Heimskringla - 31.12.1903, Blaðsíða 4

Heimskringla - 31.12.1903, Blaðsíða 4
£ HEIMSKRINGLA 31. DESEMBERBER 1903. * Winnipe^. Almennar hlutbafa ársfundnr verður haldinn í The Heimskringla News and Publishing Company (Limited) á skrifstofu blaðsins, að 219 McDermot Ave. á laugardaginn 28. Janúar 1904, kl. 8 að kvéldi. Hluthafar eru ámintir um að sækja fund þenna. Útgáfunefndin. Conservatíva klúbburinn heldur Pedro kappspil í samkomusal sínum á hverju þriðjudagskveldi, Hið fyr6ta var haldið þann 23. þ. m. Arni Þórðarson vann gullknapp og J. Christie silfurhnapp og G. Nelson vann bronzknapp. 16 menn tóku þátt í þessu spili. Concert og Dans Undir Umsjón Th. Johnstonar, VERÐDR HALDIN Á GAML- ÁRSDAGSKVELD. Cor. Princess & McDermot. PROGRAMME: 1. Piano Solo—Miss Dobie. 2- Flólín Solo—Th. Johnston. 3. Vocal Solo—Th. Thorolfson. 4. Fíólín Solo—Miss Rosie Dobie. 5. Piano Duet—Mr. J. Pálsson og Miss Emma Baldwinson. 6. Fíólín Solo—Th. Johnston. 7. Piano Solo—Miss Dobie. 8. Fíólfn Solo—Miss Rosie Dobie. 9. Vocal Solo—Th. Thorolfaon, 10. Recitation með Piano undir- spili.—Miss Rosie Dobie, Aðgangur 35c. Sunnudaginn 3. Jan. verður messað að kvgldinn i Unitarakyrkj- unni á venjulegum tíma kl 7 e, h. Kl. 3 e, h, kemur sunnudagsskól- inn saman og er mælst tik að öll þau böm, er ætla að sækja bann framvegis verði f>á til staðins. Söngæfing verður haldin kl. 2.30 og eru allir úr söngflokknum beðn- ir að mæta. Lesendur Hkr. eru beðnir af sökunar á þvf, að í niðurröðun myndanna í jólablaðinu hefir mynd séra Bjarna | Þórarinssonar verið sett á undan mynd séra H. Thor- grimsen, en átti að vera á eftir henni, miðað við aldur prestanna. Safnaðarfundur verður hald- inn í Tjaldbúðinni á fimtudags- kveldið 7. Jan. Þá verða lesnar upp allar skyrslur fyrir siðastliðið ár, og enn fremur kosnir nýir em- bættismenn fyrir næsta ár. Það er mjög áríðandi að þessi fundur verði vel sóttur. J. Gottskálksson (forseti). C. G. Johnson, 538 Ellice Ave ,selur nú og fyrir Jólin og nýárið bezta hangikjöt, rúllupylsur og alslags aðrai tegundir af kjöti og fuglum Tvær greinar og kvæði sem áttu að koma í jólablaðinu komust ekki vegna rúmleysis. Þetta verð- ur birt við fyrsta mögulegt tæki- færi í komandi blöðum. Bústaður séra Bjarna Þórarins- sonar er nú 725 á Sherbrooke street. Strætisvagninn rennur fram hjá hús inu. Herra Gísli Ólafsson, fóðursali, hefir sent Hkr. mjög skrautlegan og þýðingarmikinn Calendar fyrir árið 1904. Myndin sýnir krýningu Breta konungs og drotningar. Að þvf verki vinna erkibyskupinn af Ganterbury Dean yfir Westminster, Duke of Devonshire og önnur stór. menni og mesti fjöldi fólks er þar í salnum. Allar myndirnar eru svo skírar, sem maður horfi á fólfalð lif- andi. Þetta er 6á lang fegursti Calendar, sem vér höfum séð 1 lang- an tíma. — Haf þökk fyrir gjöfina Gísli, það er gert sem þú gerir. Almanak O. Þorgeirssonar fyrir árið 1904 er nýútkomið. Það er stærra nú en nokkra sinni fyr, yflr 100 bls. af fróðlegu og skemtilegu lesmáli, auk tfmatalsins, mynda og auglýsinga, prentað tkýru letri og á gSðan pappfr, skorið f sniðum og f þykkri vandaðri kápu. Yfirlit efn- isins er birt í auglýsingum höfund arins í blöðunum og þvf óþarft að taka það hér fram. En þess skal getið að greinarnar um Björnstjeme Björnson og Rooievelt forseta eru vel samdar og skemtilegar. „Dauð- inn“ smásaga eftir Gunnstein Eyj ólfsson, er eins og alt annað eftir þann höfund, vel samin og skemti- leg. Safn til Sögu íslendinga í Vesturheimi, eftir séia Friðrik J. Bergmann, er aðal kjarni ritsins og tekur upp mestan part af því. Það er saga íslendina 1 Winnipeg, og er þessi kafli að eins partur af henni Framhald á að verða í næsta árs Almanaki. Partur þessi fjallar um stofmín blaðsins Framfara og sfðar stofnun blaðsins Leífs; svo um land- kaup. Gróðafélagið. Helga sál. Jónsson, Jón Júlíus og fl. menn. er gerðu3t forkólfar ísl. framfara í bæ þessum á þeim tíma. Einnig er sögð saga Framfarafélagsins og saga kyrkjulegrar starfsemi á þeim tfm- um og saga Fyrsta ísl. kvenfélagsins er stofnað yar í Winnipeg. Grein um Björn Jónsson ritstj. ísafoldar, eftir séra Fr. J. Bergmann og grein um virkið mikla víð HudsonsflóaDn, grein um búskaparsögu íslendinga í Vesturheimi og siðast merkustu við- burðir og mannalát Vér teljum Almanak þetta fylli- lega þe3s virði að það sé keypt og lesið á hverju ísl. heimili hér vestan hafs. Kvenfélagið Gleym mðr ei ætl ar að halda skemtisamkomu á Odd- fellows Hall 13. næsta mánaðar til arðs fyrir fátæka og þurfalinga. Samkoma þes3i verður óefað góð eins og aðrar samkomur þess félags eru vanar að vera, Nánari upplýs- ingar síðar. Vér viljum minna lesendurnar á samkorau þá sem kvenfélagið Gleym mér ei ætlar að halda 13. næsta mánaðar til arð3 fyrir fátæka Þar er tækifæri fyrir hugsandi og velviljað fólk að taka þátt í sam komnnni og þar með að gleðja þá. þurfandj á nýja árinu. LAND TIL SÖLU Þeir sern hafa hús og lóðir til sðlu snúi sér til Goodæans & Co. No. 11 Nanton Block, Hann útvegar pen- ingalán í smáum og sióxum stfl. Kr. Ásg. Benediktsson fer ekki suður tjl Dakota, eins og hann hafði ætlað sér, fyrst um sinn.vegna veik- inda sem þar eru, og samkomu banna. OLI SIMONSON MÆLIR MKÐ SÍND NÝJA Skandinavian Hotel 718 91 ain 8tr P'æði ÍI.OO á dag. Enn þá vottorð. Ég hefl notoð Dr. Eidrids með- ölin nafnfrægu og hefi ég ekki f síð- astliðin 3 ár haft jafngóða heilsu og nú, þrátt fyrir það, að ég vinn erf- iðari vinno en nokkru sinni Aður. Meðölin hafa reynst mér ágæt, og mæli ég fram með þeim við þá sem meðala þurfa. Margrét Jónsdóttir. Glenboro í Des. 1903. Hagyrðfngafélagið heldur fund laugardagskveldið 2. Janúar 1904 á skrifstofu Freyju, 530 Maryland St. kl. 8. Árfðandi að allir félags- menu mæti. Nýir meðlimir verða teknir inn. Stúlkan Sarah Anderson, sem týndist frá Alberta Hotel í Calgary er nú fundin. Vilji faðir hennar vita um hana, þá geri hann svo vel að koma á skrtfstofu Heimskringlu og fá núvarandi nafn og áritun henn ar og borga kostnað til ritstj. C. Eymundson. Herra Kristinn Lármann á bréf á skrifstofu Fkr. Magnús Bjðrnson 11 McDonald St. selur eldivið fyrir peninga út í hðnd með leegra verðe en aðrir viðarsalar i bænum. PeniDgar fylgi pöntunum. MagnúsBjörnson, 11 McDonald St- Herra Jóel Steinsson í Birch Bay, Wash, biður þess getið, að á- ritun hans er héreftir: Blaine P. O. Wash. U. S. A. Sparid peninga ydar | Og bökunar efni, egg5 mjöl % og annað, með því að nota ^ BLIIE KIBBOM BAKISíO l’OWDEK sem ætíð gefur góðan árang- ur, Enginn vandiað baka, og engin ónýt bökun þegar ^ BLUEKIBB09 BAKIKK POWDER. \ er notnd. Biðjið matsala um það. í næsta mánuði býst Unitara- söfnuðurinn við að halda skemti- samkomu. Nánari auglýsing um það kemur síðar. LEIÐRÉTTING.—Nærri byrjun greinar minnar 10. No. Hkr. er prentvilla, á að vera f engu prest- amir mörg sómaboð. Br. Brynjólfsson. Allkalt veður J>essa daga, 38 stig fyrir neðan zero. Það er mesta frost sem komið hefir á vetr- inum, en varaði að eins V2 dag, ^nn er kuldinn að jafnaði um 20 stig fyrir neðan zero. $13,000 ný bygging á norður- Main St, brann til ösku á sunnu- dagskveld um miðnætti. Um 30 manns var í byggingunni og kom- ust allir lífs af, en margir vom mjög hætt komnir í eldinum. þórður Bjamason, Svold, kom hér til bæjarins um miðjan þ. m. og dvaldi hjá kunningjunum ,fram að jólum. Hann lét vel aflfðán landa vorra f bygð sinni. Einar Karl Sigurðsson fr4 Búðareyri í Seyðisfirði er beðinn að láta systur sfna. sem býr að 799 Fllice Ave., vita um verustað sinn. hið fyrsta, eða hver annar, sem veit um hann. Sveinn Eirfksson, að 584 Sherbrooke St. hefir til leigu ágætt herbergi, svefnherbergi. Þeir sem vildu búa í nýju húsi á ágæt- um stað f borginni, geta snúið sér til hans. Thomas í Þorsteinsson, 190 Agnes St., Winnipeg, gerir við als- kyns skótau, töskur, ólatau—ak- týgi og skerpir sagir. Maður pessi er nýkominn frá Islandi með’stóra fjölskyldu Islendingar sem eitt- hvað hafa er viðgerðar þarf, gerðn vel í að láta Thomas sitja fyrir því. Maðurinn er tátækur, en þarf að lifa. —190 Agnes St. I tilefni af fyrirspumum úr ísl. nýlendum er þess hér með get- ið, Draupnir, saga Jóns byskups Arasonar, sem fyrir löngu var send hingað vestur. er enn ókomin til Winnipeg. Útsölumönnuuum verða sendar bækurnar strax og þær koma. George Galt, ritari fyrir Win- nipeg-spítalann biður blað vort að færa íslendingum alúðarfylstu pakkir spítalanefndarinnar fyrir $154.20, sem 2 íslenzkar konur hafa safnað og afhent spita’astjóm- inni fyrir jólin. Sérstaklega biður Mr. Galt að geta með virðingu og pakklœti þeirra Mrs Signýar Olson og Mrs Agnes Thorgeirson, sem gengust fyrir þessum samskotum. E. Stewart, superintendent of Forestry Dept of Interior, Ottawa, biður J>e8S getið að allir bændur, sem óska að planta trjám á lönd sfn á árinu 1905 vildu senda skeyti um það til hans fy> ir 1 Marz 1904, og mun þá deildin senda mann til að líta yfir lönd þeirra og hjálpa þeim til að velja heppilegustu trjá- tegundir og senda J>eim þær og yf- ir höfuð að styðja bændur Jeftir megni í þvf að planta trjám á lönd sfn. Stúkan flekla er að undirbúa afmælissamkomnna sfna, sem hald- in verður á North Weít Hall á ný- ftrsdagskveld 1904. Nefndin sem stendnr fyrir sam- komuoni ('>skHr ;ið »li!r (>:<•< limir stúkunnar, sem mögulegageti, mæti þar, og allir íslenzkir GoodtempIar[| ar, hvaða stúku sem þeir tilheyru, eru boðnir og velkomnir. Góð skemtan. Alt frítt. Byrjar kl. '8. B. M. Long. I umboði nefndarinnar. 1 Inn a hvert heimili! Almanak | Olafs 8. ThorgeirMsonnr fyrir áriö » 1904 ; til sölu hjá honum og veröur til sölu hjá útsölumönnum hans i bygöum ís. lendinífa innan fárradaga, fyrir 25 cts. Þér’ sem eigi náiö til útsölumanna get- J iö sent útgefendanum 25c. í frímerkjum eöa peningum, og skal yöur þá sent Al- manakiö samstundis. Muniö eftir aö senda vinum yöar á fslandi Almanakiö. —Fólk er sóígiö í landnámssögu-þættina þar heima. AlmanakiÖ sent til íslands án auka borgunar. Inn á hvert heimili. • Olafur 8. Thorjjeirsson 644 William Ave., WINNIPEG, MAN. Herra H. A. Bergmann ritar frá Garðar, N. Dak., dags. 22. Des. en bárst oss of seint til að komast f jólabláðið, að vegna sjúkdóms, er gengur f Garðarbygð hafi Grand Forks stúdentafélagið orðið að hætta við samkomuhald sitt J>ar, þar eð bygðin er nú í sóttverði og af þvf ekki var hægt að halda sam- komu á Garðar og of seint að gera riðstafanir til að halda hana á öðr- um stað, þá hafi flokkurinn ákveð- ið að koma ekki á'Mountain eins og auglýst hafði verið, fyrr en hægt er að leggja alla bygðina und ir f sömu ferðinni. Þetta eru Da- kotabúar beðnir að athuga. Herra Egill Skjöld hefir stað- ist próf í lyfjafræði hér í bænum. Hann er fyrsti íslendingur í Ca- nada, sem J>ví prófi hefir náð. Manitobaþingið kemur saman þann 7. Janúar , næstkomandi. Meðal annara bæna, sem fyrir því þingi liggja er ein frá Winnipeg Selkírk og Lake Winnipeg félag- inu um að mega leggja hringspor- braut umhverfis Winnipegbæ og einnig til Tyndal og Winnipeg River. Kristain Kristjánsson, Tryggvi Sigvaldason og Ólafur Ólafsson frá Baldur komu til bæjarins á jólun* nm í kynnisför til kunningja sinna. Þeir segja góða líðan manna þar vestra. Skemtisamkoma sú sem Þor- steinn .Johnson heldur á gamlárs- dagskveld f Oddfellows Haíl verður ágæt, eins og sést á programminu f J>essu blaði. Ensku blöðin láta sérlega vel af söng og leik hæfi- leikum þeirra stúlkna er þar eiga að koma fram, og segja það undra- vert af svo ungar stúlkur getj spil- að eins vel gg þær gera. Aunað nýstárlegt á |>essari samkomu verð B HEFIRÐU REYNT? nmm?mm??m?^ DREWRY’5 REDW00D LAGER1 EDA EXTRA P0RTER. Við ábyrtjustum okkar ölgerðir að vera þær hreinustu og besstu, og án als gruggs. Engin peningaupphaeð hefír verið spöruð við til- búning þeirra. Ö1 okkar er það BEZTA sg HREINASTA og Zí ’ LJÚFFENGASTA, sem íæst. Biðjið um það hvar sem þér eruð staddir í Cannda, Edward L. Drewry - - Winnipeg, | Alanntacínrer & Importer, mmmmi imnimnm^ Vid framleidum ekki einasta beztar algengar hveitimjölstegundir, heldur höfum vid tvœr er skara fram ur. Ogilvie’s Hungarian —OG— Ogilvie’s Glenora Patent ERU ÖLLU FRAMAR. The- Ogilvie Flour Mill^ Co. L.td: ur Recitatian með Piano undir- spili. Fólk vort sækir væntanlega þessa samkomu vel. „Varaskeifan“ eftir Eirik Bögh verður leikin á Unitara Hall mánndaginn 4. og J>riðjudagirm 5. Janúar næstkom- andi kl. 8 e. m. Þessi sjónleikur hefir verið leikinn á íslandi í mörg ár, óg ávalt J>ótt einhver hinn bezti gleði- leikur, sem þar hefir verið sýndur. Hann sýnir ágætlega hvemig heimskuleg afbrýðissemi kemur mönnum til að gera sig hlægilega. Sætin kysta 35 og 25c. fyrir full- orðna, I5c. fyrir börn undir 14 ára. Munið eftir að sækja leikinn. Teitnr Thomas biður pess get- ið að nýja búðin hans sé að 537 Ellice Ave. og Telephone No. 2620. Engin [>arf að vera svangur eða nakin, sem ákallar Thomas gegn- um Phone 2620. Mrs ÖHSurarson River Park vantar ísl. vinnukonu. Stúlkur sem vildu lá góða vist snúi sér að þessum sfað hið allra fyrsta. Winaipeg Co Operative Society. LIMITED. Cor. Elgin Ave. & Nena St. Telefón Nr 1576. BRAUÐ: 5 ceDts brauöiö, besta tegund. KRINGLUR OG TVÍBÖKUR ( tnmmm eöa í pundatali: Bakaö af Skandinaviskum Union bökurum. ALLAR TEGUNDIR AF KÖKUM. P 1 j| i tt i H nn Seldur til félagsmanna LilUlV ÍU.U1 50C ódýrari hvert Cord, heldur enalment gerist. Inn- gonguleifi í félagið er ljett og að- gengilegt. Upplýsingar nm það fá«t í bakaríinu eða hjá Keyrslu mönnum þess, eða með því að kalla upp Telephone 1576. DÁNARFREGN. Hinn 30. Október siðastl. lézt að heimili þeirra hjóna Ólafs Þor steinssonar og Ellnar Stefánsdóttur í Pembina, yngisstúlkan Lovísa Benedikta Pétnrsdóitir. Lovtsa sál. var fædd 6. Janúar 1880 á Sandy Bar i Nýja-íslandi. Foreldrar henn ar voru þau hjónin Pétur Árnason og Friðrika Björnsdóttir, sem látin er fyrir tæpum 20 árum síðan. — Lovfsa sftl. var að eins 9 ftra þegar .->> hfn fyrst u isti heilsuna og vsið hún aldrei heil heilsn upp frá þvf. Hún ól aldur sinn ýmist hjá föður sínum f Nýja-Islandi, eða ömmu sinni, Lovísu Sæmundsdóttur í Da. kota, er lézt fyrir 2 árum síðan, en lengri og skemmri tfma var hún til lækninga, ýmíst i Winnipeg eða £ Park River ognú síðast í Pembina. Lovfsa sál. var góð stúlka og trúrækin í bezta lagi. Hún var jarðsungin f Pembina 30. Október af séra Steingrfmi þorlákssyni. í Desember 1903 Vinur hinnar lítnu. ÞAKKÁRÁVARP. Ég er einlæglega þakklát ðllum þeim, bæði hér f Alberta og Winni- peg, sem hafa sýnt mér hluttekning og leitast við að létta hinn þunga- kross, sem ég verð að bera. Ég bið gjafara Iffsins að græða þeírra sár. og gnægtir veitaþeim á meðan lifa. af augunum þerra eldheit sorgar tftr. og á sfna töflu nöfnin þeirra skrifa. TIL ALUERTA ÍSLENDlNGA. Alberta sem byggið blómlegt vengi, burtu langt frá heimsins tryltum glaum, hjá ykkur búi lukku-dfsin lengi og leiði fram f gegnum tímana Btraum. Þó hretviðrin ft húsum bylji löngum og hyiji fannir vorsins dýru blóm, hún strjúki trega tár af ykkar vöng- um. og tffa.lt húrra syngi gjöllum róm. Á LEIÐ FRÁ WINNIPEG. Winnipeg nú kringir Avitur hjúpur kuldabros á öllu líta mft; um hulda tíma heyrist söngur djúpur heitum brjóstum sumra koma frá, en aðrir láta nótt þar sem að nemur og napra harma svæfa f lffsina- glaum. Ég læð ykkur að rumskast, áður kemur rökkur nauða, tlðin þvf er naum. R. J. Davidson. Keyrsluvagn eða sleði fer frá Winnipeg Beach á hverju mftnu- dags- og flmtudagskveldi kl. 7.15, eða strax og vagnlestin kemur Þangað. Sleðinn gengur alla leið til íslendingafljóts, Til baka fer sleðinn frá íslendingafljóti á 'mið- vfkndags og laugardagsmorgna kl. 7, Sleðinn fer þess utan dagsdag lega frft Winuipeg Beach til Gimli. Mr. Sigvaldason keyrlr sleðann. Eigandi Qeorge Dickenson.

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.