeirra hjóna, með því
að halda þeim að skilneði heiðurs-
samsæti, til að kveðja þau og óska
þeim til lukku.
Þrjár eða fjórar fjölskyldur,
seru ekki hafa verið taldar hér að
framan, kváðu hafa í hyggju að
flytja sig héðan í vor. Ætlar ein
þeirra til Blaine, VVash,, en hinar
til Alberta.
Haldi þessum burtflutningum
áfram, sem nú er alt útlit fyrir, verð
ur ekki langt að bíða þess, að þeir
verða flestir farnir frá Zion. Samt
trúi ég ekki að svo fari, því hér er
nokkuð mannmargt af Islendingum,
og liður þeim yfirleitt vel. Þessi
bm tfaiarhugur orsakast heldur ek-vi
af neinum bágindum eða bas-i, held-
ur af framfaiahug, til þess að trj'gga
enn betur framtíð sina í landinu.
Friður sé með þeim! Vér ósk-
um þeim öllum til lukku og langra
llfdaga.
E. H. Johxson.
ew
nsurance
JOHN A. McCALL, president.
Lífsábyrgdir ígildi, 31. Des. 1902 1550 niillionír llollar*.
700,000 gjaldendur, sem eru félagið eiga þaðog njóta als gróða.
145 þús. manna gengu í félagiðá árinu 1902 með 302 miliion doll.
ábyrgð. Það eru 40 milliónir meíra en vðxtur fél. 1901.
Gildandi ábyrgðir hafa aukist á síðastl. ári um 188 mill. Dollars.
Á sama ári borgaði félagið 5000 dánarkröfur—yfir 15 mill. Doll,—
og þess utan t.il lifandi n eðlima 14J miil. Doll.. og ennfretnur var
#4.750.000 af gróða skift upp milli rreðlima. sem er #800,000
meira en árið 1901. Sömuleiðis lánaði féiagið 27,000 meðlimum
$8 750 000 á ábyrgðir þeirra, með 5 per cent rentu og án annars
kostnaðar,
C. OlntVon, .1. <4. florgnn, Manager,
AGENT. GltAIN EXCHANGE BUILDING,
•W I TsT JST IPEG.
Eftir sögu þeirra heflr eldurinn
að líkindum haft upptök sín í eld-
húsinu-
Sigríður kona Stephans sál. var
þessa nótt vestur í Geysirbygð með
yngsta son sinn, Oddleif; hafði
brugðið sér þangað að finna sj'stir
sína, konu Gests Oddleifssonar.
Stephan sál. var kjarkmaður hinn
mesti og mikjlmenni að burðum, eins
og Gestur bróðir hans; hann var
stiltur, vinafastur og drengur hinn
bezti, og harmdauði ég beld öllum
sem kyntust honum, og er það sjald-
gæft.
Stephan sál. var í lífsábyrgð í
Forester fél., og hús hans var vá
trygt.
0. G. A.
SPANISII FORK, UTAII,
17. Marz 1903.
Herra ritstj.:—Á meðal helztu
tíðinda, sem driflð hafa á daga vora
þenna liðna vetur, er, að hann hefir
þótt nokkuð harður, ef'tir því sem
hér er að venjast. Lá snjór á jörðu
fyrir ianga tíð, og fiostin voru svo
hörð víða, að fénaður fraus til dauðs.
En nú er skift um; snjór því nær
upptekin og lítur út fvrir að vortíð
sé að byrja.
Heilbrigði heflr verið svona í
meðallagi Þrír kvillar eiu samt
álitnir verstir, nefnil. bólan, misl-
ingar og “Alberta fever-in”. Hafa
margir sýkst af bólunni, en engir
dáið; sama erað segja með misling-
ana. Eu Alberta-sýkin er verst.
Hún heflr lagst töiuvert þungt á
marga, og hafa landar vorir ekkí
síður en aðrir orðið fyrir því. Bar
iyrst á þessu á siðastl. sumri, en svo
hefir það einlægt færst í vöxt, og er
nú næstum komið í algleyming.
Til að byrja með mætti geta
þess, að einn Ialendingur, að nafni
Tobtas, flutti héðan til Albeita síðast
liðið vor„ og settist þar að. I sumar
sem leið fóru þangað tvær íslenzkar
konur, sem giftar voru enskum
mönnum. I haust flutti þangað
herra Ingimundur Johnson með
fjölskyldu, og í Febrúar tóku sig
héðan upp og fluttu þangað þrir ung
ir og röskir menn: Kristión bóndi
Guðnason og stjúpsonur hans, Tóm-
as að nafni' sá þriðji hét Vilhjálmur
sonur herra Péturs Valgarðsjonar,
elns vois bezta búhölds og framfara
manns. Fóru þeir allir í þeim er-
indagerðum að nema lönd í Albeita,
og gerast sjálfseignar bændur þar,
ef þeim litist yel 4 landið, sem þeim
hefir óef að gei t, því þeir hafa ailir
skrifað þaðan góðar fiéttir og ráð
gera að setjast að fyrir fult og alt í
Albeita. Kona Kristjáns og bðrn
kv&ðu ætla í Maí næstkomandi.
HNAU8A 25. Marz 1903.
Sorglegt, og stórkostlegt slys vildi
til hér í Breiðuvík nóttina milli 12.
og 13. þ. m. Þá brann hús Stephans
Oddleifssonar til kaldra kola, og inni
í þvi brunnu Stephan sj&lfur og syn-
ir hans 2, Stephan 11 ára og Anton-
íus 7 ára, en út komust: Guðmundur
14 ára og Jón 12 ára. — Guðmundur
lét sig detta út um loftsglugga og
komst það ómeiddur að öðru leyti
en því að hann skarst á höndum dá-
lít'ð af rúðubrotum í glugganum.
Jón komst ofan stigann og fjdgdi
faðir hans honum það, líklega ti! að
vita hvernig honum reiddi af út úr
brunanum; sá Jón hann ekki framar.
Mun Stephan þá hafa farið upp, eða
rejrnt til að fara upp til að bjarga
yngri biirnunum, en þá hefir bæði
loftið og stiginn verið svo bruunið
að það hefir hrunið ofan I eldinn.sem
undir hatt verið og þeir þá kafnað
strax, Jóu komst út um stofu-
gluggann niðri eftir að hann skildi
við föður sinn í eldi og reyk, og var
furða að hann skyldi ekki vera
skemdari en það, að sviðnað hafði
hár hans nokkuð. Þegar þeir her-
fættir á nærfötum einum, í frosti
miklu, voru komnir út, höfðu þeir
stanzað lítið eitt við húsið í b&li, lík-
lega í þeirri von að sjá föður sinn
eða bræður koma út úr þvl, fóru
þeir strax að húsi Magnúsar Magnús-
sonar, vöktu þar uppj(um kl. rúml. 2)
og sögðu hvernig á stóð. Fór hann
og piltar hans strax að húsinu, sem
þá var alt í björtu báli, og sáu hvorki
né heyrðu nokkurt lífsmark manna
þar, og ekkert tækifæri til að geta
við nokkurn hlut r&ðið.
Dvengirnir Jón og Guðmundur,
urðu strax mjög veikir eftir að þeir
voru komnir í hús Magnúsar og ofan
f rúm þar, bæði af uppsölu og angur-
værð, því bæði hafði reykjarsvælan
farið ofan I þá, og auk fless hefir
frostið haft áhrif á þá þe3sa stund
sem þeir hafa verið úti hálf berir, og
að öllum líkindnin h&lfringlaðir.
Móðir og systkini Stephans sál, sem
búa í Winnipeg, voru viðstödd út-
föiina, með þeim kom séra Bjarni
Þó arinsson, sem fenginn hafði ver-
ið til þess að flytja aðra aðalræðuna
við útförina. Kistan var einnig frá
Winnipeg og var sú skrautlegasta,
sens komið hefir til nýlendunnar.
Menn frá öllum bygðum Ný-Islands
voru viðstaddir þessa athöfn, sömu
leiðis nokkrir frá Selkirk og Winni-
peg. Þetta var efiaust sú fjölmenn
asta og að öllu leyti veglegasta
greftrun sem farið hefir fram í Nýja
íslandi og bar þess ljósan vott hve
einkar vinsæll hinn látni var, og hve
sárt hans er saknað af allri bjrgðinni
I heild sínni.
tónskáld WolfganK Adameue Mozart,
oj hefi ég oft heyrt þaú spilad en aldrei
eins vel oíj í þetta sinn, enda er það
mjög erfitt sé það spílað með réttum
hraða og áherzlum, eins og í þttta sinn
var gert, og það án þess að hafa nokkr:
ar nótur fyrir sér. Kæra þðkk fyrlr
þetta lag, litia stúlka.
Eftir að hafa verið klöþpuð upp,
spilaði hún “Kveðju Brethoveus1' og
fórst prýðil. Hið siðastnefi da spilaði
hún af blaði, Ættu íslendingar marga
krakka, sem gætu komið fram sjálfi m
sér og öðrum til sóma, eins og þessi
litla stúlka. þyrfti engin vandræði að
vera að f& að heyra almennilegt lag á
prógrame. — Með von um að fá að sjá
þetta nafn á prtgrame oftar.
M- Þ,
Næsta sunnudag messar séra Stef-
án Sigfússon í Unit‘i"akjrkjr,nrvl. '<
Ný heimilísréttarlönd í Gimli-kjör-
dæmi eru kominn inn á skrifstofu
Ottawastjórnarinnar í Winnipeg, það
eru Townships 19, 20, 21 og 22 í röð
1 austur og Townships 21 og 22 í röð
2 austnr. Menn geta því nú snúi
s :r tafarlaust til Dominion Land
Agent í Winr ipeg og rltað sig fyrir
heimilisréttail indum á þessu svæði.
WINNIPEG.
Gjafir f lijálparsjóð Svfanna
Frá Freyju............ $ c
B. B. Sveinsson, Span. Fork 1,00
Mrs S. B. Sveinsson “ 50
H, Bjamason “ 50
Mrs Sigþ. Ólafsdóttir' Wpg. 50
Mrs Sv. Þorvalds., Icel. Rivt-r 1,00
Skrifstofa “Freyju" er nú 530
Maryland St. Winnipeg.
Gjafir til Finnanna:
Sigþrúður Ólafsdóttir. Wpg. $1,00
Jóhann Borgfjörð “ 1,00
Mrs Guðrún Skagfjörð “ 50
Hra S. Thorarinson, Gimli,
koin inn á skrifstofu Hkr snemma
f vikunni. Hann er skattheiintu-
maður Gimlisveitar og var hér
staddur viðvfkjandi [>ví starfi sfnu.
Nýr leikur verður leikiun um
þanu 20. J>. m. undir umsjón Stú-
dentafél. Haim heitir: ‘Dóttir
fangans", þýddur úr ensku og hefir
iildrei verið leikinn áður á meðal
íslendinga. Nánari uppl/singar í
uæsta blaði.
Fyrir einn dollar
Þar eð útgeíendumir a.ð ritum
Gests Pálssonar hafa fundið ujjp á
því vísdómsráni, að selja nú þetíar
fyrsta bindi j>eirra með niðursettu
verði, þá auglýsi cg liér nieð að
þeir sem vilj i get i pantað hjá mér
bókina forir $1.00 á nieðan þessi
eintök hri kkva sem ég tók upp í
skuld hjá þeim herrum. Hra. H.
S. Barkal hefir einnig umlioðssölu
á bókinni fvrir mfn i höed o>- selur
hana fjrir einn ' ollar.
n. Petursson,
78 7 Notre Dame Ave.
VVINNIPEG.
L, E, me'i lin er.i nii'ai lega betri
nn önnur ineéöl í öllam til ellum, ef
dútlinguiinn brúkar | & i t-i ,s og hon-
aui er sagi. Gigtar, hóstameðal cg
t»ringarmeðöl. eru áieiðailej að bæta
fljótt og vel, Ég pantft n ef öl við stað-
alda| sjúkdómmri. $1 verður að fvigja
hverri pöntun og sjúkdómslýsing (ekki
yfir 20 orð), eftir 8 daga frá pöntun ern
meðölin tilhji mér. Pantið þaui tírna.
K. Á, Benediktsson.
Samkoma var haldin í Tjaldbúðar-
kyrkjn isíðastl. mánudagskveld. Þar
fór alt mjög laglega fram; allir gerðu
sitt verk vel, en eittj bar þó langt af
öllu, sem fram kom. Það var Miss
Eiaarsson (Jóus Einai ssonar), ung
stúlka, frá 10-12 ára gömul, Lag það
er hún spdaði, er eftir hið nafnfræga
Ff nokkur væri sá, er byrjtt
vildi greiðasötn, get ég rent-
að lionum ódýrt og rúmpott
húsnæði jafnframt því að
selja honum flesta þá hluti
sem til þess heyra, þar ég
hætti greiðasölu nú bráðlega.
Þess utan hef ég lítið brúk-
aða saumamaskínu, “White”
til sölu með gjafverði. Kom-
ið sem fyrst, sjájð og skoðið.
F. Th. Svarfdal,
538 Ross Ave Winnipeg.
Heimili séra Bjarna Þórarinssonar
er að 527 Young Street.