Heimskringla - 31.03.1904, Qupperneq 4
HEIMSKRINGLA 31. MARZ 1904.
PROGRAM:
Alíslenzkur samsöngur og Solos, undir umsjón
Söngflokks Fyrsta Lút.Safnaðar, verður haldinn
í Fyrstu Lút. kyrkjunni, mánud.kv. 11. Apríl ’04.
I. Partur:
1. Söngflokkurinn—“Ó, GUÐ VORS LANDS” S. STeinbjörnsson.
2 Quartette—ÍSLAND Sigfás Einarsson.
Thos. H. Johnson, A. Johnson,
D. J. Jónasson, B. Olafsson.
Söngflokkurinn—(a) Þ/ eik í stokmi
(b) SVANASÖNGCR / HEIÐI.
Trio—Kvöldklukkan.
Mrs. W. H. Paulson, Misses Borgfjörd & Hermann
Söngflokkurinn—Sumarnótt / heiði g. Eyjóifsson.
Solo—óákveðið
H. Thorolfsson,
Sextette—Vorvísa.
Mrs. W. H. Paulson, Misses Anderson & Hermann,
Messrs. Thorolfsson, Jónasson & Olafsson.
II. Partur:
3.
4.
7.
8. Solo—óákveðið.
Mrs. W. H. Paulson.
9. Quartette—Vetrarnótt.
Thós. H. Johnson, A. Johnson,
D. J. Jónasson, B. Olafsson.
10 Söngflokkurinn—Ólafur Tryggvason.
11. Quartette-—LoFSÖNGUR. Sigfós Einarseon.
Thos. H. Johnson, A. Jóhnson,
D. J. Jonasson, B. Olafsson.
12. Solo &Chorus—Þar straumkarl gnýr hörpu.
13. Quartette—(a)Svfi>JÓB (b) Kveldið.
Mrs. W. H. Paulson, Miss Th, Hermann,
Messrs Thorolfsson & Jonasson.
14. Söngflokkurinn—(a) Þép risa jöklar.
(b) Eldgamla Isafold.
AÐGANGUR 35c.—BÖRN 2ÖC. BYRJAR KL. 8.
West End = =
Bicycle Shop,
477 Portage Ave.
Páreru seld þau sterkustu og fallegustu
hjól, sem til eru í Capada, með lOpcr cent af-
slœtti, móti peningum út 1 hönd. Einnig móti
niðurborgunum og mánaðarjafborgunum. Göm-
pl hjól keypt og seld^f rá $10 og upp. Allar að-
gerðir leystar af hendi fljótt og vel. Líka fœst
þar alt sem |fólk þarfnast til viðhalds og að
gerðar á hjólum sínum.
Jon Thorsteinsson.
Winnipe<?.
Blaðið Baldurá Gimligetur um
samkomu, sem stúikur í Vfðinesbygð
héldu nýlegsL til arðs fyrir Winni-
peg-8júkrah6sið. Blaðið þakkar
stúlkunum eins og verðugt er fyrir
framkvæmd þeirra og góðvilja í
garð spítalans, en telur jafnframt
æskilegt að hið opinbera sjái svo um
stofnun þessa, að fjárbænir til al-
mennings þyrftu ekki að eiga sér
stað. í tilefni af þessu skal þess
hér getið, að kostnaður við stofnun
þessa varð á síðastl. ári $78,533.19.
Þar af hefir fylkisstiórnin borgað j
$19,465 50, Ottawastjórnin $2.914,
95, Winnipeg 17,500; gjafir frá
sveitafélögum $2.560; gjafir frá
kyrkjumals $2.043,24 og gjaflr frá
einstaklingum $6,307,60. Agóði af
samkomum $268,50. Sjálfir hafa
8júklingarnir borgað nær 34 þúsund
dollars. Það er því sjáanlegt að inn-
tektir spítalans frá samkomum eru
mjög hverfandi stærð, borið saman
víð styrk þess opinbera og Winnipeg
bæjar.
Myndasýning verður haldin í
1. Lút. kyrkjnnni undir umsjón
ungu stúlknanna í þeim söfnuði á
mánudag8kveidið 4. Apríl næstk.
Sýningin nær yflr öli heimsins lönd
og peirra dýrð, og stúlkurnar biðja
piltana og alla aðra að heimsækja
síg í kyrkjunni þetta áminsta kveld.
Sigurgeír Kristjánsson (Sam.
Christie) andaðist hér í bæ úr tær.
ingu í síðustu viku og var jarðsung-
inn á sunnudaginu var. Hann var
25 ára gamal). Christie var hæfl-
leikamaður góður og hafði unnið nm
margra ára tíma á lögfræðinga skrif-
stofu hér í bænum. Hann hafði
gefið sig talsvert við dáleiðslufræði,
og haldið þesskonar sýningar hér í
bæ,
Winnipeg 29. Febr. 1904.
Kæru viðskiftamenn og konur!
Ég hef fengið, og er nú altaf
að fá inn alskonar nýjan varning
fyrir vorið og sumarið. Ég hefi keyft
vel inn þetta vor, svo ég get því
selt eins ódýrt og nokkurj annar í
borginni, og geri það líka, um f>að
getið þi-r beztdæmtmeð því að koma
og yrfilíta hvað ég hefi að bjóða.
Einnig hefi ég mikið af vörum með
niðursettu verði, sem ég er að selja
á rúmlega hálfvirði, til að fá rúm
fyrir nýjar vörur.
Þetta er seytjánda vorið, sem
ég heilsa ykkur í sama staðnum—
um leið og ég þakka ykkur öllum
fyrir viðskiftin á þessum mörgu
liðnu árum vona ég og óska áfröm-
halds af þeim á komandi árum.
Svo óska ég ykkur öllum gleði-
legs og farsæls vorst og sumars og
vona að sjá sem flest af ykkur í
búðinni á norðausturhorninu á
Ross og Isabell stræta.
Yðar með virðing.
Stefán Jónsson.
Látinn er úr lungnabólgu þann
5. þ. m., í Pembina, Dak, Bjarni
bóndi ChristjánssoD, 53. ára, Hann
var.fæddur 29. Jan. 1851 að Lokin
hömrum í ísafjarðarsýslu, Hafði
verið hér vestra 18 ár.
Nýkominn er frá Cape Nome
Mrgnús Pétursson frá Forf Rcuge,
Winnipeg, eftir 1 árs burtuveru héð-
an. Hann var í Nome í fyrrasumar,
en í Seattle í vetur. Mr. Pétursson
lætur allvel af gulllandinn, en telur
SÚ TEGUND SEM SMJÖRGERÐA-
HÚS NOTA.
Munurinn á De Laval skilvindum og ödrum
skilvinduvélum er samur og á fullkomnunarfyr-
komulagi í adakilnaði mjólkur og rjóma, sem er
í “Alpha Disc” og ‘‘Split Wing’’ einkaleyfun-
um og í hinum fátæklega eftirstælingum ann-
ara véla, sem eru óviðjafnanlega langt aðskildar
frá þessum ainkaleyfisútbúnaði. “Alpba Disc”
og “Spbt Wing” einkaleyfisútbúnaðurinn sem
með sameiginlegum endinKareinkennum hafa
sett De Laval skilvindnnaí &8% aföllutr smjör-
gerðarhúsum í landinu og þær hafa fengið fyrstu
verðlaun á öllum heimisýningum.
Þér getjð fengið De Laval vindu með sama
verði og þær lakari kosta. Því þá ekki að hafa
það bezta.—Biðjið um bækling og dæmið sjálfir.
THE DE LAYAL SEPARATOR Co.
248 McDermot Ave. — Winnipeg, Man.
MONTREAL TORONTO NEW YORK CHICAGO PHILADELPHIA SAN FRANCISCO 4
ðrðugt að ná í lóðir uær en 100 míl-J
ur upp til fjalla. Hann hyggur að I
fara þangað aftur um þessi mánaða-'
mót. Þessfr íslendingar eru vestra:
Jón Bergmann, Sveinbjörn Frið-
björnsson, Kjartan Ögmundsson og
Jörundur Ólafsson, sem nú er í
Blaine, Wash., fer þangað vestur í
Maí næstk. Enn fremur fara frá
Seattle Guðmundur Ólafsson og Jón
Sæmundsson nú með vorinu. Þeir
Ólafsson og Pétursson hafa haft
vindla- og tóbaksverzlun í Seattle í
vetur og farnast vel.
Ungur Englendingur hefir ver-
ið dæmdur í 2 ára fangelsi í Mani-
toba fyrir að stela 16 reiðhjólum.
Hann kvaðst hafa orðið að gera
þetta til að geta klætt unnustu sína
nmframþaðsem kaup hans leyiði
honum að gera.
Kvennblaðið DELINEATOR,
fyrir Marz, er nýútkomið. Það er
vandað rit og flytur lýsingu og
myndir af nýjustu tízku í kvenna-
og barnafatnaði, og margar góðar
ritgerðir og skemtilegar smásögur;
svo og ágætar ritgerðir um matar-
gerð og framburð matar, ritað af
Eleanor, Marchant og öðrum. Blað
þetta er kær gestur á hverju heim-
ili og ætti að vera í sem fiestra
kvenna höndum.
Winnipeg hótelið á Suður Main
St- var í síðastl. viku selt fyrir $125
þús. Lóðin sem það steudur á er
106 fet á Main St. og 120 fet inn frá
götunni og 100 fet 'á Fort St.
Herra C. Jacob Clemens, ungur
framfaramaður, sem dvalið hefir 3
ár í Alaska-héraðinu, en kom tii
Winuipeg fyrir 5 vikum síðan til að
finna ættingja ©g vini hér, lagði af
stað aftur vestur þangað á föstudag
inn, var ásamt með Þórarni bróður
sínnm, sem nú fer þangað til að
leita gulls og gæfu. JaGob kveður
sér hafa liðið vel vestra. Enn þá
heflr hann ekki fest sér námalóð þar
vestra, en á hús og nokkrar bæjar-
ióðir í Katchikan f Alaska. Hann
segir kostnaðarsamt að vinna að
málmtekju þar, en næg er þar at-
vinna við námagröft og aðra vinnu
svo sem fiskiveiðar. Kaup er þar
um $3,50 til $4,50 ádag, en fæði $7
á viku. Ekki kvaðst Jacob vita hve
lengi hann yrði vestra. En ekki
bjóst hann við að ílengjast þar.
Helzt hugsaði hann að halda 700
mflur iengra uorður með ströndinni,
eða upp að White Horse Rapids.
Stúdentafundur verður haldinn
næsta laugardagskyeld í North West
Hall, Byrjar kl. 8. Allir meðlimir
beðnir að koma.
Vér drögum athygli lesendar.na
að söngsamkomu f 1. Lút. kyrkjunni
sem halda á þann 11. Apríl uæstk.
Hún hefir það til síns ágætis. að þar
verða að eins sungnir fsl. sðngvar
og af þeim beztu söngrnönnum^ og
konum, sem söfnnðurinn heflr á að
skipa. Sum lögin eru eftir íslenzka
höfunda. svo sem þá S, Sveinbjörns
son í Edinborg á ökotlandi, Sigfús
Einarsson í Kaupmannahöfn og
tíunnstein Eyjólfsson við Isiendinga-
fljót. Alt program ið bendir fil þess
að þessi samkoma verði góð.
Herbjartnr Hjálmur biður þess
getið, að be aili hans sé nú að-005
Ross Ave., Winnipeg, Þeir sem eiga
eriudi við hann, snúi sér þangað.—
Blaðið Reykjavík er vinsamlega
beðið að auglýsa þetta.
Unitarasöfnuðurinn hefir f huga
að halda skemtisamkomu í næsta |
mánuði. Nánari auglýsing síðar.
—
SPURNING.
Rit3tj. Hkr.
Getur þú sagt hvað lögin leyfa
ráðsmönnum ómyndugra mikið fyrir
ráðsmensku á fjármunum þeirra. Er!
það miðuð við upphæð fjórins, eða
ttmalengdina sem þeir halda því í,
umsjá sinni? G.
SVAR. Lögfræðingur hefir sagt |
03s að lögin tiltaki engin ákveðin !
laun fyrir umsjón á ómyndugra * fé,
annað en það sem ákveðið kann að ^
verða aí dómara eftir þeirri fyrir- i
höfn og ko3tnaði, som ráðsmenn geta
sannað að peir hafi haft við ráðs-!
mensku fjárins.
* Ritstj.
A sunnudaginn kemur páska-
daginn) verður messað kl. 3 e. h. f;
Unitarakyrkjunni. Engin messa |
verður að kveldinu. Við [guðsþjón-
ustu þessa verður nýja messu-
i o r m ið tekið upp, sem viðhaft er t !
austurdeiid Unitarakyrkjunnar í
Bandaríkjunum. Allir boðnir og
velkomnir. Safnaðarfundur eftir |
messuna. Sunnudagaskóla frestað
þann dag.
ALMANAK
fyrirárið 1904,
—eftir—
S. B. BENEDICTSSON,
er til sölu hjá höf., 530 Maryland {
St, Winnipeg, og hjá útsðlu-
mönnum.—Verð 25 cent.
Hon. J. H. Agnew, sem nýiega
vargerður að fyikísféhirði í stað
Hon, J. A. Davidson sál. var end- j
urkosinn mótmælalaust í Vírden-
kjördæmi fyrra laugardag.
Ný ísl. verzlan.
Laugardaginn 2. Apríl byrja ég j
að verzla í búðinni á horninu á!
Young St. og Sargent Ave. Þar
vgýður verzlað með brauð og kökur
af alskonar tegundum, nýbak ad á |
hverjum degi, einnig aiflini ogj
brjóstsykur svo og tóbak og ýmisl.
fleira. Með tilliti til verðs og j
vðrugæða skal það að eins tekið j
fram að það verður af fremsta j
megni reynt að gera alla ánægða.
Miss Guðrún Þórarinsdóttir stjórn-
ar þessari verzlan fyrir mína hönd j
Ég mœlist nú til þess að íslend- j
ingar (f þeim parti bæjarins) styðji ]
að því að þersi verzlan geti f>ri fist,
með J>ví að verzla þar að einhverju
leyti. Númer á “Telephone” mín-
um er 2842.
P. S. Þess skal getið til hægð-
arauka fyrir f>á, sem
vildu fá sér nýbakaðar
bollur (Hott X Buns) fyr- í
föstudaginn, að það verður
hægt að fá f>ær og annað
af brauðtagi á fimtudag-
inn (31. Marz) f þessari
búð,.
Með vinsemd.
G. P. Thordarson.
gtmmmwmnm mmmmmnrm
| HEFIRÐU REYNT ?
t nPFWPV’W _
í REDW00D LAGER
EDA
EXTRA P0RTER.
Vid ábyrejustum okkar ölgerðir að vera þær hreinustu og beztu,
og án als gruggs. Engin peningaupphæð hefir verið spöruð við til-
^ búning þeirra. Ö1 okkar er það BEZTA sg HREINASTA og
JtE LJÚEFENGASTA, sem fæst.
y- Biðjið nm það hvar sem þér eruð staddir Canada,
| Edward L. Drewry - - Winnipeg,
Mlanntactnrer & Importer,
TkUlUUUUUiUUU UiUUUUUUUUUR
PrófiÖ Ogilvie’s
það er það eina hæíilega hveiti í
brauð og sœtabrauðsbakningu
Selt óblandað hjá öllum kaupmönnum.
Séra Stefán Sigfússon hefir bygt
sér hús og býr nú að 606 MeGee St.
Winnipeg. Þeir sem viija íinna
hann eða rita honum, eru beðnir að
muna þetta.
Almennur safnaðarfundur verð-
ur haldinn í Unitarakyrkjunni á
sunnudaginn kemu r kl. 4.30 eftir
hádegi. Allir safnaðar meðlimir
beðnir að mæta, því áríðandi mál
liggja fyrir fundi,
Þorsj. Borgfjörð (forseti).
per R. P.
Mrs. Goodmann, 618 Langside
St., opnar sína Millinery vorsölu í
dag, Hún óskar að ísl. konur vildu
finna sig og skoða varninginn.
Húsfrú Björg Blöndal, kona
Björns Blöndals héi í bæ, andaðist
kl. 10 e. m, þann 27. þ. m. af mjóik-
ur-feber eftir mánaðarlegu frá
barnsbarði. Hún verður jarðsung-
inn 1. Aprii.
Biæðrabandið hefir ákveðið að
hafa Concert í Tjaldbúðinni þann 19.
Apríl næstk. Gott program auglýst
síðar.
Styrkár V. Helgason, sem um
tfma hefir unnið við blaðið Baldur
norður á Gimli, kom til bæjarins um
fyrri helgi og hyggur að setjast hér
að.
Magnús Jósephsson frá Duxby,
Minn., flutti alfarinn með fjölskyldu
sína alla til Blaíne, Wash., um
miðjan þennan mánuð. Þeir sem
vildu hafa bréfaviðskifti við hann,
eru beðnir að athuga þetta og muna
það.
Í7r bréfl frá Duvby, Minn.,
dags. 9. Marz: „Héðan úr bygð er
fróttafátt. Veturinn langur og harð
ur. Bærilegt heilsufar manna nú,
en kvillasamt helir verið hér í vetur,
helsf kvel og La Grippe og misling-
ar gengu hér siðastl haust. Úr
þeirri veiki mistu þau hjón Jón
Hallgrímsson og kona bans, ný-
komin frá íslandi, 3 yngstu börn
sín, af 7 er þau áttu.—Héðan flytja
nokkrar ísl. fjölskyldur í vor, sum •
ar til Foam Lake, Assa„ og snmar
vestur að haíi. Verður þá fátt eft-
ir'.
1 upp ! 2 niður !
1. Á fundi Hagyrðiugafélagsins
26. Marz yar samþykt að gera St.
G. Stephansson skáld, að heiðursfor-
seta þess.
2. Á sama fundi var einnig sam
þykt að víi-jt þei u úr félaglnn,
pre3tunum, séra Jóni Bjarnasyni,
Fr. J. Bergmann og Bjarna ÞÓrar-
inssyni. Hinum fyrstnefnda fyrir
vansæmandi orð um hátignina á
„síðasta’, Boðunardag Maríu. Öðrum
fyrir tilraunir hans að hnekkja hejl-
brigðum skoðunum á nútíðar skáld-
skap. Hinum þriðja (og þeim Öll-
um sameiginiega) fyrir vanrækslu
gagnvarf félaginu.
Skrifstofu Hagyrðingafélagsin8.
Winnipeg, Man.
Þorst. Þ. Þorsteinsson
(ritari).
FYRIRSPURN
um hvar Ólafur Gunnar, sonur
Kristjáns sál. Sigurðssonar Back-
manns er niðurkominn.
Kristján sál. faðir Ólafs mun
hafa flutt frá Meðalheimi á Sval-
barðsströnd við Eyjafjörð til Ont.,
Canada, og f>aðan aftur til Nýja ís-
lands, Man,, á fyrstu árum land-
náms þar, og svo paðan hingað
suður f Vfkurbýgð, N. Dak., og dó
hér síðastl. ár og lét eftir sig tals-
verðar eignir, og er ég gæzlumaður
þeirra á meðan f>essi meðerfingi
er ekki fundlnn, eða par til skyl-
yrði laganna er fullnægt.
Sé því nokkur, sem veit um
þennan Olaf Gunnar. óska ég hann
geri svo vel og láti mig vita það.
Mountain, N, D. 28. Febr. 1904.
ELIS THOR WALDSON.
If _ „x sérstakan umboðsmann f
V n 11 ln I Þessu og Iáærligífjandi hér-
■ U lll U I uðum til að vinna fyrir og
auglýsa gamalt og éreiðanlegt verzlunarhás
meö nægu peningaafli. Kaup $21.00 vikulega
með feröakostnaði fyrirfram borguðum með
bankaávísun á hverjum mánudegi. Staðan er
stööug. Vér leggjum alt til.—Skriflð til:
The COLUMBIA PUBLISHTNG HOUSE,
630 Monon Bldg. Chicago. III,
‘lan-Liiiaii’
fiytur framveeis íslendinga frá íslandi
til Canada og Bandarikjanna upp á ó-
dýrasta og bezta máta, eins og hún
ávalt hefir pert, og ættu því þeír, sem
vilja senda frændum og vinutn fargjöld
til Islands, ad snúa sér til
hr.H. 8. Hardal í Winnipeg:, sem
tekur á roóti fargjöldum fyrlr nefnda
lfnu, or sendir þau upp á tryggasta og
bezta máta, kostnaðarlaust fyrir send-
anda og móttakanda, og gefur þeim
sem óska, allar upplýsingar því við-
vikjandi.
Fari ekki sá sem fargjaldið á að fá,
fær sendandi peningana til haka sér að
kosiiinða laiiHii.