Heimskringla - 29.09.1904, Síða 1
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
I T. THOMAS
♦ ♦
♦ Islenzkur kaupmaOur J
í selur alskonar matvöru, gler og 4
klæöavðru afar-ódýrt gegn borg- ^
? un út 1 hönd. +
♦ 537 Ellice Ave. Phone 2620 ♦
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
♦ ♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
T. THOMAS, KAUPMAPUR
umboössali fyrir ýms verzlunarfélög
i Winnipeg og Austurfylkiunum, af-
greiöir alskonar pantanir lslendinga
úr nýlendunum, þeim aö kostnaöar-
lausu. Skrifiö eftir upplýsingum til
5!i7 EUice Ave. - * - Winniþeg
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
XVIII. ÁR.
WINNIPEG, MANITOBA 29. SEPTEMBER 1904
Nr. 51
Arni Eggertsson
671 ROSS AVENUE
Phone 3033. _________Winnlpeg.
Kæru skiftavinir!
Ég bið yður að muna eftir að
heimsækja mig eða skrifa til mín,
þegar þér þurfið að kaupa eitthvað
af því sem ég verzla með:
Fasteignir í bænum og úti uni
landsbygðina hefi <’g hvorttveggja
með mjög rýmilegu verði og góðum
kjörum.
Peningalán út á fasteignir.
Eldsábyrgð á húsum oghúsmun-
mnnum; einnig lífsábyrgð.
Húsavið og annað byggingarefni.
Einnig lít ég eftir að leigja hús
og hefi hús til leigu.
Ef þér hafið fasteign til að selja,
þá sendið mér upplýsingar þeim
viðvfkjandi.
Arni Eggertsson
Offlce: Room 215 Mclntyre Elk
Telephone 775
Fregnsafn.
Markverðustu viðburðir
hvaðanæfa.
STRlÐS-FRÉTTIR
Herforingi Oyama hefir sent
skeyti til Tokio og segir að hann
hafi náð 40 hestum, 1200 riflum,
4160 fallbyssuskotum og 637,800
riffiiskotum,ábamt með m«’g hundr-
uð vögnu«, telegraf og telefón á-
höldum og ógrynni af timbri og
matvælum, og höfðu fó Rússar
brent upp matvæli, sem hefðu nægt
300 þúsund mönnum í 14 daga.
Ennfremur nokkuð af fallbyssum
og öðrum hergögnum.
Áreiðanlegar fréttir frá Japan
segja, að keisarinn hafi skipað
mönnum sínum að herða sóknina,
bæði á Port Arthur og á herdeildir
Rússa umhverfis Mukden. Japan-
ar hafa því á ný ráðist á Port Ar-
thur og náð f>ar einu öflugu vígi,
en ekki meiru enn sem komið er.
í einum bardaganum umhverfis
Port Arthur sóttu Rússar svo hart
að Japönum, að þeir brugðu upp
friðarflaggi. Þetta æsti svo þá -Tap-
ana, sem voru í fylkingum á bak
við þá er brugðu upp flagginu, að
þeir hleyptu úr byssum sfnum á
sína eigin menn og feldu (>00 þeirra
í kviðunni. Sýnir petta ljóslega
einbeittan ásetning herforingja J ap-
ana að láta aldrei undan og annað-
hvort að vinna sigur eða að falla
með sæmd. En illa mega peir samt
við að fella mörg hundruð af sfnn
eigin liði þar við staðinn.
Svo eru nú menn af beggja liði
æstir, að ekkert er eftir gefið, og
jafnvel dauðsærðir menn skrfða
hvor til annars og gera hvorir öðr-
um það mein er f>eir mega alt fram
í andlátið. Þannig fundust tveir
menn, Rússi og Japani, báðirdauð-
ir, en liggjandi i fangbrögðum
þannig, að Japinn hafði tennumar
fastar í háls Rússans, en Rússinn
hafði krækt fingrum sfnum f augna-
tóftir Japans. Þetta sýnir, að ekkert
er eftir gefið á livoruga hlið.
Japanar hafa safnað allmikluliði
f viðbót við það, sem þeir áður
höfðu í Manehuria og hafa þeir á
ny ráðist á herdeildir Rússa hjá
Mukden.
Rússar eru og að senda her mik-
inn austur, alt að 300 þús. manna,
til hjálpar liði sínu þar.
24 þús. manr. i eru nú sagðir
sjúkir og særðir i Port Arthur, og
35 þúsundir manna særðir í Muk-
den. Öll hús og kirkjur eru fullar
af sjúklingum, í sfðarnefnda staðn-
nm. Þeir, sem heilbrigðir eru,
verða að sofa í tjöldum eða undir
beru lofti.
Herforingi Japana segist auk
f>ess, sem áður er getið, hafa náð
frá Rússum í f>essum mánuði 53 í-
búðarhúsum, 214 vöruhúsum, 80
f>ús. bushels af byggi og hrísgrjón-
um, 1300 tunnur af ljósolíu, 1800
kössum af sykri, 166 t.ons af kolum
og miklu af eldivið. Kuroki hefir
og náð allmiklu af eignum Rússa,
sem síðar verður auglýst, |>egar bú-
ið er að telja það saman.
Japanar háðu aðsókn að Port
Arthur þann 19. þ.m. Sagt er að
f>eir hafi á 2 dögum náð 9 vfgvirkj-
um Rússa umhverfis bæinn, og að
4 þeirra séu sérlega mikils virði.
Jhpanar hafa nú vatnslyndir
Rússa í höndum sér og halda áfram
sókninni á staðinn hvfldarlaust.
Er nú talið, að ekki verði f>ess langt
að bfða, að staðurinn falli.
Rússar em að útbúa svo mikinn
her, sem sendast á til Manchuria,
að f>eir hafi þar 600,000 manna, og
telja f>á yinning sinn vfsan.
Bandaríkja stjórninhefir ákvarð-
að að kfnverskar konur sem koma
til Bandaríkjanna geti ekki orðið
fluttar út úr landinu, ef þær strax
við lendinguna giftast einliverjum
Kfnverja sem f>egar er orðinn borg-
ari landsins. Þessi ákvörðun var
gerð nýlega í tilefni af þvf að
kona ein frá Kína kom til Banda-
rfkjanna. Hún var tekin föst
og átti að sendast tii' Kfna, én
giftist Kfnverja á meðan á máli
hennar stóð, og varð við það
samborgari bónda síns.
— Gyðingar héldu iðrunardag
sinn 1 Lundúnum á Englandi
f>ann 20 þ. m., en iðrunarmerki
sáust ekki, heldur varð uppþot
og barsmíði f hópi þeirra og tóku
yfir 2 þúsundir manna f>átt f
slagnum. 300 pólití voru send
til að skakka leikinn. Margir voru
meiddir og keyrðir á spftalana, og
mörgum var varpað í fangelsi.
— Járnbruutar slys varð hjá
Medicine Hat í síðustu viku, 12
manns meiddust þar, en engir
hættulega, og engir týndu lffi.
— Strathcona lávarður hefir
gefið $50.000 til McGill læknis-
skólans f Montreal. Hann hefir
áður gefið mikið fé til sama skóla.
— Eklur f Montreal gerði $75.
000 eignatjón f>ann 21 f>. m.
— Strætisvagn f bænum Milrose
Mass. rakst á dýnamit kassa sem
hafði fallið á sporið, og sprakk
við það f smáagnir. 9 manns létu
f>egar lffið en 19 særðust; sumir
f>eirra svo hættulega að þeim er
ekki hugað lff.
— Yindstormar f Nýfundnalandi
og á Labrador-ströndinni hafa
gert miklar skemdir á eignum
manna á sjó og landi. iákip hafa
farist með mönnum öllum og hús-
eignir á landi hafa skemst mikið.
Fiskivertiðin f N/fundntflandi
hefir verið sú lakasta sem f>ar
hefir verið f mörg ár. Margir
skaðast á útgerðinni.
— Pétur Serviu konungur var
krýndur þann2l [>. m., með mikilli
athöfn. Alt fór þar vel og frið-
samlega fram.
— Gullfundur mikill í Sultana
námunni hjá Rat Portage hefir
frézt. $900.00 sagðir að vera f
hverju tonni grjótsins.
— Einn af vélstjórum C. P. Ry
félagsins var nýlega dæmdur f
tveggja ára fangelsi fyrir að vera
drukkinn við vinnu sfna. Þetta
er öflug viðvörun öðrum drátt-
vélastjórum bramtafélagsins.
— Þær fréttir berast frá Mexico
að stjórnin þar hafi sett sér það
markmið að losa rfkið við alla
Yaani Indiána sem þur hafa búið.
Til þess að geta ofsótt menn
þessa án þess að of mikið bæri
á þvf út f frá, þá hefir blöðurn
ríkisins, með beinni stjómar skip-
an verið bannað að geta nokkuð
um ofsóknir stjórnarinnar á Indí-
ána þessa. En þó hefir orðið ljóst
að sfðan á nýjári sl. hefir Mexico
stjórnin ýmist látið drepa eða
flytja úr landi yfir þúsund manns
af þessum Indíána flokki, Svo
er meðferðin sögð ill á f>eim sem
fluttir eru burt úr landi að mik-
ill hluti þeirra deyr á leiðinni,
ýmist af hungri og þorsta eða
af þrælmannlegri meðforð her-
manna þeirra sem settir eru ttl
að sjá um flutning þess. Með;
framhaldandi þessari stefnu von- J
ar stjórnin að ekki líði á löngu j
þar til flokkur þessi liður undir
lok þar í ríkinu.
— Þegar samningar með Bret-
um og Thibet búum voru undir-
ritaðir þann 7 þ. m., þá létu Thibet
búar lausa alla útlenda fanga sem
þeir höfðu haldið um margra ára
tíma. Meðal þeirra var maður
sem þeir höfðu haft 1 dimmum
klefa um 20 ái. Hann var orð-
in blindur af meðferðinni þegar
hann var látinn laus, hélt hann að
hann ætti að pintast, en ekki
gat hann trúað því að sér væri
frelsi gefið fyr en Bretar sann-
færðu hann um það.
— Sir William MacDonald og
Prof. Robertson frá Ottawa
eru um þessar mundir
að ferðast um . , No’ð.'j*
Bandaríkin til að kynna sér
mentaástandið 1 sveita skólum þar,
með þeim tilgangi að auka og
bæta kensluaðferðina 1 sveita-
skólum 1 Canada, eftir þvf sniði
sem þeir finna bezt sunnan lfnunn-
ar.
— Frá Okatoks, Alberta, koma
fréttir um mikinn kolafund. Kol-
in eru sögð hörð “Anthracite”
kol af bestutegund. Land svæði
það sem kolin hafa fundist á,
hefir v->rið keypt af auðmanna
félagi undirforustu P. Burns & Co.
Nokkru fé hefir verið varið til
þess að leita kolanna, og hafa
ýmis lög frá 10 til 50 feta breið
og djúp fundist 1 jörðu þar.
Kolin hafa verið skoðuð af sér-
fræðingum og talin ágæt, félagið
er að reyna að kaupa öll um-
liggjandi lönd svo að það geti
náð sem mestu einveldi um þess-
ar slóðir. Ekkert er enþá látið
uppskátt um það hvenær tekið
verði til starfa fyrir alvöru f nám
um þssum. Kolin hefa reynst
að hafa frá 87—92 per cent af
hitaefni (carbon.)
— 2 kosningamál hafa verið
prófuð í málum mót Conserva-
tivum í Ontario. Ekkert sannað-
ist á þá eða flokkinn og báðir
halda sætum; Dómararnir óskuðu
þeim til lukku með hreiníerði
þeirraí kosninga baráttunni. Það
er alt önnur saga þar sem Liber-
alar eiga í hlut.
— Maður f Belmont Man., sem
barði konuna sfna 1 síðustu viku
var af nábúum hans rekin út úr
bænum og bannað að láta sjá
sig þar aftur. Um 20 nábúar,
sem urðu varir við barsmíðið,
tóku manninn leiddu hann út og
börðu hann 20 högg með kaðli,
hótuðu að tjarga hann og fiðra,
og ráku hann úr bænum.
- Ottawa stjórnin hefir sent pau
boð til utnsækjenda 1 hinum
ýmsu kjördæmum að útnefna strax
kjörstjórana og senda nöfn þeirra
austur Margir kjörstjórar hafa
þegar verið tilnefndir og það er
talið víst að kosningum verði
skelt á fyrir nóvemberlok n k.
PIANOS og ORGANS.
Hefiity.innn & Co. PinnoH.-Beli Urgel.
Vér seljum med máDaðarafborgunarskilmáium.
J, J. H McLEAN & CO. LTD.
530 MAIN St. WINNIPEG.
!
!
!
J
!
!
5
!
!
!
NEW TORK LIFE
JOHN A. McCALL, president
^ k
Síðasta skýrsla félagsins sýnir að á árinu 1903 hefir það gefið út
170 þús. iifsábyrgðarskírteini fyrir að upphæð $326. miliónir doll.
Á sama ári borgaði fél. 5,300 dádarkröfur að upphæð yfir 16
miliónir dcll., og til lifandi meðlima borgaði það fyrir útborgað-
áarlífsbyrgðir fullar 18 miliónir doll. Sömuleiðis lánaði félagið
$32 þús. meðlimum út á ufsábyrgdarskírteini þeirra nær því 18
miliónir dol’ars. Einnig hefir félagið skift á mílli meðlima sinna á
Siðastl. ári 5J mlión dsll., í vexti af ábyrgðum þeirra í því, sem er
$1,250,000 ineira en borgað var til þeirra á árinu 1902, Lifsábyrgðir
í gildi hafa aukistá siðastl. ári um 101 millionir DollnrH.
Allar gildandi lífsábyrgðir við áramótin voru $l,74.í niilionir
Allareignir félagsins eru yfir .359SJ million Dollnrn.
C. OlnfHon,
AGENT.
w i nsr ipe o-.
J. li. Jlorgan. Manager,
GRAIN EXOHANGE BUILDING,
— Ogilvie Flour Mills félagið
hefir sent æfð;i bændur út um
alt Canada veldi til þess að at-
huga uppskeruhorfurnar. Skýrsl-
ur félagsins sýna að uppskeran
verður talsvert betri en ætlað
var fyrir nokkrum vikum, félagið
telur víst að hveiti magnið í
Manitoba muni nema 60 millfónir
bushela í haust.
— Fertugur skóhreinsari f Van-
couver varð ástfanginn f fimtán
ára gamalli stúlku sem ekki vildi
giftast honum; skaut hann þá
stúlkuna til bana og svo sjálfan
sig á eftir.
— Verkfallið á Ítalíu hefir
orsakað all miklar óeyrðir meðal
vinnul/ðsins og æðri flokkanna.
I Rómaborg hafa menn aftur tek-
ið til vinnu og komið frið og
rósemi á félagslffið, en í Palermo
og Genoa eru róstur miklar. Anar-
kistar gerðu spell mikil f Genoa,
rifu upp sporbrautir og skemdu
eignir. Stjórnin sendi 2 þúsund
hermenn til að bæla ofbeldi þeirra.
— Svertingi einn skaut mann
í Atlanta Ga., á sunnudaginn 18.
þ. m., fréttin barst út meðan
fólk var í kirkju. Allir þutu
þegar út úr kirkjunni til að hand-
sama glæpamanninn og hengja
hann án dóms og laga. Þeir fram-
kvæmdu verkið á sunnudaginn.
Konungur Pétur f Servfu var
krýndur á miðvikudag f sl. viku.
Allar stórþjóðir höfðu sendimenn
við þá athöfn nema Rússar, sem
neituðu að taka nokkurn þátt í
athöfninni-
— Elding sló hús í Montreal á
silniiudagian var og varð 2 mönn-
um þar að bana.
— Lögreglan í Toronto fann
um sfðustu helgi 3 börn aðfram
komin af hungri og klæðleysi,
þau voru að bleyta þurrar brauð-
skorpur f vatni svo þau gætu
nærst á þvf, en móðir þeirra lá
dauða drukkin á gólfinu; börnin
vorn 3., 5. og 7. ára gömul. Þau
voru látin á lfknarstofnun, en
konan 1 fangelsi. Slfk eru áhrif
ofdrykkjunnar.
— 9 skólabörn drukknuð f vatns-
keri við barnaskóla í Pleasant
Ridge hjá Cincinnati Ohio á föstu-
daginn var, og 6 önnur böm eru
talin í hættu; frétt segir að
skólabörnin, öíl innan 12 ára að
aldri, hafi hlaupið í frítfma sfn-
um inn f úthýsi þetta og hafi þá
gólfið brotnað niður og börnin
fallið ofan í kerið. Nokkrum varð
bjargað.
— Hroðalegt járnbrautar slys
varð 1 Tennessee rfkinu á sunnu-
daginn var: 54 manns létu þar
lffið og 125 særðust, margir hættu-
lega, svo að þeim er ekki hugað lff.
Lestir þær er rákust á voru báð-
ar fólksflutnings lestir og runnu
ineð 35 mflna hraða á kl. stund.
Orsök slysins er sögð að vera sú
að lesta stjórarnir, eða annar þeirra,
hlýddu ekki skipunum brauta-
félagsins að mætast á tilteknum
vagnstöðvum, eins og þeir voru
vanir að gera. Gufuvélarnar og
mikið af vögnum beggja lestanna
brotnuðu f smáagnir. Vélstjórarnir
dóu báðir, en öðrum þeirra er
kent um slysið. Brautafélagið
hefir gert ráðstafanir til þess að
sem bezt verði hlynt að þeim
særðu.
— Bærin í Brantford 1 Ont-
ario hefir komið upp telephone
kerfi á eigin reikning og selur
nú árleg not talþráðanna fyrir
prívat fjölskylduhús á aðeins
$12.00 f stað $50.00 sem það kostar
f Winnipeg. Þetta sannar að
þjóðeign talþráða er almenningi
hagkvæmari en prfvat félaga eign.
Sama yrði með þjóðeign G. T. P.
brautina ef hún væri gerð að
þjóðeign rfkisins.
— Eldur í Halifax um síðustu
helgi gerði 150 þúsund dollara
eignatjón. Sami bær varð fyrir
250 þusund dollara eignatjóni af
völdum elds, fyrir fáum dögum.
— Lögfræðingur D. A Wales
hefir höfðað mál móti kolanáma
verkamanna félaginu í Pennsyl-
vania, til að fá 200 þúsund dollars,
sem hann setur þeim upp fyrir
starf sitt og ráðleggingar í sam-
bandi við kolaverkfallið þar 1 rfk-
inu f fyrra. Mr. Mitchell, leiðtogi
kolanáma manna, neitar að borga
nokkuð af þessari upphæð. Máiið
kom fyrir rétt & mánudaginn var.
— Látinn er á Þýzkalandi prins
Herbert Bismark, sonur gamla Bis-
marks. Hann átti einn son, nú 7
ára gamlan, sem erfir $4,000,000
eftir föður sinn.
— Þriðji þiíigmaður Ross stjórn-
arinnar f Ontario og einn af ráð-
gjöfum hennar, hefir verið rekin
úr þingsæti með -dómi 1 sl. viku
fyrir sviksemi f kosningum.
Ontario búar eru farnir að
þekkja pólitískt skírlífi Liberala
betur enn á fyrri árum. Ro-s
stjómin hefir nú aðeins þingfor-
setann umfram f þi^igi, og má þvf
heita fallin.
— Eldgos 1 Vesuvíus fjalli áj
Italíu hafa orðið meiri undanfarinn I
tíma en á nokkru öðru tfmabili
sfðan árið 1895. Klettar 4 þúsund
punda þungir hafa kastast langar
leiðir, má af þvf marka afl elds-
umbrotanna. Svo hefir hiti gos-
leðjunnar orðið mikill að hann
hefir brætt járnbráutarteina sem
hún hefir runnið yfir. Allur jarð
argróður á mílna svæði umhverfis
gos opið, hefir algerlega hvorfið
og fólkið hefir flúið úr nærliggj-
andi þorpum þvf hús þess hafa
brunnið af hitanum. Hermenn
hafa verið settir til að aftra ferða
mönnuiy frá að fara of nálægt
gosstöðvunum.
— Gufuskipafclögin hafa hækk-
að fargjöld yfir Atlants-liafið frá
$10, sem þau voru komin niður f,
upp í $15., á þriðja plássi.
Til athugunar
Herra ritstjóri!
Gerið svo vel að Ijá eftirfarandi
athugasemdum rúm í blaði yðar:
Sá orðrómur hefir gengið hér 1
Þingvalla-n/lendunni, og hann tal-
inn sannur, að f vetur er leið hati
mislingaaótt gengið meðal Islend-
inga við Shoal Lake í Manitoba.
Ennfremur heíir þvf verið haldið
fram, að f vor í aprfl og samtímis
mér hafi mislingaveikt fólk — hjón,
minnir mig — frá Mikley f Nýja
íslandi verið til húsa þar víð Shoal
Lake hjá foreldrum litlu stúlkunn-
ar, sem þaðan fór með mér hingað
vestur.
Ég veit með vissu, að það felst.
enginn sannleikur f þessari stað.
hæfingu og hefi látið þess getið hér
vestra, en því virðist ekki vera trú-
að. Mér skilst svo sem fólk hér
ætlist ekki til þess, að ég segi satt f
þessu máli og lætur mig þó f engu
gjalda þeirrar fmynduðu óeinlægni.
En svo er háttað, að misfinga-
sótt kom upp og gekk um hér f
bygðinni snemma í sumar. Fyrsta
persónan sem veiktist af þeim var
litla stúlkan kom með mér frá
Manitoba.
Nú kom ég vesturhingað svo að
segja rakleiðis frá 8hoal Lake,
eins og þegar er sagt. En svo var
þvf haldið fram hér af ýmsum að
einmitt þar hefðu mislingarnir ver-
ið í vetur og vor og þess vegna eru
ýmsir í Lögbergs skólahéraði,
sem telia eins víst, að ég hafi flutt
þá vestur hingað.
Hvort veiki þessi hefir flutztmeð
mér hingað vestur,get égekki sagt.
En als enga ors'ik veit ég til að
svo hafi getað verið. Shoal Lake
Islendingum má vera það kunnugt,
hvort veiki þessi er fr-l þeim kom-
in, og væri vel, ef þeir vildu segja
til um það. En þótt vitnisburður
þeirra væri neitandi, j-á er eng n
vissa fyrir, að þiúrri neitun yrði
alment trúað hér, þrátt fyrir það,
að menn hér kveðast ekki vissir um
að þeir gætu sannað, að sýkin hefði
flutzt með mér hingað. En svo
get ég látið mér það f léttu rúmi
5ggja, hvað fólk hugsar og segir
um þetta mál. En það er mér
þakklætis og gleðiefni, að litla
stúlkan, sem með mér kom, lifir, og
að veiki þessi hefir ekki grandað
neinu barni fLögbergs skólahéraði.
Churchbridce P.O., A»sa 5. sept.
J■ B. Thorkelsson.
Hérmeð ern það vinsamlegust
tilmæli mfn, fyrir hönd sjálfrar
mfn og barna minna, að hver sá
sem eitthvað kynni að vita um
hvarf Jóns Rðmers Einarssonar
sonar míns, liéðan úr bænum, síð-
ast liðið vor, vildi góðfúslega veita
mcr allar þær uppl/singar þar að
lútandi setn verða má, ef ske
kynni að það gæti leitt til þcss
að ég spyrði hann uppi og máske
næði samvistum við hann.
Wiunipeg 26. September 1Í0Í.
PdUna \ íyfvsdóttir Einarsson,
Care of Box 116 Winnipeg.