Heimskringla - 23.03.1905, Síða 1
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
T. THOMAS
Islenzkur kaupmaOur
salur Kitl og Kldivitl
Afjireitt tijótt og fullur inælir.
537 Ellice Ave.
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
Phone 2620 ♦
♦
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
♦ ♦
♦ T. THOMAS, kal’pmaður I
♦ nmboössali fyrir ýms verzlnnarfélög ^
1 Winnipeg og Austurfylkjunum, af- f
J greiöir alskonar pantanir lslendinga J
J Ar nýlendunum, peim að kostnaöar- J
J lausu. Skrifiö eftir upplýsingum til J
♦ 537 Ellice Ave. - - * Winniþeg *
♦ ♦
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
XIX. ÁR.
WINNIPEG, MANITOBA 23. MARZ 1905
Nr. 24
PIANOS og ORGANS.
Ileintzman & Co. Pianosi.-Kell Orgel.
Vér seljom med mánaðarafborgunarskilmálum.
J. J. H. MoLEAN & CO. LTD.
330 MAIK St. WINNIPEG.
NEW YORK LIFE
Insurance Co.
Árið 1904 var sextugasta aldursár félagsins. Á þvf
ári seldust 185,367 lífsábyrgðar skýrteini að upphæð
$342,212.569, fyrsta árgjald borgað. Það er 100 millíón-
um meira, en nokkurt annað lffsábyrgðarfélag hefir selt
á nokkru undanförnu ári. — Nærri 20 millíónir dollara
var borgað fyrir 6000 dánarkröfur. Y fir 20 mill. til lif-
andi meðlima. — 17 mill. dollara var láaað út á skýrteini
peirra móti 5 prócent árlegum vöxtum. — Inntektir fél.
hækkuðu um 8£ millfón. — Sjóður pess hækkaði um 38
millfónir, er nú $390,660,260.— Lífsábyrgð í gildi hækk-
aði um $183,396,409. Öll lffsábyrgð 1 gildi 1. Jan. 1905
$1,928,609,308.
CHR. ÓLAFSSON, J. G.MORGAN,
AGENT. WlNNIPEG MANAGER
Arni Eggeitsson
071 ROSS AVENUE
Phone 3033. Wlnnlpeg.
Agæt bújörð
Eg hefi ágætis bújörð til sölu
við íslendingafljót, 180| ekrur.
Ein af beztu bújörðum í því bygð-
arlagi. Liggur rétt meðfrnm fljóts-
bakkanum. Talsverður heyskapur
og einnig skógur; ágætis jarðvegur.
Verðið að eins
$650.22
Eignir hér í bænum teknar í skift
um. Til frekari upplýsinga skrifið
eða finnið
Arni Eggertsson
Offlce: Room 210 Mclntyre Blk
Telephone 3364
Fregnsafn
Markveröustu viðburðir
hvaðanæfa.
STRIÐS-FRÉTTIR
Þann 13. þ. m. háðu Japanar á-
hlaup á her Rússa hjá Sin King
og ráku þá úr vígum þeirra með
miklu mannfalli. Þar náðu Japan-
ar 2200 riflum, 6 “machine” fall-
byssum, 320,000 rifiilskotum, 11,500
fallbyssukúlum, 12,000 bindum af
gaddavfr og fullum forða af alls
konar efni til að byggja 30 mflur
af járnbraut, ásamt með fjölda af
vögnum, sem ætlaðir hafa verið til
að renna eftir þessari braut; einn-
ig 10 vögnum hlöðnum með 45,000
alfatnaði fyrir hermenn, svo og
allan vélaútbúnað til þess að vinna
samtímis 8 kolanáma, og 4000 stór-
tré til brúagerðar. Enn fremur
náðu Japanar þar mesta ógrynni af
áhöldum til vfgvirkjasmfða, ásamt
með mesta fjölda af færikvfum fyr-
ir s'kepnur, tjöldum, rúmfatnaði og
eidavélum, auk margra þúsunda af
nautum og hestum og ógrynni af
landabréfum og telegraf og telefón
áhöldum. Enn er þó ó^alið alimik-
ið af verðmætu herfangi, sem Jap-
anar hafa náð 6 öðrum stöðum, svo
sem við Fun Shun og Tei Ling og
vfðar; ekki komin skýrsla um pað,
er seinast fréttist, en fað er vitan-
legt, að herfang þetta var mjög
mikið
En alt af halda Rússar áfram að
fylla í skörðin, og er svo sagt, að
þeir^sendi nú daglega með Sfberíu-
brautinni yfir 15 þús. tons af alls
konar varningi og matvælum, og
svo er umferð mikil á brautiuni, að
yfir 2000 vagnar hlaðnir ýmiskonar
hergögnum og öðrum nauðsynjum
standa albúnir 4 hliðarspori á þeim
kafia brautarinnar, sem liggur milli
Samara og Slatoust, og standa f>eir
þar kyrrir, — komast ekki áfram
fyrir umferð annara vagna, sem tal-
ið er meira árfðandi, að komist
austur. Þess er og getið, að langir
kaflar á brautinni séu svo úr lagi
gengnir, að nauðsynlegt sé að
byggja þá upp að nýju áður en
vagnar geti gengið eftir þeim reglu-
lega. Þetta stendur Rússum ekki
all-lítið fyrir þrifum,að koma livorki
mönnum, vistum né vopnum austur
eins ört og þörf er á.
Kuropatkin hefir sent orð til
Pétursborgar þess efnis, að ekki sé
unt að etja við Japana, því þeir
virðist alt af hafa nægan afla af ó-
lúnum mönnum, en sfnir menn séu
orðnir úttaugaðir. Hann mælist og
til, að rússneska þjóðin taki upp
almenna bænahaldsfundi og biðji
fyrir sér og hermönnum sínum, að
Rússar mejji vinna sigar. Þetta var
auglýst um alt Rússland f þessum
mánuði með sérstökum augl/singa-
skjölum, skreyttum svörtum sorg-
arborða. Eu áhrif bænarinnar eru
enn ekki áþreifanleg, þvf að á mið-
vikudagskveldið þ. 15. þ. m. tapaði
Kuropatkin öðrum stórbardaga við
Tie skarðið, því þangað hafði hann
flúið með lið það, er undan komst
úr Mukden orustunni miklu og sem
Japanar höfðu elt að skarðinu.
Ráðstefna mikil hefir haldin verið
í St. Pétursborg og þar samþykt,
að lialda sírfðinu áfram til þrautar,
— ef mögulegt ýrði að fá nóg pen-
ingalán til þess. Auðmenn á Frakk-
landi, sem þegar eru búnir að lána
Rússum ógrynni fjár, hafa neitað
að lilaupa aftur undir bagga, með
þvf að Rússar noti alt lánsfé sitt til
hergagna sem svo falli í hendur
Japana; f þvf sambandi benda þeir
einnig á, að þau 62 skip, sem Rúss-
ar sendu með kol til Vladivostock
hafi lfka verið tekin af Japönum.
Á þessu stranda nú framkvæmdir
Rússa að svo kornnu. Rússarfengu
í fyrra 160 millíón dollara lán hjá
Frökkum, ereiga nú alls lijá Rúss-
um um 3000 millfónir dollara. Og
nú biðja þeir um 125 millíón doll-
ara lán í viðbót, sem Frakkar neita
þeim um, eins og að framan er sagt,
nema þeir semji um frið sem fljót-
ast, þvf að útséð sé um. að þeim
verði sigurs auðið f þessu strfði.
Frá Tokio kemur sú frétt þ. 16
þ. m., að Japanar hafi þegar náð
yfir 50,000 föngum úr her Rússa og
drepið yfir 90 þús. af liði þeirra f
stóra bardaganum við Mukden, og
sært að minsta kosti 26,000. Jap-
anar eru nú að flytja fangana heim
til Japan og á að geyma þá þar,
eitt þús. á hverjum stað, uhz friður
kemst á aftur.
Þess skal getið, lesendum til fróð-
leiks, að Mukden er að eins 6 dag-
leiðir frá Tokio, en 16 til 20 dag-
leiðir frá St. Pétursborg. Japanski
herinn fer frá Tokio til Mukden
alla leið á sjó nema 110 mílur, sem
farnar eru á járnbraut frá næstu
sjóhöfn. En Rússar verða að fara
hálft fimta þús. mílur með braut.
Af þessu er það ljóst, livers vegna
Japanar eru ólúnari en Rússar, þeg-
ar á vfgvöllinn kemur, og 'eins verð-
ur það skiljanlegt, að Japanar geta
sent miklu meiri herafla á vfgvöll-
inn en Rússar á jafnlöngu tímabili.
Þvf svo má heita, að Japanar hafi
ótakmarkað tækifæri til flutninga
þangað norður, en flutningsfæri
Rússa eru öll í ólagi og vegalengdin
er þeir þurfa að sækja, svo miklu
meiri. Og þaraðauki er almælt, að
yfirmenn í her Rússa dragi óspart í
sinn vasa fé það, sem ganga á til
herkostnaðar.
Slðustu fréttir segja, að Rússar
ætil að senda 55 herskip austur, en
ekki vita menn fyrir vfst um sönn-
ur á þessu. Hitt er vlst, að 22 jap-
önsk herskip sáust að kveldi 16. þ’
m. við mynnið 4 Malacca sundinu,
og hafa menn fyrir satt, að þaueigi
að sitja fyrir Rússum og hefta ferð
þeirra austur.
Þ. 17. fréttist, að Japanar hefðu
unnið annan stórsigur á Rússum
við Tie Pass' en áður en þetta skeði
liáðu Japanar bardaga við Rússa
hjá Fan ánni og töpuðu þar þúsund
manns. Er mælt að Japanar hafi
offrað þannigmönnumsfnum f þeim
tilgangi, að draga athygli Rússa frá
aðal-fylkingum þeirra, sem lagt
höfðu aðrar leiðir norðnr fyrir Tie
Pass td þess að sitja þar fyrir
Rússum, er þeir kæmu þangað. En
svo urðu Rússar tæpt fyrir, eftir
sigurvinning sinn við Fan ána, að
þeir neyddust til að brenna öll þau
áhöld sín, sem þeir gátu eldi í kom-
íð, til þess að Japanar skyldu sem
minst græða á viðureigninni.
Þann 17. þ. m. gaf Rússakeisari
lit yfirlýsingu með fyrirsögninni
“Svfvirtur”. Þar er þess getið. að
Kuropatkin hershöfðingi liafi verið
sviftur formensku rússnesku hcr-
flokkanna í Manchuriu og sé tafar-
laust kvaddur heim til Pétursborg-
ar. En herforingi Linevitch sé
hér eftir skipaður aðalforingi yfir
öllum her Rússa á sjó og landi þar
eystra
Giullnámi sá náíægt Sault Ste.
Marie í Ontario, sem nýlega var
fundinn þar, hefir reynst svo góður,
að eigendur hans hafa neitað að
þiggja millfón dollars í peningum,
sem enskt auðmannafélag bauð fyr-
ir hann.
— Gömul vatnskanna frá 16. öld
fanst nýlega í rusli f kjallara undir
Búsi auðmanns nokkurs á Bret-
landi. Kanna þessi þótti svo merki-
leg, að hún var seld við opinbert
uppboð og slegin hæztbjóðanda
fyrir 21 þúsund dollara.
— Loftgólfið f Zion kirkjunni í
Brooklyn brotnaði nýskeð undan
þunga fólksins, sem sótti þar messu.
13 manns biðu strax bana og yfir
50 særðust, margir hættulega. —
Kirkjan var 60 ára gömul og úr
timbri.
— “Coronia” heitir n/asta gufu-
skip Cunard lfnnnnar, og er talið
hið stærsta skip, sem nú siglir
nokkurn sjó. Skip þetta cr ^'75
feta langt, 72| fet á breidd og 97
feta djúpt frá kyli upp að dekkbrú.
Svo eru reykháfarnir gildir, að 2
strætisbrauta vagnar geta staðið
samhliða í hverjum þeirra. Þessir
reykháfar eru 150 feta háir. Bolt-
arnir, sem þurftu til að negla sam-
an stálplötur skipsins, vógu 600
tons. Skipsskrokkurinn að utan
er jafn 3 ekrum ummáls. Skipið
ber 30,000 tons og 3l00manns, auk
skipshafnarinnar, sem er550 menn.
Skip þetta er með þeim allra hrað-
skreiðustu skipum, sem nú ganga
yfir Atlantshaf.
Jarðskriða féll á hús eitt f Inns-
bruck, Austurrfki,ogvarð6 bömum
að bana. Annað fólk var í húsinu
en náðist úr þvf lifandi þegar
húsið var grafið úr rústum skrið-
unnar.
— Port Arthur bær í Ontario,
lætur nú strætisbarutavagna sfna
ganga á sunnudögum, jafnt og öðr-
um dögum, ekki aðeins um göt-
urnar f Port Arthur heldur einnig
f Fort William, í trássi við bann
borgarstjórans þar. Út af þessu
er talið víst að mál muni rfsa milli
bæja þessara. Það verður fióðlegt
að athuga hvernig þvf líktar.
— Mrs Chadwick, sem verið
hefir fyrir rétti í Cleveland um
nokkura undanfarna daga, fyrir
skjala fölsun og peninga svik, hefir
verið dæmd cek. Dómur er enn
ekki fallinn f máli hennar.
— Rússastjórn hefir rekið' 40
þúsundir manna frá atvinnu við
vopna og skotfæra verksmiðjur sfn-
ar, og sett hervörð til að gæta verk-
stæðanna Orsök til þessa er sú,
að stjórnin er orðin leið á verkföll-
um þéim sem menn hennar hafa
verið að gera svo að segja
stöðugt í sl. ár, og af því hún vill
með engu móti sinna pólitiskum
kröfum mannanna. Ospektir
nokkrar hafa orðið út af þessu.
5 verkfallsmenn voru skotnir til
bana og 15 særðir. Kröfur mann-
anna eru meðal annars, að stjórn-
in geri alt land að þjóðeign, sömu-
leiðis iðnaðar stofnanir og að rit
og málfrelsi verði tafarlaust viður-
kent af stjórninni.
— Maður f Brantford, Ont. sem
f sept. 1903 svfvirti og myrti 9 ára
gamalt stúlkubarn, var í sl. viku
dæmdur í æfilangt fangelsi og til
75 vandarhagga-h/ðingar, hengdi
sig í fangelsinu daginn eftir að
hann var dæmdur.
— Alexander Martin í Toronto
var Ifflátinn 10 þ.m. fyrir að drekkja
syni sfnum, fárra mánaða gömlum,
f Ontario vatni þann 3. ágúst s. 1.
Hann meðgekk að sfðustu glæpinn.
Skeyti var sent til Edwards kon-
ungs og hann beðinn að náða mann-
inn, en það hafði engin áhrif.
—Lögreglan f Marseilles á Frakk-
landi náði nýlega 6 rússneskum
anarkistum, sem voru meðnefndar-
menn uppreistar nefndarinnar í
Moscow. Skjöl þau, sem fundust á
mönnum þessum, sýndu að þeir
höfðu r.mboð frá uppreistar-nefnd-
inni til að drepa Grand Duke Alex-
is og Vladimir, náfrændur keisar-
ans, og að þeir hefðu átt að fara frá
Marseilles f þessa di ápsför 2 dögum
eftir að þeir voru handteknir. —
Þetta er prógram anarkista um all-
an heim: dráp, dráp!
— 80 ára gamall maður fanst ný-
lega standandi uppréttur með staf
f hendinni nálægt heybólstri úti á
landi f grend við bæinn Syracuse í
N. Y. rfki. Hann var frosinn og
löngu dauður, er hann fanst.
— H. A Mullins, fyrrum þing-
maður í Manitoba þinginu fyrir
Dauphin kjördæuaið, seldi nýlega
66,500 ekruraf landi f Alberta fyrir
Cochrane landfélagið, til Banda-
ríkja auðmanna, fyrir $400,000.
— Kona f St. Lousis. sem tveir
læknar og ein hjúkrunarkona sögðu
dauða og gáfu vottorð uui það, er
enn þá lifandi. Skyldmenni kon-
unnar töldu efa á danða hennar og
fengu læknir til þess að sprauta
saltblöndu inn í æðar hennar, og
það lffgaði hana við, svo hún er nú
á.góðum batavegi.
— Uppreistarmenn íChornigoff,
Oreland og Kurslo héruðunum á
Rússlandi, æða nú með báli og
brandi yfir landið, brenna stóreign-
ir og ræna öllu, sem hönd á festir.
Eitt sykurgerðar verkstæði brendu
þeir upp til ösku, og er sá skaði
metinn eigendunum 44 millfón doll-
ars. Stjórnin hetír sent herafla inn
í þessi héruð til þess að verja Iff og
eignir fbúanna þar. En brennn-
vargar þessir ferðast um alt í smá-
hópum, svo ekki er hægðarleikur
að festa hönd á þeim. Eldunum
heldur stöðugt áfram.
— Eldur kom upp í stórhýsi einn
f St. Paul, þ. 13. þ.m., og gerði 80
dollara eignatjón.
— Stórhýsi f New York borg,
sem yfir 2 hundruð manna bjuggu
í, brann til ösku þ. 14. þ.m. Nítján
manns brunnu þar inni f augs/n
fjölda fólks, sem ekki fékk bjargað
þeim. En yfir 40 brunnu til skemda,
þó flestir þeirra séu lfklegir að halda
lífi. Það er álitið, að eldur- þessi
liafi verið af völdum brennivarga.
—Methodista prestur nokkur, J.
F. Cordova, í New Jersey, var n/-
lega dæmdar fyrir að yfirgefa konu
sína og 3 börn þeirra hjóna og fyrir
að strjúka burt með ungfrú einni,
Julia Browne. Þessi sami prestur
er nú á ný fyrir dómi fyrir að hafa
barið konu sfna.
— Borgarstjóri Wm. Godwin í
Steelton, Ont., hefir verið sviftur
öllum borgara-réttindum um 8 ára
tíma fyrir að taka ólöglegan þátt í
Ross kosningunum 1 Ontario f
vetur.
— Jafnvel Þjóðverjar, sem ann-
ars hafa verið Rússum hlyntir í
viðureign þeirra við Japana, frá því
fyrsta, eru nú f blöðum sínum farn-
ir að kalla þá, “frændur vorir, Jap-
anar.” Þetta er það sama, sem
landar vorir f Reykjavfk tóku upp f
fyrra. Það má ætla, að “ frænd-
þjóðunum” fjölgi eftirþvf sem Jap-
anar vinna fleiri og frægri sigra á
Rússum.
— Sextíu ára gamall ekkjumaður
fanst frosinn f hel í húsi sfnu f St.
Thomas, Ont., þ. 12. þ. m. Hann
var síðast séður daginn áður, þá
blindfullur, liefir eflaust sofnað 4
gólfinu og látist þannig. Kona
manns þessa fraus á lfkan hátt í
hel í sama húsinu fyrir 2 árum.
— Herra Marconi sk/rði frá þvf
í Lundúnum þ. 9. þ. m , að hann
hafi uppgötvað n/ja aðferð við mót-
töku loftskeyta. Áður var að eins
hægt að veita móttöku 24 orðum á
mfnútu, en nú með þessari nýju að-
ferð getur hann veitt móttöku 100
orðum á mfnútu. Orðin færast úr
loftinu á borð eða ræmu úr ein-
hverju þar tilgerðu efni, og þarf
ekki að sinna þvf verkfæri öðruvfsi
en að setja n/ja ræmu í það jafnótt
og sú fyrri tekur enda.
— Innflutningur frá Austurfylkj-
nnum til Manitoba og Norðvestur-
landsins er nú hafinn fyrir fulla al-
vöru. Um tvö þúsund manns komu
hingað frá Ontario í sfðastl. viku.
Það fólk alt ætlar að taka sér ból-
testu hér vestra.
— Sextfu og tvær bænarskrár,
undirritaðar af hundrnðum þúsunda
manna, hafa verið sendar Laurier
stjórninni tilandmæla móti sérst "'k-
um skólum hér í Vesturlandinu.
Líklegt er talið, að stjórnin neyði
ekki lögum þeim gegn um þetta
þing.
— Brú yfir Los Angelos ána í
Califomfu féll niður þ. 13. þ.m., og
með henni 14 manns, er allir drukn-
nðu. Flóð var í ánni og þyrftist
fólk að henni til að sjá vatnsgang-
inn, en að eins þessir fáu voru úti
4 henni, er hún féll. Búist er við,
að áin muni brjóta af sér fleiri brýr,
og hefir því lögreglan verið sett á
vörð til að gæta þess, að eagin um-
ferð sé nm þær, þar til hættan af
völdum flóðsins er um garð gengiu.
Einnig hefir orðið 200 þús. dollara
skaði á tveimur hafnarstöðum þar f
rfkinu. Lestagöngur á jámbraut-
um hafa stansað 4 snmum stöðum
og tal- og fréttiþræðir skemst.
— Sir William Macdonald hefir
gefið 2 millfónir dollara til að bæta
alþýðumentun og æðri mentun í
Quebec fylki. Þar með eru taldir
búnaðar og verkfræða skólar, einn-
ig skólar til að kenna náttúrufræði,
Anðmaður þessi lætur þess getið,
að sjái liann góðan árangur af gjöf
sinni, þá sé hann þess albúinn að
gefa Quebec fylki aðrar 2 millíónir
llara til þess að stækka enn meir
rksvið þessara kenslustofnana.
— Málaþras og verzlunarkepm
milli stór-kjötverzlara í Chicago er
nú á dagskrá. Fimm stærstu kjöt-
salar borgarinnar hafa myndað ein-
okunarsamtök með þeim ásetningi,
að eyðileggja kjötverzlun 26 ann-
ara stór-kjötsölufélaga þar f borg-
inni. Rannsókn f máli þessn á að
hefjast þar f dag, og blöðin segja,
að 3 millfónir dollara hafi þegar
verið lagðar f sjóð til þess að stand-
ast kostnað við þá rannsókn, svo
að almenningur fái að vita, hvemig
þessir 5 stóru einokendur hagi
verzlun sinni og hvers konar áð-
ferð þeir beiti til þess að eyðileggja
þá 26 kaupmenn, sem vilji selja
vörur sfnar með sanngjörnu verði.
— Dominion-stjórnin hefir sett
þingnefnd til aðrannsakastarfsemi
telephone félaga 1 öllum pörtum
Canada og lög þau, er þau vinna
undir f hinum ýmsn fylkjum. Sir
W. Mulock lét þess getið, að hann
áliti rétt, að félög þessi væra índir
umsjón rfkisstjórnarinnar.
— Frá Ottawa kemur frétt um,
að Bandarfkjastjórn hatí gert tilboð
um að kaupa út fiskiveiða-réttindi
Canadamanna í Bæringssjó, og sé
fús til að borga 3 millíónir dollara
fyrir það. Mál þetta er sagtað bráð.
lega muni rætt verða af ráðaneyti
Lauriers, en ekki talið liklegt, að
boðið verði þegið.
— Arabiskir uppreistarmenn
náðu á sitt vald í sl. viku bænum
Sahas f Yemen héraðinu. 5,000
hermenn, sem þar voru, gáfust upp
fyrir uppreistarmönnum.
Fiisteigiiasala
Lag: L'ifið d bauk tr sto iiómandijiott
I Mdntyre höllinni margt gengur á,
Magnús og Kristján þar g/juna slá.
Nætnr og daga er dynjandi ös,
dalirnir liggja sem fiskur í kös.
Hallir og kofa, og lóðir og lönd
1/ðnum þeir selja mót borgun í
hönd;
hjá þeim er viðskifta vegurinn
. hreinn,
verðið svo lftið, það munareineinn.
I Mclntyre höllinni margt er að sjá
mikil er ösin þeim félögum hjá.
Tveir, einn og nfu er númerið það
nú sem að drengirnir lialla sér að.
MARKUSSON &.
BENEDICTSSON
Skrifstofa: SÍI9 Mclntyre Block.
Telephone 2986.